Fjallkonan - 28.06.1904, Síða 1
Kemur út einu sinní í
viku. Verð árgangsins 4
krónur (erlendis 5 krónur
eða IV2 dollar), borgist
tyrir 1. júlí (erlendis fyrir-
fram).
±J
BÆNDABLAÐ
V ERNLUNARBLAÐ
TJppsögn (skrifleg) bund-
in við áramót, ógild nema
komin sé ti útgefanda fyr-
ir 1. október, enda hafi
i-i .joi'g' biaðið
Afgreiðsla :
Miðsí.
XXI. árg.
Reykjavík, 28. júní 1904.
Nr. 26.
Augnlækning ókeypis 1. ,og 3. þrd. á
hverjum mán., kl. 11—1 í spítalanum.
Foiingripasafn opið md., mvd. og ld.
11—12.
K. F. U. M. Lestrar- og skriístofa opin
á hverjum degi kl. 8 árd. til kl. 10 síðd.
Almennir fundir á hverju föstudags- og
sunnudagskvöldi kl. 8^/a siðd.
Landakotskikkja. Guðsþjónusta kl. 9 og
kl. 6 á hverjum helgum degi.
Landakotsspítali opinn fyrir sjúkravitj-
endur kl. 10t/a—12 og 4—6.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
kl. 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Landsbókasafn opið hvern virkan dag
kl. 12—3 (md., mvd. og ld. kl.2—3 til út-
lána) 6—8 síðdegis.
Landsskjalasafnib er opið hvern þriðju-
dag, föstudag og laugardag kl 12—1.
Náttúrugiupasafn, í Vesturgötu 10, opin
á sd. kl. 2-3.
Tannlækning ókeypis í Pósthússt.ræti 14b
1. og 3. Tnánud. hvers mán. kl. 11—1.
Walker’s giscuits
John Walke=Glasgow.
baka allar tegundir af hinum ljúf-
fengu smákökum og ódýra skipsbrauði.
Biðjið ætíð um þeirra brauð.
Aðalumboðsmenn þeirra fyrir Is-
land:
G. Gíslason & Hay, Leith.
Ekkjufrú
Sylvia Nielsina Thorgrímsen
andaðist 21 þ. m. eftir langa og þunga
legu, eins og drepið var á 1 síðasta
tbl. Hún var fædd 22. júlí 1822.
Faðir hennar var danskur að ætt,
Nielsen að nafni, verzlunarstj. á Siglu-
firði; en móðir var íslenzk. Hún
misti foreldra í æsku, en ólst upp hjá
Bogöe, kaupm. á Húsavík, st.júpa föð-
ur hennar. Systir frú Sylviu var Lovísa,
kona Þorláks sál. bónda á Stóru-
Tjörnum. En föðursystir hennar sam-
mæðra var frú Jakobína, kona Jóns
sál. Hjaltalíns, landlæknis.
Frú Sylvia giítist árið 1847 í Kaup-
mannahöfn Guðmundi kaupmanni
Thorgrímsen. Fluttust þau hjón sama
ár til Eyrarbakka, gerðist hann þar
verzlunarstjóri og var þar síðan í 40 ár.
Það er alkunnugt, að Guðm. sál.
Thorgrímsen var hinn mesti höfðingi
og heimili hans með meiri höfðings-
brag, prýði og risnu en títt’var um
nokkurt annað heimili hér á landi í
þá tíð; og frú Sylvia var í alla staði
manni sínum samhent í að gera heim-
ilisbraginn ánægjulegan og prúðmann-
legan. Gestrisni þeirra hjóna var
með aíbrigðum. Var það hvorttveggja,
að margan bar að garði á Eyrarbakka,
enda gestum svo fa-gnað af húsráðend-
um, að enginn gat gleymt, er einu
sinni reyndi. Eins og gestum var
J>ar yndi ánægju að njóta, svo
mátti og sjá, að þeim hjónum var
ekki annað yndi meira en að
gleðja gesti sína og gera þeim alttil
ununar. Á heimili þeirra hjóna var
fyrirmyndarstjórn, innanhúss og utan,
bæði skyldir og vandalausir, háir og
lágir nutu þar hinnar sömu ástúðar og
nærgætni. Bæði þau hjón voru hjart-
anlega guðhrædd og trúrækin og á
heimili þeirra var sannkristilegur
blær, sem vakti virðingu og aðdáun
allra, er kyntust þvi.
Frú Sylvia var á yngri árum fríð-
leikskona hin mesta, og létlítt ásjá,
þótt árin fjölguðu á baki. Hún bar
sem drotting silfurkórónu ellinnar.
Yfirlit hennar var jafnan bjart, hreint
og fagurt og bar vott um hreina og
göfuga sál, enda elskaði hún alt
fagurt og gott, elskaði líflð og ljósið
með fegurðargeislum þess.
Þau hjón eignuðust 8 börn og lifa
af þeim Hans Thorgrímsen, prestur 1
Ameríku ; frú Jörgina S. M., kona L.
E. Sveinbjörnsson, háyfirdómara; frú
Sylvia Ljunge í Khöfn; frú Jakobína
Eugenia Nielsen á Eyrarbakka; frú
Ásta Hallgrímsson, ekkja Tómasar
sál. læknis, og fröken Solveig, sem
var með móður sinni til dauðadags.
Hún var ekkja í 9 ár; var búin
að eignast mörg barnabörn og nokk-
ur barnabarnabörn.
Það er á slíkum sæmdarkonum,
að orð skáldsins rætast, því þær eru
„lands og lýða
Ijós í þúsuud ár“.
Konur snúa á karlmenn,
Það er kunnugt, að á Suðuriandi
hafa á stöku stað verið gerðar til-
raunir til þess að stofna ábyrgðarsjóði
fyrir kýr, og ein sýslunefnd á Suður-
landi hafði fyrir nokkrum árum líkt
mál með höndum, nema hvað það
var víðtækara. Því þar var, ef oss
minnir rétt, ætlast. til að ábyrgðin
tæki yfir alla stórgripi sýslunnar.
En - því miður hefir nauðsynja-
mál þetta óvíða náð verulega fram
að ganga enn sem komið er, þar
sem oss er kunnugt um. Verðurþó
ekki annað sagt, en að það mál sé
bændum til mikils gagns og búnað-
inum til stuðnings og eflingar.
En þetta, sem trauðlega hefir tek-
ist fyrir oss Sunnlendingum, hefir
þar á móti komist í framkvæmd hjá
konum í Norður-Þingeyjarsýslu, og
er maklegt, að því sé á lofti haldið.
Þeim heidur, sem heiður heyrir,
þó konur séu.
í skýrslu þeirri, sem Sig. ráðu-
nautur Sigurðsson samdi í fyrravet-
ur um búnaðinn á Norðurlandi og
sem prentaður var í blaðinu „Norð-
land“, er skýrt frá því, að í Keldu-
hverfi í Norður-Þingeyjarsýslu hafi
verið stofnaður ábyrgðarsjóður fyrir
kýr. Séu það konur sveitarinnar,
„sem sjóðinn hafa myndað á þann
hátt, að leggja tii hans árlega nokk-
ur pund af sméri eða andvirði þess“.
Henni hefir vanalega ekki verið
dillað og hossað hátt, kvenþjóðinni
hérna á íslandi, og vér getum ætlað,
að þessi framkvæmd kvennanna í
Kelduhverfi muni af einhverjum ekki
talið stórvirki eða efni til mikilla frá-
sagna.
En vér lítum svo á, að það sé á-
nægju- og gleðiefni, hvar sem bólar
á nytsamlegum framkvæmdaranda og
gagnlegum tilþrifum hjá kvenfólkinu
íslenzka. Þegar litið er á kjör þau,
andleg og líkamleg, sem kvenfólkið
hér á landi hefir átt jafnaðarlegast
við að búa um liðnar aldir og allar
götur fram til nútíðar, þá höfum við
karlmennirnir, ekki ástæðu til að
ætlast til svo ýkja mikils af þeim.
Þeim hefir oftast verið skipað á
óæðra bekkinn í mannfólaginu, og
jafnvelveriðtalið hæfilegast, að minsta
kosti af sumum, að sæti þeirra væri
sem næst hlóðarsteinunum.
En það er nú svona samt, að
gamla íslenzka þjóðtrúin gerði jafn-
an ráð fyrir, að mestur væri maður-
inn í öskustóarbarninu og það ætti
jafnan drýgstu gæfusporin að ganga.
Það er eins og þjóðskáldin gömlu
hafi eitthvað rámað í það, vitandi
eða óafvitandi, að mæður þeirra voru
úr flokki öskustóarbarnanna íslenzku
og dætur þeirra fóru flestar í þá hina
sömu vistina.
Jæja! Hvað sem þessu líður, þá
er það nú víst, að framtíðarvonirnar
um blessun og gæfu eru engu síður
tengdar við kvenfólkið en karlmenn-
ina, og vér fögnum hvar sem vér
sjáum þess vott, að ekki eru allar
dísir dauðar að því, er kvenfólkið
snertir, hug þess og dug. Og vér
tökum hattinn ofan fyrir þingeysku
konunum í Kelduhverfinu, semfram-
kvæmt hafa það með samtökum sín-
um og félagsanda, er vafist hefirfyr-
ir okkur karlmönnunum víðast um
land, þó í buxum séum.
Nú eru rjómabúin að spretta upp
til og frá um Suðurland og viðar.
Fyrir þau verður mjólkin verðmæt-
ari en áður og kýrnar eru þegar
teknar að bráðhækka í verði.
Þetta eru gleðitíðindi fyrir alla þá,
sem vilja landbúnaðinum vel, því úr
þessari átt mun bændum drjúpa
drjúgt, er stundir líða fram.
En um leið og kýrnar hækka í
verði og afurðir þeirra fara vaxandi
að megni, gæðum og verðmæti, þá
er og tjónið meira og tilfinnanlegra, ef
bóndinn missir kú eða kýr á óhent-
ugum tíma. Getur það þó jafnan
að höndum borið bæði hjá ríkum og
fátækum, eins og dagleg dæmin
sanna.
Verið getur, að andstæðingum
þessa máls þyki þörfin á kúaábyrgð-
um nú verða minni beint fyrir rjóma-
búin, af því að þá verði bændur fær-
ari um að bera skaðann.
En þessi skoðun er röng og skul-
um vér láta nægja, að benda á það
eitt, að aldrei eru útvegsmenn svo
einfaldir, að álíta, að minni sé þörf
á að tryggja skipin þótt vertíð reyn-
ist góð og afli sé i háu verði.
Vér álitum, að eftir því semrjóma-
búin fjölga og verða þroskameiri, að
sama skapi vaxi bæði þörfin á að
koma kúaábyrgðarsjóðunum á stofn og
um leið máttur bænda til þess að
geta komið slíkum sjóðuin á lagg-
irnar. Teljum vér, að landssjóði sé
engu óskyldara að styrkja; slíkar
sjóðstofnanir heldur en ábyrgdarfélög
þilskipa. Landbóndinn og útvegs-
bóndinn eiga að njóta jafnréttis;
þeir eru báðir jafnþarfir og eiga að
vera jafn réttarháir.
Vér hreyfum máli þessu enn þá
og beinum því nú sérstaklega að
bændum þeim, sem við rjómabúin
eru og verða dreiíðir. Vér ætlum
þeim frekari félags- og framkvæmd-
aranda en mörgum öðrum, án þess
þó að gera að nokkru leyti lítið úr
hinum.
Vér spyrjum að lokum: Er til
ofmikils mælst, að ætlast til þess,
að karlmennirnir á Suðurlandi geti
haldið í við konurnar á Norðurlandi
í þessu máli?
Eða, ef bændurnir eru tregir til að
stíga þetta spor til að tryggja arð-
sömustu e'gnina sína, er þá óhæfa
að nefna það, að konurnar á Suður-
landi manni sig upp og fari í för
systra sinna í Kelduhverfinu í Þing-
eyjarsýslu ?
Pað vœri „œrlegt strykl“
Silnnlendingur.
jjúnaðarbálkur.
XV.
Að fara snemma á fætur.
„Morgunstund ber gull í mund“.
Enginn neitar þvi, en oft þarf slíkt
að brýna, og hér fer á eftir hugvekja
frá sænskum lækni um það efni.
Heldra fólkið, sem kallað er, fer
vanalega seint að hátta og seint á
fætur.
í fljótu bragði virðist svo, sem
þetta gildi einu, að eins ef sofið er
í 8 stundir yfir sólarhringinn. En
Þessu er þó eigi þann veg varið. —
Tveggja stunda svefn fyrir miðnætti
hefir meiri og betri áhrif á líkamann
en fjögra stunda svefn að deginum
til.
Því er að vísu svo varið, að menn-
imir geta vanið sig á ýmislegt, sem
stríðir á móti náttúrlegu eðli þeirra
að meira eða minna leyti; og svo
er með það, að fara seint að sofa. —
En heilbrigðisástand slíkra manna
er yfirleitt lakara en hinna, sem íara