Fjallkonan - 25.05.1906, Page 2
90
FJALLKONAN.
Konungur vor væntanlegur.
Dönsk blöð skýra frá því, að kon-
ungur vor, Friðrik 8., muni hugsa
sér að koma hingað -■'> ári, og verða
hér staddur um það ! yti, sem al
þingi verður sett. S milega setur
Hans Hátign þá alþingi sjáJnr. •
íslendingar munu vafalaust líta á
það sem vott þess, að konungi þyki
mikils vert um þetta land og þessa
þjóð. Að maklegleikum þótti mikið
í það varið, er faðir hans heimsótti
oss á 1000 ára hátíð vorri, og mjög
styrkti sú koma Kristjáns 9. ást-
sældir hans hér á landi. Vitanlega
þykir það ekki bera síður vitni um
vináttuþel konungs, er hann tekur
sér hingað ferð á hendur, án þess
að um nein sérleg hátíðabrigði sé að
tefla.
Ferð konungs hingað að ári hefir
sjálfsagt sömu áhrif hér eins og heim-
sókn föður hans 1874 — verður til
þess að tryggja honum vináttu-til-
finningar íslendinga, og festa þá
skoðun hér í landi, sem þegar er
orðin rík, að konungur vilji ekki, að
á nokkurn hátt sé gengið á rétt vorn.
Lóðarkaup
SláturfélagsnefiHlarinnar.
Austan úr sveitum hefir Fjallkon-
an fengið frá merkum mannitilmæii
um að fræða mann um það, hvað
hæft muni vera í sögum, sem gangi
þar eystra út af lóðarkaupum Slátur-
félags-nefndarinnar hér í bænum. Að
einhverju leyti ríkir þar sú skoðnn,
að nefndin hafi í því efni farið mið-
ur hyggilega að ráði sínu, hafi sam-
ið um kaup á lóð fyrir geipiverð, al-
veg að óþörfu, þar sem aðrar ióðir,
sem félagið gæti notað, hafi verið á
boðstólum fyrir miklu minna. Jafn-
framt fylgir það sögunni, að samið
hafi verið um þessa lóð af nefndinni
fyrir þá sök, að einhverjir af nefnd-
armönnum eigi hana að nokkuru
leyti, og að þeim hafi á þann hátt
verið gerður kostur á að hafa hið
væntanlega félag að féþúfu.
Til þess að verða við þessum til-
mælum, hefir Fjallk. kyntsér málið,
eftir því, sem hún hefir átt kost á.
Reyndar töldum vér í mesta máta
ósennilegt, að þessi orðrómur væri á
nokkurum rökum bygður. En sjálf-
sagt virtist að sinna honum, úr því
að komið hefir verið til Fjallk. með
hann.
Vér höfum leitað vitneskju hjá
áreiðanlegum og merkum mönnum
hér í bænum, sem kunnugir eru mál-
inu og ekki geta haft neinn hag né
óhag af því, hvernig hið væntanlega
Sláturfélag Suðurlands fer að ráði
sinu. Og niðurstaðan hjá þeimhefir
ótvíræðlega orðið sú, sem vér áttum
von á, að óánægju-orðrómur þessi,
sem getið hefir verið um, sé á engu
bygður. Hvort sem litið sé á þaun
kost, er nefndin átti á því að semja
um aðrar lóðir, eða á legu þeirrar
lóðar, er hún samdi um, eða á verð
það, sem hún hefir samið um, eða á
verð það, sem núverandi eigendur
lóðarinnar hafi keypt hana fyrir, þá
fullyrða þeir, að nefndin hafi farið
skynsamlega og samvizkusamlega að
ráði sinu.
Vilji nefndarmenn gera frekari
grein fyrir gjörðum sínum í Fjallk.,
til þess að girða fyrir misskilning,
þá er þeim það velkomið. Eftir
þeirri vitneskju sem vér höfum feng-
ið, göngum vér að því vísu, að þeim
muni veita það létt. Vera má, að
það væri rétt, af því að hugsanlegt
er, að þessi kvittur kunni að geta
gert hinu mikilvæga fyrirtæki tjón,
ef ekki er nákvæm grein fyrir þvi
gerð, sem fer á milli mála. Og þyki
þeim á annað borð ástæða til þess
bera, að nákvæm grein sé gerð fyr-
ir rnálinu, þá liggur í augum uppi,
að eðlilegra er, að þeir geri það en
ritst. Fjallkonunnar eða aðrir óvið-
komandi menn.
Tíundarmál síra Helga Árnasonar
í Ólafsvík.
Um mál þetta var mjög rnikið tal-
að, meðan það var rekið í héraði, og
þótti hneykslanlegt óhætt er að
fullyrða, að alment var svo litið á,
sem það mál hefði ekki verið höfðað,
ef síra H. Á. hefði verið vinur sýslu-
mannsins í Snæfellsnessýslu og þeirra,
sem nú ráða yfir landinu, enda voru
blöð stjórnarinnar hróðug af þvi,
þegar málið var hafið, að hann muudi
hafa vansæmd af. Landsyfirréttar-
dómur, sem kveðinn var upp í því
máli i öndverðum síðasta mánuði,
styrkir víst, fremur en veikir, það
almenningsálit.
í ástæðum yfirdómsins segir svo
meðal annars:
„í máli þessu er kærða gefið það
tvent að sök, að hann hafi árin 1900,
1901 og 1902 eigi talið allan þann
pening fram til tíundar, er hann átti
að réttu lagi að telja fram, og að
hann hafi sömu árin talið til frádrátt-
ar í framtalinu föst innstæðukúgildi,
er eigi hafi verið heimild til að draga
frá. í hinum áfrýjaða dómi er hinu
fyrra atriðinu alls eigi hreyft, enda
verður það heldur eigi álitið, að sann-
ast hafi í málinu, að tíundarskýrsl
urnar séu eigi réttar að framtalinu
til, og því síður, að kærða verði gef-
in sök á því, sem röngu tíundar-
framtali, þó að einhver ónákvæmni
álitist hafa komist inn í skýrslurnar
í þessu tilliti."
En um síðara atriðið segir yfir-
rétturinn eftir rækilega útlistun, að
álíta verði „það rétt, að kærði er
með hinum áfrýjaða dómi skyldaður
til að greiða tíund til fátækrasjóðs
af áminstum 67a hndr. lausafjár fyr-
ir árin 1900, 1901 og 1902 eftir
meðalverði verðlagsskránna greind ár.
En um frekari ábyrgð gegn kærða
fyrir þessa tíundargjörð getur ekki
verið að ræða, þar sem hann skýrði
hreppstjóra greinilega frá kúgilda-
frádrætti sínum og með því móti
lagði á vald hans að leiðrétta tíund-
argjörðina.“
í héraði hafði sírá H. Á. verið
dæmdur til að greiða allan kostnað
af málinu. Yfirrétturinn dæmdi hann
til þess að greiða að eins J/* hluta
kostnaðarins. Hitt, ®/4, kemur á al-
mannafé.
Má nú ekki vænta þess eftir þessa
útreið, að varlegar verði farið eftir-
leiðis?
Bækur.
Tvístirnið. Útg: Jónas
Guðlaugsson og Sig. Sig-
urðsson. I. Rvík i 906. 64 bls.
íslendingar hafa sjálfsagt tiltölu
lega mest allra þjóða af Ijóðlistinni
að segja. 0g þeim sýaist ekkert fara
fækkandi sem yrkja. Nei, þvert á
móti. Það er og ekkert óvanalegt að
menn yrki á íslandi næstum því frá
vöggunni til grafarinnar. En hér
birtast kvæði tveggja ungra skálda.
Og það er óvanalegt, að svo ungur
maður sem annar þeirra er (J. G.)
fari ekki dular með ljóð sín eða yrki
minna. En það er ekkert undarlegt
— þegar maður er búinn að lesa
kvæðin. Honum býr svo mikið inni
fyrir að hann getur ekki stilt sig um
að láta það í Ijós. Og það er kost-
ur, ef vel er með farið. —
Einkennilegast við ljóð J. G. finst
mér ættjarðarástin sem kemur svo
sterk og einbeitt fram í kvæðum
hans, og bezt finnast mér þau kvæði
hjá honum, hugsunin þroskuðust í
þeim. Hann talar um þroska hins
góða á þessa leið:
Ekkert fag-urt Ijós, engin fögur rós,
engin fíjómögn, þau sem ið góða næra,
lifna á þrældómsbraut, heldur þungi og
þraut.
og þau þjóðarmein, sem að heiminn særa.
Og þjóðina hvetur hann með þess-
um orðum:
Pú skalt halda fram, til þess hámarks
fram,
sem að hjartað þráir: að elska landið.
Hann rímar víða mjög lipurt. Mest-
ur galli þykir mér að því, hvað sum
kvæðin eru löng hjá honum um lítið
efni. Hann er þar ekki búinn að ná
eins föstum tökum á og Sigurður.
Enda er hann eldri og meiri festa 1
hugsunum. Flest kvæðihans eru lag
leg; sum ágæt, búningurinn víða mjög
feldur. Bezt þykja mér ástakvæðin
hans; þau eru eitthvað svo frumleg
og hressandi. Hérna eru til að mynda
tvær línur, sem ættu að kitla forvitni
hvers manns eftir að lesa bókina:
Berast mér frá brjósti þínu
brimhljóð, gegnum andardráttinn.
Spói.
Marconi-loftskeyti.
21. maí.
Blámannahöfðingi sá, er uppreist-
inui stýrði í Damaralandi gegn Þjóð-
verjum, hefir leitað hælis í Höfða
nýlendu Breta og verið höndlaður
þar af lögreglumönnum.
Witte flutti harða afturhaldsræðu
í ríkisráði Rússa. Hann kvað al-
menna uppgjöf saka mundu verða
undanfara byltingar, er hinn ment-
aði heimur mundi verða alveg for
viða á. Fyrst af óllu bæri að hugsa
um að halda uppi reglu.
Efri málstofan í Lundúnum feldi
frumvarp frá verkmannaflokknum um
að banna útlendingum land, þeim er
kæmu í þeim erindum, að ganga til
verka í þeirra stað, er gert hefðu
verkfall. Neðri málstofan hafði sam-
þykt það orðalaust. Verkmannafuli-
trúar þar urðu ókvæða við og spurðu
hve lengi ætti að þola þingdeild, sem
væri gersamlega ábyrgðarlaus fyrir
þjóðinni.
Mikill fagnaður veittur í Lundún-
um borgmeisturunum þýzku. Chur-
chill aðstoðarráðgjafi mælti svo í
skálaræðu fyrir minni beggja þjóð-
anna Breta og Þjóðverja: Oss lang-
a • til að eyða ríg þeim, sern nú er
milli þjóðanna; vér höfum einlægar
mætur á hinni miklu þýzku þjóð og
keisaranum sem er dyggur þjónn frið-
arins. — Játvarður konungur veitti
borgmeisturum viðtökur í Bucking-
hamhöll. Borgarstjórinn hélt þcim
dögurð í Mansion House. Keisarinn
símreit einlægar þakkir fyrir viðtök-
urnar í Luudúnum.
Ríkisráð Rússa hefir lagt með sak-
aruppgjöf við bandingja, sem ekki
hafa sannast á ofbeldisverk til líf-
tjóns eða eigna.
Rikisþingið rússneska hefir sam-
þykt í einu hljóði ávarp til keisar-
ans, þar sem farið er fram á algerða
uppgjöf saka við þá, sem framið hafa
stjórnmálalagabrot.
Samningar langt komnir með Bret-
um og Rússum um það er þar ber í
miili áhrærandi Tyrkjaveldi, Persa-
land, Afghanistan og Thibet, ogmun
þeim verða lokið þegar þingstjórnin
nýja er komin vel á laggir.
Nokknð af silfurnemabúðum í Cob-
ait í Oatario hefir eyðst af eldi, er
upp kom við sprenging 7 smálesta
af dynamit. Kviknað í öllum skóg-
inum í kring.
Voðalegir skógareldar sagðir frá
Michigan, og er mælt, að fyrir það
séu 10,000 manna heimilislausir.
24. maí.
Innbrotsþjófar brutust inn í málm-
geymsluherbergi í Lundúnagrein
County-bankans í Jermonstr., ruddu
sér veg gegnum tveggja feta þykkan
vegg með járnkörlum og höfðu á burt
með sér 950 pund í gulli.
Mason aðmíráll, yfirforingi stór-
skotaliðs í sjóliði Bandaríkja, segir,
að fyrir nízku sambandsþingsins hafi
sjóliðið engar varabyssur, né púður
og kúlur, sem nægi öllu sjóliðinu 3
klukkustundir. Hrakfarir vísar, ef
til ófriðar kæmi.
Sendiboði frá Zúlu-uppreistarmönn-
um hefir tilkynt brezkum foringjum,
að Sizananda og aðrir heldri upp-
reistarhöfðingjar séu mjög fúsir á að
gefast upp, með því að þeim standi
svo mikill beygur af herbúnaði og
framtakssemi Breta.
Rússakeisari hefir neitað að taka
sjálfur við ávarpi ríkisþingsins; full-
trúar, sem beðið hafa, taka synjun-
inni hið versta. Afturhaldsmenn
gerðu samtök um að rjúfa þingið
með valdi á mánudaginn, vegna upp-
reistar-ræðuhalds, en það tókst
ekki, af því að þingmenn fóru þá
gætilegar en við var búist.
Varakonsúll Bandaríkja í Batúm
(Rússlandi) myrtur. Rannsóknir
benda á, að glæpurinn hafi ekki stað-
ið í sambandi við stjórnmál, heldur
hafi morðið verið framið af ræn-
ingjum.
Agentar Bandaríkjanna vinna
kappsamlega að því að fá verkmenu
frá Austurríki til þess að reisa aft-
ur San-Francisco.
Stórrigningar með óvenjulegum
kulda hafa gengið á Bretlandi og
vesturhluta Norðurálfu fyrri hluta
vikunnar. Tjón mikið af vatns-
fióðum.