Heimskringla - 14.07.1894, Page 2
9
HEIMSKRINGLA 14. JÚLÍ 1894.
Heiuiskriiigla
komr út á Laugardöguni.
Tne HeimskrÍDgla Ptg. & Publ.Co.
útgefendr. [Publishers.]
Verð blaðsins í Canada og Banda-
ríkjunum :
12 mánu-Si $2,50 fyrirframborg. $2,00
ö ---- $1,50 ------ — $1,00
0 ---- $0,80; ----- — $0,50
Ritstjórinn geyrnir ekki greinar, sem
eigi verða uppteknar, og endrsendir
þær eigi nema frímerki fyrir endr-
senditig fylgi. Ritstjórinn svarar eng-
um brCfuin ritstjórn viðkomandi, nema
í biaðinu. Nafniausuin brófum er
enginn gaumr gefinn. En ritstj. svar-
ar höfuudi undir merki eða bókstöf-
um, ef höf. tiltekr slíkt merki.
Uppsögnógild að lögum, nema kaup-
andi só alveg skuldlaus við blaSið.
Ritsjóri (Editor) :
EGGERT JÓHANNSSON.
Rádsmaðr (Busin. Manager):
J. W. FINNEY
kl. 9—12 og kl. 1—6 á skrifst.
Peningar sendist í P.O. Money Or-
der, Registered Letter eða Express
Money Order. Banka-ávísanir á aðra
banka, en í IVinnipeg, eru að eins
teknar með afföllum.
653 Paciíic Ave.
(McWilliam Str.)
Pullman-stríðið.
Þetta víðtæka og á augnablikinu
að virðist- svaðaiegasta vinnustríð,
sem yfir Ameríku hefir dunið til þessa,
bendir greinilega á, að stórmikil
bylting sé í nánd, eða, ef ekki það, að
bráðlega hljóti að koma mikilfengleg
breyting á löggjöfina, svo að bygt verði
fyrir endurtekning annars eins atvinnu-
stríðs og nú stendur yfir.
Það virðist eitthvað meira en lít-
ið bogið við fyrirkomulagið þegar alt
landið líður óhagræði, ómetanlegt tjón
og enda sult, vegna þess, að nokkrir
vinnumenn á einu verkstæði verða ó-
sáttir við húsbónda sinri, og réttlátt
virðist það enganveginn. Aftur á hinn
bóginn er það gild vörn verkamanna,
að eins og fyrirkomulagið nú er, geti
þeir ekki náð rétti sínum með öðru
móti en þessu, með allsherjarsamtök-
um, kúgun og ofbeldi.
Hvað uppruna þessa stríðs snertir
þá eru vitanlega margar sögur um
hann. Á verksmiðju George M. Pull-
mans unnu þegar bezt lét 5.800, en í vor
t,3<X> manns. Pullman á bæinn, sam-
nefndan, og alt sem í honum er, ó-
beinlíms ef ekki iieinlínís, því þar búa
ekki aðrir en vinnufólk Pullmans.
Hans frásögn um uppruna striðsins
er, að síðastliðið haust hafi hann kall-
að vinnumenn sína alla á fund og sagt
þeim, að vegna óársins hlyti hann að
lækka kaup þeirra um tíma, og gerði
ráð fyrir þeirri kauplækkun um 6 mán-
uði. Að þeim 8 mánuðum liðnum var
verzlunardeyfðin sú sama, ef ekki meiri.
Hélt liann þá annan fund og sagði
þeim, að ef þeir vildu halda áfram
að vinna, þá skyldi hann leyfa það,
en með þessu niðursetta kaupi. Kvaðst
þó jafnframt hafa gefið þeim í skyn,
að tap sitt á hverjum mánuði væri
820,000, enda þótt þeir ynnu fyrir
þetta lága kaup. Hann segir og, að
fiestir menn sinir hafi látið í ljósi
löngun sína að ganga að þessu boði,
er, að um sama leyti hafi meðal þeirra
verið stofnuð deild af járnbrautarþjóna-
félaginu “American Railway Union,’’
og að þetta félag hafi síðan boðið
vinnustöðvunina og heimtað nefnd til
að skera úr þrætunni milli sin og sinna
manna. Þessu boði neitar Pullman
jafnharðan.
Verkameni^rnir aftur á móti sýna
fram á, að sé engin ástæða til að láta
nefnd manna rannsaka málið og dæma
í því, þá mættí Pullman vera sama
þó hann leyfði það, og að hann með
þessari þverúð viðurkenni óbeinlínis að
sökin sé hjá sér. Frá upprunanum
segja þeir á þann hátt, að um leið
og hann lækkaði kaupið, heimtuðu þeir
að hann lækkaði húsaleiguna, því, sem
■sagt, hann á öll húsin í bænum, og
hvert eitt þeirra að líkum margbúið
að borga sig. Þessu neitaði Pullman,
en til þess að lækka eitthvað annað
meira en dag og mánaðarkaupið, rauk
hann til og lækkaði vöxtu af pening-
um þeirra, er afgangs höfðu og lögðu
í sparisjóð — sjóð, sem Pullman nátt-
úrlega á líka, eða sem hann stofnaði'
fvrir menn sína og er ábyrgðarmað-
ttr fyrir. Þetta er hlið verkamannaá
málinu, að Pullman Iækkaði kaup og
vöxtu af sparisjóðsinnleggi þeirra, en
neitaði að lina húsaleiguna. Afleiðing-
in er, að allur fjöldi verkamanna hans
getur með lierkjum dregið fram lífið.
Það hvatti og félagið, A. R. U., til að
hefja stríð á hendur Pullman, að hann
hefir aldrei viljað leyfa lestaþjónum á
járnbrautum að sitja í sínum dýrmætu
vögnum. Þeir hafa, að sjálfsögðu,
mátt hirða þá og ábyrgjast að þeir
séu ætíð hreinir, en ekki saurga þá
með því að staðnæmast í þeim á tóm-
stundum sínum. Fyrir þessa skuld
voru lestaþjónarnir flestir fúsir til að
taka þátt í orustunni, að gjalda auð-
valdi þessum “rauðan belg fyrir gráan,”
með þvi að neita að snerta þá lest,
sem hefði Pulman-vagn meðferðis.
Lestaþjónarnir virðast hafa góða
ástæðu til að vera óánægðir, því Pull-
man hefir lélegan rétt til að skipa
fólki í stéttir. En þessa ástæðu sína
gerir A. R. U. félagið sjálft að engu,
þar sem það einnig tekst í fang að
skipa mönnum í stéttir. Það eru sem
sé ekki margar vikur síðan það félag
þverneitaði, með atkvæðagreiðslu, að
taka í félagið járnbrautarþjóna af
blökkumanna-ætt. Nú er að líkum
engin sú járnbrautarlest í landinu, sem
ekki hefir einn eða fleiri svertingja f}rrir
þjóna, og í suðurríkjunumeru lestamenn
víða fleiri svartir en hvitir. Þessi
neitun félagsins er ekkert annað en
stéttaskifting og hún miklu skaðlegri
en sú, er Pullman gerir. Hann neit-
ar lestarþjónum um sæti i sínum vagni,
um þvottaskál, handklæði og því um
likt, en félagið neitar upplýstum með-
borgurum sínum um jafnrétti, um þann
allsherjar rétt, að leita sér hverrar
heiðarlegrar atvinnu, sem um er að
gera. Þvi þessi neitun fólagsins þýð-
ir ekkert annnð en útbolun allra af
svertingjaætt frá lestavinnu.
Hvernig sem þetta yfirstandandi
stríð kann að enda, þá 'liggur fyrir
að breyta löggjöfinni svo, að annað
eins og þetta geti ekki komið fyrir
aftur. Great Northern vinnustríðið i
vor vakti þingmenn í ^Vashington til
umhugsunar í þessu efni. Og árang-
urinn er sá, að nú er fyrir því þingi
frumvarp til laga, er fer fram á að
öll járnbrautarfélög skuli skyld til að
leggja öll þrætumál í gerð innan á-
kveðins tíma, sem upp kunna að koma
milli þeirra og vinnumannanna. Geri
þau það ekki, taka dómstólarnir mál-
ið til yfirvegunar og endilegs úrskurð-
ar/ Nú sýnir þetta yfirstandandi stríð,
að þau fyrirhuguðu lög eru allskostar
ónóg. Ef þau eiga að koma að haldi,
verða þau að grípa yfir öll verksmiðju-
fólög og enda einstaklinga, sem vinnu
veita. Þvi eins og nú er ástatt, eru
það ekki járnbrautarfélög, sem upp-
hafinu valda, heldur þeim óviðkom-
andi einstaklingar. Hefðu þau lög
verið til, sem knúð hefðu Pullman til
að leggja málið í gerð innan tveggja
eða þriggja sólarhringa, þá hefði mik-
ið verið unnið. Ekki einungis hefði
þá vinnulaunatapið verið fyrirbygt, og
hvað það kann að vera mikið orðið,
er lítt mögulegt að geta á, en líklega
óhætt að segja það $.) milj. á sólar-
hring, heldur einnig alt það tjón er
leiðir af viðskiftabanninu og stöðvun
vöruflutninga og það tjón er lítt met-
andi til verðs, svo margbrotið er það
og margvíslegar afleiðingar þess. Með
því hefði og verið fj-rirbygður mögu-
legleikinn að framleiða þá skugga-
mynd, er kringumstæðurnar nú hafa
gert. Sú skuggamynd er hergarður
8tjómarinnar umhverfis æðisgengna,
allslausa vinnuleitendur, sem langvar-
andi örbyrgð og neyð, samfara van-
þekking og misskilning á orðinu frelsi,
er smámsaman að umhverfa í stjórn-
eyðendur.
C. P. R. flutningsverðið.
Það er hvorttveggja, að undan því
hefir verið klagað og það að gagni, enda
virðist nú ástæða tilað ætla, að Domi-
nion -stjórnin ætli að taka það mál tfl
athugunar. Mr.W. W. McDonáld, þing-
maður fyrir austur-Assiniboia, bar
það mál fram i þinginu 5. þ. m. Sagði
flutningsgjaldið.er félagið heimtaði hver
vetna í Vestur-Canada væri óþolandi
hátt, og heimtaði að stjórnin tæki það
til athugunar. Stjórnarformaðurinn,
Sir John Thompson. tók lipurlega og
stillilega í málið, eins og honum er tamt
og lofaði fylgi sínu og því, að málið
skyldi rannsakað. Lengra er ekki kom
ið onn, en hvor helzt sem árangurinn
kann að verða, dettur líklega fáum í
hug að efa, að rannsókn verði hafin,
því alt til þessa geturenginn með sönnu
sagt, að Sir John Thompson sé gjarn
á að rjúfa loforð sín.
Merkilegt er það að þingskörungur-
inn (!) og frelsishetjan (!) Joseph Mar-
tin, eini maðurinn frá Manitoba á Do-
minion-þinginu, sem réttilega getur
heitið fulltrúi Vesturlandsins (!) sá eini,
sem hugsar um velferð þess—að því er
öll Gi'eenway-málgögnin segja og sem
Grcenway-ingar á fundum sínum segja
—, merkilogt er það, að þessi framúr-
skarandi skepna skyldi ekki flytja þetta
mál. En það gerði hann ekki, lagði
það eitt til þess, að rannsókn væri þýð-
ingarlaus. Allan þingtímann hefir
hann setið án þess einu sinni að upp-
ljúka sínum munni, til þess að hefja
máls á þessu stórmáli alls vesturlands-
ins. Af því er hann sannarlega eins
saklaus eins og óboriö barn. Hann hef-
ir klagað yfir, að Governor Mclntosh í
Regina vestra sé óþolandi pólitiskur í
ræðum sínum.sérstaklega í einni ákveð-
inni, af því hann hafi í henni varað
menn við húmbúgistum. I þeirri snild-
ar(!) þingræðu sinni gekk hann að visu
inn á, að sjálfur hefði hann gert það
sama og ekki álitið pólitik viðkomandi,
en að hann hefði ástæðu til að ímynda
sér, að Governorinn hefði með þessari
viuvörun verið að sneiða Joseph Mar-
tin, hann hefði með öðrum orðum átt
við að Joseph Martin væri húmbúgisti.
Þingheimur allur gerði góðan róm að röð
unni og hló bæði hátt og lengi, að hans
eigin flokksmítanum meðtöldum. I ann-
að skifti klagaði hann yfir því, að tveir
embættismenn Dominion-stjórnarinnar
búsettir nú i Calgary, en landeigendur í
Winnipeg og þess vegna á kjörskrá bæ-
arins, komu til Winnipeg síðastl. vetur
og greiddu atkvæði. Af þvi hann kafði
grun á að þessir menn hefðu ekki kosið
Joseph Martin, þótti honum þetta
rangindi meir en í meðallagi og gerði
það að þingmáli. Stórmál og þýðingar-
mikil fyrir þjóðina, eins og þessi fyrr-
greindu, hefir hann bisað við með meiri
og minni iðjusemi alt af síðan hann kom
til Ottawa. En smáræði eins og það,
hvort létt verður gjaldbyrði Vestur-
byggja með því, að lækka járnbrauta
vöruflutningsgjald, það er nokkuð sem
langt er fyrir neðan hans voldugu sál!
Tammany-valdið.
Allar horfur þykja á, að taldir séu
dagar Tammany-flokksins nafntogaða í
New York. Það er uppihaldslítil hríð af
ákærum, sem á þeim flokki dynur alt
frá því ífyrra, að Dr. Parkhurst hóf
sókn sína gegn lögreglunni í New York
og fyrir þeim ákærum virðist flokkur-
inn verjulaus. Annað það, sem benda
þykir á að veldi flokksins sé að þrotum
komið, er það, að formaður hans (Ric-
hard Croker), sem er lifið og sálin í þess-
um félagsskap, er óbeinlíuis, ef ekki
beinlínis, flúinn úr landi. Undir eins í
vor þegar hann sá að efri deildar þing-
nefndin i Albany (á ríkisþinginu) ætlaði
að gera alvöru úr þvi að rannsaka kær-
urnar, sagði hann af sér formennsku
flokksins og tók sér far til Evrópu í því
skyni að dvelja þar og í Egyptalandi og
austurlöndum í óákveðnum stöðum um
óákveðin tíma, Það leit Svo út, og það
var líka almennt álitið, að hann hefði
ekki viljað mæta sem vitni fyrir neinum
liérlendum rannsóknarrétti og hefði svo
flúið þegar víst var að óveðrið ætlaði að
skella á. >
Svo Ijótt hefir sumt af því verið, er
opinbert hefir orðið fyrir þessum rann-
sóknarrétti efri deildarinnar, að um það
hefir verið farið þeim orðum, að ljótara
hefði ekki getað mætt auga manns eða
eyra.þó hliðum helvítis hefði verið slegið
opnum. Forstöðumenn spilahúsa og
vændiskvennahúsa hafa verið kúgaðir
til sagna, einn eftir annan ásamt fleir-
um mönnum og konum tilheyrandi
þeim húsum. Upp úr öllu þessu fólki
hefir það verið teigt um siðir, þó margt
af því hafi látið það uppi ýmist nauðugt
eða óafvitandi, að á hverju ári sé það
kúgað til að borga svo og svo mikið
mútufé til lögreglunnar, til þess hún
haldi hlífiskildi j’fir húsum þess og lofi
þeim að halda áfram í þeim hlutum
borgarinnar, sem lögin fyrirbjóða.
Bækur einnar slíkrar konu sýndu, að
á tæpu.n 5 árum hafði hún þannigverið
kúguð til að borga lögreglunni alt að
$5000. Jafnframt komst upp, að til
þess að hafa sem mest fé út úr þessu
fólki, var sem oftast skift um lögreglu
fyrirliða í hyerri einni deild bæjarins.
En í hvort skifti sem nýr deildarstjóri
tók við, lét hann það boð út ganga, að
þessi stofnunin og hin yrði tafarlaust
opinberuð og ej'ðilögð. Þessi boð fluttu
heimulegirerindrekar, sem fult umboð
höfðu til að taka á móti þacnar-fénu og
áöveða hvað mikið það skjddi vera, en
það var í einu minnst S50 og mest $500,
Jafnótt og þetta og þessu líkt kemst
upp, bj'rjar rirnman milli málafærslu-
manna, sem þar eru fj’rir hönd Tam-
manj’’s og lögreglunnar, Tammany
gerir sitt sárasta til að sanna að þetta
fé sé ekki iinnheimt fj’rir þann flokk.
Lögreglan aftur leitast við að sanna, að
alt sé þetta tekjur Tammanj’-flokksins
og sýnir meðal annars fram á, sínu máli
til stuðnings, að enginn maður komist í
lögregluliðið í New York nema hann
hafi meðmæli Tamany-formanna.
Þrátt fj-rir alt þetta, sem uppvist
var orðið þegar rikisþineinu var frest-
að, neitaði Governorinn i New York að
staðfesta lög, er samþj’kkt voru og
sem fóru fram á að auka innbyrðisrétt
allra stærstu borganna í ríkinn, i því
skyni, að bæjarstjórnar gætu betur ráð-
ið við vaudræðamál eins og þetta.
Alt þetta styrkir hcndur nefndar-
innar, sem’í sumar situr við að endur-
rita stjórnarskrá ríkisins, i þeirri von,
að fá sínar breytingar samþykktar á
næsta ríkisþingi. Meðal annars heimt-
ar sú nefnd að New York borg fái full-
komið sjálfsforræði, þannig, að New
York borgin þurfi engalöggjöf að sækja
til New York ríkis, að því er snertir
bæjarmái. Með því móti, og þvi ein-
ungis, þj’kir nefndinni von til, að New
York geti hrundið af sér pólitiskum ill-
hvelum, eins og þessum Tammany-
flokki.
Kínverja-þrætan.
I sínu ágæta fregnbréfi, er birtist i
síðasta blaði, lýsir herra Asgeir J. Lín-
dal í Victoria því greiniloga, hvaða
vandræðamenn Kinverjar eru. En ekki
erum vér honum samdóma í því, að það
sé stórvægilegt “kjaptshögg fjTÍr Cana-
da”, að stjórn Breta vill að haldið sé á-
fram að ráða Kínverja til vinnu við víg-
girðingarnar á Vancouver-eynni. Hefðu
þingmenn British Columbia gert þetta
Kinverja-mál að sérstöku þingmáli 1
Ottawa og hefðu þeir svo fengið Domi-
nion-stjórnina eða nokkra af meðlimum
hennar á sitt band, og ef þetta mál
hefði þannig útbúið verið lagt fjrir
stjórn Breta, þá var heldur ástæða til
nð álita þetta svar frá Englandi “kjapts
högg”. Nú, British Columbia-menn
eiga 8 fulltrúa á Dominion-þingi, 5 í
neðri deild og 3 í efri deild. En eftir
því er séð verður af fregnbréfinu, hefir
að eins einn þeirra, Col. Edward G.
Prior, minnst á þetta mál. Hvað voru
hinir 7 að gera ? Hvað vildu þeir að
gert væri í þessu máli ? Þegar að eins
einn af átta fulltrúum alþýðu vék á
þetta mál, ‘þá var naumast að búazt
við öðrum undirtektum, en þeim sem
bréf þetta fékk. Það vantar svo mikið
á fað áttundi hluti sé meiri hluti, að
stjórnin hlaut að virða þaðað engu, en
hugsa heldur um þann vilja meirihlut-
ans, sem æfinlega er vís, að fá öll opin-
ber verk unnin fyrir svo lágt verð sem
fengist getur.
Það líður að því í British Columbia,
eins og hvervetna sunnar á KjTrahafs-
ströndinni, að Kínverja-málið verður
flokksspurnsmálið fremur en nokkuð
annað. Hvort sem hinum ýmsu flokk-
um hvítra manna á ströndinni kemur
að öðru lej'ti saman eða ekki, þá er
þetta mál þeirra sameiginlegt velferðar-
mál. Þess vegna þurfa þeir að láta sér
koma saman um það, að kjósa engan
þann mann til þingsetu, hvorki á fylkis
eða Dominion þing, sem ekki hefir ein-
lægan vilja til að takmarka innflutning
Kínverja og taka fyrir yfirgang þeirra,
sem nú eru landfastir orðnir. Þetta hef-
ir reynzt eina meinabótin annars staðar
á ströndinni og sama verður raunin í
British Columbia. En það er auðvitað
komið undir íbúum Jress fjlkis sjálfum,
hvort þau medul verða viðhöfð eða ekki.
WINNIPEG
INDUSTRIAL
SÝNINGIN
fer fram í sumar frá
23. tH 28. July.
Verðlaun framboðin alls
— $ 15,000 —
Sýnismunum verður veitt móttaka
til 12. Júlí. Verðlaunaskrá fær hver
ókej-pis, sem æskir þess. Upplýsingar
sýniuguna áhrærandi gefur
J. K. STRACIIAN,
forstöðumaður og gjaldkeri.
Orða-bclgrinn.
[Öllum, sem sómasamlega rita, er
velkomið að “leggja orð í belg;” en nafn-
greina verðr hver höf. sig við ritstj.,
þótt ekki vilji nafngreina sig í blaðinu.
Engin áfellis-ummæli um einstaka menn
verða tekin nema með fullu nafni undir.
Ritstj. afsalar sér allri ábjrgð á skoðun-
umþeim, sem koma fram'í þessumbálki].
Herra ritstjóri Hkh. — í 16. tbl.
Hkk. þ, á. stendur fréttagrein héðan frá
Alberta, rituð af póstafgreiðslumanni
herra Jóhanni Bjarnarsj’ni. Með þvi
að grein þessi flj-tur dálitlar missagnir,
sem líklega eru sprottnar annaðhvort af
vangá eða þá af því, að höf. hefir flækzt
í hugsunarvillu og ekki skilið sjálfan sig
þá óska ég að þér viljið gjöra svo vel,
að Ijá eftirfylgjandi línum rúm í yðar
heiðraða blaði.
Einkum er það ein afar-löng inn-
skostsetning hjá blessuðum póstmeistar-
anum, sem að miklu lej'ti fer á snið við
sannleikann eins og hún að hinu leyt-
inu, er mjög óíslenzkulega framsett;
hún er þannig : “og heyrði ég engan
finna neitt að honum, enda tel ég sjálf-
sagt, að mönnum hafi farið fram siðan
á íslendingadeginum síðastl, sumar,
enda var maðurinn, sem setti mest út á
sönginn og færði okkur þá fregn í blöð-
unum, að honum hefði verið mjög á-
bótavant, ekki brúkaður núna fyrir for-
söngvara eins og þá”.
Eftir þessari setningu á það að bafa
verið einn og sami maðurinn, sem ritaði
i blöðin um Islendingaduginn, semhald-
in var hér síöastl. sumar og stýrði þá
söngnum. Með því, að mór vitanlega,
hefir enginn ritað í blöðin um Islend-
ingadaginn (5. Ágúst f. á.) nema ég, þá
verður ekki betur séð, en þessi umrædda
setning eigi við mig og engan annan.
Aðéghafi verið maðurinn, sem setti
mest út á sönginn á Islendingadeginum
og sagt í blöðunum, að honum liafi ver-
ið “mjög ábótavant”, skal ég ekki
þrátta mikið um, ég þarf þess ekki;
einungis skal ég benda mönnum á að
lesa fréttagrein mína í Hkk. nr. 48 síð-
astl. ár; ummæli mín í henni eru þann-
ig : "Eg heyrði auðvitað að ýmsir voru
ekki sem bezt ánægðir með sönginn ;
mér kemur ekki til liugar, að neita því,
að sönguriun hefði þurft að vera betri
og fullkomnari, en tvent er að athuga
við þetta” o. s. frv.
Þetta er nú alt, sem ég hefi ritað
um sönginn þann áminnsta dag, en
hvergi ritað, að lionum liafi verið “mjög
ábótavant”, eins og J. B. lej’fir sér að
tilfæra. Einnig er það ranghermt, “að
sá sem ritaði f blöðiri—nefnflega ég^-,
hafi verið forsöngvariun á Islendinga-
deginum—5. Ágúst—þótt ég syngi með
lítillega, þá stýrðu aðrir færari menn
söngnum, enda mun fáum, sem til
heyrðu, blandast hugur um það, nema
J. B., sem á því augnabliki virðist ekki
hafa heyrandi heyrt né sjáandi séð.
Hitt sýnist ekki svo undarlegt, þótt
þeir menn, sem stýrðu söngnum 5. Á-
gúst i fyrra. væru nú ekki brúkaðir fyr
ir forsöngvara á skemtisamkomunni 7.
Apríl, með því hvorugur þeirra var þar
staddur; enda þurfti engan ákveðin for
mann fyrir söng í það sinn ; mér vitan-
lega var enginn söngur á dagskrá,
hver söng það sem honum bezt líkaði,
án þess að neinni reglu væri fylgt í því
efni.
Þannig er nú þessi innskotssetning
hjá J. B. öldungis ástæðulaus, eins og
hún er bæði óþörf og ófimleg, þegar hún
er skoðuð í sambandi við undanfarin
orð. En það er eklcert tiltökumál, þótt
hugsana og setninga villur komi fyrir
endur og sinnum hjá ómenntuðum
mönnum, hitt er hnej’kslanlegra, þegar
menn eru svo skeytingarlausir eða van-
vita, að rita ekki lítilfjörlega frétta-
grein, án þess að auka þær með mis-
sögnum að meira og minna leyti; það
sýnist eiga bezt við, að segja blátt á-
fram frá því sem við ber, satt og hlut-
drægnislaust, enda þótt fréttapistlarnir
verði þá dálítið orðfærri. myndu lesend-
urnir vilja skifta því með ánægju.
Að endingu vil ég í bróðerni ráð-
leggja aldavin minum J. B., að rita
sem sjaldnast í blöðin, og þá þegar hann
gjörir það, að liafa það sem stytzt, og
sem minnst af því “slúður og bull”.
Tindastóll P. O., 25. Júní 189'.
JÓNAS J. HÚN’FJÖKO.
Um jafnaðar-félag’.
Herra ritstjóri.
í 17. nr. yðar heiðraða blaðs er mjög
vel rituð grein, eftir Mr. G. A. Dal-
mann, "um jafnaðarfélag”. Höf. hefir
sérstaklega smiið máli sínu til landa
vorra í Winnipeg og Nýja íslandi,
hvort ekki væri mögulegt fyrir þá, að
mj’nda einingarfélag, sem stefndi í
sömu átt og felag það, er hann getur
um að hafi mj’ndast fyrir skömmu í
Olatha, Kansas. F.g hefi búizt við, að
einhver yrði tiLaðrita um þetta mál í
íslenzku blöðunum, enliefi enn ekki orð-
ið var við það. Með linum þessum
dettur mér ekki i hug að benda á neitt,
sem verulegft geti heitið að hrinda máli
þessu áfram, allra sízt hér í Winnipeg.
Á þessum tíma sýnast mér torfærurnar
vera svo miklar, að þær vefjast sem
margfaldur hergarður kring um okkur,
og þess vegna mögulegleiki engin til
þess að við getum verið framleiðendur
að vinnu félagsbræðra okkar. En með
því að jafna yfir torfærurnar.slétta vcg-
inn er ekki hægt að segja, hvað fram
gæti komið. En hvað er það þá, sem
við ættum að gjöra, til að reyna að
lj’fta okkur á hærra menningar stig
meðal samborgara okkar. Okkur er
bráð nauðsynlegt að fræðast vel um hag
fræði, verkfræði og félagsfræði. Við
höfum marga unga eg efnilega menn,
sem ekki eru ófærari til að fræðast um
þessar námsgreinar, en samtíðabræður
vorir af öðrum þjóðfélögum. Frá þess-
um fræðilindum þurfum við að drekka
til þess að geta nokkurn tíma orðið
framleiðendur að verkþörfum oklcar'
Hvað félagsskapinn snertir, þá höfum
við verkmannafélög fyrir framan okkur
og eins og önnur samkj’nja félög,er það-
verkþiggjandi. Það er óþarft liér að
fara að geta um þá baráttu, sem þessir
flokkar eiga í við vinnuveitendur víðs-
vegar um hinn menntaða heim ; frétta,
blöð, sem við náum til og getum lesið-
fræða okkur um það. Til þess að sýna
að við séum menn, sem gætum staðið í
félagi, sem hefði hærra marksvið, en
sækjast eftir hörðustu og lökustu vinnu,
þá þurfum við að sýna það i verkinu.
með því að styðja að öllum skynsamleg-
um framkvæmdum í verkmannafélög-
um, leita okkur upplýsingar lijá bræðr-
um okkar, sem lengra eru komnir á
leið. Ef við sjáum veg, er geti fært okk-
ur á hærra stig, skyldum við athuga
hann, fara fet fyrir fet þar til stigið
væri fullkomíð spor til framfara. Við
þurfum vandlega að gá að lífsnauðsyn-
legum þörfum okkar, vinna saman það
lítið við getum gjört sem bræður, af-
leggja allan oddborgaraskap, tvídrægni,
tortrj’gni og öfundsýki, þá hefi ég von
um að verkmannafélög geti orðið fram-
leiðandi að lífsþörfum sínum.
Hjá Ný-íslendingum sýnist tæki-
færið fj'rir jafnaðarfélagshugmynd vera
svo nærri þeim, að ekki þurfi nema að
taka saman höndum til að lyfta því á
stað. Þeir hafa líka marga góða drengi
til að vinna að því, en hvenær þeir
losna úr hinum andlegalæðing, er hindr
ar þá frá að byrja, er ekki gott að
sogja.
Eg er nú orðin fjölorðari um þetta,
en ég ætlaði, og veit lika, að það eru
margir færari af löndum til að rita um
þetta mál og leiða huga manna til um-
hugsunar að þarflegum fyrirtækjum.
Ef þér, herra ritstjóri, þekkið til jafnað-
arfélaga, sem stefna í sömu átt og fé-
lag það sem Mr. G . A. Dalmann getur
um. væri það ekki gagnlegt fyrir les-
endur blaðs yðar, að fræðast um undir-
stöðuatriði og framgang þeirra, ef blað
yðar flytti fregnir um það, eða hvar
menn gætu fengið upplýsingar um þau
fél. með sem minstri fvrh’hðfrr, t
B.
Bessa-bréf.
(Eftir J. Magnús Bjaknason.
V. bréf.
Nýja ísland, Maí 189 —
Kæri vinur: — Þú segir í bréfi
þínu, að ég sé eins og vindurinn, sem
enginn veit hvaðan kemur eða hvert
fer. Blessaður, láttu engan hejra svo
léttvæga og vitlausa líking. Veiztu
ekki að veðurfræðin er komin á hærra
stig en svo, að menn viti ekki livaðan
golan kemur og hvert hún fer ? Segðu
heldur að ég sé eins og Ameríkumaður-
inn, sein enginn veit með vissu
hvaðan komur eða hvert ætlar. Hann
er eins og hunangsflugan, er sézt sem
snöggvast á blómið til að sjúga úr því
hunangið, og er svo farin að leita að
öðru blómi. Rithöfundur einn í Norð-
urálfunni líkir Ameríkumanninum við
vísundinn, sem rís upp að morgni við
rætur Klettafjallanna og er að kvöldi á
beit hundrað mílur út á sléttunni.Hvort
sem þetta er nú rétt líking eða ekki, þá
er það þó satt, aö Ameríkumaðurinn
(og Vestur-íslendingurinn er Ameríku-
maður) er alt af á ferðinni, alt af að
leita aö betra landi, að auðnuveginum,
að gæfunni og “bjartri framtíð”. Hann
lætur aldrei hugfallast. Hann rejmir
aftur og aftur, os eljar frá morgni til
kvölds, alt af að hugsa um að græða
peninga—dollara — þúsundir dollara—
millíónir—margar millíónir. Ameríka
er ekki heimkj’nni letingja : þar verða
allir að vinna á einhvern hátt. Þar er
alt á flugi og ferð—á flugi og ferð eftir
dollurum og centum, því dollararnir og
centin hreyfa alt—gera kraftaverk—
færa Ifjöll. Engin hvild, ekki augna-
bliks ró, fyrr en komið !er f gröfina, þar
sem loksins leitin endar—að líkindum—
og samkeppnin hættir, og allir eru jafn-
jngjar, því allir koma þangað tómhent-
ir frá þessu mikla spilaborði mannlífs-
ins.
Síðan ég skrifaði þér seinast, liefi
ég verið eins og býflugan, eins og vís-
undurinn, eins ogsannur Vestur-íslend-
ingur, aldrei í sama stað, alt af að leita :
stundum að stúlkunni minni, og^stund-
um að einhverju til að éta. Eg hefi
verið fjósamaður á einum staðnum og
og skógarhöggsmaður á öðrum. Ég
hefi verið við fískiveiðar norður á nesj-
um, sem kallað er. F.g hefi reynt alla
þá sálar- og líkams þreytu, sem því er
samfara, að fylgjast með uxa-sleðum—
það er “kalt verk og karlmannlegt”—,
vilji inaður á annað borð vægja uxa-
hnútunum, sem sumir slá sér til hita.
Og ég hefi líka setið réttum beinum á
hunda-skíðum og ferðast þannig sextíu
milur á dag.