Norðurljósið


Norðurljósið - 01.10.1919, Síða 1

Norðurljósið - 01.10.1919, Síða 1
-H MANAÐARLEGT HEIMILISBLAÐ b- VI. árg. I Október 1919. 10. Hin síðasta niðurstaða Darwins. Nokkrir íslendingar eru svo langt á eftir tímanum, að þeir trúa enn þá á framþróunarkenningu Charles Darvins. »Norðurljósið« mintist stuttlega á vitnis- burð þessa mikilmennis um Jesúm Krist, eftir að hann hafði sannfærst um villu sína, (IV. árg. 94 bls.) Síð- anhefirritstjóranumborist ýtarlegrifrásögnum hin miklu skoðanaskifti Darwins, sem lesendur hefðu eflaust gagn af að athuga, ekki síst þeir ungu menn, sem eitthvað hafa lesið í úreltum bókum, um gildi þessarar heims- frægu kenningar. Samkvæmt þessari kenningu átti alt jarðneskt líf upptök sín í einni frumögn, og alt líf hefir »fram- þróast« af þeirri ögn. f*að hefir tekið á sig þær fjölbreyttu myndir, sem nú sjást, vegna hinna ýmsu .kringumstæða í baráttunni fyrir tilverunni. Darwin fann ekki þessa kenningu upp sjálfur. Árin 700 — 300 fyrir Krists burð voru heimspekingarnir komnir jafn langt á þeirri braut og Darwin sjálfur, en þeir útskýrðu ekki kenninguna eins Ijóst og kröft- uglega og hann, að minsta kosti ekki í þeim bókum sem nú eru til eftir þá. Platon var þó ekki fylgis- maður þessarar kenningar. Hann trúði því að apar voru komnir af mönnum. Hinir heimspekingarnir og Darwin hjeldu því fram að menn sjeu komnir af öpum. Nútíðar vísindamenn hafa hjer um bil allir sann- færst um að kenning Darwins um framþróun sje ekki rjett. Nokkrir fáfróðir vantrúarmenn hjer á landi stagast á henni enn þá, en menn verða að virða þeim til vorkunnar, að »vísindi« þeirra eru 20 til 30 ára gömul. Og þar sem þess konar vfsindi eru altaf að »framþróast« og taka stakkaskiftum, — það sem er talið »sannað« í dag er auglýst sem villa á morgun, — er erfitt fyrir þá að fylgjast með þeim. Sonur Darwins skýrir frá því, í æfisögu föður síns, ®ð hinn mikli náttúrufræðingur eyddi miklum tíma a eldri árum sínum, í það að reykja vindlinga og ^sa skáldsögur. Hann var fyrir löngu búinn að ^issa alla tilfinningu fyrir 'fögru listunum og hafði enga unun af kveðskap, söng eða málverkum. Á þetta stig hafði hin kalda, dauða vantrú hans leitt hann. En sem betur fór, kom sá tími er hann sá að sjer. Hann slepti skáldsögunum og fór að lesa biblí- una, — bókina, sem flytur ummæli Krists um að »Skaparinn frá upphafi gerði þau karl og konu«, (Matt. 19. 4.; Mark. 10. 6.), og skýrir frá í fyrstu bókinni hvernig hann gerði það! Pegar lávarðsfrú Hope, sem var í ætt við hann, kom inn til hans einu sinni, sat hann uppi í rúm- inu og hjelt á biblíu. »Hvað ertu að Iesa nú?« spurði hún. »Brjefið til Hebrea,« svaraði Darwin. »Enn þá brjefið til Hebrea. Jeg kalla það »konunglegu bók- ina.« Pá benti hann henni á nokkra ritningarstaði í þessu brjefi, sem höfðu sjerstaklega hrifið hann, og talaði nokkur orð um þá. Brjefið til Hebrea byrjar með þeirri sta^hæfing, að Guð gerði heimana fyrir Son sinn, fesúm Krist, að iiann »hafi i upphafi grundvallað jörðina, og himnarnir sjeu verk handa hans«! Hvað var nú orðið úr framþróunarkenningu Darwins? Lávarðsfrúin mintist á hinar öfgakendu skoðanir hans um sköpunarsöguna og hvernig hann hefði farið með fyrstu kapítulana í fyrstu Mósebókinni. Darwin leið auðsjáanlega illa er hann heyrði þetta. Hendur hans skulfu og angistarsvipur kom á andlit hans. Pá sagði hann: »Jeg var ungur maður þá með óþroskuðum hug- myndum. Jeg kastaði fram spurningum og uppá- stunguni, en var alla tíð í óvissu. En mjer til mik- illar undrunar tóku menn þessi heilabrot mín afar- geist og gerðu sjer trúarkerfi úr þeim!« Eftir nokkurra augnablika þögn snjeri hann sjer frá þessu umtalsefni, sem hrygði hann svo mjög, og fór að tala um »heilagleika Guðs« og »þessa tign- arlegu bók«, — hann horfði á biblíuna, sem hann hjelt á í hendinni. Þá sagði hann alt í einu: ♦Lávarðsfrú, það er hús í garði mínum, sem hjer

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.