Fjallkonan - 08.06.1906, Page 3
FJALLKONAN
99
Marconi-loftskeyti.
5. júní.
Banatilræði veitt konungshjónunum
nýju á Spáni, Alfons konungi og
Enu drotningu. Það gerðist á stræt-
unurn í Madrid, með þeim hætti, að
óstjórnarliði fleygði sprengikúlu úr
glugga á matveitingahúsi. Honum
lánaðist að koma sér undan. Illvirki
þetta hefir vakið megnan viðbjóð
um allan mentaðan heim. Konungs-
hjónin hafa fengið samfagnaðarskeyti
frá flestum þjóðhöfðingjum í Norður-
álfu. Þau óku um Madrid í bifreið
varðsveitarlaust á föstudaginn og
var fagnað af lýðnum með ákaflegum
gleðilátum. Allir viðstaddir bera
það, að konungshjónin hafi sýnt af
sér mestu hreysti og hugprýði. Gler-
brot hrifsaði burt úrfesti konungsins.
Blóð slettist á föt drottningar úr
mönnum, sem bana hlutu af spreng-
ingunni. (Síðar). Maður, er réð sér
sjálfur bana í Madrid, reyndist vera
sá hinn sami, sem sprengikúlunni
varpaði. Svo segir sá, er matsölu-
húsið á, þaðan er sprengikúlunni
var varpað. Þau Alfons konungur
og Ena drottning voru viðstödd
þakkarguðsþjónustu í Madrid á laug-
ardaginn og fóru á eftir að horfa á
nauta-at.
Mikill styrjarþys í koparnámum í
Mexico. Málmnemar geuðu verkfall
og náðu á sitt vald námum þeim, er
kendar eru við Greenð, eftir harðan
bardaga, þar sem mælt er að fallið
hafl 10 Bandaríkjamenn og 50 Mexico-
menn. Það er fullyrt, að Mexíkó-
menn hafi brent fjáreign, er nemi
250,000 dollara, þar á meðal viðar-
birgðir Greenefélagsins. Spekt komst
á, er landshöfðingi kom með herlið
frá Bandaríkjum og Mexíco.
Michael Davitt var jarðaður þar
sem hannn var fæddur í Straithe 1
Mayo (á írlandi). Líkfylgd mílu
vegar á lengd. (M. D.) var frægur
þingmaður írskur. Þess var getið
nýlega í Marconiskeyti, að hann
væri hættulega veikur).
7. júni
Full vissa er fengin fyrir þvi, að
maðurinn, sem fyrirfór sér íMadrid,
hafði varpað sprengikúlunni. Hann
er sonur auðugs kaupmanns í Barce-
lona, hafði stundað nám í Þýzka-
landi og hallast þar að anarkista-
skoðunum. Hátíðahöldin í Madrid
komust á hæst stig, þegar konungs-
hjónin komu á nautaatið. Játvarður
konungur var við þakkarguðsþjón-
ustu í Windsor á sunnudaginn. Páfinn
söng te deum í tilefni af því að kon-
ungshjónin héldu lífi. Spænsk yfir-
völd eru sannfærð um, að anarkist-
inn haíi enga félaga haft; samt hafa
nokkrir menn verið teknir fastir í
Barcelona.
Síðustu rannsóknir sýna, að með-
ferð á kjöti er jafn-ill í St. Louis og
fleiri borgum eins og í Chicago. Sér-
hver slátrari í St. Louis hefir birgðir
af hvítu dufti; þegar því er stráð yfir
úldið kjöt, sýnist kjötið nýtt. Kjöt-
sala í New York einni hefir minkað
um 25°/o- í skýrslu Neills til sam-
bandsþingslns er sagt, að ástandið í
kjöthúsum í Chicago sé hryllilegt.
Gagngerð breyting verði að komast
á löggjöfina og áherzla lögð á loft-
ræsing og heilbrigðisgæzlu. Fúin
viðargólf fordæmd, þau séu full af
veikindagerlum frá mönnum og skepn-
um. Meðal starfsmanna sé berkla-
veiki mögnuð, og þeir séu alt af að
hrækja á gólfið. Sum atriði skýrsl-
unnar ekki hægt að prenta. Stjórn-
in lætur að eins skoða lifandi skcpn
ur en ekki kjöt. Löghald lagt á
tuttugu smálestir af Bandaríkjasmjöri
í New Yrork, af því að það var svik
ið um 40°/o. Átta kjöthús í New
York hafa gefið út skýrslu saman,
til þess að verja atferli sitt. Búist
við, að það sem upp hefir komist í
Chicago muni stórlega auka sölu á
niðursoðnu kjöti frá Ástralíu og
Nýja Sjálandi.
Snarpur landskjálfti í San Fran-
cisco á þriðjudaginn, en tjón varð
ekkert.
Pierpoint Morgan hefirkeypt lista
verkasafn Bodolphes Khaus í París
fyrlr 26 miljónir franka.
Sagt, að 8 óeirðaleiðtogar í eir-
námum í Mexico hafi verið teknir
af lífi.
Út um g-lug:ga.
Það raunalega slys vilditil á þriðju-
daginn á heimili Hjörleifs Þórðarson-
ar trésmiðs hér í bænum, að þriggja
missira gamalt barn hans hrapaði
út um glugga og beið bana af. Það
hafði verið sofandi, þegar frá því var
farið, en vaknað áður en komið var
til þess og komist upp í gluggann.
Barnið var dáið, þegar það var
tekið upp af götunni.
Kveikt var í l)úð
aðfaranótt hvítasunnu, á Grettis-
götu, en eldinn tókst að slökkva,
áður en mikið tjón hlauzt af. Stein-
olíu hafði verið helt um búðina hér
og þar, og vottur sást þess, að eldur
hefði verið kveiktur þar á fleirum
stöðum en einum. Búðina á H. S.
Hanson kaupmaður, en hann er nú
erlendis og búðinni hefir verið lokað
nokkurar vikur. Enn hafa lög eglu-
menn enga vitneskju fengið um, hver
valdur hafl verið að verkinu.
Tíðarfar
er nú hagstætt, skiftist á sólskin
og vætur og hlýindi sæmileg. Jörð
óðum að grænka.
Aflabrög'ð.
Það, sem menn vita um þilskípin
síðan þessi vertíð hófst, bendir á mik-
inn afla og mjög vænan fisk. Tvö
reknetaskip, sem síldarveiði stunda
héðan, afla og ágætlega.
Frá herstjúrnarráðaneytinu
kom 30 mannaflokkur með Tryggva
kongi þ. 6- þ- mán. til landmælínga.
Foringinn er Hammershöj höfuðs-
maður. Flokknum verður skift í
tvent; önnur sveitin mælir austur í
Árnes- og Bangárvalla-sýslum, hin
hér í grendinni.
Reki.
í Hrútafirði, á Bessastaðalandi, rak
í hafísnum í síðasta mánuði 30 álna
langt og 10 álna breitt skip hlaðið
timbri. Það var nafnlaustog segla-
laust, og virtist hafa verið flutninga-
bátur til þess að hafa aftan í öðr-
um skipurn.
Sömuleiðis rak og með ísnum 2
smáhvali hjá Beykjum í Hrútafirði.
Frá Marconifélaginn.
kom nýr maður nú með Láru. Mr. Sar-
gent; hann verður liér 1 stað Mr. New-
mans, sem bráðlega ætlar til Englands.
Frá Thorefélaginu
kom Tryggvi kongur í fyrra dag með
um 50 farþega. Þeirra á meðal voru frá
útlöndum Jón H. Sigurðsson læknir (á leið
til embættis síns), Sveinn Sigfússon kaup-
maður, L. Fanö agent, stúdentarnir Bogi
Brynjólfsson, Guðm. Olafsson og Gunnar
Egilsson, frú Ragnh. Eyjólfsdóttir, fröken-
arnar Margrét Olafsdóttir, Valgerður Þórð-
ar dóttir og Heidís Jóhannesdóttir (frá ísaf.)
M. Jeppesen klæðskeri með konu og hörn-
um, Jón J. Zoega trésmiður. Frá Vest-
manneyjum komu læknarnir Þorsteinn Jóns-
son og Jón Rósinkranz. Skipið hafði full.
fermi af vörum. Næstu daga er von á
aukaskipi.
Frá Sam. gufuskipafélaginu.
kom Lára í fyrrakvöld og Esbjerg í
kemur út tvisvar í næstu viku.
Mannskaða-samskotin.
Ágóði af ræðu síra Jóh. Þorkelssonar
70,00. Jón Helgason vitavörður Reykjanesi,
4,00. Andrés Guðnason strm. 3,00. Frú
Dísney Leith, Westhall, Aberdun 36,00. Sig.
Jóhannesson stórkaupm. Kbh„ 1000,00. N.
N. (aflient af P. G.), 10,00. Petur Jóns-
son Klöpp, 20,00. Landfogeti Á. Thorsteins-
son, 25,00. N. N. (afh. af H, Þ.) 20,00.
Kvennfélagið á Stokkseyri, 50,00. Verk-
mannafélagið „Dagsbrún11, 337,00. N. N.
(afh. af G. B.), 1,00. Samskot úr Borgar-
nesi (afh. af J. Þ.), 160,00. Þorst. Jónsson
læknir, Vestmanneyjum, 25,00. Guðjón Sig-
urðsson úrsmiður, 100,00. Frú Carolina Jon-
assen Schlesvig, 20,00. Guðm. Þórðarson
Gerðum, 50,00. Pétur Þórðarson Reykja-
vík, 10,00. Ivar Þorsteinsson Lambhúsum
O, 25. Steinn Borgþórsson Hofi, 2,00. Jón
Guðmundsson Hjörtsey, 10,00. Sveinn Sig.
urðsson Smærnavelli 1,00. Þorgeir Magn-
ússon(Lambastöðum 2,00. Guðmundur Gísla-
son Klapparkoti, 4,00. Sigurður Magnús-
son Eiði, 1,00. Jón Jónsson Norðurkoti,
2,00. Sveinbjörn Ivarsson Eiði, 1,00. Þor-
finnur Gunnarsson Gerðum, 2,00. Einar
Sveinbjarnarson Sandgerði, 100,00. F. L.
100,00. Klemens Þórðarson Görðum, 1,00.
Eiríkur Guðmundsson Smærnavelli, 1,00.
Sigurður Sæmundsson Akurhúsum, 5,00.
Jón Jónsson Steinstöðum, 3.00. Þórður
Þórðarson Reykjavík 20,00. Árni Loptsson
Skeggjastöðum, 1,00. Ólafur Sæmundsson
Móakoti, 1,00. Sigurður Isleiksson Vatna-
garði, 3,00. Ólafur Gíslason Skeggjastöð,
um, 2,00. Hafliði Nikulásson Holti 6,00.
Jarðþrúður Jónsdóttir Bala, 0,50. Jóhann
Bjarnarson Akranesi, 50,00. Sigurður
Bjarnason Hausthúsum, 1,00. Bjarni Jóns-
son Gerðabakka, 2,00. Hjörtur Jónsson
Presthúsum, 1,50. Þorvaldur Þorvaldsson
Kothúsum, 40,00. Bjarni Sveinsson Val-
braut, 1,00. Bjarni Sveinsson Sveinsstöð-
um, 4,00. Einar Sveinsson Útskálum 2,00.
Gísli Einarsson Vegamótum, 5,00. Benidikt
Þorláksson Akurhúsum, 5,00. Bjarni Run-
ólfsson Vallholti, 1,50. Hildibrandur Tóm-
asson Móhusum, 3,00. Þorlákur Ingibergs-
son Hofi, 10,00. Guðm. Sveinsson Hafur.
bjarnarstöðum, 2,00. Páll Sigurðsson Sand-
hól, 4,00. Guðmundur Pálsson Sandhól,
4,00.
Samtals....................... 2345,75
Áður nuglýst....................7104,38
AUs 0450,13
Rvík. ’/„ ’06.
G. Zoéga.
Hið bætta seyði.
Hér með vottast, að hinn nýtil-
búni Elixír er töluvert magnmeiri,
og þó að eg væri vel ánægður með
hina fyrri vöru yðar, vildi eg samt
borga helmingi meira fyrir hina nýju,
því að lækningakraftur hennar verk-
ar Iangtum fljótar og eftir fáa daga
var eg eins og nýr maður. Sven-
strup, Skáni. V. Eggertson.
Meltingarörðugleikar.
Þó að eg hafi ávalt verið einstak-
lega vel ánægður með yðar alþekta
Elixír, verð eg samt að geta þess
við yður, að eg kýs heldur yðar bætta
seyði, með því að það hefir fljótari
áhrif á meltingarörðugleika og virðist
miklu nytsamara. Eg hefi keypt margs
konar bittera og meðöl við magaveiki,
en þekki ekkert meðal, sem verkar
jafn-milt og þægilega, og kann eg
því uppfundningarmanninum beztu
þakkir. Yirðingarfylst. Fodbjrskola.
J. Jensen kennari,
Kína Lífs Elixír er því að eins
ekta, að á eiukennismiðanum standi
vörumerkið: Kínverji með glas
í hendi og nafn verksmiðjueig-
andans: Waldemar Petersen, Fred-
rikshavn—Kobenhavn, og sömuleiðis
innsigliðvp í grænu lakki á flösku-
stútnum. Hafið ávalt flösku við
hendina, bæði heima og annarstaðar.
Fæst hvarvetna fyrir 2 kr. flaskan.
163
Þess konar hjal er það, sem ber vitni um, að samvizkan sé
að sofna.
„Þegar öllu er á botninn hvolft,“ — sagði hann við sjálfan
sig, „þá á þessi þorpari peninga hjá mér. Hann er vellauðugur,
og hann er hégómagjarn að sama skapi, sem hann er ríkur. Neiti
eg, verður engin miskunn hjá Magnúsi. En taki eg þessu, gotur
verið, að eg fái alt, sem mér þóknast. Nú ríður á að hlaupa ekki
á síg, en athuga málið, reyna að sjá alt frá beztu hliðinni og koma
sæmd sinni í samræmi við þægindi lífsins.“
Baróninum komu líka til hugar ummæli eins vinar hans; einu
sinni hafði hann komist svo að orði:
„Já, góður minn, þessari veraldar-ómynd er svo fyrir komið,
að það er mjög örðugt að fá glas af víni, sem engin fluga er í.
En sé vínið gott og flugan ekki ákaflega stór, þá á maður að
drekka það.“
Og baróninn hafði lært að renna mörgu óviðfeldnu niður. Og
þó að munnbitinn þessi væri nokkuð rammur, var hann þess albú-
inn að renna honum niður. Hann varð líka að taka hagsmuni
dóttur sinnar til greina, og að lokurn fór hann að telja sjálfum
sér trú um, að honum hefði farist svo sem góðum föður sæmdi,
þegar hann drap ekki hendi við tilboði Teteróls. Dóttir hans hafði
frá fyrstu átt mjög lítið til sjálf, og í höndunum á honum sem
fjárhaldsmanni hafði það orðið næstum því að engu. Honum varð
ekki að ástæðulausu órótt, þegar hann hugsaði til þess, að nú
færi að líða að því, að hann yrði að leggja fram reikninginn.
Áuðvitað átti hún að erfa markíanD gamla, en úr þeirri átt var