Fjallkonan - 13.07.1899, Side 1
_í -J
BÆNDABLAÐ
KONAS
VERZLUNARBLAÐ
Kemur út um mi»ja viku. Yer9 árg. 3 kr. (4 kr. erlendisj. Uppsogn (ógild nema skrifleg) fyrir 1. okt.
Sextándi árg.
Reykjavík, 13. júlí 1899.
28. blað.
Þjóöbanki
eða
hlutafélagsbanki.
I.
Viðskiftavandræðin og peningaleysið hér á landi
fer veranandi ár frá ári. Þetta stafar auðvitað að
miklu leyti af lækkandi verði á flestum íslenzkum
afurðum, sem aftur er að kenna því, að íslenzkar
vörur geta ekki kept við útlendar vörur á heims-
markaðinum.
Úr peningaskortinum hefir mönnum hugsast að
bæta með því, að stofna sérstaka veðlánadeild í
landsbankanum, eins og Halldðr bankagjaldkeri Jóns-
son hefir ritað um. Stjórnin hefir nú lagt fyrir
þingið frumvarp um stofnun þessarar veðdeildar, sem
á að geta veitt lán um langt árabil gegn veði í fast-
eignum. Því miður mun frumvarpið ekki vera svo
úr garði gert, að þingið geti samþykt það nemameð
miklum breytíngum, og er þá líklegast, að það geti
ekki komist í kring á þessu þingi. Og þó lög yrðu
samþykt um þessa veðlánadeild, sem að eins á að
ráða yfir rúmri miljón króna, yrði það víst skamm-
góður vermir. öllum, sem ég hefi heyrt minnast á
það, ber saman um, að þessi veðdeild muni ná skamt
til að bæta úr peningaskortinum, og endurskoðari
Indriði Einarsson segir, að veðdeildin muni lána út
allan forða sinn á 6—8 mánuðum.
Hér verður því að öllum líkindum að eins að ræða
um stundar-umbót.
í öðru lagi hefir kaupmaður Páll Torfason frá
Flateyri gengist fyrir því erlendis, að stofnaður verði
hlutafélagsbanki eða þjóðbanki fyrir ísland. Hann
hefir fengið í lið með sér áreiðanlega menn, og næg
vissa er fyrir því, að peningarnir eru á reiðum hönd-
um, ef á þarf að halda. Frumvarp um stofnun þessa
banka er þegar lagt fram á þinginu og hljóðar svo:
„Til frekari umbóta á fyrirkomulaginu um pen-
ingamál íslands, sem lög 18. sept. 1885 miða að, og
til þess enn fremur að greiða fyrir og efla framfarir
í verzlun, fiskiveiðum, iðnaði og búnaði landsins, er
ráðaneytinu heimilað að veita félagi, sem þeir
hæetaréttarmálaflutningsmaður Ludvig Arntzen, R. af
D., og stórkaupmaður Alexander Warburg, báðir í
Kaupmannahöfn, standa fyrir, og Bem myndað er til
þess að stofna hlutabanka, er nefnist „íslandsbanki",
einkarétt um níutíu ára tímabil til þess, að gefa út
seðla, er greiðist handhafa með gullmynt þegar
krafist er — með þeim nánari skilyrðum, sem hér
segir:
1. Almenningur á íslandi skal látinn sitja fyrir
því, að skrifa sig fyrir hlutum í bankanum, aunað-
hvort með því að borga hlutaupphæðina í peningum
með ákvæðisverði, eða með því, að gefa út skulda-
bréf fyrir hinni sömu upphæð með 1. veðrétti í fast-
eignum á íslandi, er þó nemi ekki meira en 20°/0
af virðingarverði fasteignanna og gefi 4#/0 ársvexti,
enn greiðsla á vöxtum þeim skal trygð af landssjóði.
Skuldabréfin mega að eins nema heilum hundruðum.
Útgefendur þeirra og seinni eigendur fasteigna þeirra,
sem ræða er um, mega, eftir vild, hvenær sem þeir
vilja, borga lánið með peningum með sex mánaða
uppsögn í 11. júní og 11. desember-gjalddaga. Þá
er skuldabréf er borgað, getur sá, er í hlut á, kraf-
ist kvittunar eða yfirfærslu til sín.
2. Þeir sem einkarétturinn veitist skulu skyldir
að útvega með ákvæðisverði jafnmikla hlutaupphæð
þeirri, sem íslendingar leggja fram samkvæmt l.gr.,
þó ekki meira enn svo, að hlutaféð nemi fyrst um
6 miljónum króna alls.
3. Heimiit ekal bankanum vegna veðskuldbindinga
þeirra, sem hann tekur á móti samkvæmt 1. gr., að
gefa út bankaskuldabréf, sem nemi sömu upphæð og
sem trygð sé með hinum nefndu veðskuldbindingum.
Nú eru skuldabréf þau, sem 1. gr. ræðir um, inn-
leyst, og skal þá jafnmikil upphæð af þessum banka-
skuldabréfum einnig leyst inu, að undangengnu hlut-
kesti, með peningum eftir ákvæðisverði.
4. íslandsbanka skal heimilt, eftir því sem við-
skiftaþörfin krefst, að gefa út seðla, er greiðist hand-
hafa með gullmynt, þegar krafist er, gegn því að
bankinn
1) hafi í vörzlum sínum málmforða, er nemi því
verði, er seðlar bankans, þeir sem úti eru, samtals
fara yfir þá hlutaupphæð, sem innborguð er aðfuUu,
og skal málmforðinn aldrei nema minna verði enn
*/8 af því fé, sem hin nefnda seðlaupphæð hljóðar á;
2) hafi vissa og auðselda eign til tryggingar þeim
hluta seðlafúlgunnar, sem ekki er trygður með málm-
forðanum, þannig að verð eignarianar í hlutfalli við
seðla sé 150 kr. fyrir hverjar 100 kr. í seðlum.
5. Til málmforða má teljast:
a) lögleg gjaldgeng mynt eftir því verði, sem
myntin hljóðar á;