Heimskringla - 28.07.1894, Side 1
I
VIII. ÁR.
WINNIPEG, MAN., 28. JÚLl 1894.
NR. 30.
Islendingadagurinn
2. AUGUST 1894.
Porseti: Mr. Árni Frumksson.
Garðnrinn qpimður kl. 9 árdegis.
Forseti setur sarafcomuna k]. 10 árdegis.
KI. 10 árd. til kl. 1 síðd.
LEIKIR:
HlaO' :
I. Stúlkur innan 6 ára...50 yds.
'2. Drengir innan 6 ára..50 yds.
•3. Stúlkur 6—8 ára.......75 yds.
4. Drengir 6—8 -ára.....75 yds.
5. Stúlkur 8—12 ára.....75 yds.
0. Drengir 8—12 ára.....75 yds.
7. Stúlkur 12—16 ára.....100 yds.
8. Drengir 12—16 ára.....100 yds.
9. Ógiftar konur yfir 16 ára 100 yds.
10. Ógiftir kaiflsn. yfir 16 ára 150 yds.
II. Giptar konur.........100 yds.
12. Kvœntir menn.........150 yds.
13. Konur (giftar sem ógiftar) 100 yds.
•14. Karlar (giftir sem ógiftir) 200 yds.
15. Allir karJar........hálf míla
16. Allir karlar...........1 míla
17. Islendingadags-nefndin 150 yds.
Kappkeyrsla .’.............1 míla
Kappreið...................1 míla.
Stökk fyrir alla:
1. Langstökk.
2. Hástökk.
3. Hástökk jafnfætis.
4. Hopp-stig-stökk.
Kl. 2—5 síðd.
Ræður og kvfeði :
1. ÍSLAKD :
Kvæði [Kristinn Stefánsson.]
Ræða [W. H. Paulson.]
2. CAXADA :
Kvæði [Einar Hjörleifsson.]
Ræða [Friðjón Friðriksson.]
3. ÍSLEND. í VESTURHEIMI :
Kvæði [Gestur heit. Pálsson.]
Ræða [B. L. Baldwinsson.]
Alment málfrelsi.
Margr.addaður söngur, m(irg lug
sungin.
Kl. 5—7.
Glímur.
Aflraun á kaðli.
Kl. 7 : dans.
Hjóðfærasláttur af og til allan
dagönn. í flokknum eru flestir ís-
lendingar, og samanstendur hann af'
12 imönnum.
Svo er til ætlazt, að samkom-
umni verði ekki slitið fyrr en kl. 11
*ð kveldinu. En forseti getur slitið
henni hvenær sem honum þykir við
«iga ettir kl. 9.
Fyrstu og önnur verðlaum verða
veitt fyrir alla leiki og íþróttir nema
að eins ein fyrir aflraunina. Margt
af verðlaununum eru vanfeðir og
mjög eigulegir munir. En mcð því
að nefndin hefir ekki til fniHs lokið
starfi sfnu, þegar þetta er .prentað,
eru verðlaunin ekki birt í dag, en
verða tilgreind á prentuðum pró-
grömmum, sem útbýtt verður við
innganginn.
í kappkeyrslu og kappreið fá
ekki að taka þátt nema Islendingar
og ekki nema þeir séu með liestasem
Islendingar sjálfir eiga. Kestar hér-
lendra manna, er fsl. keyra á degi
hvoruni fá sem sé ekki aðgang.
Aðgangurinn að garðmusn er
15 cts. fyrir fullorðna; 10’Cts. fyrir
börn 0—12 ára; yngri börn óbeypis.
Aðgangseyrir til leikja og íþrótta
verður engin fyrir böm innan 16
ára, né fyrir kvennfólk. Aðgangs-
eyrir fyrir mílu og hálfmíluhlaup 25
ets. fyrir aflraun á kaðli 20 cts. fyrir
kappkeyrslu og kappreið 50 cts., og
fyrir aðra leiki og íþróttir karl-
manua 15 ets.
Verkfallið.
Verkmannaforsetlnn Debs situr nú
i fangelsi í Chicago, og hefir sent út á-
skorun til almennings að banna nú auð-
mönnum, einkum Pullman, athæfi
þeirra og okur með því, að taka nú
aldrei piáss í Pullman svefnvagni, heit-
ir hann á alla góða drengi að ganga í
lið með verkmönnum og láta Pullman
vagna fara tóma leiðar sinnar, hvar
sem þeir fara um norður-Ameríku.
Skotinn kleukur.
f Shrievesport, La. var það borið
á klerk einn Platt að nafni, að hann
hefði borið út óhróður um stúlku eina
i sðfnuði sínum , en hann vildi reyna
að skella sökinni á annan mann,
Perdue að nafni. Ætlaði þegar að
slá i hart milli þeirra, en þó urðu
þær Jyktir á, að þeir skjddu mætast
seinna niður með á einni. Þegar
þangað kom var örðugt um sættir,
gripu menn þá til vopna og tóku
aðskjótast á;höfðu báðir flokk er noklc-
urn. En er skotin hófust, tók klerk-
ur, til fótanna og hljóp á ána, sendi
þá einhver honum kúlu og molaði
höfuð hans; frændi hans einn var og
skotinn í bakið og fleiri urðu þar
særðir.
Kína og Japan.
Útlit er fyrir að Kinverjwm og
Japðnum lendi saman í ófriði. Vilja
hvorirtveggja ráða á Kóreuskaganum
og hefir einlægt verið að smá-grynna
á því góða. Kínverjar hafa bannað
herskipum Japana að -taka hafnir á
Kóreu, en hinir gefa sig lítt að. Ný-
lega er sagt, að Kínverjar hafi sent
herlið út á Kóreu. 24. Júlí er það
ritað í Shanghai, að flokkur Kóreu-
manna hafi ráðist á Japana, en þeir
barið þá af höndum sér. Svo er sagt
að Japanskt herskip hafi ráðið á flutn-
ingaskip mikið, er Kínverjar áttu, og
sökt því. Yfir höfuð eru miklar dylgj-
ur með mönnum þar eystra. Japans-
búar eru vaskir og framgjarnir og
hafa á seinni tímum gefið sig mjög
við mentun og siðum Norðurálfubúa
og Ameríkumanna, en Kinverjar eru
þybnir fyrir og þykjast of gamlir til
þess, að láta undan slíkum smásvein-
um sem Japansbúum. Japansbúar
voru 1880 um 33 miljónir að tölu, en
Kínverjar eru nær 400 miljónir; þó
er tvísýnt hvernig íer, sá er vaskleika-
munur.
Ný uppitundning.
Fyrir nokkru síðan tóku menn
upp á því í Þýzkalandi að hreifa
vagna með “benzine-motor.” Höfðu
benzine-olíu fyrir hre.yfingarafl og
keyrðu þannig smávagna 16 mílur
á vanalegum vegum á klukkustund-
inni. í Lundúnum var og farið að
hafa rafmagnsvagna' með nýrri gerð.
Rafmagnsvél var höfð í sætinu í
fjórhjóluðum léttivagni, snéri hún
hjólunum og þaut svo vagninn áfram
á flugaferð þótt enginn væri hestur-
inn, fór hann á vanalegum strætum
án þess að þurfa járnteina til að
ganga á. Þegar fréttin um hina nýja
“gas-motors” barst hingað frá Þýzka-
land nýlega urðu inenn svo óðir og
uppvægir og sendu konsúl Banda-
rikjanna á ÞýzkaJlandi ótal fyrir-
spurnir um gerð þeirra og notkun.
Segir hann, að mesm séu óðum að
endurbæta þá og muni hreifingarafl
þetta fljótt koma í stað rafmagns
og hestadráttar, því að það sé svo
miklu ódýrara. En hér í AVinnipeg
eru rafmagsfélögin búin að fá einka
leyfi til þess að snuða menn og er
ekki ólíklegt, að þau vilji sitja sem
iengst að krásinni ein, eins og klerk-
urinn að grautartrogims forðum.
Hveiti.
Vikuna sem leið hefir hveiti lækkað
í werði um 5 centshér i bænum, og staf-
ar það af innfluttu hveiti og svo fyrir-
taks uppskeru á fastalandinu, einkum
Rúsdandi. Sagt er, að byrjað muni
verða að slá hveiti sumstaðar í vestur-
hluta fylkisins ínæstu viku.
Feódleg fregn um Ísland.
“Veslings þjakaða ísland er farið
að láta til sín heyra. Það |eru tvö stór-
atriði fefst á skrá á sessari einmana
eyju : sjálfstjórn ogalgjör þjóðflutning-
ur til Manitoba. Báðum málefnum
þokar áfram eftir vonum, og það er
mjög líklegt að það nái fyllingu sinni
jafnsnemma. Hin nýja stjórnarskrá
verður að líkindum lögleidd um það
leyti, sem allir verða farnir úr landi og
engum verður að stjórna”.
(Pall Mall Gvzette).
DAGBÓK.
LAUGARDAG, 21. JÚLÍ.
í .dag var ákveðið á Dominion-þingi,
að yfirslcoðun Dominion-kjörskránna
skyldi byrja 1. September næstkomandi
og vera afstaðin 28. Febrúar í vetur.
Gullþurð í fjárhirzlu Bandaríkja
hefir sjaldan verið eins mikil og í dag.
Þar voru bara til $61 millíón gulls í
stað 100 millíóna, samkvæmt lögunum.
A þingi Frakka var samþykkt í
gær, að framvegis skyldi kviðdómur
ekki gera út um anarkista mál, heldur
skulu dómararnir einir ráða úrslitum.
MÁNUDAG, 23. JÚLÍ.
ítalskt gufuskip fórzt i Svartahafi
fyrir skömmu og týndust þar 140
manns.
Dominion-þingi var slitið kl. 3. e.
h. í dag,
Áreiðanlegar fregnir segja, að jarð-
skjálftarnir á Balkanskaga um undan-
farinn tima, hafi orðið um 1000 manns
að bana.
Governorinn í Suður-Carolina aug-
lýsir, að 1. Ágúst byrji hann að láta
selja áfengisdrykki samkvæmt ríkislög-
unum nýju, þrátt fyrir að þau hafa
verið dæmd ómerk.
ÞRIÐJUDAG 24. JÚLÍ.
Kinverjum og Japanitum lenti
saman í sjó-orustu í smáum stíl i
dag. Kinverjar biðu ósigur og sökk
skip þeirra.
Á sunnudaginn lá við bardaga
i kyrkju i þorpi í grend við Chicago.
Presturinn varði mál verkalýðsins
með sérstöku tilliti til Pullman-stríðs-
ins. Ríkismaðurinn var viðstaddur, stóð
UPP °ít svaraði prestinum og leit um
tíma út fyrir upphlaup.
25 smá íbúðarhús brunnu með öllu
innanstokks í Montreal í dag. Eigna-
tjónið alls um $85,000.
Maður sá í Toronto. William
Kelly að nafni, er þreytt hefir við að
koma sporvagnaferðum á á sunnu-
dögum ók með fólk sitt í einum
slíkum vagni til kyrkju á sunnudag-
inn. Lögregluþjónarnir tóku hann
fastan, en létu hann lausan er þeir
vissu að hann var á ferð til kyrkj-
unnar með fólk sitt og noklfra kunn-
ingja. Nú heimtar hann $20,000
skaðabætur að bænum.
MIÐVIKUDAG 25. JÚLÍ.
Sambandsstjórnin hefir ákveðið að
senda nefnd manna til Manitoba og
vesturlandssins til að rannsaka kær-
una um hóflaust vöruflutningsgjald á
járnbrautum.
Anarkdsta-lögin eru aðal-málið á
þingi Frakka. í gær var komið að
grein þeirri. er fyrirbýður að opinbera i
blöðum framburð anarkista eða annara
fyrir rétti í anarkista málum. Út af
því ákvæði risu deilur miklar og talaði
einn stjórnarsinni svo illa til frétta-
blaða, að fnegnritarnir á sínum sérstaka
palli gerðu óhljóð. Var þá sá pallur
ruddur og ritararnir með valdi reknir
út úr salnura. Köstuðu* þeir þá hlut-
kesti um hver þeirra skyldi skora þing-
mann þennan á hólm. og hlaut Jean
Drault það, rifcari frá sósíalista blaðinu
La Libue Parale.
FIMTUDAG, 26. JÚLÍ.
E. V. Debs og ráðanautar hans 3
foringjum A, R. U- fél. var hleypt úr
fangelsi í gær, eftir að hver um sig
hafði lagt fram $9 500 ábyrgð á ný.
Mál þetta kemur fyrir {rétt 5. Septem-
næstk.
Enskt seglskip fórzt nýlega með
allri skipshöfn á Kyrrahafi, nálægt
ströndum Kínlands.
Rússneskur anarkisti var í gær
handtekinn í Chicago. Var að brjóta
glugga á ibúðarhúsi Pullmans, en ekki
liafði hann kastað öðru en steinum, er
hann var tekinn.
FÖSTUDAG 27. JÚLÍ.
Shanghai (Kína) fregn segir Kín-
verja hafa formlega sagt Japanítum
stríð á hendur. Japanítar halda uú
Korea-konunginum í fangelsi. 11 kina-
herskip eru nú á leið til Koreu en
hermennirnir er þau flytja hafa ekki
annað vopna en boga og örfar.
Á Washington-þingi er í gerð lög,
er banna útlendingi að vinna nokkra
vinnu innan Bandaríkja fyrr en eftir 6
mán. dvöl í landinu. Ef lögin eru brot-
in, varðar það S100 útlátum eða 90
daga fangol-i. Ekki hafa þessi lögver-
ið samþykkt enn.
ISLANDSFRÉTTIR.
Eftir “Þjóðólfi.”
Nýkoanir alþingnmenn (auk þeirra
sem áður var getið) :
í Eyjafjarðarsýslu :
Klemens Jónsson, sýslum.,
Jón Jónsson í Jdúla.
í Strandasýslu :
Guðjón Guðlaugsson.
í Dalasýslu :
Séra Jens Pálsson.
í Austur-Skaptafellss.:
Jón Jónsson próf. á Stafafelli.
í Vestur-Skaftafellss. :
Guðl. Guðmundsson sýslumaður.
í Suður-Þingeyjars. :
Pétur Jónsson á Gautlöndum.
í Skagafjarðarsýslu :
Ólafur Briem,
Jón Jacobsson.
í Húnavatnssýslu :
Þorleifur Jónsson,
Björn Sigfússon.
í Snæfellsnessýslu :
séra Eiríkr Gíslason á Staðarstað.
í ísafjarðarsýslu :
séra Sigurður Stefánsson.
Skúli Thoroddsen sýslum.
í Barðastrandarsýslu :
Sigurður Jensson prófastur.
í Norður-Þingejjars. :
Benedikt Sveinsson sýslum.
í Norður-Múlasýslu :
Einar Jónsson próf. á Kyrkjubæ,
Jón Jónsson í Bakkagerði.
í Suður-Múlasýslu :
Sigurður Gunnarsson prófastur,
Guttormur Vigfússon búfræð.
15. Júní.
Prentkomiing er um garð gengin í
Glaumbæjarprestakalli og hlaut séra
Hallgrímur Thorlacius á Ríp kosningu
með 28 atkvæðum.
EmbiManeitingar. Forstöðumanns-
embættið við prestaskólann er veitt
docent Þórhalli Bjarnasyni.
Kennaraembættið við læknaskól-
ann er veitt Guðmundi Magnússyni,
héraðslækiii í Skagafirði.
(Niðurlag á 4. bls.)
Orða-belgrinn.
Landneminn.
vestur í “frjóseminnar landi.”
(Sbr. “Landneminn i borginni” og
“Landneminn í frumskógunum,” þrent-
að í Lögbergi).
Nú hef ég á vestur-vengi
verið síðan reit ég hinst;
sumri eytt hjá svinnu mengi,
sorgir þó mig nagi inst.
Kendi’ ég opt á kulda og vosi,
kærleiks yl ég sjaldan fann,
en samt fyrir einu brosi
alt mitt líf til skaða brann.
En sorgir þó ég beri’ í barmi
byrgja mun ég þær í kveld;
bezt er nú að hyggja’ af harmi,
hita sér við lífsins eld.
Um vesturlandsins frjósemd flugu '
fregnir, sem mér gerðu tjón,
agentarnir upp þeim lugu
ýmsum til að glepja sjón.
Eins og, vinur, eg þér sagði,
óslökkvandi var mín þrá,
vestur því ég leiðir lagði,
lands í skekil vildi ná.
En þegar kom ég þangað vestur
þreyttur, beið mín vobrigð ný,
á flestu öðru en fátækt brestur
fann ég var í landi því.
Fann þar grasbrest, gróðurleysi,
gnauða vind um kalin börð;
akra gráa, örgnauð hreisi;
úldið vatn og granna hjörð.
Hátt er reistur frelsis fáni
“Frjóseminnar landi” á,
bændur samt þar lifa’ á láni
lánardrotnum sinum hjá.
Þarna festi’ eg ekkert yndi,
eins og nærri geta má,
því síður ég fagra findi
framtíð sliku hrjósti á.
•
Um það land ég ei má skrifa
Alt þó gerla’ eg viti’ um það,
agentarnir eiga að lifa
einir til að rita’ um það.
Vonsvikinn með vængi brotna
vék ég þessum stöðvum frá,
kumlaður með krafta þrotna,
kom svo Nýja ísland að sjá.
Nýja ísland á nægt af sonum
nautn sem finna i lífsins þrótt.
Bygðin öll er björt af konum,
bygðin hlýtur liefjast skjótt.
Nú er ég hjá Sigurðssonum,
safna nýjum lífsins þrótt
ég er allur vakinn vonum
veit hér kemur járnbraut skjótt.
Nýja ísland á nýta drengi,
nútíð þess á seiga rót;
Nýja ísland lifi lengi,
líf þess blasir framtíð mót.
20. Marz 1893.
J. Runólfsson.
Til rangeygra ritdómara.
Þér sjáið bækling — setjið þegar rétt,
Með sökudólginn bundinn grindur við;
A vogskál yðar setning hver er sett,
Og sérhvert orð er slitið lið frá lið ;
Og dauft það finst og létt, sem drafnar-
Því dramb er lóðið yðar metum á, [hjóm,
En fyrirlitning ritar rangan dóm,
Því rökum hrundið er með þjósti frá.
Það dómsorð hrífur, hrokafult og kalt,
Því hrís er penninn, blekið yðar salt.
Þér þvoið hendur, þerrið sveitta brá,
og þykist hafa unnið skyldu-verk;
En veslingar, sem vit hjá yður fá,
Viðurkenna að yðar hönd sé sterk.
Svo syngja þeir í sama tón og þér,
Unz sálir þeirra verða að báli og ís ;
En margur þeirra blekslettu þó ber
Á baki, eftir yðar snarpa hrís,
En sleppum því, — þér agið yðar börn.
Svo ei um of þau verði brekagjörn.
Ég veit að yðar sjónarhæð er há,
Og harla margt er fyrir yður bert;
En margt er og, sem yðar augu ei sjá,
sem ef til vill—þó smátt—er mikilsvert
En meinið er þér metið það ei neins,.
Sem myndast fyrir utan yðar svið ;
Þér segið : “Þetta er ekkTtil,” og eins
Að oröi kveður yðar fylgilið.
Þér optimistar málið sjálfir svart,
En segið alt í heiminum sé bjart.
Segið mér : hví rífið þér hvert rit,
Sem rithöfundar ungir hafa skráð V
Eða, er þá ei í öðru vit,
En yðar verkum?— hitt skal vera smáð.
Eða, óttist þér, að æskumansins sál
Aukist þrek, ef hnekki ei hún fær,
Og komi síðar fram með meira mál,
og máske stigi á yðar eigin tær ?
Eða, veldur bræði blandið gys,
Sem brennur alt til mannlegs helvítis ?
J. Magnús Bjahnason.
Brot úr kvæði
um kvennfélagið að Akra, N. Dak.
4. Júli 1894.
Nú kvennfélagið frjálst á frelsisdag,
það fagran dregur að sér manna-skara,
með ræður, söng og hljómfrítt hornaslag
að hressa og fræða þess er heiðurs-vara.
Það má sjá að hingað vífa val
vent hefir margt frá ættarjarðar strönd-
með ást og trú og skíran sinnu-sal [um,
og sæmd og þrekið bæði í lund og hönd-
um.
Það má sjá í bjarkar blómgum lund
með bjartan svip að hér vex prýði
svanna,
gegn livarmaljós með ljúfust gáfna pund
mörg ljómar sálin fús til góðverkanna.
Það má sjá að fljóða hönd er hög
þá heim til komum þeirra frjálsu ranna ;
þar gestrisnin með bros og bræðralög
og blóm kærleikans gleður hugi manna.
Bið ég guð að blessa kvennfélag
og blómum gæfu strá þess fjörs á voga,
alt svo snúist í þvi heilla hag
og heiðurskranz það beri æfinlega.
Svo lifi mentin, lofuð ætíð mjög.
og lifi alt sem framför veitir sanna,
og lifi þjóðiu, lifi kvennfélög,
og lifi ást og trú á frelsið manna.
Sv. SÍMONARSON.
VF.ITT
HÆSTU VERÐLAUN A HEIMSSÝNINGUNNI’
•2E51^-
BÁMIN6
tmm
IÐ BEZT TILBÚNA.
Oblönduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára reynzlu.
FRÉTTIR.
England.
Nýlega hefir komið til orða á Eng-
landi að gera stýflugarð í sundið milli
norðausturhonnsins írlandi og Mull á
Cantire á Skotlandi, til þess að nota
straum í sundinu til rafmagns fram-
leiðslu. Breiddin á sundinu er 15 mil-
ur og dýpið frá 2—300 fet. Straum-
hraðinn er um 6—8 mílur á kl.st., og
bygginga-efnið, sem þyríti til að stýfla
með sundið, er 5 hundr. milj. tenings-
.yards. Vatnið, sem streymir gegn um
sundið á degi hverjum, er alt að 150
tengsmílur, og kostnaðurinn við að
beita því til rafmagnsframleiðslu, er
girkað á að verði $100,000,000, hér
um bil sama og Manchester skipa-
skurðurinn, sem lokíð var við í vetur.
Það hefir verið sýnt fram á, að með
þessu móti ma framleíða alt það raf-
magn, sem England, Skotland og ír-
land þyrfti við verksmíðjur sínar, til
lýsingar í borgum og á þjjóðvegum til
hitunar og hvers annars, sem rafur-
magn mundi verða notað til. Kolin
sem óðum ganga nú til þurðar á Eng-
landi, mundu ekki verða notuð að
neinum mun nema á gufuskípum. 0g
bærinn losnaði við þann óþverra 0g
óþægindi, sem af mikilli kolabrúkun
leiðir, þar eð búast má við því, að
áður en langt liður, verði rafmagn
brúkað við matreiðslu og til hitunar
í íbúðarhúsum.
Það eru ýmsir örðugleikar á að
framkvæma þetta þrekvirki, en þó
ekki svo stórir að þeir séu frágangs-
sök. Þaö er að eins einn hægur á
hugsjóninni, og hann er sá, að það,
að stífla straum i sundinu, kynni að
valda breyting á tíðarfari á bresku
eyjunum, sem yrði til meiri skaða en
alíur hagurinn við rafmagns-fram-
• leiðsluna.
Það er haft eftir hvalfangurum
sem nýlega eru komnir frá Spitz-
bergen að Wellmans heimskautsfar-
arnir muni allir hafa farist. Er sagt
aðjskipið sem flutti þá norður að ienum
frá Norvegi hafi verið gamalt og illa
útbúið og engin af þeim sem i för-
inni voru hafi haft neina reymilu i
beimsskautssiglingu. Þeir halda og.að
skip Nansens hafi brotnað í ís þar
n\Tðra, en ekki eru til neinar áneið-
alegur fréttir um það.
Kóleran.
í Pétursborg á Rússlandi geysar
kóleran óðum og stafar það af hitanuoa.
Nýtega brauzt hún út í herbúðunuua
við Krasnoi—Salo, 18 milum fyrir sunia1
an Pétursborg. Þegar sýktust af henni
1000 manns og bætast 200 við með degi
hverjum, og deyr annarhvor maður.
Þáæðir plagan “svarti dauði” yfir
Kínaveldi og drepur menn hrönnum
saman. Eru menn svo hræddir við
hana, að menn flýja alt hvað fætur
toga þar sem vart verður við hana.
Þegar hún kom upp í Hong-Kong, borg
einni mikilli í Kina, flúði þaðan 400 000
manns, en hvert sem flúið ere ltir plág
an og gefur ekki grið. Sóttvarnir eru
þar litlar og læknar ónýtir.
MaRÍU LÍKNESKl.
Þegar jarðskjálftarnir gengu í Aþ-
enuborg í vetur sem leið, var þar stúlka
ein,sem trosaðist með líkneski af Mariu
mey um göturnar og sagði hún, að likn-
eskjan greti fögrum tárum yfir væntan-
legri eyðileggingu Aþénuborgar, enda
gé.tu menn ekki betur séð, en að tárin
hryndu af augum mjTidarinnar. JEn
svo fóru lögregluþjónarnir að skoða
þetta, og fundu þá svamp aftan í hnakk
anum á líkneskjunni, og þegar stúlkan
þrýsti á svampinn fór hin heilaga María
að skala.