Fjallkonan


Fjallkonan - 19.12.1902, Page 1

Fjallkonan - 19.12.1902, Page 1
Kemur »t einu sinni í viku. Yerð árg. 4kr. (erlendis 5 kr. eða 1 ‘/2 doll.) borgist fyrir 1. júlí (erlendis fyrir- fram). Uppsögn (skrifleg)bnnd- in við áramót, ógild nema komin sé til út- gefanda fyrir 1. októ- ber, enda hafi kaup- andi þá horgað blaðið. Afgreiðsla: Þing- holtsstræti 18. XIX. árg. I Reykjavik 19. des. 1902 Nr. 50 Augnlœkning ókeypis 1. og 3. þrd. i hverjum mán. kl. 11—1 í spltalanum. Forngripasafn op'ð mvd. og ld. 11—12. Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Landsbókasafn opið brern virkan dag ki. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) md., mvd. og ld. til útiána. Náttúrugripasafn, í Doktorskúsi, opið á sd. kl. 2—3. Tannlœkning ókey pisí Póstbússtræti 14 b 1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1. Úheillaarfur. JÞað hefir lengi hér á landi þótt inikiisvirði, að vera af góðu hergi brotinn, vera kominn af heiðarleg- um og vönduðum foreldrum; það er líka í alla staði náttúrlegt; því sé það sr.tt, sem oft hefir sagt verið, að sjaldan falli eplið langt frá eikinni, þá kemur ekki í ein- um stað niður, hvort eikin er ill eða góð. En þó að menn hafi iðulega fundið til þess, að gott er að vera af góðu bergi brotinn, þá haf'a menn samt minna fundið til hins, að gott sé að vera af hraustu bergi brotinn, vera kominn af heilbrigð- um og heilsugóðum foreldrum; og þó má segja, að undir þessu sé öll hamingja manna komin. Einusinni kom ungur maður að finna hinn fræga lækni Oliver Wendeil Holmes og spurði hann, hvað hann ætti að gera til þess að geta orðið langlífur og um leið heilsugóður. »Farðu heim«, sagði læknirinn, »og fáðu þér hrausta og heilsugóða foreidra«. Svarið virðist nokkuð kátlegt í fljótu bragði; en það hefir samt mikinn sannleíka að geyma, sann- leika, sem ekki er jafnan gætt sem skyldi. Alkunnugt er, hve menn eru tiðum kærulausir með heilsu sína, gera lítið til að bætahana, vernda hana og varðveita, meira að segja, spilla henni tíðum að þarfiausu á raargan hátt. Og þegar litið er til þessa, þá er ekki furða, þótt lítil umhyggjasé borin fyrir heilsu og hreysti hinnar komandi eða ófæddu kynslóðar, Fyrir ekki löngu síðan kom stúlka um fertugt að finna lækni og leita hjá bonum bóta við mein- semdum sínum. Hún sagði með tárin í augunum, að hún myndi ekki eftir, að hún hefði verið heil- brigð nokkurn dag æfi sinnar. Heilsuleysi sitt hafði hún tekið alt að erfðum eftir foreldra sína. Og það er svo sem ekki eins dæmi með stúlkuna þá. Heilsuleysi margra barna er hræðileg sekt á herðum margra foreldra; en margir foreldrar gera sér enga grein fyrir þeirrí sekt. Hinn frægi enski læknir B. vV. Richardson segir tyn þetta efni: »Að því er snertir arfgengi sjúk- dóma, þá eru þau hjónaböndin langtökust, þar sem bæði konan og maðurinn hafa sama sjúkdóm- inn, t. d. lungnatæringu, geðveiki eða krabba. Þegar þannig stendur á, er iítt mögulegt annað en að börnin, mörg eða flest, erfi sjúkdóminn. En það er iittu vænlegra þótt maðurinn og konan hafi sinn sjúk- dóminn hvort, ef brögð eru að honum. Stafar einkum mikilhætta af því, ef annað hjónanna hefir lungnatæringu, en hitt krabba. | Til sönnunar því er þessi saga. Ungur maður með auðsæjum krabbaeinkennum átti stúlku, sem hafði átt berklaveika foreldra. Þau eignuðust börn, er öll komust á legg, en voru mjög heilsutæp. En ekki urðu þau langlíí'. Fyrsta barnið dó úr sjúkdómi, sem náskyld ur er krabba. Annað dó úr lungna- tæringu. Þriðja hafði berkla í heilanum og dó úr flogaveiki. Fjórða hafði einnig berkla í heil- anum og dó úr sykurveiki. Hið fimta varð langlifast, hálffertugt, og dó úr krabba. Foreldrarnir lifðu þrjú börnin, en dóu samt á bezta aldri, faðirinn af krabba i lifrinni, en móðirin af hjartasjúk- dómi og lungnakvefi. Þegar annað hjónanna er gikt veikt og hitt brjóstveikt, þá mynd- ast oft nýr sjúkdómur, sem rask- ar eðlilegri myndun beinagrindar- irinar. Augnakallinn verður í ó- lagi hjá börnunum eða þau hafa vatn í höfðinu. Alt þetta er sannariegt alvöru- mál, enda eru margir læknar og visindamenn, sem gefa sig við að rannsaka það nákvæmlega. Og sá tími mun koma, að læknar munu svo vel að sér í þessari grein, að þeir geta sagt fyrir með fullkom- inni vissu, hvaða sjúkdómur muni skapast hjá börnum og niðjum við hvert hjónaband. Annað mál er það, hvort þekking sú muni reyn- ast einhlýt til að koma í veg fyrir voðann. Úr því verður ókomni tíminn að leysa. Eins og siðmenningutini er nú háttað, er mest litið á stétt og stöðu, þegar til bjúskapar er stofn- að; oft er líka lítið á efnahaginn og stundum á aldurinn; sitt hvað fleira kemur og til greina. En — hver lítur á það, hvort mannsefn- ið eða konuefnið er k.omið af hraust- um og heilsugóðum foreldrum, og þó er það oft fóturinn undir hjú- skaparláninu og hamingju barn. anna! Skyldu þeir ekki vera teljandi manna á meðal, sem við stofnun hjúskaparins hugsa um heill og gæfu hinnar ófæddu kynslóðar«. Framtíðarmál Árnesinga. Athugasemdir eftir ^Arnesing. II. Með því að það virðist álit ekki fárra af þeim, sem lítlð þekkja til umferðar um Olfusárbiúua eða Þjórsárbrúna, að gæzia sé óþörf, — þá verð eg að fara fáum orð- um um það atriði; um styrkleika brúnna eða brúkunarþol skal ekki rætt nú. En hitt vildi eg segja, að ef gæzla sú, sem nú er á brúnum, yrði tekin af þeim og umferðin látin óhindruð eftir geð- þótta hvers eins, þá mundi ein- hver gripurinn eða maðurinn verða fyrir slæmu hnjaski. Hinn háttvirti samsýslungur minn þyrfti að „ vera við Ölfusárbrúna annaðhvort að vorlagi, þegar lest- ir eru miklar, og komið er að brúnni beggja megin með fjölda af lestum, og alt þykist mega fara yfir um eftir geðþekni, eða þá að haustlagi, þá fleiri hundruð fjár koma að brúnni í einu, og féð er byrjað að leggja á brúna, en hins vegar bíða undir 100 hestar með klyfjum, annaðhvort við brúna, eða rétt við hana, og þessu öllu fylgja menn eins og gerist, mis- jafnlega fyrirkallaðir eða kæru- samir; væri öllum þessum usla, sem daglega kemur að í gæzlu- tímunum, hleypt hindrunarlaust og eftirtektarlaust yfir um, mundi fljótt bera á vöntun gæzlumanns. — Næg vitni eru að því, að 3—4 menn þarf mikið oft á haustdag- inn til að varna árekstri á brúna. Eins og greinarböfundurinn veit líklega er Ölfusárbrúin (hann á við hana aðallega) með landbrú fullar 200 álnir, og þar að auki 120 álna vegur, upphækkaður með grindverki, til hliðar framan við hana. Þar sem brúin sjálf er með háum boga, er mjög erfitt fyrir þá, sem við endana eru, að sjá hvorum til annars; er því vís- bending trá öðrum en ferðamönn- um því nauðsynlegri. Sjálfsagt er að viðurkenna það, að föst ár- leg gæzla á umferð um brýrnar væri áreiðanlegust og bezt, en þar sem þessar 3—400 kr. virðast fremur taldar eftir, eða svo ligg- ur mér við að imynda mér, þá get eg tæplega látið mér skiljast, að þessi 1000 kr. launatillaga til brúarvarðanna hefði nokkurt fylgi, hafi hún annars verið meint i al- vöru, Hitt atriðið, sem hinn heiðraði greinarhöfundur minnist ekki á, að hafa brýrnar tollaðar, eins og stungið var upp á á þinginu ’93 og flutt var þar af þremur mikil- hæfum þingmönnum, gat eg vel skilið að hann mundi vilja minnast á, en þvi hefir þó verið slept af einhverjum ástæðum. Umræðurnar um það mál bera það með sér, að flutnmgsmenn þess höfðu rnjög milcið til síns máls, og af þingtíðunum það ár verður ekki annað séð, en tollfrumvarpið hefði farið gegn um þingið með tals- verðum atkvæðamun, ef raeiri hluti nefndarinnar, sem skipuð var i það mál, og í þeim hluta voru þeir: Sighv. Árnason, Þ. Gfuðmunds- son og Þorlákur Guðmundsson, hefðu ekki sett inn i meiri hluta álit sitt ákvæði um, að Árnes- og Rangárvallarsýslur skyldu annast allan gæzlukostnað á báðum brún- um o. fl.; set eg hér örlitinn kafla úr áliti nefndarinnar málinu til sönnunar: »Til þess nú að koma í veg fyrir, að slíkt frumvarp verði að lögum (o: tollfrumvarpíð) viljum vér leggja það til, að sýsiufélög- um Árnes og Rangárvallasýslu verði gert að skyldu, að kosta ár- lega gæzlu við brýrnar á líkan íiátt og hún er nú við Ölfusár- brúna«. Þá var gæzlan við Ölfusárbrúna borguð úr landssjóði, en eftir að lög um þetta efni öðluðust gildi, en það varð á næsta vetri, kom gæzlugjaldið á sýslusjóðina og sit- ur þar við enn þá; af þessu sést, að mál þetta, er bréfritarinn flyt- ur með nokkurri frekju, er iöngu undirbúið og fyrirhugað af Árnes- ingurn og Rangæingum sjálfum, þó þeir máske álíti það óþarft nú, og á móti þeirra vilja ákomið. Eg ímynda mér, að hin háttvirta nefnd hafi ekki verið að hugsa um að stofna óþarfa embætti, held- ur haft það fyrir augum, að gera hugsaðan vilja sýslubúa sinna og afstýra toilinum. Þrátt fyrir fall tollfrumvarpsins á þinginu ’93 á- lít eg, að réttara hefði verið fyrir Ár- nesiuga. að amast ekki við tollin- um á brúnum; því síðan hafa heyrst raddir víða, þaðan og ann- ars staðar, að tollur muni sá réttí mælíkvarði til að fara eftir, þá er borga skal slit og eyðslu á dýrum samgöngu-mannvirkjum, og geteg vel trúað, að greinarhöfundurinn sé með því. Að afnema gæzlu á brúnum eða minka hana meira en nú er, álít eg óráðlegt og undir ýmsum atvikum hættulegt. Rödd úr garði hjúanna. í sumar átti eg tal við trægan, þýzkan, ensku talandi mann, sem að mörgu leyti dáðist að íslandi og íbúum þess, en sem sagði, að sig furðaði stórum á þessu þrennu, auk annars, hjá þjóð, sem þættist og í raun réttri væri jafn-mentuð og vildi.fylgja siðmenningu þjóð- anna. _ Þetta þrent var: Fyrst, hve lögreglan í höfuðstað landsins væri fá og ónóg, lög-

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.