Fjallkonan


Fjallkonan - 15.11.1909, Blaðsíða 3

Fjallkonan - 15.11.1909, Blaðsíða 3
FJALLKONAN 175 hrygg, þurfa sem flestir að fara þann- ig að ráði sínu. Svör gegu mótbárum. 1. Kaupfélögin eyðileggja smásalana. Þó svo kunni að fara, má eigi í það horfa, þar sem annars vegar er um svo mikinn hagnað að ræða. Sér- stakir hagsmunir einnar stéttar mega eigi standa í vegi fyrir alþjóðlegum hagsmunum. Kaupfélögin gera eigin- iega ekki undirboð, nema það megi telja undirboð: að selja ófalsaðar vör- ur með föstu og almennu verðlagi. Útbreiðsla kaupfélaganna er að vísu örugg, en eigi svo hraðfara, að snögg- lega lendi neinn fjöldi af smásölum á flæðiskeri. Ef eiginverzlun þykir eigi álitleg til frambúðar, geta kaup- menn búið börn sín undir einhverja aðra lífsstöðu. Um margt er að velja Verzlunarmannafjöldinn er óhæfilega mikill, sem stendur. í Kristjaníu t. d. hefir sjötti hver húsráðandi vöru- verzlun fyrir atvinnuveg. 2. „Það er ehki ómaksins vert fyrir mig að ganga í kaupfélag, eg kaupi svo litið“. Þetta segja ýmsir menn, en þeir gá eigi þess, að þó ágóðinn skifti eigi tugum króna, þá er hann hlut- fallslegur, og munar því jafnmik- ið um hann, eftir ástæðum. Þar að auki eru noegar ástæður aðrar fyrir hendi: góðar vörur, skuldlaus verzlun, fræðsla og fyrirlestrar m. fl. Eigi er minust vert um þá meðvitund að taka þátt i hreyfingu, sem miðar til almenningsheilla og komandi kynslóð til blessunar. 3. Eg get fengið sykrið mitt ódýr- ara hjá öðrum". Sykrið er líklega lakari vara, en ef svo er eigi, getur þessi eineyringur — þó hann yrði sparaður — ekki nálgast aðalágóða- hlutskiftið i félaginu við reiknings- lokin. £að ætti að verða hverjum manni ljóst, að góður samvinnufélagsmaður hugsar eigi eingöngu um sjálfan sig heldur og um meðbræður sína; eigi að eins um stundina sem er að líða, heldur fyrst og fremst um komandi timann; eigi að eins um fjármuna- hliðina, heldur engu síður um sjálfs- menning og andlega fræðslu. En fyrst og síðast verða menn að hafa það hugfast: að samlyndi og traustleikur — sem alstaðar heflr svo mikla þýð- ingu — er lifsskilyrði fyrir samvinnu- félagsskapinn. „Einn fyrir alla og allir fyrir einn“. (Tím arit kaupfélaganna). Gruftin. E. Guftinundsson bryggjusmiður úr Reykjavík var hér á ferð fyrir helgina til að skoða hafskipabrvggjustæði hér í kaupstaðn- um. Nýr doktor. Ólafur D. Daníelsson kennari við kennaraskólann í Reykjavík hefir náð í doktorsnafnbót. við Khafnarhá- skóla fyrir rit um reikningslist. Skrifstofustjóraembættift í stjórnarráðinu, sem hr. Indriði Einarsson var settur til að gegna í vor, er nú veitt honum. Gullbrúftkaup. Hinn 13. þ. m. voru þau hjón, Páll Melsteð sagnfræðingur og Þóra kona hans búin að vera 50 ár í hjónabandi, og sama dag varð Páll 97 ára. Þeim var þá sýndur virðingar- vottur á ýmsan hátt; meðal annars var þeim fært skrautritað ávarp frá fjölda Rvíkurbúa. Fagnaðarsímskeyti bárust þeim úr ýmsum áttum. Eitt sendu kennarar skólanna hér í bæn- um, þannig hjlóðandi: Virðingarfull kveðja á gulllrúðkaups- deginum og þökk fyrir unnið æfistarf til frœðslu islenzkrar alþýðu. Heiftursmcrki. Jungfrú fóra Friðriksson í Reykjavík heflr verið sæmd frakk- nesku heiðursmerki Officier (d’Aca- demie); er það fyrsta sinn er íslenzk- ur kvenmaður hlýtur það skraut. Kveftjusamsæti var þeim haldið hér í bænum 11. þ. m. Jóni Gunnarssyni verzlun- arstjóra og frú hans, Sofíu Þor- kelsdóttur. Þau flytja nú héðan alfarið til Reykjavíkur, þar sem Jón tekur við hinu nýja starfi sínu, fram- kvæmdarstjórn Samábyrgðar íslands. — Samsætið sóttu 50—60 manns af öllum stéttum. Aðalræðuna fyrir minni heiðursgestanna hélt S. Berg- mann kaupm., en auk hans töluðu i sama anda: Magnús Jónsson bæjar- fógeti, Aug. Flygenring alþingism. og síra Jens Pálsson prófastur. — Indr- iðiEinarssonskrifstofustjóri, sem þarna var staddur, talaði fyrir minni Ilafn- arfjarðar. Það mun eigi of mælt, að allir Hafnfirðingar kveðji hr. J. G., konu hans og börn með virðingu, hlýjum hug og beztu óskum. í prestaskólamim eru nú 7 nemendur, þar af 3 nýir, i yngstu deild. 1 lækuaskólanum eru 18 nemendur í vetur, 5 af þeim nýir. Yestri seldur. Reykjavíkin segir að blaðið Vestri á ísafirði sé selt hlutafélagi þar, og getur vel verið að þetta sé satt. Samcigiiilegur fundur var haldinn í gærkveldi með Good- templarastúkunum og ungmennafé- lögunum hér í bænum (ung.m.félagi Flensborgarskólans og Seytjánda júni), til þess að ræða um samvinnu með Goodtemplarareglunni og ungmenna- félögum. Fundurinn var vel sóttur og samkomulag gott. Nánari fréttir af honum koma næst. Skautaferftir hafa eigi verið mikið iðkaðar hér í bæ til þessa. Nú er áhugi á þeim að vakna og hefir mátt sjá merki þess að undanförnu á Urriðakotsvatni. Ungmennafélagið Seytjándi júní gfngst fyrir skautaferðum þar. En bagi er það, að gott skautasvell skuli eigi vera nær bænum. Ir 1 árs gamalt í miðbænum 10 er til sölu. Ritstjóri vísar 92 89 Og iil í skapi og reiður björn, sagði hún, og svo kastaði eg afgang- inum eldinn. Nú kom hann til þriðju stúlkurinar. Hún var klædd í kápu og búin að setja upp hatt og var albúin til að fara út. — Gerið þér svo vel, hérna er silkitvinninn yðar, sagði hún. Hann er dálítið slitinn, en hann er allur vel greiddur úr flækjunni. — Kærar þakkir, sagði Pétur glaður i bragði; nú vissi hann hvar hann átti að bera niður með bónorðið. — Pað hefir víst verið leiðinlegt verk að eiga við þetta; eg ætla því — — — — — Nei, nei, þvert á móti; það mátti miklu fremur heita skemtilegt starf, sagði hún í þýðum og ástúðlegum róm. Eg gerði þetta á meðan hann Friðrik B. var hérna í gærkveldi, og eg vissi ekkert hvernig tíminn leið. fér hafið víst frétt það, að trúlofun okkar Friðriks er nú ekki lengur leynd. En þarna kemur hann þá. Yið ætlum að taka okkur skemtiferð saman í vagni. — í guðs friði! — En, góða frú, arfleiðsluskrá hans er aukaatriði fyrir mig. Það sem mig varðar um, er sjúkdómur yðar, því að eg vil gjarnan finna einhver ráð til að bæta heilsu yðar. — En eg er stálhraust, herra minn, og fer ekki fram á neitt annað við yður en að þér takið að yður mál mitt og fáið arfleiðslu- skrána felda úr gildi fyrir dómstólunum, að því leyti sem hún á- kveður þennan skildaga. — Nú, en með leyfi að spyrja: hvar haldið þér að þér séuð þá, frú? — Hjá dr. Masson, málaflutningsmanninum alkunna, sem svo mikið hefir verið látið af við mig. — Þér eruð staddur hjá lækninum dr. Masson. Málaflutn- ingsmaðurinn, nafni minn og fjarskyldur ættingi, á heima í Haus- manns virkisstræti. fað er ekki i fyrsta skifti, sem vilst hefir ver- ið á okkur. — Nei, hamingjan góða! æpti frú von Vanleurs og hló hátt og glaðlega, Eg hefi þá farið vilt, þegar eg var að leita að heim- ili málaflutningsmannsins í bæjarskránni! — En með leyfi, frú, viljið þér ekki gera svo vel að fá yður sæti aftur ?---------eg bið yður að gera það fyrir mig------------- leyfið mér að koma með eina uppástungu. Og unga friún mátti til að setjast niður; það hefði verið kurt- eisisskortur ef hún hefði neitað að verða við þeirri bón. Jeróme furðaði sig á því, hve langan tíma þessi læknisráðaleit- un tók, og hversu glaðlegt samtalið var. Hann heyrði svo greini- lega fjörugan kvenmannshlátur út úr herberginu. Þegar frú von Vanleurs fór, rétti hún lækninum hendina mjög vingjarniega; og um leið brosti hún ástúðlega framan í hann og stakk upp á því, að hann kæmi heim til sín einhvern næsta daginn. Hann svaraði þeirri uppástungu með því að taka þétt í hend- ina á henni. Frúin þurfti ekki að finna málaflutningsmann dr. Masson að máli.

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.