Heimskringla - 19.04.1888, Blaðsíða 1

Heimskringla - 19.04.1888, Blaðsíða 1
ALMENNAR FRJETTIR Flí Á Ú T L ö N D U M. ÍSLANDS-FRJE T T I R . KEYKJAVÍK, 12. febr. 1888. Embættaskipan. 31. jan. var Reynistaðarklaustursumboð veitt alþing- ism. Olafi Briem á Álfgeirsvöllum,- 24. jan. voru Meöallandsþing veitt kand. theol. Jóni B. Straumfjörð.—27. jan. var Hvanneyri í Siglufirði veitt Helga Árna- syni, presti í Nespingum. Hvorugur þessara safnaða neytti kosningarrjettar. Laus eru (31 f. m.) Nesþing 1 Snæ- fellsnessýslu (met. 1356 kr.). Heiöursmerki. Dannebrogsmenn eru þeir orðnir bændurnir Sigurjón Jóhannesson á Laxamýri og Ketill Ketills- son í Kotvogi. Búnaðarfjelag suðuramtsinshjelt fyrri ársfund sinn 7. febr. Fjeiagiö á nú í sjóði rúmar 18000 kr., og auk pess 600 kr. í útistandandi vöxtum og tii- lögum. Stjórn fjelagsins hafði upp á sitt eindæmi ráðiö tvo búfræðinga til að ferðast um að sumri, Svein Sveins- son fyrir 600 kr. og Sæmund Eyjólfs- son fyrir 400 kr.—Hermann búfræðing- ur hafði beðið fjelagiö um 100 kr. styrk tii að flytja kynbótafje úr Þingeyjarsýslu til Suðurlands og var Það veitt. Dr. Jóassen kom með pá tillögu, aö Sveinn búfræðingur væri látinn ferðast um aö vetrinum, til að leiðbeina bændum í fjárrækt og með- ferð á áburöi o. s. frv., og tók fjelags- stjórnin pví vel. 23. febr. 1888. Tíöarfar er gott að frjetta víös- vegar um land, nú með póstum. H af í s hefur verið á hrakningi fyr- ir noröurlandi, en ekki mikill. B j argarsk or tur er nú víða, einkum í vestursýslum norðurlands og á vesturiandi; einnig í vestur-Skaptafells- sýslu með meira móti. Heybirgðir viröast vera nægar víöast, því góðir hagar liafa veriö pað sem af er vetri í flestuu hjeruðum; einna snjóasamast liefur veriö á austur- iandi. Yerzlunarsamtök. Pöntunar- ijelag Dalamanna hjelt fund í Hjarðar- holti snemma í p. m. og ætlar aö auka ver/.lunina bæöi að innlendri vöru og útlendri vefnaðarvöru. — Húnvetningar og SkagfirSingar eru óánægðir við Slimons verzlun og vilja hætta við hana, nefna pað til, að Coghill gaf peim 2,50 kr. minna fyrir sauðinn enn Eyfirðingum og Þingeyingum. Snjóflóð og skriöuföll urðu 12—14 febr. í Dalasýslu, einkum í Haukadal, og gerðu tjón á túnum og engjum á nokkrum bæjum. 8. marz 1888. Forngripasafnið var 25 ára gamalt 24. x. m. í minuing þess hjeldu allmargir menn í Rvík samsæti um kvöldið. Sigurður Vigfdsson, forstöðu- inatSur safnsins, inælti fyrir minni pess, °S einnig var talaö fyrir minni Sig- uröar málara, stofnanda safnsins og fyrsta umsjónnrmanns, Jóns Árnasonar, er einnig átti góðan pátt í stofnun þess og var umsjónarmaður pess um nokkur ár, sr. Helga Sigurðssonar á Akranesi og Jóns Sigurðssonar á Gautlöndum, er fyrstir gáfu til safnsins. Mannaiát. og slysfarir. 1 f. m. ,lr^ niaður úti frá Króki í Norðurár- 'in' °8 HI>nar úr Laxárdal í Dalasýslu á úið f*a Borðeyri.—14. jan. druknaði í Gönguskarðsft skagafiröi Daniel bóndi Andrjesson frft IngVe]darstöðura, kom af Sauðárkrók um kvöid.__0 f. m.varð sjera Stefán Jónsson á I>óroadstað í Þingeyj- arsýslu úti á Skarðahálsi (mini Tjörness <>g Reykjahverfls). Hann kom af Húsa- vík um daginn rael? öðrum manni, i'U reið liann af sjer og viltist. Fannst ekki fyrr en 11. s. m. Sjera Stefán var j 40 ára, útskrifuttur af prestaskólanum I 1876, fjekk Þóroddstað s. á. Hann var mikill atgervismaður og mjög vinsæll af sóknarmönnum, pótt hann væri talsvert hneygður til drykkju. 18 inar/. 1888. E i m s k i p i ð M i a c a kom tll Sey ð- isfjarðar 15. febr. n.eð vörur frá Eng. landi til pöntunarfjelaganna. Ilafði hrept vöðaveður í hafi, svo að sjór gekk í skipið, varð því skipstjóri að selja töluvert af fanninum á Seyðis- firöi. Fór til Húsavíkur með vörur tii kaupfjeiags Þingeyinga og paðan til Akureyrar, 29. febr., með vörur tii ])önt- unarfjelags í Ey-jafirði. T í ð a r f a r má kallast gott vílSast um land. Harðastur heíur \eturinn verið á Austurlandi og í Þingeyjarsýslu. Hafis-hroði hefur verið á hrakningi fyrir Noriturlandi; ekkert sást til íss er síðast frjettist, snemma í p. m., entalið víst, að hann væri skammt undan landi. Brjefkaflar peir, er fara hjer á eptir, segja glöggar frá veðráttufari, bjargræði fólks o. s. frv. Noriur-Þingeyja. sjjslu, 30. jan. UYet- ur hefur verið lijer harður, snjófall mikið og hagleysur, frost mikil til sól- hvarfa, síðan vægara. Hafís fyllti hjer allar víkur um nýári'K; voru drepnir á honum 3 livítbirnir á Sljettu. Margir illa staddir með hey, og sjálfsagður horfellir, ef hart verður fram á sumar. Víða er þröngt í búi. Vesturfararhug- ur er í mörgum, en ekki geta afirir fariö en þeir efnaðri; flestir blásnauðir og komast hvergi, enda peningaekla liin mesta. Það er bæði að harðindi og almenn bágindi sýnast munu verða hjer óþolandi, en þó flýja menn mest úr landi hjer um slóðir vegna óánægju með landstjórnina”. Vestur-Skaptofellssýslu, 4. febr. „Hjer er ekki beðið um hallærislán þó eitt- livað kreppi afi, í þessum hreppi eru 45 sem tíunda; lausafjárhndr. 237 og mun vel talið fram; sveitarómagar 26; enginn býr á sjálfseign; allar jarðir eru hjer þjóðeign og flestar undir þeim á- föllum, að engu síður er |»örf á að meta þær upp en jarðir á Rangárvöllum, og veitti ekki af að gera eina jörð úr 2— 4, til a« framfæra smáheimili. Sveitar- útsvör voru hjer í haust 3121 al.+ 124 kr. og hrökkva ekki. Sumir eru þegar orðnir bjargarþrota, og mjög fáir munu geta bjargast fram yfir sumarmál”. Arnessýslu, 18. febr. „Öndvegis tíð frá nýári til þessa. Dálítið norðankast um miðþorra-leytið, en tók þó aldrei fy-rir haga. Ekki tíðræddara um annað en fádæma vatnavextina eptir nýárið, einkum flóðið í Ölfusá; en því hafa blöðin nægilega lýst. Að eins má vekja athygli á því, að flóð þetta kom heppi- lega fram, þar eð það sýndi i tivkan tíma hve hd Ölfvsár-brúin þitrf «« tera. Þó raunar sje líklegt að þess hefði orðið gætt hvort sem var, þá er þetta alvar- leg aðvörun til áherslu í því efni. Sufmr-Þingeyjarsýslu, 26. febr. uEpt ir hríðarnar 9—10 þ. m. biiti ineð grimmu frosti og rak þá hafís undir land; 19. gerði þýðu og eru síðan komnir nægir liagar, hiti 5-—6 stig R, og hafísinn horfinn í bráðina. Hvergi kvartað um heyskort hjer um skVSir, enda hefur vetur verið í me'Sallagi eða betri”. Akureyri, 1. marz. „Vetur til þessa góður og beztu þýður á milli. Fisk- afli lítíll, en reytingur annað veifið út í lirSinum. Hart manna á milli, einkum þó í Þingeyjarsýslu, |»ar sem menn búa mest að pöntunum sínum, en nú rretist úr því, Margir einráðnir að fara til Ameríku, og allir, ef ókeypis fengist far”. Vestur-.Skaftafellssýslu, 2' marz. „Tið- in hefur verið reskiieg. Um miðjan þorra setti niður mikinn snjó til fjalia; nú eru komnir aptur nógir hagar, nema í Meðallandi, þar sem Kúðafljót flœðir yfir. Ekki tískvart <-nn i Meðallandi, en í Mýrdal kominn reytingur”. JJUnarati.ssýMlu, 6. marz, „Tíðarfar ágætt hjer i votur; 26. f. m. leysti allan ^ snjó, en nú er hann kominn á norðati með frosti, 8 stig R. Hafís er skammt undan landi.—Margir hyggja hjer á Ameríkufarir, og komast færri en vilja; margir hafa sagt jörfium sínnm lausum i vetur i því skyni, en sumir hafa neyðst til að taka þær aptur, því enginn getur keypt.—Harðindin og stjórnar- fyrirkomulagið ekki síst, eiga allan þátt í þessum vesturfarabyltingum.—Sýslu- nefndarfundur llúnvetninga var haldinn fyrir skömmu; afrjeði nefndin að taka 7650 kr. láu handa nokkrum hreppum sýslunnar af hailærisláni því, er þingið veitti henni (10,000 kr-), og mun það vera hið minnsta, er komast má af rnetS. Engin von er til, att surnir hreppar sýsl- vinnar borgi rentur og afborgun af lán- um þessum”. Dalasýslu, 10. marz. Tíðarfar gott og nægir hagar.---------Óskandi væri að Laxdrelir sæi um, að þeim 300 kr. sem -lagSar eru tii vegabóta á Laxár- dalsheiði yrði varið ti! að lilaða vörð- ur, þar sem nú farast menn á lienni á hverjum vetri og finnast ekki”. Prestaköll. 14. marz er Kol- freyjustaður veittur sjera Jónasi Hall- grímssy-ni á Skorrastað, samkvæmt kosn- ingu safnaðarins. Fjallkonan. XORÐURÁLFA. Dar hafa eiiír- in stórkostleg tíðindi gerst síðastl. viku, nema ef telja skyldi sigurinn, er Boulanger vann yfir 2 mótsækj- endunx sínum í kjlirhjeraðinu Nord síðastl. laugardag, meðal stórtíð- inda. Stjórn Frakklands andæfði honum náttfirlega með öllu sfnu afli, par sem hún óttast hann á þingi vegna hins ólina fylgis, er hann er sjálfsagður að ljá jjeim, er vilja nú pegar endurskoða stjórnar- skrána. Það má {>ví geta nærri, að ekki hefur verið ýtt út lökustu mönnunum til að sækja gegn hon- um. En Jvrátt fyrir pað fóru svo leikar að hann fjekk nærri helmingi fleiri atkvæði en báðir liinir til sam- ans; fjekk 172,272, en hinir báðir til samans fengu ekki netna 88,424 í Detta pykir sönnun fyrir aljxýðu- hylli hans, sem máske er líkameiri fyrir J>að, hve svívirtur hann er af stjórninni. Þeir, sem eru hjátrúar- fullir og búast við að Boulanger ætli sjer að ná æðstu völdum ríkis- ins, Jiykjast og í þessari kosning sjá honum sigurinn visann í J>ví efni. En sú ástæða er, að árið 1840 sótti Louis Napoleon (Napoleon III.) um kosning í sama kjörhjeraði und ir samskonar kringumstæðum og ineð sama árangri. Og sem mönn- um er kunnugt varðXTapoleon stuttu síðar forseti og þar næst keisari á Frakklandi. Dess xná og geta sem dæmis upp á löngun alpýðu að koma Boulanger á Jung, að fyrir rúmri viku síðan var hann í öðru kjörhjeraði kosinn til J>ingmensku með stórmiklum atkvæðamun. En hann neitaði pingmennsku fyrir ann- að kjördæmi en Nord. Mathew Arnold, rithöfundur og skáld, ljezt í Liverpool á Englandi 10. þ. m. 00 ára gamall. Svo var Friðrik Þýzkalandskeis ari pungt haldinn síðastl. þriðju- dagsnótt aðsent var eptir fjölskyldu hans og nánustu ættingjum, sem stóðu við sóttarsæng hans þegar síðast frjettist, og bjuggust við að hvert auguablikið yrði hið siðasta. Flf Á AMERIKU. BANDARÍKIN. í meira en viku uin daginn stóð allt fast á þjóðþinginu í Washing- ton, svo að alveg engu varð til leiðar komið. Og á þessu tímabili liðu einusiimi 28 ki.stundir svo, að þing- menn koiiiu sjer ekki sainan um að fresta þingsetu meðan Jieir fengju sjer svefn og seddu hungur sitt. Allt þetta ráðaleysi sprettur af gömlu skattmáli, er svo er varið, að árið 1801 var lagður sjer’stakur skatt- ur á alla íbúa norðurríkjanna, til að mæta herkostnaðinum. Dessi skatt- ur var náttúrlega greiddur, en þegar fram liðu stundir vildu norðanmenn að sunnanmenn borguðu tiltölulega mikinn part af þessu fje til yfir- stjórnarinnar. Þessu hafa sunnan- menn stöðugt neitað, svo nú fara norðanmenn fram á, að þeim sje endurborgaðir þessir peningar úr ríkissjóði; þarsem sunnanmenn vilji engan þátt taka í gjaldinu, þá vilji þeir einir ekki hafa greitt það. í síðastl. marzmánuði var ríkis- skuld Bandaríkja minnkuð um $11£ milj. Hinn 1. apríl var rentuber- andi og rentulaus skuld hins sam- einaða ríkis alls $1,701 miljónir. Nýdáinn er í Philadelphia B. H. Brewster, er var dómsmálastjóri Bandaríkja þegar Arthur forseti sat að völdum. Vínsöluleyfi hefur nýlega verið hækkað stórum bæði í New York- ríkinu og í Pennsylvania. í Phila- delphia hefur það þau áhrif, að í stað 0000 vínsöluhúsa, er þar hafa verið að undanförnu, verða þar nú að sögn 1,500 framvegis. Hinn 5. þ. m. var settur 28. ársfundur Mormónakirkjunnar, í Salt Lake City, Utah. Endurtóku þá sendiherrarnir, að fjölkvæni væri það trúaratriði, er þeir ekki gætu annað en framfylgt. Vjelastjórarnir og kyndararnir á Burlington og Quincy-brautinni, eru nú alveg hættir að hugsa um að ná stöðu sinni aptur. Eru nú út- dreifðir um allt að leita sjer að at- vinnu. Roscoe Conkling, fyrrum ráð- herra á þjóðþingi og víðfrægur stjórnmálámaður, hefur legið mjög þunghaldinn nú meira en viku, í New York, og sögð lítil von til að hann rakni við aptur. W. Brooks, faðir St. Loui8 morðingans, er kallar sig Maxwell, hefur samið ákaflega langt ávarp til hinnar ameríkönsku þjóðar og látið prenta í mörgum frjettablöðum. Leitast hann við að sýna, að sonur sinn hafi ekki notið neins verulegs rjettar og biður þjóðina að skerast í leikinn. Frumvarp um atkvæðisrjett kvennfólks fjell í gegn með miklum atkvæða mun á New York ríkisþing- inu í vikunni er leið. Flóð mikið er i Rauðá nærri upptökum hennar. Um síðustu helgi var hún vatnsmeiri suður hjá Breckenridge, Minn., en uin mörg undanfarin ár.—Hjá Fargo, Dak., brotnaði upp ísinn af ánni hinn 18. þ.m. og stíflaðist skammt fyrir neð- an bæinn. Fregnir frá suður California segja að þar hafi nýlega fundist auðugar gullnámur. Maður einn tilheyrandi frelsis- hernum (Salvation Armý) var í síðastl. viku tekinn af í New York ríkinu fyrir að hafa myrt mann 1 haust er leið. ísinn á Rauðá, framundan Petn- bina, Dak., byrjaði að brotna upp og hreifast úr stað á sunnudaginn var. Áin er J>ar sögð með vatns- minnsta móti og engin hætta á flóði enn sem koutið er. En þó evkst stöðngt vatnsmagn heniiar snð- ur hjá Moorehead og |>ar umhvertis. C a n a d a . Dað var í síðastl. viku form- lega auglýst, að samningur sam- bandsstjórnarinnar við Kyrrahafs- fjelagið, er leiddi af afnámi einveld- isins í Manitoba og NTorðvesturland- inu, er í þá átt, að stjórnin ábyrgist 3^ af hundraði í ársleigu um 50 ára tima af 15 milj. doll., er fjelagið ætlar að fá að láni gegn veði í landi í norðvesturhjeruðunum. Fje þessu verður varið til umbóta á brautinni norður af stórvötnunum, til vagna fjölgunar og að lengja og byggja nýjar greinar út af aðalbrautinni. Er þetta nokkuð annað en fyrst var frá sagt, þegar öll blöðin voru full með, að stjóriíin ætti að borga 15 til 19 milj. fyrir einvejdisuppgjöf- iua. Ef vel gengur er mjöglíklegt að stjórnin þurfi ekki nokkurn tíma að gera meira en Ijá fjelaginu u&fn sitt; brautin hefur hingað til borg- að allar leigur af skuldafje og mik- ið meira, og það er ekkert útlit fyrir að flutningar með lienni minki þó einveldið hverfi. En hagnaður fjelagsins liggur í þessu, að án stjórnar-ábyrgðar hefði það orðið að gefa 6 af hundraði urn árið og eins vist mátt sætta sig við að selja dollarsvirði í skuldabrjefunum á 90 til 95 ceuts. Fjelagið losast þann- ig við leigugjald svo nemur $375 þús. á ári hverju og fær að auki dollar fyrir dollar, þegar skulda- brjefin eru seld. Fyrir Jiessa 375 þús. getur ]>að á hverju ári byggt 10—15 mílur af járnbrautum á mið- lungs sljettlendi. Quebecbúar biðja stjórnina að gera annaðtveggja, gefa Quebec- mönnum $2-| milj. til brúargerðar yfir fljótið eða ábyrgjast 4 af hundr- aði í 25 ár af 4 milj., er taka þarf til láns til að koma upp þessu brú- artrölli, er á að saintengja járn- brautirnar í suður og norðurhluta fylkisins. Hugli Sutherland situr enn í Ottawa, væntandi eptir hjálp til þess að koma áfram Hudsonflóa- brautinni. Til þessa hefur honum ekki verið gefin hin minnsta von í J>vl efni. Stjórnin hefur ákveðið að verða við almennri áskorun um að hækka laun dómara við hæsta rjettinn og við yfirrjetti fylkjanna, hefur lagt frumvarp þess fyrir þingið. Yfir- dómarinn við Manitobayfirrjettinn fær $(>000 uin árið 1 stað $5(X)0 að undanförnu og 3 aðstoðardómarar hans $5000 hver, í stað $4000 að undanförnu. Mælt er að hinn nýji fylkis- stjóri Manitoba, er enginn veit með vissu hver verður, þó allir telji dr. Schultz sjálfsagðan, taki ekki við embættinu fyrr en í júlí í sumar. Embættistími núverandi fylkisstjóra er útrunninn 1. maí, eii ekki yfir- gefur hann embættið fyrr en annar er tekinn við. Fregnin frá Nýfundnalandi, er birtist í síðasta blaði, þess efnis, að þingi eyjarskeggja hatí neitað að samþykkja uppástungu um inn- göngu í samband Canada, var ekki alveg rjett. Dað, sem þingið felti, var, að senda nefnd manna til Ot- tawa nú þégar. Eyjarstjórnin vi.ll sjálf kjósa inenn í nefndina, og hefur í hug að senda hana til Ot- tawa þegar kemur fram í júní eða júlí í sumar. Stjórnin liefur auglýst, að varn ingur sá, er hún um daginri aug- lýsti tollfrlan frá Bandaríkjum, verði einnig tollfri frá hvaða landi eða ríki sem liann er fluttur. í Montreal, upp á fjallinu, sein | bærinn er kenndur við, á 1 sumar að byggja 200 feta háan steinstólpa, er verður fótstullur iindir stórkostleirt bror./.-llkiieski af Mariu mev.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.