Fjallkonan - 16.06.1900, Síða 3
FJALLIK'ONAN.
3
Þar er grein um „nútímann og trúarlíflð“.
Hún er á danskri íslenzku eins og ritið alt.
Þar talar meistarinn meðal annars um „hjarta-
lausar(I) kenningar“. í þýddri grein í sama bl.
stendur: „Ef guð vildi flytja mennina með öll-
um þeirra syndum inn í himnaríki, svo væri
öll veröldin reiðubúin til þess“. Llkt mál þessu
er að mig minnir á Sturms hugvekjum, og hefir
þýðandinn að líkindum haft þær til fyrirmyndar.
Síðast í þessn blaði vitnar meistarinn í Saka-
rías í 23. kap. Eftir því hlýtur hann að hafa
öðru vísi biblíu en hina almennu, líklega álíka
aukna og Mormónabók, því í Sakarías eru ekki
nema 14 kapítular.
í öðru tölublaðinu fræðir meistari Östlund oss
meðal anuars um „transsubstiations kenningu".
Þetta mun eiga að vera „transsubstantiations
kenningin“. Svo kemnr meira af viðlíka latínu:
semper ladem, sem vonandi er að meistarinn
skýri fyrir fáfróðum lesendum betur en hann
hefir gert.
Þriðja tölubl. bls. 22: „Stepánitsch, svo hét
gamli hermaðurinn, var látinn vera hjá kaup-
manninum“ o. s. frv. Þetta er ekki íslenzka.
— Bls. 23: „Meðan ég var að hugsa um þetta
kom svefninn yfir mig, og svo heyrði ég ein-
hvern hrópa á mig“. Ekki íslenzka. — Bls.
24. Sjóndeyfð getur í mörgum tilfellum gefið
sig(l) með því að hætta tóbaksnotkuninni". Eng-
in íslenzka og alveg óskiljandi mál.*
Þessi dæmi eru að öllu leyti tekin af handa-
hófi, og má auðvitað finna mörg siík á hverri
blaðsíðu.
í fjórða tölublaði hefst ritgerð móti (Verði
ljós’ og hinni nýju biblíu-„kritik“, því eins og
kunnugt er, eru aðventistar einhverir hinir
mestu bókstafaþrælar og fjendur allrar frjálsr-
ar rannsóknar.
í þessn tölublaði ætlar Östlund að bjarga
bókstafatrú sinni með því að vitna til ritgerð-
ar eftir séra Friðrik Bergmann í „Aldamót." IH.
ári, og segir hann að séra Friðrik segi að engar
mótsagnir séu í biblíunni. En séra Friðrik er
sérstaklega að ræða um mótsagnir sem settar
eru fram í ameríksku riti, sem heitir „The Con-
tradictions of the Bible“, og síðan segir hana
(og það tekur Östlund upp eftir honum):
„Eg hefi nú tekið nokkrar af þessum svo köll-
uðu mótsögnum af handa hófi, og vér höfum
komist að þeirri niðurstöðu, að þær væru eng-
ar mótsagnir. Gamla testamentið verður al-
drei felt úr gildi með slíkum mótsögnum, þótt
þær væru settar i mílu-langa dálka hver gagn-
vart annari“.
í staðinn fyrir að séra Friðrik segir að þær
(þessar einstöku mótsagnir sem hann er að tala
um) væru engar mótsagnir, lætur Östlund hann
segja að þar (í biblíunni) væru engar mótsagn-
ir. En ekki er nóg með það, að þessi tilvitn-
un er fólsuð, heldur sleppir Östlund málsgrein
þeirri, sem hér fer á eftir hjá séra Friðrik.
Hún sýnir, að séra Friðrik er á slt annaii
skoðun, og að Östlund fer með vísvitandi ósann-
indi, þar sem hann ber séra Friðrik fyrir því
að þar (í biblíunni) séu engar mótsagnir.
Hvað segir svo séra Friðrik í næstu línum
á eftir? Hann segir svo:
„Eru þá alls engar mótsagnir til í biblíunni?
O-jú, ég skal ekki leyna því, að mér finnast
þær vera til — og það mótsagnir þess eðlis
að litlar eða engar líkur eru til að þær verði
Ieystar“.
Síðan segir séra Friðrik, að þessar mótsagn-
ir séu fremur þýðingarlitlar, en hafi þó ofur-
litla þýðingu fyrir þá aem trúa því að hver
einasti bókstafur biblíunnar sé af guði, en þeir
séu tilíölulega fáir sem því trúi, og meðal
þeirra telji hann hvorki sjálían sig né sitt
kirkjufélag.
Meistari Östlund mun þykjast hafa gefið
„trúlega gaum að því, hvað satt er og sóma-
samlegt, hvað réttvíst er og dygðugt og lofs-
vert, þegar hann var að skrökva því upp að
séra Friðrik Bergmann hóldi því fram, að eng-
ar mótsagnir væru í biblíunni.
Enginn samvizkusamur maður mundi hafa
leyft sér að breyta þannig orðum, sem tekin
eru úr prentuðu riti, og fella þar að auki burt
úr þeim heilar málsgreinir, svo að meiningin
yrði öfug, eins og hr. Östlund hefir gert.
Þetta er siðferðisleg afturför í íslenzkum rit-
höfundskap. Fá dæmi munu vera til þess hér,
að menn skrökvi þannig upp orðum annara höf-
unda, sem standa á prenti, þegar hver roaður
getur sannfærst um ósannindin. — En altmun
vera á sömu bókina lært hjá hr. Östlund, eins
og síðar mun sagt verða.
Bifhog'tXog.
Bátaútvegur.
Um bátaútveg í Noregi og Svíþjóð hafa
fyrir skömmu staðið ritgerðir í norskum og
sænskum blöðum, sem vert er fyrir íslend-
irga að veita eftirtekt.
í báðum þessum ritgerðum er það tekið
fram, að bátfiski sé að hætta meir og meir.
Menn hafa orðið að sækja dýpra til að ná í
fiskinn og þá hafa hinir opnu bátar ekki dug-
að. Hefir þá verið farið að byggja stærri
báta með fullkomnu þilfari, en með því að
þessi þilskip hafa ekki reynst vel, hafa menn
alment keypt „kúttara“ frá Englandi og Skot-
landi, og fengið þá með góðu verði, síðan
farið var smám saman að taka þar upp eim-
skip til fiskveiða í stað seglskipanna. Þessa
kúttara segja þeir nokkurn veginn örugga.
En jafnframt segja þeir að útvegur á opnum
bátum sé að mestu hættur, og að menn séu
hættir að fara að heiman í verið eins og áð-
ur hafi verið títt.
Þessir höfundar tala báðir um, að mesta
nauðsyn sé á, að vanda betur opnu bátana að
gerð og búnaði, því að bátaútvegurinn megi
alls ekki hætta. Menn kunna nú að segja, að
þessir menn séu ekki sjómenn, og hafi ekki
vit á þessu máli, en annar þeirra er Magnús
Anderson, sem fór við annan mann á opnum
báti yfir Atlantshaf að einkis manns dæmi,
og mun enginn geta neitað þvi, að hann só
sjómaður og muni hafa vit á lögun báta og
og öllum útbúnaði, en hann kveður því mjög
ábóta vant í Noregi, þó norskir bátar hafi
lengi þótt góðir.
Svíinn kvartar um það, að svo fair af fiski-
mönnum og sjómönnum kunni sund. í Sví-
þjóð segir hann að drukni um 1000 manna á
ári, og só þessi slys oft að kenna því að
menn kunni ekki sund. Ef maður, sem ekki
kann að synda, dettur í sjó, sekkur hann oft-
ast til botns fyrir hræðslu sakir en annars
ekki. Yill hann láta kenna sund í öllum al-
þýðuskólum og einkum vill hann láta kenna
að fleyta sór í fötunum og afklæða sig í vatni,
og að ekki megi ráða sjómenn nema þeir sýni
námsvottvorð um sundkunnáttu.
Ef lagið á bátunum* yrði bætt eins og hægt
er og sund yrði alment kent, mundu miklu
færri drukna í sjó.
Til þess að efla sjávarútveginn bendir þessi
höfundur á ýms ráð.
Fyrst leggur hann til að veitt verði vaxta-
laus lán til bátakaupa, netja og annara veið-
arfæra og megi þá ekki heimta of harðar
tryggingar. Enn fremnr leggur hann til, að
duglegir fiskimenn séu fengnir til að kenna
almenningi að leita sór þessarar bjargar. En
þeir verði þó sjálfir að vinna með þeim sem
þeir eigi að kenna og þola súrt og sætt með
þeim.
Hann vill láta veita verðlaun fyrir sela-
dráp, og auk þess vill hann láta stjórnina
gera út menn til selaveiða.
Loks leggur hann til að stjórnin veiti verð-
laun og heiðursmerki þeim mönnum, sem skara
fram úr öðrum í bátaútvegi.
Skarlatssöttin.
Eins og sjá má af hinni greinilegu ritgerð
Guðmundar héraðalæknis Björnssonar hér i blað-
inu, hefir skarlatssóttin komið upp aftur hér í
bænum, og hefir nú lagzt í henni ank manns
þess, sem læknirinn skýrir frá, barn á 6. ári á
Melstað vestast í bænum. Má því miður bú-
ast við, að ekki hepnist að stöðva útbreiðslu
hennar, þó treysta megi þvi, að héraðslæknir-
inn geri alt sem hann getur í því efni.
Líklegast er að veikin sé nú hingað komin
beint frá útlöndum, en ekki sunnan með sjó,
þaðan sem hún gekk í vor. Hún hefir verið
óvenjulega tíð í Kaupmannahöfn í vetur.
Ný fregn.
1 dag (16. júní) kom liingað kraðboði
ofan úr Borgarfirði með þá fregn, að skar-
iatssóttin sé komin upp í Borgarnes og í
Bakkakot í Borgarfirði, en þar býr Jó-
kann bóndi Björnsson, og eru miklar líkur
til að kann kafi flutt sóttnæmið með sér
þangað sunnan úr Höfnum. llann var þar
á vertíðinni og liafði mikil viðskifti við
botnverpinga.
Yonandi að yfirvöldin reyni einnig til að
stemma stigu fyrir útbreiðslu veikinnar þar efra.
Yesturfarir. Mesti fjöldi af vesturförum er
nú kominn hingað til bæjarins, einkum úr nær-
sýslunum. Þar á meðal er Halldór Daníelsson,
alþingismaður Mýramanna, Jóhann Guðmunds-
son bóndi frá Stangarholti, einn af efnuðustu
bændum þar um slóðir og margir bændur fleiri.
Sumt eru gamalmenni og ein örvasa kona var
flutt á kviktrjám, hvernig sem hún kemst vest-
ur. — Ameríku-blöðin íslenzku segja að héðan
muni fara í sumar um 700 manus.
Maunalát. í maí lézt að Melum í Hrúta-
firði Jbn bóndi Jónsson, sonur Jóns sýslumanns
á Melum, á áttræðisaldrl. Kona hans sem lifir
hann, er Sigurlaug Jónsdóttir Ólafssouar frá
Helgavatni, og meðal barna þeirra, sem á lífi
eru, er Jón prófastur Jónsson að Stafafelli og
og Ingunn kona Björns alþingismanns Sigfús-
sonar á Kornsá. — Jón bóndiáMelum varíröð
merkustu bænda.
Nýdáinn er og sagður Jón bóndi Þorkels-
son á Svaðastöðum i Skagafirði, ríkasti bóndi
á landinu, hniginn að aldri. Átti yfir 100 þús.
kr. eignir, ogfundust eftir hann að sögn 60 þús.
krónur í gullpeningum.
4. júní lézt húsfrú Þórunn Sveinbjörnsdótt-
ir á Þorfinnsstöðum í Önundarfirði, kona Guð-
mundar hreppstjóra Eiríkssonar.
Dánir í Reykjavík:
17. apríl Ingiríður Gísladóttir, Bjúklingur á Lauganes-
spítala, ógift (53). — 26. Vigfús Brlendsson, sjúklingur
á Laugarnesspítala, kvæntur (51). — 3. maí Ástríður Ey-
vindsdóttir, ógift stúlka í Eyvindarholti (18). — 17. Mál-
fríður Einarsdóttir, ógift stúlka á Laugavegi (21). — 19.
Lydia Angelika Magnúsdóttir, ógift stúlka, Skólavörðustíg
(16). — 19. Eósa Sveinsdóttir, ungbarn, Vesturgötu(ál).
— 22. Þorvaldur Sveinsson, ungbarn, Vesturgötu (á 1).
— 22. Þorsteinn Bjarnason, ókvæntur, húsmaður í Veg-
húsum (54). — 24. Agnes Narfadóttir, ógift, Laugarnes-
spítala (29). — 29. Þuríður Þorkelsdóttir, ungbarn,
Olafshúsi við Bjargarstíg (á 1). — 30. Jón Ólafsson, ó.
kvæntur lausamaður, frá Lónakoti, dó á Bútsstöðum (54).
— 31. Sigurbjörg Níelsdóttir frá Vatnsenda I Seltjarnar-
neshreppi, dó á sjúkrahúsinu (17). — 31. Björg Þórðar-
dóttir ekkja, i Stýrimannaskóiahúsinu (86). — 31. Þóra
Gísladóttir ekkja, í Mjóstræti (68). — 31. — 1. júní
Þorsteinn BjörnsBon, sjómaður frá Vatnsleysu, kvæntur
(41). — 1. Guðrún Gísladóttir gift kona í Skild-
inganesi (56). — 1. Ólafur Sveinar Haukur Benediktsson
kvæntur bóndi á Vatnsenda (27). — 2. Pétur Holm Frí-
mann Kristinn Pétursson, barn Laugaveg (á 1). — 3.
Jóhann Guðmundsson, kvæntur þurrab. í Sundi í Kasthúsa-
hverfl (38). — 3. Sigurbjörg Sigurðardóttir, ekkja í
Vaktarabæ (77). — 3. Hólmfríður Guðmundsdóttir, ekkja
á Bræðraborgarstíg — 3. Ingiríður Einarsdóttir, ekkja í
Lindargötu (72). — 7. Þórður Gíslason, Laugaveg nr. 27
(11). — Guðmundur Sigurðsson skipstjóri, kvæntur, Ný-
lendugötu (27). — 8. júní Gestur Sigurðsson, sjómaður,
kvæntur, úr Garði. — 8. Sigurður Sigurðsson, sjómaður
frá Butru. — 8. Ólafur Sigvaldi Ebenesersson, sjómaður.
(18) — 9. Guðrún Árnadóttir, barn Árna Árnasonar í
Hansbæ við Bakkastíg (á 1). — 9. Þórunn Jónsdóttir,
kona i Báðagerði á Seltjarnarnesi (49). 10. Jónína Sigríð-
ur Sveinsdóttir, dóttir þurrabúðarmanns í Vesturgötu (8). —
10. Margrét Jóhannsdóttir, ógift, Bergstaðastræti (28). —
11. Sigríður Magnúsdóttir Waage, Pósthússtræti. (65).