Fjallkonan - 22.09.1898, Side 1
Kemr flt um miðja viku.
Árg. 3 kr. (erlendis 4 kr.)
Auglýsingar ódýrar.
FJALLKONAN.
Gjalddagi 15. júli. Upp-
sögn skriíleg fyrir 1. ckt.
Afgr.: Þingholtsstræti 18
XV, 37.
Reykjavík, 22. september.
1898.
Ritsíminn.
Að því er séð verður af blöðunum, er úti öll
von um það, að ritsími verði bráðlega lagður til ís-
lands. Það er ilia farið, því að nú á tímum er hann
mentuðu þjóðunum eins nauðsynlegur og daglegt
brauð. Það er efamál, að þær vilji telja oss í flokki
með sér, meðan hann vantar.
Fátæktinni er kent um eins og vant er. í þetta
sinn getum vér samt farið í kringum hana. Vér
höfum íé til að kosta símann sjálfir að vorum hluta.
Þetta fé er tillagið úr ríkissjóði Dana. Það er
60,000 kr. á ári. Nú eru vextir af konunglegum
skuldabréfum 3°/0. Tillagið er þannig 3°/0 af tveim
miljónum kr., og það er einmitt upphæðin, sem gizk-
að er á að ritsiminn til íslands muni kosta. Það er
sjálfsagt, að Danir legðu til svo sem eina miljón.
Fyrir 2^/a —3 miljónir má leggja sæsíma til Reykja-
víkur og ritsíma eða raddsíma þaðan til allra helztu
verzlunarstaða á landinu. Það er sú rétta boðleið
með simann.
Sumir kunna að segja, að 60,000 kr. á ári sé
of miklu til kostað. Það er eigi svo. Síminn á að
fræða oss daglega um alt, sem gerist í heiminum og
oss er nauðynlegt að vita. En —
„að hreppa vizku hunds fyrir bein,
hugsa það enginn skyldi.
Oðinn gaf burt sinn augastein
af þvi hann fræðast vildi“.
Vér megum ekki búast við því að fá þetta samband
við umheiminn, nema með því móti, að Ieggja sjálfir
mikið í sölurnar, og oss ætti ekki að vera sárara
um tillagið en Óðni um augað. — Það er ekki held-
ur víst, að kostnaðurinn þurfi að verða svona mikill;
vonandi er að ekki þurfi að eyða öllu tillaginu; svo
svo fengi og landssjóður sinn hluta af þeim tekjum,
sem verða afgangs kostnaði, þegar fram líða stundir.
Þessi aðferð hefir þann stórmikla kost fyrir báða
málsaðila, oss og Dani, að „gleymd er goldinskuld“.
Þetta þarf ekki að verða Dönum tiifinnanlegra enn
árgjaldið er nú; þeir geta selt konungleg skuídabréf
fyrir upphæðinni.
Annar mjög mikill kostur er það fyrir oss, að
þetta eykur álit vort í augum annara þjóða, þar sem
hinar sífeidu fjárbænir eða samskot til hins og þessa
með stuttu millibili hljóta mjög að rýra álit vort.
Þess væri óskandi, að allir hugsandi menn þjóð-
arinnar, sérstaklega allir alþingismennirnir, vildu
hugleiða þetta mál nákvæmlega, bera það upp á
þingmálafundum að vori og koma því inn á næsta
þing.
I september 1898.
N. N.
Botnverpingar.
Á þessu sumri hafa Englendingar eflaust aukið
botnvörpuútgerð sína. Þeir hafa fjölgað mjög botn-
vörpuskipum sínum hér við land, og þar að auki
sent 40—50 botnvörpuskip til Færeyja og yfir 100
botvörpuskip til Noregs, og er það hvorttveggja nýjar
veiðistöðvar fyrir þá, því þeir hafa ekki verið þar
áður svo teljandi sé. Þessi fjölgun enskra botnverp-
inga á fiskimiðum vorum og í Færeyjum og Noregi
getur og líka að nokkru leyti stafað af því, að þeim
er mjög illa vært heima fyrir. Það er hvervetna
viðkvæðið á Englandi í ræðum og ritum: „The
trawls are destroying our fisheries. Clear them out.“
(Botnv. eyðileggja fiskveiðar vorar. Ryðjið þeim í
burtu).
í sumar hafa botnverpingar sem kunnugt er
hafzt við hér í Faxaflóa og iðulega aflað í landhelgi;
þó eru það að eins fáeinir brotlegir botnverpingar sem
Heimdallur heflr getað náð í, en flestir hafa þeir
haft næði til að brjóta landhelgislögin iðulega að ó-
sekju.
En botnverpingar hafa einnig verið í sumar víð-
ar hér við land enn á Faxaflóa. Þeir hafa vsrið
kringum alt land. Þeir hafa t. d. aflað daglega í
landhelgi á Húnaflóa, Skjálfanda, Axarflrði ogÞistil-
firði, og eflaust miklu víðar, þar sem' „Heimdallur“
hefir ekki einu sinni komið nærri. Meðan botnverp-
ingar vóru að veiðum í landhelgi á Skjálfanda, dag eftir
dag, lá „Heimdallur" fulla vikn á Akureyri aðgerða-
laus, og hefði þó ekki þurft nema að bregða sér um
fáar stundir burt þaðan til að finna botnverpingana
við ólöglega veiði á Skjálfanda. Það er óhætt að full-
yrða, að ef vér hefðum þá stjórn, sem væri fær um
að vernda fiskveiðar vor&r og framfylgja lögunum,
væri íslendingar orðnir eigendur að mörgum botnvörpu-
skipum, því eflaust munu eigi allfáir botnverpingar
hafa unnið til þess með lagabrotum sínum, að skip
þeirra væru gerð upptæk.
Bæði er það, að danska stjórnin er alveg mátt-
laus til að vernda oss fyrir yfirgangi botnverping-
anna og svo er vor innlenda stjórn hvergi nærri svo
á verði sem vera skyldi, enda er það ekki auðvelt
fyrir lögreglustjórn hér á iandi, að hafa hendur í hári
þessara útlendu sökudólga, þar sera margir útvegs-
menn vorir og fiskimenn hylma yflr með botnverp-
ingunum eða eru jafnvel í samvinnu við þá.
Ef landsmenn sjálfir væru ekki of hirðulausir og
tómlátir, ætti þó að vera hægt að setja lögreglu-
menn í sjávarhéruðunum, þar sera botnverpingar
stunda veiði í grend, sem hefðu strangar gætur á lög-
brotum botnverpinga og tilkyntu lögreglastjóra nöfn
þeirra skipa, sem veiddu í landhelgi. Botnverpingar,
sem voru á Skjálfandaflóa í sumar, sáu reyndar við
því, að landsmenn fengi að vita nöfn skipanna; þeir
negldu yfir skipanöfnin, svo að þeir þektust ekki.
En eflaust mætti oft komast eftir nöfnum skipanna;