Norðurljósið


Norðurljósið - 01.09.1959, Blaðsíða 3

Norðurljósið - 01.09.1959, Blaðsíða 3
NORÐURLJÓSIÐ 35 trúar á Krist — hve margt veit hann einn — en meðal þess er núverandi ritstj. og kona hans. Auk þess gaf hann út um tíma „Vort daglega brauð“, blað til að örva biblíulestur með uppbyggilegum athugasemd- um við ritningarkafla. „Boðberann“, sem kom út veturinn 1918—1919, og á dönsku „Budbringeren“, sem var blað handa starfsfólki pósts og síma í Dan- mörku og Noregi, gefið út á fyrstu starfsárum hans. Hann gaf líka út fjölda bóka og smárita auk þessara blaða. Samtímis þessu hélt hann áfram að rita bæk- ur á ensku, er sumar hafa náð allmikilli útbreiðslu. Margt er geymt á enskri tungu af fögrum sálmum og andlegum ljóðum, og jók Arthur þar nokkru við. Hann orti nokkuð framan af ævi, þótt fátt hafi verið prentað af því. Hann þýddi nokkra enska sálma á íslenzka tungu og hefði snúið fleirum, ef eigi hefðu komið til greina strangar kröfur um stuðla, sem íslenzkan gerir til fagurra ljóða eða vel ortra. En er kvöldsett fór að verða á starfsdegi hans, hóf hann að snúa Passíusálmum Elallgríms á enska tungu og fannst það köllun frá Drottni. Hann lauk því verki, sömuleiðis þýðingu á minningarkvæði Matthíasar um Hallgrím og „Allt eins og blómstrið eina.“ En þá var merkum áfanga náð, og starfsdagur hans á enda runninn. Árangur starfs hans? Hvaða maður getur dæmt um hann? Jafnvel þótt menn dæmi, þá er Drottinn sá, er kveður upp hinn endanlega dóm. En ótrúlegt mun sumum jaykja, ef Arthur Gook verður ekki einn af þeim, er fá að heyra orðin: „Gott, þú góði og trúi þjónn. Gakk inn til fagnaðar Herra þíns.“ Arthur Gook var tvíkvæntur. Árið 1907 gekk hann að eiga heitmey sína Elorence Palmer. Lifa fimm börn þeirra, en eitt fæddist andvana. Kona hans lézt árið 1948. Árið 1950 kvæntist hann eftir- lifandi konu sinni, Kristínu Steinsdóttur, og áttu þau eigi barna. Sama árið, sem þau Kristín giftust, lögðu þau af stað í langferð kringum hnöttinn. Höfðu honum borizt áður víða að ýmsar beiðnir um heimsókn, ef henni yrði komið við. Prédikaði hann orðið, hvar sem tækifæri gafst og flutti víða fyrirlestra um ís- land, meðal annars í útvarp. Ferðalög voru honum ekkert nýnæmi. Hann ferð- aðist mikið hér á landi, einkurn framan af starfs- tíma sínum, þá mest á hestbaki. Síðar fékk hann bif- hjól og bifreið seinast. Mun hann hafa heimsótt flestar sýslur landsins. Hélt hann víða samkomur og sinnti einnig lækningum, er hann var í þeim ferð- um. Til Bretlands fór hann margsinnis, ferðaðist fram og aftur um England og Skotland, fór og enda til írlands. Flutti hann á ferðum þessum aragrúa af erindum um ísland og sýndi einnig skuggamyndir liéðan. Um páskaleytið 1954 veiktist hann af lungna- bólgu, varð mjög þungt haldinn og náði sér aldrei eftir það. Árið eftir veiktist hann aftur, og varð þá ljóst, að hann yrði að leita þangað, er vetur væri skemmri og loftslag hlýrra en hér. Fóru þau hjónin til Suður-Englands og dvöldust þar á ýmsum stöð- um, unz Guð gaf þeim fast heimili í Hailsham. Frá því hann kom til Englands þangað til skömmu fyrir andlát sitt, prédikaði hann orð Drott- ins og flutti erindi um ísland hvar sem tækifæri bauðst, ef kraftar leyfðu. En með viljafestu þeirri og seiglu, sem einkenndu hann, var þverrandi orku mest beint að markinu: þýðingu Passíusálmanna. Seint í maí s.l. veiktist hann og var talið, að hann mundi þurfa uppskurð, sem ekki varð þó af. Drott- inn tók hann heim. Bæði í þeim veikindum sem í öðrum hjúkraði frú Kristín manni sínum af stök- ustu alúð, eins og hún áður hafði reynzt honum mjög hjálpsamur ferðafélagi, jafnt í ferðinni miklu sem í öðrum. Vafalaust hafði hún vænzt þess að mega njóta samfylgdar manns síns lengi ennþá, en Drottinn ræður dvalartíma og brottferðartíma barnanna sinna. Munu þeir allir, sem „Norðurlj.“ lesa og fleiri þó, senda henni ásamt því hugheilar og hjartanlegar samúðarkveðjur og börnum hans einnig. „Sjálfur Drottinn huggi hjörtu yðar og styrki." Megi það rætast þeim til handa, er syrgja hann. Arthur Gook var mikill vexti, fallegur maður og glæsilegur að vallarsýn. Gáfur hans voru miklar og fjölhæfar og hann var víðlesinn maður. Þekking hans og skilningur á ritningunni var með ágætum. Bænamaður var hann, sem oft fékk dýrleg bænasvör. Hann var vel máli farinn, prédikari góður og gædd- ur mikilli söngrödd. Honum var sérsíakt yndi, miklu fremur en ljúf skylda, að mæta með öðrum börnum Guðs við borð Drottins og minnast dauða hans á hinn óbrotna hátt, sem Drottinn Jesús hafði sjálfur gert, er hann stofnsetti kvöldmáltíð sína. Þar mætti hann með börnum Guðs síðasta sunnudaginn, áður en hann lagðist banaleguna. Las hann þá úr Jobsbók 33. kap., síðari hluta kapítulans, og úr 19. kap. 23.-27. vers. Honum var ljúft að lesa þann kafla og leggja út af orðunum: „Ég veit, að lausnari minn lifir.“ Kæri Arthur! Þú andlegi faðir og fræðari minn og margra annarra, þú starfsbróðir minn og húsbóndi í meira en fjórðung aldar, nii þarfnast þti ekki leng- ur þessarar minningar. Augu þín hafa litið lausnara þinn, séð konung þinn í ljóma sínum. Guði séu þakkir fyrir líf þitt og starf. Hans er dýrðin fyrir allt, sem hann lét þig gera með fyrirmynd þinni, kenningu þinni og framkvæmdum. — S. G. J. Heimilisfang frú Kristínar Gook er: „Mizpah" Hawthylands Road, Hailsham, Sussex, England.

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.