Heimskringla - 30.06.1887, Síða 4
Winipcg.
KIRKJUÞINGIÐ.
Eins og frá var skýrt í síðasta blaði
var kirkjupingið sett á priðjudaginn 21.
júní. Áður en fundur var settur var
guðsþjónusta haldin og prjedikaði sjera
Jón' Bjarnason út af 2. Mós. 14., 19. og
20. v.
Epti/ að formaður kirkjufjel., sjera
J. B., hafði sett fundinn, æskti hann
eptir að erindrekai safnaðanna fram
legðu kjörbrjef sín, og tilnefndi 3 menn
í nefnd til að veita kjörbrjefunum mót-
tóku og rannsaka pau. í nefndinni voru
Friðjón Friðriksson, S. J. Jóhannesson
og Þorlákur G. Jónsson. Eptir litla stund
skýrðu peir frá, að auk prestanna og
herra Jakobs • Líudal, fjelagsskrifara,
settu sæti á fundinum 23 fuiltrúar frá
11 söfnutSum. (Nöfn fulltrúa voru í
síðasta blaði, og eru rjett að öðru leyti
en þvi, að fulltrúi Littli Salt safnaðar,
var Guðmundur Jónsson, en ekki Ólafs-
son). Þeir skýrðu og frá n5 fulltrúar
tveggja safnaða í Nýja íslandi væru
ókomnir.
Kl. 2,30 e. m. kom fundur saman
aptur. Voru þá kosnir aðstoðar skrif-
arar kirkjufjelagsins, á þessum ársfundi,
Jón Ólafsson og Pálmi Hjálmarsson.
Forseti kirkjufjelagsins las upp skýrslu
um ástandog starfsemifjelagsinsfránæsta
kirkjuþingi til þessa. Rúmleysis vegna
verður yfirlit þetta ekki birt á prenti í
þessu blaði, kemur líka út i Sameining-
unni. Að eins skal þess getitS að þau
helztu atriði, er hann tók fram, voru:
Sunnadagaskóla-málitS, presta-málið, fjár-
hagur kirkjublatSsins og fjárhagur kirkju-
fjelagsins, kaup guðsorðabóka, bind-
indis-máli5, breyting safuaSarskipana,
kirkjuleysi safnaðanna.—Prestmál safn-
aðauna áhrærandi gat hann þess, að
enn væru að eins 2 prestar í fjelaginu,
en að tilraun hefði þó verið gerð á
árinu, að bæta úr þeim skorti. „Fyr-
ir tillögur mínar sendu eöfnuðirnir i
Argyle hjer vestur í fylkinu einum
mikilsmetnum presti á íslandi, prófasti
sjera Magnúsi Andrjessyni á Gilsbakka,
köllunarbrjef um nýársleytið....
En því miður voru ástæður hans svo,
þá er hann vrS komu köllunarbrjefsins
fór að virða þær vandlega fyrir sjer,
a5 hann sá sjer eigi fært að rífa sig
upp að heiman.—Að því er presta-mál
safnaðanna í nýja íslandi snertir, sem
ársfandurinn í fyrra út af áskoran til
hans frá þeim söfnuðum fól formanni
í hendur, þá reit jeg í fyrra sumar
forstöðumanni prestaskólans í Rvik, sjera
Helga Hálfdánarsyni, og bað hann í
mínu nafni og kirkjufjelasgins, að reyna
til að útvega oss heima á íslandi hæfan
mann, helzt ungan og einhleypan, til
þe»s að koma vestur ög takast á hend-
ur prestsskap fyrir N.lsl. gegn ákveðn-
um árslaunum, sem söfnuðir þeirra
höfðu skuldbundið sig til að veita
presti þeim, er þeim kynni að verða
ráðinn. Síðan fól jeg • ö'Srum manni
heims, sjera Jens Pálssyni að Útskál-
um, þetta sama áhendur í sambandi við
sjera Helga. Og fjekk jeg frá þeim
báðum loforð um að þeir skyldu í
þessu efni gera það, sem þeim væri
unnt, en þess var þó um leið geti5, að
naumast myndi á þessu ári nokkurt
prestsefni að fá N.ísl. til handa, og
líklega ekki fyrr en á næsta sumri, þá
er þeir, sem þá eiga að Ijúka sjer af
á prestaskólanum, væri útskrifaðir. En
í vor kom tilboð frá presti einum á
íslandi, sjera Magnúsi Skaftasen, til
N.ísl. um að koma til þeirra í sumar
og takast préstsskap á hendur fyrir þá,
og ljet bróðir hans, sem á heima í
þessu landi, mig vita um þetta og
beiddist jafnframt álits míns þvi við-
víkjandi.. Jeg gaf það svar, að ef sjera
Magnús hefði hug á a5 koma í þessu
skyni vestur, þá skyldi hann snúa sjer
til áður nefndra manna á íslandi, sem
umboð hefðu frá mjer, til þess að ráða
N.ísl. prest, og myndu þeir þá rátSa
hann ef þeir hef5u eigi ráðið annan
mann áður, svo framarlega sem þeir
teldi þennan prest hafa þá eiginlegleika,
sem jeg frá upphafi hafði tekið fram
við þá, að sá þyrfti a5 liafa, er þetta
starf væri á hendur falið, og slíkri
ráðning yrði þá eigi haggað af kirkj-
fjelaginu. Seinna fjekk jeg brjef frá
sjera M. sjálfum um það a5 hann
hugsaði til vesturfarar. N.ísl. ljetu mig
líka vita að þeir vildu sæta tilboði hans.
Ef þeir sjera Helgi hafa eigi verið bún-
ir að útvega neinn prest áður en sjera
M. sneri sjer til þeirra, sem jeg vona
nann hafi gert samkvæmt fyrirmælum
mínum, og þeir hafa haft þá skoðun
á honum, að hann væri slíkur maður
sem hjer þyrfti á að halda, þá býzt
jeg við að hann komi í sumar, og má
þá álítast ráðinn af mjer í kirkjufjel.
nafni sem prestur í Nýja íslandi ”.—Þá
gat hann og þess, að S. Níels þorláks-
son væri væntanlegur prestur Minne-
sota-manna, og muudi koma í sumar,
og þá jafnframt von um að söfnuðirnir
þar gangi í kirkjufjelagið.
Sú breyting á safnaðaskipun hefur
orðið, að Tungár söfnuður og Austur-
Sandhæða hafa sameinast, og er þessi
nýji söfnuður nefndur Vídalinssöfnvður.
Nýr söfnuður hefur myndast umhverfis
Hallson og.ber nafnið Hallsonsöfnu&ur. 'í
Enn fremur hefur myndast söfnuður upp
á Pembinafjöllum. Allir þessir söfnuðir
hafa gengið í kirkjufjelagið.
Hin helztu mál, sem rædd voru á
þinginu voru: 1. Ilelgidagahald, 2.
fermingin, 3. aukalög, 4. Sameiningin,
og barnablað, 5. fjárhagsmál fjelagsins,
6., sunnudagaskólinn, 7. bindindi, 8., á-
varp til fríkirkjumanna á íslandi, 9.,
kirkjugarðsmálið, og 10., barnauppeldi.
Fermingarmálinu var eptir nokkrar
umræ5ur vísað til 5 manna nefndar. í
lienni voru prestarnir iiáðir, Þ. G. Jóns-
son, Friðb. Björnsson og M. Pálsson.
Eptirfylgjandi er nefndarálitið, er sam-
þykkt var í einu hljóði:
Kirkjuþingið leggur söfnuðum kirkju-
fjelagsins fermingarspurzmálií á hjarta
eins og hið mesta alvörumál fyrir nútíð-
arkristni vora. Það vill að söfnuKirnir
varni því, að nokkur sje fermdur að eins
fyrir þá sök, að fermingin er almennur
siður í kirkju vorri. Það vill, að eng-
inn sje fermdur fyr en allar líkur eru
fengnar fyrir þvi, að evangelium kristin-
dómsins sje orSið rótfast í hjarta hans,
og hann sje með.eigin persónulegri sann
færing ákveðinn í því að trúa og lifa eins
og sannkristinn maður þaðan í frá. Það
vill ekki, að ferming sje bundin við
neinn ákveðinn aldur, en telur þó ráð-
legra a5 ungmenni sje almennt fermd
eldri en á íslandi er tí5kanlegt. Það
leggur til, að yfir höfuð sje aldrei ætlazt
til af prestum fjelagsins að þeir fermi
ungmenni fyr en þau hafa að minnsta
kosti um eins árs tima gengið reglulega
á sunnudagaskóla. Með tilliti til krist-
indómsfræðslu vill það, að alvarlega sje
varað vi5 því í söfnuðunum, að aðal-
áherzla sje lögð á utanbókarkunnáttu, en
jafnframt að brýnt sje fyrir mönnum, að
allt sje undir því komið, að námsefnið
verði andleg eign unglingsins.
Helgidagahaldsmálinu var vísað til
3 manna nefndar, og voru í henni: Ól-
afur Ólafsson, sjera Friðrik og Friðjón
Friðriksson. Eptirfylgjandi er nefndar-
álitið, er var samþykkt.
1. Með helgidagahald skulu söfnuð-
irnir haga sjer eptir fyrirmælum borgara-
legra laga.
2. Auk hinna lögákveðnu helgidaga
ráðum vjer Tcirkjuþinginu til að álíta
eptirfylgjandi daga sem helgi—eða
messu-daga: Jóladag, hinn annan dag 1
hinuin 3 stórhátíðum, skírdag, föstudag
langa og uppstigningardag. Þó sje hverj-
um söfnuði heimilt að gera þær ákvarð-
anir, er bezt eiga við.
3. Þó skoðar ekki kirkjuþingið þá
daga, sem nefndir eru, nema fyrsta dag
jóla, hvíldardaga, á sama hátt og hina lög-
boðnu helgidaga, nema me5an guðs-
þjónusta fer fram í söfnuíunum. Ann-
ars skal hverjum manni heimilt að verja
dögum þessum samkvæmt sannfæringu
sinni, svo framarlega að hann ekki
hneyksli sína sannkristnu bræður.
Bindindismálið áhrærandi var sam-
þykkt, að kirkjuþingrS lýsti því yfir a5
það væri samþykkt ályktunum þeim, er
gerðar voru og samþykktar í einu hljóði
á ársfundi fjelagsins í fyrra.
Ávarp til fríkirkjumanna á íslandi
var samþykki i einu hljóði. í því er lát-
i5 í ljósi, að aðskilnaður ríkis og kirkju
á íslandi mundi verða til eflingar kristi-
legu trúarlifi,að kirkjuþingið lýsi ánægju
sinni yfir tilraunum utanþjóðkirkju-
manna í Reyðarfirði í þá átt, samgleðj-
ist metS þeim af því, er þeim nú þegar
hefur orðið ágengt, og óskar þeim og
kirkjumálum þeirra blessunarríkrar fram
tíðar.
í kirkjugarðsmálinu var samþykkt
að söfnuðirnir ikyldu láta sjer annt um
að eignast grafreiti og kosta kapps um
að hafa þá snotra og vel útlítandi.
í sunnudagaskólamálinu var sam-
þykkt, að prentuð skyldu eyðublöð, er
send skyldu kennurum í hinum ýmsu
söfnuðum, með spurningum vi5víkjandi
tölu nemanda, aldurs þeirra o. s. frv.
Blaömálið álirærandi var samþykkt,
að Sameiningin hjeldi áfram, og að prest-
unum sje falið á hendur að sjá um stærð
þess og stefnu framvegis. Barnablaðs-
málið var og falið á hendur útgáfunefnd
uSam.”, er ræður hvað gert verður 1 því
rnáli. f
Barnauppeldismálinu var frestað til
næsta kirkjuþings.
Eptir nokkrar umræður í málinu um
kirkjuaga var samþykkt, að þingið sjái
ekki ástæður til að gera neina ákvörSun
um klrkjuaganú, því að bendingaA því
efni sje gefnar í frumvarpi því til safn-
aðarlaga, er samþykkt hefur verið að
láta prenta.
Það var samþykkt, að þar eð grund-
vallarlaganefndin, er kosin var á kirkju-
þinginu í fyrra, hefði enn ekki lokið
starfa sinum að öllu leyti, þá álítist hún
enn standandi nefnd.
Samþykkt var að gefa út í bæklings-
formi fundarreglur á kostnað kirkjufje-
lagsins og selja með sanngjörnu verði.
Embættismenn fjelagsins voru allir
endurkosnir. Varaembættismenn þess
þetta ár eru: sjera F. Bergmann varafor-
seti (endurk.), J. Jónsson, Pembina, vara
fjeliirðir og Fr. Fri5riksson varaskrifari.
í lítgáfunefnd „Sam.” eru: prestarn-
arnir báðir, P. S. Bardal, M. Pálsson og
S. J. Jóhannesson.
Það var samþykkflað prenta fundar-
gerninginn orð fyrir orð í (lSam.”. í
blaðinn á og að prenta við tækifæri frum-
varp til safnaðarlaga, er eiga að vera
nokkurs konar fyrirmyndarlög fyrir
menn í nýlendunum, er stofna vilja söfn-
uði.
Eptir nokkrar umræður var sam-
þykkt, að næsti ársfundur skyldi haldin
að Mountain, Dakota.
Eptir að reikningar l(Sam.” voru yfir
skoðaðir var 5 einu hljóði samþykkt, að
þar eð þingið viðurkenndi með hvað
mikilli alúð ritstjóri bl. hefði unnið a5
ritstj. og útgáfu þess, og þar eð fjárhag-
ur bl. stæði allvel, þá finndi þingið sjer
skylt að votta honum þakklæti sitt á þann
hátt, að fjehirtSir greiddi honum úr sjó'5i
blaðsins $100. Sjera Jón þakkaði gjöf-
ina, og gat þess jafnframt, að hann gæfi
hana kirkjufjelaginu til stofnunarsjóðs
fyrir æðri íslenzkan skóla (College) hjer
í landinu. Gjöfin var þegin, og þakkaði
sjera F. Bergman fyrir hana, en óskaði
að fjeð væriívörzlum sjera J.ávaxtarlaust
um óákveðin tíma. Það vildi sjera
J. B. ekki og stakk uppá að sjerstök
3 manna nefnd sje kosin á þessu þingi,
er veiti fjenu móttöku, komi því vel
tryggðu á vöxtu, og að nefndinni sje
jafnframt falið á hendur, að halda á
lopti málinu um stofnun ísl. æðri-
skóla, bæði meðal fólks í kirkjufjel.
og utan þess, og að sú nefnd ávalt
geri fjel. á árlegum þingum þess grein
fyrir framgangi málsins og ástandi, til
ábyrgKar kirkjufjelaginu. Þessi breyt-
ingar uppástunga var samþykkt i einu
hljóði. Síðan voru kosnir S standandl
skólanefnd: Friðjón Friðriksson, E. II.
Bergman og Jón Jónsson.
Fólkstal safnaðanna, sem eru i
kirkjufjelaginu:
söfnuðir fermdir óferindir alls
Víkur ) 189 118 307
Garðar 342 211 553
Vídalíns 209 184 393
Hailson 66 40 106
Fjalla 38 31 69
Little Salt 30 24 54
Pembina 69 43 112
Winnipeg 442 182 574
Frelsis 81 63 144
Fríkirkju 64 55 119
Víöines 86 96 182
Breiðuvík 46 150 96
Bræðra 112 104 216
1,774 1,151 2,925
í þessa skýrslu vantar alveg tölu
safnaðarlima í Árnes og Mikleyjar söfn-
uðum í Nýja íslandi.
Þingi var slitið skömmu eptir mið-
nætti á sunnudagsnóttina 26. þ. m. Og á
suunudagsmorguninn fóru Dakota menn
af stað heimlei5is.
Ný-íslendingar fóru af stað heim á
þriðjudaginn var, Argyle menn á mið-
vikudaginn, og með þeim sjera Jón, er
verður á burt fram yfir næstu helgi.
Af p>eim 3 ársfundum kirkjufje-
lagsins, sem nfi eru afstaðnir, var
J>essi síðasti hinn langskemmtileg-
asti. Fulltrúarnir komu sjer saman
um að sitja ekki frá morgni til mið-
nættis, svo að segja, við umræður
kirkjumála, heldur aðverja kvöldun-
um til alinenns fundahalds, er f>ó
lytu að kirkjumálum. E>etta fyrir-
komulag var hið vænsta til J>ess að
leiða athygli almennings að J>eim
málum, sem fundurinn hefur með-
ferðis. I>að eru ekki nema fáir til-
tölulega, sem hafa tækifæri og
löngun til að sitja á fundi að degi til,
og mörgum J>ykir lítið varið í að
sitja J>ar á kvöldin og hlusta á ræð-
ur um J>essa eða hina lagabreytingu,
ekki sízt J>égar menn fá hvorki upp-
haf nje enda málsins, nema í ein-
stöku tilfellum. En pegar um al-
menna samkomu er að gera, J>ar sem
allir sem vilja, mega láta sína mein-
ingu í ljósi um petta eða hitt mál
kirk junni og almenningi viðkomandi^
pá er allt öðru máli að gegna. Það
keppir pá hver við annan að ná sæti
í húsinu og svo hefur verið pessi
kvöldin, sem fundurinn stóð yfir.
t>að,var sjaldnast að eitt sæti væri
autt í húsinu, optar en hitt komust
peir ekki allir inn sem vildu. Á
priðjudagskvöldið og fimtudagskv.
var rætt um A«að kirkjufjelaguS gæti
gert og /tuað pað ætti að gera til
pess að mennta Menzkan almenning.
í pessu máli höfðu allir málfrelsi og
tímans vegna komust peir ekki allir
að, sem beðið höfðu um orðið, og
var pó fundur seint úti bæði kvöld-
in. Á fimtudagskvöldið á undan
fundinum flutti herra E. Hjörleifsson
fyrirlesturinn útaf Bandaríkja sögu,
er pað kvöld gekk mest út á að sýna
trúarstríðið milli reformuðu og ka-
pólskukirkjunnar, um myndun ensku
kirkjunnar, myndun Puritanflokks-
ins, stríð hans og baráttu, útskúfun af
Englandi og flótta til hins nýja
heims. Á miðvikud.kv. flutti sjera
Friðrik Bergman fyrirlestur um hina
Uundraverðu bók”—ritninguna—.
Sýndi hann fram á, að ritningin
væri hin eina bók, er einlagt stæði
óhögguð öld eptir öld. Engin bók
hefði mætt jafnmiklum ofsóknum og
hún, eii í stað pess að rýra afl henn-
ar hefðu pær eflt hana, aukið út-
breiðslu heiinar tvítugfalt. Frá peim
tíma, sem byrjað var að útbreiða
hana og fram að síðustu aldamótum
hefði verið útbýtt meðal manna 4-6
milj. eintökum á rúmlega 30 tungu-
málum. En síðan á aldamótunum
sýndu skýrslur að útbýtt hefði verið
yfir 100 milj. eintökum á meir en
200 tungumálum.1” Auk pessa væru
á hverju ári gefin út svo og svo
mörg pús. eintök af henni af prívat
mönnum, pað er að segja, ekki á
kostnað neins biblíufjelags, að pað
væri alveg ómögulegt að fá nokkra
tölu eintakanna, sem útbreidd væri
meðal mannkynsins. Sem dæmi
upp á pað, hve mótstaðan er pýðing-
arlaus til að hindra útbreiðslu bók-
arinnar, sagði hann, að nú í dag væri
biblíuhlaði frá gólfi til rjáfurs í húsi
Voltaires, rithöfundarins mikla á
Frakklandi, sem á átjándu öldinni
ofsókti ritninguna með öllu sínu
heljarafli, ef til vill meir en nokkur
samtíðamaður hans.—Yfir höfuð að
BOÐ UM LEYFI TIL AÐ IIÖGGVA
SKÓG Á ST.IÓRNARLANDI í
ILJERAÐINU ALBERTA,
í NORÐV.L.
INNSIGLUÐ BOÐ, send undirrituKum,
og merkt ((Tenders for a timber berth ”
verða meítekin á þessari skrifstofu
þangað til á hádegi á mánudaginn fjórða
júlí næstkomandi, um leyfi til að höggva
skóginn af ((timber berth ” merktri UM.”
Flatnrmál þessa landfláka er um 50 fer-
hyrningsmílur, meira eða minna, og
liggur við Bow River nálægt Canada
Kyrrahafsjárnbrautinni í hjeraðinu Al-
berta.
Uppdrættir, er sýna afstöðu lotsins
svona hjer um bil, ásamt skilmálum, er
stjórnin setur þeim er leyfið kaupir, fást
á skrifstofu þessarar deildar, og á Crown
T’íVn&er-skrifstofunum bæ'Ki i Winnipeg
og í Calgary.
A. M. Burgess,
varamaður innanríkisráðherrans
Department of the Interior, )
Óttawa, 6tli, June 1887. )
Wm. Pmlson. P. S. Bardal.
Panlson &Co.
Verzla með allskonar nýjan og
gamlan húsbúnað.
Stefna okkar er að selja ódýrt, en
selja mikið.
NB. Við kaupum gamlan húsbúnað
fyrir hæsta verð. ls
35 Market St. W....Winnipeg.
tala var fyrirlesturinn hinn ágætasti,
bæði skemmtilegur og fræðandi,
enda var hlýtt á hann með stakasta
athygli, prátt fyrir að mönnum var
óinótt af prengsluiu og hita.—Bæði
á undan og eptir fyrirlestrinum var
söngur og hljóðfærasláttur.-—Á föstu
dagskv. fór fram guðspjónusta og
prjedikaði sjera Friðrik.
íslandsdætrafjelagið heldur hluta-
vfltu í liúsi ísl.fjel. á laugard.kv. kemur.
Ágóðanum verbur varlð til sTyratar ta-
tækum ekkjum og börnum þeirra, er
drukknu'Ku við Skagaströnd i Húnavatns-
sýslu á íslandi i vetur er leið, dráttur-
inn kostar 25 cents.
Tie Green Ball
CIoUÍDI HOBSe!
11 & L
Photograph—stofnr eru
almennt viðurkenndar að vera
hinar fullkomnustu I bænum.
Nýjustu verkfœri einungis í
brúki. f
Vorir íslenzku skiptavinir æfinlega
velXumuii. lOmTjl
461 - - - - Jlain Street.
CaMnet Pliotos
$2,00 tylftin
-I-
liosps rayntla-gallery.
Ógrynni af vor-og sum
klæðnaði rjett meðtekið.
Rjett opnaðir upp kassar, er
innihalda alklæðnað fyrir 1,000
karlmenn og drengi, er vjer seljum
mjög ódýrt.
Ennfremur, stórmikið af skyrt-
um, krögum, hálsböndum, klúttwn,
o. s. frv., höttum húfum og fl.
Svo og töluvert af vabsekkjurn,
er vjer seljum ineó lágu verði.
JoId Spring.
Xo. 1 McWilliam St. W.
fyrr Ross, Best & Co.
P. S. Vjer ábyrgjumst góðar myndir
og verklegan frágang.
íslenzk tunga töluð í fótógrvf-
stófunni. 30jn.
Reflwoofl Brewery.
Preminm Lager, Kxtra Porter,
og allskonar tegundir af öli
bæKi i tunnum og í flöskum.
Vort egta ((Pilsner ”-öl stendur
jafnframarlega og hi5 bezta öi á
markaínum.
464.............Main street.
7a 28
Hattvirtii landar!
i<
Þegar yður vantar ódýrar vörur, þá
minnist a5 með því að kaupa af mjer
sparið þjer yður að minnsta kosti 25
cts. af hverjum dottar. Því jeg hef keypt
allar mínar vörur 25 per cent lægra en
vanalegt verð.
TakiiS nú eptir! Ljerept 3cts. Yd. og
upp, hnappar 3 tylftir á 5 cts., nálabrjef
tvö á 5 cts., ritblý 3 stengur á 5 cts.,
Rubberkragar 15 cts. (annarstaðar 25),
giptingarhringir og allskonar gullstáz
þribjungi ódýrara en annarsstaðar, og
fleira og fleira me5 líkum prís.
Munið að þetta fæst í
Redwood Brewery (Rau5vi6ar-
bruggaríifl) er eitt hið stærsta og full-
komnasta bruggarí í vesturhluta Canada.
Meira en 50,000 dollars hefur nú þegar
verið kostað upp á húsakynnin eingöngu,
og næsta sumar verða þau stækkuð enn
meir.
Vjer ábyrgjumst,. að allt öl hjer til
búið, er af beztu tegund einungis, þar
vjer brúkum ekki annað en beztu teg-
undir af bæði malti og humli. þetta
sumar höfum vjer enn stærri ölkjallara
en nokkru sinni áður.
Edtvai’d L. Drewry.
NORTH MAIN ST. WINNIPEG, MAN.
Strætisvagnar fara hjá verkstæðinu
með fárra mín. millibili. t. f.
„EiDiee Dry Goods Hodso”
Á NORÐAUSTURHORNI Rosm og
Isiabel stræta.
T D
7y
MacBeth, MacBeth & Sutherlanfl.
M Á L F ÆUR S L U M E N N.
Skrifstofa í Mclntyre Block
á Afialstræti. beint á nóti Merchants
u > u ■
JBank.