Heimskringla - 15.09.1894, Side 1
VTII. ÁR.
NR. 37.
&
iei
WINNIPEG, MAN., 15. SEPTEMBER 1894.
FRETTIR.
DAGBÓK.
LAUGARDAG a SEPT.
Louis Philippe Albert, greifi af Paris
og hinn ókrýndi konungur royalist-
anna á Frakklandi, lézt í dag að Stowe
House, heimili sínu í Lundúnum, 5G
ára gamall. Hann þjónaði í innan-
ríkisstríði Bandaríkja og þótti ötull
liðsmaður. Hann ferðaðist um Banda-
ríkin og Canada 1890 og var stór-
mannlega fagnað hvervetna.
Frakkar eru um það að gefa út
ný Panamaskurðar-hlutabréf upp á 56
miljónir franka. Er hugmyndin að
taka til starfa við þann mikla skurð
aftur.
Fimtán fiskimenn drukknuðu af
smábátum fyrir ströndum Finnlands í
gærkveldi, skamt frá bænum Helsingja-
foss. Alls voru þar úti í þyrpingu
83 fiskimenn er stormurinn skall á.
Af þeim komust 18 á sundi til kletta-
skers eins og dóu þar 7 úr kulda og
vosbúð. Alls fórust því 22 menn.
Sambandsstjórnartekjurnar á síðasl.
fjárhagsári voru alls $86,236,753, en
gjöldin $37,393,373. Tekjuhalli því $1,156-
520. Tekjuhallinn stafar af tollgjalda-
lækkun svo nam $1J milj. Við lok
fjárhagsársins var ríkisskuldin $246,-
163,920, eða $1,483,948 meiri en á sama
tíma í fyrra.
Bandaríkjastjórn kveðst aldrei hafa
boðið Canadamönnum $425,000 í skaða-
bætur fyrir vinnutafir og tjón í Behr-
ingssundi á fyrri árum. Sjómálastjóri
Canada heldur fram hinu gagnstæða.
MÁNUDAG 10. SEPT.
Rannsókn fjárglæframála i sam-
bandi við Northern Pacific brautina,
er staðið hefir yfir síðan fyrri part
síðastL vetur, er nú lokið. Er Thomas
F. Oakes sýknaður, en allri skuldinni
skelt á Henry Viilard. Mörgum virð-
ist úrskurður þessi öfugur við það,
sem ætti að vera.
Eftir langvarandi þurviðri féll regn
og snjór í Colorado á laugardagskveld-
ið. Kom þá regnið niður í þeim stór-
straumum, að á 25 minútum féllu 56
þumlungar af vatni.
Irski þingmálafiokkurinn er marg-
skiftur mjög sem stendur vegna ýmsra
innbyrðisóeirða. Eru líkur miklar til
að Justin McCarthy víki úr stjórn hans
þegar kjörtimabil hans er liðið, en að
Timothy Healy nái stjórntaumunum.
og verður þá einhvern tíma róstusamt
á flokksfundum, ef annar eins hrani
kemst að. — Upprunalega var deila
þessi bygð á áskorunum um fjárfram-
lög til flokksins, er sendar voru Glad-
stones-sinnum á Englandi engu síður
en öðrum mönnum. Healy segir alveg
óþolandi að Þyggja styrk af þeim.
Þegar síðast fréttist af Kína-Japan
stríðinu voru aðalherdeildir beggja
þjóða andspænis hvor amnari, en ófær
á (Imjin-áin) féll á milli þeirra og náðu
þær því ekki til að berjast. Samdæg-
urs segir hraðskeyti frá Shanghai til
Kaupmannahafnar að béðar þjóðir séu
nú að semja um vopnahlé.
Skógareldurinn á svæðinu milli
Duluth og St. Paul heldur áfram enn
°8 eru mörg smáþorp sögð í hættu.
AUs liafa nú fundist um 500 lík þeirra
manna, er fórust í eldbaðinu mikla
um daginn. — Samskotin til hjálpar
hinu nauðstadda fólki eru orðin $15—
20 þúsund.
VEITT
HÆSTU VBRÐLAUN A HEIMSSÝNINQUNNI
IÐ BEZT TILBÚNA.
Oblönduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óhofl efni.
40 ára reynzlu.
ÞRIÐJUDAG 11. SEPT.
Almennar kosningar tfl ríkisþings
og Congress, fóru í gær fram í rikinu
Maine, og fór sem fyrrum, að repú-
blikar unnu sigur. Af 151 ríkisþing-
mönnum náðu þeir að sögn 127 og
governorinn var endurkosinn með 37,000
atkv.mun, Congressmennirnir allir (4)
voru endurkosnir og eru allir repúblík-
ar: Thos. B. Reed, Nelson Dingley,
Seth L. Millikin, Chas. A. Boutelle.
Þrjú stór verkstæðisfélög í Montreal
eru grunuð um tollsvik, er nemi um
$50,000 að minsta kosti. Hafa þau
verið beðin að framleggja alla sína
vörumiða og verðlism frá Norðurálfu-
kaupmönnum um siðastl. 6 ár.
Vilhjálmur Þýzkalandskeisari heim-
sótti Königsberg í norður Þýzkalandi
nú nýlega og hafði keisarafrúna með
sér, því til mikils átti að vinna. Var
fyrirætlanin að sætta með þessari heim-
sókn aðalsmennina stóru í því héraði,
er um undanfarinn tíma hafa verið
keisaranum mjög andvígir. En er til
kom, var enginn þeirra höfðingja við-
staddur, er mestur slægurinn var í,
og sem keisarinn bjóst við að finna.
I samsæti honum til heiðurs flutti hann
ræðu, sem fær misjafnan dóm hjá blöð-
unum. Mintist hann þar á andóf að-
alsmannanna og lét í ljósi að það væri
ósæmilegt. Síðan hefir hann verið við
heræfingar þar í grehdinni, er halda
áfram til 14. þ.m. Enda þær með sjó-
flota-æfing mikilli. I lienni taka þátt
52 skip og nær 10,000 ílotaliðsmenn.
Fregnir frá Kina-Japan stríðinu
bárust til Vietoria, B. C., i gær í Jap-
aniskum og Kínverskum fréttablöðum.
Á þeim er að heyra að enginn efi sé
á því, að Rússar séu potturinn og
pannan í þessu máli, að þeir hafi tek-
ið saman ráð sín með Kínverjum og
að því búnu eggjað Japaníta til að
hefja óeirðirnar á Kóreu-skaga, en að
þeir (Rússar) leggist svo á sveif Kín-
verja með öllum sínum þunga.—Sömu
blöð segja og að hermenn Kina á skag-
anum biði sult mikinn og vosbúð vegna
sífeldra rigninga og vatnavaNta. Voru
er síðast fréttist neyddir til að slátra
hestum riddaraliðsins til að nærast á.
Japanítar hafa að sögn keypt gufu-
skipið Mogul. eitt af þremur Kyrra-
hafslínuskipum Northern Pacific fél.,
er ganga milli Austurlanda og Tacoma,
Ætla þeir að brúka skipið til her- og
vista-flutninga.
, Hinn nýlátni greifi af París lætur
eftir sig eignir métnar á $20 milj., er
skiftast mifli 6 barna hans.
MIÐVIKUDAG 12. SEPT.
Prins Kousachuff, aðalformaður
Síberíubrautarinnar rússnesku, er á
austurleið yfir Canada og er aðal-verk-
fræðingur hans.Englendingur, með hon-
um. Eru þeir nú á heimleið því vetur
er kominn í Síberíu og brautarlegging
hætt. Síðastl. sumar unnu að braut-
argerðinni 8000 fangelsislimir og 1000
Kínverjar. Hinir fyrtöldu náttúrlega
vinna kauplaust, en kaup Kínverja er
sem svarar 12 cents á dag. Brautin
er nú fullger 300 mílur upp frá Kyrra-
hafinu, frá Vladivastock.
Septemberútgáfan af uppskeruá-
ætlun Bandaríkjastjórnar er út komin
og segir að hveitiuppskeran í Minne-
sota sé 15%, i Suður-Dakota 60% og í
Norður-Dakota 26% minni en í meðalári.
Hraðskeyti til Montreal frá Lundún-
um segir að þar sé verið að reyna að
safna peningum til að byggja fyrir 2
nýjar járnbrautir í Vestur-Canada, frá
Calgary til Churchill við Hudson-flóa,
og frá Battleford til Buffalovatns,
austur frá Edmonton.
Hraðskeyti frá Tokio, keisarasetr-
inu i Japan, til Lundúna segir, að 26.
Ágúst síðastl. liafi verið fullgerður samn
ingur um varnar og sóknar samband
Japamta og Kórea-búa. Fyrsta grein
samningsins segir hugipyndina með
samningnum vera þá, að útvega Koreu
algert sjálfstæði og að efla sameiginlega
Jiagsmuni þess ríkis og keisaravoldis
Japaníta. í annari greininni skuld-
binda Japanítar sigtil að hjálpa Kóreu-
mönnum til að verja sig fyrir Kín-
verjum og til að gera álilaup á herstöðv-
ar þeirra og reka þá útyfir landamærin.
Síðan samningurinn var gerður, hafa
Japanftar boðið Kóreu-mönnum að
skera hár sitt (Kóreumenn bera sömu
hárflóttuna og Kínveriar) til merkis um
að þeir hlýði samningnum, en fæstir
lilýða skipuninni.—Til Washington kom
og skeyti í gær frá Tokio, er gotur um
staðfesting þýðingarmikils samnings;
má því ætla að fregnin sé sönn.
Skeyti frá Shanghai í Kína segir al
ar líkur til, að Li Hung Chang verði
sviptur völdum sínum, vegna samsæris
gegn honum. Er það fundið til að hon-
um farist herstjórnin illa í þessu stríði.
Aldraður maður féll útbyrðis af
skipi, er lá við bryggjurnar í Montreal,
fyrir nærri hálfum mánuði. Var hann
álitinn týndur, enda fanst lik rétt á eft-
ir í fljótinu, er álitið var að væri hans.
En eftir 10 daga kom hann upp á
bryggjurnar. Hafði allan þennan tíma
verið að villast undir þeim, og var nær
dauda en lífi, er hann fannst.
FIMTUDAG, 13. SEPT.
Minnesota-bændur liafa unnið fræg-
an sigur yfir járnbrautarfélögunum, að
því er flutningsgjald snertir. Járn-
brautaumsjónarnefnd ríkisins hefir kom
ið brautarfél. til að lækka flutningsgjald
á aflri kornvöru innan ríkisins svo nem-
ur nærri 10%. Bændur höfðu beðið um
niðurfærslu, er nam S3J%.
Bandaríkjastjórn hefir hafið saka-
mál gegn governornum og ráðaneyti í
Mississippe ríkinu, fyrir að hafa gefið
út sérstök skuldabréf, er gilda sem lög-
eyrir í ríkinu. Ríkið gaf út $200,000 af
þessum peningum vegna peningaskorts-
ins í sumar. Peningar þessir eru sagðir
eptirstæling þjóðbanka seðilpeninga, og
er nú ríkisstjórnin kærð fjTÍr ritfölsun.
Málið er hafið í þeim tilgangi að fá úr-
skurð um það, hvort hin sérstöku riki
hafi vald til að gefa út peninga, er gildi
sem lögeyrir innan þeirra landamæra.
Þrír canadiskir menn hafa gefið
ríflega til nauðstadda fólksins, er varð
fyrir eldsvoðanum í Minnesota. Lord
Mount Stephen (Sir George Stephen)
gaf 5000 Sir Donald A. Smith 1000
doflars og R. B. Angus 500 doliara.
Capt. Frietch, er lagði á Atlantshaf
5. Ágúst frá New York í 30 feta löng-
um bát og einsamall, kom til Queens-
town á írlandi í gær.
FÖSTUDAG, 14. SEFT.
Von er sögð til að á ný verði tekið
til við skipaflutningsbrautina yfir eiðið
mifli Lawrence og Fundy-flóa. Félag i
Lundúnum er tilbúið að leggja fram
nauðsynlegn upphæð til að fullgera
brautina, ef sambandsstjórnin vill
lengja tímann til að fuflgera hana á 2
árum frá síðastl. Júlí.
Snjór féll sumstaðar í Alberta og
suður um Montana i gær.
Skógareldur æðir um Michigan og
er búinn að eyðileggja um 400 millíónir
feta af standand: furu.
$600,000 kostar að dýpka (um 4 fet)
Lachine skipaskurðinn meðfram Lawr-
ence-fljótinu, rétt fyrir ofan Montreal.
Hinn nafnkunni sagnritari Eng-
londinga, James Anthony Froude, ligg-
ur þungt haldinn og er ekki talið líf.
Hann er 76 ára gamall.
Falsaðir brófpeningar í 5 og 10 dofl-
ars stærð, eru á gangi í Bandaríkjum.
Fimm doll. seðillin er ávísun á "Fifth
National Bank. Cincinnati, Ohio,” -‘A,”
1882, en tiu doll. seðilb'nn er ávisun á
silfur i féhirzlu Bandaríkja, 1886, “A.”
Járnbrauta og siglingamálið.
Eftir Ísafold.
Rvík 22. ágúst.
Þriðja umræðan um það mál í gær
i neðri deild varð engu ósnarpari en
hinar, og ærið löng, 6—7 stundir.
Ýmsar breytingar tillögur voru samþ.
með 14—15 atkv., ein sú helzta (um
gufuskipin) þó að eins með tólf, að
viðhöfðu nafnakalli. Loks var málið
í heild sinni, frumvarpið alt í einu
lagi, samþykkt til fullnaðar í neðri
deild i gærkveldi með 12 atkv. gegn 10,
og afgreitt til efri deildar
Þessir 10, er atkvæði greiddu i
móti frv., voru : Guðl. Guðmundssou,
Bened. Sveinsson, Björn Sigfússon,
Guðjón Guðlaugsson, Jón Jónsson, þm.
Austur Skaptf., Jón Jónsson, þm. Eyf.,
Sighvatur Árnason, Tryggvi Gunnars-
son. Þórhallur Bjarnason og Þorlákur
Guðmundsson.
Niðurlagsgreinar frumvarpsins, er
hafa inni að halda aðalkjarna þess og
mestar urðu umræður um, eru nú
þannig látandi, eins og neðri deild hefir
frá þeim gengið :
42. gr. Landsjóður Islands skal
greiða “Hinu islenzka siglinga og járn-
brautarfélagi” :
1. 50,000 krónur á ári,J síðasta sinn
árið 1925, með því skilyrði að það byggi
stál- eða járnbraut frá Reykjavík að
minnsta kosti austur að Þjórsá, og
láti lestir, er flutt geti farþegja og
vörur, ganga eftir járnbrautinni að
minsta kosti sex sinnum á viku, á
tímabilinu frá 15. apríl til 15. nóvember
ár hvert og hina mánuði ársins eins
oft og við verður komið sökum snjóa.
Árgjald þetta greiðist þannig:
Jafnskjótt og brautinni er komið
austur í byggð í Árnessýslu austanfjalls
og lestaferð hafin á henni, skal lands-
stjórnin greiða félaginu árlega upphæð,
er standi í sama hlutfalli við nefndar
50,000 kr., sem lengd hinnar lögðu
brautar við alla hina fyrirhuguðu
brautarlengd alt austur að Þjórsá. En
þegar brautin er fuflger þangað, greið-
ist hið tiltekna árgjald. Öll skal braut-
in fuflgerð og ferðir hafnar á henni áður
en sjö ár eru liðin frá því að lög þessi
öðlast gildi, ella hefir félagið fyrirgert
réttindum þeim, sem lög þessi heimila
því. Sama er ef reglulegar lestaferðir
leggjast niður á brautinni eftir þann
tíma. ,
Ef járnbraut félagsins tekst af á
köflum af völdum náttúrunnar eða brýr
á henni bila, skal félagið svo fljótt sem
unnt er bæta hið skemmda, og skal það
einskis í missa af árgjaldi sínu, þó lestir
geti eigi gengið reglulega eða teppist
um stund fyrir þessar orsakir.
2. 50,000 krónur á ári hin næstu
tuttugu ár eftir að lög þessi öðlast
gildi með þvi skilyrði:
a) að íélagið láti gufuskip, sem sé
eigi minna enn 800 gross tons ensk,
hafi að minnsta kosti rúm fyrir 40 far-
þegja á 1. plássi og 30 farþegja á 2.
plássi, og geti gengið að minnsta kosti
12 euskar mílur á klukkustund, fara 2
ferðir á milli Liverpool eða annarar
hafnar á Englandi eða Skotlandi, og
Rvikr, á tímabilinu frá 15. apríl til 15.
október ár hvert, og milli sömu hafna
að minnsta kosti eina ferð á mánuði
á tímabilinu frá 15. október til 15. apríl
ár hvert; og
b) að félagið láti gufuskip, sem
ekki sé minna en 400 gross tons ensk,
hafi að minnsta kosti 20 farþegjarúm
á 1. plássi oe 50 á 2. plássi, sé yfir-
byggt og geti gengið að minnsta kosti
10 enskar mílur á klukkustund, ganga
stöðugt frá Reykjavík kringum strend-
ur Islands eða meðfram læim, þegar ís
ekki liamlar, á tímabilinu frá 15. febr.
til 15. nóvember ár hvert. Alþingi á-
kveður viðkomustaði strandferðaskips-
ins, en fólagið ræður að öðru leyti ferða-
áætlun þess. Aukist samgöngu og
'flutningaþörfin svo mjög fram með
ströndum landsins, að þetta eina skip
eigi þykir nægja, getur landsstjórnin
að 10 árum liðnum áskilið, að félagið
láti tvö minni skip halda uppi læssum
ferðum í stað hins ofannefnda strand-
ferðaskips. Yerði landsstjórnin og fél-
agið eigi á eitt sátt um það, hvort
eitt strandferðaskip nægi flutnings-
þörfinni, skal málið lagt í gerð og
gevðarmenn kvaddir á sama liátt og
gert er ráð fyrir í 9. gr.
Áður en hvert reclulegt alþing
kemur saman í fyrsta skifti fyrir al-
þingi 1895 skal félagið setja þá trygg-
ingu, er landsstjórnin álitur næcja fyr-
ir þvi, að strandferðunum verði hald-
ið uppi á fjárhagstímabili því, sem
þá fer í hönd.
Ef skip félagsins laskast, stranda
eða farast, sknl fólagið, svo fljótt sem
unnt er, gera að þeim, eða útvega
önnur i þeirra stað, en einskis skal
það missa af árgjaldi sínu fyrir þær
tafir, sem leiða af slikum slysum, ó-
bliðu náttúrunnar eða ís.
Ofangreint árgjald til járnbrauta
og skipaforða skal sctja útgjaldameg-
in á fjárlögum íslands.
Félagið liefir rótt til að velja um
og ákveða, hvort peningar þeir, er það
kann að eiga heimting á úr landsjóði
íslands samkvæmt lögum þessum,
greiðist því sjálfu einu sinni eða
tvisvar á ári, eða borgist eftir ráð-
stöfuu þess tvisvar á ári sem vextir
af hlutabréfum eða skuldabréfum fel-
agsins.
43. gr. Fimmtán árum eftir að
lög þessi öðlast gildi, og hvenær sem
er eftir þann tima, hefir stjórn íslands
rétt til að kaupa járnbrautir og skip
félagssins og önnur flutningatæki,
hvort er hún vill fyrir þá upphæð, sem
hvað um sig kostaði upprunalega, eða
eftir mati gjörðarmanna, er kvaddir
séu samkvæmt ákvæðum 9. gr. Þó
skal félaginu gefinn eins árs fyrirvari
nm kanpin. Borgunina má greiða með
skuldabréfum upp á lnndssjóð fslands,
er gefi 5% i vöxtu á ári. Skuldabréf
þeSsi skulu innleyst að fullu, áður en 30
ár séu liðin frá því kaupin voru gerð,
en þó er landstjórninni heimilt að
innleysa þau öll, eða svo mikið af
þeim, er lienni sýnist, livenær sem er
á þessu 30 ára bili.
44. gr. Ef félagið hefir eigi byrjað
að leggja hina áslcildu járnbraut, áður
en 3 ár sóu liðin, frá því lög jx’ssi öðlast
gildi, hefir félagið fyrirgjört öllum rétt-
indum sínum, og eru þá þessi lög úr
gildi fallin.
Islands-fréttir.
Eftir Þjódólfi.
Reykjavík, 10. Ágúst 1894.
Stjórnarskrdrmálið var til 1. umræðu
i neðri deild 7. þ. m., og hélt Benedikt
Sveinsson langa inngangsræðu fyrir
málinu, sagði, að vér hefðum réttlætið
og sannleikann okkar megin, en það
hefði stjórnin ekki, og því gætum vér
haldið öruggir áfram sömu stefnunni o.
s. frv. Þá tók Tryggvi Gunnarsson til
máls og fór óvægilegum orðum um mál-
ið, sagði, að það væri alls ekkert áhuga-
mál þjóðarinnar, kvaðst hafa heyrnar-
pipu, eins og læknarnir, svo að hann
gæti heyrt andardrátt málsins út um
alt land, og sá andardráttur lýsti því að
málið væri í dauðateygjunum, Það
væri að veslast upp úr tæringu(!!). Hið
eina meðal, er honum þótti viðlit að
reyna, var það að fá stjórnina til að
leggja sin tilboð fyrir þingið. Var svo
að heyra á ræðu hans, sem þá væri öllu
borgið. Það er líka ósköp trúlegt, að
svo yrði, hitt þó heldur. Að hugsa sér
að stjórnin að fyrra bragði geri nokkru
sinni nokkur tilboð í þessu máli, er
nokkurn veginn séu viðunandi, það er
sannarlega of mikið traust, eftir því
sem hún hefir hingað til kömið fram i
málinu. Ýmsir meðhaldsmeun Tr. á
þingi munu gjarnan hafa óskað, að
liann hefði ekkert talað að þessu sinni,
eða þá hagað orðum sinum öðruvísi, en
hann gerði. Engir aðrir tóku til máls
i þetta skipti, og var málinu vísað til
2. umr. með öllum atkv. Við aðra umr.
málsins í gær var frumv. i einstökum
greinum samþykkt orðalaust, oftast
með 20—21 samhljóða atkv., því að
Tryggvi sat jafnan sem fastast í sæti
sínu og Guðlaugur Guðmundsson alloft,
einkum við 1- kafla frumvarpsins. Björn
Sigfússon sat einnig stundum og Jón í
Múla greiddi ekki atkvæði með 53. og
55. gr. frumvarpsins. Málinu var því
næst vísað til 3. umr. með öllum at-
kvæðum.
Bann gegn innflutningi alls áfengis,
sölu þess og tilbúning, vilja þeirláta
lögleiða Einar Jónsson, Sigurður Gunn-
arsson, Jens Pálsson og Eiríkur Gísla-
son.
Skagaflrði 24. Júlí.....Grasvöxt-
ur er með bezta móti bæði á túni og
engjum, og nýting til þessa góð, en
mjög óvíða eru menn ennbúnir að hirða
tún sín. Túnasléttun varð talsvcrð i
vor vegna hinnar góðu tíðar.sem byrjaði
svo snemma, þó kippti veikin mikið úr.
Það má annars sjá talsverðar framfarir
nú á fám árum, hvað túnasléttun snert-
ir og vatnsveitingar á engi, og má
þakka það landssjóðsstyrknum og bún-
aðarskólum.
Verzlun er fremur dauf, lágt verð á
ull; hvít vorull á 60 au. pd., haustufl
hidt 50 a. hvorttveggja þvegin, en getur
einnig lágt verð á útlendri nauðsynja-
vöru sérstaklega á rúg 7 a. pd. Skuld-
ir i kaups*að erUvist miklar, menn t,aka
óhlifið út og vinnufólks-hald er orðið
bændum ærið dýrkeypt, þegár verðið á
búsafurðunum er svo lágt. Tóskapar-
vinna á vetrum er mjög að minnka, og
þess vegna sækja menn það, sem til
fatnaðar þarf í búðirnar. Heyrt hefi ég
að Sigurður bóndi Ólafsson á Helbilandi
sé hættur við að útvega tóvinnuvélarn-
ar, og er illt, ef það nauðsynjamál og
framfaramál skyldi stranda þar við.
Fiskiafli hefir verið ágætur hér við
fjörðinn síðan seint í Júnímán. Fiskur
er hér allur lagður blautur inn í verzl-
anirnar og er harðfiskur því næstum ó-
fáanleg vara.
Barnapróf voru haldin í vor, eins
og að undanförnu; námsgreinar: lestur,
kver, biblíusögur, skrift réttritun og
reikningur. Eg stend í þeirri meiningu
að uppfræðing ungmenna sé, að minsta
kosti á Norðurlandi, mjög ábótavantog
þyrfti alvarlega að takast til íhugunar.
Það dugar ekki fremur aö láta foreldr-
ana bera alla ábjTgð og kostnað fjrir
því; þjóðfélagið verður í heild sinni að
leggja sinn ríflega skerf til þess og eftir-
litið þj-rfti að vera miklu nákvæmara
og betra, hvcrnig almenna stj-rknum er
varið.
Iíúnai'alnsitýdu, 30. Júlí. Hej-skap-
urinn gengur fremur vel, en það eru
engin tíðindi, þótt hann gangi slj'sa-
laust j-firleitt. Þurkar af skornum
skamti. Afli hefir verið ágætur í flóan-
um síðan hann kom snemma í Júní, en
þar á móti laxafli mjög Htill, sem hefir
talsverða þýöingu fj-rir þetta hérað.
UUarverð hjá kaupmönnum 60 a. hvít
og 40—45 a. fjTÍr misl. Aflmargir liafa
látið ull í pöntun, sem naumast getur
álitizt heþpilegt, með því öll líkindi eru
til, að eigi fáist jafnhátt fjrir hana í
því, sem hjá kaupmönnum. Hrossa-
sala allmikil til Vidalins og JCnudsens á
Sauðárkrók, sem hefir gefið allvel fyrir
og gert sér far um að fá góð hross.
Ddmn er á Hjaltastað í Norður-
múlasýslu Björn Oddsson, faðir prests-
ins þar, séra Magnúsar Bjarnarsonar.
Hann dó úr influenza 30. Júní þ. á. nál.
83 ára gamall.
17. Ágúst.
KenndraembmUið við firestaskólann
er veitt cand. theol. Jóni Helgasyni.
EmbœtMpróf á prestaskólanum luku
9.—14. þ. m.:
Ásmundr Gíslason með 1. eink. 49 st.
Helgi Hjálmarsson — 2. — 85 -
Einn stúdentinn (utan skóla) stóðst
ekki prófið.
Fyrirlestur um samgöngumál hélt
hr. Sigtryggur Jónasson frá Winnipeg
hér í bænum 11. þ. m., og var gerður
góður rómur að. Talaði hann einkum
um„ hvert gagn fsland gæti haft af
auknum samgöngufærum, þ. e. gufu-
skipum og járnbrautum í sambandi við
frumv. það, er borið hefir verið upp á
þinginu.
Kyrkjuffjald. Nefndin, er skipuð
var í mál þetta í efri deild (Haflgrimur
Sveinsson, Sigurður Stefánsson, Jón
Jakobsson, Jón Jónsson og Kristján
Jónsson) aðhyllist frumv.að mestu leyti
óbreytt, nema að því leyti, að skyldu-
vinna að kj-rkjum og kj-rkjugörðum
haldist og að gjaldið (50 a. af hverjum
fermdum manni) skuli ákveðið fjrir 5
ár í senn og sóknarnefndir hafa tillögu-
rétt um það.
Bann gegn sölu áfengis o. s. frv.
Um það mál urðu allharðar umræður
við 1- umr. í neðri deild, en svo björg-
uðu flutningsmenn því frá íalli við 2.
umr. með því að koma því í nefnd, og
verður það tæplega borið ugp aftur á
þingi.
Afnám gjafsókna embættismanna.
Frumv. um það hafa þeir Guðjón Guð-
laugsson og Skúli Thoroddsen borið
fram. Landshöfðingi mælti allmjög á
móti þessu við 1. umr. og sömuleiðis
Jón Jensson, en svo var þvi dembt í
nefnd við 2. umr. og mun það á þann
hátt svæft á þessu þingi.
Þilskipa áhyryðarsjóður. Benedikt
Sveinsson og Guðl. Guðmundsson vilja
láta neðri deild skora á stjórnina að
leggja fyrir alþingi 1895 frurav. til laga
um stofnun almenns ábj-rgðarfélags fyr
ir íiskiveiðaþilskip á íslandi þannig, að
landssjóður leggi fram hæfilegan stjrk
til stofnunar félagsins og viðhalds þess
fyrst um sinn, en að öðru lej'ti sé félag-
ið byggt á innbyrðis ábj-rgð.
Súltvamir. Einar Jónsson hefir
borið upp frumvarp um varnir gegn út-
breiðslu næmra sjúkdóma á Islandi.
Skal lögreglustjóri gefa út samgöngu-
bann með ráði læknis og gera aðrar
nauðsj-nlegar ráðstafanir til að hepta
útbreiðslu sýkinnar.
Botnvvrpuvciðar. Frumv. um bann
gegn þeim liefir verið samþykkt í neðri
deild með þeim braj-tingum samkvæmt
tifl. nefndariunar, að lægra takmark
sektarinnar er fært úr 200 kr. upp í 1000
kr., og að fiskiveiðaskip í landhelgi með
botnvörpu innanborðs, þótt eigi sé að
veiðum, greiði 200—2000 kr. sekt í lands
sjóð.
Síldartollur. Tryggvi Gunnarsson
Sigurður Gunnarsson og Jón í Múla
bera upp þingsályktunartillögu um, að
alþingi skori á ráðherra íslands, að
hann leitist við að fá þvi framgengt við
stjórn Rússlands að sem vægust kjör
fáist að þvi er snertir innflutningstoll
af íslenzkri síld, sem fiutt er beina leið
frá íslandi eða Danmörku til Rússfands
Fimmtíu ára alþingis \afmali. Bene-
dikt Sveinsson hefir borið upp þingsál,-
till. um, að neðri deild alþingis skipi
nefnd til að ihuga og gera tillögur um
það, á hvern hátt þjóð og þing skuli
minnast þess árið 1895, að hið endur-
reista alþingi íslendinga þá er orðið 50
ára gamalt.
I !gær var kosin 5 manna nefnd í
þetta mál: Benedikt Sveinsson,Trj-ggvi
Gunnarsson, Þórhallur Bjarnason, Ólaf
ur Briem og SkúliThoroddsen.
Iláskavp. Þeir Tryggvi Gunnars-
son og Jón Jensson bera fram þingsá-
lyktunartillögu um það, að stjórnin
semji við stjórn Frakklands um, að
landssjóður fái keypt hiu frakknesku
fiskimannahús (“frönsku húsin”) liér4
bænum.
(Niðurl. á 4. bls.)