Fjallkonan


Fjallkonan - 19.12.1902, Síða 2

Fjallkonan - 19.12.1902, Síða 2
2 FJALLKONAN regluþjónarnir ekki nógu kurteis- ir, og ekki nógu færir í útlendum málura o. fl. Anncið, hve rajög vér hefðum óreglulegan vinnutíma; værura að þræla nótt sem dag. Þriðja, hve rajög vér notuðum sunnu- og helgidaga. Skyldu nú ekki fleiri en þessi útlendingur hugsa á sömu leið, og er ekki mál til komið fyrir oss, verkalýðinn, að rísa upp af svefni og reyna að hrekja á brott það, sem þjóðinni er fyrir þrifum, og laga, það sem ábótavant er? Eg ætla því að minnast á þetta þrent með fáum orðum. Það eru fleiri en útlendingur þessi, sem ekki heflr líkað að öllu við lögregluþjóna höfuðstaðarins, og er vonandi, að veitingarvaldið sjái svo um við næstu veitingar, að lögregluþjónsstaðan sé veitt efnilegura, helzt mentuðum mönn- um, sem tala útlend tungumál. Ekki á að vera til fyrirstöðu þó umsækjendurnir séu ekki úr höf- uðstaðnum. Allir vitum vér, að hvergi er betri siðsemi eða regla en þar sem lögreglan er góð og þar sem lögregluþjónarnir kunna að vera í stöðu sinni. Lögreglu- þjónsstaðan er tignarleg og þarf því að vera skipuð völdum mönn um og sómasamlega launuðum. Því næst vil eg minnast á hinn óreglulega vinnutíma, sem er og mun verða okkur Islendingum til ósóma og oft til ógagns; erum vér i þeim efnum mjög 4 eftir tíman um, því að í ölium hinum ment- aða heimi er fastákveðinn vinnu- tími, nema hér hjá oss; er þó ann- arsstaðar unnið meira með vélura, en hér að eins notuð mannleg vél, líkaminn. Daglega heyrist talað um, að fólk sé að flýja landið, og það er satt, já svo satt, að af slíku er háski búinn, ef þing og þjóð legst ekki á eitt með að reyna að finna ráð til að stöðva þessa tíðu og ökaðlegu fólks-útflutnínga. En ekki er þó á aðra hliðina nema eðlilegt, þótt ungir og efnilegir menn leiti þangað, sem unnið er með meiri reglu og betri kjör eru en hér. Sem betur fer, á vinnumannsstétt- in til í fórum sínum svo mentaða menn, sem sjá, að meðferð íslenzka vinnulýðsins er ekki samkvæm tfmanum og því mál til komið að kvarta. Bændur verða að hætta búskap eínmitt af því, að þeir fá ekki fólk; fólk vill ekki vera í vinnumensku, ekki af þvf, að ekki 8é eins gott að vera hjú í góðum stöðum — en þeir eru of fáir —, heldur af þvf, að vinnu tíminn er óreglulegur og fólkið þrælkað. Hvort ætla skemtilegra sé, að sjá’ fólk vinna sinn vissa tima með gleði og ánægju, eða vera nótt og dag að starfa með óánægju og ólund, afkastandi miklu minna, sjáandi sér gjört ó- rétt? Eg ræð mig t. d. fyrir hjú yfir árið eða 365 daga; eg á ekki að þurfa að taka það fram, að vinna ber meðan dagur er eða 12stund- ir; hitt er hvíldartími. Það, sem hjúið vínnur fram yflr 12 stundir, er að mlnu áliti ranglega tekið af tíma þess sjálfs. Það er algengt hér við sjó, að hjúin eru látin vinna frá kl. 2 og 3 á nóttunni til 10 og 11 á kveldin, og sjá all- ir heilvita menn, hve slíkt er ranglátt, fyrir nú utan það, hve oft kemur fyrir, að hjúum er skip- að það, sem samkvæmt vinnuhjúa.- lögunum er óforsvaranlegt, og hvert hjú ætti að geta neitað, eins og t. d. að róa á næturtíma í myrkri 4 og 5 milur út í reginhaf á opnum bátum og fl. og fl.. Nei, meðferð þá, sem nú er og hefir verið á íslenzkum hjúum, verður að afnema strax, ef vel á að fara. Að minnast á þjónustu og matarræði íslenzkra vinnuhjúa ætla eg ekki að gera; en útlend- ingar hafa sagt, að fæðið okkar væri einungis gott handa hund- um; stafar það viða af sóðaskap, vankunnáttu og óvana fremur en fátækt. Svo kemur nú sem sum- ir kalla,»hádegi æfiþessara manna« og það eru hinar svo kölluðu»aust- urferðir«, þar sem konur og karl- ar eru send til að þrælka enn meir á sumrin, fluttir á smáferj- um 5—600 í einu, hrúgað saman í lest og á þilfar eins og kjötbit- um í tunnu; verður það að flækj- ast þar fleiri daga oft í lífsháska, því ef vont veður kemur upp á, má búast við, að alt sem á þil- fari er, geti druknað. [Framh.J Aths. frá ritstj. Grein þessi hefir verið send oss af vinnumanni einum og er oss kunnugt um, að hann talar i nafni og umboði margra annara stéttar- bræðra sinna. Enda þótt vér sé- um ekki að öllu samdóma hinum heiðraða höfundi, þá þykir oss það samt vel hlýða, að þessi fjöl- menna og mjög þarfa stétt lands- ins fái rúm í einu afblöðum lands- ins til þess opinberlega að láta í ljósi það, sem henni býr f brjósti. Enda mun því enginn heldur neita, að margt er hér mælt, sem á rök- um og sannindum er bygt, og er þess vert, að því sé gaumur gef- inn. Vinnumenn hér á landi eru öðru vanarí en að sinna ritstörf- am, og væri því engin furða, þótt eitthvað mætti út á rítsmiðin setja af þeim, sem slíkum störfum eru vanir. Þegar um tvo málsparta er að ræða, er sitt lízt hvorum, þá er jafnan bezt, að þeir, hvor fyrir sig, láti skoðun sfna í ljósi afdráttarlaust með hógværnm og skynsamlegum orðum. Má þá svo fara, og fer oft svo, að er málið skýrist við umræðarnar. Þá líka smá-dregur saman og leiðir til sátta og samkomulags á endanum. Sambandið og viðskiftin milli húsbænda og hjúa er án efa eitt hið þýðingarmesta mál, sem nú er á dagskrá hjá oss. Framtiðarheill þjóðarinnar er mjög undir því komin, að þetta samband og þessi viðskifti geti farið sem bezt úr hendi. En hér er harðriðinn og erflðan hnút að leysa, einkum þó að því, er landbændur snertir. Á aðra hliðina er fátækt bænda og getuleysi þeirra til að kaupa vinnu hjúanna dýru verði. Á hina hlið- ina er aftur vakandi tilfinning hjá hjúunum fyrir því, að hin fornu hjúakjör séu ekki lengur hoðleg og viðunandi. Ef kröfum þeirra hér er að eugu sint, þá brosir Ameríka við þeim með opinn faðm- inn. Fyrir handan Atlanzhafi hillir í margra augum undir gull og græna skóga; þaðan berst óm- urinn af hringlinu í dollurunum og þaðan leggur fyrir vit manna mikla mýkri matarlykt en íslenzk vinnu- hjú nef eiga að venjast hér á landi. Báðar þessar stéttir, húsbændur og hjú, eru lang-fjölmennustu og um leið að mörgu leyti einna þörfustu stéttirnar á landinu. Ef vel á að fara, þarf á beggja hag að líta, og báðum á að unna rétt- lætis og sanngirni, eins og vér lika óskum, að jafnan megi svo á milli þeirra semjast, að báðum hlotnist gagn og ánægja. Æski- legast væri, að svo mætti bæta kjör allra islenzkra vinnuhjúa, að þau upp skæru hæfileg laun vinnu sinnar, ynnu hjá húsbændum sín um með ánægju og gleði og létu sér ekki í hug koma, að flýja landið sitt; og svo á hina hliðina, að hagur islenzkra húsbænda efld- ist það, að þeir gætu goldið hjú- um sfnum og gert við þau í alla staði eftir sanngjörnum nútíðar kröfum. En hvað sem þessu líður, þá teljum vér það til bóta, að hús bændur og hjú ræði mál sín opin- berlega með skynsemd og still- ingu; af þeim umræðum getur margt gott leitt. En þess viljum vér biðja öll góð og greind hjú að minnast, er þau ræða kjör sin, hvort heldur er hér eða annar- staðar, að meira ræður hjá flest- um islenzkum húsbændum fátækt og getuleysi en viljaleysi í því að gera sæmilega við hjúin. Eins og líka húsbæudurnir ekki mega lá hjúunum það, þótt þau vilji gæfu sína og hagsæld. Við erum öll, í hvaða stöðu sem við erum, að leita gæfunnar. Húsbændur og hjú eru jafnborin til hennar. Raiisárvallasýslu, ö. des. Tíðin mjög indæl, þó vætusöm sé. Heyskapur hér í sveit var í fullu meðallagi að vöxtum, en meir en það að gæðum, enda lítur út fyrir, að kýr ætli að gera gott gagn. Hérerá einstaka bæ ekki farið að taka lömb enn, og er slíkt óvanalegt. Garðuppskera varð hér þetta ár með langbezta móti, enda farið að sýna þeirri grein landbúnaðarins meiri sóma en átt heflr sér stað hingað til. Talsverður áhugi er vaknaður hjámönnum á jarðrækt, og hann er mikill hjá sumum, því það má segja, að hér séu að hefjast stórmiklar jarðabætur. Hér eru skilvindur á einstaka stað, en þær eru alt of fáar, því þær ættu að vera til á hverju heimili; en þær eru dýrar, og gengur ekki létt eftir fyrir fátæka menn, að afla sér þeirra. Komið er til umtals, en .ekki í neina verulega fram- kvæmd, að stofna hér rjómabú, en það er dýrt að koma þvi f framkvæmd. Einstöku menn hér eru farnir að láta bólusetja fé sitt, og hefir það hepnast mjög vel í haust; ger- ir það auðsjáanlega mikið gagn, því þeir, sem hafa látið bólusetja, hafa enga skepnu mist, en pestin gert talsverðan usla hjá hinum, sem ekki hafa látið bólusetja. Hér eru sveitaþyngsli mikil. Til- finnanlegust hin sívaxandi pen- ingagjöld. Einstaka bændur hafa frá 100 og upp undir 200 króna útsvar, og er slíkt þungur skattur. Aðal verzlun okkar E y f e 11- i n g a er í Vík í Mýrdal, og er ekki annað að heyra en roenn geri sig allvel ánægða með þá verzlun; það er Brydes verzlun. Henni stjórnar Gunnar Ólafsson, mjög lipur og reglusamur maður, því um hann má segja, að hann sé virtur og elskaður af öllum, sem kynni hafa af honum. Þar verzlar einnig umboðsmaður Hall- dór Jónsson i Vík, og má um hann segja, að hann sé þarfur landsvin- ur fátæku landi. Hann setur sig inn í fátækt manna, þó hann, sem betur fer, hafi aldrei sjálfur haft af henni að segja. Hann er sönn fyrirmynd bænda, rekur stórt og mikið bú auk verzlunarinnar, er framúrskarandi jarðabótamaður, og stundar sjávarútveg. Það má þvi undarlagt þykja, að hann skuli ekki enn hata fengið verðlaun úr sjóði Kristjáns konungs IX, ef hann hefir á annaðborð kept um þau verðlaun. Sjónleikar. Leikfélag Reykjavíkur heflr að vanda haldið uppi leikum nú um mánaðartíma. Leikur sá, er það heflr byrjað á, heitir á dönsku »Dristig vovet« og er skírður á vora tungu »Hugur ræður«. Sjálf- ur er leikurinn vel þýddur, en nafnið á honum ekki sem heppi- legast; virðist það fara í bága við eftii og úrslit leiksins, þvi það er öðru nær en hugurinn og kjark- urinn í ástamálum beri sigurinn trá borði. Að vísu er efni leiks- ins ekki ipikið eða djúpt sótt inn í sáiarlíf manna; en leikurinn er liðlegur og fer laglega á leiksviði og veitir góða stundarskemtun; annað erindi hefir hotium ekki verið ætlað. Kr. Þ., sem leikur Mortensen hestaprangara, og frk. Gþ. H., sem leikur ekkjufrú Birch, systur prangarans, leysa bæði verk sitt prýðisvel af hendi. Frk. E. I., sem litið kvað áður hafa fengist við að leika, leikur Ellen, yngri dóttur frú Birck, og fer það mjög iaglega úr hendi. Frú St. G. leikur aftur Fanny, eldri dótturina, og er það létt verk og löðurmannlegt fyrir jafnmikinn snilling og frú St. G., enda nýtur hún sín ekki. Þá er Gram læknir og vel leikinn, snyrtimannlegur og alvariegur eins og til er ætlast. Önnur hlutverk í leik þessum eru fremur tilkomulitil i sjálfu sér, enda dregur meðferð þeirra ekki að sér hugi manna. Bækur sendar FjallJconunni. »Det nordiske Forlag« í Kaup- maunahöfn hefir nýskeðsent Fjallk. tvær nýútkomnar bækur. Önnur þeirra er »Det hoje N o r d«, eftir kapt. D a n i e 1 B r u u n, sem mörgum er að góðu kunnur hér á landi. Er það al- þýðleg lýsing á hinum norðlæga heimi og þjóðum þeim, er þar

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.