Heimskringla - 31.03.1894, Side 1
VIII. AR
NR. 13.
Heimskringla.
WINNIPEG, MAN., 31. MARZ 1894.
Hj á nnnustunni.
Ei stjarnan hug minn heillar
þótt henijar tindri rún,
um kveld þín brásól blíða
mér bjartar skín en hún.
Og ei fær rós í runna,
þótt rauð sé, alt mitt hrós.
því kinn þín, elskan unga,
á yndislegri rós.
Nú sinni’ ég ei um söngfugl
þótt syngi’ hann dægur löng,
því ástar þinnar óður
mér ómar blítt í söng.
Nú kýs ég ei að una
njá engla björtum her,
— í unun æsku þinnar
þú engill lífs ert mér.
J. R.
15. Marz 1894.
FRÉTTIR.
DAGBÓK.
íLaugaudao, 24. Marz.
Itáðanoyti sambandsstjórnarinnar
hefir gefið út lög um fiskiveiðar í
Winnipeg-vatni, er segja, að eftir næst-
komandi sumar (1894) verði fiskifélög-
um ekki leyft að viðhafa önnur net
en dráttarnet. Þeir, sem búandaleyfi
kaupa, eru, að því er séð verðr, und-
anskildir.
Dr. Nettleship, augnlæknir í Lund-
unaborg, kveðst vonast eftir að geta
svo bætt sjón gamla Gladstones, að
hann’geti lesið á bók vandræðalaust.
Tilraun er verið að gera til að út-
vega nýjan markað fyrir hvítfisk. A.
AV. Ross, sambandsþingm. fyrir Lisgar,
Man., er að útbýta fiskinum gefins í
Ottawa, þar sem hann er óþektr, eins
og hvervetna í austrfylkjunum. Yænta
menn góðs af því fyrirtæki.
Bóluveiki kom upp meðal Kínverja
í Vancouwer, B. C., nýkomnum yfir
hafið. Bæjarstjórnin vonar að hindra
útbreiðslu veikinnar,
Edwartl Blake fær ákúrur hjá írsku
blaði fyrir afskifti hans af fjármálum
flokksins, sérstaklega að því er snertir
fjársamskot í Canada flokknum til
hjálpar.
Manudag, 26. Makz.
Péturskyrkjan (kaþólsk) í Montre-
aí var vígð á páskadaginn. Er hún
rett eftirlíking Péturskyrkjunnar i
Pómaborg, en réttum g minni. Smíð
bennar hefir staðið yfir síðan 1870.
I Montreal er verið að gera til-
raun til að sameina í eitt félag öll
látúns og kopar-verkstæðisfélög í Can-
ada.
í Norör-Dakota er talað um að fá
bændr í félag til þess að leggja járn-
braut frá Rauðá vestr að Turtle Moun-
tains, skamt fyrir sunnan Manitoba-
landamærin. Porgöngumennirnir gera
sér góðar vonir um að þetta gangi.
— Brazilíu-fréttir segja, að upp-
reistarmcnn hafi nýlega höndlað stjórn-
arlierskipið “Yday” fermt vistum og
v°pnum. Samdægurs koma þaðan
fregnir í þá átt, að Peixoto forseti hafi
UPP úr þurru haft herforingja skifti og
nð ástæðulausu. Enn fremur er sagt,
'ð Peixoto hafi skipað að taka uppreist-
*rmenn af lifi og mælist það illa fyrir.
—Kjósendur Gladstones neita að
viðrkenna bréf hans til flokkstjórans í
idlothian sem kveðju. Halda því
fram, aðirauninni sé ilann stjórnar-
formaður enn, að öðru en nafninu, og
vonast eftir aQ ilann komi fram a or-
ustuvöllinn næsta sumar í kosninga-
sennu, eftir að sjónleysi hans hefir ver-
ið hjálpað.
Sjóflotastjóri Bandaríkja, Hilary
A. Herbert, sýnir fram é pað í löngu
bréfi, að samningar Carnegies, Phipps
& Co. við fyrverandi stjórn um bryn-
smíð o. þ. h. sé ein hin 8tærsta svika.
milla er þekkist í sjóflotaSögu Banda-
ríkja.
Á sunnudaginn 25. fanst lik manns
er hafði orðið úti á sléttunum ná-
lægt Portage La Prairie, Manitoba, í
bilnum mikla a Föstudagskveldið 23
þ. m. Átti heima í P. L. Prairie.
Þriðjudag, 27. Marz.
Sambandsþingið í Ottawa, Canada,
tekr til starfa aftr, í dag.
Stór hópr Ontario-bænda leggr
af stað frá Toronto í dag. Eru að
flytja búferlum til Manitoba og N. W.
landsins.
,Sósíalistar í Belgíu samþykkja á-
skorun um að konungr þeirra leggi
niðr völdin og að lýðveldi sé stofnað.
Bandaríkja Senators af Ivyrra-
hafsströndinni kvað allir vera- ein-
huga í að berjast gegn fyrirhuguðum
samningi Bandaríkjastjórnar við Kín-
verja. Itepublikan Senators úr vestur-
fylkjunum lofa þeim að sýna ein-
dregnu fylgi í þeirri baráttu.
Evrópu-fregn segir stórveldin vilj-
ug til samvinnu, er miði til minkandi
hérkostnaðar. Vilhjálmr keisari við-
förli kvað vera leiðandi andi í þess-
ari ráðagerð.
Eftir nokkurra daga uppistand
afræðr ráðanteytið í Belgíu að sitja
að völdum. Að eins 2 menn ganga
úr þvi.
—Prendergast, banamaður Carter
Harrisons borgarstjóra í Chicago, fær
nýtt tækifæri til að verja lif sitt. Hef-
ir fengið dómara, er vill ránnsaka mál
hans á ný, og á nú að sýna og sanna,
hvert hann var með fullu viti eða ekki,
er hann vann á Harrison. Rannsókn
þessi verður hafin í dag.
I Hawaii er alt í uppnámi, segir
Daves fjárhaldsmaður prinzessunnar,
nýkominn til Washington. Er hann
þar í þeim erindagerðum að fá skýlaust
svar upp á það, livað Bandaríkjastjórn
ætlar að gera. Segir að svo búið megi
ekki lengur standa, og ósatt að bráða-
byrgðarstjórnin ætli að stofna verulegt
lýðveldi. Það gæti ekki átt sér stað,
þvi atkvæði lýðsins mundu þá undir
eins sýna, að konungsstjórn er eyjar-
skeggjum kær komnari en lýðstjórn.
—Hið endurritaða toll-lagafrum-
varp Bandaríkjastjórnarinnar er nú al-
tilDúið og verður tekið til umræðu í efri
deild þingsins mánudaginn 2. Apríl.
— Á páskadaginn var hafin ein-
kennileg herganga frá þorpinu Massil-
lon í Ohio. I fyrstu var búizt við
mörgum hundruðum, ef ekki þúsund-
um, í göngunni, en er til kom urðu
ekki nema 100 manns í göngunni.
Þessi göngumannafiokkur nefnir sig
"Eriðarhérinn” og er undir forustu
trúarvinguls cins frá New York, er J.
S. Coxey heitir. Fyrirætlanin er, að
ganga til Washington og heimta, að
stjórn. atvinnu fyrir alla og alls konar
lagabætur fjwir lýðinn, er losi hann
undan oki auðvaldsins. Flestir í íör-
inni eru fiækingar og þess konar ó-
þjóðalýður, og hafa þegar verið gerðar
ráðstafanir um að taka “hermennina”
íasta í.bæjum, sem þeir fara um og fara
með þá eins og almenna flakkara. Fyr-
irætlan Coxeys er að hafa fund mik-
inn á vellinum umhverfis þinghúsið 1.
Maí, en þar eru allir fundir og mann-
söfnuðir fyrirboðnir með lögum, og er
búizt við að gráni leikurinn, ef þeir
reyna að troða þau lög undir fótum.
Þrátt fyrir auðséna vitleysu þessa, rign-
ir peningum daglega til Coxey frá auð-
ugum heimskingjum, þessu “góða mál-
efni” til styrktar. E;nn slíkur sendi
honum um daginn 8300 og lofaði $55 í
hverri viku á meðan herferð þessi stend-
ur yfir.
—Bindindismenn úr öllum áttum
Canada komu saman á fundi í Ottawa,
til að lieimta algert vínsölubann í Cana-
da. Stjórnarform. Sir J. Thompson
svaraði ræðum þeirra, og gaf þeim
enga von um aðgerðir íþvímáliíár,
svo virtist þeim að minsta kosti.
—Landafræðisfélag í Quebec biður
sambandsstjórnina að senda nefnd
manna til jarðfræðisrannsókna um-
hverfis Hudson-flóa, og til að athuga
aðferð sela- og livalfangara á flóanum.
Midvikudag, 28. Marz.
Tollbreytinga-frumvarpið var lagt
fyrir sambandsþingið á þriðjudags-
kveld. Um leið flutti f jármálastjórinn
ársskýrslu sína og sýndi áætlaðar tekj-
ur og gjöld á næsta fjárhagsári. Alls
nemur tolllækkunin $1.250.000. Tollur
á akuryrkjuverkfærum er færður nið-
ur um 15%, úr 35 í 20% að meðaltali.
Á vögnum (hostavögnum bænda o.þ.h.)
er tollurinn færður niður i 25% ; var
$10 og 20%. Á skrautvögnum er toll-
urinn eins og áður, eða líkur — var
mismunandi, en or nú 35%. Á járni
(í stöngum) er tollurinn færður úr
$13 í $10 á tonninu og á járn og stál-
plötum af ýmsri tegund er tollurinn
lækkaður svo miklu nernur, og er ætl-
ast til, að fyrir það megi enn meir
lækka verð akuryrkjuverltfæra. Tolli
er algerlega svipt af söguðum
horðum og öllu timbri, járnbrauta-
höndum og tunnustöfum, þakspæni o.
s. frv., og er það gert sérstaklega
vegna Manitoba-manna. En svo er
ákveðið, að leggi stjórn annars ríkis
toll á borðvið o. s. frv. innfluttan frá
Carada, má Canadastjórn moð aug-
lýsing þess efnis leggja toll á óunna
bjálka höggna í Canada en flutta til
sögunar í önnur ríki. Á steinoliu er
engin breyting ger, en tollurinn á olíu-
tunnunni er færður niður um helming,
úr 40 í 20 cts. Náma-vélar allar, sem
ekki eru enn smíðaðar í Canada, eru
tollfríar til 1. Maí 1896. — Tollur á
hveiti-bandi stendur í stað, er 12J%.
Á girðinga-vír (gadda-vír) er tollurinn
lækkaður um helming, úr 1J í |%.
Á nöglum af öllum tegundum er toll-
urinn ákveðinn 30%, er það talsverð
lækkun í heild sinni, var áður mis-
munandi. Á húsbúnaði öllum úr tré,
járni o. s. frv., er tollurinn 32J%, var
áður 85% og mismunandi eftir því,
hvaða hlut var um að gera. Á lif-
andi peningi (öðrum en svínum) er toll-
urinn lækkaður úr 30 í 20%. Á lifandi
svínum er tollurinn 25% ; áður 2 cts. pd.
Á nýju sauðaketi er tollurinn færður úr
3 í 2 cts. pundið; á svinaketi er tollur-
inn 25%, var áður lj til 3 cts. pundið;
á höfrum er tollurinn óbreyttur—10 cts.
bush.; sama er um bygg og mais, að
tollurinn er óbreyttur (á byggi 15 og á
mais 7| cts. bush.), en svo er ákveðið
að undir eins og annara ríkja stjórn
tekur toll af byggi og mais frá Canada
verði þessi tollur afnuminn. Á sauma-
vélum er tollurinn færður niður í 80%
var áður $3,00 af hverri einni og 20%.
Á hljóðfærum er tollurinn 30%, hvaöa
hljóðfæri sem um er að gera: áður var
hann 25% minst, en mikluhærra á sum-
um. Á léreptum er tollbreytingin mik-
il og niðurfærsla tollsins töluverð, en
þó ekki eins mikil eins og breytingin er
margvísleg. Á’ silkivarningi stendur
tollurinn í stað; hæst 30%. á ullarvarn-
ingi og ullarbandi er tollurinn færður
nokkuðniður og honum breytt í ein-
faldari búning; er nú 271 til 30%, en var
áður 10 cts. pundið og 20%. Tollur er
numin af öllu htarefni í hvaða mynd
sem er. Á mókolum (eða linkolum) er
tollurinn ólireyttur—60 cents tonnið,
en numin er hann af þeim kolum, sem
búið er að taka alt gasefni úr, þ. e
“Coke’i; var áður 50 eents á tonuinv.
Á áfengisdrykkjum er tollurinn eins og
áður, en á malti er hann lækltaður
um J.
Á bókum er tollurinn ákveðinn 6
cts. á hverju pundi bókarinnar, í stað
15% er áður var. Á enskum bókum er
aukatollur, er nemur 12i% eitt ár enn,
til 27. Marz 1895, en rennur í sjóð liöf-
unda bókanna.
I ræðunni gatFoster þess, að næsta
haust yrði canadiski skipaskurðurinn
milli Huron og Superior-vatna fullgerð-
ur, en þá væri samt eftir að vinna $10
millióna virði af umbótum á Lawrence
fljótinu, áður en stórskip gætu farið
eftir þvi óg vestur um stórvötnin til
Port Arthur.
Sú ályktun var dregin af ræðunni,
að ekki verði langt að bíða alinennra
kosninga.
—Lík Lúðvígs Kossuths var fært á
járnbrautarstöð í Turin á Italíu og það-
an áleiðis til Buda Pesth í Ungverja-
landi. Öll 'stræti borgarinnar á leið
þeirri er farin var að vagnstöðinni voru
þétt sett af áhorfendum. Ungverslcir
stúdentar í þjóðbúningi sinum mynd-
uðu heiðursvörð umliverfis líkbörurnar.
Pjöldi mesti af erlendum mönnum og
flestum þjóðflokkum voru viðstaddir til
að heiðra útför þjóðskörungsins. Borg-
arstjórinn flutti lofræðu mikla um
Kossuth á járnbrautarstöðinni.
—Kosninga-óknyttir eru uppkomn-
ir i Newfoundland. Utlit þykir að allir
í ráðaneytinu séu sekir i mútugjöfum,
og líkindi til að þeir verði sviftir kjör-
gengi.
— Gladstones-sinnar unnu tvær
kosningar, er fram fóru á Skotlandi i
gær.
—Fregnbréf frá Englandi segir í
vændum, að Peol þingforseti segi af sér,
sömuleiðis Justin McCarty og fleiri
af Parnell-ita andstæðingum.
—Samkvæmt skýrslum frá toll-
búðum í Quebec hafa 8,400 fjölskyldur
flutt inn í fýlkið frá Bandaríkjunum
síðastl. ár—alt fransk-canadiskir menn,
horfnir heim aftur. AUs er tala þessa
afturkomna fólks sögð 42,000.
— Sambandsstjórnar-skýrslur sýna,
að við síðustu áramót voru í Canada
fullgerðar 15,320 mílur af járnbrautum
auk 2,012 mílna i liliðarsparum. Höf-
uðstóll allra járubrautafélaga var þá
$872 156 475.
Fimtudag 29. Marz.
Repubhkar í Minnesota hafa aðal-
fund í Minneapolis í sýninga-skálanum
stóra í dag. Komu þar saman 8,000
manns í gærkveldi til að hlusta á
Ohio-Governórinn Wm. McKinley.
Óvanaleg kuldatið hefir gengíð
hvervetna eystra og syðra alla þessa
viku.
%
Kaþólsku biskuparnir í Quebec
hafa sent ávarp til presta sinna í
tilefni af skólamálinu. í því tileinka
þeir kaþólskum mönnum rétt til að
uppfræða börn sín eins og þeim þyki
hentast fyrir trúflokkinn. Réttindi
þessi byggja þeir á aldri kyrkjunnar
í Ameríku og tilraunum hennar að
útbreiða mentun.
Frumvarp um að lögleiða gerðir
nefndarinnar í Behringssunds-málinu
verðr lagt fyrir þing Breta í dag.
360 kassar fuhir af Dynamile
fundust í gær í húskjallara í sjó-
staðnum Vigo á Spáni.
Lundúnablöðin Times og Westminit-
er Gazelte láta vel yfir toll-lækkun-
inni í Canada. og sjá að hún hafi
góðar afleiðingar.
Það kom fram í dag, er lengi
hafði verið búizt við. Cleveland for-
seti synjaði Bland-silfrlögunum stað-
festingar. Gerir nú Bland ráð fyrir
að draga saman lið sitt og ónýta
gerðir forsetans, en til þess þarf hann
§ atkvæðanna í neðri deild, en það
er 80 atkv. fleira en hann hafði, er
frumvarpið var samþykt í fyrstu,
Hann býst ekki við að “umvenda”
neinum þeirra er þá voru á móti
honum, en væntir eftir liðsafla úr
flokki þeirra 56 þingm. er ekki voru
við, er atkv. greiðslan fór fram.
AUir aðrir enu hann ijálfr segja ó-
hugsandi að yfistíga neitun forset-
ans.
Nærri því $106 milj. í guUi voru
í fóhirzlu Bandaríkja í lok síðustu
viku.
Kuldakastið siðasta hefir gert
stórtjón suðrundan, eyðilagt tóbak og
fína ávexti og enda korntegundir, i
Illinois, Indiana, Missouri, Kentucky
og jafnvel í ríkjum lengra suðr í
landinu.
Foriugi Brazilíu uppreistarmanna,
Da Garna, er í Buenos Ayres í Arg-
entinu, en fær ekki landgöngu leyfða,
fyrir aðgerðir Peixctos forseta í Braz-
ihu.
—Verkstæðaeigendr i austurfylkj-
unum eru margir hverjir óðir og ærir
síðan ut kom tollbreytingafrumvarp
Fosters. Þeir sem búa til girðingavír
láta mest til sín heyra.
—Hveiti hækkaði í vorði svo nemur
3 cents á Chicago-markaðnum í gær.
— Kaupmanna-samkundan í St.
Jóhns, New Brunswick, andæfir því að
sambandsstjórnin veiti Huddard-fólag-
inu $750,000 styrk á ári til að koma upp
hraðskreiðri gufuskipa-línu milli Eng-
lands og Canada. Það eru.fáir mánuð-
ir síðan þessir sömu menn mæltu fast
með þessari fjárveiting, en þá höfðu
þeir von um að St. Johns yrði hafnstað-
urinn á vetrum, en nú er Halifax út-
valinn hafnstaöur ; þess.vegiia “breyt-
ist nú hljóið í strokknum”.
FRÁ LÖNDUM.
Ur bréfi frá I’arli River, 20 Marz ’94.
..........landi vor, Dr. Kristján
Jónsson í Clinton, Iowa, er af forseta
Bandaríkjanna skipaðr “United States
Examining Surgeon” í Clinton county.
Spanisii Fork, 19. Marz.
(Frá fréttaritara vorum).
Það er hvorki mikið eða merki-
legt sem til tíðinda gerist hjá oss
Utah-búum nú á þessum dögum.
Tíininn hðr áfram í nokkurskonar
logni og bhðviðris mollu, án stór
slisa; eða neinna sérlegra nýunga.
Það skifti um tíðarfarið með
bjTjun þessa mánaðar, og hafa síðan
verið hlákur og blíðviðri. Snjór er
allur upptekin af láglendi, og jörðin
nærri þur. Sáning er nú rétt að
byrja.
Ekki rætist neitt fram úr með
atvinnuna; hver skarar nú eld að
sinni köku upp á þann máta sem
best gegnir. I inum stærri bæum
hér, t. d, Salt Lake City og Ogden,
eru vandræðin af atvinnuskortinum
kvað mest, og hafa bæarstjórnirnar
þar sett upp hin svo kölluðu súpuhús
(soup houses) til að halda lífinu í
fátækum og atvinnulausum verkalýð.
Hér í vorri borg, er ástandið
þeim mun betra, aö vér höfum en
komist af án þessara súpuhúsa; ekki
svo að skilja, að hér sé ekki nóg af
fátækum, og átvinnulausum, heldr að
það er nokkuð meiri jöfnuðr í efna-
legu tilliti hjá oss en sumum með-
bræðra vorra.
Á meðal landa vorra hér, ber
einnig mjög lítið til tíðinda; oss líður
öllum bærilega, og lifum í góðri
von um að tímar fari að skána; þó
aldrei verði fyrri en 1896.
. E. H. ,T.
Chicago, 15. Febr. 1894.
Föstudaginn 9. þ. m. burtkallað-
(ist af hjartaslagi Hernit Jónsson>
Hann var á leið til vinnu sinnar, og
lítinn spöl frá heimili sínu gekk hann
inn til að taka kveldverð, en á meðan
hann var að borða hné hann örendur
af stólnum. Hernit sál. var sonr Jóns
Jónssonar, fyrrum bónda á Vaði i Að-
alreykjadal í Þingeyjarsýslu. Árið
1873 fluttist Hernit sál til Ameríku,
og hin síðust liðin 13 ár dvaldi hann
hér í Chicago, allan þann tíma til
dauðadags vann hann sem nætrvörðr
fyrir Chicago-Pacific Elevator Comp-
any. Hern'it sál. var vel liðinn af
öllum sem við hann kyntust; geðprýði
hans og viðmót við hvern mann var
annálsverð; hann var ástrikr faðir,
trúfastr vinr, kyggr þjónn, hjálpsamr
og hjartagóðr við alla þurfandi; það
vóru margir sem til hans leituðu
þegar þeim lá á hjálp, og lét hann
engan synjandi frá sér fara; hans er
mikið saknað af okkar fámenna hóp
Islendinga hór í Chicago. Jarðarför
Hernits sál fór fram 12. þ. m. undir
umsjón Pétrs sonar hans, frá heim-
ili Jónasar Johnsons, hvar hinn fram-
liðni hafði verið til heimilis í hin
síðastliðnu 12 ár.
Lögberg og heima blöðin eru vin-
samlegast beðin að taka þetta til
meðferðar.
Atfis. Að grein þessi, sem var
send Hkr. í f. m. birtist svona seint,
er að kenna vangá minni, að hand-
ritið misfórst af slysi og varð því að
skrifa eftir henni aftr. J. Ó.
ORÐABELGRINN.
HeimsKringla og Öldin.
Herra ritstjóri. — Eg hefi verið að
hugleiða “Ritstjóra-spjallið” í síðasta
nr. Aldarinnar, í þeim tilgangi vitan-
lega, að láta obinberlega í ljósi skoð-
un mína því máli viðvíkjandi, sem þar
er verið að ræða. Ég gerði mér það
ómak að líta yfir innihald þeirra sex
númera, sem út eru komin af Öldinni,
til þess að spurningin og svarið yrði
sem ljósast fyrir mér, og komst ég að
þeirri niðurstöðu, að ég mundi heldr
kjósa að fá Hkr. tvisvar í viku, eins
og áðr var, en að hún kæmi ekki nema
einu sinni, jafnvel þó Ölðin fylgdi með
eins og í kaupbætir. Ekki svo að
skilja, að ég hafi nokkuð út á Öldina
eða innihald liennar að setja, heldr hitt,
að mér fanst það engu likara en "þrosk-
un niðr á við,” er Hkr. hætti að koma
út tvisvar í viku. Ég var farinn að
byggja nokkurs konar loftkastala í
fyrra um Hkr., og gerði ég þar á-
ætlun um, að eftir að hún hefði kom-
ið út tvisvar í viku í tvö Ar, mundi
hún byrja að koma út þrisvar í viku
og um aldamótin var ég hér um bil
sannfærðr um, að hún mundi verða
orðin dagblað á stærð við Winnipeg
Free Press, að minsta kosti, og má-
ske heldur ekkert dýrari en nú.
Ég býst við að einhverjir kunni
að spyrja, á hverja ég byggi það, að
vilja lieldr hafa Hkn tvisvar í viku,
en einu sinni með Öldinni mánaðar-
lega, úr því ég hefi ekkert sérstaklega
út á Öldina að setja ; og skal óg reyna
að skýra það með fám orðum.
Ég gengi þá—ef Hkr. kæmi út tvis-
var á viku—út frá því sem vissu, að
það yrði meira rúm í blaðinu fyrir al-
mennar fróttir; en almennar fréttir er
einmitt það sem flestum mun líka bezt
í hverju blaði, Ég veit að það er næst-
um óumflýjanlegt að hafa töluvert af
auglýsingum, og fyrir þær yrði þá og
einnig meira pláss ; og svo koma þá
fræðislegar ritgerðir, svo sem eins og
um búskap og fleira þessliáttar, sem
bæði gæti verið nytsamlegt og skemti-
legt, og að síðustu sögur og kvæði m.
fl. Fyrir alt þetta yrði meira rúm
tvisvar í viku, en einu sinni, því noitar
vist enginn, og þar af leiðandi álykta
ég, að lesendur Hkr. fengju meira les-
mál í þeim fjórum aukablöðum, sem
þá kæmu út mánaðarlega, eu þeir hafa
nú í Hkr. og Öldinni til samans.
Þetta er nú mín skoðun á þessu
máli, og fyrir þetta kysi ég heldr að
Hkr. væri stækkuð og að hún um leið
flytti okkur það mesta, sem að Öldinni
er ætlað að færa okkur; því ekki vil ég
missa “Sögu herlæknisins”, og kvæðin
hans gamla kunningja míns, St. G. S.
og máske fleira.
En hvað því viðvíkur, að hinn
heiðraði ritstjóri þykist varla fær um
svo mikið verk, eins og að koma Hkr.
út tvisvar á viku, svo í nokkru lagi
fari, læt ég óumtalað. Eg stend samt
vitanlega i þeirri meiningu, að hann sé
ekki einasta vel fær um það, heldur
miklu meira.
Og nú slæ ég botninn í.
Spanish Fork, 8. Marz 1894.
fe. H. J.
Athug-asemd.
Lögberg 28. Október 1894, nr. 84,
flytur lesendum sínum grein með fyr-
irsögninni: Landa-skoðun. Grein þessi
er að mörgu leyti góð, en eins og fleir-
um samskonar greinum, er henni á-
bótavant. Það hefir sem sé alveg
gleymzt að geta um galla á því svæði,
sem lýsingin er af. Ég hefi því hugsað
mér að fara um það nokkrum orðum.
Ritstjóri Lögbergs dregur þá álykt-
un út úr greininni, að hér séu ekki fen
né forræði, afbragðs slægjuland, góðr
vegr og góðr markaðr.
Þetta er nú alt saman gott og bless-
að. En “sínum augum litur liver á
silfrið”.
I greininni er ekki skýrt tekið
fram, að hér sé blautt og lágt land, en
það er heldr ekki sagt, að hér sé hátt
land og þurt, enda hefði slíkt verið
rangt, því hér eru fen og forræði og
þau svo iU, að ekki er hægt að komast
ofan að vatninu nema að vaða, og sum-
staðar, semþyrfti báta, ef maðr ætti að
geta notað vatnið um sumar-tímann.
Eru það einkum Tp.16, 17 og 19 í 9. röð,
er hafa þennan ókost. Hvergi í þessum
townships er hægt að byggja á vatns-
bakkanum, bæði vegna þess hvað bleyt-
an er mikil, og svo er bakkinn hvergi
svo breiðr. Það mun óvíða vera hægt
að byggja nær vatni en { úr mílu, en
viðast mun vera 1A míla frá hússtæðum
ofan að vatni. Slægjur mundu nægar í
þessum Townsh., ef ekki vantaði beiti-
land, en það vantar hér algerlega og
er slíkt slæmur ókostr. Auðvitað ber
ekki mikið á honum, á meðan bygðin er
lítil; en strax sem þéttist og gripir
fjölga, verður hér ólifandi. Nú þegar
er slíkt farið að koma í ljós. Þetta
væri nú sök sér, ef ekki væri um annað
landspláss að gera, en þessa örmjóu.
spildu með fram vatninu ; en eftir kunn
ugra manna sögusögn eru hór nóg
önnur lönd, en auðvitað lengra frá
vatni. _ Þessi lönd eru í Tp. 16, 17, 18
og 19, í 10. röð. Þar er sagt að sé á-
gættland, bæði til kvikfjárræktar og
akrvrkju. Að þessi lönd eru ekki tek-
ín fyrir löngu, kemur til af því, að
skógur er þar míkill og lækja-farvegir
margir, sem þarf að brúa, og hafa
menn nú i 2 ár verið að biðja stjórnina
um fé til að geta fengið þar þjóðveg í
gegn. Nú er sá styrkr fenginn og á nú
brautin að byggjast í sumar.
Eg skal nú ekki fullyrða neitt um
gæði þessa pláss, en sé það eins og
sagt er, ættu íslendingar ekki að ganga
fram hjá því. Eitt má fullvrða, að
landið er þess virði að það sé skoðað og
það ætti að gerast sem fyrst, því inn-
lendir menn álíta þetta gott pláss.
Ekki ætti að vera nein frágangssök að
stunda þaðan veiði ; menn hafa farið
lengri leið en 8—12 rnílur til að sækja
sér björg.
Hér er þá að ræða um tvö pláss,
annað á s'jálfri vatnsströndinni, hitt
8—12 milur frá vatni. Með fram vatn-
inu er lágt land o,g blautt og sumstaðar
litlar slægjur. I hinum staðnum er
sagt að sé hátt og gott land. Væri nú
ekki reynandi að sameina þessi svæði.
Það auðvitað hefir kostnað í för með
sér, en það ætti að borga sig, því allr
sá kostnaðr er af þessu hlytist er, að
höggva brautir í gegn um skóginn.
Sumsstaðar mundu brautir þessar verða
nokkuð langar—á að gezka 5 mílur,
aftr yrðu þær mikið styttri sumstaðar.
En setjum nú svo, að bændr treystu
sér ekki til að gera þetta sjálfir, múndi
fylkisstjórnin ekki fáanleg til að hlaupa
undir bagga með þeim ?
Að minsta kosti er það álit margra,
að henni væri miklu nær að stvrkja eft-
ir megni hingað komna fjölskvldumenn,
en að vera að senda ár eftir ár óþarfa
agenta heim til Islands og moka í þá
peningum.
Eg læt hér staðar numið og vona,
að ritstjóri Heimskringlu gjöri svo vel
og ljái þessum linum rúm í sinu heiðr-
aða blaði.
Westbourne, Man., 21. Marz.
I. O.
FUNDARBOÐ.
Næsta þriðjudagsk veld (3. Apríl) er
Akveðið af íslenzka verkmannafélaginu
að fundur vetði haldinn á Félagshúsinu
á Jemima Str. Eru því hér með allir
meðlimir íslenzka verkamannafélagsins
beðnir að mæta á fundinum, Þar næst
skorum vér á alla íslenzka daglauna-
menn hér í bænum, sem engu verk-
mannafélagi tilheyra,að sækja fundinn ;
það er áríðandi að menn geri það, þar
sem málefni, er snertir réttindi hvers
einasta erviðismanns hér í Winnipeg,
verðr lagt fyrir fundinn. Fundurinn
byrjar kl. 8 e. h., og þeir sem sækj
hann eru vinsamlega beðnir að koma
fundarstaðinn fjTÍr þann tíma.
Winnipeg, 31. Marz 1894.
í umboði framkvæmdarnefndarinnar,
Benidict Frímansson
forseti.
J0. go