Norðurljósið


Norðurljósið - 01.10.1919, Page 2

Norðurljósið - 01.10.1919, Page 2
74 NORÐURLJÓSIÐ. um bil 30 manns geta komist inn í. Rarna er það!« og hann benti gegn um opna gluggann. »Mig lang- ar svo mikið að biðja þig að halda samkomu þar. Jeg veit að þú lest biblíuna fyrir fólki á sveitarheim- ilunum. Seinni partinn á morgun gæti alt heimilis- fólkið og nokkrir nábúar komið saman. Viltu ekki tala fyrir þeim?« »Um hvað á jeg að tala?« spurði lávarðsfrúin, til þess að vera fullviss um ætlun hans. »Um Jesúm Krist,« sagði hann skýrt og hátt, og bætti vió í læari róm, »og hjálpræði hans. Er það ekki besta umtalsefnið? Og þá ætla jeg að biðja þig að syngja með þeim.« Lávarðsfrúin bætti við, er hún skýrði frá þessu: »Jeg gleymi aldrei hvernig andlit hafts ljómaði, með- an hann talaði um þetta.« Rá sagði Darwin: »Ef þú heldur samkomuna klukkan þrjú, þá skal jeg láta gluggann standa op- inn, og þú mátt vera viss um að jeg skal syngja með /« Hvað segja hinir ungu, íslensku Darwinstrúarmenn um þetta? Hinn mikli hugvitsmaður finnur loksins svölun sálu sinni í hinni gömlu, fyrirlitnu bók, biblí- unni. Hann drekkur inn í sálu sína hin innblásnu orð um dýrð Jesú Krists, hins eingetna sonar Guðs, skapara himins og jarðar. Hann finnur gleði sína allrahelst í því brjefi postulans, sem heldur stöðugt fram blóði Jesú Krists sem hinu einasta hjálpræð- ismeðali! »Jesús Kristur og hjálpræði hans« er hið besta umtalsefni að flytja fyrir mönnum, betra en »framþróun«, betra en frumagnir og apar betra en alt annað. Og öldungurinn, sem áður hafði engar mætur á söng, vildi nú með gleði syngja vakninga- sálma með þjónustufólki sínu! Jeg endurtek hjer niðurlagsorð fyrri greinar minn- ar um Darwin: Sumir ungir menn hafa yfirgefið biblíu sína vegna þess, að þeir hafa fylgt kenningum Darwins. Ef þeir eru hreinskilnir, þá ættu þeir að vera jafn fúsir á að fylgja leiðbeiningum hans, er hann bendir til Krists. Ef þeir gera það ekki, af einlægu hjarta, þá hafa þeir sannað, að alt tal þeirra um hreinskilni og sann- leiksást er ekki annað en tóm orð. Kæri vinur, þú sem enn ert sálarsjúkur af. vantrú, vertu ekki hræsnari, en snúðu þjer til Jesú Krists án tafar, og lifðu honum, sem frelsara og Drotni þínum! T BARÁTTA ALLANS. Saga eftir Alice Gray [Þýdd úr ensku.] [Framhald.] Allan fanst líða löng stund þangað til Churchill sneri sjer að honum aftur. Þegar hann gerði það, lagði hann hendurnar á axlir hans, leit framan í hann og sagði: »Allan Haywood, síðastliðinn mánudag kallaði jeg þig raggeit. Jeg held það sje fyrsta lýgin, sem jeg hefi talað á æfi minni. En í dag segi jeg þjer, eins og jeg skal segja öllum, sem þekkja þig, að þú ert hinn hugprúðasti maður, sem jeg hefi nokk- urntíma sjeð.« »Rakka þjer fyrir,« sagði Allan innilega. »Retta bætir heilsu mina betur en öll læknismeðöl í land- inu hefðu getað gert.« Og það virtist svo í raun og veru, því þegar Mrs. Leonard kom inn í herbergi hans skömmu eft- ir að Churchill fór, tók hún undir eins eftir breyt- ingu til hins betra á andliti hans. »F*ú hefir haft gott af heimsókn Churchills,« sagði hún, »það sjest strax og litið er á þig. Hvað hefir hann gert, sem hefir hrest þig svona mikið?« »Trúað mjer; það er alt og sumt, en það er líka nóg,« svaraði Allan. »Ef þeir vildu allir gera það, þangað til mjer gefst kostur á að verja mig, gæti jeg borið þennan sjúkdóm með þolinmæði.« En þeir gerðu það ekki allir, og Allan var Iátinn finna það dag eftir dag, að jafnvel bestu vinir hans efuðust, að minsta kosti, um sakleysi hans. Laur- ence Bronson, Frank Austin og nokkrir fleiri komu til hans, og voru þeir að vísu góðir og vingjarn- legir við hann, en enginn þeirra mintist neitt á mót- læti hans, og Allan, sem þóttist viss um, að ef þeir hefðu trúað honum, mundu þeir hafa styrkt hann og huggað með hluttekningu sinni, var jafn þögult um það og þeir. Annað atvik hafði líka komið fyrir, sem sýndist bæta við enn þá einni sönnun um sekt hans. Regar dr. Drayton kom heim frá prestssetrinu á mánudags- kvöldið, sendi hann eftir grísku lesbók Allans, til að komast eftir því, hvort það væri satt, sam hann hafði sagt Mr. Leonard, að í bókinni væru nokkur blöð, sem hann hafði skrifað á eitthvað eftir sjálfan sig. Auðvitað fann hann þau ekki, því að Churchill hafði tekið þau, eftir beiðni Allans í brjef- inu. Piltarnir í bekk hans voru kallaðir inn í upp- lestrarstofuna, og hver um sig var spurður, hvort hann vissi nokkuð um þessi blöð. Churchill kann- aðist skjótt við að hann hefði þau undir höndum, og vonaði að hann með því gæti komiö í veg fyrir frekari spurningar, en doktorinn var ekki ánægður með þaÓ. »Funduð þjer þau í þessari bók?« spurði hann, og tók grísku lesbókina af borðinu við hlið sjer. »Nei, herra minn. Allan sagði mjer í brjefi sínu að þau væru þar, en jeg fann þau á gólfinu undir skrifborði hans. F*au hljóta að hafa dottið niður.« »Hm!« sagði doktorínn. »Ungu menn, getur nokkur ykkar varpað Ijósi yfir þennan ömurlega at- burð? Bronson, þjer eruð mjög samrýndur Hay- wood. Getið þjer nokkuð hjálpað mjer, getið þjer fullvissað mig um, að þjer bafið ekkert tilefni til að gruna hann fyrir, annaó en atvik það sem kom fyrir í kenslusalnum?« Bronson hikaði. Churchill leit til hans skjótt og óþolinmóðlega, og til allrar óhamingju tók doktor- inn eftir því. »Jeg vil engin leynisamtök hafa hjer,« hrópaði hann reiðilega. »Jeg verð að fá að vita sannleik- ann í þessu máli. Bronson, svarið þjer spurningU minni: Já eða nei.« Bronson var í vandræðum. Honum stóð fyrir

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.