Fjallkonan

Tölublað

Fjallkonan - 10.12.1906, Blaðsíða 2

Fjallkonan - 10.12.1906, Blaðsíða 2
258 FJALLKONAN. menningar. — í einu orði: tilgang- urinn er sá, að efla og nota til kristilegrar og verulegrar uppbygg- ingar þjóðarinnar, eina þá stétt, sem frá öndverðu hefir til verið, er til og verður til í landinu, prestastéttina, sem og að flestu leyti hefir verið, er enn og verður bezt til þessa fallin hér á landi. Um langt skeið hefir prestum verið fækkað og köllum slengt saman, og nú á að gjöra enn miklu meira að þessu, í þeim góða tilgangi, að bæta kjör presta og gjöra þá virðulegri og áhrifa- meiri enn ella. En raunin hefir orðið og mun verða önnur og gagn- stæð: Því að eftir því, sem prest- um fækkar í fámenni og strjálbygð sveitanna, eftir því verða þeir að vastra og vafsast í öllu um alt, ferðast og flækjast næstum alstaðar og hvergi, vanrækja heimili sjálfra sín, og kunningskap og náið samlíf við sóknarfólk. 0g því meir sem köllin stækka, því minni verður per- sónulega viðkynningin, því ókunnugri og einskisverðari umgengnin og því minna getur presturinn gjört eða verið fyrir hvern einstakan. Og þannig fjariægjast prestur og sóknarbörn í stað þess að nálgast hvor annan, eins og á og þarf að vera. Svo að aðalþýðing prestsins verður í því fólgin, að brjótast aft- ur og fram um torfæra strjálbygð til að jarða og skíra, og stöku sinn- um eða þá aldrei að prédika yfir sálum og samvizkum þeirra manna, sem lítið eða ekkert þekkja hann, og hann þekkir ekkert sjálfur. — Og svo fer að lokum, því fyr og meir sem köllin stækka, að jafnt prestar og söfnuðir finna sárt til alls þessa; presturinn finnur til þess, að honum er ómögulegt að fullnægja köllun sinni, að eðlilegum óskum og þörfum fólksins; og fólkið finnur til þess, að það getur eigi haft veru legt gagn, hvorki andlegt né stund legt, af prestinum. — Og prestur og söfnuður verður þreyttur og leiður hvor á öðrum með þessu lagi, þreytt- ur og leiður á ólaginu; gefast loks upp, og vilja hvorugur annan, eða þá taka til annara ráða og breyta til eftir óskum og þörfum. — Og einkanlega hafa prestar sjálf- ir og söfnuðir fundið til þessu líkt síðan uppfræðing æskulýðsins drógst frá prestunum, er auðvitað ágerist því meir, sem köll fækka og stækka. Fólkið hefir löngum talið og gjör- ir enn að telja presta mjög vel fallna til að uppfræða ungdóminn, og öll- um almenningi hefir þótt og þykir enn, þar sem eg þekki til, allra mest vert um ungmennafræðslu prestsins, og telur mikilvægustu þýð- ngu hans horfna, þegar hann er satna sem hættur að fást við æsku- lýðinn. Og þetta er að nokkru eðli- legt: Því minna sem fólki finst varið í verk prestsins eða því minna sem prestur getur unnið því til veru- legs, sýnilegs gagns, því fráhverfara verður fólkið prestinum, og það því fremur, sem jafnmikið eða meira verður að borga honum. Og þá verður einnig fólkinu litið á það, að jafnhliða, og að nokkru í stað prestanna, er að koma upp ný stétt, alþýðukennarastétt, til að taka af prestunum eitt mikilvægasta starf þeirra, er svo þykir, fræðslu æsku- lýðsins, og gjörir þá með því meir og meir óþarfa í augum alþýðu. En jafnframt þessu hefir hin byrjandi kennarastétt reynst mjög ófullnægj- andi, og fræðsla hennar sumstaðar og í sumu sára gagnslitil eða lak- ari en ekki neitt. Svo að eins og hin rýru prestalaun þykja nú helzti mikil, jafnvel alt of mikil, í saman- burði við nytsemi þeirra nú orðið, eins þykir nú og mörgum altof mik- mikið kostað til alþýðufræðslu hinn- ar nýju stéttar, samanborið við árang- ur hennar. Blöskrar nú og gremst mörgum siíkt, að kosta stórfé þessar tvær stéttir, sem að verulegu leyti stór- skerða nauðsyn og nytsemi hvor annarar, og geta hvorug fullnægt köllun sinni, nema þá með ókleifum kostnaði fyrir þetta fámenna land, sem ómögulegt virðist að leggja útí. Af öllu þesu er sú bugmynd komin upp, að hætta við hina byrjandi kennarastétt, sem seint eða aldrei virðist geta náð ákvörðun sinni, en láta aftur hina gömlu og grónu presta- stétt, sem aldrei verður útrýmt, taka að sér hvorttveggja starfið, og gjöra þeim það vel fært með sæmilegum launabótum og bættum kjörum af þeim ógrynnum fjár, sem ný, full- komin, fjölmenn stétt, kennarastétt- in, mundi kosta, Þyrfti þá naum- ast að bæta við prestalaunin svo miklu sem helmingnum af viðunan- legum launum sérstakrar fullnægj- andi kennarastéttar. Allur almenn- ingur hefir og talið og telur enn prestana manna hæfasta og færasta til alþýðufræðslu sakir mentunar þeirra, lærdóms o. s. frv., og þá ætti það ekki að spilla, ef þeir jafnframt prestskaparundirbúningnum lærðu á góðum kennaraskóla. En þá kemur sú mótbára frá sum- um, að prests og kennarastarfið sam- rýmist ekki, og frá öðrum, að prest- ar muni ekki, hafa heppileg á- hrif á nemendur í borgaralegu til- liti. Þegar eg heyri eða hugsa um svona lagaðar ástæður, þá blátt á fram blygðast eg mín. Því að ef hið kristilega og borgaralega samrýmist ekki, þá er annaðhvort ilt og óhaf- andi. Og ef prestum er ætlað eða trúað til að spilla veraldlegu lífi nemenda eða annara, með prestleg- um áhrifum, þá eru prestar nú þeg- ar óalandi og óferjandi, og engu til þeirra kostandi. Að minsta kosti ætti þá ekki hið borgaralega ríki að viðhalda þeim. En eg fyrir mitt leyti er í engum efa um, að sann- ur kristindómur og kristilegur prest- skapur samrýmist ágætlega og á að samrýmast heilbrigðu borgaralegu lífi. Og vei því veraldlegu félagi og líferni eða fyrirkomulagi þess, er ekki samrýmist kristlegri trú og sið- ferði. En máske sumir óttist klerka- veldi? Trygging gegn því ætti þá að liggja í lófa kennaraskólans, þings og kenslustjórnar, sem er uppalari og yfirboðari prestkennara. — Kenn- ið þeim og upp alið þá að eins til að vera þjónar en ékki drotnar — lát- ið þá aðeins verða vel og rétt kristna að hugarfari og hjartalagi — þá er ekkert að óttast, en alls góðs að vœnta. — Betri alþýðukennara að öllu leyti fáum vér ekki en vel undirbúna kristna prestskennara eða kennara- presta, og þeir eru og verða bezt settir og fallnir til að veita alþýðu hina hægustu og almennustu menn- ingu. — En þá er enn ein mótbáran sú, að þetta sé óheppilegt af því, að einn maðurinn geti verið ágætis prestur en ónýtur kennari, og annar fyrir- taks kennari en ónýtur prestur. Þar til er því að svara, að prest- kennarar mundu alls ekki verða misjafnari sem kennarar, heldur en kennarar eru nú eða mundu verða, ef þeir kæmust upp sem sérstök stétt; og ekki heldur misjafnari sem prestar heldur en prestar hafa ver- ið, eru enn og munu verða, heldur miklu síður, þar sem þeir yrðu bet- ur upp aldir og öðruvísi undir starfa sinn búnir en áður. — Auk þessa er sá beztur bæði presturinn og kennarinn, sem hefir bezt áhrifin út frá sér bæði kristilega og borgaralcga. Og mér er nær að halda, að sá maður sé lítt hæfur prestur, er ekki er hæf- ur kennari, og að sá kennari sé ó- hafandi sem ekki getur tekið að sér réttskilið kristilegt prestsstarf11. — Við þetta verður að sitja að þessu sinni, þó að athugasemdir höf. séu mikið lengri. Vér vonum, að þrátt fyrir alt það, sem hér er úr felt hafi lesendur fengið svo mikið að sjá af því, sem fyrir höf. vakir, að þeir geti gert sér hugmynd um aðalatriði málsins. Aukaatriðin má ávalt ræðaeftirá, ef menn vilja sinna málinu sjálfur. Ritsímaskeyti til Fjallkonunnar. frá R. B. Khöfn 6. des. 1906. Islands Falk kom heirn í gær. 1. jan. fer Petersen kapteinn frá, en Saxild tekur við forustu fiskiveiða- umsjónariunar við ísland. Tillógunni um viðgerð konungs skipsins er vel tekið í fóiksþinginu. Fréttastofa Ritzaus. er farin að senda blöðununi hér símaskeyti frá Höfn. Áður gerði dr. Valtýr Guðmundsson það. Það er er Ritsau, sem velur þessa fregn um, hvernig tillögunni um viðgerð kon- ungsskipsins sé tekið í fólksþinginu. Auðvitað er ekki til nokkur sá ís- lendingur, sem þykir sú fregn nokk- uru máli skifta, og hún er eingöngu prentuð sé sem sýnishorn þess, hve lítinn skilning að minsta kosti aðal- fréttastofa Danmerkur hefir á því, hvað hér á landi þykir fréttnæmt. Skarlatsótt á Akureyri. Simrit 8. des; Skarlatsótt breiðist út. Síðan 1. des. hafa 28 sýkst. Sóttvörnun beitt gegn 60 manns í 28 húsum. Veik- in væg og óregluleg. Engin dáið. Frá Seyðisflröl er símritað 6. þ. mán.: Mikill snjór. Frost í nótt 7 st., hiti i dag 11 st. C. Ingi kongur er í Færeyjum. Pros- pero kemur í kvöld. Norskur aðalkonsúll hér á landi er orðinn Olavsen kaupmaður. Framfarir í raniisókuum dularfullra fyrirbrygða. „Die christliche Welt.“ (Hinn kristni heimur) heitir eitthvert helzta kirkju- og trúmálablaðið á Þýska- landi. Það kallar sig „evangeliskt safnaðarblað fyrir mentaða menn af öllum stéttum," heldur afdráttarlaust fram kristinni lífsskoðun, en er frjáls- lynd. Nú í haust hefir þetta blað feng- ið mann til þess að rita um rann- sóknir dularfullra fyrirbrigða, og þá lífsskoðun, sem á þeim rannsóknum er reist, og hefir tekið það fram í tilmælum sínum, að ekki megi minna vera, en að menn kynni sér málið vand- lega, áður en þeir kveði upp dóm um það. Grein sú, er blaðið fær, samkvæmt þessum tilmælum, og flytur, er ekki öll komin hingað. Hún virðist ætla að verða mjög löng. En þeir tveir kaflar, sem komnir eru, sýna ótví- ræðlega hve langt Þjóðverjar, eins og reyndar allar stórþjóðirnar, eru komuar fram úr Norðurlandamönnum að því er til þessa máls kemur. Það er beint óhugsandi, að nokkurtsams konar blað á Norðurlöndum hefði árætt að flytja aðra eins ritgjörð eins og þá, sem, „Hinn kristni heimur“ flytur nú. Samt hneykslast höf. stórkostlega á því, hvernig hávaðinn af fræði- mönnnm á Þýzkalandi talar um rann- sóknir dularfullra fyrirbrygða þau hafi gerst á öllum öldum, en ekki séu nema 60 ár, síðan er verulega hafi verið farið að sinna þeim. Nú komið árlega út í heiminum fjölda af strangvísindalegum ritum um rann- sóknir þeirra, menn þeir, sem áhuga hafa á þessum rannsóknum skiftir miljónum, og í þeim hóp fjölgi stöð- ugt vísindamönnum utan Þýzkalands. En Þjóðverjar viti lítið um þetta. Og það sé tíl skammar, eftir að aðr- ir eins menn hafi rannsakað málið og ritað um það eins og William James, Hystop, Richet, Sir Oliver Lodge, Myers, Flammarion, Schiapar- elli og margir aðrir. Þær greinar, sem konmir eru, minnast rnest á rannsóknir hins franska vísindamanns Maxwells og Sálarrannsóknarfélagins brezk-amer- íska. Maxvell er lögfræðingur og var gersamlega andvígur rannsókn dul- arfullra fyrirbrygða, taldi þau ekkert annað en blekking og vitleysu. En þegar hann kyntist þeim, tók hann að leggja stund á læknisfræði um 6 ár, til þess að verða færar- til rann- sókna. Hann hefir um mörg ár at- hugað fyrirbrygðin í meira og minna björtu ljósi og þar með kveðið nið- ur með þeim mönnum, er fást til að hlusta á sannléikann, þá bábylju, að þau komi aldrei fyrir nema í myrkri, og séu þar af leiðandi ekki annað en svik. Maxwell hefir athugað og ritað af hinni rnestu vísindalegu nákvæmni, og höf. þykir það í raun og veru kostur í ritum hans fyrír byrjendur í þessum fræðum, að Max- well er trúlaus á annað líf. Fyrir þá sök komast hjátrúarbrigslin síð- ur að. Fyrir starfi brezka Sálarrann- sóknafélagsins ber höf. hina mestu lotningu. Hann segir „að það hafi myndast af meðvitundinni um það, að það væri hneyksli og skömm, að

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.