Fjallkonan


Fjallkonan - 25.03.1902, Blaðsíða 3

Fjallkonan - 25.03.1902, Blaðsíða 3
F J A L L ít 0 N A tf . 3 sumar vor og haust, og að hanu geti hagnýtt sér hinn vilta gróður fjallenda vorra og afrótta. Hvað eigum vér að gera með hinar víðáttu- miklu heiðar vorar, afrétti og fjallendi, ef vór getum ekki í gegnum sauðfjárræktina hagnýtt oss gróður þeirra, og gert oss peninga úr hon- um? Hver er orsökin til þess, að á sama tíma, t. d. á vorin, sem útigangsfénaður tekur bata, þá helzt óveiklaður, útbeitarfénaður við, og jafn- vel batnar, en sá fénaður, sem fóðraður hefir verið inni, horast alment á beitinni? Þennan mismun þurfum við að jafna, og með öðru en svala, hreina ioftinu í húsunum gerum við það ekki. Fað örvar blóðrásina, eykur efna- skifti líkamans, og kemur að mestu leyti fyrir hreyfinguna, sem því er nauðsynleg, og gerir það sama. Gerir sauðféð hraustara og þolnara, svo það verður ekki eins næmt fyrir áhrifum af á- föllum, sem oft hljóta á því að skella, vegna hinna snöggu veðrabrigða, sem eru svo tíð hjá oss og það á sumrin, þá er féð er á afrétt og þyí ómögulegt að taka þau áföli af því. Eg enda svo þessar iínur með þeirri ósk og þeirri von, að menn fari framvegis að hugsa meira um kvikfjárræktina, eins og iandbúnaðinn yfir höfuð. Yér megum til með að gera það, ef vér viljum ekki iáta vantrú þá, sem nú virðist vera að spenna landið og þjóðina heljargreipum, biinda o.ss — þessa makalausu vantrú á landinu og gæðum þess, vantrú á sjálfum oss og kröft- j um vorum til að berjast fyrir tilverunni, hér á landi, og mór liggur við að segja vantrú á for- sjóninni, — því menn hljóta að finna til þess hversu mikla þýðingu landbúnaðurinn hefir fyrir oss, sem aðallega hefir bygst og hlýtur að byggjast framvegis á sauðfjárrækt og kvikfjár- rækt yfir höfuð. Einnig óska eg að landbúnaður- inn allur í sambandi við grasræktina og kvik- fjárræktina eflist og aukist, og stundist með meiri kostgæfni en hingað til, og að menn viður- kennandi landið og gæði þess láti hlýrri tilfinn- j ingar til landsins ráða öllum sínum gerðum á- hrærandi landið og framtíð þess, heldur en mér finst að hafi átt sér stað nú á síðari árum, þar sem hver þykist mestur, sem mest getur nítt landið og smánað, að eg ekki tala um á- býiin. Fað er hreinasta undantekning, að heyra ábúendur jarða nokkurn tíma viðurkenna, eða tala hlýlega um ábýli sín eða sveit, heldur gjarnasti telj þeim alt til ógildis. Þetta er svo ríkt hjá þjóðinni, að það þykir ekki heyia til annað og það komi af óhreinum hvötum eða monti, ef menn tala vel um ábýli sín eða þykir vænt um sveitina sina. Oss verður að skiljast það, að iandið er gott sé það réttilega notað, og gæði þess ekki fótum troðin og forsmáð. Fað ei' að vísu satt, að „það agar oss strangt með sínuísköidu él, enásamt með blíðu — það meinar alt vel“. Oss verður að skiljast það einnig, að hér á þessu landi er framtíðarvon vor og afkomenda vorra, og ef oss þykir vænt um landið, mun gróður þess og afrakstur blessast oss, og uss verður að skiljast það líka, að það er fleiri gróð- ur til, sem hefir gildi, heldur en hveitigróður hinna amerisku hreiti akra; vér skulum láta Ameríku eiga sig ineð sína hveitiakra — okkur koma. þeir ekkert við — en gera oss heldur ánægða með vorn vilta fjalla og heiða gróður, tún vor og engjar — græðum heldur út tún vor og engjar í sambandi við notkun fjallenda og afrótta vorra, eins og forfeður vorir gerðu. Og j upp af þeini notkun spratt þjóðmenning sú er j þeir stofnuðu hér á Jandi, en nú virðist veia að { fara öli í mola, sú þjóðmenning sem vér verð- um að byggja framtíð vora á, og byggja eða mynda nýja þjóðminningu upp af rústum þeim j sem nú eru, ef vór viijum haida áfram að vera taldir sem sérstakur þjóðflokkur og meðal hinna mentuðu þjóða. ---——<~o*o------- ..Ceí>es-: komst á Vestfjörðu, þó ís væri þar nokk- j ur, og „Vesta‘! ætlar þangað aðra ferð með morgni. Búaófriðurinn (eftir blöðum til 13. þ. m.) Bretar hafa náð mjög mikln af hergögnum og vistum, sem mælt var að de Wet réði fyrir og geymt var í hellum. Þaðéer stórtjón fyrir Bua. Auk þess hafa þeir handtekið nýlega nokkur hundruð Búa og þar á meðal son de Wets og skrifara hans. Aftur hafa Búar unnið sigrir á um 1200 Bretum (900 riddaraliðs og um 300 fót- gönguliðs). Fyrir Bretum réð Methuen, einna helztur hershöfðingi Breta, næstur Kitchener, sem hefir stöðugt haftsömu völd frá upphafi ófriðarins og var hann hand- tekinn ásamt fjölda manna. Búar höfðu um 1500 manna. Delarey hershöfðingi réð fyrir Búum, og hefir hann reynst vel áður, og verið óþarfur Bretum við Mafe- king og Kimberley og víðar. Aðstoðarforingi Methuens, París majór, komst undan, en Methuen er í haldi. Þar fellu nær 40 manns af Bretum, þar af 3 herfor- ingjar, og særðust um 70, hinir flýðu eða voru hand- teknir. Af Búum varð ekkert mannfall. Búar höfðu að eins tvær stórskota-byssur, en Bretar fimm, og náðu Búar þeim öllum. Bardaginn var háður í tungu, ár á báðar síður. Delai'ey hefir jafnan verið í miklum metum meðal Búa, og verður það ekki síður nú. Son- ur hans, 12 ára drengur, var með honum í orustunni; annar féll í ófriðnum og hefir faðir hans ekki verið samur síðan. Hann hefst jafnan við í Vestur-Trans- waal og kemur aldrei til hugar að flýja. Sendimenn fóru á fund Rooswelts Bandaríkjaforseta, að leita Búum hjálpar, en hann lézt ekki geta skift sér af ófriðinum. Kriiger gamli lýsti undrun sinni yfir því, en sagði að Búar væru einráðnir að berjast sem áður fyrir frelsi sínu, þó öll ríki yfirgæfu þá. Eftir einni af síðustu fregnum höfðu höfðingjar Búa, De Wet, Steyn og Botlia, ætlað að færa í tal vopnahlé eða frið við þá Kitchener eða Millner, höfðingja Eng- lendinga. Marconi hefir nýlega sagt á fundi í New-York, að hann mundi verða kominn svo áleiðis að þrem mán- uðum liðnum, að hann gæti sent þráðlausar orðsend- iugar yfir Atlantshaf. Arnessýslu 16- marz. Það er nú orðið nálægt mánuði sem aldrei hefir verið öðru hærra að kalla má; hafátt og þíða að jafnaði; stöku sinnum frosið litið eitt og svo sem tvisvar. snjóað nokkuð, en óðara aftur tekið af. Þrátt íýrir haíattina hefir iðulega verið róið hér í veiðistöðum, því að logn hafa ,verið. En mjög hefir lítið aflast. í gær rar fiskur með líflegasta móti, og þó misjafn afli að sögn. Hingað til hefir ekki þótt tafea því, að tilgreina hlutarupphíéðir. Fáir eða engir munu hafa náð hundraði enn á vertíðinni. — Heilbrigði manna og skepna nú með bezta móti. MeS póstskipinu „Laura“ fóru þessir farþegar: Sigurður Magnússon læknir, Jón Þói-ðarson kaupm., Einar Arnason fyrv. verzlunarstj óri, H. Andersen skradd- ari, Guðjón Grniðlaugsson frá Ljúfustöðum o. fl. t Halldór Kr. Friðriksson, fy’rrum vflrkenn- ari við lærða skólann, lézt sunnudaginn 23. þ. m. 82 ára að aldri. Þess inerkismanns verður minst i næsta blaði. Ég hefi nú þjáðst á annað ár af sárum brjóstþyngslum og taugaveikl- un og hefi ég allan þennan tíma tekið mestu kynstur af meðulum en alt á- rangurslaust. Ég fór því að reyna Kína-lifs-elixír frá Waldemar Petersen og þegar ég hafði tekið inn úr 1 x/2 glasi fór mér að batna til muna, og get ég engu öðru þakkað það en þessu heilsulyfi. Arnarholti á Islandi. Guðbjörg Jónsdóttir. Kína-lífs-elixíriiin fæst hjá flest- um kaupmönnum á íslandi. Til þess að vera viss um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaup endur beðnir að líta vel eftir því, að ,Y-p-. standi á flöskunum í grænu iakki, og eins eftir hinu ski'ásetta vörumerki á flöskumiðanum: Kín- verji með glas í hendi, og firmanafn- ið Waldemar Petersen. -03 Q o i m b < J ^ Q f £PC0 CQ ö ^ b . CD <c Q Z <c Li_ UJ O 00 200 Þegar erfðaskrármálið var tekið fyrir, var fjöldi áheyrenda við- staddur, svo þingsalurinn varð fullur. Rúsensköid undirforingi hafði tekið sér sæti á einhverjum fremsta bekknum og var hann keikur og uppréttur þangað til honum varð litið á Hellstedt; við það varð hann niðurlútari. Hann 'nafði um morguninn heimsótt festarmey sína í Hringnesi og sagt henni frá rannsóknum sínum í málinu, og að síðustu sagði hann við hana: „Ef eg vinn málið og Hringnes handa þér, þá er þér frjálst að vera laus ahra mála við mig“. „Því segii'ðu þetta'? — Þá þykii þér ekki vænt um mig“. „Jú, það eina er sönn ást, sem leggur eitthvað í sölurnar". „Vinn þu málið“, sagði hún, „síðan getum við talast við“, sagði hún og kysti hann og faðmaði hann að sér. Vitnin fóru nú að koma, Stenlund og Linder, og Andrés Pét- ursson lét sig ekki vanta á lögréttumanns bekkinn. Assessorinn settist í dómara sætið, og kallaði málsaðila fyrir sig. Hellstedt sýndi umboðskja.l sitt og lagði fram kæru sína. Hann tók það fram, að eitt af vitnunum hefði verið á baðmn áttum að kannast við nafn sitt undir erfðaskránni, og að það væri ótrúlegt, að majórinn hefði gert systurdóttir sína svo að segja arflausa, sem honum hafði þó þótt allra vænst urn, og að hann leyfði sér því að gera nánari athugasemdir um það. Nú sneri dómarinn sér að undirforingjánum og spurði hverju hann hefði að svara. „Eg hefl engu öðru að svara en því, að erfðaskráin er í alla staði rétt, og að vitnin eru hér viðstödd til frekari sannindamerkis". 197 „Það er ágætt“ en getið þór líka sjálfur sagt það sarna um yður? „Því skyldi eg ekki geta það?" „Af þvi þór munduð þá bera lygi. Hvað ætluðuð þór að gera með innsigli majórsins, sem þér fenguð undirforingjanum?" „En veit ekki hvað þér eigið við.“ „Engar vífilengjur. Þér vitið að maður heyrði á viðtal ykkar undirforingjans, þegar þér fenguð honum signetið. Nú vil eg fá að vita til hvcrs hann ætlað að hafa það.“ „Nú fyrst þér vitið um þetta, þá get eg sagt eins og er, að hann kvaðst ætla að láta giafa eftir annað þvi signet handa sér, og þetta átti að vera fyrirrnyndin." „Og því trúðu þér?“ „Já, eg gat ekki séð neitt -á móti því.“ „Nei — En úr því þér trúðuð honum, því færðust þér þá und- an að taka við peningunum og kölluðuð þú Júdasar-peninga?" Við þessi orð brá Linder; hann varð niðurlútur og hengdi nið- ur handleggina. „Eg hefi breytt illa við húsbónda minn, en það get eg svat'ið, að undirforinginn sagði mér aldrei annað um innsiglið, en það sem eg hefi sagt.“ „En yður grunaði samt annað?“ „Pví get eg ekki neitað." „Hann hefir þá haft undirtökin á yður. Þér eruð að vísu ekki gerspiltur, og um yður getur verið bjargarvon. Munið eftir því, hve

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.