Heimskringla - 09.06.1894, Blaðsíða 1
VIII. ÁR.
NR. 23.
WINNIPEG, MAN., 9. JtJNÍ 1894.
John Anderson & Co.
979 Portage Ave.
Selja við óvanalega lágu verði allar þær kjöttegundir
sem seldar eru á liinum beztu kjötsöluhúsum
Winnipeg-bæjar.
THE GBEAT IEST
vinsæll er hann að önnnr uppreist
er sögð í byrjun til að hrinda hon-
um aftur.
ritar hann í stofu, nr. 67, í fangaliús-
inu í Washington, og segir í bréfinu, að
Englendingar séu orsökin í harðærinu
hér í landi, að það sé auðvaldinu að
kenna að hann sé nú í fangelsi, að
Cleveland forseti sé Tiberíus, Miller
dómaai Pílatus, og fjölda marga merka
menn nefnir hann Júdas Iskariot.
ITmræðunum um sykurtollinn var
lokið í gær á Washington-þinginu (í
efri deild). Fór svo að 40% tollur var
lagður á alt sykur frá 1. Janúar 1895.
Aukatollur, svo nemur 1/8. úr centi á
pundi hverju, verður lagður á ailar
beztu sykurtegundir.
í dag voru seldar við uppboð 48
kornhlöður í Minnesota og Norður-Da-
kotr, eign Red Itiver Valley Elevator
félagsins og Northern Pacific félagsins.
Slculdir, sem hvíla á þessum hlöðum,
eru samtals 8750 000.
200 Ooxey-sinnar í Idaho, þeir er
nýlega stálu vagnalest þar, voruí gær
dæmdir í fangelsi og skulu þeir sitja
þar frá 30 dögum til 6 mánaða, eftir til-
verknaði.
Ríkisþingskosuingar fóru fram í
Oregon í gær.og unnu repúblíkar sigur.
Dominion-línu-skipið Texas, með
fullan farm af vörum oglifandi peningi.
strandaði í gær í þoku við suðaustur-
strönd Nýfundnalands. Nokkru af
farminum varð bjargað, en skipið er
sagt algert tap.
Á almennum fundi í Toronto í gær-
kveldi, undir stjórn bæjarráðsoddvit-
ans, var skorað á sambandsstjórnina,
að dýpka skipaskurðina í Canada, er
leiða til sjávar.
Voðasögur um flóðin á Kyrra-
hafsströndinni herast hingað á hverj-
um degi. Heil héruð eru vatni flotin,
bæði í British Columbia, i Oregon og
víðar. Manntjónið er meir en svo að
nokkur greinileg áætlun' verði gerð
enn, því fréttir herast seint úr af-
skekktum fjalldölum því síður er hægt
að meta eignatjónið til verðs, enda
hætt öllum slikum tilraunum á meðan
vöxtur vatnanna heldur áfram. Bær-
inn Westminister í B. C. (íbúar 12,000)
er til hálfs vatni flotinn og margar
byggingar, brvggjur o. þ. h. eyðilagð-
ar. Slóttan umhverfis og austur það-
an, meðfram Frazer-ánni, er öll vatni
flotin og vatnið svo djúft að gufuskip
ganga þar fram og aftur upp um
blómlega bygð, sem áður var og bjarga
fólki og féuaði. Frá. Oregon koma
samskonar sögur, en mest verður ef
til vill eignatjónið i því ríki í grend
við Portland, höfuðstaöinn. Um þriðj-
ungur þess bæjar er nú sagður vatni
flotinn o<í er vatnið 6 feta djúpt á
sumum strætunum. I austurhlut
Washington-ríkis eru í einní spilldu
95 milur af Northern Pacific sporinu
undir vatni.
C. P. R. félagiðhefir gefið 81.000 til
hjálpar nauðstaddra manna í British
Columbia.
C. P. R. fél. hefir ákveðið að fækka
meginlandslestum sínum um óákveð-
inn tíma, þannig, að einn dagur er
feldur úr hverri viku, svo að engin
lest gengur austur eða vestur.
Skógareldur æðir um norðvestur
hluta Manitoba fylkis, í Reiðar-fjöll-
unum, og veldur stórmiklu tjóni.
Innan slcamms verður í Rat Port-
age bygð einkennileg ferja frá bænum
fram til eyjarinnar Coney Island. Tvö
járnreipi verða þanin yfir sundið hátt
uppi yfir vatninu og á þau hengdir þar
til búnir fólksflutningsvagnar, er undn-
ir verða áfram með þriðja járnreipinu.
Á þessum járnreipum flýgur svo vagn-
inn yfir Sundið með sama hraða og raf-
magnsvagnar fara um stræti i hæjum.
FIMTUDAG, 7. JÚNÍ.
Tveir þingmenn ítala börðust í
þingsalnum í gær eftir að hafa kallað
hvor annan lygara.
Fyrverandi ráðaneytisforseti i Ung-
verjalandi, Dr. AVakerle, er aftur tek-
inn við stjórnartaumunum og liefir
myndað nýtt ráðaneyti.
Braziliu stjórn ákveður að lögsækja
ýmsa enska auðmenn, er studdu upp-
reistarmennina.
Svo ófriðlega láta námamenn í Co-
lorado, að hermenn hafa verið sendir til
að stilla til friðar.
Sendibréf þau, sem farið hafa milli
samhandsstjórnarinnar í Canada og
Huddards frá Ástraliu, áhrærandi
stofnun hraðfara skipalínu á Atlants-
liafi, voru lögð fyrir Ottawa-þingið í
gær. Stjórnin bauð millíónar á ári
um næstu 10 ár, en Huddard vildi fá
81 millión á ári. Pó gekk hann um síð-
ir að boði stjórnarinnar.
Bændaliðar i Manitoba hafa kjörið
Chas. Braithwait til að sækja um Do-
minion þingmennsku í Marquette, þeg-
ar þar fara fram kosningar næst.
Flóðið í Frazer er loksins farið að
réna. Áin féll 15 þuml. í gær. En
flóðið í Columbia, í Oregon er enn ekki
farið að réna.
Hestur, sem Ladas heitir, eign
Roseborrys lávarðar, stjórnarformanns
á Englandi, vann i gær vinnings hæsta
veðhlaupið á öllu Englandi. Vinning-
urinn var $25 000.
FÖSTUDAG, 8. JÚNÍ.
Loks er tekið fyrir alla vatnavexti
vestra, segja síðustu fréttir frá Kvrra-
hafsströndinpi. Columbia-fljótið stend-
ur í stað, en Frazer heldur áfram að
falla. C. P. R. fél. skaði við þetta flóð
er metinn um $1 millión. Álíka mikið
er sagt tjón hinna þverbrautanna,
Great Northern og Northern Pacífic.
Auk þessa er eignatjónið vestan fjalla
metið á 85. millíón.
Bandaríkja herskipið Bear er strand-
að við Alaska strendur.
Bændaliðar í Manitoba hafa kjörið
Mr, James Morrow til að sækja um
Dominion þingmennsku í Lisgar kjör-
dæminu.
Landfláki 100 ekrur að stærð hljóp
fram í Frazer-gilið nálægt Ashcroft,
B. C. i gær.
FRÁ LÖNDUM.
SPANISH FORK, 28. MAÍ.
(Frá fréttaritara vorum).
Hér í voru bygðarlagi er alt af mesta
öndvegistíð, og útlit fyrir alla upp-
skeru með bezta móti.
Heilsufar gott.
Ekki batnar neitt meðatvinnu enn,
og verzlanir ganga illa. Vinnuriddarar
erujiér einlægt á ferðinni, en ferðalagið
gengur samt nokkuð skrykkjótt, því
járnbrautarfél. neita að flytja riddarana
nema fyrir fult fargjald; en af því lítið
er um peninga nú á dögum, geta þeir
ekki borgað það og neyðast þvi til að
stela \-agnalestum til að komast áfram.
Hér í Utah hafa þeir gert tvær atrenn-
ur til að stela vögnum, en i hvor-
tveggja sinn verið teknir fastir og sett-
ir í vardhald. Hvað lengi þessi cltinga-
leikur helzt. er ekki gott að segja ; það
mætti annars geta til, að hann entist
fyrst og fremst í alt sumar, hvað sem
lengur verður, þvi einlægt eru þessir
riddarar að fjölga, bæði hér og annars-
staðar.
Pólítískar hreyfingar eru nú rétt
að byrja, með undirbúningi undir kosn-
ingar i haust. Þingmaður Utah Terri-
tories, Mr. Rowlings frá Salt Lake
City, neitar að gefa kost á sér til þing-
setu í annað sinn ; hann er, þó góður
demókrat sé, orðinn þreyttur á hinu
pólitíska húmbúgi demókrata á þing-
inu í Washingtonsíðastl. vetur. “Brögð
er að þá barnið finnur”.
Stutt hjónaband. Herra Gísli G.
Böðvarsson og Rannveig dóttir Þórar-
ins Mormóna postula á íslandi, sem ég
gat um áður að gefin hefðu verið í
hjónaband 7. f. m., eru nú skilin aftur
að öllum líkindum fyrir fult og alt. Or-
sökin var, að konan neitaði algerlega
sambúð við manninn, en sú meinloka
hljóp ekki í höfuðið á henni fyrri en
snma kveldið og þau giftu«t, og leiddi
það til skilnaðarins. Herra Böðvarsson
er einn af vorum efnilegustu og beztu
ungu mönnum, enda fellur almennings-
álitið hér honum í vil í þessu máli.
■■■■■ • ' --------------------
Derby plötu-reyktóbak er
hið geðfeldasta og þægi-
legasta tóbak fáanlegt.
YMISLEGT.
§60,000 MINNISVARUA
á Ludvig Kossuth að fá í New York.
Ungverjar þar í borginni og annars-
staðar hafa þegar tekið til starfa í því
máli; eru þegar búnir að ákveða hvern-
ig hann skuli vera. Brons-líkneskið á
að sýna Kossuth þar sem hann var
að flytja ræðu fyrir lýðnum í Debreczin,
í Janúar 1819. Einkennilegt er það við
hugmyndina, að minnisvarðinn á að
standa á Ungverskri jörð. Er ákveð-
'ð að flytja jörðina til þessa frá fæð-
ingarstað Kossuths, Monok í Ungverja-
landi.
Hellismeun í B-erinossundi.
Hraundrangi eða sker um á míla
ensk á hvern veg rís upp úr Bærings-
sundi austarlega. En svo bar til einn
dag, er Bandaríkja-skipið “Bear” fyrir
nokkrum árum var að sveima þar í
grendinni, að reykur sást gjósa upp af
\
/
klettinum. Lögðu þá menn nokkrir af
skipinu til hólmans á smábát og fundu
þar um 200 manns, er búa í hellrum
framan í berginu að suðaustan. Hell-
isskútarnir eru margir, h.ver út frá öðr-
um og hver upp af öðrum, og er grastó
í hverjum þeirra—hið eina gras að heita
má á hólmanum.
/ Nýtt nautakjöt af ýmsu tagi.
Nýtt kindakjöt, einnig hangið kinda-
kjöt.
Nýtt, saltað og hangið svínakjöt.
Nýtt kálfskjöt.
Fuglakjöt af ýmsum tegundum.
Einnig soðið, saltað og pressað nauta-
kjöt.
Egg, smjör og svinafeiti ætíð á reið-
um liöndum, einnig lankur, kartöflur
og ýmsir jarðarávextir, sem vanalega
eru seldir á hinum betri og fullkomn-
ari kjötsöluhúsum bæjarins.
Tveim árum síðar var þessi vagn tekinn
til Montreal til aðgerðar og fundu þá
verkamennirnir ógrjmni af gullkornum
i leir og sandlaginu í botninum á vatns-
keraldinu og gufukatlinum. Þessi
fundur leiddi til gullsleitar í liéraðinu og
árangurinn er öllum kunnur.
LÍFSÁBYRGÐARFÉLAG.
Aðalból - - Winnipeg - - Manitoba.
J. H. BROCK FORSTÖBUMAÐUR.
Uppborgaður höfuðstóll.... § 140.014.22
Varasjóður............. S 54.720.00
Lifsábyrgð í gildi við lok
iyrsta ársins........ $2.268.000
Lifsábyrgð veitt með hvaða helzt
nýmóðins fyrirkomulagi sem vill.
Kaupið ábyrgð í Thk Great West
og tryggið yður á þann veg þann
hagnað, er háir vextir af peningum fé-
lagsins veita.
Þetta fjelag dregur ekki jje burt úr
fylkinu.
K. S. Tbordarson - - agent.
457 Main Str., AVinnipeg.
FRÉTTIR.
DAGBÓK.
LAUGARDAG. 2. JÚNÍ.
Sykurtollurinn var umræðuefnið í
efri deild Washingtons þingsins í dag.
Óeirðasamt er í Bulgaríu og helst
útlit fyrir innhyTÖisstríð í fyllsta skiln-
ingi. Orsökin er, að Ferdinand prinz
rak Stambuloff ráðaneytisforseta frá
völdum.
Ráðaneytið i Ungverjalandi sagði
af sér í gær. Hedervary greifi er for-
maður hins nýja stjórnarráðs.
Cleveland forseti er orðinn mjög ó-
þolinmóður að bíða eftir efri deildinni,
Þykir hún óþolandi margorð um toll-
lagabreytingarnar.
Óeirðir eru á Kóreu-skaganum og
miða að sögn einkum til þess, að flæma
burtu 3—400 Bandaríkjamenn, er þar
búa. Bandaríkjastjórn hefir sent her-
skip þangað frá Japan.
Franskur maður, Turpin að nafni,
hefir að sögn fundið uppmorðvopn, sem
er skæðara en öll önnur, er nokkurn
tíma hafa verið viðliöfð i orustum. Svo
ægflegur morðvargur er * vopn þetta
sagt, að vænt er að stríð verði ekki
lengur möguleg, þar sem því er beitt,
sökum mannfallsins. Turpin bauð
stjórn Frakka að kaupa grip þennan,
en hún neitaðí, og liefir hann nú selt fé-
lagi í Belgíu einkaleyfi til að búa vopn-
ið til. Fyrir það fær liann síðan ávít-
anirhjá Frökkum.
V erkmannafélögin í Toronto mæla
með að skipaskurðir allir í Canada, þeir
er samtengja hafið og stórvötnin, * séu
dýpkaðir þar til 25 feta vatnsdýpi er í
hverjum einum.
MÁNUDAG, 4. JÚNÍ.
Sambandsstjórnin hefir lofað að áJ
bjrrgjast 31% vöxtu af »t millfónum, er
hafnstjórnin í Montreal yill taka til
lans til hafnabóta.
Snjór mikill féll í Colorado suður í
gær. Varð 7 feta djúpur uppi á fjöllun-
uií.
2. þ. m. var vígt Columbiu-safnið
mikla í Chicago, þar sem a að varðveita
ýmsa morkustu gripina, er voru á
heimssýningunni. Safnið er í lista-
verka-byggingunni, sem var, í Jackson
Park. ri '1 þessa safns, sem er hið full-
komnasta i sinni röð í Norður-Ameriku,
hafa ýmsir auðmenn í borginni gefið
svo millíónum dollara skiftir. Stór-
kaupmaðurinn Marshall Field eínn gaf
til þess $1 mfllion.
New York-búar eru Upp tfl handa
°g fóta útaf fyrirætlun AVashington-
stjórnarinnar að lögleiða tekjuskatt.
Flestir leiðandi mennirnir í borginni
höfðu fund mikinn á laugardagskvöld-
ið og var skattur sá þar mótmæla-
laust afbeðinn.
í Salvndor er alt í uppnámi enn.
Forseti lýðveldisins beið ósigur í or-
ustu mikilli er háð var 24. maí. Féllu
þar um 600 af hans mönnum og þar
á meðal bróðir forsetans og hans
ffiðsti hershöfðingi. Að orustunni af-
staðinni lagði Ezeta forseti niður
völdin og heitir sá Carlos Bonilla,
er tekinn er við völdum, en svo o-
Dcrby plötu-reyktóbak
selst ákaflega vel og
sala þess fer sívaxandi.
Tolltekjur sambandsstjórnarinnar
voru §192,000 minni í síðastl. maí, en
í sama mánuði í fyrra.
Annað jarðsig átti sér stað í Que-
bec-fylki í dag. Fláki af landi í brattri
hlíð seig niður í á sem Rauðá heitir
90 mílur austur frá Quebec, og bar
með sér 10 býli. Mannskaði varð þar
þó enginn.
Kolanámamenn í Ohio tóku í dag
algerlega fjTÍr kolaflutning til Cleve-
land. sem hingað til hefir vérið forða-
búr að því er kol snertir, fyrir fjölda
mörg járnbrautarfélög. Það var ein
einasta braut, er þangað náði með
kol ^rá námunum, en í dag tóku
námamennirnir sig til og brendu allar
brýr á þeirri braut. Afleiðingin er
að mörg járnbrautafélög verða nú að
takmarka lestagang enn meir.
ÞRIÐJUDAG, 5. JÚNÍ.
Nafnmörg bænarskrá, undirrituð
af verkfræðingum og verzlunarmönn-
um, var í gær lögð fyrir þing Frakka,
þar sem stjórnin er, beðin að gera
tilraun til samnings við stjórn Eng-
lands um brúargerð j-fir Suridið milli
Englands og Frakklands, eða. ef hent-
ugra þjkí, um að göng verði grafin
undir sundið.
Bæjarstjórnin hefir samþj-kkt að
launa hæjarráðsmönnum störf sín með
$300; formenn nefnda eiga að fá $400
liver.
Vel gengur pólitiska vaggan í Ný-
fundnalandi. Þar hafa nú 17 fylgis-
menn frávikinnar stjórnar verið kærð-
ir fj-rir mútur o. þ. h. Af þeim mál-
um hafa nú 9 verið rannsökuð og all-
ir þingmennirnir fundnir sekir. Þing-
inu hefir aftur verið frestað um mán-
uö og mun þannig verða haklið áfram
að fresta þvi, þar til öll málin eru
útkljáð.
Kólera er mjög skæð á sléttunum
beggja megin við landamærin milli
Rússa og Þjóðverja.
Almennar f jdkisþingskosningar fara
fram í British Columbia 30. þ. m.
Turpin, uppfindingamaður morð-
vopnsins mikla, er getið er um hér
að framan, er ekki búinn að selja það
Þýzku félagi í Belgíu. Franskir blaða-
menn náðu konum i Belgíu og sann-
færðu hann um, að það væri synd
gegn þjóðveldinu franska, að selja f jand-
mannaþjóðinni slikan grip.
Victoría Blackwood, yngsta dóttir
Dufferins lávarðar, var i gær gipt
William Lee Plunkett, syni Plunketts
lávarðar, erkibyskups í Dublin á Ir-
landi.
Einnig Kína fær smekk af upp-
reistargirni lýðsins um þessar mundir.
Tvö stórhéruð eru þar í höndum upp-
reistarmanna og er nú stjórnin að
draga saman lið til að j-firbuga þá.
En tilraunir til að gera verkfall og
hækka kaup hafa þar litla þýðing enn
þá. Sú tilraun var þar ger nú ný-
lega, en jafnskjótt bauð keisarinn að
taka fyrirliðana alla og hengja, en
gera hina alla útlæga og senda þá í
“flugnalandið” pestnæma, þar sem loft-
ið er svo banvænt, að enginn maður
lifir viku lengur. Tilraun sú kollvarp-
aðist þegar í bj-rjuninni.
48 ritgerðir um það, hvernig hezt
megi uppræta illgrosi, hefir fylkisstjórn
Manitoba fengið, sem svar upp á boð
um verðlaun fj-rir ritgerð um það efni.
Sambandsstjórnin gerir ráð fyrir
að senda gjafafé til allslausra manna
í British Columbia, er mist hafa alt
sitt í flóðinu. —1 Ggilvie mylnufélagið
hefir gefið 200 hveitisekki til útbýting-
ar meðal þessa fólks.
Skógaeldar hafa ónýtt mikið af
gagnlegu timbri á vesturströnd Sup-
erior-vatns.
MIÐVIKUDAG, 6. JÚNÍ.
Fjármál Ítalíu eru á tréfótum. TTm
þau vandræði hefir verið rætt og ritað
mikið siðastl. nokkra mánuði. Ráða-
nej’tisforsctinn, Crispi, fékk samþykta
uppástungu í því máli, er hann sjálfur
flutti á þingi á mánudagskvöldið, með
225 atkv. gogn 214. Þetta þótti honum
of lítill atkvæðamunur, frestaði þegar
Þingi og fór á fund konungs. Afleið-
ingin af þeim fundi varð, að í gær sagði
liann og hans ráðaneyti af sér.
Nýjasta útgáfa Coxej’-sinna er liug-
myndin um, að gera lianu að Banda-
þingmanni. Hann hefir fengið áskorun
um að gefa kost á sér senr þingmanns-
efni fj’rir 18. kjördeildiua í Ohio. Coxey
er tilbúinn og þakkar fj-rir. Svar sitt
Ej-jarbúar þessir eru mannvænleg-
ir, en ófróðir eru þeir um útheiminn.
Enginn þeirra hafði séð annað land en
þennan hólma, en munnmælasögur
höfðu þeir af þvi, að til væri annað
land einhversstaðar. Þeir eru ólikir
öðrum frumbyggjum landsins, því að
þeir hafa engan yfirmann, engan höfð-
ingja, er úrskurðarvald hafi í þeirra
stjórnmálum. Þoir gera sér klæði úr
selskinnum og úr sama efni eru bátar
þeirra og samtengd selaskinn mjnda
hurðir fyrir helhsdyrum þeirra á vetr-
um. Sela og hvalaveiði er þeirra eina
atvinna, og selakjöt og hvalspik þeirra
eina fæða. Þegar fæðuforðinn í landi
er að þrotum komin, leggja þeir út á
ltuggum sinum og hl;u)a þá á stuttum
tíma,halda svo tillands og lifa ríkmann-
lega til þess aflinn er uppgenginn.
Vaknaði vid vondan draum .
Eftirfylgjandi atbarður átti sér stað
fj-rir skemstu á járnbrautarlest úti í
heimi. Sjúkur maður hafði ásamt konu
sinni keypti sér far í einum svefn-
vagninum ; um miðnætursskeið vaknaði
sjúklingurinn með megnri tilfinning í
bakinu, og biður því konu sína að
búa til i snatri mustarðsplástur. Kon-
arr flýtti sér að verða við bón manns
síns, og hleypur yfir þveran vagninn
til þess að yla plásturinn við ljósið.
Á leiðinni aftur fer hún rúma vilt, og
tekur rúm er þjóðverskur verzlunar-
maður svaf í, fyrir rúm manns sins.
Hún tekur rúmtjaldið til hliðar, lj’ptir
upp riimteppinu og klessir mustarðs-
plástrinum á lirygg hins sofandi Þjóð-
verja. Rétt í þessu hrópar maður
hennar úr rúmi sínu : “Marja, hvar
ertu ?” Nú fyrst verður konan vör
við villu sína. í einu stökki er hún
komin að rúmi manns síns, og scgir
honum i lágum hljóðum alla söguna.
Hinn sjúki gat ekki að sér gert að
hlægja, þótt hann hefði miklar kvalir
í bakinu, og hann hlóg svo mikið, að
kvalirnar hurfu.
Nú er þögn nokkra stund í vagn-
inum, en svo heyrist úr rúmi þjóð-
verjans vein og fjarskinn allur af blóts-
yrðum. “Herra minn góður, Jón og
Sankti Páll! hvað gengur að bakinu
á mér ? Himinn, dauði, djöfull 02 hl...
En sá bruni ! Vatn, vatn! Eldur !
æ, æ, ó, hryggurinn á mér ! Það er
eldur í rúminu mínu ! Mangi, Pétur,
vatn, vatn ! Ó, mitt bak !” o. s. frv.
Hvernig þjóðverjinn komst úr þessum
vandræðum, segir sagan ekki.
SUNNUDAGS-FRÍMEUKI.
I Belgíu eru nýútkomin frímerki á
bréf og póstsendingar, sem þannig eru
útbúin, að það má, eða ekki má, eftir
því sem hver vill, afhenda bréfin sem
þau eru á á sunnudegi. Áfastur við
hið venjulega frímerki að neðan er
rammi litill og á hann letrað á frönsku
og hollensku : “Afgreiðist ekki á sunnu
dag”. Sé þessi rammi ekki rifin af, fær
móttökumaðurinn ekki bréf sitt fyrri
en á mánudag, en sé hann rifinn af fær
hanr. það strax. Frímerki þessi eru í 7
stærðum : 1, 2, 5. 10, 20, 25 og 50 centi-
mes, og ætlar stjórnin að halda áfram
að gefa þau út og innkalla og eyðileggja
allar aðrar útgáfur.
Frimei'ki þessi eru að sögn þannig
tilkomin, að ráðgjafi járnbrauta, tele-
graph og póstmála deildarinnar, herra
T. Yandenpeeveboon, er ákaflega guð-
rækinn maður og vill helzt fyrirbyggja
að nokkurt sendibréf fáist út úr póst-
húsunum á sunnudegi, en af þvi hann
sá engan veg til að fá því framgengt,
lét hann gefa út þessi frímerki, og setja
hverjum einum í sjálfsvald, hvort hann
vill vanhelga sunnudaginn eða ekki.
Fyrsti gullneminn
í klettabálkinum fjrrir norðan Superior-
vatnið, í hinu orðlagða Sndburj--náma-
héraði, var einn gufuvaaninn á Canada
Kj-rrahafs-brautinni. Þegar verið var
að bj'ggja brautina um þetta svroði, var
einn gufuvagn sérstaklega valinn til að
fylgja þeim sem lögðu sporveginn, til
að flj-tja böndin og teinana o. s. frv.
fram á endann á sporinu jafnóöum og
það færðist áfram vestur á bóginn. Þar
var þá enginn útbúnaður til að taka
vatn í vélarketilinn, og saug því vélin
sjálf það inn í vatnskeraldið gegn um
teigleðurspípu 02 var hún að þvi i hvert.
skipti, sem bið var þar sem annað-
tveggja var lrekjarspræna eða vatn í
skurðunum með fram sporveginum.
Mýsnar spinna.
Maður einn á Skotlandi, sem ekki
er síður þolinmóður en hann er upp-
findingagjarn, hefir kent tveim músum
að spinna þráð, í ofurlítilli vól, sem
hann hefir fundið upp. Verk músanna
er innfalið i því, að þær troða spuna-
vélina, og með þessu móti spinna þær
á hverjum degi 100 til 120 þráðar eða
tvinnaspotta, en hver spotti er um 4.J
fet á lengd. Þessi vinna útheimtir
gang, er jafnast á við fullra 5 mílna
gang fvrir hverja mús, og þó þær séu
smávaxnar, ber ekki á að þær séu
þreyttar að loknu dagsverkinu. Eins
cents virði af hveitimjöli er nægilegt
fóður lianda þeim í 5 vikur, en á þvi
tímabili hafa þær spunnið 3850 þráð-
arspotta, eða samtals j-fir 17,000 feta
langan þráð. Með þessu áframhaldi
vinnur hver mús fj-rir nálega $3 á
árinu, en fóður hennar hefir heldur
ekki kostað meir en 20—25 cents að
öflu leyti.
VEITT
HÆSTU VERÐLAUN A HEIMSSÝNINGUNN
> aTa o
Í
€UTuhM
IÐ BEZT TILBÚNA.
Oblönduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óhofl efni.
40 ára rejmzlu.
Gleymið ekki staðnum, sem er
279 PORTAGE AYE. - - - - TELEPHONE 169.
JOHN ANDERSON & CO.