Heimskringla - 26.10.1892, Síða 1

Heimskringla - 26.10.1892, Síða 1
SATURDAYS, OG Ö L D I N. AN ICELANDIC SEMI-WEEKLY NEWSPAPER PUBLISHED ON WEDNESDAYS AND VI. AR. NR 78. WINNIPEG, MAN., 26. OKTOBER, 1892. TÖLUBL. 338 Haustvísa. Nú haustar aö, til foldar laufin falla og fölna grösin, naktar standa eikur, í heljar örmnm gjörvalt lífiö leikur og lögum sömu beitt er við oss alla. Yér beitum móti hreti hörðum skalla og hart vér stríðum þar til dauðinn bleikur oss fangar loksins—flestar bogna eikur; við foldar barm er hvíldin fyrir alla. Ég uni því að blikna eins og blóm og bogna líkt og nakin skógar-rengla og falla nár í frosið móður skaut; því alt á jörðu þolir dauða-dóm og drottin breytir skrokkunum í engla og bindur þá við nýtt líf — nýja þraut. S. B. Benedictsson. FRÉTTIR. ÚTLÖND. — I Þýzkalandi er dáinu Próf. Adolph Seitber, nafnkunnr f>jóð- meganfræðingr, talinn einna lærðastr allra samtíðarmanna sinna um alt J>að, er lýtr að peningaveltu og peningasláttu. — Charlotte Edgren, nafnkunn sænsk skáldkona, er ný dáin í Róm. Hún var gift ítölskum prins, hertog- anum af Cajanello. — Kólerunni má nú heita lint í Hamborg. í fyrra dag komu að eins 9 ný tilfelli f>ar fyrir, og að eins tveir menn dóu úr henni þann dag. Næst undanfarnar nlu vikur hafa alls veikzt af kóleru 1 Hamborg; 17,989 manns, og af þeim dáið 8,261. — Aftr á mótier nú kóleran kom- in til Wien, og er heldr að útbreið- ast par. — Á morguti á að verða fundr I stjórnarráðinu enska. John Morley kemr handan af írlandi, til að vera við. Aðal-fundarefnið kvað vera, að semja frumvarpið til sjálfstjórnar- laga fyrir írland. — flú fregn kom frá Englandi á laugardaginn, að Gladstone hefði f hyggju að kalla heim alt enskt setu- lið héðan úr Canada. Pað er sögð skoðun hans, að lýðlendur með fullu sjálfsforræði, eins og Canada hefir, ætju sjálfar að halda uppi landvörn- um. Það er raun á J>ví orðin, að vér erum nógu stæltir að standa á rétti vorum gagnvart öðrum þjóðum, og eigi neitt ýkja-lempnir til að kom- ast hjá ágreiningi. Það er álit Glad- stones, að ef vér be.um sjálfir byrð- ina við að verja land vort, í stað þess að láta England taka afleiðing- arnar af öllum ágreiningi vorum við aðra, þá munum vór læra að meta betr friðinn og fara gætilegar I sakir við aðrar þjóðir, síðr leggja gálaus- lega út 1 deilur um smámuni, sem geta leitt af sór friðrof. bandarikin. —Blaine hehr aftekið með öllu að halda nokkrar ræður framar til að styðja flokk sinn. —Mrs. Harrison, kona forseta Bandarikjanna, andaðist í fyrri nótt eftir langar þjáningar. —Kosningar eru nýlega afstaðn- ar í New Brunswiek, og hafði fylk- isstjórnin sigr (22 þingm. gegn 14, sem andstæðingaflokkrinn hefir, og 3 „óháðum“ þingm.). Úrslitin eru mjög lítils varðandi fyrir aðra en fylkisbúa, með því að flokkskifting- in var þar í fylki (líkt og hér í Manitoba gíðast) ekki flokkskifting milli Conservatives og Liberals, heldr milli þeirra, sem við völdin sitja, og þeirra sem komast vildu að þeim. Forsætisráðherrann sjálfr, Mr. Blair, náði þó ekki kosningu í sínu kjördæmi. Verðr því einhver þingmaðr að segja af sér og reyna að koma honum að í sínu kjördæmi, eða hann verðr að fara frá völdum. —The Irish National League of America hefir sent út ávarp til þjóðarinnar, og lýst yfir því, að ýmsir landar sínir, sem láti mikið af, að þeir geti ráðið atkvæðum íra við kosningarnar, sé eigingjarn- ir, fyrirlitlegir menn og þjóðar- skömm: þeir segja, að landar sínir alment selji ekki atkvæði sín, hvorki samveldis né sérveldis flokknum; þeir, sem lát.i í veðri vaka, að þeir geti „selt“ alla landa sína, þeir svívirði írskt þjóðerni, og vara flokkana við því, að hver sá flokkr, sem ætli að kaupa írsku atkvæðin þannig af þessum „forsprökkuin“, megi vara sig á því, að slíkt spilli einmitt fyrir þeim flokki. Þetta er líklega sérstaklega miðað til Pat Egans, sem er eins konar Irskr Sigtryggr, og reynir að maka krók- inn hjá samveldismönnum með þvl að segja þeim, að hann ráði Irsku atkvæðunum; það þurfi ekki nema að borga sór fyrir þau. —Fyrsti snjór féll í Neche, N. D. fyrra miðvikudag. (The Oak Leaf). — New York, 22. Oct.: — Mál- þráðarskeyti frá Frankfort, Ind., til blaðsins Sun segir svo: Wm. H. Kelly, kaupmaðr hór I bænum, dó I nótt af sjúkdómi, sem læknarnir kölluðu magaveiki. Hann var kruf- inn eftir ósk ættingja hans, og fanst þá I maganum á honum skómakara- alr þumlungs-langr; utan um hann hafði myndazt krabbakent mein, er olli dauða mannsins. Á yngri árum sínum var Mr. Kelly skómakari, og vildi honum það þá eitt sinn til, að það hrökk ofan I hann alr; þaÖ eru nú full 30 ár slðan. — Þeir halda áfram. Vór höf- um þegar áðr getið þess, að Gresh- am hæstaréttardómari og Hon. Thomas M. Cooley rlkis-hæstarétt ardómari, og Wayne McVeagh, sem var ráðgjafi hjá Garfield, hafa allir yfirgefið samveldisflokkinn og lýst yfir þvl, að þeir muni greiða at- kvæði með Cleveland. Á föstudag- inn var kom fregn um, að O. W. Doane, fráUnion, Broome Co., N.Y., gamall samveldis-hestr, sem áðr hef- ir farið um land og llutt ræður fyrir þann flokk, só nú byrjaðr að halda ræður til að styðja Cleveland. — Sama dag fréttist og, að Dr. Thyre Yerk, nafnkunnr samveldismaðr til þessa, hafi lýst yfir, að hann gengi I lið með Cleveland. Samveldisflokkr- inn I North Carolina tilnefndi Yerk I haust til ríkisstjóra við næstu kosn- ingar, en hann afþakkaði heiðrinn, og kvaðst heldr vilja verja kröftum sínum til að styðja Cleveland. Hann er ákaflega vel þokkaðr maðr og á- hrifamikill. CANADA. — Hon. Mr. Chapleau hólt ræðu á laugardaginn I Montreal, og gat >ar þess meðal annars, að hann ætl- aði bráðlega að leggja niðr ráðgjafa- embætti sitt. Chapleau er atkvæða- mesti maðr Doroinion-stjórnarflokks- ins I Quebec síðan keppinautr hans Sir Hector Langevin veltist úr stjórnarsessi I fyrra. Það er fullyrt, að Chapleau verði fylkisstjóri I Quebec-fylki I Des-. ember næstkomandi. Embættistími Angers, fylkisstjóra þar nú, er á enda þessa daga; en sagt hann verði við þó fram I Desember. —George Pyke, bókari við Im- >erial bankann 1 Toronto, hefi.r fals- að bækr bankans, til að dylja svik- semi slna; hann hefir dregið undir sig $10000 af fó bankans, og eytt öllu, strokið síðan allslaus til Banda- ríkja, að haldið er. Bankinn bíðr þó ekkert tjón, þar eð veðfé það, sem Pyke hafði sett, hrekkr fyrir skaðanum. RADDIR ALMENNINGS. BRÉFKAFLI FRÁ GIMLI, 29. September. Vegna- þess að það er eins og það só orðið að ófrávíkjanlegum vana, að minnast eitthvað á tiðina I þeim fróttum, sem skrifaðar eru hóðan, þá finst mér ég vera skyldr til að fylgja sðmu reglu. Þetta sumar hefir verið eitthvert ið bezta, sem komið hefir yfir þetta pláss, slðan því öðlaðist sú virðing að kallast Nýja Island. Varla að nokkrar tafir hafi orðið við heyskap sökuin úrfella, og kemr það sér ó- sköp vel hór, þar sem heyskapr gengr heldr seint, I samanburði við víða annarsstaðar, er kemr til af vöntun vinnukrafta og verkfæra, en ekki af ódugnaði. Af þvl Iitla, sem sáð hefir verið, hafa menn fengið góða uppskeru, að undanteknum jarðeplum, sem sumstaðar hafa illa sprottið. Heilsufar manna yfir það heila tekið heldr gott og því ekki minsta ástæða til fyrir menn, að vera óánægða við náttúruna eða hennar algóða höfund. I>að mun I flestum hafa hoppað hjartað af fögnuði, þegar byrjað var á vinnunni í fyrrahaust, þvl þótt kaupið væri lágt, gerðu sig þó flestir rólega með það, bæði vegna þess, að ]>á var vinnunni haganlega niðrskipað, og svo þóttust. metin vera vissir um, að nýlendan mundi innan skamms fá veg, er Kallast mætti því nafni. Og svo gat heldr engum dulizt, hvaða hagr það var fyrir einstaklin'ginn og plá=sið I heild sinni I peningalegu tilliti, er svo mikill skortr var á. Svo mun flesta reka minni til, að byrjað var á breikkun brautarinnar I vor og það með nokkuð undar- legum hætti, er snerti tilfiögun á vinnunni, þvl frá Landamerkjalæk og norðr að Drykkjará vóru settir niðr fjórir flokkarog máttu ekki vera í hverjum nema einir sjö menn, að ar hliðarinnar. Þó þessi aðferð, að minsta kósti I þeirra augum, væri fjarskalega frjálslyndisleg, þá þótti sumum hún samt býsna rang- lát, því allir þóttust hafa jafnan rétt til hennar, vinnunnar, og ekki sízt þegar helztu forsprakkar ný- lendunnar vóru að troða því inn 1 höfuðin á mönnum, að stjórnin gerði þetta sem annað góðverk á íslend- ingum, án þess hún væri skyldug til að leggja fé til vegarins. En alt fyrir þessi rangindi, er mönnum fanst vera brúkuð með þessari að- ferð, urðu menn furðu rólegir, mest fyrir þá ástæðu, að þetta yfirstand- andi haust mundi bæta það upp. Og svo komu nú kosningarnar, eins og allir muna, og þá var óspart útbýtt loforðum af „frjálslyndu“ mönnunnm um, að veginum skyldi viðstöðulaust haldið áfram, svo lengi sem peningarnir entust, sem lagðir vóru til hans I vor, en það er að segja ef Colcleugh kæmist að; Mr. Baldwinson væri ekki til neins að kjósa; hans loforðum væri ekk> til neins að trúa, * hann gæti ekki neitt framkvæmt, hann tilheyrði aftr- haldsflokknum og þá væri útsóð um nýlenduna, ef hann, eða nokkr ann- ar af þeim flokki, kæmist inn á þing. En um Colcleugh væri ekkert spurs- mál, sá maðr, sem alt hefði gert fyr- ir nýlenduna, sem hægt hefði verið að gera, hann sem hefði útvegað þetta fé tii vegarins, og svo væri hann nú líka af „frjálslynda11 flokkn- um. Á þennan hátt prédikaði helzti maðr sveitarinnar fyrir inum fáfróðu. En hvernig I ósköpunum stendr á, að sveitarstjórnin vill svipta sig öll- umheiðrinum,oggefa hani. Colclegh? Er hún búin að gleyma því, að hún bjó sig sjálf að heiman hór um vetr- inn upp til Winnipeg, I þeim erind- um að fá fé til ve^arins? Og í öll* um þeiin umsvifum var þessi þeirra makalausi fulltrúi, Colcleugh, ekki I nefndr á nafn, heldr en hann væri ekki til. Annaðhvort hefir sú ferð sveitarstjórnarinnar haft þann árangr, að vegrinn er kominn I það horf- sem hann nú er, þó vesalt só, og þess vegna ber henni allr heiðrinn, en alls ekki Colcleugh, eða þá að öðrum kosti að hún hefir farið þá ferð 1 eigingjörnum tilgangi, ein- ungis til að afla sér fata og peninga með lóttu móti, enda vóru sumir af þeim fatalithr um það leyti. Sveitarform. ætti nú að taka rögg á sig, ef hann vildi sjá sóma sínum borgið, viðvikjandi loforðum þeim er hann egndi fyrir menn með, til þess að Colcleugh kæmist að, og vinna nú af alefli að þvl, að ekki yrði langr dráttr á að byrjað yrði á veginum aftr. Eða þá, ef þess er ekki kostr, að hann gerði mönnum það 1 jóst,fyrir hvaða ástæður það ekki geti orðið. Með því gæti hann bezt hreinsað frá sínum eigin dyrum, þar sá orðrómr er lagstr á, að bæði hann og aðrir Colcleugh’s fylgjendr muni ekki hafa farið varhluta af vegafénu um kosningaleitið, og þess vegna hafi vinnunni ekki orðið haldið áfram. Údis. Á skrifstofu Heimskringlu fæst: íslenxkt ALÞÝÐUBÓKSAFN 1. r Urv als-k y æ ð i eftir JÓNAS HÁLLGRÍMSSON. Verð 25 ctH. Ljómandi vel um vandað að papp- ír og prentun, og ákaflega drjúgt og efnismikið eftir stærð: 44 beztu kvæði Jónasar — alt það úr kvœða- bók hans, sem menn eru vanir að lesa. Fleiri hefti koma bráðlega með úrvals-kvæðum og öðrum úrvalsrit- um Isl. höfunda. Kaupið undir eins! Send frítt hverjum sem sendir 25 cent til afgreiðslustofu blaðsins. Verðið má senda I frímerkjum, ef vill. — FARIÐ í — Bókabúð UGLOW’S Bókabúð 446 Main Str. eftir bókum, rirföngum, glisvörn og bai naglingri etc. GangitS ekki fram hjá. DOMINION-LÍNAN selr farbrjef frá Islandi til Winni- peg fyrir fullorðna (yflr 12 ára) $40 — unglinga (5—12 —) $20 — börn - - (innan 5—) $14 Þeir sem vilja senda fiirsrjöld heim, geta afhent þau hr. Árna Fiuðkikssyni kaupm. i Wpg., eða Mr. Jóni Ólafs- syni ritstj. í Wpj., eða Mr. Fr. Frið- rikssy»i kaupm í Glenboro, e«a Mr. Magn. Brynjólfssyni málflutnings- manni i Cavalier, N. D.—Þeir gefa viðr- kenning fyrir peningunum, sem lagðir verða hér á Danka, og útvega kvittun hjá bankanum, sem sendandi peninganna veröur að senda mér \heim. Verði peningarnir eigi notaðir fyrir farbréf, fást þeir útborgaðir aftr hér. Winnipeg, 17. September 1892. Steinn Brynjólftson umboösmaðr Dominion-línunnar á íslandi. Mr. B. L. Baldwinson hefir skipun Canadastjórnarinnar til að fylgja far- þegjum þessarar linu. Hinn ódýrasti og bezti staðr I bænum til atS kaupa Stígvél og Skó er hjá E. KNIGHT & CO. 444 Main Str. Þeir sem koma með pessa auglýs- ing, fá 5 pr.Cts. afslátt. M. H. MILLER & co. CAVALIER, 5í. I)AK. Verzla með UR, KLUKKUR, GULLSTÁSS og SILFURSTXSS, og ýmislegt sem lýtur að hljóðfærum. Aðgerðum fljótt komið í verk. Niðursett verð á silfurmunum og úrum. M. H. MILLER & GO. Cavalier, X. Dak. Ef þér eruð að skreyta húsin yðar, þá komið við í búðinni hans BANFIELD’S 580 ste. Þar getið þér fengið alt sem þér þurt- ið til þess, svo sem : GÓLFTEPPI, GARDÍNUR og VEGGFÓÐUR, á 25 cts. og yfir. («olfte]i|ii a 5« til 60 cts. Olíudúkar á 45 cts. yarðid, allar breiddir fra J yard til 6 yards. Hvítar lace gardínur með snúrum 60 parið. Gardínustengur einungis 25 cts Beztu gluggatjöld einungis 50 cts. Yfir höfuð höfum vér alt sem þér þurf- ið, og svo getið þér talað yðar eigin mál í búðinni. Látið ekki hjá líða að koma til BANFIELD’S nœstu dyr við CHEAPSIDE. RDYAL CROWN SOAP ---) °g (- ROYAL GROWN WASHING POWDER eru beztu hlutirnir, sem þú getr keypt, til fata-þvottar eða hvers helzt sem þvo þarf. Þettu líka ódýr- ustu vörur, sem til eru, eftir gæðum og vigt. ROYAL SOAP CO. WINMPKG, HÚS OGLÓÐIR. Snotr cottage með stórri lóð $900, og 1% hæðar hús með 7 herbergj. á Logan St. $1000. Bæði nál. C. P. R. verkstæðum, Góð borgunarkjör. Snotrcottage áYoung Street $700; autl- arlóðir teknar í skiftum. 50 ft. lóð á.Iemima St., anstan Nena, 11425, aöeins$50 útborg,— 27Já ft. lóðir á Ross og Jemima Sts. austan Nena, $250: dto. rétt vestr af Nena $200. Auðveld borg. kjör.—Góðar lóðir á Young St. $225. Einnig ódýrar lóðirá Carey og Broadway Streets. Peningar lána'Kir tll bygjfinga meí góð um kjörum, eftir hentuglelkum lánpegja. CHAMBRE, GRUNDY & CO. FASTEIGNA-BRAKÓNAR, Donaldson Blockp • Wlnnlpeg — VIÐ SELJUM — SEDRUS- sjerstaklega ódýrt. —Einnig alls konar— TIMBUR. —SJERSTÖK SALA Á— Ameríkanskri þurri hvit-furu. WESTERH LUMBER COMPANY (LIMITED). Á horninu á PRINCESS OC LOCAN STRÆTUM OLE SIMONSON mælir með sínu nýja Scandinavian Hotel. 710 Maiij Str. Fæði $1.00 á dag. Bækur á ensku og íslenzku; Islenzk- ar sálmabækur. Rit áhöld ódýrust borginni. Fatasnið á öllum stærðum. Fergnson A t'e. 108 Mnin Mt., fiiipei • • • Man Brúkað af milllónum manna. 40 ára & markaðnum frátöldum veikstjóra; hann var ekki látinu vera nema einn yfir hverjum hóp, enda vóru til þess valdir vel metnir menn nýlendunnar sem vóru beinharðir flokksmenn stjórn- C. INDRIÐASON. S. B. BRYNJÓLFSSON. INDRIDASON & BRYNJOLFSSON, 0-A.nsrTO3sr, isr. pyvTC. VERZLA MEÐ Harðvöru, aktýgi, húsbúnað. Mlklar byrgðir af maskínuolíu. Ágætisvörur, bezta verð.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.