Fjallkonan

Útgáva

Fjallkonan - 10.12.1906, Síða 3

Fjallkonan - 10.12.1906, Síða 3
FJALLKONAN 259 ekki fengist vísindaleg sönnnn á fyrirbrigðum, sem þúsundir hinna á- reiðanlegustu manna séu sannfprðir um að gerist. í fyrstu varð fél igið fyrir háði og fyrirlitning. Eu féiags menn létu það eins og vind um eyr- un þjóta. í fyrstu voru þeir fáir, en eru nú orðnir um þúsund á Eng- landi. Höf. nefnir fáeina af forset- um þess og starfsmönnum, sem hann veit að þjóðverjar kannast við: Arthur Balfour, fyrv. forsætisráðherra Breta, V. C. Barett, prófessor í eðl isfræði, Richard H. Hutton útgefanda tímaritsins Spectator, Sir Oliver Lodge, Sir William Crookes, prófessor William James við Harvard-háskól- ann, prófessor F. C. S. Scbiller í Oxford, Raleígh lávarð, Markíann af Bute, biskupinn í Ripon, Frederic W H. Hyers, prófessor I. I. Thompson og prófessor Charles Richet. Um W. J ames segir hann, að hann hiki ekki við að telja hann stórgáfaðan djúp- hyggjumann, og hinn mesta og and- ríkasta sálarfræðing, sem nú sé uppi. Blaðið sem flytur þessa ritgjörð er sýnilega stefnir að því að telja dularfull fyrirbrigði sönnun fyrir öðru lífi, er í miklu áliti hjá helztu guðfræðingum þessa lands, eins og annarstaðar í heiminum. Fyrir því virðist engin fjarstæða að gera sér vonir um, að framkoma blaðsins í þessu máli muni hafa áhrif hér á landi mutii gera menn athugulli um málið og varkárari,trauðaritil sleggju dóma og svika-aðdróttana, fúsari til þess að kynna sér málið sannvisku- samlega, áður enn þeir áfellast það. Fyrir því er hér á þessa ritgjörð minst. Fánamálið verður fyrir misjöfnum undirtekt- um í Danmörk. Áður hefir verið frá því skýrt í Fjallk., að Politiken telur alla Dani muni verða sammála um það, að danski fáninn sé ekki út- lægur ger af íslandi. En ritstjórn- argrein í öðru blaði dönsku, Skand- erborg Amts Tidende, sýnir, að til eru þeir danskir menn, sem líta á fánamál vort nákvæmlega eins og vér, telja það ekki annað en merki um eðlilega og sjálfsagða sjálfstæði- þrá þjóðarinnar og þykir það sæmd- arauki fyrir Dani að viðurkenna það, að íslendingar séu sérstök þjóð, sem verði að fara sinar eigin brautir, og geti aldrei orðið danskir, alveg eins og Danir geti ekki orðið þýzkir né neitt annað en það, sem þeir eru. Stórkoátleg áhrif mundi það hafa á þann hug, er íslendingar bera til Dana, ef mikið bærist af öðrum eins röddum frá Danmörk hingað til lands. Eins og það er að hinu leyt- inu alveg áreiðanlegt, að ekki er nokkurt vit í því frá sjónarmiði Dana að halda áfram þeirri stefnu að bæla niður sjálfstæðiþrá íslend- inga. Eins og hugum íslendinga er nú orðið háttað, er með niðurbæling- arviðleitninni stefnt stórum skrefum að svo algjörðum skilnaði, sem orð- ið getur með nokkurum þjóðum. Fm Ijósin á höfninni, sem getið var um í síðasta blaði og svo marga furðaði á hefir fengist sú vitneskja, að þau hafi stafað frá einhverjum gashylk- um, sem varpað hafði verið út frá skipi hér á höfninni. Þorg:r. Gudmundssen tungumálakennari fótbrotnaði fyr- ir síðustu helgi, datt á hálku fyrir utan heimili sitt í Aðalstræti. Þjóðliátíð í tilefni af konungskomunni er fyrirhugað að halda á Þingvelli 2. ágúst í sumar. Búist við, að kon- ungur verði þá staddur þar, er vænt- anlegur hingað 31. júlí. Vátrygg-ing'. Fyrir skömmu var þess gctið í Fjallk., að sagt hafi verið, að verzl- unarhúsið á Tjaldanessandi, sembrann í haust, hafi ekki verið vátrygt. Bankastjóri Sighvatur Bjarnason hef- ir tjáð oss, að full vátrygging hafi verið í brunabótafélagi því, sem hann er aðalumboðsmaður fyrir. gclgí Hfa’týsson heldur fyrirlest- ur um Vetrariþröttir og sýnir margar skuggamyndir til skýr- ingar í Bárubúð miðvikudaginn 12. þ. m. — Inngangseyrir 25 au. y2 Jörðin Torfastaðir í Grafningi fæst til ábúðar í næstu far- dögum. Lysthafendur snúi sér til Halldórs Þórðarssonar bókbindara í Reykjavík. V i n d I i n g a r, Enskir, Þýzkir, Rússneskir, Tyrkneskir í stór og smásölu í verzlun Matthiasar Matthiassonar. Jölakerti. Jólatrésskraut. og Spil fást í verzlun Matth. Matthíassonar. Kommóður nýjar með góðu verði fást í verzlun Þ. Sigurðssonar Laugaveg 5 Siórt útval af o-ólaliortum er í verzlun Þ. SIGURDSSONAR Laugnveg S löi og faiaefni sel ég sem áður Ód^rast Nýkomið mikið af nýtízku-efnum, Hálslíni allsk. og slaufum sem er betra og fallegra en nokkru sinni áður. skraddari. er ódýrasta og frjálslyndasta llfsábyrgðarfélagið. Það tek- ur allskonar tryggingar, alm. llfsábyrgðnr ellistyrk, fjárábyrgð, bamatryggingar o. fl. Umboösm. Pétnr Zóphóntastton. ritstjóri Bergstaöastrœti 3. Heima 4—5. Meö s|s Vestu liemur mikið af fallegum og sterkum vetrarfötum frá kr. 22,00. Sömuleiðis 50 hrokkin sjöl með ftllum litum frá kr. 12,00 Brauns verzlun Hamborg: iAÖalstrcotÍ 0 Telefón 41. lú bciur Gn nokkru sinni fyFF. Síðan allir jólabazarar í bænum voru opnaðir hefir fólk haft tækifæri til að bera sarnan verð og gæði á ýmsum munum sem á þeim fæst. — Sá samanburður hefir sannað nú betur en nokkru sinni fyrr að Jólabazarinn í Aðalstræti Nr. 10 stendur fremstnr að verði og gæðum. I Timbur- oo Kolaverzluninni Reykjavik eru alt af nægar birgðir af timbri og góðum ofnkolum. Björn Guðmundsson. Samkomuhúsið Betel Sunnudaga: Kl. 6l/2 e. h. Fyrirlestur. Miðvikudaga: Kl. 8‘/4 e. h. Bíblíusamtal. Laugai-daga: Kl, 11 f. h. Bænasamkoma og bíblíulestur. og alt því tilheyrandi hjá H,Andersen&.Sön. Regnkápur nýkomnar til H. Andersen & Sön. HAfNARSTR' 17-18 1920 2122• KOUS t-2- LÆKJART-1-2 * REYKJAVIK • Vefnaðarvörubúðin hefir verið stækkuð stórkostlega, — hún er nú 50 álna löng — og end- urbætt eftir nýjustu tízku. Hún er óefað skrautlegasta og þægilegasta búðin hér í bæ. Aliar hinar nýju vörur, sem kom- ið hafa með síðustu skipum, og pakk- að hefur verið út í búðina, eru svo fjölbreyttar og smekklegar sem frek- ast er kostur á hér, en sérstaklega hefur verið lögð áherzla á, að þær væru bæði vandaðar og ódýiar, Thomsens Magasín. Mjög mikið úrval af alls konar „Nælum“, Hringjum, og fleira af þess kyns skrauti í verzlun Matth. Matthiassonar. 279 — hvorki sem sigurvegari né eins og maður, sem ósigur hefir beð- ið, beldur sem vinir. í sjálfa sér, er það fegurra að hafa áhrif á aðra menn með góðu, en að beita við þá valdi. Þá þarf aldrei að brjóta hurðirnar; þær ljúkast upp, þegar þeim er sagt. Konurn- ar hafa mest áhrifin, og eru það ekki þær, sem stjórna? — Gæt- uð þér ekki hr. Teteról, lagt stund á að verða líkari kvenfólk- inu?“ Hann hristi höfuðið urrandi. Dans má kenna bjarndýrum; en að fara fram á það við Jean Teteról, að hann verði kvenlegur, — þá var engu fjarstæðara að ætlast til þess af fíl, að hann færi viðstöðulaust gegnum skráargat. „Ög munið þér eftir því,“ sagði hún ennfremur, og kom eins og dálítið hik á haua, „að einhvern tíma . . . já, að einhvern tíma kann að koma ofurlítill drenghnokki, sem á að erfa bæði höllina og „hvíta húsið,“ eignast bæði ríkin. Ef þér viljið, getum við lát. ið hann heita Jean í höfuðið á yður“. Hann hristi aftur höfuðið. Honum þótti ekki mikils vert nm þá Teteróla, sem enn voru ekki til. „Eg er sannfærð um það, að yður þykir vænt um hann. Það er hann, sem á að kenna yður að elska, en við eigum að kenna honum að virða yður sem þann mann, er komið hefir fótum undir ættina. Góði hr. Teteról, þegar einhver hugsun hefir gagntekið alt líf manns, er þá ekki mikið í það varið, að tekist hafi að koma þótt ekki sé meira en helmingnum af henni í framkvæmd?“ Ástæðurnar, sem hún færði fyrir sínu máli, sannfærðu hann ekki og voru honum ekki heldur til neinnar huggunar. En rödd

x

Fjallkonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.