Norðurljósið


Norðurljósið - 01.10.1919, Síða 4

Norðurljósið - 01.10.1919, Síða 4
76 NORÐURLJÓSIÐ. glæp, til að verða bilt við skyndilegt ávarp af jafn svipljótum manni og piltur sá var, sem nú gekk fram fyrir Bentley. Peir þektu hann báðir vel, þvf hann hafði verið fjósadrengur á Drayton Hali, en verið vísað burt vegna óráðvendni fyrir nokkrum vikum. »Hvað viltu mjer, Ben?« spurði Bentley hvat- skeytislega; »jeg þarf að flýta mjer.« »Ekki var svo að sjá,« svaraði Ben, og hló lágt og ógeðslega. »Jeg hugsaði þjer lægi ekkert á. Liggur þjer nokkuð þungt á hjarta, Mr. Bentley?« Bentley roðnaði af geðshræringu; svo fölnaði hann aftur, ef til vill af ótta. Hann svaraði æstur: »Rað er best fyrir þig að gæta þín, Ben Thomson, ann- ars getur svo farið, að þjer verði stefnt fyrir þjófn- að.« Pilturinn hló aftur. enn ósvífnislegar en áður; og Churchill óskaði af öllu hjarta, að hann væri kom- inn úr felustað sínum. ».Getur verið að mjer verði stefnt; getur líka ver- ið að það verði ekki. Það er margt verra aðhafst í heiminum, Mr. Bentley, en að taka ofurlítið af höfrum frá ríkum manni. Við vitum allir hvað kom- ið hefir fyrir í Drayton Hall skóla, og sumir vita meira en sumir. Einn af nemendunum liggur dauð- veikur, herra minn, ákærður fyrir afbrot, sem annar hefir framið. Mjer þætti gaman að vita, hvernig þeim náunga er innanbrjósts, Mr. Bentley!« Bentley fölnaði við hið ógeðslega hornauga, sem pilturinn gaf honum, og hann svaraði reiðulegar en áður: »Hvað varðar mig um, hvað þjer þætti gam- an að vita? Leyf mjer að komast fram hjá þjer; jeg vil ekki slæpast hjer Iengur.« Að svo mæltu reyndi hann að ryðjast fram hjá Ben, en hann stpð fastur fyrir honum á götunni. »Ef til vill varðar yður meira um þetía,« sagði hann og hampaði framan í Bentley samanbögluðu blaði. Bentley rak upp hljóð, stökk að Ben og ætl- aði að hrifsa blaðið af honum, en mótstöðumaður hans var viðbragðsskjótari en hann. »Nei, nei, herra minn, ekki enn þá,« sagði Ben ertnislega, og hjelt því fyrir aftan sig. En hann þekti ekki óvin sinn. í einni svipan rjeðist Bentley á hann, varpaði honum til jarðar, og þreif blaðið úr hendi hans. Nú var Churchill nóg boðið; honum var ómögu- legt að standa lengur sem njósnarmaður, svo hann kom fram úr fylgsni sínu, og staðnæmdist hjá þeim á götunni, en hvorugur jreirra tók eftir honum. »Hefir þú nokkur fleiri blöð?« spurði Bentley íágt en grimmúðlega. Ekki hafði hann neina hótun í frammi, en ragmennið, sem lá undir honum, ótta- sleginn af hinni skyndilegu árás, þurfti ekki meira en að líta framan í hann, til að gugna alveg af hræðslu eins og barn. »Já, já,« stundi Ben. »Lofið mjer að komast á fætur, þá skal jeg segja yður nokkuð. Jeg ætlaði bara að hafa svolítið upp úr þeim, Mr. Bentley. Ef þjer viljið gefa mjer einn doliar, skal jeg láta þau af hendi. Jeg fann þau hjerna á götunrii daginn, sem doktorinn gerði allan gauraganginn.* Bentley mundi vel eftir því, að hann hafði þá farið út til að eyðileggja blaðaböggulinn, en þegar hann kom að tjörninni, sem hann ætlaði að sökkva honum í, var hann horfinn. Hann mundi hina kveljandi hræðslu sem gagntók hann, og hina mikla árangurslausa Ieit, og hvernig hann svo smátt og smátt varð viss um, að hann fengi þau aldrei framar. En Ben vissi ekkert um þetta. Hann sá ekkert nema föla, skuggalega andlitið uppi yfir sjer; heyrði ekkert nema að spurt var í æðislegum rómi: »Hvar eru hin blöðin ?« Hann skalf af hræðslu. »Pau eru heima. Ó, Mr. Bentley, lofið mjer að standa upp. Jeg skal færa yður þau öll.« Bentley var reyndar viss um, að Ben mundi ekki svíkja þetta loforð, því fyrirlitlegi ragmenskusvipur- inn sýndi, að hann mundi ekki þora það. En til frekari fullvissu hjet hann honum því eina, sem hann vissi að þessi ágjarni piltgarmur mundi gang- ast fyrir. »Farðu þá og sæktu þau undir eins. Ef þú kem- ur með þau hingað til mín ósnert,- skal jeg gefa þjer tvo dollara hjerna sem við stöndum. Viltu lofa jDessu?« »Pví lofa jeg.« Bentley slepti takinu á Ben, stóð upp og leyfði honum að standa upp líka. »Farðu nú; jeg ætla að bíða þangað til þú kem- ur aftur. Vertu fIjótur,« sagði hann og horfði á eftir Ben með óumræðilegri fyrirlitningu þegar hann læddist burt. En voru þeir ekki hvor sem annar þegar öllu var á botninn hvolft? Annar var að vísu karlmann- legur, sterkur og fríður sýnum; hinn var lítill vexti, þreklaus og svipljótur, en báðir höfðu sama lága og auðvirðilega hugsunarháttinn. »Pað er ekki nema eðlilegt þó þú horfir á eftir vesalmenni þessu með fyrirlitningarsvip, Arthur Bent- ley, en hvernig heldur þú að piltarnir í Drayton Hall skóla líti á þig?« Pó Bentley hefði heyrt rödd úr lofti ofan, hefði hann ekki getað orðið hræddari. Hann hjelt sig vera aleinan, en er hann heyrði til sín talað, sneri .hann sjer við, og sá Churchill standa rjett við hlið- 'na á sjer. Pað var ekkert sagt meira, og eitt augna- blik stóðu piltarnir og störðu hvor á annan. Ein- beitt fyrirætlan skein út úr svip annars, en í svip hins megnasta örvænting. A næsta augnabliki rjeðst Bentley á Churchill eins og tígrisdýr. En nú var það ekki hinn huglausi Ben, sem hann átti í höggi við. Churchill var nærri eins sterkur og hann, og svo var hann óþreyttur, en Bentley var hálf uppgefinn af áreynslunni við að halda Ben í skefjum. Peir duttu báðir í einu, en Churchill varð ofan á. »Bentley,« sagði hann, og reyndi af öllum mætti að tala rólega. »Lofaðu mjer því við drengskap þinn, að láta Ben fá mjer þessi blöð; þá skal jeg lofa þjer að standa upp. Ef þú gerir það ekki, skalt þú liggja hjer, þangað til jeg get fengið hjálp. Vilt þú lofa þessu?« »Nei,« svaraði Bentley hátt og hranalega. (Framhald),

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.