Fjallkonan


Fjallkonan - 29.07.1901, Side 1

Fjallkonan - 29.07.1901, Side 1
Keraur út einu sinni í viku. Verð árg. 4 kr. (erlendis 5 kr. eða V/a doll.) borgist fyrir 1. júlí (erlendis fyrir- fram). Uppsögn (ekrifleg)bund- in við áramðt, ðgild uama'komin sé tii út- gefanda fyrir 1. oktð- ber, enda hafl kaupandi þá borgað blaðið. Afgreiðsla: Þing- holts&trœti 18. XYIII. árg. Reykjavík, 29. júlí 1901. Nr. 29. Landsbankinn er opinn hvern virkan dag kl. 11—2.Banka- stjðrnin við kl. 12—1. Landsbbkaaafnið er opið hvern virkan dag kl. 12—2 og einni stundu lengur til kl. 3 md., mvd. og ld. til útlána. Biðjið ætíð um: OTTO MONSTEDS danska smjörliki, sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina beztu vöru og ódýrustu í samanburði við gæðin. Fæst hjá kaupmönnunum. Forngripasafnið er I Landsbankahúsinu, opið á ménu- dögum miðvikudögum og laugardögum kl. 11—12 f. m. Náttúrugripasafnið er í Doktorshúsinu, opið á sunnu- dögum kl. 2—3 e. m. ÓkeypÍ8 lœkning á spítalanum á þriðjudögum og föstu dögum kl. 11—1. Ókeypi8 tannlœkning í húsi Jóns Sveinssonar hjá kirkjunni 1. og 3. mánudag hvers mán., kl. 11—1. Tollfrumvarp neðri deildar. Gjöld landssjóðs fara æ vaxandi og hljóta að gera það og eiga að gera það um sinn, þar sem svo mörgum þörfum er úr að bæta og margra alda vanrækslu í ýmsum greinum. Um það er ekki að fast. En hvernig farið verður að auka tekjurnar aftur á móti, það er það vandamál, sem auðsjáanlega hefir orðið neðri deild alþingis ofjari í ár. Eitt af því einkennilegasta í þessu efni er það, að hversu miklu sem varið hefir verið til eflingar atvinnuvegum landsins, þá lítur út fyrir, að þeim fari því meira hnignandi, sem meiru er til þeirra varið úr landssjóði — ef dæma skai eftir þeirri eilífu barlómstrumbu, sem margir bændur sífelt eru að berja bæði í blöðunum og á þingi. Svo fjarri fer, að land- bændum vaxi gjaldþol til landssjóðs með því ærna fé — þeim hundruðum þúsunda — sem varið hefir verið tii eflingar atvinnu þeirra, að árangurinn hefir þvert á móti orðið sífeit ríkari og ríkari tilhneiging þeirra til að varpa byrðunum af sér yfir á aðra landsmenn. Kaffitollur og sykurtollur er álaga, sem að miklu leyti iendir á sjómönnum og kaup- staðarbúum, sem ekki hafa mjólk. Nú á að fara að tolla tegras (með 60 au. á pd.), og er það einvörðungu toliur á kaupstaðarbúa. Hingað til hefir þó mátt fá hér gott te (t. d. ævinlega fáanlegt í Thomsens verzlun), en afleiðingin af þessum tolii verður, að enginn kaupmaður mun sjá sór fært að fiytja ef'tir- leiðis annað en lóiegt og iit tegras. Nú á að toiia súkkulaði og kakaó-duft með 15 au. á pundið. Látum súkkulaðið verða toliað; það er sök sór; en kakaó-duftið er hollasta og heilsusamlegasta drykkjarefni, einkum þeim sem ekki hafa mjólk og vilja forðast að spilla heilsu sinni á kaffi. Þá er loks farið fram á að fyrirbjóða al- gerlega aðflutning á niðursoðnu kjöti og fisk- meti. Að vísu er það ekki orðað sem forboð i orði kveðnu, heldur sem 20 au. tollur á pundi hverju. En það kemur alveg í sama stað niður. Tollur þessi er ekki ætlaður tii að útvega iandssjóði tekjur, því að engum lifandi manni mun detta í hug að flytja svo ódýra vöru ínn, þegar búið er að leggja 20 au. toll á pundið af henni. Tilgangurinn getur enginn annar verið en forboð. Ef til þess kæmi, að nokkuð yrði flutt inn af þessu, mundi toiiurinn ienda eingöngu á kaupstaða- búum og ferðamönnum, því að niðursoðin matvæli eru hentugasta ferðanesti þeirra manna, sem verða að nesta sig sjálfir á sjó eða landi. Þessi tollur virðist því eingöngu á lagður í kvairæðis skyni við kaupstaðabúa og ferðamenn. Það er einhver sú einfaldleg- asta eða illrnanulegasta toll-álaga, semhugsast getur. Á það kannske að vera til að sprengja enn hærra upp verðið á því moldþurra, næringar- litla, rándýra graðneyta- og belju-kjöti, sem er eina kjötmetið annars, sem kostur er á af og til á sumrin að fá hór í Eeykjavík? Til þess samt að stuðla til, að það verði helzt fátækara fólkið, embættislausir menn, sem fult eiga í fangi með að lifa og engan munað mega veita sér — sem tollur þessi þjaki harðast, þá er embættismönnum og hinum auðugri kaupstaðabúum bættur hann upp með því að færa niður tollinn á borð- vínum. Þeir sem drekka hversdagslega vín með mat, þeir eru mennirnir, sem mest ástæða er til að hlífa í tollálögum !! Eða eru borð- ' vín (þar með talin eigi að eins Rínarvín og þessl. vín, heldur líkl. einnig hvítt portvín, kampavín o. s. frv.) sú nauðsynjavara, að heldur só nauðsyn að hlífa henni, heldur en matvöru eins og fiskmeti og kjötmeti? Svo kemur brauðtoilurinn. Af því að verið er að byggja hór í bænum bökunarhús, sem á auk annars að baka skonrok, skipskex og alls konar kextegundir og kökur, þá á að tolla allan brauðinnfiutning til iandsins: skonrok og skipskex með 3 aurum á punaið (sem auðvitað verður á næ3ta þingi fært upp í 5 aura) og alt annað br&uð með 10 au. á pd. Nú sem stendur má flytja hingað inn gott „morgunverðarkex" (sem e k k i verður taiið skipskex) fyrir 25 au. pd. og er gott brauð í samanburði við önnur brauðkaup. 10 aura tollur á því hlýtur að auka verð punds- ins um 15 au., svo að það mundi kosta 40 au. og þá ekki borga sig að keupa það. Flestöll nýmæli frumvarps þessa virðast mér bygð á stakri skammsýni, að svo miklu leyti sem eiging rni einstakra oaai.na á ekki þátt í þeim, sem ekki sýnist alls óliklegt að sumu leyti, án þess eg vilji neitt um það fullyrða. En skiljanlegt væri, þótt fólk eign- aði sýslumannavaldinu i þinginu (þótt án efa ranglega) það, að þeir hefðu ekki á móti að auka toll-tekjur sínar á ýmsan hátt. Þettaer þó sjálfsagt ástæðulaust, því að þ e i r hljóta manna bezt að sjá, að þeim væri arðvænlegra að auka toiltekjur sínar og landssjóðs með t. d. hækkun á tóbakstollinum, sem auðveldara er að hafa eftirlit með og er miklu réttlátari. Þessi vegur, sem nú er farið að byrja, að tolla margvíslegar vörutegundir, sem alls ekki er auðið að hafa neitt eftirlit með (í þetta sinn hefir þingið gleymt öllum dúkvarningi og prjónlesi!) — hann h 1 ý t u r óhjákvæmi- lega innan ö r f á r r a ára að leiða til þess, að alla tollheimtu verður að taka af sýslu- mönnum og skipa heila hersingu af toll- embættismönnum til eftirlits. Það mun kosta landssjóð að allra minsta kosti 80,000—100,000 kr. í árleg laun handa nýrri embættisstétt [ landinu, sem auðvitað eykst fljótt, er eftir launabyrði bætist ofan á. Og þá er vel að verið! J. Ó. Umræðurnar um stjórnarskrármálið. Við 1. og 2. umræðu málsins hafa orðið nokkrar umræður um það, en þó miklu styttri en vonja hefir verið áður i því máli, og haía báðir flokkar auðsjáanlega gert sér far um að forðast þær málalengingar, sem þingmönnum hefir oft áður verið brugðið um. Við 1. umræðu málsins reyndi mótflokkurinn að mæla E.eð frumvarpi sínu, og vóru þeir þar frenmtir til sóknar aem vita mátti sýslumenn- irnir að vestan Lárus Bjarnason og Hannes Hafstein. Er Lárus sýslumaður auðsjáanlega mikið fyrir þassum flokki, og hefir furðanlega orð íyrir sér með ekki betri málstað — hjarta- lagið er ekki að efa — en Hannes Hafstein er þó þeirra málsnjaliari. — Þeir létu sem þeim væri mjög ant um að fá alinnlenda stjórn og væri hún fengin með frumvarpi þeirra, sem þeir reyndar gátu ekki fært minstu líkur til að nokkurn tíma yrði staðfest. Þeir vildu gera það sennilegt, að hver sú vinstri manna stjórn, sem kæmi til valda í Danmörku, mundi sam- þykkja frumvsrp þeirra. en enga hugmynd gátu þeir haft um það sem von var hvenær hún kæmist að völdum og hverir yrðu í þeirri stjórn. Þoir kyáðu það físinnu, að samþykkja frv. meira tlutana, sem ekki yrði fremur samþykt en hitt, og héldu því fram að sitt frumvarp færi ekki út fyrir hinn afmarkaða grundvöll, en laudshöfðingi tók það samt fram, að frum- varp þeirra væri enn óliklegra til staðfestingar en frumvarp meira hlutans. Eigi að síður var svo að sjá sem landshöfðingi hlustaði með mikilli ánægju á ræður þeirra, en liti hornauga til meira hlutans, og hann stóð meira að segja upp úr sæti sínu til að benda þeim á ástæður

x

Fjallkonan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.