Alþýðlegt fréttablað - 29.07.1886, Page 2
2
og lýsti hann því þarnæst yfir „í nafni kon-
ungs síns“ að það væri sett. Eptir nokkra
bið og þögn stóð upp Bened. Sveinsson
og mælti: Lengi lifir konungur o. s. frv.
og tóku undir það nokkrir þingmenn hægra
megin.
Þá gekk aldurforseti Jón Pjetursson til
forsetasætis og kvaddi sér til aðstoðar Hali-
gr. Sv. og L. E. Svb. Því næst skiptu þing-
menn sér í 3 deildir til að rannsaka hver
annarar kjörbréf. Kærur höfðu komið fram
móti lögmæti kostninganna í Reykjavík og
Árnessýslu. Þingið tók kostningarnar allar
gildar eptir nokkurt þref (með 21 atkv.) en
fól hinni þar til ætluðu nefnd að ranusaka
kærurnar. Var svo kosinn forseti í samein.
þingi: Bened. Sv. með 25. atkv., varafors. í
samþ. Bened. Kr. með 24 atkv., skrifarar í
samþ. Lár. Hald. 22, Þorl. J. 24. Þá voru
kosnir 6 þjóðkj. þingm. í efri deild: Ben.
Kr. 33 atkvæði, Sighv. Á. 33, Skúli Þ. 31,
Jak. G-. 29, Jón Ól. 27, Friðr. Stef. 26 atkv.
Samþykkt var með 19 atkv. að kjósa þá
þegar 3 menn í nefnd til að rannsaka kær-
ur út af kosn. þingm. o. fl., enda þótt svo sé á-
kveðið í þingsköpunum, að forsetar beggja
deildanua séu i nefndinni, auk 3 meðnefdar-
manna. Nefndarm. urðu: Sig. Jónss. 19,
Jón Ól. 15, (Ben. Kr. með 11 atkv. náði
eigi 1 /3 atkv.) eptir aðra kosn. Bened. Kr.
með 22. (Forsetar deildanna Jón Sigurðsson
og Árni Thorsteinsson urðu einnig í nefnd).
Feld var sú uppást. fors. (B. Sv.) að kjósa
þá þegar menn í ferðakostnaðarreikninga-
rannsóknarnefndina. Var þá skipt deildum.
í efri d. urðu forseti Árni. Thorst. 10 atkv.,
varaf. Jón Pét. 6 atkv., skrifarar Jón Ól. 6
atkv., Bened. Kristj. 5 atkv. í neðri d.
forseti Jón Sigurðss. 22, (Bened. Sv. hl. 1 at-
kv.) varaf. Þ. Böðv. 17, (Gr. Thoinss. hl. 4),
skrifarar Jón Þórar. 19, Páll Ólafss. 15.
Forseti gat þess að stjórnin mundi ekkert
frumvarp til stjórnarskipunarlaga ætia að
leggja fyrir þingið, og kvaðst því ekkert
verkefni hafa fyrir deildina til næsta fundar;
nema ef þingmenn hefðu einhver mál að
bera fram. Q-r. Thoms. gat þess að hann
hefði meðferðis ávarp til þingsins frá nokkr-
um kaupmönnum o. fl. um, að þingið vildi
skora á stjórnina að reyna að koma á verzl-
unarsamningum við Spán.
Bened. Sveinsson lét í ljósi óánægju yfir
því, hve tómlátlega stjórnin kæmi fram í
stjórnarmáli voru. Hann kvaðst hafa með
höndum bréf til forseta frá 5 þingm. sem
tjáðu sig flutningsinenn þess stjórnarskipun-
arlagafrumvarps sem alþ. í fyrra hefði sam-
þykkt, og afh. hann forseta bréfið. Það var
undirskr. af Bened. Sveinss. Sigurði Jóns-
syni, Lárusi Halldórss., Sigurði Stefánss. og
Þorv. Kérúlf. Forseti kvaðst síðar í dag
setja upp dagskrá til morguns, og ákvað þá
fund kl. 12 ; skyldu flutuingsm. þá leggja
fram hið umgetna frumvarp sitt til stjórnar-
skipunarlaga.
Því næst var fundi slitið.
Þá gengu þingmenn til landsh. að borða,
eins og lög gjöra ráð fyrir.
Það var einkum einkennilegt við þessa
þingsetningu hve rakið það virðist liggja
fyrir þingmönnum að skipta með sér verk-
um. Allar kosningarnar falla svo hreinlega,
að mönnum hlaut að detta í hug, að þetta
hefði alt verið niðurlagt og undirbúið fyrir-
fram, ekki sízt skipun efri deildar. Mun
þingið, eigi síður en konungur, af sinni
hálfu hafa viljað skipa vel í skörð þau, er
í hana voru fallin.
Að öðru leyti er eigi unt að segja neitt
af þessu þingi enn. Það er „að yfirlitum“
unglegt og fjörlegt, skörulegt og frjálsmann-
legt, og hefur það í því tilliti töluvert skift
litum við mannaskiptin. En af því „ekki
eru allar ástir í andliti fólgnar“ er eigi
gott að dæma um þingið fyrirfram eptir
ytra áliti. „Dag skal að kveldi lofa og
þingið að endalykt“.