Fjallkonan - 15.02.1898, Side 4
28
FJALLKONAN.
XV 7.
sé það kunngert, að vér erurn komnir
saman til að syrgja burtför hennar; vér
höfum mist góðan og duglegan félaga;
gagnlegr félagi er horfinn íir félagi voru.
Þvi er samhrygð vor hér með kunngerð
hinu særða ættfólki hennar.
Og sé það enn fremr kunngert, að eitt
eintak af þessari auglýsing sé fengið
vandamönnum hinnar látnu, og að tún
verði rituð í bækr stúkunnar, og sömu-
leiðis birt í blöðum þeim er koma út
hér í bænum.“
Peary norðrheimskautsfari hélt í
desember f. á. fróðlegan fyrirlestr í land-
fræðifélagi í London. Alt mið-Grænland
sagði hann, væri samfeld snjóeyðimörk,
Sahara norðrheimsins, svellbreiða eða ís-
jökull einn þakinn snjó, sem er misþykkr
eftir þvi, hvort logn er eða vindr; ef
hvast er verða skaflarnir einatt 30 metra
háir. Yfir Grænland sé eini vegrinn sem
komizt verði til norðrheimskautsins.
Hann heldr, að Eskimóar þeir er búa við
Hvalasund sé upphaflega komnir frá Si-
beríu yfir sundið þar og komnir af Kín-
veijum.
Gullaflinn árið sem leið er metinn
238 milj. doll. Hlntr Bandaríkjanna í
því fé 60 milj., eða fullr ’/<•
Kínverjar eru farnir að temja her-
lið Bitt eftir hætti Evrópu þjðða, og eru
þýzkir hermenn kennarar þeirra í þeirri
grein og láta vel yfir framtör þeirra.
Fullnuma eru þar 8000 manna. Enn ekki
kemr það Kínaveldi að haldi, úr því
skifting þess milli Evrópu þjóða er kom-
in á dagskrá.
Skurðr milli Eystrasalts og
Svartahafs. Rússastjórn hefir í hyggju
að gera skípgenga leið milli Eystrasalts
og Svartahafs, frá Riga til Cherson, með
skurði, sem tengir saman árnar Diina,
Beresina og Dniepr. Hann á að vera 65
metra breiðr, 36 metrar niðr við botn,
dýptin 81/2 metr. Lengd þessarar vatna-
leiðar verðr rúmar 200 mílur, og mun
taka 6 sólarhringa að fara hana. Frum-
drögin til þessa mikla mikla mannvirkis
eru þegar samþykt af stjórninni, og er
kostnaðr talinn 400 milj. króna. Full-
gert á það að vera 1902. Skipaleið þessi
verðr mjög þýðingarmikil bæði fyrir verzl-
un og á ófriðartímum.
Reykjavík.
Fréttir úr liöfuðstaðnum:
Bæjarstjórn Reykjavíkr hafði ákveð-
ið að kaupa hitunarvél í hið fyrirhug-
aða barnaskólahús Reykjavíkr, enn hefir
síðar snúizt hugr og samþykt þvertofan
í sjálfa sig, að hafa fjölda af ofnum i
skólanum i staðinn, sem verðr margfalt
dýrara og óhagkvæmara, að þeirra manna
dómi, sem betr hafa vit á því enn bæjar-
stjórnin.
Það er kominn tími til að fara að
leggja niðr hina mörgu ofna og hafa
einn ofn í húsi, þar sem því verðr við
komið, eins og tíðkast i Ameríku og víð-
ar. Jafnframt þarf að útvega betri kol
enn þau, sem hingað hafa verið flutt,
svo sem harðkoi (anthraeit-kol), sem eru
miklu drýgri (hitameiri). Þau eru nú
mjög brúkuð í Noregi, og ætti kaupmenn
að vera svo framtakssamir, að flytja
hingað dálítið af þeim til reynslu.
Ágætt hvalslýsi
er til sölu hjá
Rafnl Sigurðssyni.
Horflnn járnkall. Nú veit ég
hver tekið hefir járnkallinn hjá „rull-
unni“ á Schans túni. Verði hann ekki
látinn við dyrnar í Sandvik, mun ég
benda á manninn.
W. 6. B.
Hjálpræðisherinn hér í bænum fekk
í vetr nýjan fyrirliða H. C. Bojsen, drótt-
stjóra (stabs-kaptain), sem flutti hingað
með konu og 3 börnum. Hann hefir áðr
starfað mikið fyrir „herinn“ í Danmörku,
komið hernum þar inn í yfir 50 bæi og
stjórnað mörgum stofnunum hersins.
„Kærleikssambandið“ heitir barnafé-
lag, sem dróttstjórinn hefir stofnað hér
i sambandi við herinn. í því eru börn,
sem koma saman tvisvar í viku í kast-
alanum til vinnu og bænahalds. Inn-
tökugjald er 15 aurar og mánaðargjaid
10 au. Börnunum er þar kendr heimil-
isiðnaðr (slöjd), einkum að búa til ýmsa
smáhluti úr tré, stúlkunum saumar og
hekl; sumir drengirnir eru við teiknun,
sumir að ríða fiskinet o. s. frv.
Þessi tilraun, að kenna fátækum börn-
um að vinna, er allra þakka verð, ekki
sízt hér á landi, þar sem heimilisiðnaðr-
inn er svo skamt á veg kominn, hversu
sem litið er á önnur störf „hersins".
Vandað yaðmál
Þeir sem kynnu að vilja kaupa
mjög vandað peisufatavaðmál eða
innlenda dúka eru beðnir að láta
mig vita það áðr enn pðstar fara
næst.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir.
Útgefandi: Yald. Ásmundarson.
élagaprentsmifijan.
1871 — Juhileuin — 1896
Hinn eini ekta
Brama-llfs-elixlr,
(Heilbrigðis matbitter).
í öil þau mörgu ár, sem almenningr hefir notað bitter þenna, hefir
hann rutt sér í fremstu röð sem matarlyf og lofstír hans breiðst út
um allan heim.
Honum hafa hlotnazt hæstu verðlaun.
Þegar Brama-lifs-elixír hefir verið brúkaðr, eykst öllum líkamanum
þróttr og þol, sálin endrlifnar og fjörgast, maðr verðr glaðlyndr, hug-
rakkr og starffús, skilningarvitin verða nœmari og menn hafa meiri
ánægju af gæðum lífsins.
Enginn bitter hefir sýnt betr að hann beri nafn með rentu enn
Brama-lífs-elixír, enn sú hylli sem hann hefir náð hjá almenningi,
hefir gefið tilefni til einskisnýtra eftirlíkinga, og viljum vér vara
menn við þeim.
Kaupið Brama-lífs-elixír vorn einungis hjá útsölumönnum vorum,
þeim sem fengið hafa umboð frá oss, sem eru þessir:
Akreyri: Hr. Carl Röepfner.
---- Gránufélagið.
Borgarnes: Hr. Johan Lange.
Dýrafjörðr : Hr. N. Chr. Grram.
Húsavík: Örum & Wulff s verslun.
Keflavik: H. P. Duus verslun.
---- Knudtzm’s verslun.
Reykjavík: Hr. W. Fischer.
Raufarhöfn: Gránufélagíð.
Sauðárkrókr: -------
Seyðisfjörðr: -------
Sigiufjörðr:
Stykkishólmr: Hr. N. Chr. Gram.
Vestmannaeyjar: Hr. J. P. T. Bryde. ^
Vík pr. Vestmannaeyjar: Hr. Halldór Jóns-
sm.
Ærlækjarsel: Hr. Sigurðr Gunnlógssm.
Einkenni: Blátt Ijón og gullinn hani á einkennismiðanum.
Mansfeld-Búllner & Lassen.
hinir einu sem búa til hinn
verðlaunaða Brama-lífs-elixír.
Kaupmannahöfn, Nörregade 6.