Fjallkonan - 06.04.1906, Page 3
FJALLKONAN
59
„Fjöllin voru vöknuð — en ekki
farin að klæða si?. — Og svo fóru
þau að klæða sig.“
„Hvar er sokkabaudið mitt,
mamma?“ spurði Bæjarfjallið.
Hérna!“ sagði Sólin, — hún spenti
sokkabaudinu um fótinn á því. glit-
ofnu geislabandi.“
Björn Jónsson ritstj ri hefir gefið
æfintýrin nt og ritað eftirmála. Hann
skýrir þar frá, hvernig þau eru til
orðin, að þvi leyti, eins og menn geta
orðið þess varir og nefnir nokkur
dæmi þess, að þetta sé engin nýlunda
í heiminum. Hann leggur engau dóm
á það, hvaðan þatta stafi, hvort það
sé runnið úr undirvitund þess, er
ritað hefir, eða frá öflum, er utan við
hann stunda. Sjálfsagt er það líka
réttast — sumpart fyrir þá sök, að
slíkt vandamál er seint of vandlega
hugað — sumpart vegna hins, að á
þessi fyrirbrigði (æfintýrin) ber að
sjálfsögðu að líta í sambandi við önn-
ur fyrirbrigði, sem enn hefir ekki
verið kostur á að skýra mönnum frá.
Og á meðan svo stendur á alþýða
manna þess ekki kost að mynda sér
sjálfstæða og rökstudda skoðun um,
hvaðan þessi fyrirbrigði stafa, og þar
af leiðandi eðlilegast að láta það mál
liggja milli hluta.
Stauraflutningd
á Vopnafirði var lokið að hér um
bil 5/g hlutum, þegar Yesta fór um,
að því leyti, sem samningar um
þann flutning hafa fengist: milliSels-
árvalla og Beinavörðu. En frá Sels-
árvöllum, ofan tíl í Selárdal, að
nyrðri brún Dimmafjaligarðs hafa
engir samningar fengist. Þarerum
500 staura að tefla, og þá meðal
hinna þyngsta. Eftir þá örðugleika,
sem reynst hafa á þeim fiutningi,
sem þegar hefir fram farið, er búist
við að samningar um flutning á
Dimmafjallgarði gangi ekki greitt.
Um 100 mðtorbátum
er sagt, að haldið muni verða út
til flskiveiða nú með vorinu við ísa
fjarðardjúp.
Fjárkláðalæknirinn
hr. Myklested var um síðustu
mánaðamót að rannsaka sauðfé í
Grímsnesiog Hrunamannahreppi, með
því að grunur hafði komið upp um, að
kláða hefði orðið vart þar. Reynd-
in hefir orðir sú, að þar er enginn
kláði, og útbrot á sauðfé, sem menn
höfðu orðið varir við, alveg meín-
laus.
Uóður afli
hefir verið fyrirfarandi á Stokks-
eyri, Eyrarbakka, Þorlákshöfn,
Grindavík, Selvogi og Garði.
Fiskiskipin
Útgerðin hefir gengið vel, það sem
af er vertíðinni. Á 35 skipum, sem
athuguð hafa verið, svo oss sé
kunnugt, hefir meðaltalið í marzmán-
uði verið rúm 7 þúsund. Ogfiskur-
inn er vænn. En mjög er aflinn
misjafn á skipunum. Mestur hefir
hann orðið hjá Jóni Ólafssyni skip-
stjóra á „Hafstein“, um 11 þús.
„Tryg'grvi kougrur“
fór héðan áleiðis til útlanda 31. maiz.
Með honum tóku sér far nokkrir farþegar,
þar á meðal Halvorsen umsjónarmaður við
hyggingu Islandshanka, frú Ragnh. Eyjólfs-
dótlir (Þorkelssonar) og frökenarnar Helga
Th orsteinsson, Guðrún Norðfjörð, Guðrún
Smith og Vilhorg Jónsdóttir.
Úr Borgarflrði.
24 marz.
Tíðin hefir verið mikið góð, það sem
liðið er af þessum vetri, og engit' heytæp-
ir, sem annars heyja nokkuð.
Nú er verið að draga stjórnarliðs-staur-
ana hér upp eftir héraðinu, beggja megin
fjarðarins. Heldur gengur það seint, sein
vonlegt er, því þyngd margra stauranna
er um 400 pund, og nnumast þykja þeir
í húsum hæfir fyrir ólykt, sem við þá
vinnu fást. Sagt er, að suma staurana
hafi orðið að saga sundur, t.il þess að
geta fært þá úr stað, en hvort „ráðið“
hefir leyft þá meðferð, er mér ókunnugt
um ; þó er líklegt að svo sé Sjalfsagt, er
það undir tíðinni komið, hvort staurarnir
verða komnir svo fljótt á sinn stað að
staursetningin geti byrjað í tæka tíð.
Allir hlakka víst til að fá símann, fyrst
loftið er fyrirmunað, og sumir gera sér
von um að geta notað símstauranaT fyrir
girðingastólpa, til áfestu fyrir gaddavír,
þar sem síminn á að liggja með fram
túnum eða engjum. Vera má, að ekki
sé heldur vonlaust um, að einhver stefnu-
verður áreiðauleíra laugbezt að kaupa skófatnað hjá und-
irrituðuin, sem nú hefir meir en
180 tegundir
af Karim., Kvenn., unglinga og barnaskóm og stígvjelum. verð
frá 60 aururn. Vaudaðastur, fallegastur og ódýrastur skófatn-
aður fæst hjá
tilfípijai
Ingólfsstr 3
NB. Talsvert af skófatnaðijverður selt raeð 25°/0 afslætti.
áSlji
breyting fengist á línuna í því skyni, —
þar sem stjórnfylgjendur eiga hlut að
máli.
Maður datt útbyrðis
og drukknaði á fimtudaginn var
af fiskiskipinu „Valtý“, Loftur Lofts-
son frá Bollagerðum, stýrimaður á
skipinu.
Marconi-loftskeyti.
2 apríl.
Þrettán námamenn hafa fundist
lifandi og verið bjargað úr Courriers-
námunum; þeir höfðu verið niðri i
jörðinni þrjár vikur, og lifað þann
tíma á hrossakjöti, sem var að úldna
og höfrnm úr hesthúsunum.
Misklíð hefir verið milli stjórn-
anna á Bretlandi og í Natal út af
aftöku þariendra uppreistarmanna.
Sagt, að brezka stjórnin hafi ætlað
að taka fram fyrir handur á Natal-
stjóru og afstýra aftökunni. Út úr
því sagði öll Natal-stjórnin af sér.
En brezka stjórnin lét skyndilega
undan. Elgin lávarður símaði lands-
stjóra, að heimastjórnin hygðist aldr-
ei að taka fram fyrirhendurástjórn,
sem hefði ábyrgð gjörða sinna. Blöð
in, að þeim meðtöldum sem lengst
fara í frjálslyndisáttina, eru á einu
máii um að atferli stjórnarinnar hafi
verið illa til fundið. Síðari fréttir
segja, að í tilefni af yfirlýsingum al-
ríkisstjórnarinnar og tilmælum lands
stjóra hafi Natal ráðaneytið tekið aft-
nr embættisafsögn sína og aftaka
mannanna, sem liafði verið frestal,
fór fram á mánudaginn.
Deilur kolamanna í Bandarikjun-
um valda verkfalli 800 þús. manna,
en 8000 hafa ráðið af að halda á-
fram vinnu, með því að verkveit-
endur hafa fallist á kauphækkun.
í Ageciras hafa menn orðið al-
gerlega sammála um öil atriði.
Lögreglan í Pétursborg hefir kom-
ist að samsæri til að sprengja ríkis-
þingið (Duma) í loft upp með sprengi-
kúlum.
Smásöluverð á anthracite-kolum
í New York hefir hækkað um 50
til 75 cent á tonni vegna verkfalls-
ins, sem yfir vofir.
5. marz i
Verkfalls-óeirðir á Norður-Frakk-
landi eru að verða ískyggilegar. Til-
raunir gerðar til að sprengja upp
járnbrautarlestir með dynamíti.
Iuuflutningastraumur — þar af
komu 30 þús. síðustu viku — veld-
ur áhyggjum innflutninga-embættis-
manna í New York. Þeireru ráðn-
ir í að fara strunglega eftir laga-
fyrirmælum gegn innflytjendum, sem
ekki eru eftirsóknarverðir.
Rússland hefir !agt fyrir stjórnir
annara landa dagskrá fyrir annan
friðarfund, sem halda á í Haag og
hefzt 1. júlí.
Verkveitendur 100 þús. náma-
manna í Bandaríajunum hafa faliist
á kröfur þeirra og hækkað kaup.
Vinnufrestiun í anthracite-námunum
heldur áfram, meðan á samningum
stendur.
Kosningar í Pétursborg til ríkisþings
hafa orðið alger sigur alþýðunni, sem
vilja þiggja stjórnarskrána.
Verkfallsmenn í Norður-Frabkiandi
eru nú 43 þúsnnd.
Sjómannadómstóll í Pétursborg hef- j
ir sýknað 84 af 207, sem tóku þátt
í uppreistinni í Ivrónstað í síðastliðn-
um nóvenber, 9 hafa verið dæmdir
í betrunarhúsvinnu, 6 ára til æfi-
langrar, og hinir í fangelsisvist og
flutning í tyftunarherdeildir.
Olínlindir, sem ná yfir 6 rastir,
hafa fundist á Pollandi.
Keikiiingur.
yflr
tekjur og gjöld Sparisjóðs Vestur-Barða-
strandarsýslu 1905.
TEKJUR. Kr. aur.
1. Peningar í sjóði frá f. á.ri .... 2,859 60
2. Borgað af lúnum a. fasteignarveðlán 3409,40 b. sj álfskuldará- byrgðarlán . . 2220,00 c. Yíxillán .... 5070,00 10,699 40
3. Innlög í spari- sjóðinn 8251,04 Vextir fyrir reikn- ingstímabilið lagðir við höfuð- stól 1002,34 9,253 38
4. Vextir af skulda- bréfum 1,889 30
5. Ymislegar tekjur. 9 80
Krónur 24,711 48
GJÖLD. Kr. aur.
t. Lánaðáreiknings- tímabilinu: a. gegn fasteignar- arveði 8900,00 b. gegn sjálfskuld- arábyrgð.... 5450,00 c. gegn víxlum . 2100,00 16,450 00
2, Útborgað af inn- lögum samlags- manna 5097,55 Þar víð bætast dagvextir 31,50 5,129 05
3. Afborgun(síðasta) af skuld spari- sjóðsins til lands- banka Islands . . 500 00
4. Vextir af innlög- um samlagsm . . 1,002 34
5. Kostn. við sjóðinn a. laun 100,00 b annar kostnaður . 12,00 112 00
6. Ymisleg útgjöld . 60 81
7. í sjóði 31. desbr. 1950 1,457 28
Krónur. 124,7111 48
Vatneyri, 10. janúar, 1906.
Sigurður Magnússon. Ó Jóhannesson.
S. Bachmann.
Jafnaðarreikningur.
sparisjóðs Vestur-Barðastrandasýslu
31. desember 1905.
ACTIVA. Kr, aur.
1. Skuldabréf fyr- ir lánum: a. fasteignarveð- skuldabréf. . 25.345.60 b. sjálfskuldar- ábyrgðarbréf 7.930.00 c. Víxlar 0.00 33.275 60
2. Konungleg skuldabréf. . . 3. Útistandandi vextir áfallnir í lok reiknings- tímabilsins . - . 165 20
4. í sjóði 31. des- ember 1905 . . 1.457 28
Krónur |34.898 08
PASSIVA. Kr. aur.
1. Innlög 260samlags- manna 32.335 68
2. Fyrirfram greiddir vextir, sem eigi á- falla fyr en eftir lok reiknings-tímabils- ins 59 82
3. Varasjóður 2.502 58
Krónur 34.898| 08
Vatneyri 10. janúar 1906.
Sigurður Magnússon. Ó. Jóhannesson
S. Bachmann.
Leikhúsið.
Þar var byrjað í fyrra kvöld að
leikanýjan leik, „Sherlock Holmes“
saminn upp úr lögreglusögum Conans
Doyles, og þótti góð skemtun.