Fjallkonan - 17.07.1909, Blaðsíða 4
108
FJALLKONAN
Lúðrafélagið í Hatnarfirði.
Það félag telur sér skylt að þakka
Hafnflrðingum, sumum hverjum, hin
góðu ummæli þeirra og drengilega
framkomu gagnvart félagsskap þess-
um.
Fádæma lítilmenska lýsir sér hjá
þeim inönnum, er gera sér það til
afþreyingar, að smána og lítilsvirða
viðleitni þeirra manna, er áiita það
óhætt mannorðs og sóma sins vegna
að halda hér saman lúðrafélagi, er
við héldum að gæti orðið bæjarbúum
íremur til skemtunar en hitt, og i
augum annara drenglundaðra manna
mundi ekki vera álitin nein vanvirða
fyrir bæinn.
Það er þvi ófyrirgefanleg afskifta-
semi manna þeirra, er félagsskapur
þessi kemur ekkert við, þiggur ekk-
ert af þeim og hefir engar skyldur
að inna af hendi við þá — að leggja
sleggjudóma sina afdráttarlaust, á það,
er þeir ekkert minsta skynbragð
bera á.
Annars er það von að menn þessir
láti til svona; það er ekki að ástæðu-
lausu þótt þeir vonist eftir miklu,
þeir vita svo sem af þvi, að bærinn
hafði undir höndum lúðra siðan 1891
— reyndar alla beglaða, skakka og
skælda —, höfðu sumir þeirra legið
i stökustu óhirðingu um langan tíma,
þar til lúðrafélagið tók við þeim,
það er því ekki að ástæðulausu þótt
kröfur manna séu háar, og listagáfan
sé næm fyrir í þessa átt, en engin
minkunn mundi það samt mönnum
þessum að láta okkur óáreitta.
Væri því æskilegast að menn þess-
ir, sem hér eiga hlut að máli, vildu
nota málæðisgáfu sína í eigin þarfir
en ekki okkur til óþurftar.
Margir bæjarbúar hafa verið og
eru okkur velviljaðir, þeir hafa þegar
sýnt það, er á hefir þurft að halda
og er það sem að framan er sagt
ekki mælt til þeirra, en hinir, hversu
margir eða fáir sem þeir kunna að
vera, ættu að venja sig af þeim ijóta
sið að viija rifa alt það niður, er
ekki hefir rúm í þeirra einkennilega
höfði.
Hafnarfirði 14/7 ’09.
Carl Ölafsson,
formaður félagsins.
Erlendar ritsímafréttir
til Fjallkommnar.
—O—
Kh. 10. júlí kl. 12,5 sd.
Frá Þýzkalandú
tíulon: ríkiskanzlari Þjóðverja fer
frá völdam; óvíst um eftirmann hans.
Bóla ofl kólera.
tíóla geisar i Pétutslorg; kóleru-
hœttan eykst.
Beskj tteren
kom hér í gærmorgun með botn-
vörpung, Nizam GY. nr. 199 frá
Grimsby, er hann tók í Garðsjónum
skamt undan Gerðum ; hafði verið
símað þaðan eftir varðskipinu; höfðu
Garðbúar sóð bot.nvörpung þennan
2—3 undanfarna dag að veiðum þar
i landhelgi. Hann var sektaður um
1080 kr. og afli og veiðarfæri upp-
tækt gert.
Maður druknaði
í f. m. í kil úr Lagafljóti eystra,
skamt frá Vallanesi. Hann hét Sig-
hvatur Gíslason, trósmiður úr
Reykjavík 26 ára gamall ; var hann
með 2 mönnum öðrum að synda í
kilnum. Alt í einu kallar hann um
lijálp og segist vera að sökkva.
Hinir urðu of seinir til að ná i hann
áður en hann sökk, og kom hann
eigi upp aftur. Köfuðu þeir þá eftir
honum, en náðu honum ekki fyr en
eftir fjórðung stundar, og var hann
þá örendur. Læknir skoðaði líkið og
kvað manninn hafa fengið slag.
Gfripasýning
var haldin við Jiagarfljótsbrú 19. f.
m., og var þar saman komin mesti
fjöidi af mönnum og málleysingjum.
Ræður héldu þar Gunnar Pálsson
hreppstjóri og Benedikt Kristjánsson
búnaðarráðunautur.
Þýska skcmtiskipið
Oceana, sem undanfarin sumur
hefir komið hingað til lands, kom
til Reykjavíkur 10. þ. m. með yfir
200 þýska ferðamenn. Skipið fór
aftur aðfaranótt* mánudags norður
um land áleiðis til Spitzbeigen.
Mannalðt.
Dáinn er 2. þ. m. síra Eyjólfur
Jónsson prestur í Árnesi í Stranda-
sýslu, 68 ára gamall, fæddur 25. nóv. .
1841, prestvigður 1865 að Kirkjubóls-
þingum í ísafjarðarsýslu, fekk Mosfell
í Grímsnesi 1882 og Árnes 1884.
Synir hans eru þeir prestarnir Eyólf
ur Kolbeins á Melstað og Böðvar að-
stoðarprestur í Arnesi, og ennfremur
Jón gullsmiður á ísafirði, en dætur
fórunn, kona Marínó’s Hafsteins upp-
gjafasýslumanns, og Leopoldína, ógift
heima.
í Iíhöfn. lézt fyrir stuttu Símon
Alexíusson (lögregluþjóns í Rvik.).
Hann var kvongaður íslenzkri konu:
Málmfriði í’orláksdóttur; þau hafa ver-
ið búsett þar nærfelt 10 ár. — Var
hann valinkunnur sómamaður og þau
hjón bæði, enda mun hans sárt sakn-
að af þeim, er til hans þektu ; hans
verður minst siðar.
íslaiidsYÍnurimi
þýzki, Carl ICúchler kom með
Láru til Rvikur 13. þ. og ætlar nú
að ferðast um Snæfellsnes. Hann
hefir unnið landi voru mikið gagn
með ritum sinum um ísland og þýð-
ingum sínum á íslenzkum ritum á
þýzku. Hann hefir tvívegis áður
ferðast hér um land og ritað bækur
nm þær ferðir.
8 íslendingar
komu frá Vesturheimi nú í vik-
unni. frent af því að eins snöggva
ferð, en hitt alkomið.
Þjóðhátíðin
í Reykjavík verður haldin I, og
2 ágúst næstk, Kaupíð ný föt
og hið viðurkenda hálslín (nýtt
úrval) hjá
H. Andersen & Sön
Hafnarfírði.
Lyklar fundnir milli Hafnarfjarð-
ar og Rvíkur. Eigandi vitji tii Sig-
urðar Kristjánssonar sýsluskrifara,
og borgi um leið auglýsingu þessa.
Taða fæst keypt góðu verði á Ey-
vindarstöðum á Álftanesi hjá Gunnari
Sigurðssyni. Einnig geta menn pant-
að töðuna hjá Ara Jóossyni mála
llutningsmanni í Reykjavík.
cTCúsnœói.
4 rúmgóð herbergi, eldhús, geymslu-
rúm og eitt smáherbergi, í góðu
húsi, -óskast til leigu frá 1. október.
Skrifieg tilboð sendist ritstjóranum
fyrir lok þessa mánalar, auðkend:
Húsnæði.
i
!
Ljósmyndastofan í Hafnarfirði I
gerir allar tegundir Ijósmynda, ■
hvort heldur af fólki eða öðru. I
Myndir stækkaðar og smækk- •
aðar. Talsími nr. 1. J
Carl Ólafsson.
■•■tBKHMHioaimmt
Chr. Junchers Klædefabrik.
Randers.
Sparsommelighed er Vejen til Vel-
stand og Lykke, derfor bör alle, som
vil have godt og billigt. Stof (ogsaa
Færöisk Hueklæde) og som vil have
noget ud af sin Uld eller gainle uldne
strikkede Klude, skrive til Chr. Junc-
hers Klædefabrik i Randers efter den
righoldige Prövekollektiou der tilsen-
des gratis.
margarine
ætti hver
kaupmaður
að hafa.
r
w
r
k
r
k.
r
k
r
k
r
r
►
r
DE F0MNE9E BRYGSERIERS i
fck
r
r
>
K
r
r
k
r
Cfita cJlronuöl.
cJirónupilsanQr.
Cxport ^Doööalt öl.
cflnfier öl.
Á
Á
Á
Á
Á
Vcr íiiælum mcð þcssuni öltegundum sem þcim FÍNUSTU
skattfríu ölteaiindum sem aliir bindindismcnu mega neyta.
VT13 Biðjið bcinlínis um:
1 ' Dc forencde Bryggcriers Öltcgundir.
A
A
A
◄
A
4
4
4
' Ji * danske
I
Vin- & Konserves-Fabrikker.
J D. B E A l VA 1 8 M. R ASMUSSEN
Leverandor til Hs. Maj. Kongen af Sverige, Kgl. Hof-Leverandor,
K0BENHAVN FAABORG
Konscrres Syltetöjer
Frugtsafter og Frugtvine.
4»ítti 4. i—i
SCHWEIZER SILKI §OgL
Biðjið um sýnishorn af okkar prýðisfögru nýungum, sem vér ábvrc-iumst
haldgæði á.
Sérstakt fynrtak: Silki-damast fyrir ísl. búning, svart, hvítt og með
fleiri litum frá 2,15 fyrir meterinn.
Vér seljum beint til einstakra manna og sendum þáu silkiefni, sem menn
háfa valið, tollfrítt og burðargjaldsfrítt til heimilanna
Vörur vorar eru til sýnis hverjuin sem vill lijá frú Ingibjörgu Johnsen, Lækj-
argötu 4 í Rcykjavík.
Schweizer & Co. Luzern Y 4 (Schweiz).
Snkivavnings-útflytjendur. Kgl. hirðsaiar.
Tá*caMic3isgaMita»»u*:MiE3»i:a»t?jiC4»iet«ftc3«tj«c3»i»ctai>t:a«i6ae3-»ca»T3>íj.i>&a.«j3a»Bi3ii«icrvv3
Ritstjóri: Jón Jónasson. — Prentsmiðja Hafnarfjarðar,
i