Heimskringla - 15.02.1893, Page 1
SATURDAYS
O L D I N.
AN ICELANDIC S E M l-W E E K L Y NEWSPAPER PUBLISHED ON WEDNESDAYS AND
VII. ÁR. NR. 15. WINNIPEG, MAN., 15. FEBRTjAR, 1893.
Karlinn og Gaukrinn.
„Sæll vertu nú, séra Hrossagaukur“,
sagði karl, ’ann maetti skrítnum
fugli.
Hinn f>& tér: „Ég heiti Páfakaukur;
hættu bara pessu fjandans rugli!
Þú á blðkkum syndakodda sefur,
séð hefi ég ei slíkan erki-bjána;
mig ef ei í heiðri stærstum hefur,
hendi ég J>ér beint í vítis gjána“.
Hljdðnar karl og hokinn burtu
gengur,
heimsku sína fór að yfirvega,
girntist ei við gaukinn eiga lengur,
er gretti sig og fetti skringilega.
Kakl.
Keptún.
(Eftir J. S. Velhavkn).
Éghlustaði einn, þarsem áin rann breið,
á inndæla Neptúns söngva;
í djupri kyrð lá alt um dagsins skeið
ogdagurinn leið, og dagurinn leið
unz dag-geisla sáég loks öngva.
Það er talað um Neptúns frelsi og frið,
hve fjörugthann dansar á steinum;
en fuglinn heyrir á háum við
hans hrygðar-klið, hans hrygðar-klið,
er hnípir hann þögull á greinum.
Þá húmið leggst yfir og alt er hljótt
um akra og hæðir og grundir,
þá Ijúfasta byriar hann Jag sitt íljótt;
lians löng er nótt, hans löng er nótt
og langar hans andvöku-stundir.
Hans sorgstun mér barst meðan sólin
skær
þar sé bak viðdökkleita skóga;
á björkunum nátt-döggin titraði tær,
en teigshæð fjær, en teigshæð fjær
sást tré-mynd hver lygnum á flóa.
Hann sló sína hörpu með hagri mund
og hljomfagurt söng hann kvæði:
„Ó góðanótt, rós mín sof blíðan blund
x blóma-lund, í blóma-lund;
ég bið að þig dreymi í næði.
„Þín fegurð svo hreinogsvo unaðsrík er,
þú ert íroynd ins sælasta í heimi;
hve hjarta mitt líður, er hulið þér;
ó hvar ég fér, ó hvar ég fér,
í hjarta ég minni þitt geymi'*.
S. B- Benedictson.
F R É T T I R.
ÚTLÖND.
—■ Gladsto r bar upp i fyrra kveld
í enska þinginu stjórnarskrár frum-
varp frlands. Meira um pað næst.
Hin hlið'in. Nú fer að bóla á að
pað eru tvær hliðar á Hawaii-mál-
inu. Það er aögn, óvilhallra
manna, alt ósatt, er sendinefnd
bráðabirgða-stjórnarinnar nefir frá
skýrt um tilefni byltingarinnar. Til-
efnið var eJctci, að drottningin ætlaði
að breyta ólöglega stjórnarskránni.
Mótstöðuflokkr stjórnarinnar á pingi
hafði gert verkfall (strike) og hindr-
aði pingstörf. Drottningu kom pá
til hugar að breyta stjórnarskránni
(ólÖglega Oj en ráðgjafar hennar
neituðu að skrifa undir slfkt, og
töluðu um fyrir henni. Hftn 1 t s r
þegar segjast, fór að ráðum ráðgjafa
sinna og hætti við. t>að eru Banda-
ríkjamenn, búsettir á eyjunum,sem
með aðstoð sendiherra Bandaríkja
hafa gert stjórnarbyltinguna pvert
á móti vilja parlendra manna. Or-
sökin kvað vera, að þar sem Banda-
rfkjamenn, er áttu sykrrækt mikla á
eyjunum, græddu stórfó á henni
meðan sykr var tollað f Bandarfkj-
unum, af því að sykr frá Hawaii var
tolllaust samkvæmt samningi, þá
mistu þeir þann gróða, er tollr var
tekinn af innflutningi alls sykrs, en
aftr gefin verðlaun fyrir sykr, er
ræktað var í Bandaríkjum. Nú
vilja þeir koma eyjunum undir rík-
in, til að ná í verðlaunin.
BANDARÍKIN.
Silfrkavpslögin eða Sherman-lög-
in, sem svo eru nefnd, hefir verið
farið fram á að nema úr gildi.
Nefndarálitið í neðri deild banda-
þingsins fór í þá átt, en 9. þ. m.
var nefndarálitinu vísað til nefndar-
innar aftr. Þetta lftrí fljótu bragði
Cit sem sigr fyrir silfr-mennina, en
er það þó ekki, ef betr er að gætt.
Mál þetta hefir aldrei verið flokks-
mál; en þó hafa silfr-vinir hingað
til verið tiltölulegafjölrnennari með-
al sérveldismanna. Nú var tillag-
an um að vísa tnálinu til nefudar
aftr, samþykt með 153«gegn 142
atkv. En með tillögunni vóru 108
sérveldismenn, 35 samvelrlisrnenn
og 10 alþýðuflokksinenn; móti vóru
103 sórveldismenn og 39 samveld-
ismenn. Eit flestir þeir sarnveldis-
menn, sem nú greiddu atkv. fyrir
að vísa málitiu til nefndar aftr, eru
menn, sern eru af skoðun með aftr-
köllun laganna, en igreiddu atkv. í
þetta sinn gegn sannfæring sinni,
til þess að koma í veg fyrir, að
neðri deild fengi heiðrinn af að
koma málinu fram, af því að ineiri
hlutinn í deildinni erusórveldismenn.
Slík er föðurlandsást sumra sam-
veldismanna. Það er nú talið vfst,
segir N. Y. Even. Post 9. þ. m., að
Cleveland, þótt hann hefði helzt
viljað komast hjá þvf, kalli saman
aukaþing í Marz seint eða snemma
í Apríl.
— Nebraska þingiö hefir loksins
7. þ. m. kosið þingmann til efri
deildar bandaþings: W. B. Allen
dómara; hann er af alþýðu-flokki.
Með þeirri kosning er útséð um, að
samveldismenn geti fengið meiri
hlut í efri deild bandapingsitis, er ið
nýja ping kemr saman.
— Yfirvofandi hungrdaugi í Loui-
siana. Málpráðarfregn frá Memphis,
Tenn.,8. p. m. til N. Y. Even. Post
segir frá, að í Concordia og Cata-
houla-sóknum f norðrhlut Louisiana
só um fjórar púsundir manns, sem
liggi við hungrdauða. Ef eigi er
bót á ráðin þegar f stað, hljóta
margir að láta lífið af hungri. Vatns
flóðin par í sumar, er leið, eyddu
allri uppskeru, og vatnið lá svo
lengi á jörðunni, að eigi var auðið
að planta baðmull eða nokkuð ann-
að, að fráteknum fáeinum bráð-
proska matjurtum. Mörg hundruð
manna fluttu sig burt úr landspláss-
lnu> en þúsundir manna urðu að
verða eftir. 1 vetr hefir fólkið lifað
á dýraveiðum, en nú þrotnar sú
björg. Kaupmannasamkundurnar í
Memphis, Wieksburg og New Or-
leans hafa bundizt fyrir að safna
hjálp. Kaupmannasamkundan í
New Orleans hefir gefið $5000.
— Gresham hæstaróttardómari var
fyrir nokkrum árum eitt af forseta-
efnum Bandaríkjanna af flokki sam-
veldismanna. En hann hefir aldrei
verið hátolla-maðr, og hann hefir
jafnan haldið pvf fram, að etnbætti
ættu að veitast eftir þekking og
hæfileikum, en ekki sem laun flokk-
fylgis. Þegar Cleveland ávann það
að fá sórveldisflokkinn til að taka
upp tolla-afnáin sem aðalmál sitt,
lýsti Gresham yfir pvf, eins og Hkrr
gat um í haust, að hann gengi úr
liði samveldismanna ogstyddi Cleve-
land. Vakti pað eftirtekt um allan
heim, að gamalt forseta-efni úr
andstæðingaflokknuin gekk á hönd
Cleveland. Núhefir Cleveland beð-
ið Gresham að verða æðsta ráðgjafa
sinn (minister of state), og hefir
Gresham lýst yfir þvf að hann tæki
stöðunni.
Winnipeg.
—Ið íslenzka byggingarmannafé-
lag heldr aukafund á Assiniboine
Hall næstkomandi föstudagskveld
kl. 8 e. m. Verkefni fundarins
verðr að fjalla um mál mikils varð-
andi félagið, og er því alvarlega
skorað á alla fólagsinenn að sækja
fundinn.
Jóh. Bfarnason
forseti.
— Arðrinn af samkomunniá laug-
ardaginn iil inntektar Mrs. Lambert-
son, varð að frádregnum kostnaði,
$73,75. þar af kom inn fyrir köku
$8,80: $9—lOvóru gjafir; hitt kom
inn fyrir sölu aðgöngumiða.
— Rétta .103 nýja kaupendr hefir
Plkr. fengið siðan um nýjár. (Eitt
blað, nr. 43, af fyrra ári er nú upp-
gengið, en ekkert missist úr neðan-
málssögunni fyrir það.)
— Únítara-8öfnuðrinn er að und-
irbúa tombólu til inntektar fyrir
söfnuðinn.
—A laugardagskveld kl. 8 verðr
ársfundr i Únítarasöfnuðinum hald-
inn I samkunduhúsi Uuítara. Aliir
beðnir að mæta, sem með nokkru
móti geta.
I8!i£, Rjominn af llavana
uppskerunni.
„La Cadena" og „La Flora" vindlar
eru án efa betri að efni og töluvert ó-
dýrari heldr en nokkrir aðrir vindlar.
Fordómsfullir tóbaksreykjendr vilja
ekki kannast við það, en þeir, sem
vita hvernig þeir eru tilbúnir, kannast
við það. S. Davis & Sons, Montreal [15J
„Clear llavana Cigars"
uLa Cadena” og 1(La Flora” Biddu
ætíð um þessar tegundir. [11]
— Nr. 14 og nr. 46 af síðasta
ári Hkr. verða keypt á skrifstofu
blaðsins. Þeir, sem selja vilja, sendi
oss brófspjald með verði, en ekki
sjálf blöðin fyrri en vór svörum boð-
inu.
— Stefán Oddleifsson Notre Dame
Str. gefr kjörkaup um þessar mund-
ir. Hvergi betra verð á groceries.
Frá löndum.
TINDASTÓLL, ALBERTA.
4. Febrúar.
Hóðan er fátt að frétta nema að
tíðarfar er ið lang-lakasta, sem
nokkru sinni hefir verið síðan landar
komu hér Ekki kom þó SeDtbr,-
hretið eins og vanalega, en 15- Okt.
kom stórhríð, svo þann 16. vóru-
komnii- stórskaflar. Kuldatíð hólzt
til Nóvember, þá mildaði, svo snjó
nær því tók. Um miðjan Nóv.
spiltist aftr með snjókomu og frost-
um, sceig þá frost oft í 26 stig
fyrir neðan zero. Með Deceinber
mildaði og milli þess 10. og 18.
var ofr frostlaust dag og nótt.
Eftir oann 18. komu hríðar og
hörkur, og varð þá mest frost
45 stig. Milli hátíðanna var vægra.
Á nýársdag hríð. Eftir það komu
góðviðri til þess 23. Janúar; þá
brá tii ins lakara og hefir það hald-
izt si a.li orr frost stuiiduin orðið
O
50—60 fyrir neðan zero. * Fyrir
löngu er jarðlaust fyrir sauðfé og
nautpening, en hross ganga eun
og eru í góðu útliti. Þessi langa
og harða vetrartíð kom mönnum í
[•essari bygð því ver, setn þeir
höfðu orðið fyrir stórkostJegum hey-
skaða siðastliðið haust, sem orsak-
aðist ; f eldi, sem etiskir náungar
sendu pkkur; við þann eld börðust
menn I 6 vikur, og mistu þó uin
200 ton af heyi oggóðu liausttíðina
frá að hlynna að heimilum sfnum.
VÍMiia hefir verið hór næg hjá
bæni' j|n í grend, ég enn eru allir
landa* sem frá heimilum sínum
komast, í vinnu.—Hér er andlega
lífið einstaklega rólegt, enda er
hór eaki prestr, ekki sálnasöfnuðr;
enginn flytr hér fyrirlestr, hvorki
um ritningar nó ,,rófur“, og ekki
eru hér heldr hafðar hlutaveltur,
framin kökuskurðr eða dnns, svo
engirrífast, ekkert er deiluefnið.—
Flestir búendr hér kaupa „Hkr,“,
nokkrir „Sam.“ og fáeinir „Lögb“.
Að líkindum lýsir kaupendatala á-
liti manna á blöðunum. Bæði óg og
fleiri hafa fengið Yard of Pansies,
og munu menn álíta það þess virði,
sem fyrir það var gefið. Það sýnd-
ist vera óþarfi fyrir Lögb. að gera
mikið veðr út af jafn lítilfjörlegu
atriði, annars lítr helzt út fyrir, að
Lögb. álíti allan þorra manna bjána,
en þó þurfa fæstir að fá Lögb. til að
útvega sér stöðu með því að rægja
aðra frá atvinnu, af því fáir eru
svo heimskir að þeir ekki geti
sjálfir með ærlegu móti unnið sér
brauð, og ekki sózt það í Lögb., að
þar sé allr vísdómr veraldarinnar
samansafnaðr, svo þess vegna hljóti
flestir að vera aular.
S. B.
staðviðri á milli. 30. f. m. var hór
ið mesta hvassviðri sem elztu menn
muna; fuku þá víða þök af húsnm
og sum hrundu alveg til grunna.
Hey, og fleira sem lauslegt var, fauk
og einnig til stór-skemda.
Hér í Ulah County er skaðinn af
veðrinu metinn um $10,000; viðar
höfum vór einnig heyrt getið um
skaða, en vitum ekki með vissu>
hvað miklu það nemt. Landar vor-
ir hór urðu ekki fyrir neinum skaða,
sem betr fór.
\ erzlunardeyfð og atvinnuleysi er
hór með mesta móti, yfir alt heila
Utah Territory. Ég man ekki til að
hafa séð mikið daufari tíma, eða
heyrt ver af því látið í dagblöðum
vorum, og furðar mig þó á því, þar
sein nú er að miklu leyti Demokrata
stjórn í landinu.
Hór er nú á dögum mikið og mest
talað uin inntöku Utah Territories
í ríkjasambandið. Það lítr frekar
líklega út með það, eftir fróttum frá
Washington að dæma. Margir eru
og þeirrar trúar, að Harrison muni
skrifa undir inntökuleyfið, Ciðr en
hann skilr við, 4. Marz í vetr.
Hér í Utah eru mikið deildar
meiningar hjá fólki með það, hvort
betra só, að Utah sé State eða
Territory; og stjórnin sjálf hefir alt
hingað til verið í stórum vafa með
það. Vitanlega er aðalorsökin til
þessara efasemda sprottin af trúar-
brögðum mormóna, og hafa þau stað-
ið í vegi fyrir inntöku Utah í æði-
mörg ár. Nú hafa mormónar lofað
að hlýði landdögum rækilega hér
eftir, og er þar fyrir meiri líkur til
að Utah fái inntöku. Meiri hluti
samveldismanna I þinginu eru líaa
meðmæltir inntöku-fruinvarpinu, og
af þvi er sú von sprottin, að sá tími
só nCi nálægr, að Uth verði State.
Mrs. Soflfía Valgarðsson, kona Mr.
Pétrs Valgarðssonar, andaðist að
lieimili sínu hór í Spanish Fork inn
5. p. m. Dauðamein hennar var
barnsfararsótt. Ilún var dótt-
ir Jóns bónda Pélrssonar, og Vil-
borgar Þórðardóttur, sem lengi
bjuggu í Elínarhúsi á Vestmanna
eyjum. Hún var að eins 29 ára að
aldri er hún lézt; hún skildi eftir
auk mans síns, móður og tveggja
systkina, 6 börn, ið elzta á tiunda
ári, en ið yngsta nýlega fætt, auk
fjölda vina, sem allir syrgja hana
sáran.
Sofía sál var talin með merkari
konum hér í bæ, og einkarvel liðin
af öllum er hana þektu. Hún kom
ung til Ameríku, og giftist herra
P. V. þegar hún var á nítjúndaári.
E. H. J.
Til skemtunar og
fróðleiks.
— „Skelfilegr eyðslubelgr ertu,
maðr“, sagði maðr við kunningja
sinn, „að kaupa konunni pinni svoca
ákaflega dýran hring“. — „Þvert á
móti“, svaraði hinn; „pað var mesti
sparnaðr fyrir mig; því að síðan
hún fókk hringinn hefir hún eytt
helmingi minna en áðr fyrir hanzka“.
SPANISH FORK, 10. Febr. '93.
(Frá fréttaritara vorum).
Síðan ég skrifaði siðast hefir nú
fátt sögulegt skeð. Tíðin er fremr
umhleypingasöm; regn og snjór falla
hór á vfxl, og svo er sólskin og
*) Um frostin hefi ég ýmsra manna
sögusögn.
Höf.
Þegar þið þurfið meðala við,
þá gætið þess að fara til Central
Drug Hall, á horninu á Main St.
Mraket Street.
tSLENZKR LÆKNIR:
I )í*. M. I Ialhlorsson.
Park River, — — — N. Dak.
— Borgarstjórinn 1 Lundúnum
segir, að 9 af hverjum 10 málum,
sem koma fyrir lögreglurétt þar,
stafi af drykkjuskap.
ISAFOLD
kostar í Ame-
ríku$1.50, ef
fyrirfram er borgað, ella $2.00. Nýir
kaupendr fá ókeypis 3 hindi (um 800
hls.) af Sögusafni. Leggið $1.50 í registr-
hréf, eða seiulið P. 0. money order, og
þá verðr blaðið og Sögusafnið sent yðr
um hæl, og hlaðið áfram meö hverri ferð
D*PRICE’S
Powder
Thejonly pure Creain of tarter Powder, engin ammonia ekkert A1 um.
Brúkað af millíónum manna. 40 ára á markaðnum
TÖLVBL. 369
lei, sko!
„Heimskringla" lætr sjaldan færl
hjá líða til að gera kaupendum
sínum hagnað.
1 þetta sinn bjóðum vér fram til
1. Marz þ. á. sórhverjum gömlum
kaupanda, sem borgar (eða hefir
þegar borgað) yfirstandandi árgang
að selja honum eftirfylgjandi muni
með tilgreindu verði. Nýir kaup-
endr, sem sar.da oss $1 fyrir þenn-
an árgang, geta fengið sömu kjör.
fíorgun verðr að fylgja pöntuninn*
til vor. Kaupendr í Bandaríkjun-
um fá hlutina frítt senda til sín, en
kaupendr í Canada verða við mót-
tökuna að borga tollinn (15 cts. af
dollarnnm).
Veggkort á keflum, öðrumegin
Bandaríkin; hinumegin öll
jörðin (hvor hllS 18 ferh. fet) $1,25
Oóð ritvél (typewriter)—ekki
dollars-ieikfang 2,00
Jewels of songs, 145 pieces, words
and Music 20
Irwign: Life of Columbus, pa-
per bound (735 pages, illu-
strated) 40
Snme cloth bound 7f.
Woods Natural History, 800 pag-
es, 500 engraviugs, cloth
bound 1,45
Oeorge Eliot's cornplete Works,
6 vols, ab. 3600 pages, 1,00
Samecloth bound. 1,95
Walter Seotts Works, 12 vols.,
complete 2,00
Cooper: Leather Stocking Tales,
in 1 vel. 85
Same, large Ed. 2 500 pages,
in 5 vols. 0,80
Same, 5 vols. cloth bound 2,20
Longfelloics Poems, 1 vol., 300
pages, 0,30
Whittier's ------ 1 voi., 300 p. 0,30
Bryant's -------- 1 vol., 300 p. 0,30
All three volumes for 0,75
Choice Recitations & Readings,
4 vols. 0,60
Washington Irwings Complete
Works, 10 vols., over 5000 pa-
ges, pap. bound, large type 1,90
Same cloth bound, 4,10
Dickens Comvlete Works, 15 vols. 1,90
Same, cloth bound 5,10
The Surprise Cook book 1000
receipts, 185 pages 0,20
Stormonths UnabridgedDictionary
of the English language 1200
pages, 1,25
Shakspeare's Complete Works, 1468
large quarto pages, steel en-
grav., 7xl0J4 inches, 3 inches
thick, cloth bound 2,10
Irwing's Life of Washington, 640
pages, illustrated, cloth bd. 0,90
Þetta verð bjóðum vór að eins
kavpendum Hkr., nýjum sem göinl-
um, er borgað hafa yfirst. árg____
Þótt keppinautar vorir verði gulir
og gráir af öfund og ergelsi og
skrifi dálk eftir dálk af óhróðri um
oss, þá vonum vér það mæli að
eins með boði voru. Allir vita, af
hverju það sprettr. Vór skulum á-
byrgjast, að þetta eru y'kjulaust á-
gœtustu kjörkaup. Ekkert íslenzkt
blað hefir nokkru sinni boðið neitt
sem nálgast það.