Heimskringla - 15.09.1894, Side 2

Heimskringla - 15.09.1894, Side 2
9 HEIMSKRINGLA 15. SEPTEMBER 1894. Ueímskringla komr út á Laugardögum. í áð Heimskrin^la Ptg. & PbM. Co. útgefendr. [Publish'ðrs.] Tíitstjórinn geymir ekki greinar, sem eigi verða uppteknar, og endrsendir þær eigi nenia frímerki fyrir endr- sending fylgi. Ritstjórinn svarar eng- nm brúfum ritstjórn viðkomandi, nema i blaðinu. Nafnlausum bréfum er enginn gaumr gefinn. Bn ritstj. svar- ar höfundi undir merki eða bókstöf- uin, ef h('if. tiltek. merki. Uppsögnógild að lögjin,nema kaup- andi sé alveg skuldlaus við blatslð. Ritsjóri (Editor): EGGERT JÓHANNSSON. Ráðsmaðr (Busin. Manager): J. W. FINNEY 653 Pacific Ave. (McWilliam Str.) Alþýðumenntun. Það era horfur íi að námsgrein- um í alþýðuskúlum verðL breytt áður en langir tímar líða, að minnsta kosti hér í Manitoba. Þeir menn eru alt af að fjölga, sem halda því fram, að fækka þurfi þeim námsgreinum, sem nú eru kenndar í alþýðuskólum, nema burtu alla efstu bekkina og með þeim náttúrlega þyngstu náms- greinarnar. Þeir vilja með öðram orðum ekki að hið opinbera borgi fyrir nema einfoldu námsgreinarnar og undirstöðuatriðin til æðri mennt- unar, en vilja að þeir menn, sem æðri menntun vilja veita börnum sín um borgi fyrir þá menntun sjálfir. Fvrirkomulagið alt, eins og það er nú, er álitið að hnogi hug náms- manna að bæjunum, en burt frá landbúnaðinum, að skólamir búi til hópa af lögmönnum og læknum og vísinda-stúdentum eða iðnaðarmönn- um, og að hinn langi námstími geri menn illa færa til að takast strit- vinnu 1 fang að loknum námstíman- um, auk þess sem margra ára lær- dómur venjulega gerir fjöldann of stórhuga til þess að vilja vinna al- menna vinnu, þó líkamskraftarnir væru nógir til þess. Þessi skoðun virðist vera eitt af kvæmi harðærisins, sem yfir Ame- ríku hefir dunið í nærri 2 ár. Að minnsta kosti gægðist þessi skoðun ekki aimennt út fyrri en í fyrrasum- ar, þó hún, ef til vill, hafi verið til löngu áður. í fyrra, þcgar ekkert var til að vinna, þegar þúsundir manna gengu allslausir og biðjandi um göturnar í stórborgum Banda- ríkja, þá fóra einstöku menn að láta til sín heyra í þá átt, að eitthvað væri bogið við aðsóknina til bæjanna, vöxt þein’a,en hnignun úthéraðanna. Umræðumar urðu smámsaman út- breiddari og opinberari og vora hvað mestar þar sem mest kvað að at- vinnuleysinu. Hér bar ekki svo mjög á slíkum umræðum fyrr en í vor er leið, því atvinnuleysisaldan svall ekki í algleymingi yfir þennan landshluta fyrri en þá. Afþessu má máskeætla, að mikið af slíku umtali sé ekki annað en æðruorð, er klingja meðan þetta óvanalega harð- æri varir, en sem liverfi svo með því í djúp glevmskunnar. Þó sýnist samt að eitthvað sé þetta meira en laushugsuð æðruorð, þegar roskinn og ráðinn dómari neit ar að vera lengur í einni æðriskóla- stjóm, af þeirri orsök einni, að fyrir- komulagið sé rangt. Þetta gerði dómari einn í Stratford í Ontario nú nýlega. Hann sagði sig úr stjórnar- ráði æðraskólastofnunarinnar þar í bænum og bar það fyrir, að fyrir- komulagið væri rangt, að skólamir byggju menn undir stöðu, sem um- sækjandafjölda vegna væri ekki lengur fáanleg. Fyrir slíka ment- un ætti almenningur ekki að borga, heldur einstaklingurinn, sem vildi afla sér hennar, eða aðstandendur hans. Hann segir enn fremur : “Ef vort vandaða og mikilfenglega skóla fyrirkomulag væri nauðsynlegt skil- yrði fyrir því, að menn kæmust á- fram og tækju framföram í lífinu, þá væri öðru máli að gegna.En nú hefir reynslan sýnt, að æðri menntunin öll hnegist að því að gera menn óhæfa til líkamlegrar vinnu, þeirrar vinnu, sem ekki verður skilin frá jarðyrkju- störfum. Afleiðingin af þessu kenslu- fyrirkomulagi er því sú, að allir lceppa um þau störf, er útheimta and lega en’ ekki líkamlega áreynslu. Búja.iðirnar standa í stað, eða leggj- ast í eyði, því unglingamir, sem þær ættu að yrkja, flýja í hópum til bæj- anna til þess að iljóta eða sökkva I fjöldanum, er biður Um vinnu þar sem vitinu og lærdóminum verður beitt án þess að þreyta líkamann. Fyrir fáum árum fannst ekki mennt- aður maður í flokki þeirra, er vér nefnum umfarendur. En nu er svo komið, að fjöldi hámenntaðra manna fylla flokk þeirra auðnuleysingja, 400 000 talsins, er heimilislausir og allslausir flaltka aftur og fram um Bandaríkin. Þeirra lærdómur hefir óneitanlega gert þá óhæfa til að vinna með höndunum, og því era þeir nú í þessu sorglega ástandi”. Það er naumast hugsandi,að harðær- iskvörtunin ein ráði hugsun og gerð- um manns, er gengur eins hreinlega að verki eins og þessi maðnr. En hvað sem nú því líður, hvort sem rýi'ð verður að noldcru' leyti eða engu sú kennsla, er hið opinbera borgar, þá era samt allar horfur á að námsgreinum í alþýðuskólum verði innan skamms breytt. Akuryrkja eða jarðyrkjukennsla verður án efa ein námsgreinin á alþýðuskólum hér í Manitoba áður langt líður. Kenslu málastjórnin hefir haft það mál til atliugunar í alt sumar og hefir áreið- anlega lcomizt að þeirri niðurstöðu, að það sé heppilegt. Nú á síðasta fundi fékk hún greinilega ritgerð um það efni frá prófessor Henry Tanner, akurvrlcjukennara og próf- dómara í jarðyrkjufræði í æðriskól- um á Bretlandseyjum. Lýsir hann þar allri kennsluaðferðinni á Eng- landi og hvaða misskilningi sú náms grein var undii’orpin þegar fyrst var 'talað um að innleiða hana í slcólum á Ei.ghmdi fyrir eitthvað 20 árum. ‘•Það var gerð mín skylda”, segir liann, “að gera skiijanlegt hvað námsgreinin þýddi, og ég gerði það ineð því að nefna hana. “Þessi vís- i ndalegu sannindi, er reynsla bænd- anna hefir kennt oss. Það er kunn- ugt, að um síðastl. 50 ár hafa bænd- urnirog vísindamennirnir verið tveir andvígir flokkar. Vísindamennirnir hafa fárast yfir vanþekking bænd- anna og bændur hafa bent á vitleys- ur hjá vísindamönnunum. Eg veit eklci citt dæmi til þess, að greindur bóndi hafi ekki um síðir borið sigur- inn úr býtum í þeirri viðureign. Greindur jarðyrlcjumaður hlýtur að verða nákunnur störfum náttúrunnar og hún erætíð viss með að lciðrétta hann, ef hann fer rangt, en launa honum, ef liann gerir rétt. Það er þess vegna eklcert undarlegt, þó reynsla bóndans smámsaman sýni honum dýrmæt sannleikskora, Þessa revnslu þurfa vísindamennirnir að viðurkenna, og það er skylda þeirra gagnvart almenningi að tína sann- leilcskom þessi úr ruslinu og sameina þau í eina nytsama, aðgengilega heild”. Hann skýrir og frá því, hvemig kennsla þessi gangi, hvort börnin vilji læra þá námsgrein og hvort kennararnir komist yfir að veita til- sögn í henni aulc alls annare. Ná- kvæm rannsókn sýndi honum að námsgreininni var tekið opnum örm- um nálega allstaðar, og einn skóla- kennarinn sagði honum, að ekki þyrfti hann annað, ef leti var í böm- unum, en að lofa þeim klukkustund- ar tilsögn í jarðyrkjufræði, þá rykju þau öll upp til handa og fóta og kepptust við að koma af lexíum sín- um. Reynslan hefði og sýnt, að jarðyrlcjufræðin hefði verið nálega eina námsgreinin, er foreldrar flestra bamanna hefðu getað rætt um með nokkurri greind við börnin, er að sínu leyti hefði liaft ákjósanlegustu áhrif á löngun bama til að nema þessá fræðigrein. Afleiðingin hefði orðið sú, að á tiltölulega stuttum tíma hefðu fullorðnir menn í sveit- um úti verið farnir að framsetja þýð- ingarmiklar spurningar áhrærandi hitt og þetta, er jarðyrkju snerti. Þeir fullorðnu voru nefnilega að læra af börnunum, af samtali við þau ut- an skóla. Ef til vill styrkir þetta bréf Tanners kennslumálastjómina í þeirri trú, að eitthvert gagn mætti verða af samskonar námi hér. í landshluta eins og þeim, er vér byggjum, þar sem jarðyrkja í einhverri mynd verð ur alt af aðal-atvinnuvegur, er auð sætt að slík kennsla er nauðsynleg, nauðsynlegri enda en Algebra og Eucldts Geometry fyrir allan þorra manna. Spurnsmálið er, hvernig slílcri kennslu verður hagað svo að gagn verði að, enda þótt unglingur- inn eigi elcki lcost á að fullnuma sig á reglulegum jarðvrlcjuskólum, sem væntanlega koma upp hér vestra með tíð og tíma. Nýja gufuskipa-línan sem James Huddart frá Ástralíu er að reyna að stofna, til feiða mílli Englands og Canada, mætir allmik- illi mótspyrnu, einkum frá þeim A1 lan-bræðrum og félögum. Um lang- an tíma hafa þeir James Huddart og James og Alexander Allan skrifast á um þetta mál í Timcs. Ganga öll bréf þeirra Allan-félaga út á að sýna, að fyrirætlun Huddarts sé ómöguleg af því, hve ferðmikil skip séu undir- orpin mikilli hættu af ísjökum í grend við Nýfundnaland og í Belle Isle sundi. Svo sýna þeir fram á,”að Huddart skorti alla nægilega þekk ingu á Atlantshatt, höfnum í Canada o. s. frv. til að ræða um þetta mál og standa fyrir stóru félagi eins og þessu. Segja og að í fyrstu hafi hann farið á fund þeirra og æskt eft- ir samvinnu, en er hann hafi ekki fengið hana, hafi liann beðið þá að vera afskiftalausa, en rcyna elcki að spilla fyrir sér. Huddart aftur á móti sýnir fram á og tilfærir rök að því, að skip geta alt af gengið fulla ferð á þeim stöðvum, ’er Allan óttast, ncma ef niðamyrkursþoka kemur á, og hún getur allstaðar komið og hindrað gang. Hann sýnir og að eklci er né getur verið hættara við árekstri jaka, þóferðinsé'25 mílur, heldur en ef hún er að eins 14—17 mílur kl.stundu. Segir líka, að um þessi hættusvið sé ekki að tala ncma að sumrinu, því á vetrum fari skip hans langt fyrir sunnan Nýfundnaland beint frá Englandi til Halifax, sem hann segir að verði vetraretöðin. Á síðasta Dominton-þingi var samþykkt að veita Huddart $750000 á ári um 10 ár úr ríkissjóði, svo framarlega sem skip hans gengju minn3t 22 mílur á kl.stund, og svo framarlega sem liann yrði búinn að stofna öflugt félag til þessa ekki seinna en í Maí 1895. Allan-félagið andæfði þessu frumvarpi og félck mörg blöð í Austur-Canada í lið mcð, en öll sú barsmíð reyndist þýðingar- laus. Þcss vegna leggur það sig nú fram með að spilla fyrir Huddart og gera honum ómögulegt að koma fé- laginu á fót. Mótspyrna þeirra er mjög eðli- leg. Þeir eiga skipastól mikinn, en flest skip þeirra era tiltölulega göm- ul og ekki bygð með það marlcmið fyrir augum að fara sem flestar mil- ur á sem fæstum klulckustundum. Ef þess vegna Iluddart liefir sitt mál fram, þá minnkar stórvægilega að- sóknin að þeim Allans og eign þeirra fellur að því skapi I verði. Þeir verða því neyddir til að koma upp ferðmeiri farþegjaskipum, en um- hverfa þeim flestum, sem það nú á, í vöraflutningsskip. í seinni tíð hefir Huddart feng- ið ýmsa málsmetandi menn á Eng- landi I lið með sér og eru því horfur á að hann liafi sitt mál fram, þrátt fyrir andmæli Allan-bræðra og fé- lagsmanna. Meðal þeirra, er nú síð- ast hafa lagt orð í belg með Hudd- art, er Brassey lávarður, sem á bú- garð mikinn í Vestur-Canada. ir aðra í hjáverkum sínum. Glad- stono heíir ritað um liundrað ólík efni á sínum frístundum og stúdérað allar mögulegar fræðigreinar. Sal- isbury lávarður hefir eklci ritað milc- ið á seinni áram, þó sú list sé honum lagin síðan hann á fyrri árum, meðan liann var fátækur, var einn ;if merkuýtu og skörpustu riturunum í “Saturday Review”. En liann er vísindastúdent og starfsmaður mikill I efnafræði. Efnisblöndunarvinnu- stofa hans er svo stór og vel út búin, að hún er viðurkend ein fullkomn- asta slík stofnun sem til er og eins manns eign. í þeirri vinnustofu sit- ur hann að efnablöndun á öllum sín- um frístundum og þar kann hann að sögn bezt við sig, í stað þcss sem Gladstone kann bezt við sig úti í skógi að fella tré. Salisbury lávarður hefir rétt ný- lega verið kjörinn forseti hins brezka vísindafélags, er þykir meir en smá- ræðis heiðursstaða. Ársfundur fé- lagsins var í ár settur í Oxford 8. Ágúst, og tók Salisbury þá við for- setaembættinu. Um kvöldið flutti hann innsetningarræðu slna og þótti mikið til hennar koma. Efni henn- arvar: “Oráðnar gátur”, gátur,sem vísindamennimir hafa enn ekki getað leyst. Þó ræðan væri eingöngu um vísindaleg efni, var hún færð I svo alþýðlegan búning að hún er öllum gkiljanleg. Það eru frumefnin, sem hann talaði um og sagði óráðnar gát ur, og sem hann bjóst við að um all- ann aldur yrðu óráðnar gátur. Hann sagði það mætti virðast ótrúlegt, en satt væri það, að nú við lok 19. ald- arinnar væru enn óráðnar allar vorar frumefnagátur, 65 sundurleit efni. Það væri engum manni enn unnt að gizka á og því síður að sýna með með nokkrum rökum hvemig þessi framefni hefðu orðið til. Hverju scm menn tryðu um uppruna al- heimstilverunnar, væri jafnóskiljan- legt hvaðan frumefnin hefðu komið og hvernig þau drógust saman. Guðfræðingum öllum þykir sjálf sagt mest varið í niðurstöðu þá, er hann komst að í ræðunni, en það er, að vísindamennirnir séu óðum að komast að þeirri—að hans áliti einu réttu—niðurstöðu, að alheimstil- veran sé til orðin samkvæmt áformi einhverrar æðstu stjórnandi veru, er öllu ráði I rílci náttúrunnar. upp úr blaðinu Knights of Labor Jour- nal og er útdráttur af þeim fyrirlestri, sem Wallace P. Groom hélt I New York fyrir noklcrum árum síðan. Þegar $1 er lánaður út og leigan lögð við innstæð una ár livert, þá koinumst vér að þeirri niðurstöðu, að dollarinn upp á neðanrit aða procent í 100 ár vex eða belgist upp I þá hér neðarsettu upphæð : $1 í 100 ár meðl% leigu verður Starfsmenn miklir eru þeir margir brezku stjórnarfor- mennirnir. Það mætti ætla að menn I þeirra stöðu þyrftu að beita öllu sínu hugsunarafli í stjómmálaáttina og gætu þess vegna ekki gefið sig mikið við þungum, flóknum málum, er stefna í öfuga átt. Séretaklega virðist það líklegt að þvl er snertir stjórnarformann Breta, er þurfa —auk aðal-ríkisins—sí-felt að hafa í huga löggjöf hinna mörgu brezku nýlendna og hugsa um þeirra hag. Einn fram af öðrum hafa þó hinir brezku stjómarfoimenn fengizt við og unnið ýms stórvirki mitt í þeirra stjómmálastörfum. Á meðan Derby lávarður var stjórnar- formaður, hvíldi hann huga sinn við stjómarstörf með því, að snúa Hó- mer úr frummálinu á ensku. Bea- consfield ritaði eina skáldsöguna eft- Orða-belgrinn. [Öllum, sem sómasamlega rita, er velkomið að “leggja orð I belg;” en nafn- greina verðr hver höf. sig við ritstj., þótt ekki vilji nafngreina sig I blaðinu. Engin áfeflis-ummæli um einstaka menn verða tekin nema með fullu nafni undir Ritstj. afsalar sér allri ábyrgð á skoðun- umþeim, sem korna fram í þessumbálki] 1 I 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 Herra ritstjóri! Meðfylgjandi ritgerð óska ég að fái rúm í Hkr., sökutn þess hún snertir margt það, sem nú er á dagskrá þessa lands, sér í lagi auðvaldið og okurrent- urnar ; hún sýnir svo að segja áþreif- anlegahvað vextir af fó vinna inn auð- kýfingunum, en útarma fátæka lántak- endur, svo lánveitingin verður mörgum manni til “bölvunar”, en ekki “blessun- ar”, sem Jón Ólafsson á Brú (fornkunn- ingi minn) segir afdráttarlaust í 25 tbl. Lögb. þ. á., þar sem hann var að rita á móti “Samtali Jóns ogBjarna”, eða því sem þar er sagt um lántöku (er ég ætla á gildum rökum bygt). Nú, vegna þess, að mér finst þetta málefni svo mjög varðandi okkur bændurna, að við ætt- um ekki að láta vort eftir liggja í að skoða það rækilega út I æsar, þá vildi óg með þessari þýðingartilraun minni á eftirfarandi grein leggja þar með “orð í belg”; meðal annars ,til að sýna hvern- ig höfundur hennar lítur á lánveitingar, eins og þær eru hér í Norður-Ameríku úr garði gerðar. Með virðingu, Monntaln, 25. Ágúst 1894. VlGFÚS SlGURÐSSON. Auðvalds-djöfullinn. Eftir Oli E. Hagen. Leiga af peningum, hvort heldur mikil eða lítil, er okur, eins konar rang- læti, sem hefir hrópað I himininn um margar þúsundir ára; það ranglæti, er jafnvel hinir kristnu auðmenn hafa haldið við líði í lif og blóð, þrátt fyrir forboð ‘biflíunnar. En áður en ég fer lengra út í það mál, vil ég hér með gefa mönnum lítið eittíhugunarefni, með dá- lítilli reikningstöflu eða dæmi, sem sýn- ir, hvernig léiga af peninsrum vex og margfaldast, og hvernig þetta stærsta af öllu ranglæti nagar um veslings skuldunautinn. Tafla þessi er tekin $2,75 2% “ “ 7,25 8% “ “ 19,25 4% “■ “ 50,50 5% " “ 131,50 6% “ “ 340,00 7% " “ 808,00 8% “ " 2303.00 9% “ “ 5543,00 10% “ “ 18090,00 12% “ ’, 84674,00 15% “ “ ' 1174405,00 18% “ “ 15145007,00 24% “ “ 2551799404,00 Einn dollar í 100 ár með 24 pct. leigu og vaxtaleigu vöxtum verður: tvö þúsund fimm hundruð fimmtíu og ein millíón, sjöhundruð níutíu og níu þúsund, fjögur hundruð og fjórir doll- arar! Það er eigi svo sjaldgæft að menn heyri minnst á fólk sem lifi af pening- um sínum, en að lifa af leigum peninga sinna er sama sem að lifa á annara sveita. Það er veslings skuldarinn sem hlýtur að fæða bæði sjálfan sig og pen- ingamanninn. Þegar vér lesum um konunga og þjóðhöfðingja austurlanda, sem I gullnum burðarstólum láta þegna sína og undirmenn beia sig landshorn- anna á milli, þá brosum vér I kamp og kimum að allri heimskunni og hógóm- skapnum þar eystra og aumkum ves- lings þjónana og þegnana fyrir það að þeir skuli vera þannig slíkar undirlægj ur þessara harðstjóra sinna, að þeir þurfi að bera þá frá einum landsendan- um til annars. En vér gerum einmitt hið sama. Þegar vér borgum peninga- mönnum vorum leigu af peningum þeirra svo að vér ekki að eins fæðum og klæðum þá, lieldur einnig berum vér þá á höndum innan um alt landið með súr- um sveita og þrælbjúgu baki berum vér þá á vorum eigiu hönduin undir allskon- ar vöntun alt um kring í landinu. Að vísu ekki að Austurlanda harðstjórar hálfviltu siðvenju, heldur að háttum sið- aðra manna, látum vér þá ferðast um laudið í svefnvögnunum með reglu- bundnum járnbrautarferðum og skemti ferðir þeirra til annara heimsálfa og um þær þvert og endilangt. Vér kostum þá á baðstöðunum svo þeir geti styrkt síg við heilsubrunnana, hjálpum þeim á alríkisþingið (Congress) og ríkjaþingin (Legislaturerne), svo þeir geti haft þar áhrif á og borið mútur á þingmenn og fulltrúa vora. Þeir gefa stórfé til kyrkna, byggja sér glæsileg stórhýsi. Vór borgum þeim með lám'eitingunum alla þessa dýrð. Hinn undirolcaði skuld umbundni lýður, er etur brauð sitt í sveita síns andlitis, ber alla Jiessa við- höfn og humbug alt um kring. Áður en vér förum að skopast að hinum þræl- vöndu, áður en vér förum að skopast að hinum þrælhundnu austurlanda burðar- mönnum, ættum vér að stinga hend- inni I vorn eigin barm og rannsaka, hvort vér ekki einnig erum einskonar þrælar eða drögumst óafvitandi með þá þrælvendi, sem vér fyrst ættum að sópa burtu frá vorum eigin dyrum. Setjum nú svo, að maður fái lánaða 81000 með 20 pct. vöxtum. Skuldabréf- ið er iritað á lítinn pappírsskika og geymdur I skrifborði lánveitanda. Eft- ir eitt ár hefir þessi brófmiði ávaxtast um $200, eða aukið sig á undarlegan hátt, má segja á grimmlega óróttvísan hátt, hefir þessi dauði hlutur unnið $200 á einu ári. Til þess á sama tíma að ná upp sömu upphæð, hlýtur sterkur, dug’ legur verkmaður að vinna baki brotnu, hann verður að erviða frá þvl árla að morgni og fram á nótt í hita og kulda, já, hvernig sem veður er í heilt ár, til að innvinna eins milcið, eða réttara sagt vega upp á móti þessum litla pappírs- skika, sem liggar ískrifborði auðmanns- ins, er á stendur ritað $1000 með vöxt- um 20%, er hann ávaxtast á sama tíma Er þetta réttlæti ? Höfum vér rétti- lega eða nógu grandgæfílega grundað það? Minneapolis Times, eitt okur-liffær- ið, sem fleiri blöð vor, varð fyrir skömmu svo ógætið að segja frá því, að það séu 3000 ‘Mortgages’ (veðskuldabréf er komi á hvert County til jafnaðar í Bandaríkjunum, og að órækar sannanir væru til fyrir því, að af mörgum af þessum pantsetningarnótum væru rent- an 40% árlega. 40%! $400 verður þá rentan af $1000 á einu ári. Það þarf tveggja manna vinnu um árið til að vega upp á móti því. Er það þá furða, þó menn verði hart uppi með að geta staðið I skilum ? Samt væri nú I þessu tilfelli vel yfir að láta, ef eyðileggingar eldurinn geyrsaði eigi að nema úr einni* átt, en menn standa milli tveggja e^a jafnvel margra elda; menn lenda í gjald þroti, reisa ekki rönd við slíkri kúgun, og þá koma málsóknir og þvingunar- uppboð, þar sem panturinn er látin fara fyrir lítilræði. Þannig vissi ég til þess nýlega, að vænni og góðri mjólkurkú var sleppt fyrir 87 og gott hesta par (Team) látið fara á $75. O, jæja, vér erum einskonar konunga-berar; já, vér erum ekki lengra komnir enn þá. Þó vona ég að sá tími muni koma, að öll renta verði numin burtu úr ríki tilver- unnar, og maður geti þá fengið $100 lán- aða á sama hátt sem við nú fáum lóðan jarðhóf eða spaða um stundarsakir hjá nábúanum. Ég hefi lesið ævintýrið um það, hvernig djöfullinn fann upp brenni vínið. Peningarontan lilýtur að vera af sömu rótum runnin, eða með öðrum orðum, uppfundin af hinum sama. Mr. Donnelly* hefir sem kunnugter verið hinn merkasti leiðandi maður fyr- ir því, að setja niður peningarentuna á síðasta ríkisþingi (1891) Minnesota. Og fyrir það hefir hann fremur en nokkur annar fengið auðmanna og blaða hatur og ofsóknir I fullum mæli. Einn af hinum œðri auðkýfingum sem lána pen- inga, fór fyrir nokkru síðan suður til St. Paul, til að vinna á móti uppástungu er þar var borin upp um afnám á okur- rentum. Heim kominn aftur úr þeirri St. Paul ferð sinni hafði þessi okurkarl vor ekki borið Donnefly sem bezt sög- una og kallað hann herfilegasta mann. “Þar I St. Paul”, sagði hann, “er Don- nelly kallaður öllum illum nöfnum, já enda fríþenkjari og Sócíalisti ; af sliku má ráða hver maður hann er. Hræði- legt er að vita til þess, að ríkisþingið sjálft skyldi útata sig með því að líða þar vantrúarmann og Sócialista”. Var þess þá ekki að vænta, að hinn kristi- legi okurkarl hristi rikiðaf fótum sér og hryfinn af helgri vandlæting og gremju, flýtti sér heim aftur. “Fríþenkjari og Socialist”. Hvað lengi halda þessir skinhelgu hræsnarar að þeir hafi svo og svo mikið upp úr heimsku mannanna, menntunarleysi, hjátrú og hindurvitn- um. Hversu lengi hyggja þeir sér muni takast að hræða fólk með þessari grýlu? Ætli alþýðan sé ekki allareiðu komin svo langt, að hún sér það bæði af sög- unni og daglegri eftirtekt, að slík svo barnaleg blindskot hitta ekki. Sókrates hinn ágætasti og alvörugefnasti sann- leiks leitandi maður, sem sagan getur um, var kærður fyrir það að vera frí- hykgjandi og dæmdur til dauða. Já, sjálfur höfundur vorrar kristnu trúar, timburmannsonurinn frá Nazaret, var ekki einungis sakfeldur fyrir hið sama, lieldur einnig um goðgá eða guðlast og liengdur á Rrossinn. Jóhann IIuss var brendur fyrir það, að hann ley’fði sór að efast um nolckrar trúarsetningar páf- ans. Sagan er rík af svona dæmum. Ef nokkur vogar að hafa eitthvað á móti hláturslegum eða ómannlegum fyndingum og óróttlæti, þá er liann þegar kærður og kallaður fríþenkjari og Sócialisti. Svo hefir það verið og er enn í dag. Moð þessu skjóta undirokarar þjóðanna máli sínu undir hinn auðvirði- legasta dómstól hégilju og hindurvitna, sem fólk er svo fallið fyrir I því trúfræð islega. Millíónir af dollurum liafa verið notaðir til að planta og viðhalda þessari sorglegu og ógæfu ollandi hégylju, og þar með ætíd talið það víst, að nær kæra lik hinni ofangreindu væri liafin móti einhverjum, mundi lýðurinn óðara hrópa : Krossfestu, krossfestu! Hvað lengi skal þessi hugsunarlausi fordæm- ingar dómur og blindi trúarofsi verða notað fyrir meðal til að halda fólki í undirokun og þrældómi ? Er nú ekki heldur von um að tímar hugsunarleys— ins séu þegar á enda; og að tíð alvar- legra hugsana og skynsamlegra skoð- ana og rannsóknar sannleikans taki við. Slíkt kemur nú með sanni sagt eigi ,of snemma. Vegna þess að mór sjálfum hefir verið borið á brýn að ég væri vantrúar maður og Socialist, gríp ég hér með tækifærið með að svara þeirri ákæru með því, að sýna hvor málsparturinn standi þar á hiblíulegum grundvelli, hvort heldur frjálshy-ggjendur eða okur- hræsnarar. Ég sagði að okur væri ó- réttur, sem hrópað hefði I himininn um þúsundir ára. Það er satt. Því á dög- um Moses sjáum vér, að lög hafa verið samin og skráð gegn okri. í 2. Móses bók 22, kap. 25. v. stendur: “Ef þú lánar þeninga íólki mínu, þeim fátæka, sem hjá þér er, þá skaltu ekki vera við hann eins og okurkarl; þú skalt ekki taka leigu af honum”. í 3. bók Móses 25, kap. 36.—37. v. stendur : “Þú skalt ekki fá honum fé þitt á okurleigu, eða hjálpa honum um matvæli með okri”. 5. Mósesb. 23. kap. 19. v.: “Þú skalt ekki taka okurleigu af löndum þínum, hvorki fyrir peninga, mat né aðra hluti þá sem út má okra”. Samt, þráttfyrir þettamargendurtekna bann finnum vér þó í Nehemiabókar 5. kap. að Nehemia, sem var landstjóri í Judea hér um bil 1000 árum síðar, að auð- mennirnir á þeim tíma voru álíka og og þeir eru nú á dögum. Þeir tróðu lög og rétt undir fótum sér og höfðu svælt undir sig I yeð fyrir skuldum, akra, hús og víngarða skuldunauta sinna. “Og Þar varð óp mikið meðal fólksins”. En Nehemias var góður og samvizku- samur landsstjóri og lokkaði auðkýf- ingana með góðu að gefa aftur renturn- ar og pantinn, hætta öllu okri og eftir- láta bræðrum sínum tilbaka aftur eign- >r og óðul. Gera vorir landsstjórar Þetta? Ætli það þættu ekki “firn mik- il”. ef þeir einhvern góðan veðurdag tækju slíkt upp, að feta I fótspor Nehe- miusar með annað eins. Auðkýfing- anna og hinna orþódoxu rétttrúnaðar manna trú er, að þjóna guði, en flá menn. Frjálshyggjenda og Socialista trú er, að hjálpa meðbræðrum sínum frá undirokun og niðurlægingu, en vinna fyrir frelsi og jafnrétti og bræðra lagi á jörðunni. Eða með öðrum orð- um : Frjálshyggenda og Socialista trú er, að þóna mannfélaginu. Og ég trúi að þeir standi föstum fótum á biblíuleg- um grundvelli, því Kristur segir: *) Stjórnmálagarpur í Minnesota. Þýð.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.