Fjallkonan

Issue

Fjallkonan - 25.05.1906, Page 3

Fjallkonan - 25.05.1906, Page 3
FJALLKGNAN 91 Hohenlohe fursti heíir látið þess getið í þýzka ríbisþingÍDU. að horf- ur í Damaralandi færu mjög batn- andi. Deimling hersir tekur við yíirstjórn þýzka herliðsins og hcfir fengið skipun uui að gefa skýrslu um. hvort unt sé að hafa herliðið minna. Máriskir ræningjar tóku brezkan bát fram undan Marokko ströndum og höíðu burt með sér þrjá sjómenn. Aðrir ræningjar óðu upp á Banda ríkja-bát og höfðu á burt með sér máriska farþega. Sendiimrrar Breta og Bandaríkja í Tangier skifta sér af málinu. Meyer sendiherra í Pétursborg hefir sagt Natokoff þingmanni, að hann fallist ekki á atferli rússneska ríkisþingsins, þar sem því hafi ekki þótt við eiga að sýna keisara sömu ástúð eins og hann hefir haft í frammi við þingið. í stað þess að flytja þingsetningarræðuna sitjandi, eins og aðrir konungar gera, flutti keisari hana standandi; og heilsaði því næst fulltrúum þjóðarinnar. Þingið hefði áttað samþykkja þakklætisyfirlýsing til keisara fyrir að stofna til þing- stjórnar. Jarðarfarir. 3. maí. Ekkjan Sigríður Guð- mundsdóttir, Laugaveg 27. 4. maí. Ingibjörg Sigurðardóttir, Landabotsspítala. 14. maí. Sigrid Krabbe, ungbarn, Laugaveg. s. d. Guðni Einarsson, Hverfis- götu 44. 15. maí. Bagnheiður Eunólfsdóttir, Landakotsspitala. Þorv. Krabbe, annar verkfræðingur landsljórnar- innar, lagði á stað með Ceres í gær til Seyðisfjarðar til að athuga þar fyrirhugaða raflýsingu. Fer þaðan umhverfis landið. Á Akureyri á hann að segja fyrir um bryggjuhleðslu, í stað þeirrar, sem ónýttist daginn eftir að við hana var lokið, og dýpk- un Oddeyrarbótariunar til skipalegu. í Skagafirði á hann að rannsaka, hvernig aí'stýra megi skemdum af Héraðsvötnum. í Stykkishólmi ger- ir hann rannsóknir til undirbúnings hafskipabryggju. Og brúarstæði á hann að skoða á Fossá í Neshreppi utan Ennis. Geðveikraspítallnu. „Yölundur“ hefir tekið að sér að reisa hann fyrir 61,800 kr. Miðstöðv- arhitun á að verða þar, og er hún aukreitis um 8000 kr. Hús stofnun- arinnar verða 2, annað sjúkrahús, hitt íbúðarhús starfsfólksint. Spítal- inn á að verða á Kleppi. Rúm eru þar fyrirhuguð fyrir 40—40 sjúklinga. Flensborg-arskðlinn. Úr kennaradeildinni útskrifuðust þar í vor 10 piltar og 7 stúlkur. En úr gagnfræðadeildinni 11 piltar og 1 stúlka. V110111111 bcár fundist. Vitja má til Hall- JV V ÖllUl ö()rs Hallgrímssonar skraddara Aðalstræti 16. Arnessýsu 30 aprílm. 1906 Tíðarfar er eigi sem álitlegast, að vísu kom góður bati í miðjum f. m. og hélzt m ánuðinn út. En með þ. m. spiltist aftur. Framan af honum voru umhleypingar, blotar, snjógangur og stormar, stundum ofsarok. Tók þá aftur fyrir haga í upp- sv eitum. Frá páskum hefir verið norðan- átt, þó eigi allhörð fyrst, og frá 22 til 27. þ. m. mátti kalla bliðviðri. Töldu menn þá vís góð skepnuhöld alment. En 27. þ. m. gerði ofviðri með gaddfrosti, helzt það kast enn vægðarlítið. Er í dag hvass- viðri með 10 stiga frosti. Má búast við þungum afleiðingum, standi þetta lengi. Kringum sumarmálin voru allgóðar sjó- gæftir í veiðistöðum hér og afli í bezta lagi. En gæftirnar urðu endasleppar. I Þorlákshöfn, Eyrarbakka og Stokkseyri munu hæstir hlutir vera alt að 800; en flestir hafa þó minna. Má hér kalla afla- verkið í betra lagi. Baðstofa brann i Hlíð í Gnúpverjahr. 6. þ. m. að áliðnum degi. Fann fólkið ekki fyr en þakið logaði og hafði eldur- inn komist úr ofnpípunni í troðið. Var í svipan rutt öllu lauslegu, er við var kom- ið. En bæði var rokstormur og úrfellir, spiltist því margt það er út varð bjargað Skaðinn er afartilfinnanlegur. Útburðar-kvltturinn. Rannsókn lögreg’ustjóra út af út- burðar-kvittinura, sera getið var um í síðasta blaði, hefir sannað, að sá orðrómur er ekki annað en uppspuni. Kuldar haldast alt af, sólfar á degi hverj- um, en norðanátt og frost oftast á nóttum, Landsbúnaðarfélagið. Á ársfundi þess sem haldinn var 19 þ. m. voru félagar orðnir um 700; síðastliðið ár höfðu bæzt við 107, og 29 komnir á þessu ári. Skip sekkur. Laugardaginn 19. þ. m. sökk þil- skipið „To Venner“, eign Hannesar Hafliðasonar skipstjóra, hér vestur í Flóanum. Kristján Kristjánsson kaupmaður og skipstjóri hér í bæn- um hafði leigt það fyrir vörur, sem hann ætlaði að selja á Vesturlandi, og var sjálfur formaður. Þrír voru á skipinu og björguðust á báti. Menn vita ekki, hvernig stendur á þessum leka, sem koraið hefir að skip- inu, því að það var álitið fyrirtaks- traust. Skipið var vátrygt fyrir 4800 kr., en virt 6400. Vörurnar voru vátrygðar fyrir 16000 kr. Tóhak og vindlar í verzlun Matth. Matthíassonar. Allskonar brauð í verzlun Matth. Matthiassonar. MannskaDa-samskotin. Bogi Melsteð 10 kr. N. N. (afhent af G. B ) 50 kr. Magnús Benjamínsson 50 kr. Frú Ágústa Svendsen 20 kr. C. & L. Lár- usson 25 kr. L. G. Lúðvígss. 40 kr. Braun kaupm. 50. Halld. Daníelsson hæjarfóg. 50 Síra Magnús Helgason 20 kr. Pjetur Sig- urðson Hrólfskála 25 kr. Síra Lárus Benediktsson 25 kr. Þorsteinn Teitsson 10 kr. Har. Níelsson Cand. theol. 10 kr. Pjetur Guðmundsson, Miðfelli 5 kr. Helgi Teitsson lóðs 20 kr. Kr. 410,00 Áður auglýst .............Kr. 6694,38 Alls...................... Kr. 7104,38 Rvík. *%/06. G. Zoega. SPORT. Opmærksomheden henledes paa at enhver ÍHt01*0S8- eret udeii Botaling kan fiske med Stang i ,Sog“ ved I2.aiaárliöföa i Maanederne ðT'O.IiÍ, ífULlÍ og jé^.m.SULSSt:; mod at aflevere sin dag- iige Fangst, i frisk Tilstaad, til miae paa Stodet værende Opsynsmænd. Eyrarbakka í Maj 1906. Bezta sönnunin fyrir því, að Orgel Harm. frá K. A. Anderson í Stockhohn og Fortepiano frá H. Lubitz í Berlín, séu mikln betri og ódýrari en samskonar hljóð- færi frá nokkrum öðrum hljóðfærasala í Ameríku og á Norðurlöndum er sú: að eg á síðastliðnu ári pantaði 63 Orgel Harm. frá K. A. Anderson (52 árið álur) og á hálfu árinu 6 Fortepiano frá H. Lubitz. Þetta er ekki einungis meira, heldur og mörgum sinnum meira en nokkur annar hér á landi hefir pantað á einu ári: nærri 70 hljóðfæri! Að vísu eru kjör þau, er eg býð, betri en aðrir bjóða: Hljóðfærin send hvert á land sem óskað er, án fyrirt’ramborgunar, umbúðir ókeypis og mikill kaupbætir í ágætum nótnabókum; þetta hefir máske haft einhver áhrif á söluna, en hitt þó miklu meira, að hljóðfærin eru miklu hljómfegurri, vandaðri og ódýrari en nokk- ur önuur. Fortepiano frá H. Lúbitz í Berlín og Orgel Harm. frá K. A. Anderson i Stockholm eru áreiðanlega bezt og ódýrust Hér verða sýnd að eins fá vottorð af fjölda rriiírgum: Eg heíi reynt Píanó frá H Lubitz i Berlin og er hljóðfærið að mínu áliti mjóg gott, hljómblærinn óvenjulega fagur og verðið afar-lágt. Key^javik 3. júli 1905. Kristrún Hallgrímsson. Samkvæmt tilmælum vottast hér með, að Fortepíanó það, frá H. Lubitz i Berlin, er eg lék á við samsöng hér siðastl sunnudag, er óvenjulega létt að leika á, hljóðin mjög mjúk og hrein; yfirleitt er það eitt hið bezta Fortepianó, sem eg hefi leikið á hér i Reykjavík. Keykjavík, 8. júli 1905. Anna Pálsdóttir (frá Amarholti). Fortepíanó það frá H. Lubitz i Berlín, sem notað var við samsöng minn og söng- konunnar Helleman 2. júlí þ. á. i Reykjavik, er ftð minum dómi óvenjulega vandað og gott; ekki sízt þegar tekið er tillit til þess, hve ódýrt það er. p. t. Reykjavik 1905. Sigfús Einarsson. Yed Eftersyn af et til Forhandling hos hr. Jón Pálsson af H. Lubitz forfserdiget Piano, har jeg fundet, at saavel Mekaniken som Instrumentets övrige Dele er omhygge- lig og solid forarbeidet og af godt Materiale, hvorfor jeg kan anbefale det paa det bedste. Reykjavík, 4. júli 1905. M. Ghristensen, Orgelbygger. Eg undirritaður á Orgel Harm. frá orgelverksmiðju K. Andersons i Stockholm og er það nú nærri tólf ára gamalt. Er mér það sönn ánægja að votta, að hljóðfæri þetta hefir reynst mæta vel þrátt fyrir afarmikla brúkun og oft slæma meðferð. Hljóðin i þvi eru enn fögur og viðfeldin, og furðu hrein og góð enn þá. Það hefir reynst svo sterkt og vandað, að eg hygg fá orgel hefðu þolað annað eins og það, er lagt hefir ver- ið á þetta. Með góðri samvizku get eg þvi mælt fram með orgelum frá þessari verk- smiðju fyrir þá ágætu reynd, sem eg hefi á þessu orgeli mínu. Rvík, 12. april 1905. Fr. Friðriksson, prestur. Hver sá, er eignast vill gott og vandað Orgel. Harm. eða Fortepiano kýs það að eins frá K. A. Anderson í Stockholm eða frá H. Lubitz í Berlín. Reykjavík, 17. janúar 1906. JÖN PÁLSSON, Organisti við Fríkirkjuna í Reykjavík. 159 Líónel kveikti í vindlinum og karlinn hélt áfram: „Þú mátt ekki vera reiður við mig, drengur minn, þó að eg væri dálí ið síuttur í spuaa í gærkveldi. Eg skil það svo sem vel, að þér hafi litist vel á einhverja aðra stúlku. Þú verður að kann- ast við það, að eg hefi aldrei verið að rekast mikið í þess konar. Það getur verið einstaklega gaman að ofurlitlu ástabralli; en það er alt annað mál, þegar það rekur sig á mikilsverð viðskifti! . . . Hún er víst einstaklega lagleg, hin, þú skilur? En fríðleikurinn er ekki lengi að fara; hann er ekki annað en hyllingar, drengur minn. Af fríðleikanum verður ekki meira en svona — líttu á!“ Og hann blés á fingurna á sér, eins og menn blása á biðn- kollu, svo ekkert verður eftir nema sköllóttur hausinn. Þá hélt hann áfram. „Ástfangnir menn,“ mælti hann, „telja sjálfum sér trú um, að ekki sé til nema ein kona í veröldinni; en af þeim er til hvert þúsundið eftir annað. Menn eiga ekki að kvænast þeim laglegustu, heldur þeim, sem eru nytsamastar. Þú ert alvörumaður og hagsýnn maður. Eg sé þig kominn í söðulinn, og reiða kongsdótturina fyrir framan þig. Og eg skal sjá um hafra handa hestinum þínum . . .“ „En í guðs bænum, við skulum ekki vera að tala um þetta!“ sagði Líónel aftur. Líkingar föður hans voru honum nú til enn meiri kvalar, en harðyrði hans höfðu verið daginn áður. í sama bili gerði þjónninn viðvart um að Miraud gamli, ábót- inn, væri kominn, til þess að heilsa erfingjanum. „Jæja, komið þér nú hingað, prestur minn!“ hrópaði Teteról til hans. „Þarna getið þér séð prinsinn minu af Wales. Lagleg-

x

Fjallkonan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.