Norðurljósið


Norðurljósið - 01.05.1912, Blaðsíða 6

Norðurljósið - 01.05.1912, Blaðsíða 6
3« Norburljósið Molar frá borði meistarans. (Á þessari blaðsíðu verða jafnan fluttar uppbyggilegar greinar fyrir trúaða.) Persónuleiki Heilags Anda. Eftir Dr. Torrey. (Framhald.) Ráð við einstœðingsskap. Þegar vjer Iesum frásöguna um Jesúm, er hann var með lærisveinum sínum og talaði við þá, munu víst margir af oss óska að þeir hefðu mátt vera með hon- um líka. En þó höfum vjer, jafnvel á þessum dögum, persónulegan vin rjett við hlið vora, guðdómlegan eins og Jesús, alveg eins tryggan og traustan, til þess að uppfylla hverja þörf vora. Ef þessi dýrmæti sannleikur nemur einu sinni staðar í hjörtum vorutn, þá frelsar hann oss frá allri angist og armæðu. Hann er besta ráð við einstæðingsskap. Hvernig getum vjer orðið ein- stæðingar, ef vjer þreifum á því, að guðdómlegur vin- ur er stöðugt hjá oss, jafnvel þótt vjer höfum orðið að sjá á bak hinum bestu jarðnesku vinum vorum? Þetta er lækning handa syrgjandi hjörtum. Vjer höfum víst margir hverjir reynt hvað það er að skilja við þá ást- vini vora, sem vjer elskuðum inest, og við burtför þeirra finst oss hjarta vort vera svo tómt, að ekkert muni geta fylt það aftur; en þó er til guðdómlegur ástvinur, sem dvelur í hjarta hvers trúaðs manns, sem getur bætt hverja sorg, fróað og fullnægt hjörtum vorum, og sem meira að segja vill gera það, ef vjer biðjum hann uin það. Myrkfælni og öll hræðsla verða að hverfa fyrir honum. Hversu dimt sem er, og hversu margir óvinir, sem umkringja oss, þá er þessi guðdómlegi vinur æfin- lega hjá oss, og hann getur varðveitt oss, og vill varð- veita oss frá hverri hættu. Hin dimniasta nótt verður björt fyrir nálægð hans. En þessi hugsun styrkir oss þó einkum í þjónustu Krists. Margir þjóna Drotni hálf-hikandi og með ótta, og eru altaf hræddir um að þeir muni segja eða gera eitthvað það, sem á ekki við, svo að þjónustan veitir þeim litla gleði eða ánægju. Þeir skjálfa af tilhugsun um það, að þeir sjeu ekki færir um að framkvæma ætl- unarverk sitt, og þeir eru æfinlega hræddir um að það verði ekki framkvæmt eins og vera ber. En ef vjer munum aðeins eftir því, að ábyrgðin hvílir í raun rjettri alls ekki á oss, heldur á Heilögum Anda, og að hann veit einmitt það, sem helst á að segja og gera — ef vjer viljum láta bera sem allra minst á sjálfum oss, til þess að hann geti óhindraður unnið það starf, sem hann er svo vel fær um að gera, — þá munu ótti og angist hverfa með öllu. Vjer verðum lausir við alla þvingun og áhyggju, og finnum til ósegjanlegrar gleði yfir þvi, að boða sannieika Ouðs. Jeg ætla að leyfa mjer að bera fram minn eigin per- sónulega vitnisburð um þetta atriði. I mörg ár vildi jeg ekki vera kristinn, af því að jeg hafði ásett mjer að jeg skyldi ekki prjedika. Kvöldið, er jeg sneri mjer til Krists, sagði jeg: »Jeg vil prjedika.« En það var varla hægt að finna mann, sem var af náttúrunni eins óhæf- ur til þessa starfs og jeg. Jeg var framúrskarandi feim- inn. Jegtalaði aldrei, jafnvel á bænasamkomu, fyren jeg var kominn í guðfræðisskólann Fyrsta sinn er jeg reyndi að tala, þá var sú reynsla sárasta þjáning fyrir mig. Seinna ineir, er jeg fór að prjedika, skrifaði jeg ræður mínar upp og lærði þær utanbókar, og þegar guðs- þjónustunni var lokið, þá andvarpaði jeg, af því að mjer Ijetti svo mikið við það að hún var búin og kom ekki aftur í heila viku. Mjer var það kvöl að prjedika. En Ioksins kom sá dagur, er mjer varð það ljóst, að Heilagur Andi stóð við lilið mjer, þegar jeg stóð upp til að prjedika, og þótt fólkið sæi ekki nema mig, hvíldi þó ábyrgðin í raun og veru á honum, og hann var vel fær um að bera hana. Jeg fann að ait sem mjer bar að gera, var að draga sjálfan mig í hlje að svo miklu leyti sem hægt væri, og láta Heilagan Anda vinna það starf, sem Faðirinn sendi hann til að gera. Upp frá þeim degi hefirþað verið mjer blessunarrík gleði að prje- dika, en ekki byrði eða armæða. Jeg hefi enga áhyggju nje kvíða. Jeg veit að það er Heilagur Andi sem stjórn- ar guðsþjónustunni, og að hann gerir það eins og best má gera. Þrátt fyrir það, að stundum á það sjer stað, sem jeg hefi ekki áætlað, veit jeg að alt hefir samt gengið vel. Oft, þegar jeg fer í stól til að halda ræðu, og þessi hugsun gagntekur mig, að Heilagur Andi ætlar að gera það alt saman, fyllir slík gleði hjarta mitt, að jeg gæti hrópað af lireinum fögnuði. (Framh). Kristján X. Hið óvænta fráfall Friðriks konungs áttunda, langt frá sínu eigin landi og með svo sviplegum hætti hefir eflaust vakið hluttekningu og sorg hjá öllum þegnum hans. Vjer notum tækifærið til þess að benda trúuðum mönnum á það, að þeir áttu ekki að gleyma að biðja fyrir konungi sínum. Guðs orð segir í Páls i. pistil til Tímóteusar, 2. kap.: »Fyrst af öllu áminni jegþáum, að fram fari ákall, bænir, fyrirbænir og þakkargerðir fyrir öllum mönnum, fyrir konungum og öllum þeím, sem hátt eru settir, til þess að vjer lifum friðsamlegu og rólegu lífi í allri guðhræðslu og siðprýði.« Það á að veia ljúf skylda að biðja fýrir hinum nýja konungi, að ■Drotni þóknist að láta hann vera Iöndum sínum báð- um til verulegrar blessunar. Vjer eigum Iíka að biðja fyrir ráðherranum hjer á íslandi og öllum þeim, sem »hátt eru settir.« Á þann hátt geta kristnir menn haft ómetanleg áhrif á þjóð- mál, án þess að lenda í stæium við náungann.

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.