Fjallkonan - 31.05.1901, Side 2
9
með vöxtum sér skilvíst hún skilar frá
i ilmandi grösum og angandi blómum.
Já — útlent er stofnfóð í þeim banka,
en á þvi sáu þó fáir hanka.
Hvítasnnnndag, 1901.
Jón Ólafsson.
Laust prestakall. Staður i Súgandafirði
(608). _____________________
Veðrið iiefir nú um nokkra daga verið ó-
venjulega hlýtt, 16—20 stig á Celsius í skugg-
anum (einna mest á hvítasunnu, 26.—27.
þ. m., yfir 20° C.). — Útlit fyrir bezta gras-
vöxt.
Prestkosning fór fram að Staðastað 16.
maí og var sóra Vilhjálnmr Briern kosinn með
ölium atkvseðum sem greidd vóru.
Álþingiskosning. í fyrra fórst kosningin
í Strandasýslu fyrir vegna óveðurs, og var
því frestað tii vors. Þar var nú kosið 21.
maí, og kosinn eins og vænta mátti Ouðjón
Giiðlangsson á Ljúfustöðum, með 46 atkv.
Auk þess var i kjöri Ingimundur Magnússon
i Snartartungu (ekki Snartastöðum sem i e-u
blaði stendur) og fókk 19 atkv. Aðrir buðu
sig ekki fram.
íslenzkt botnvörpuskip. Kaupmaður W.
ó. Breiðfjörð hér í bænum hefir orðið til þess
fyrstur Íslendinga að eignast botnvörpuskip.
Það er um 100 smálestir, og á hann það einn,
og er það þegar lagt út á veiðar. Skipstjóri
Þórarinn Jónsson, en veiðistjórinn enskur.
Er nú svo að heyra, sem hljóðið í þeim
mönnum, sem aldrei hafa viljað viðurkenna
dugnað Breiðfjörðs kaupmanns, só eitthvað
breytt, og eru þeir farnir að tala um hans
„óalgengu framtakssemi og ötulleik“.
Ilákarlaveiðar eru nú að hætta að sögn
sunnanlands, af því að þær svara varla kostn-
aði.
Norðanlands halda þær enn áfram. Hafa
hákarlaskip þar fengið í vor jafnan og góð-
an afia, flest um og yfir 100 tunnur lifrar í
fyrstu ferð. ______________
Skipkaup. H. P. Duus kaupmaður, eigandi
Keflavikur-verzlunar, hefir keypt járnskon-
nertu af Sylvan útgerðarmanni i Helsingborg,
fyrir um 17000 kr. Skipið er 84 tons og
4 ára gamalt. Það á nú að heita „Ásta“ og
verður haldið út úr Keflavík.
Dáinn aðfaranótt 29. maí Holger Clausen
kaupmaður, á 70. aldursári, úr nýrnasjúkdómi,
og hafði hann verið heilsutæpur síðustu árin.
Hann var sonur Hans A. Clausens kaupmanns
og etazráðs, eiganda ýmissa verzlana hór í
landi. Yar hann lengi talinn í röð helztu
borgara i Kaupmannahöfn, og er dáinn fyrir
nokkrum árum. Móðir Holgers Clausens var
Ása Sandholt, og er hún dáin fyrir skömmu.
Hún var af hinni alkunnu Sandholts-ætt, sem
er í annan þáttinn norðan úr Þingeyjarsýalu,
en i hinn af Eskimóa kyni. Holger Clausen
rak lengi verzlun í Ólafsvík, Búðum og
Stykkishólmi bæði fyrir föður sinn og síðar
fyrir sjálfan sig. Hann var tvikvæntur. Fyrri
konan var útiend, og átti hann með henni
tvö börn, son og dóttur, en seinni konan er
G-uðrún Þorkelsdóttir prests Eyjólfssonar frá
Staðastað, er lifir mann sinn ásamt mörgum
börnum. Hann var þingmaður fyrir Snæfells-
sýslu 1881—1886. Holger Clausen var at-
gervismaður mikill og höfðingi í lund, gleði-
maður, skemtinn og fyndinn. Á yngri árum
hafði hann farið víða, og hafði verið sjö ár
í Ástralíu, meðal annars við gullnám.
fjall:konan.
Dáin héríbænum Margrót Dorothaa Bjarna-
dóttir, tengdamóðir Sigfúsar bóksala Eymunds-
sonar, dugnaðar og myndar kona í sinni tíð.
Druknanir.
Frá hinu mikla manntjóni undan Eyjafjöll-
unum hefir frézt nánara síðan Fjallk. sagði
fyrst frá því. Þetta eiu nöfn hinna drukn-
uðu:
1. Árni Björnsson, b. á Minniborg, 64 ára.
2. Árni Bnnólfsson, b. YztabælÍBkoti, 40.
3. Árni Sigurðsson, bónda Sveinssonar á Rauðafelli, 20.
4. Bjarni Ingimundsson, vm. Baufarfelli, 27.
6. Bjarni Sveinsson, vm. Ytri Skógum, 31.
6. Björn Sigurðsson, bónda Halldórssonar í Skarðshlið,
formaður á skipinu, 24.
7. Einar Einarsson b. á Baufaríelli, 48.
8. Finnur Sigurfinnsson, b. Stóruborg, 45.
9. Quðm. Óiafsson, b. Syðra-Hrfitafellskoti, 45.
10. Guðmundur JónBson, vm. Leirum, 33.
11. Halldór J. Stefánsson, b. Bauðafelli, 69.
12. Jón Ólafur Eymundsson, vm. Eyvindarhólum, 31.
13. Kort Hjörleifsson, b. Berjaneskoti, 68.
14. Magnús Sigurðsson, bróðir nr. 6, 19.
15. Oddur Oddsson, sonur búandi ekkju á Ytri-Skógum,
26.
16. Sigfús Jónsson, Jónssonar i Lambafelli, 22.
17. Sigurjón Bjarnason, skósmiður, Eystri-Skógum, 28.
18. Stefán Tómasson, b. Bauðafelli, 35.
19. Steinn Guðmundsson, vm. Drangshlíð, 20.
Kvenmennirnir 8 hétu:
20. Anna Salómonsdóttir, vk. Eyvindarhólum, 60.
21. Guðný Bjarnadóttir frá Vestmannaeyjum, systir nr.
17.
2‘J. Bannveíg Gísladóttir frá Eystri-Skógum, 19.
23. Sveinbjörg J. Þorsteinsdóttir bónda á Hrútafelli, 16.
24. Sveinbjörg S Sigurðardóttir, systir nr. 3, 16.
25. Vilborg Brynjólfsdóttir, bónda Tómassonar á Sit-
janda, 16.
26. Þórnnn A. J. Sigurðardóttir, snikkara Sveinssonar í
Vestm., í Eystri-Skógum, 16.
27. Þuríður Bergsdóttir. vk. Skarðshlíð, 17.
Alls hafa hinir druknuðu látið eftir sig 24
börn í ómegð.
Gjöfum hefir verið safnað handa Eyfjöllung-
um (ekki Eyfellingum) og eru þegar saman
komin nokkur hundruð króna.
20. maí fórst 6 manna far úr Yestmann-
eyjum og vóru á því 6 bændur, er druknuðu
allir; áttu 4 þeirra heima í Vestmanneyjum,
Magnús Gruðlaugsson í Fagurlist, Pálmi Guð-
mundsson í París, Hreinn Þórðarson i Upp-
sölum og Jón Þórðarson í Kirkjubæ, en 2
voru úr landi: Árni Jónsson (Yaldasonar)
frá Steinum undir Eyjafjöllum og Eyjólfur
frá Kirkjulandi í Landeyjum. Þeir munu
hafa verið ungir og átt fátt barna.
28. apríl druknuðu tveir menn af báti í
Laxá í Laxárdal í Þingeyjarsýslu, Stefán Sig-
urðsson, bóndi á Brettingsstöðum, um 25 ára,
mjög efnilegur bóndi, lætur eftir sig ekkju
og 1 barn, og Guðjón Sigurgeirsson frá Vind-
belg í Mývatnssveit, um tvitugt, efnilegur
maður. — Þeir munu hafa verið við fuglveið-
ar. Likin voru slædd upp 1. maí.
lSLENZKUR SÖGUBÁLKUR.
Æflsaga Jóns Steingrímssonar,
prófasts og prests að Prestsbakka.
[Eftir eiginhandr., Landsbókas. 182, 4to].
Tvenn önnnr viðlík bréf fórn milli okkar [iar til við
fundumst á einum tiltoknnm stað, hvar um ei framar
tala né frá segi. Hér eftir tóku hreppstjórar vitnaleiðslu
rugl sitt hjá sýslumanni, tilbjuggu grófan memorial upp
á mig með innihald og þvermóðsku að svara tollinum
út; fór svo einn fyrir alla með þetta til stiftamtmanns
Thodala og klöguðu mig fyrir honum, sem mér mætti er
eg og á þingi fonn hann. Sýndi eg honum máldaga
jarðarinnar og önnur skjöl, og Bkírteini er eg hafði um
það að tollurinn var ei jarðargjald, bað hann um setu-
dómara til að kunna að dæma þau skjöl í héraði og so
láta vitni þeirra á ný erklæra sinn vitnisburð, hvað eg
þó ei fékk, þvi hann sagði: „Það kann varla annara
Bke, en þar verði meinsærismenn af Boddan vitnan,
er brúkuð hefir verið, og kunni eg ei trúa fyrr, að sodd-
an argvítugur lagaumgangur væri í Mýrdalnum, og sýnd-
ist mér bezt að slá þessu niður. Kóngurinn má gefa
og eftiiláta hvað sem hann vill“ — og það sama sagði
hann Mr. Gnnnari, og enn framar eg mætti sem eg vildi
láta úti tollinn eður ei, þar til sú nýja jarðabók kæmi
enn að nýju inn. Fór hreppBtjórinn aftur heim meir enn
fýldur af sínu erindisleysi. Þá nú hreppstjórar Báu, að
alt þeirra fyrirtæki varð að engu, nema þeim til mestu
mæðu og óhróðurs, sögðu þeir allir af sér sín embætti.
Fengu þeir svo aftur Btór ámæli og lastyrði hjá alþýð-
unni fyrir umgang sinn, en eg aftur var nú hafður í
metum með hóli og lofgjörðar oiðum. Þannig má heirn-
inum lýsa; hann lofar aðra stundina en lastar hina, og
hvort um Big úr máta. Sá hrokafulli Jón Sigurðsson,
sem hinir brúkuðu sem útseodara til mín, varð mitt í
því sjálfsagður úr hreppstjórninni, því hann átti barn í
hórdómi og flosnaði so upp. Einar dó ærulaus, sem áð-
ur er sagt.
1777 vóru tilskipaðir Magnfis Ólafoson vísilögmaður og
Jón Jóusson sýslumaður að regla niður gjald á klaustur-
góðsinu, þvi fóveta og lögmanni kom ei saman um það.
Áttu þeir að afgera það með tveimur óviðkomandi mönn-
um. Varð Mr. Gunnar anuar þeirra; hinn hét Jón Phiiipp-
usson. Haun fann nú upp á þann hnykk, með sínum
stallbróður, er hanu fékk í lið mér sér, að þeir afoögðu
að skipa undir lögmanna og sýslumanns verk, nema Fells-
tollurinn væri innfærður og ályktaður af þeim sem jarð-
argjald, sem þó var enn tii kóngs sett. Sá eg mér nú
ævarandi niðurdrep og laBtyrði búin, ef eg hefði orðið
að gjalda greindan toll að nýju, þar so mikil órósemi
hafði af honum risið. Þar með var eg farinn að mæðast
að vera að stríða þar lengur við kartið og illa artað
fólk, er allir menn reyna sem verða lengi prestar þar,
nema önnur botri verðsleg yfirdrotnan verði þar heldur
en nú er og var í minni tið. Og þvi setti eg mér fast
í hug að, komast þaðan í burtu meðan næði og friðar-
stund væri til þess. ’Enginn óreyndur veit hvað friður-
inn er dýr’.
1773 sálaðist út á Eyrarbakka minn tryggfasti vin
prófastur sra Jón Bergsson. Veitti eg honum þar
sakramenti og vakti yfir honum þá nótt er hans dauða-
stríð yfir stóð. Hann fól mér á hendur Berg litla son
sinn, að eg kæmi honum til manns; áður var hann bú-
iun að leggja það fyrir, að hann með tíð ætti Katrínu
dóttur mina (og) um hennar nafn beðið, þá hún var enn
í móðurlífi, og þótt bræðrum hans og náungum væri
ekkert um þær ráðstafanir, þá urðu þær þó að hafa fram-
gaug og fullkomnan á sinni tíð, því þær vóru stiftaðar af
guðhræddu og einföidu hjartalagi. Að eg því betur gæti
barninu gott gert og haft þar af góð not sjálfur, setti
eg mér i hug að sækja um Kálfafell og setjast þar í
sauðríkt bú. En það varð mér til allrar lukku, að ei
varð af því, sem síðar sást og fram kom.
Eg var strax skikkaður og kosinn fyrir prófast í hans
stað; so eg fór austur að Kálfafelli um sumarið eftir frá-
fall hans að skrifa upp storbúið etc. Leizt mér á alt
vel utan stokks sem innan, hús, tún og kaga, so eg
ásetti mér að sækja um það kall, hvar til allir so að
segja vóru mig áfýsandi. Var sunnudagur að morgni og
ætlaði eg því fram að fara sem guð blési mér í brjóst,
er eg var þar í guðshús til embættisverka kominn áður
fólk kom til kirkju. Fór eg út í kór að lesa yfir pré-
dikun mína; kvenfólk kom að og settist í hnapp í fram-
kirkjunni, og sá mig ei né vissi þar væri nokkur. Eftir
stutta bænagerð fara þær að tala um mig, og eg muni
þangað vís verða, en taka til að lasta prófastinn sáluga,
og segja að hann hafi mátt fara, og so konur hans, þó
hafi sú síðarí verið öllu verri en hin fyrri. Telja nú
upp ýmsar yfirsjónir en sneiða hjá öllum dygðum og
mannkostum, sem þau ágætu hjón höfðu auðvitanlega til
að bera, eins og lastara siður er til. Því kærari sem
mér vóru þau góðu hjón, þess framar stiknaði eg inn-
vortis að heyra þennan bölvaða umlestur og kjaftamælgf,
og er sem undir eins að til min sé sagt: „Sjá nú og
heyrðu hversu hér er háttað; sona yrði með þig farið“. Og
með það sama snerist alt í einu allur minn hugur frá þvi
að sækja um það kall. Undarlegir eru vegir drottins.
Eg stend því upp, geng fram í kðrdyrnar og segi:
„Áttuð þið þetta erindi til kirkjunnar? Mikil skömm er
að ykkur og ykkar tali“. Með það geng eg út, en þær
sitja eftir með skömm og sneypu, hver blygðuu var yfir
þeim allan daginn. — Á þeirri ferð var eg nærfelt bú-
inn að missa lífið í Eyjará, og hitti fyrir í henni jökul*