Fjallkonan - 09.02.1906, Page 2
22
FJALLKONAN.
sjálfstjórn vorri með því að breyta
stöðulögUDum, þar sem þau eru sam-
þykt af ríkisþinginu, án þess að ís
lendingar væru um það spurðir. Fyr-
ir því vill hann láta bæði ríkisþing
Dana og íslendinga samþykkia hin
endurskoðuðu stöðulög. Og svo mikla
virðingu heíir þessi danski stjórnmála-
maður fyrir þjóðræði vor íslendinga,
að honum þykir ekki nóg, að alþingi
samþykki hin nýju stöðulög, heldur
eigi beinlínis að leggja þau lög und-
ir atkvæði íslenzkra kjósenda.
Það leynir sér ekki, hve miklu
næmari tilfinning þessi danski maður
hefir bæði fyrir landsréttindum vor-
um og þjóðræði en sjálfur meiri hlut-
inn á alþingi Islendinga. Samt er
hann talinn íhaldsmaður með sinni
þjóð. En meiri hlutinn á aiþingi tel-
ur sig ákafa framsókDarmenn. Það
virðist svo, sem íslenzku garparnir
séu heldur að dragast aftur úr.
Þennan veg hefir aldrei nokkur
danskur rnaður talað, svo kunnugt
sé. Hér eru sýnileg veðrabrigði í
lofti.
Getur nokkur Íslendingur efast um,
að vér eigum að færa oss þau veðra
brigði í nyt? Yæri það nokkuð ann-
að en glæpsamlegt sinnuleysi að liggja
nú eius og dauðar klessur, eða sitja
og glápa hvor á annan og taka ekki
einu sinni undir, þegar til vor er
hrópað um réttindi ættjarðar vorrar?
Fræsðslumála-umsjóiiiu.
[Prentun þessarar greinar hefir dregist
vegna þrengsla í blaðinu].
Stjórnin reynir í blaði sínu, „mál-
gagni sannsöglinnar,11 að verja gjörð
ir sínar í því máii, er Fjallk. hefir
nýlega minst á. Þar verður, eins og
títt er um hana, seinui villan argari
hinni fyrri.
Fyrst reynir stjórnin að bregða
villuljósi yfir sögu málsins á þinginu,
lætur sem málið hafi tekið gagngerðri
breytingu þar, þegar séð varð fram
á, að fræðslufrumvarpið næði ekki
fram að ganga, og af því stafi það,
að ráðherraun hafi nú skipað skóla-
stjórann í H fnarfirði til starfs þess,
er áður hefir verið getið um hér í
blaðinu, eða einhvers hluta af því.
Auðvitað er sú þvæla öll hégóm-
inn einber. Það getur hver maður
séð, sem lítur í Alþingistíðindin.
Eáðherrann hafði í fjarlagafrum-
varpinu farið fram á „þóknun til um-
sjónarmanns yfir barnaskólum og al-
þýðufræðslu 2500 kr.“ hvort árið.
Þá hafði honum ekki hugkvæmst,
að nein þörf væri á að skifta starf-
inu. Umsjónarmaðurinn átti ekki að
vera nema einn. Og Guðm. Finn
bogason og margir aðrir vissu það,
að þetta starf var honum (G. F.)
ætlað.
Svo líður og bíður fram yfir bænda
fundinn. Þá fer ráðherrann að hreyfa
því við 2. umr fjárlaganna í neðri
deild, að óvist sé, hvort slíkt em-
bætti eða staða vérði stofnuð, segir
það komið undir meðferð fræðslu-
frumvarpsins. (Alþt. B, 211).
Sama dag (12. ág.) er fræðslufrum-
varpið til 2. umræðu í efri deild.
Mentamálanefndin þar vill hafa um-
sjónarmann (þgskj. 329). Um þenn-
an umsjónarmann fer framsm. þess-
um orðum: „Nefndin ætlast til, að
þessi maður ætti helzt að veita stjórn-
arráðinu aðstoð sína ekki að eins við
þau mál, er snerta barnafræðsluna,
heldnr líka við hin æðri fræðslumál,
er snerta t d. gagnfræðaskólana, hinn
fyrirhugaða kennaraskóla, hinn alm
menntaskóla o. s. frv.“ (Alþt. B.,
1920).
Eins og menn sjá á þessu, er þ nn-
an dag ekkert komið fram viðvíkj-
andi fræðslufrumvarpinu, er gæfi í
skyn, að embættið eða staðan kunni
að þurfa að stranda. Ráðherrann
einn virðist búast við því.
En við 3. umr. fjárlaganna í efri
deild, 16. ágúst, er nefndin búin að
breyta stefnu sinni. Þá leggur hún
til að stjórnin hafi sér til aðstoðar
„einn eða fleiri,“ og það var sam-
þykt. Hvar hafði nefndin fengið
bendingu um, að slíkt væri nauðsyn-
legt? Frá ráðherranum? H^ers
vegna hafði þá ekki ráðherranum
hugkvæmst þetta áður? Af því
að þá þurfti ekkert að hefna sín á
Guðm. Finnbogasyni.
En svo fylgispakur sem meiri hluti
neðri deildar var við ráðherrann,
veitti honum örðugt að sætta sig við
þessa hefnd. Mönnum þótti óbragð
að henni þar í deildinni. Fyrir því
var við 2. umr. fræðslufrv. þar, 23.
ág., samþykt sú breytingartillaga
mentamálanefndarinnar, að „einn eða
fleiri“ falli burt.
Daginn eftir að neðri deild sýnir
það ótvíræðlega, að hún vill ha'a
einn umsjónarmann, gerir ráðherrann
eina atrennuna enn. Þá fær hann
það samþykt í efri deild við 3 umr.
fjárlaganna, að fjárveitingin skuli orð-
ast eins og hún er nú í fjárlögunum.
25. ág. er fræðslufrumvarpið til
umræðu í neðri deild, og þá kemur
ráðherrann fram með tillögu, er átti
meðal annars að miða að því, „að
það sé ekki bundið fastmælum, að
strax sé skipaður einn ráðunautur í
kenslumálum o. s. frv.“ (Alþt B,
1964). En þá var málið tekið út af
dagskrá og sömul. 28. ág., og þar
með svæft.
Þá fyrst veit þingið, að málið fær
ekki fram að ganga. En frá 12 á-
gúst bafði ráðherrann stóðugt verið
að berjast við að fá breytt þeirri fjár-
veitingu, sem hann hafði sjálfur
stungið upp á bæði í fræðslu og
fjárlagafrumvarpinu.
1 hverju skyni var sú barátta
hafin?
Vitanlega i engu öðru skyni en
því, að fá átyllu til að bo'a G. F.
frá þessu starfi, sem undanfarin
þing hafa ætlað honum að vinna —
bola frá starfinu manui, sem stjórn-
in sjálf hafði sýnt sama traust eins
og þingið, með því að fela honum á
hendi störf, sem honum bar engin
skylda til að vinna, eins og bent
var á í Fjallk. nýlega.
Hitt kernur málinu alls ekkert við,
sem stjórnin er að þvæla um í „mál-
gagni sannsöglinnar“, hvernig hún
kann að bita niður á eftir þessum
2500 kr. á ári meðal gæðinga sinna,
hvort hún kann að láta sitja við
þessar 100 kr. á mánuði til skóla-
stjóraDS, sem honum hafa þegar ver-
ið ánafnaðar, og veita öðrum af-
ganginn, eða hvort hún lætur alla
fjárveitinguna fara til hans. Hitt
skiftir máli, er aðalatriðin og eina
atriðið, að sá maður fær ekki að
og vinna verkið, sem það var ætlað
ekki hafði brotið af sér í þessum
málum, svo menn viti, traust þings
né þjóðar.
Auðsjáanlega þykir stjórninni ekki
heldur næg réttlæting fyrir sig, þó
að hún reyni að rangfæra tildrögin
til meðferðar þingsins á þessari fjár-
veitingu, og tekur svo það bragð
að ófrægja G. F. á ýmsan hátt.
Hún lætur „sannsögli málgagnið“
flytja sleggjudóma um þau verk, er
G. F. hefir leyst af hendi fyrir hana,
og hún hefir sjálf aðhylst. Slíkt at-
ferli virðist ekki mikill virðingar-
auki fyrir stjórn landsins.
Hún fer að brigsla G. F. um, að
hann hafi „gefist upp“ við kcnslu í
barnaskólanum, vitandi það, að hann
hætti við kensluna þar um miðsvetr-
arpróf, vegna þess að hann hafði
fengið svo margar kenslustundir við
skóla iðnaðarmanna, að hann gat
ekki sér að skaðlausu haldið hinni
kenslunni áfram.
Hún reynir sð gera starf það, er
alþingi 1901 fól G. F. á hendi, að
„miskunnarverki eða sáraplástri“, af
því að tengdasonur „sannsögli“-rit-
stjórans var þá tekinn fram yfir hann
við veitingu heimspeki-legatsins —
gætandi ekki að því, að annaðhvort
hefði þá G. F. hlotið að vera talinn
óvenjulegt afbragð ungra manna, eða
alþingi hefði farið mjög samvizku-
lítið með fé þjóðarinnar. Og varþi
alþingi 1903 að halda áfram að
smyrja plásturinn? Það eru skárri
miskunnarverkin og sáralækningarn-
ar, sem stjórnin ætlar alþingi að hara
með höndum!
Enn fremur lætur stjórnin mál-
gagnið flytja þá ósannindasögu, að
G. F. hafi gengið innan um götu-
strákahóp og haft fyrir þeim orð að
hrópa niður með ráðherrann. Vitan-
lega lýtur þetta til framkomu G. F.
á bændafundiuum í sumar. Og það
eitt hafðist hann þar að, að ávarpa
íslenzka bændur nokkurum orðum.
í þeirri ræðu sinni lagði hann ekki
einu sinni nokkurn dóm á gjörðir
stjórnarinnar. Hann sagði að eins
nokkur sæmdarorð í bænda garð
fyrir það, að þeir stæðu við sann
færing sina. Þeita litla rangfærir
stjórnÍD !
Loks leggur stjórnin út í að
drótta því að manninum, að hann
sé óvenjulega óvandaður, svo gífur
lega óvandaður, að búast megi við
því, að hann réði stjórninni það í
mentamálum, er hann teldi líklegt,
að henni gæti orðið til falls, efhann
væri ráðunautur hennar. Góðmann
legar eru nú tilgáturnar og mann-
lýsÍDgarnar hjá æðstu mönnum lands
ins um mann, sem ekkert hefir ann-
að gert en vinna öll þau verk, er
honuin hafa enn verið á liendi falin,
af trúmensku og fylstu samvizku
semi!
Fyrst er alsaklaus maður beittur
óhæfilegri rangsleitni. Og á eftir er
reynt að réttlæta rangsleitnina með
enn ljótari rangsleitni — ósannindum
og rógi.
Ganga má að því vísu, að reynt
verði að klóra í bakkann með því
að segja, að stjórnin eigi enga sök
í þessari grein í „sannsögli"- mál-
gagninu. En það er ekki til noins.
Það er löngu útrætt mál, hver hefir
siðferðis-ábyrgðina.
Marconi-loftskeyti.
6. febr.
Akafar róstur í París út af mót-
mælum gegn búnaði kirkna eftir
skiluaðarlögunum ríkis og kirkju.
Frekari mótmæli á föstudaginn leiddu
til óskapaláta, sem komust þáð langt,
að upphlaup varð við Klóthildar-
kirkju hinDar helgu, þar sem mikill
múgur varði kirkjuna og rak út
lögreglustjórann og þjóðvaldsstjórn-
arvarðliðið, og hringdi kirkjuklukk-
unum sigri hrósandi. Varðmenn
brutu loks upp kirkjudyrnar roeð
byssuskeftum og ráku út óeirðar-
seggina eftir harðan bardaga, meiddu
80 og handtóku 150, en af þeim
hefir öllum nema 17 verið slept aft-
ur. Síðari fréttir herma af frekari
róstum í París og segja að uppþot-
ið hafi tekið sig upp aftur við Pét-
urskirkju (du gros Caillon), sem var
full af kennimönnum, erslógu keðju-
slagbröndum yfir dyrnar að innan.
Slökkvilið braut hurðir og slag-
branda með öxum, kleif upp á þak-
ið og beindi þaðan slökkvidælubunu
á múginn. Þrjár þús. voru í kirkj-
unni, brugðu margir fyrir sig marg-
hleypum, en aðrir notuðu múrsteina.
Riddaralið með brugðnum sverðum
sópaði burtu öllu fólki af kirkjutorg-
inu og særði margt af því. Messu-
gerð var haldin í kirkjunni eftir að
kirkjubúnaðurinn hafði verið tekinn.
Voðaleg neyð er í hallærishéruð-
unum í Jupan norðanverðu; þar er
nær miljón manna að verða hungur-
morða.
Því er búið að koma svo fyrir, að
4 brezkir liðsforingjar og þrír ind-
veskir fari til Japans og séu þar
við herinn tvö ár.
Það kviknaði alvarlega í Banda-
ríkjaskipinu Neade í San Francisco;
þrír menn létust, en margir urðn
sárir.
Sagt er frá miklum bruna í borg-
iuniPanama; þar hafa margar húsa-
spildur gjöreyðst og er margs fólks
saknað, þar á meðal frá Bandaríkj-
um.
Mjög þykir líklegt, að 400,000
amerískir málmnemar muni gera
verkfall í aprílmánuði vegna þess,
að húsbændur þeirra afsegja að greíða
hærra kaup.
Harður bardagi með byltingamönn-
um og herliði í Kákasus-, þar eru
mörg þorp að brenna. Alvarlegt á-
stand í Eystrasaltslöndum. Lettar
veita lögregluliðinu árásir sífeldlega.
Múhamedstrúar-fundurinn í Péturs-
borg, sem var bannaður fyrir viku,
hefir nú verið löggiltur.
Farþegar, sem koma frá Venesú-
ela, segja, að Castro forseti búist til
ófriðar af fremsta mætti og hafi
skipað að skjóta á hið fyrsta her-
skip, sem sjáist.
9. febr-
Mjög eru skiftar skoðanir um stefnu
stjórnarandstæðinga á Bretlandi. „Ti-
mes“ staðfestir þá frásögu, að Cham-
berlain og Balfour hafi ekki tekist
að koma sér saman. Sambandsflokk-
urinn ætlar að halda fund í næstu
viku. Siðari fréttir segja, að skoð-
anir sambandsflokksins séu að snúast
með Balfour sem leiðtoga stjórnar-
andstæðinganna. Samkomulagshorfur
þvi miklu betri
Pennsylvaniu-stjórn er að koma upp
ríðandi lögregluliði með hliðsjón á
miklu verkfalli í kolanámunum, sem
getur komið fyrir í apríl.
Siglinganefnd Japana hefir lýst yfir
því, að skipastóll Japans muni auk-
ast um 400 þúsund smálestir árið
1907.