Fjallkonan - 17.07.1909, Blaðsíða 3
FJALLKONAN
107
kristindómsfræðslu iingincnmi.
Hann sýndi íram á, að fræðsluað-
ferðin, eins og hún hefði tíðkast, væri
alveg öfug, kæmi inn hjá börnunum
leiða á „kverinu" og öllum guðsorða-
bókum, gagnstætt því er ætti að
vera. Aðalatriði fyrirlestursins dró
hann að lokum saman í eftirfarandi
greinar um kensluaðferðina, eins og
hún ætti að vera.
1. í stað þess að hingað til hefir
kverið verið eina fastákveðna náms-
efnið í kristnum fræðum undir ferm-
ingu, þá verði það hér eftir biblíusög-
ur, trúarjátningin og nokkrir valdir
sálmar.
2. Námsefnið só jafnan útlistað fyr-
ir börnunum áður en þeim er sett
fyrir að læra það. Orðrétt nám sé
aðeins heimtað á trúarjátningunni,
völdum ritningarstöðum og ijóðum.
3. Að öðru leyti verði prestum al-
veg frjálst, hvernig þeir haga undir-
búningi barna undir fermingu.
4. Ef kver er notað til kenslunnar,
sóu yngri börn en 12 ára alls eigi
látin læra það.
Umræðum um fyrirlesturinn var
frestað til næsta fundar.
Biskup bar upp svohijóðandi tillögu
um
handbókarmálið:
Prestastefnan væntir þess, að
handbók presta veiði fullbúin til
prentunar á næsta hausti. Piesta-
stefnan heimilar endurskoðunar-
nefndinni, að bæta manni við sig
í stað Hallgríms biskups Sveius-
sonar, og álítur að una megi við
tilvitnanir einar í pistla og guð-
spjöll, ef þörf gerist vegna útgáfunn-
ar.
Tillagan var samþykt með öllum
atkv. Biskup skýrði frá því, að nefnd-
in bætti við sig síra Haraldi Níels-
syni.
Þá var samþykf, í einu hljóði, eftir
tiilögu biskups, þessi
kvcðja til kirkjuþings Vestur ísl.
Prestastefnan á Þiugvelli 1909
þakkar sem bezf árnaðaróskina frá
síðast höldnu kirkjuþingi "Vestur-
íslendinga, og sendir löndum sín-
um og trúarbræðrum vestan hafs
bróðurkveðju og blessunaróskir.
Jafnframt minnist prest.astefnan
þess, að næsta sumar á Jónsmessu-
dag er kirkjufólag Vestur-íslendinga
25 ára gamalt, og felur presta-
stefnan biskupi, ef minningardag-
urinn fer á undan næstu presta-
stefnu íslands, að tjá kirkjuþinginu
vestra heillaóskir sínar.
Jæks var samþykt með öllum
greiddum atkvæðum þessi tillaga um
keiuiingalTelsi presta.
í tilefni af fyrirlestri iektors Jóns
Helgasonar (Prestarnir og játning-
aritir.) skorar prestastefnan á bisk-
up í samráði við handbókarnefnd-
ina, að undirbúa breytingu á presta-
heitinu og leggja fyrir næstu presta-
stefnu.
Þá var gefið miðdegis-fundarhlé.
Fundur var settur aftur^kl. á1/^-
Þá flutti síra Haraldur Níelsson
fyrirlestur um
altarissakrainentið.
(Hvað vitum vér sannast um stofn-
un heilagrar kvöldmáltíðar?). Sá fyrir-
lestur vakti afarmikla eftirtekt; var
hann samiim af miklum lærdómi og
leiddi rök að því, að tvær skoðanir
hafi verið ríkjandi í fornkirkjunni á
altarissakramentinu. Vonandi birtist
fyrirlesturinn siðar á prenti, og
mundi það vafalaust leiða til góðs
fyrir trúarlífið í söfnuðunum, að
menn kyntust honum sem bezt.
Því næsf hófust umræður um
kristindómsfræðsluungmenna
út af fyrirlestri síra M. H. Voru
allir ræðumenn þakklátir fyrirlesar-
anum og lýstu sig samdóma skoðun-
um hans í aðaiatriðunum. Hér er
eigi rúm fyrir ágrip af þeim umræð-
um.
Að lyktum var samþykt. 1 einu
hljóði svohijóðandi tillaga:
Fundurinn lýsir sig hlyntan
stefnunni í fyriiiestri síra Magnús-
ar Helgasonar, og skorar á biskup
að annast um að út verði gefnar
biblíusögur við hæfi yngri barna
og siðar stæni biblíusögur ætlaðar
þroskaðri börnum.
Næst flutti kand. Sigurbjörn Á.
Gíslason fyrirlestur um sálgæslu,
og urðu engar umræður um hann.
Var orðið áliðið dags, er honum var
lokið, og var þá gert íundarhlé til
kvöldverðar.
Síðar um kvöldið áttu prestarnir
fund með sér í Þingvallakirkju, fyrir
luktum dyrum. Þar fóru fram um-
ræður um fyrirlestur síra Haraldar
Níelssonar, um útgáfu sálmabókar-
innar o. fl.
Kl. 8 sunnudagsmorguninn 4. júlí ♦
var settur síðasti fundurinn. Þar
urðu litlar umræður, með því að tím-
inn var á þrotum. Bornar voru upp
og samþyktar eftirfarandi tillögur.
Prestekknasjóöuriiin.
Prestastefnan minnir alla presta
landsins á það, að greiða áistillög
til prestekknasjóðsins. (samþykt í
einu hlj.)
Bindindismálið.
Prestastefnan treystir áfram fylgi
hinnar íslenzku prestastéttar við
bindindismálið, og aðflutningsbann-
ið.(Fyrri liður — bindindismálið —
samþ. n.eð 20 samhlj. atkv., síð-
ari liður — aðflutningsbann —
samþ. með 17 gegn 4).
Jafnrétti kvenna.
Prestastefnan lýsir fylsta samhug
með jafnréttiskröfum kvenna (samþ.
með 19 samhij. atkv.
Þá voru samþyktar i einu hljóði
þessar 2 tillögur:
1. Prestastefnan þakkar landssjórn-
inni fyrir lán á fundarhúsinu og
lætur jafnframt uppi að æskilegt
væri, að hinn mikli skáli gæti
staðið áfram á Þingvelli til almennra"
fundarhalda og mannfagnaðar. —
2, Prestastefnan þakkar fulltrúum
blaðanna fyrir að hafa lagt á sig
erfiði og kostnað að sækja fundinn
og hafa fylgst svo rækilega með
aðgerðum fundarins til að btrta
þær fyrir almenningi.
Eftir tillögu frá Jens próf. Pálssyni
var biskupi falið að flytja Hallgrími
biskupi Sveinssyni alúðarkveðju fund-
armanna.
Síra Sig. Sívertsen vakti máls á
því, að þörf væri á viðbót við
sálmabókina. Nefnd var skipuð til
að ihuga málið: Gísli Skúlason, Krist-
inn Daníelsson, Sig. Sívertsen.
Síra Kjartan Helgason hreyfði því,
að nauðsyn væri á leiðarvísi við
lestur Nýjatestamentisins. Engin
samþykt var ger um það mál.
Biskup lét þess getið, að hann
hefði í huga að halda næstu presta-
stefnu að Hólum í Hjaltadal að ári,
og færi þá fram um leið vígsla Hóla-
biskups (vígslubiskups). Var látin i
Ijós ánægja yfir þeirri nýbreytni.
Eftir að gjörðabók íundarins var
lesin upp, ávarpaði biskup fundarmenn
nokkrum k veðjuorðum Sagðist hafa haft
nokkrar áhyggjuf út af þeirri tilbreytni
að hafa prestastefnuna á Þingvelli, en
alt hefði nú farið vel, vonaði að von-
ir manna um árangurinn rætist að
mörgu leyti. Raunin hefði nú orðið
sú, að frekar hefði orðið vant tíma en
fundarefnis, þótt staðið hefði fundur-
inn yfir á 3. dag og unnið frá morgni
til kvölds. Vonaði að fundarmönn-
um yrðu þessir dagar minnisstæðir,
og héðan tækju þeir með sér andlegt
lífsnesti heim til starfa sinna. Nú
skifti miklu að ekki yrði iátið sitja
við þennan eina fjörkipp. Þakkaði
hann svo fundarmönnum góða sam-
vinnu, og einkum ritara og þeim öðr-
um, er mest hefðu á sig lagt. Að
síðustu bað hann um blessun guðs
yfir staifinu og áranginum af þvi, og
sagði fundi slitið.
Fundarmenn þökkuðu í einu hljóði
biskupi góða forstöðu samkomunnar.
Þá var kl. 10 á sunnudagsmorgun-
inn, er presastefnuuni var lokið. Á
hádegi gengu allir í kirkju á Þing-
völlum og voru flestir prestarnir til
altaris. Valdimar próf. Briem sté í
stól, en síra Eggert Pálsson var fyrir
altari.
Eftir messu lögðu allir af stað
heimleiðis.
Gott. veður var alla dagana, sem
prestastefnan stóð yfir og átti það
sinn þátt í að gera samkomuna
ánægjulega. Allir virtust og vel
ánægðir. Þrátt fyrir nokkurn skoð-
anamun á einstökum málum urðu
umræðurnar hógværar og skemtileg-
ar. Framsóknarandi, frjálslyndi og
sannleiksást einkendi framkomu
manna yílrleitt.
Kirkjunni er löngum brugðið um
það, og oft með réttu, ,að hún sé
íhaldssöm. Ef dæma 3kyldi íslenzku
kirkjuna eftir prestastefnunni á Þing-
velli, væri rangt að bregða henni um
óhæfilega íhaldssemi. Ekki þurfti
annað en hlusta á umræðurnar um
kenningafrelsi presta og kristindóms-
fræðslu ungmenna til að verða þess
vís, að prestarnir vilja losa um þau
vanans bönd, er helzt til lengi hafa
bundið þjóna kirkjunnar.
Eða þá þetta, að prestarnir vilja
bjóða söfnuðunum uppsagnar-
vald að fyrra bragði. Mundu vera
margar stéttir landsins, sem ótil-
kvaddar af öðrum bjóða slíkt? Máske
sýslumenn og læknar fari nú að
bjóða það hér eftir!
Það raá óhætt fullyrða, að það var
ekki af eintómri íhaldssemi, að skiln-
aðarmálið fekk eigi betri byr en raun
varð á. Þar'réði varfæinin. Auð-
heyrt var, að skilnaðurinn hafði í
raun og veru meira fylgi en atkvæða-
greiðsian sýndi. En menn vildu fara
varlega; forðast byltingar, sem sumir
eru hræddir við. Reyna fyrst að fá
frjálsa þjóðkirkju. —
Allmargt aðkomufólk, annað en
prestarnir, kom á prestastefnuna,
einkum fyrsta daginn, þar á meðal
margt af ungu fólki úr Reyjavík, —
og kom sumt gangandi. Allan fund-
artímann voru þar nokkrir blaða-
menn, guðfræðingar og guðfræðinem-
ar og einn þingmaður úr leikmanna-
flokki, dr. Jón Þorkelsson landskjala-
vörður.
------o<ooo------
Staðfest lög1.
—o—
Þessi 25 lög frá síðasta alþingi stað-
festi konungur 9. júlí:
1. Fjáriög íyrir árin 1910 og 1911.
2. Fjáraukalög fyrir árin 1908 og
1909.
3. Fjáraukalög fyrir árin 1906 og
1907.
4. Um samþykt á landsreikningn-
um fyrir árin 1906 og 1907.
5. Um styrktarsjóð handa barna-
kennurum.
6. Um almennan ellistyrk.
7. Um fiskimat.
8. Uin breyting á lögum um
kosningar til alþingis 3. okt. 1903.
9. Um viðauka við lög 14. des.
1877 nr. 28 um ýmisleg atriði, er
snerta fiskiveiðar á opnum skipum, og
lög 10. nóv. 1905 nr. 53 um viðauka
við nefnd lög.
10. Um breyttng á lögum um
fuglaveiðasamþykt i Vestmannaeyjum.
11. Um samþyktir um kornforða-
búr til skepnufóðurs.
12. Um breyting á lögum nr. 63
frá 22. nóv. 1907, 3. gr., um kenn-
araskóla.
13. Um breyting á lögum um
bann gegn innflutningi á útlendu
kvikfé.
14. Um breyting og viðauka við
lög um hagftæðisskýrslur nr. 29. 8,
nóv. 1905.
15. Um stækkun verzlunarlóðar-
innar í ísafjarðarkaupstað.
16. Um sérstaka dómþinghá í
Keflavíkurhreppi.
17. Um sölu á þjóðjörðunni Kjarna
i Hrafnagilshreppi í Eyjafjarðarsýslu.
18. Um að leggja jörðina Naust í
Hrafnagilshreppi í Eyjafjarðarsýslu
undir Akureyrarkaupstað.
19. Um að stofna slökkvilið í
Hafnarfirði.
20. Um viðauka við lög. 22. nóv.
1907 um bæjarstjórn í Hafnarfiirði.
21. Um heimild fyrir veðdeild
Landsbankans til að gefa út 3. flokk
(seríu) bankavaxtabréfa.
22. Um gagnfræðaskólann á Ak-
ureyri
23. Um eignarnámsheimild fyrir
bæjarstjórn ísafjarðarkaupstaðar á lóð
undir skólahússbygging.
24. Um breyting á lögum um
stofnun Landsbanka 18. sept. 1885
m. m.
25. Um heimild fyrir landsstjórn-
ina til að kaupa bankavaxtabréf Lands-
bankans.
Skálliolt
kom hér 15. þ. m. kl. 2 f. m.
Meðal farþega voru: Magister Carl
Kúchler áleiðis vestur á Snæfellsnes,
Sigurður Sigurðsson læknir frá Búð-
ardal, Bjarni Jónsson skólastjóri, ísa-
firði, Haraldur Möller trésm., Rvík.,
Gunnar Gunnarsson kaupm. Rvík.,
Sæm. Guðmundsson Ijósin., Akranesi
o. fl.
Skipið hélt héðan aftur seinni part
sama dags.