Heimskringla - 25.08.1894, Side 1

Heimskringla - 25.08.1894, Side 1
VIII. ÁR. NR. 34. neimsKringia. WINNIPEG, MAN., 25. ÁGÚST 1894. FRÉTTIR. DAGBÓK. LAUGARDAG, 18, ÁGÚST. Pregnir af Kórea-striöinu bárust til Vancouver með C, P. R, skipinu “Em- press af Japan”, er kom að austan í gær. Eftir þeim fregnum að dæma er full alvara í báðum þjóðunum. Bæði Kínar og Japanítar eru í óða-önn að byggja járnbrautir og fréttaþræði, til þess að greiða gang að koma mönnum og vopnabúningi á leikvöllinn. Kín- verjar eru búnir að lypta öllum leiðar- vitum skipa fyrir ströndum sínum og er þvi hættulegt að sigla grunnt, enda er svo til ætlast, að Japanítum verði ekki holt að senda herskip sín iun á kín- verskar hafnir. Annað það, sem er ó- þægilegt fyrir verzlunarskip er, að Kína stjórn hefir fyrirboðið að selja pund af kolum á kolastöðinni miklu á Formosa- eynni, Japanítar hafa nú boðið upp $50 millíóna virði af skuldabréfum á pen- ingamarkaðinum í Lundúnum. Akuryrkjustjórnardeild Breta hefir nú afráðið, að canadiska nautgripi megi ekki flytja til Englands nema til slátr- unar á lendingarstaðnum, eins og verið hefir. Lungna-rannsókninni er lokið, ogþó enginn læknirinn (þeir voru 17 allsjvildi staðhæfa að veikin væri smitt- andi lungnabólga, varð þetta úrskurð- urinn. Einn læknirinn hélt þvi fram, að hér væri um nýjan sjúkdóm að gera, sem læknarnir ekki þekktu. Merkileg hilling. í gærmorgun hilti bæinn Toronto svo, að hann sást frá Buffalo, 80—100 milur burtu, beina leið. Myndin afbænum, stórhýsum, strætum höfninni. og eynni framundan sást eins og væri það í 2—8 mílna fjarlægð. Gufuskip og bátar á allri stærð sáust og á Ontario-vatninu, sum á leið til Toronto og sum að fara þaðan. Svo var myndin skýr, að landshallinn sást vel, líðandinn upp frá vatninu og hæðirnar i nórðurhluta bæjarins. Eftir litla stund kom skýflóki úr norðvestri og sópaði þess.ari mynd á burt. Frá 1. Jan. til 1. Ágúst þ. á. brunnu hús og eignir í Bandaríkjunum og Ca- nada, sem alls eru virtar á $77 020 200. Er það 15 milliónum minna en á sama tima i fyrra. Kólera er að útbreiðast i Austur- ríki og á Þýzkalandi. Sagt hún sé nú komin til Amsterdam í Hollandi. Verzlunarfélag í Montreal, Henry & N. E. Hamilton, í Montreal, heimta $50 000 skaðabætur af verzlunar-eftír- lits-félaginu, “Bradstreets’ í New York, fyrir að hafa sagt þá bræður verzla án nokkurrar innstæðu. Sex mán. áður sagði Bradstreets þá $75 000 virði. MÁNUDAG, 20. ÁGÚST. Gladstone-sinnar á jEnglandi eru á ný farnir að vona, að gamli öldungur- inn fáist til að taka þátt í opinberum málum aftur. Byggja þeir von sína á þvi, að hann hefir í bréfum til vina sinna látið vel af því, hvað sér fari fram bæði að því er snertir heilsu og sjón- skerpu. Á Buddhistapresta þingj, er nýlega var haldið í Tokio í Japan. til að fagna höfuðpresti þeirra, er sendur var á trú- flokkaþingið í Chicago í fyrra, lét hann í ljósi, að Buddha-trúin væri í óða-önn að útbola kristnu trúnni hvervetna í heiminum. Sagði því til sönnunar, að í Boston og grendinni væru nú orðnir 20- 000 ameríkanskir Buddha-trúarmenn. Á . þessu þingi mættu 1100 prestar og ávít- aði Chicago-farinn þá fyrir aðgerðale.vsi og slóðaskap í að útbreiða trú þeirra. VEIXT HÆSTU VBRÐLAUN a iieimssýninguxni IÐ BEZT TILBÚNA. Oblönduð vínberja Cream of Tartar Powder. Ekkert álún, ammonia eða önnur óholl efni. 40 ára reynzlu. Á Englandi hvervetna er vonast eft ir að toll-lækkunin í Bandaríkjunum geri mikið að verkurr. til að lífga verzl- un í Evrópu, undir eins og toll-lögin öðlast gildi. Japanítar eru að streyma vestur yfir Kyrrahaf til ættlands síns, til að taka þátt í ófriðnum, bæði frá Ameríku og Evrópu, Maðureinn í Toronto, Canada, liefir fundið upp nokkurs konar lijólskauta, er hann kallar Bicycle-skauta. og segir hann, að á þeim geti menn farið 40 míl- ur á kl. stund á hrufulausum steinstræt um. HjóUn neðan á ilskónum eru 10 þuml. há og eru búin út eins og reið- hjól—Bicycles. ÞRIÐJUDAG, 21. ÁGÚST. Efri deild Washington-þingsins er búin að láta ákveðna nefnd breyta laga- frumvarpinn, er neðri deildin samdi um daginn og sem ákvað, að sykur, kol, girðingavír og óhreinsað járn yrði toll- frítt. Er nú frumvarpinu breytt svo, að 40% toliur er lagður á sykur og 2—4 cents á hvert gallon af sýrópi, eftir gæð um. Ákvæðum um járn er ekki breytt og svo er um kolin, en undanþegin eru öll þau ríki, er leggja toll á kol frá Bandaríkjum. I Girðingavírs ákvæðin eru breytt þannig, að tollurinn verður virkilega tckinn af honum tilbúnum, en neðrideildar frumvarpið ákvað ekki toll- frítt nema efni f girðingavír. Var það auðsælega ritvilla, en republikar f efri deild gerðu sér gott af henni, Stríðs-fregnriti blaðsins “Standard” í Lundúnuin, Mr. F. ViUiers, er á ferð vestur um Ameriku og á leið til Koreu- skagans. í síðastl. 25 ár hefir hveitiverð f On- tario ekki verið eins lágt og þaö er nú. 50 cents eru í boði fyrir bush. af nýju hveiti. Nýkomnar fregnir frá Koreu segja frá mannskæðri orustu, er þar hafi ver- ið liáð fyrstu dagana af Ágúst. Japan- ítar voru miklu iiðfærri en Kínverjar, beittu brögðum, svo Kínverjar héldu þeir væru að fara f aðra átt og fóru því að tilbiðja skurðgoð sin. Voru þeir að þvi er Japauítar snéru við og gerðu á- hlaup. Féllu þar yfir 1000 Kinverjar, en ekki nema 70 Japanftar. Hraðskeyti til Lundúna segir, að nú séu tveir miklir herflokkar að náL- asthvor annan ogbúizt við grimmri or- ustu á hverri stundu. Kinverjar eru í þeim flokki. um 50 000 og tindir forustu eins mesta hershöfðingja Kínverja.— Li Hung Chang. Málsókn er hafin í Toronto, sem mögulegt er að leiði í ljós, hver eða hvorir sendu Ch. Chamberlain til Win- nipeg í fyrra, til að greiða atkvæði i sem flestra manna nafni. Kona Cham- berlains klagar mann einn, er hún segir að haldi fyrir sér $1200, er manni henn- ar hafi borið, ll(XK) vinnumenn á 22 léreptsgerðar verkstæðum í New Bedford, Massacliu- setts, hættu vinnu í morgun. 5 slík verkstæði í bænum halda áfram enn, en búizt við þau verði líka að hætta. Aug- lýst kauplækkun cr ástæðan. Sagt er að Japanítar séu i undir- búningi með að gera áhlaup á kastalann Wei-Hai-Wei, nálægt botni Gulaflóans og nálægt endastöð Kínverjamúrsins mikla. Þann kastala segja Kínverjar óvinnandi, en eru þó hræddir um hann oghafa fjölda herskipa á flóanum, til að líta eftir skipaferðum Japaníta. Bólusótt geysar um Lundúni. I gær voru þar sagðir 15 000 manns bólu- veikir. Aðrar landfarsóttir eru þar og skæðar. MIÐVIKUDAG, 22. ÁGÚST. Spánverjar eru Bandaríkjastjórn reiðir fyrir sykurtollinn ákveöna—40%, og gera ráð fyrir að rjúfa verzlunar- samning Bandaríkja og Cuba undireins og sykurtolllögin öðlast lagagildi. Skemtibátur, jakt, i kappsiglingu. fórzt á höfninni i St. Johns i Nýfundna landi í gær, og drukknuðu 8 menn af 12, sem á bátnum voru. Frumvarp um ótakmarkaða útgáfu silfurpeninga var í gær lagt fjTi'r Was,- hington-þingið. TTm þau lög biðj * fyr- irliðar allra stærstu verkmnnnafélag- anna í ríkjunum, og var bænarskrá Þess efnis lögð fyrir þingið jafnframt frumvarpinu. Smáþorp í Quebec-fylki brann til rústa i gær. Fregnir fi-á Koreu segja, að Kín- verjar hafi unnið sigur tvívegis í vik- uiini er leið, að þeir hafi náð borg einni úr höndum Japanita og rekið flóttann um 11 mílur vegar. Styrjöld er i undirbúningi í svert- ingja lýðveldinu litla, Hayti, í West In- díum. Ástæðan er sú, að Hippolite forseti liggur veikur og er ekki talið líf. í gær var E. V. Debs, forsoti A. R. U. félagsins, aðalvitnið fyrir Pullman- striðsrannsóknarréttinum í Chicago. Hann sagði söguna skilmerkilega og sngði, að ef innbyrðisstríð hefði hlotizt af, hefði það verið að kenna blöðunu mí CUicago. er hefðu sent lygafregnir um alt landið og á þeimfregnum hefðu svo dómar manna og blaða verið bygðir. Hann mælti með að járnbrautirnar yrðu gerðar að þjóðeign. Efri deild Washington þingsins hefir samþykkt lagafrumvarp, er bann- ar innflutning allra manna, sem álitið er að hafi anarkista skoðanir. Sérstak- ir menn á hafnstöðum Evrópu eiga að líta eftir því og umbaðsmenn stjórnar- innar á hafnstöðum í Bandaríkjunum. Lögin gera og ráð fyrir, að allir út- lendingar, er láta slika skoðun í Ijósi eftir að til Bandaríkja er komið, verði fluttir til ættlands síns aftur, eftir að hafa úttekið sina hegningu, ef þeir hafi til hegningar uunið. Bandaríkjastjórn cr mjög annt um að þessi lög verði sam- þykkt í neðri dcild áður en þessu þingi er lokið, svo að þau öðlist gildi sern fyrst. 1600 familiufeður, í ‘Pullman, fyrr- verandi þjónar Pullmans, eru allslausir oglíðasult. Governorinn í lllinois hef- ir rannsakað málið og segir, að bæjar- stjórnin og Coúnty-Stjórnin þurfi nauð- synlega að veita þessu fólki hjálp tafar- laust. FIMTUDAG, 23. ÁGÚST I Tokio, Japan, er það gefið út sem stjórnarauglýsing, að Koreu konungur hafi 80. Júní síðastl. auglýst, að liann væri óháður Kínverjum, og um leið beð- ið Japaníta að hjálpa sér að reka Kín- vcrja yfír landamærin. Samdægurs upphóf Koreu konungur alla samninga við Kínverja. Þetta é. að réttlæta Jap- aníta á dómþingi þjóðannn. $ 125 000 býður Bamlaríkjastjórn canadiskum selveiðamönnum í skaða- bætur fvrir fasttekning skipa þeirra að undanförnu Þeir heimtuðu $750000. en það er of gífurleg upphæð til að tak- ast til greina. Sjómálastjóri Tupjier hefir útvegaö þetta boð—$425 000, en verðiþví neitað, hcimt.ar Bandaríkja- stjórn að nefnd verði sett til að rann- saka málið og ákvoða skaðabætur. Gufuskipið Monarch, frá Rat Port- age, er strandaö á kletti í Rainy Iiivcr. Farþegjum og skipshöfn varð bjargað. Sagt er að fylkisstjóri Angers í Quebec verði innau skamrns skipaður hæstaréttardómari. Hraðskoyti til Lundún.a scgir Kin- verja og Japaníta hafa háð aðra mann- skæða orustu, og er sagt, en þó ekki víst, að Kínverjar hafi inátt betur. 25 000 manns af livorri lilið tóku þátt í orustunni. Aukakosningar fóru fram í gær í Brandon og Beautiful Plains. I Bran- don sóttu Cliarles Adams og C. C Cliffe; í Beautiful Plains J. A. Davidson og .Tas. Forsythe bændaliði. Kosningu hlutu : í Brandon Chas. Adams í Beautiful Plains Jas. Forsythe. FÖSTUDAG, 24. ÁGÚST. Rússar senda 9 herskip vestur á Kyrrahaf, til að lita eftir ófriðnum. Lengvarandi þurkar liafa t il hálfs eyðilagt uppskeru alla í New York ríki. Sendimaður Breta á nýlenda-þingið í Ottawa i sumar, Jarlinn af Jessey, mælir að sögn mcð, að Bretar hjálpi til að stofna liraðskreiða gufuskipa-linu milli Englands og Canada. Svo segir Times i Lundúnum. Orða-belgrinn. [Öllum, sein sómasamlega rita, er velkomið að “leggja orð í belg;” en nafn- greina verðr hver liöf. sig við ritstj., þótt ekki vilji nafngreina sig í blaðinu. Engin áfellis-ummæli um einstaka menn verða tekin nema með fullu nafni undir. Ritstj. afsalar sér allri ábyrgð á skoðun- umþeim, sem koma fram í þessumbálki]. Ritningin óárciöanleg. Merkur Congregationalista-prestur frá Toronto messaði hér í kyrkju fyrra sunnudag, og var ekki trútt um, að sumum rétttrúuðum brygði heldur í brún, er hann flutti ræðu sína. Ræða hans er einkum að því leyti eftirtekta- verð, að þetta er ekki unitari eða fri- þenkjari,heldurprestur eins hinsstærsta og mannflesta prótestanta-trúflokks i Ameríku. Ræðan sýnir það, að rétt" trúnaðurinn er eitthvað farinn að geggj- ast víðar en hjá Islendingum; hún sýnir það, að einlægt eru þeir að fjölga, sem ekki get.a fengið af sér, að skrökva að alþýðu, og teyma hana sem asn- ann á eyrunum. hún sýnir það, að kyrkjufélögin hin prótestantisku, eru að fara á skrið, eru bráðum komin á harðastökk til frjálslyndari trúar. Menn kasta einni vitleysunni eftir aðra sem blessaðir klerkarnir hafa lagt í sálulijálpar-ferðatösku alþýðu, en halda því einu eftir, sem gott er og ekki stríðir á móti öllu mannlegu viti og skynsemi. Prestur þessi er séra W. J. John- ston frá Toronto og sagðist lionum á þessa leið : “Enginn maður með viti getur hald- ið því fram, að alt í ritningunni sé réttlátt og sannleikanum samkvæmt. Því þó að menn viðurkenni innblást- ur hennar, þá er hún þó samsafn af 66 bókum, sinni eftir hvern höfund' sem allir voru menn, og er skrifuð á tímum, er menn voru miklu þröng- sýnni en nú. Ritningin var ekki sam- ansafn allra visinda og alls eigi áreið- anleg í öllu. Gamla Testamentið nær yfir 1600 ár, og það er eftirtektavert, að seinni bækurnar gáfu miklu skýr- ari og sannari og lireinni hugmvnd um guð' en þær fyrri.” Svo mintist hann á höfund fyrstu bóknr Móesesar. Fyrir 12 árum kvaðst hann hafa ætl- að að Móses væri höfundurinn, en nú gæti hann ekki verið á þeirri skoS- un. En hver svo sem rithöfundur sá hefði verið, þá hefði hann tínt sögu sina saman úr öðrum bókum, og ef bækur Mósesar væru bornar saman við bækur Chaldeumann.a og Assyra, þá sægju menn fljótt, að meginhluti Mósesbókanna væri tekinn úr þessum fornu ritum. Hann sagði, að tvær væri sögurnar um syndafallið og tvær um sköpunina. Hann drap og á dar- winsku kenninguna um framkomu mansins. Sagði hann, að maðurinn væri ckki að spillast, heldur að full- komnast, því að í fyrri daga hefðu þeir ekki einu sinni haft ritninguna til að leiðbeina sér, heldur hofðu þeir látið ser nægja að trxia því, að sólin eða tunglið eða stjörnurnar væri guð- ir, en guð sá, sem hyrfi undir sjón- deildarhringinn, fullnæcði ekki mönn um nú á tímum. Menn þráðu ann- að betra. Hann sagði, að fjölda marg- ir tryðu því, að Nýjatestamentið væri guðs orð frá upphafi til enda, en það væri langt frá að það væri satt. Það vreru til tvö guðspjöll Matteusar. tvö guðspjöll Lúkasar, tvö guðspjöll Mark- xisar, tvrö guðspjöll Jóhannesar. Það hefði ekki verið fyr en árið 897, að kyrkjuþingið i Carthago viðtók Nýja- testamentið, svo að þetta guðsorð vreri því ekki annað en skoðanir postul- unna og annara rithöfunda. Hann sagði, að vér gætum ekki haft hvort- tveggja í einu: óskeikanlegan guð og óskeikanlega ritning. Yér vrðum að kasta öðruhvoru, og þá sagði hann, að fyrir sitt leyti vildi hann halda guði. Þetta eru meginatriðin úr ræðu hans, og sýnir þetta, að menn eru farnir að vakna. Grundvellinum, sem öll kyrkjan hin rétttrúaða livilir á, hvort heldur það er lúterska eða pres- byterianska eða congregationalism, er kastað, hnnn er viðurkendnr ónreið- anlegur. Syndafallinu er kastað, sköp- unarsögunni er kastað, gjörspilling mannanna er kastað, og hver sem hefir vit og skvnsemi til að hugsa út í það, hlýtur þá að sjá, að moð því fer bæði endurlausnin og guðdómur Krists. En hvað skyldi það nú samt verða lengi, sem alþýða vill heldur láta skrökva að sér en heyra sannleikann ? Hvað skyldi verða langt til þess að menn mættu treysta því, að lieyra sannloikann úr stólum guðshxTsanna ? Og hvenær skyldu inenn verða svo hreinskiluir, að menn fyrst og fremst sægju það, hve mikil svfvirða og nið- urlæging það er fyrir þá, að ganga einlægt fram eins og sumir gera ljúg- andi og hræsnandi alla sína æfi, í þeim efnum, scm menn þó v&nalega kalla heílög ? Hvað skyldi verða langt til þess að menn hætta þessum aumingja- skap, að menn fá svo mikla einurð, að þeir hætta þessari hræsni ag koma fram með skoðanir sínar eins og þær eru ? Feigðarblær er yfir þjóð þeirri. sem þannig niðurlægir sig eftir að hiTn er komin til vits og ára. Þessir góðu mfnn hennar, þessir “miklu menn,” þessir “beztu menn” hcnnar eru rolur, aumingja, auðvirðilegar rolur, þ.að er líkast því, sem sé kvarnir i höfðum þoirra, eða þeir hefðu verið lúbarðlr í langa tíma, og þyrðu ekki að líta upp. Þeir láta sór nægja að kúra neðst á askbotni og hafa asklok fyrir himinn. Betur vér leystumst frá. þeim fyr en seinna. -4. L'. C. SMÁVEGIS. Húsagrunnur í Chicago. Það þarf traustan grunn undir aðrar eins “himingnæfandi” risabygg- ingar eins og í hrönnum útilykja sól og sumar af mörgum strætum í Chi- cago. En grundvöllur bæjarins er hvergi nærri góður, því upprunalega var mikill hluti bæjarstæðisins vatns- étin mýri og hálf-ófært fen. Þó hefir meginhluti bæjarstæðisins verið upp- hækkað svo, að það er nú hafið 12 fet yfir vatnsborð. Eigi að síður lærð- ist mönnum skjótt, að grunnurinn var of veikur til að halda uppi stórbygg- ing. Pósthúsið er ljós vottur þess, og var þó álitið, að ramlega væri frá gengið, er það var bygt. Veggír þess eru allir sprungnir og það er alt úr lagi gengið, svo sigið er það niður í foraðið undir. Svo ótraust er þessi mikla bygging, að bygginga-umsjón- armaður bæjarins hefir “fordæint” hana fyrir löngu síðan. Bæjarstjórn- in hefir aftur og aftur heimtað póst- hús sem ekki sé lífsháski að ganga inn í eða vinna í, en sambandsstjórn- in á húsið, og hún er æfínlega þung í sveiflunum. Er þar búist við hús- hruni og manndrápi á hverri stundu eins og í Washington fyrir ári siðan. Það var ef til vill þessi" bygging fremur en nokkur önnur, er sannfærði hj-ggingameistara um, að það er ónóg í Cnigago að reka stólpa við stólpa í jörð niður, og fóru þeir því að brjóta heilann um, að finna upp á nýrri grunnmyndun. Margvíslegar tilraunir voru gerðar, en sú fullkomnasta grunn- bygging og sem nú er almenn og held- ur óskektum ár eftir ár hinum mörgu 12 til 20 “tasíu”-byggingum, er gerð þannig : Stálslár eru lagðar lilið við hlið yfir alt það svæði, er byggingin á að þekja, og allarholur og misfellur svo iyltar með samsteypu úr sandi og “ce- mont”. Þvert yfir þetta fyrsta lag af stálteinum kemur svo annað eins út- búið og þvert yfif það aftur hið þriðja, og svo koll af kolli, til þess styrkleiki [>ess er álitinn nógur til aöjaxra áætlað- an þunga byggingarinna’' og þess ”r i henni verðnr. Ofan á þetta steinlimda stálgrindaverk koma svo kjallaravegg- irnir og ofan á þá aftur heljar-skrokk- ur byggingarinnar sjálfrar, Krókód1ls-k nör er almenna nafnið á bát nokkrum, sem jafnt gengur um lög og láð með fullan farm og sem verksmiðjueigend- ur nokkrir í Simcoe,Ontario, hafa upp- fundið og keypt einkaleyfi á í Canada og Bandaríkjum. Skreið þessi er nokkurs konar “dallar” (hér eru fyrri ára Stjórnar-“dallarnir” ný-íslenzku hafðir í huga), botnflatur nxeð ávala enda og gengur því jafnt aftur á bak og áfram. Niður úr botn- inum ganga stálvafðir möndlar og á þeim veltur báturinn á landi. Má láta möndlana ganga svo langt niður að bát- urinn sjálfur sé hallalaus þó farið sé upp eða ofan nokkurn halla. Þegar á sjó er farið ganga möndlarnir inn í botninn til þess hann er sléttur. Á landferðum er knörinn undinn áfram með hálfrar mílu löngu járnreipi á “talíu” sem fest er um tró eða stofn framundan. Gufuvélin i bátnum vind- ur svo reipið ofan af einni og upp á aðra spólvx á þilfarinu, og báturinn líður áfram. Bátur þessi getur gengið mest 6 mílur á kl. stund á vatni, en á landi er ferðin alt minni. Ætlunarverk báta með Jxessu lagi er að draga saman á einn stað sögunartimbur út um óbygðir þar sem víða eru ekki nema mjó liöft á milli strauin- eða stöðuvatna. Elzti gufuvagn í Ameríku. Þann vagn er að finna i kolanáma þoi'pinu Stellarton í Nova Scotia, Ca- nada. Þessi æruverði, gamli gufuvagna- öldungur, þó smávaxinn í samanburði við vagnatröll hinna “síðustu dag.:,” heitir Samson og þótti líka meira en Samsonar maki að burðum á slnum- tíma. Hann skeiðaði til Stellarton cft- ir einhvers konar járnbraut, frá nær- liggjandi hafnstað, Nýju Gl.asgow, einn góðan veðurdag sumarið 1836, og þótti furðuleg töfravól, enda mikið um dýrð- h- í þorpinu, því mcð komu lxans var fullvissa fengin fyrir því, að greitt mundi ganga kolatekjan framvegis. Kolatekjan var byrjuð i Stellarton ár- ið 1818 og voru kolin dregin upp úr námunum i körfum og flutt í þeim til Nýju Glasgow. Það reyndist rétt að kolatekjunni fleygði franx, eftir að Saxn- son tók við flutnijigi þeiri'a til hafnar, því ári síðar var öðrum vagni (Vulean) bætt við, en sem nú er fyrir löngu úr sögunni. Sem sagt er Samson gamli elzti gufuvagn í Ameríku og einungis einn gufuvagn á Englandi er eldri en liann, Puffing Pilly, er geymdur er i South Kensington. Útlit lians er lika að öllu leyti ellilegt. Undir véliuni eru 6 hjól og öll jafnstór, í-eykliáfurinn er langur og allur jafnvíður, og gufu- ketillinn er allur jafnvíður, að utan að sjá. Samson hefir haft þann heiður, að vera á nærri öllum merkum sýning- um bæði í Canada og Bandaríkjunum. Meykerlinga-Paradís er Japaniska keisaraveldið í sannleika. Þar eru það lög, að ef kon.a er ógift eftir að hún er komin á ákveðin ald- ur, velja yfirvöldin henni eiginmann og “pússa” þau tafarlaust i hjónaband. Ilvað gekk «ð t Aðfaranótt mánu. dagsins, 20. þ. m., frá kl. 2 til 6 um morguninn, réðu einhver loftefni alger- lega fyrir fréttaþráðum hvervetna í Ca- nada og um Ný-Englands ríkin alt til New York borgar. Á þessu tímabili þverneituðu telegraph-vélarnar að taka á móti nokkurri orðsending. Þetta hef- ir koinið fyrir áður en aldrei á jafnstóru svæði. Loftið var hlýtt og þrungið af einhvei'ju rafui-efni. Þegar sól liafði verið á lofti um stund, tóku vélarnar til vinnu aftur eins snögglega og þær höfðu hætt að starfa. Presturinn Dr. Graner sagði: “Vissu lega ætti hver einasti kristinn maður að - sýna sjálfsafneitun og lotning fyrir Jesú á þessum heilaga föstutima, með' því, að greiða riflegt “offur” í pening- um til kyrkju hans”. Þá gegndi verzl- unarmaður einn í söfnuðinum : “Já, herra doktor.—“Offur”—Þér hafið rétt fyrir yður. Það stendur ekki upp á mig ! Eg sel nú allar vörur 25 af hundr aði fyrir neðan innkaupsverð. Þér get- ið auglýst það frá prédikunarstólnum, ef yður sýnist að hann þurfi að vita það”. Séra " .Iton í Norður-Carolina reyndi að hengja sig í beizli um hlöðu- bitann. Þegar kona hans kom þangað og skar hann ofan, sagði hann með guð- legri x-ósemi. “Eftir fáar mínútur hefð; ég verið komir.u inn í hina Nýju Jerú- salem”. "ja”, sagði konan. “Þú hefð- ir verio -paugilegt, guðlegt stáss þar inni, með beizlið um hálsinn !” Bx'óðir Gardner sagði : “Til ]xess að reyn<a]varð v*~‘zlu forsjónarinnar lét ég hænsahúsiS vera óiæs'í hórna u.w kvöldið og bað hana að gæta þess. En morguninu eftir sá ég að ég hafði gert þvilíkt glópastrik, að ég er alt af reiður við sjálfan mig siðan. I blindmyrkrinu um nóttina hafði einhver klórað sig yfir girðinguna og stolið 14 af hinum feg- ui'stu fuglum, sem til voru í öllu þessu ríki. Ef að forsjónin liefir verið þarna nálæg, þá sýnist mér ekkert annað lík- legra. en að hún hafi á einhvern hátt hjálpað til að láta fuglana í pokann”. Prestur í Middletown í New York rikinu sagöi i ræöu sinni hérna urn dag- inn : “Hárið á höfðinu á mér stóð beint upp í loftið í dag, þegar ég frétti það, að ungfrúin, sem kraup fyrir bænaalt- arinxx á fimtudagskveldið, liefði gengið á- leikhúsið á laugardagskvöldið”. “Þið getið ekki spilað með guð svona ! Ef að þið haldið áfram í syndunum, eins og stúlka þessi, þá vindur guð dúki ut- an um ykkur, fyllir kjaptana á ykkur með leir og veltir ykkur skilmálaust niður til lielvítis”. Konan i Hamilton. / Arangurslaus tilranir og vonbrigði hennar. Henni var ráölagt að reyna Paines Celery Compound. Nýtt líf, heilsa og hraustleiki. Ágætis afleiðing. Margar þxTsundir, af canadiskxx fólki, sem algerlega hafa gefið upp allar vonir um bata á vanlieilsu þeirra, hafa fyllst glcði og ánægiu. Menn og konur s'cm um mörg ár, hafa þjáðst og sem hafa verið álitin ólæknandi. hafa fengið heilsu sina aftur, með brúkun Paine’s Celery Compound. Hið mikla og gleðilega dæmi._ um lækningu eftir langan þjáninga tíma. fengið hjá Mrs. Rebeccu Jackson í Hamilton. Ont. Hún segir : “Næstum því, um uudanfarin ‘iimtán ár hef ég verið þjáð af taugaveiklan og svefnleysi. Læknirina minn pat ómögnlega bætt mér neitt, og eftir að ég hafði reynt margbreytt meðöl var mér rnðlagt, að brúka Paine’s Celery Compound. Frá því ég hafði brúkað upp úr fyrstu flösk- unni, fór niér dag batmxndi. þar til ég hafði brúkað upp úr tólf flöskum og þá var ég orðin alhata. Þessvegna ráðlegg óg öUuni þeim, tem þjást eins og ég gerði, að brúka Taine’s Celery Com- pound. Paine’s Celery Compound leitar að upptökum veikinnar það hreinsar blóð- ið, stvrkir taugarnar. og liressir alla partalíkamans. Sjúklingar vej'nið það það gcrir yðxxr lirausta og hefisugóða.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.