Fjallkonan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fjallkonan - 14.07.1906, Qupperneq 3

Fjallkonan - 14.07.1906, Qupperneq 3
FJALLKONAN. 131 „lireiðablik“ Svo heitir nýtt tímarit, semerfar- ið að koma út í Winnipeg. Ritstjór- inn er síra Friðrik J. Bergmann og kostnaðarmaður Ólafur S. Þorgeirsson, sem meðal annars heíir gefið út hið ágæta Almanak Vestur-íslendinga. Fyrsta hefti ritsins er hingað komið. Frá því er svo glæsilega gengið að ytra útliti, að annað rit mun ekki hafa verið gefið út á íslenzku prýði- legra. Og vér efumst ekki um, að efnið muni tii frambúðar samsvara búningnum í höndum þessa ritstjóra. Sannast að segja er enginvanþörf á því, að bætt sé úr skák um blaða- mensku Vestur-íslendinga. Af þeim blöðum, sem á einhvern hátt standa nærri kirkjufélagi þeirra, er það að segja, að þar er svo mikið afþröng- sýni, ófrjálslyndi og hrottaskap, að mikil vanvirða er að. „Breiðablik" bæta vafalaust úr skák. Enginn, sem þekkir ritstjór- stjórann, getur efast um það. Aðalritgjörðin í þessu hefti heitir „Samband við andaheiminn.“ Hún er rituð út af ófullkomnum fréttum, sem borist hafa vestur af Tilraunafélag- inu hér í Reykjavík, og þeim deilum, sem starf félagsins hefir vakið. Sam- einingin, Lögberg og Vínland hafa farið um það hinum svæsnustu ókvæð- isorðum — auðvitað ekki lagt til málsins nokkurt orð afþekkingu, held- ur látið sér nægja að ausa óbóta- skömmum og haturfylstu getsökum yfir þá menn, sem þeim hefir verið kunnugt um, að við málið væru riðu- ir. Síra F. J. B. tekur alt annan veg í strenginn. Sýnilega er hann ókunnugur allri rannsókn dularfullra fyrirbrigða bæði hér á landi og ann- arstaðar. En hann kveður ekki held- ur upp nokkurn dóm um hana eða þau, lætur sér nægja að verja þá menn, sem við tilraunirnar fást, og segja hiuum alvarlega til syndanna, sem eru að svívirða þá. Annars eru í þessu 1. nr. ritsins ávörp til lesenda frá kostnaðarmanni og ritstjóra, grein um íslenzka náms- menn með myndum, ritdómur og loks dularheims-saga eftir frakknesk- an höfund — aðalefnið í hana auð- sjáanlega tekið úr sannri sögu, er gerðist í Lundúnum fyrir nokkrum árum. Allir íslenzkir bóka og mentavinir þurfa að sjálfsögðu að eiga kost á að Jesa „Breiðablik.“ Víðsýnis kennir ekki svo víða í því, sem ritað er á íslenzku, að menn megi missa af því, sem síra F. J. B. ritar. Þyzkir ferðamenn. Þýzka skemtiferðaskipið, sem getið var um í síðasta blaði, kom og fór á tilteknum tíma. Með því var fjöldi fólks, og keypti það hér íslenzka muni fyrir mikið fé. Thomsen konsúll sýndi nú sem áður mikla röggsemi í viðtökunum, sá fyrir fylgdarmönnum um bæinn, hestum handa þeim, sem þá vildu nota, kappreiðum og sam- söng. Háskólapróf. Auk þeirra, sem áður hefir verið getið um, hafa þessir íslendingar tekið próf við Khafnar háskóla: 1 lögfræði: Einar Arnórsson em- bættispróf og Jón Kristjánsson fyrri hluta, báðir með 1 einkum. í heimspekilegum forspjallsvísind- um: Ólafur Lárusson, Andrés Björns- son og Guðjón Baldvinsson með á- gætiseinkunn; Ólafur Jóhannesson, Þórarinn Kristjánssonog Júlíus Hav- steen með 1 einkunn. Marconi-loftskeyti. Þessar fréttir helztar í fyrra kvöld: Tilkynning frá sósíalistum í Var- sjá varar Iýðinn við því, að lögreglu- liðið og hermenn séu að stofna til mergðarvíga með Pólverjum og Gyð- ingum. Bardagi enn með uppreistarmönn- um í Natal og Bretum. 547 uppreist- armenn féllu, þar á ineðal foringinn, og ekki komust undan nema mjög fáirþeirra. í Johannesburg er mönnum að verða meira og meira órótt vegna atferlis þarlendra manna. Sagt, að mikið af byssum hafi fundist í nám- unum. Einn vopnaður ræningi rændi 5 járnbrautarvagna í Yosemite-dal í Kaliforníu. Hann lét alla farþegana, 45, standa í röð, meðan hann var að leita á þeim. Peningum og dýrgrip- um stakk hann í poka og hélt á burt. Brezka sjóliðsstjórnin hefir ekki pantað niðursoðið kjöt frá Bandaríkj- unum handa sjóliðinu, eins og hún hefir áður gjört. í Pétursborg er stöðugt að verða meiri hætta á ferðum fyrir líf manna; algengt að ráðið sé á menn. ískyggi- legar skærur á sunnudagskvöldið með byltingamönnum og Kósökkum; marg- ir sárir. Menn fóru um strætin í fylkingum og sungu Marseille-brag. Tvö rússnesk tvífylki neitnðu að hlýða yfirmönnum sínum á miðvikudaginn. Ræktunarfélag’ TV * VT er bezta líftryggingarfélagið eitt, sem sérstakiega er vert að taka eftir, er það, að „DAN“ tekur menn til liftryggingar með þeim fyrir- vara, að þeir þurfi engiu iðgj'óld að borga, ef þeir slasast eða verða ófærir tii vinnu. Sérstök ágætiskjör fyrir bindindis- menn. Vorull hvíta og mislita, saltfisk, sundmaga og aðrar ísl. vörur kaupir hæsta verði H. P. Duus. Skrifstofa „Dans“ fyrir suðurland er * Þingholtsstræti 23 Reykjavík. Allskonar niðursoðin matvæli í verzlun Matth. Matthíassonar. Rokkar nýkomnir í verzlun H. P. Huus. lliufatnaður. Sjóhattar. Ermar. Buxur. Regn- kápur. Með bezta verði í verzlun Matth. Matthíassonar. iöi og faiaefni sel ég sem áður Ódífrast Nýkomið mikið af nýtízku-efnum, Hálslíni allsk. og Slaufum sem er betra og fallegra en nokkru sinni áður. skraddari. Hús, ekki mjög stórt og á góðum stað í bænum, óskast til kaups. Ritstj. Fjallk. veitir tilboðum móttöku. Margar tegundir af finu út- lenzku brauði eru seldar í brauða- búð Björns Símonarsonar 4. Vallarstræti 4. Gjalddagi Fjallkonunnar var fyrir síðustu mánaðamót. Hátt- virtir kaupendur eru vinsamlega beðnir um að greiða andvirði blaðs- ins sem fyrst. Margir eiga enn ó- greitt andvirði árg. 1905. Skuldir fyrir eldri árganga koma mér ekki við. Einar Hjörleifsson. Norðurlands hélt ársfund sinn á Húsavík 21—22. f. m. Þingeyingar fjölmentu mjög á fundinn, en vestur- sýslurnar náðu ekki að sækja hann vegDa óhagstæðrar veðráttu. Fyrirlestra fluttu bræðurnir á Sandi, þeir Sigurjón og Guðm. Friðjónssynir, um „búnað í Þingeyjarsýslu“ og „þýð- ing bænda fyrir meuning þjóðarinn- ar og ræktun landsins á ýmsum tím- um.“ Sérstakur sjóður var myndað- ur af gjafafé Magnúss sál. Jónsson. ar gullsmiðs á Akureyri (3000 kr.). Sig. skólastjóra Sigurðssyni var veitt- ur 600 kr. styrkur til þess að kynna sér tilraunastarfsemi e lendis. Ársrit félagsins fyrir síðasta ár er allstórt, 7 */2 örk, og fyrirtaks fróð- legt. Hiismæður fá dag- lega nauðsynja vörur góð- ar og ódýrar lijá Ljáblöð með í'ílnum, 3 lengdir. Brýni. Brún- spónn o. s. frv. í verzlun H. P. Buus. Nic. Bjarnason. Austurstræti 1. Talsimi 157. „Vörter” hinn vinsæli og holli óáfengi svaladrykkur, er seldur stærri og smærri kaupum hjá Birni Simonarsyni 4. Yailarstræti 4. er ódýrasta og frjálslyndasta lifsábyrgðarfélagið. Pað tek- j ur allskonar tryggingar, alm. lífsábyrgð, ellistyrk, fjárábyrgð, bamatryggingar o. fl. Umbofism. Pétnr Zópliénfnoson. ritstjóri Bergstaöastrœti 3. Heima 4—5. Lambskinn kaupir H. P. Huus. Óþurkar eru hér stöðugir. Töður, sem slegn- ar hafa verið fyrir nokkru, í óvæn- legn horíi. sem ern hér alls óþekt Sömu- leiðis mikið úrval af slifsum, eru seld í húsi Björns Símonarsonar Gulism. 4. Vallarstræti 4. Eg hefi oft á ferðum mínum feng- ið áköf köst af kvefi og brjóstslími, er safnast hefir fyrir, og þekki ekk- ert meðal, sem hefir hjálpað mér jafu vel eins og Kína Lífs Elixír herra Waldemars Petersen. Neapel 10. des. 1904. Kommandör M. Gigli. Biðjið berum orðum um Kína Lífs Elixír Waldemars Petersen. Fæst hvervetna fyrir 2 kr. flaskan. Varið yður á eftirlíkingum. 183 Líónel hafði liðið afarilla meðan Teteról lét dæluna ganga, og langaði helzt til þess að smjúga inn í einhverja músarholu. Og hann fann blóðið streyma fram í andlitið á sér, þegar hann heyrði, hverju baróniun svaraði. Teteról gamli þagði stundarkorn. Honum var ekki til fulls ljóst, hvernig hann ætti að skilja baróninn. Hálf- partinn fanst honum eins og baróninn væri að henda gaman að honum; en baróninn var svo sakleysislegur, að Teteról varð rólegur og komst aftur í gott skap. „Eu hvar er frk. de Saligneux?“ mælti hann; „mig langar til að gera son minn kunnugan henni.“ .,Þess gerist engin þörf,“ svaraði baróninn, „þau hafa kynst sjálf í gær, án þess að þeim væri hjálpað til þess.“ „Nú, ertu svo slóttugur, og hefir ekki getið um þetta með einu orði!“ sagði Teteról kankvíslega við son sinn. „Já, fyrirgefið þér, hr. Líónel Teteról," mælti baróninn; „mig langar til að ráðfæra mig dálítið við föður yðar, hann hefir svo fyrirtaks-gott vit á aldintrjám. Dóttir mín er einhverstaðar í garð- inum. Viljið þér ekki leita að henni? Hún veit um erindið og á von á yður.“ Líónel lét ekki segja sér þetta tvisvar. En hann var nokkuð daufur í dálkinn, þegar hann skildi við þá. Samræðan sem hann hafði blustað á, olli honum sorgar, og houum fanst minkun að þessu. Honum var orðið órótt og honum fanst hamingjan eins og fagurt aldin, sem hann sæi nú, að væri maðksmogið. „Jæja, hvað gerir það til?“ sagði hanu við sjálfan sig; „hér

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.