Fjallkonan

Issue

Fjallkonan - 06.04.1906, Page 2

Fjallkonan - 06.04.1906, Page 2
58_________________________________FJALLKONAN. Eu eftir því sem stjórnarmenn þess- ir vilja „leiða mönnum fyrir sjðnir,“ er það annaðhvort, að þeir álíta nð ekkert þurfi framar til samgöngubóta að leggja, eða að þjóðin geti bætt símakostnaðinum á sig, afþeirri einu ástæðu, að hún hefir hingað tii borið kostnaðinn til samgöngubóta, að vísu með því að leggja á sig þunga skatta, en þó án þess að örmagnast undir þeim. Á þennan hátt eru röksemd- irnar all oftast, alveg óskiljanlegar frjálsum mönnum. Hvað ætli menn segðu, ef hann Pétur á Gautlöndum ályktaði sem svo, þegar hann fer að flytja ritsíma- staurana: Af því að jálkurinn þessi, sem er magur og illa fóðraður frá því fyrsta, hefir hingað til getað bor- ið einn staur án þess að skjögra, sést, að hann getur borið tvo í við- bót jafn-þunga, án þess að gefast upp? Eg ætla, að menn héldu hann naum- ast með fullu ráði. En alveg mundi það þó samskonar ályktun og hér er bent á hjá þessum blessuðum stjórn- argæðingum, er höfðu ritsímamálið til athugunar. Það vill til stundum, að þeir sem takast á hendur að verja það, sem er óverjandi, slá sjálfa sig á munn- inn. Ekki er hægt í stuttri blaðagreiu að rekja allar firrur stjórnarmanna, utan þings og innan, enda var það aldrei ætlan mín, því að flest af þeim er áður marg-hrakið. Þarf eigi ann- að en lesa alþingistíðindin, til að sannfærast um þetta, og vil ég ein dregið ráða kjósendum til að kynna sér þau vandlega ásamt öðru, er hvor flokkurinn fyrir sig heldur fram. Með því einu móti er hægt að mynda sér sjálfstæða skoðun og dæma hlut- drægnislaust milli flokkanna. Er það hin mesta nauðsyn, því að ástandið er ískyggilegt — hið póli- tíska ástand. Þjóðin skiftist í 2 flokka mjög andstæða. Stjórnin myndar annan flokkinD; henni fylgir enn meiri hluti þingmanna í öllu, hæfu og óhæfu, og skapast með því takmarkalaust einveldi. Þenna flokk fylla yfirleitt þeir gæðingar, er þykjast eiga völd sín og metorð undir náð stjórnarinn- ar. Þar við bætast og margar and- lega bljúgar sálir, er ýmist standa i þeirri góðu meiningu, að ráðgjafinn sé gæddur fullu einveldi til að ráða öllu, eða þá þeir ætla sér sumir hverj- ir að vinna til skófna úr embætta- og sýslana-potti stjórnarinnar, því margir þykjast þegar hafa komist að raun um það, að sú sé nú stefna í landi hér, að þeir einir fái bita, er fyrir stjórninni smjaðra. Fjöldi hinna ísl. dagbiaða fylgja stjórninni og er það sérstaklega einkennilegt, að það eru öll minniháttar-blöðin. Ekkert þeirra — ég nefni ekkinýjublöð'n —, á það skilið að vera keypt og lesið, eins og stjórnin veit bezt sjálf og lætur á sjá. Þess vegna eru nú, að tilhlutun stjórnarinnar eða stjórnar- vina, stofnuð ný blöð sýnilega í þeim tilgangi að ganga á milli bols og höfuðs á gömlu stjórnarblöðunum, og haía stjórnarmenn þegar keypt tvö af þessum ómyndarblöðum til frálags á Akureyri. Er það spá rnargra, og það einna helzt stjórnarvina, að „Þjóð- ólfi“ og „Heykjavík“ séu ætluð sömu forlög og ber það óneitanlega vott um að stjórnin er farin að sannfær- ast um, að henni sæmi flest annað betur en aðferð sú, er biöð hennar hafa beitt gegn þjóðinni og lieuuar mætustu mönnum. — Gæti þetta orð- íð til þpss að bæta ofurlítið pólitíska á«tandið í landinu afplánar stjórnar- flokkurinn með því eitthvað af sinum pólitisku syndum og hefir hann þess fulla þörf. Að fþví er andstæðinga-flokkinn snertir, þá var hann, sem kunnugt er, fámennur á síðasta þingi. En þjóð- in, alþýðan, fylgir þessum flokki eins og sýndi sig í sumar, því að yfirleitt hafa íslendingar aldrei unað einveldi, eins og kunnugt er, heldur reynt að brjóta það af sér, þó illa hafi það gengið löngum. Prestarnir fylgja al- þýðunni að málum; þeir eru yfirleitt frjálslyndastir allra embættismanna landsins, enda þekkja þeir bezt kjör alþýðunnar, sem er fátæk og á við harðrétti að búa. Er þeim það sízt láandi, þótt þeim þyki alþýðau illa leikin, þegar lagðir eru á hana þung- ir skattar, þvert í móti vilja hennar, og eigi sízt, þegar skattarnir eru not- aðir til að drífa áfram illa undirbúin fyrirtæki, er vísast þykir, að aldrei verði þjóðinni að gagni, í samanburði við það,. sem þau kosta. Alþýðunnar máli tala og helztu blöð landsins; því verður ekki neit- að. Ritstjórar þeirraæru frjálslyndir hæfileikameun, er meta meira velfarn- au lands og lýðs en vinfengi við valdaflokkinn, þegar hann beitir eigi rétt valdi sínu. Er því ekki ólíklegt, að alþýðunni, sterkasta hluta þjóðarinnar, með þau blöð í broddi fylkingar, sem nú tala hennar máli takist áður langt um líður að ná betri tökum á stjórn landsins eu nú. Að því verður al- þýðan að vinna, ef vel á að fara. Þingmaimaboðið. Skoðanir þeirra manna, sem fyrir hvern munviljaláta stjórnarandstæð- inga faratil KaupmaDnahafnar í sum- ar, virðast vera mjög á reiki. Ritstjórn Ingólfs hefir enga trú á því, að stjórnarmena mundu vinna oss neitt g gn. „Eftir framkomu þeirra á síðasta þingi skiljum vér ekki, hvaða gagn gæti af þeirra för slafað íyrir þjóðina“ segir blaðið. í þvi efni erum vér Ingólfi alveg sammála. Aftur á móti getur Jón Jónsson sagnfræðingur ekki ætlað stjórnar- mönnum annað, en þeir fáist til að halda fram frekari stjórnarbótarkröf- um af hendi íslendinga. Hann kveðst ekki geta „fallist á þá skoðun, að meiri hluta þingmennirnir séu sneidd-- ir ættjarðarást og sómatilfinningu,,. Hvernig stendur þá á því, að meiri hluta þingmennirnir lofa engu í þessu efni? Blöð þeina eru alt af að koma út, eu þeir verjast öllum lof- orðum. Er það ekki sæmilega ljós bending um, að þeir séu sneiddir þeirri ættjarðarást og þeirri sómatil- finning, sem til þess þarf að fara að heimta stjórnarbót í sumar? Geti ekki sú bending sannfært hr. J. J., þá vísum vér honum til rit- stjórnar Ingólfs í þeirri von, að hún geti sannfært hann. Ingólfur kemur annars með mjög mikilvæga staðhæfing i þessu máli. Blaðið segir: „Þar er vitanlegt, að heimboðið er eiumitt stofnað í því skyni af Þönum, að afla sér áreiðanleqrar þekhinqar á óánœqjnefni Islevdinqau. Hvaðan hifir blaðið þessa vit- neskju? Hefir konungur sagt það? Hefir nokkur dönsku ráðherranna sagt það? Hefir nokkur danskur ríkisþingmaður sagt það ? Eða hefir ráðherra vor sagt það ? Þetta hlýt- ur Ingólfur að geta frætt rn'ann um ef hér er ekki um einberan misskiln- ing að tefla hjá blaðinu. Vér skulum fúslega kannast við það, að geti Ingólfur fært sönnur á sitt mál í þessu efni, þá horfir mál- ið annan veg við. Þá ciga íslenzk- ir stjórnarandstæðingar erindi til Kaupmannahafn ar. ' Annars ekki. Sé ekki til þéss stofnað af Dana hálfu, að óánægjuefni íslendinga komi fram í sumar, þá er alt skrafið um það, að stjórnarandstæðingar muni, mitt í veizluglaumnum og þrátt fyr- ir sjálfsagðan andróður meiri hluta alþingismanna, sannfæra Dani um hve kröfur vorar séu sanngjarnar og hollar. ekkert annað en hégómi og skýjaborgir. Eimreiöin. í nýkomnu Eimreiðarhefti (XII. 1) eru tvær ritgjörðir hvor annari betri í sinni röð. Önnur þeirra er um Þingeyjar- syslu fyrir og eftir aldamótin, eftir Guðm. Friðjónsson. Fyrirsagnir eru þar: Pólitik, Búskapur og sveitalíf, Réttardagurinn, Helgihald boðorð- anna, Eiukennilegir menn, Félags- skapur og skemtanir, Almenuar at- hugasemdir. Frá þessari ritgjörð er snildarlega gengið. Vér ætlum það ekki á færi nokkurs annars íslend- ings að lýsa lífinu í einni sýslu landsins jafn-skemtilega. Það er hörmung til þess að vita, að ann- ar eins ritsnillingur og Guðm. Frið- jónsson er að verða æ meir og meir, skuli verða að eyða æfinni í fátækt við búhokur. Hin ritgjörðin, sem vér viljnm sér- staklega benda á, er „Stjórnin og em- bættisgjöldin“ eftir ritstjóra Eimreið- arinnar. Dr. V. G. hafði bent á það í Eimr. áður, að embættisgjöl 1 hér væru afarhá í samanburði við sams konar útgjöld Dana. Þeirri grein svaraði prófessor Björn M Ólsen í Andvara. Nú svarar Dr. V. G. aftur. Og ekki verður annað séð, en að prófessorinn sé beinlínis aumkvunar- verður eftir þá útreið. Allra hranalegastur verður ósigur prófessorsins, þar sem hann fer að véfengja þá frásögn dr. V. G. að embættiskostnaður Dana nemi um 8% af árstekjum ríkisins. Prófessor- inn fer að reikna þetta út sjálfur, og fær nær því 5 sinnum meiri fjárhæð tæplcga 38°/0- Nú skýrir dr. V. G. frá því, að hann hafi sína vitneskju beint frá Hagfræðiskrifstofu ríkisins. Og yfirleitt færir hann ljós rök að því, að allur Andvara útreikningur þessa stjórnar vísindamanns sé í meira lagi óáreiðanlegur. Próf. Þorv. Tiioroddsen segir í þessu hefti í alllöngu og skemtilegu máli frá mjög vitlausri bók um ísland eft- ir Nelson Armandale, bók, sem gefin er út af Clarendon Press í Oxford og tileinkuð vísindamanni, próf. E. B. Tylor. Oss er borin hið versta sag- an í þessari bók, fullyrt að Islend- ingar séu „gjörspdtir af drykkjuskap, þrælslnnd og velþóknun ásjálfum sér“ o. s. frv. Fagurfræðilegs efnis er í heftinu tilkomumikið kvæði eftir aðal-skáld Vestur-lslendinga, Stephan G. Steph- ansson, „Ávarp til Norðmanna,“ og tvær frumsamdar sögur, eftir Jón Trausta og Eiuar E. Sæmundsson. Ennfremur er þar Ritsjá og íslenzk hringsjá, eins og vant er. Bækur. Ur dularlieimum. Fimm æfintýri- Eitað hefir ósjálf- . rátt Guðmundur Jónsson. „Fjallkonan" hefir áður lauslega minst á þrjú þessara æfintýra í til- efni af því, að þau voru lesin í heyr- anda hljóði á síðustu Fjölnisskemtun. Nú hafa þau verið gefin út á prenti í fagurri útgáfu og tveimur bætt við, sem ekki standa hinum á baki, ásamt íslenzkri þýðing á því æfintýrinu, sem upphaflega var ritað á dönsku. Þýð- ingin er rituð ósjálfrátt, eÍDS og alt hitt, og Jónas Hallgrímsson er sagð- ur höfundur henmr. Hún sver sig ekki að eins í ættina til J. H. með orðfærinu, heldur og líka á þann hátt, hve mikið er vikið frá frumritinu til þess að gera blæinn sem íslenzkast- an, nokkuð svipað eins og í æfintýr- inu „Leggur og skel.“ Þeir menn, sem veitt hafa a'hygli því bókinentalega samvizkuleysi, sem þrá--innis hefir komið fram í blöðum hér á landi, þegar illgirnin hefir lagt orð i belg ganga auðvitað að því visu, að þessi yndisfögru æfintýri verði hrakyrt óspart. Fyrir rúmum fjórð- ungi aldar var hin fyrri ljóðabók Gríms Thomsens prentuð. Eina blað- ið, sem á hana mintist til muna, „Skuld“ Jóns Ólafssonar, helti yfir ljóðin svo gífurlegum smánunum, svo sem þar væri nær því undantekning- arlaust um hinn versta leirburð að tefla, að gersamlega tók fyrir sölu bókarinnar um mörg ár. Svo mikil var ósvífnin þá. Og svo mikið varð henni ágengt — þrátt. fyrir það að í bókinni voru ekki all-fáir dýrgrip- ir, sem jafuan verða með hinum allra fegurstu, er íslenzk tunga geymir — og þrátt fyrir það, að flestir þeir dýr- gripir höfðu áður verið birtir þjóðinni í blöðum hennar og tímaritum. Yið hverju mun þá ekki mega búast nú, þar sem þessi æfintýri eru ein hinna dularfullu fyrirbrigða, sem verið er að ofsækja menn fyrir að kynna sér. En að hinu leytinu getur enginn vafi leikið á því, að menn sem skyn bera á skáldskap og líta hlutdrægn- islaust á málið, komast skyndilega að raun um, að þessi æfinlýri eru gimsteiuar. Vitaskuld eru þau öll skrifuð í sérstöku augnamiði — íþví skyni að koma ákveðinni hugsjón inn hjá mönnum. Eu það rýrir ekki minstu vitund skáldskapargildi þeirra. Þau eru öll full af fegurð, bæði að orðfæri og hugsunum. Auk alls ann- ars er náttúrulýsingin í einu æfin- týrinu („í- jarðhúsum“) með því allra ágætasta í sinni röð, sem til er á ís- Ienzku. Þar eru þessar setningar, valdar af handahófi: „Þarna við fjallsræturnar, þar sem smárinn vaknar og sér morguninn bíða dreymandi efst uppi á fjallatind- unum, — og hann kemur ekki nið- ur i dalinn fyr en draumarnir rætast

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.