Fjallkonan - 22.05.1908, Blaðsíða 1
Landið vort ;kil aldrel elcal
unílr nýjin lilekk,
XXY. árg.
Hafnarfirfti. 22. mai 1908
ei ór sporl aftur þokað
ef «8 fram það gokk.
JÓNATAN ÞORSTEl NSSON
Laugaveg tl Reykjavlk.
Stærsta og ódýrasta úrva) af alls
konar h ú s gjjö g n u m .
Skriftð eftir verðskrá msð
myndum, sem sendist ó k e y p i s.
cfifrefí
millilanóancfnóar~
innar.
Vonbrigftin.
Ekfei í’ingvallafundarkröfurnar.
Hanir hafa yfirtökin.
Mörgum mun hafa brugðið i brún,
er þeir sáu frumvarp millilandanefnd-
arinnar.
F’eir áttu ekki von á öðru en þvj,
að það hefði inni að halda fylstu kröf-
ur Þingvallafundarins í fyrra. Því að
bvo var látið í veðri vaka i skeytjin-
•um, sem bárust áður frá nefndinni,
að um þær væru allir íslenzku nefnd-
armennirnir sammála., og að þeim
hefðu þeir komið fram við dönsku
neíndarmennina.
Út af þeim fregnum var vaknaður
almennur fögnuður hér heima og ekki
var laust við að farið væri áð brydda á
matningi um það, hverjum bæri nú
heiðurinn fyrir þessi miklu afrok.
En svo kom frumvarpið, og fögnuð-
urinn breyttist skyndilega í gremju
hjá flestum.
Þvi að vonbrigðin voru sár.
Enn þá er ekki unt að kveða upp
itarlegan og rökstuddan dóm um
málið, meðan ókomið er álit nefndar-
innar og ástæður hennar. Ekki er
einu sinni vist, að þýðingin á frum-
varpinu sé svo nákvæm sem skyldi;
meira að segja töluverður grunur
um hið gagnstæða.
En samt sem áður er það bert, að
frumvarpið er i mörgum mikilsverð-
um atriðum gagnstætt þvi, er ástæða
var til að vænta eftir fregnunum, sein
látrrar voru berast á undan því.
Frumvarpið er ekki bygt á kröf-
u:n í’ingvallafundarins.
Hann krafðist þess, að ísland yrði
frjálst. iand í sambandi við Danmörku
með fullu jafnrétti og fuliu valdi yflr
öllum sínum málum.
En frumvarpið bindur oss á klafa
hjá Dönum um aldur og æfi að því
er snertir utanrikismál og landvarnir.
Þau mál eru algerlega falin forsjá
Dana, og vór getum ekki sagt samn-
ingnum upp í þessu atriði þótt vér
viljum, og hversu illa sem oss kunna
að falla geiðir þeirra og ráðsmenska.
F’ingvallafundurinn krafðist þess og
að vér hefðum sérstakan fána.
En frumvarpið fyrirskipar danskan
gunnfána og danskan kaupfána út á
við.
F’higvailafundurinn krafðist þess, að
þegnróttur vor yrði islenzkur.
En frumvarpið kveður svo á, að
Danir skuli vera jaín réttháir oss hér
á landi. — F’ar í móti er oss að vísu
heitið sörau hlunnindum i Danmörku.
En það sjá allir að ekki er jafnrótti;
og mun verða vikið nánar að því
síðar.
Danir eiga að hafa yflrtökin.
F’að ber alt frumvarpið með sér.
Og það er nóg til þess að gera
það alveg óaðgengilegt fyrir íslend-
inga.
Dönum er meðal annars selt sjálf-
dæmi um öll ágreiningsatriði, sem
kunna að verða milli landanna (sbr.
8. gr. frv.). Gerðardómur á að skera
úr. En sá gerðárdómur er þannig
skipaður, að Dönum er altaf innan
handar að hafa þar yfirtökin. Gerð
armennirnir 4 — tveir af hvorra
hendi, Dana og íslendinga — eiga að
koma sér saman um oddamann. En
ekki er vandinn annar fyrir Dani en
að iáta ekki verðá samkomulag um
hann. F’á er þriðji maður af þeirra
flokki sjálfkjörinn í dóminn, dómsfor
seti hæstaréttar.
Er þetta nokkurt réttlæti?
Dómsforseti hæstaróttar er danskur
maður og mundi líta á íslandsmál
með dönskum augum. Enginn þarf
að ætia að hann mundi verða oss
hliðholiari dómari fyrir þá sök, að
hann er lögfræðingur, sem kominn er
til mikilla metorða.
F^að er ekki kunnugt um að það
hafi haft nokkur áhrif á dariska menn
ísiandi í vil. Hitt er kunnara en frá
þurfi að segja, að danskir lögfræðing-
ar og mikilsmetnir hafa jafnan verið
oss hinir erfiðustu í öllum viðskiftum.
Heyrst hefir sú fjarstæða, að æski-
legri oddamaður sé ekki hugsanlegur.
Dómsforseti hæstaréttar sé svo „fínn*
raaður, að ósvinna sé að ætla honum
nokkra hlutdrægni.
Engum dettur í hug að drótta
vísvitandi rangsleithi að slíkum
manni. En engum ætti heldur að
detta annað í hug en að hann hefði
að öllum jafnaði danskan skiluing
eða misskilning — á' íslenskum mál-
um.
Og ekki gæti það verið íslendingum
neitt tilhlökkunareMi, að fá fyrir
oddamann í þenna fyrirhugaða gerð-
ardóm suma af þeim mönnum, sem
hingað til hafa fjaliað öðrum fremur
um málefni vor, þó að þeir séu óefað
• í augum Dana nógu „fínir* til þess
að vera dómsforsetar í haestarétti.
Ýms eru þau atriði í frumvarpinu,
sem virðast vera svo ónákvæmt orð-
ið eða tvirætt, að ekki er unt að
dæma um þau fyr en nefndarálitið og
sfeýringar nefndarmannanna koma í
ijós. F’ess verður nú ekki langt að
bíða úr þessu.
1*0 að vonbrigðin sóu mikil og
horfurnar á úrslitum sambandsmálsins
engu vænlegri nú en áður, þá ríður
þó mjög á þvi, að gætt sé allrar var-
úðar í umræðum um það.
Allar æsingar og ærsl út af niður-
stöðu nefndarinnar skyldu menn vai-
ast að svo stöddu.
Gremjan ér mikil. Fað leynir sér
ekki. En nú ríður á að láta hana
ekki hlaupa með sig í gönur.
Hér er ekkert gaman á ferðum.
Hér er verið að tefla um forlög ís-
lenzku þjóðarinnar um ókomnar aldir
Aldrei hefir riðið meira á því en
nú, að landsmenn gæti skynsemi sinn-
ar og rasi ekki fyrir ráð fram. Aldrei
hefir róleg yfirvegun verið eins nauð-
synleg. En aldrei hefir heldur riðið
meir á staðfestu og sjáiístæði hvers
þess manns, sem atkvæði hefir um
málið.
Til L. P. í Þjóðólfi.
í 12 tölubl. Pjóðólfs þ. á. stendur
alleinkennileg grein eftir einhvern
L. P. með yfirskriftinpi: „Aðflutnings-
bann áfengis".
Höfundur greinar þessarar segist
vera „bindindisvinur". Hann segist
sjálfur hafa reynt vínnautnina og séð
afleiðingar hennar, og fundið að hún
mundi leggja sig að velli ef hann
„hefði ekki hætt við vinfengi gamla
Bakkusar". „Eg hef ekkert hatur
til Bakkusar„ segir hann samt, og
sætir það-furðu að maður, sem af
eigin reynd þekkir skaðsemi áfengis
nautnarinnar skuli ekki hata Bakkus
og koma öðruvísi fram gegn aðflutn-
ingsbanninu en höfundur þessi gerir
í nefndri grein sinni.
Hann lofar að vísu Good-Templar-
regluna og þá menn utan hennar,
sem unnið hafa að útrýmingu Bakk-
usar hér á landi í nærfelt 30 ár, fyr-
ir það „sem búið er í þessa átt“, en
lýsir jafnframt óþökk sinni yfir henni
og þeim, sem hana styðja að málum,
só lengra farið. Og þó hvetur hann
alla bindindisvini til að haida áfram
að út'rýma áfenginu, en hlaupa ekki
„undan merkjum og i felur" frásínu
loflega starfi, sem þegar er komið að
því, að ná sigri ef vel er á haldið.
En samt kastar hann ónotum í garð
Good-Templara og bindindisvina fyr-
ir gerðir sínar og áform í máli þessu.
Kallar hann þá sérvitringa og óvita
og stefnu þeirra í áfengismálinu heimsku
eina, hvað aðflutningsbannið snertir.
Og öðlist það gildi, þá segist hann á-
líta að þjóðinni sé með því gerð sú
mesta lítilsvirðing, sem hægt or að
hugsa sér.
Hann segir meðal annars: „F’að er
að gera íslendiriga að Molbúum í aug-
um allra mentaþjóða heimsins", „að
hálfþroskuðum Hottentotta eða Indí-
ána“ og „hvað verður þá úr öllu því
fé, sem veitt hefir verið til útbreiðslu
binditidinu og öllum þeim virðingar-
verðu störfum þeirra manna, sem af
alúð hafa gefið sig íram til þessa?
Alls ekki neitt. F*au hverfa og falla
í dvala gleymskunnar, og um leið
hverfa þeir úr sögunni líka“.
Hann játar, að þjóðin sé nú búin
að koma Bakkusi á bæði knén, en
álítur það efni í nýja þjóðsögu, ef hún
fellir hann alveg. Pó vill hann að
þjóðin bjóði honum engan verustað í
heilabúi sínu“, heldur leggi hann flat-
an o. s. írv. F’annig og þessu likt far-
ast honum orð um áfengið og að-
flutningsbannið, höfundiþessum í F’jóð-
ólfsgreininni. Og virðist æðiinargt í
henni hvað á móti öðru
Á grein þessari er því sáralítið að
græða. F’ó virðist mega draga út úr
henni þá ályktun, að höfundurinn
vilji útrýma áfengisnautninni með
meðölum þeim, sem hingað til hafa
verið til þess notuð, nefnil. bindindi,
toDhækkun og takmarkaðri sölu og
veitingu áfengra drykkja, en alls ekki
með aðflutningsbanni. En hvað er
þetta annað en óskýr og ósjálfstæð
hugsun á mikilvægi málefnisins.
Margra ára reynsla hefir þegar sýnt
það og sannað, að eina örugga
ráðið til þess að útrýma áfengisnautn-
inni er að banna með lögum allan
tilbúning áfengisins, aðflutning þess
og sölu. F’vi svo lengi sem það flyst til
landsins og verður haft á boðstólum,
svo lengi verður það af fjöldanum
keypt og drukkið. Það er eins og
því fylgi einhver sá kynjakraftur, sem
veldur því, að flaskan og fýsnin í það
veiður bindindinu og öllum öðrum
meðölum yfirsterkara.
Og játi maður það með hreinskilni
sem allar mentaðar þjóðir virðast
vera orðnar sammála um, að áfengis-
nautnin sé skaðlegt og stórkostlegt
átumein fyrir þjóðfélagið, hvar sem
er í heiminum, og öll þau meðöl
mikilsverð, sem leitt hafa til þess að
útrýma henni til þessa dags, því þá
ekki sem fyrst að synda fyrir öll sker
hennar, „draga út flísina, afmá or-
sökina" og reka áfengið af landi burt
með allri þess bölvun og óhamingju.
Og áliti maður þá bezt farna sem
aldrei neyta áíengis — og það gera
aflir rétthugsandi menn — hvaða vit
er þá í því að vilja hafa áfengið i
landinu og vera mótfallinn aðflutniugs-
banni? Jú, höfundurinn virðist álíta
„vit“ í því. Hann segir að útlending-
ar og þeir af innlendum mönnum sem,
aldrei verða bindindismenn séu sviftir
þeim réttindum, að geta keypt. hér
áfengi, og um leið tapi þjóð vor tals-
verðum peningum, „sem okkar land-
sjóði hlotnast ai áfengi því, sem hér