Heimskringla - 08.12.1894, Side 4
4
KETMfiKRTNftLA 8. DESEMHER 1894
Hefir verið ágætur mánuður fyrir
okkur í
Blue Store.
MEÐ BLÁSTJÖRNU MERKINU.
434 MAIN STR.
— SEM ER HIN —
Odyrasía íaiasolubud i Winnipeg.
Síðan 1. Nóaember höfum við selt meira af buxum en á undanförnum
þrem mánuðum, og kemur það af því að við seljum alt fyrir hálfvirði.
Þeir sem rengja það, ættu að koma og sjá það sjálfir.
Þetta er sýnishorn
Wirmipeg.
Hr. Guðjón S. Storm, efnabóndi
úr Argyle.Hheilsaði upp á oss á laug-
ardaginn var.
Á morgun flytur séra Ilafsteinn
Pétursson guðsþjónustu í fyrsta sinm
í kyrkju Tjaldbúðarsafnaðar.
Dr. Halldórsson Park River, N.
Dak., hefir gefið Garðarkyrkju ljónmndi
fallega altaristöflu, um göOO virði.
Múrari að nafni William Sutter
fyrirfór sér hér í bænum á laugardag-
inn var. Hafði lengi verið heilsulaus.
Hr. Á. Friðriksson fór vestur til
Glenboro á mánudaginn var. Enn
vantar mikið á að hann sé búinn að
ná sér eftir hina löngu legu í haust.
Óskast til kaups nokkur eintök af
42. nr. Hkr., VIII. árg., útkomið 20.
Okt. þ. á.
8núið yður til ráðsmanns blaðsins,
E. Ólafssonar.
Hús brann á Mountain, N. Dak.,
fyrir skömmu, eign hr. Haralds Thor-
lákssonar. Er tjón eigandaris metið
um $200, eftir því er Dakotablöð segja.
Þar inisti og Elis Thorvaldsson u;n
$100 virði af munum.
C. R. Wilkes er hættur viðjsókn-
ina vim mayors-embættið, enda auð-
vitað að útnefning hans hefir verið
glens og ekki annað. J. B. Hender-
son í 6. deild hefir líka gefist upp.
Séra M. J. Skaptason fór af stað
til N.-ísl. á mánudaginn var og verð-
ur burtu fram undir jólin. Næstu tvo
sunnudaga verður þessvegna ekki em-
bættað í Unítara-kyrkjunni.
Dominion kjörskrárnar nýju verða
yfirskoðaðar 10. Janúar næstk. og
næstu daga á <eftir, svo lengi sem
nokkur gefur sig fram. Það er nauð-
synlegt að ísl. gefi þessu gaum.
Gáið að auglýsingunni með yfir-
skrift “Ward 3,” sem stendur á öðr-
um stað í blaðinu. Mr. O’Donohue er
gamall verzlunarmaður í þessum bæ,
roskinn og ráðinn og mundi vel fall-
inn i skólastjórn.
“Free Press” er ritað frá Baldur
1. Des., að blóðeitrun sé hlaupin í
skurðinn á hendi Hernits Christopher-
Jonar. er um var getið í fregnbréfi
að vestan í síðasta blaði. Óttast menn
því að líf hans sé í hættu.
Það varð ekki af að séra Hafst.
Pétursson færi vestur til Argyle um
daginn eins og sagt varíHkr.. Rétt
áður en hann ætlaði af stað kom bréf
til hans, er gaf til kynna, að hann
þyrfti ekki nauðsynlega aö-korna.
Utnefning bæjarráðsmanna fór
fram á þriðjudaginn var, Fyrir May-
ors-embættið eru í kjöri : Thos. Gil-
roy, Alex. McMicken, C. R. Wilkes.—
Fyrir meðráðendur eru í kjöri : I I. og
II. deild Albert E. Richards og ísrael
M. Ross, eru þegar kosnir, því enginn
sækir á móti þeim; í III. deild: Jas.
McDairmid, John Arbuthnnot, L. Mc-
Means, Stuart McDonald, W, F. Mc-
Creary ; í IV. deild : George Craig og
W. A. Charlesworth'; í V. deild : J. G.
Sproule; J. D. McDonald, William J.
Ross; í VI. deild : Archibald J. Bann-
nerman og James B. Henderson.
í skólastjórn voru kosnir mótsækj-
endalausÉ D. W. Bole, Frcd. C.Wade,
Dr. E. Bonson, eftir upptaldri röð í I.,
II. og IV. deild, í hinum deildunum
eru í kjöri : í III., JohnF. Fowler,
John O’Donolioo; í V. JamesStuart,
Duncan Siuclair, Samuel J. Peutland ,
í IV.: James Dobson, John K. fetrac-
chan. _______________
Jóh. kaupm. Sigurðsson að Hnaus-
um lieilsaði upp á oss a fimtudaginn.
Einmunatíð alla þessa viku. Á
fimtudaginn alveg frostlaust og rigndi
ögn um daginn. Frostlaust að heita
á föstudagsnóttina og er það enn (há-
degi á föstudag), en þoka og andvari
á norðan.
Nokkrar ungar stúlkur eru að
efna til skemtisamkomu til arðs fyrsta
lút. söfnuðinum, er haldin verður í
Northwest Hall 15. þ.m. Nákvæmari
auglýsing síðar.
Unitara-samkoman á fimtudags-
kveldið var fjölmenn vel, salurinn alveg
troðfallur. í söngflokkinn bættust, eftir
að prógrammið var prentað, þeir herrar
stud. mod. Ólafur Björnsson og Erlind-
ur Erlindsson.
Northern Fnrifie lestagangi hefir
verið breytt. St. Paul lestin fer nú aí
stað héðan kl. 12,15 e. h. og kemur að
sunnan kl. 3,15 e. h. Brandon lestin
fer frá Morris kl. 1.50-og kemur þaðan
kl. 1.10 e. h. Portage La Prairie lestin
fer hóðan kl. 4 e. h. og kemur ’kl. 12.40
e. li.
Þrír meðlimir Dominion-ráðaneyt-
isins komu til bæjarins á mánudaginn
var. Sir C. H. Tupper, sjómálastjóri,
Hon. Clark Wallace og Hon. F. Wood.
Þcir tveir síðartöldu fara austur aftur í
dag að loknu erindi sínu hér, áhrær-
andi tollbúðarflutuing, afgreiðslu toll-
aðs varnings o. fl. og um stigbreyting á
hveiti o. fl, I gærkveldi höfðu þeir al-
mennan fund á 'Bijou leikhúsinu.—Sir
Charles fór viðstöðulaust vestur aðhafi,
en(stendur hér við á austurleið, 18. til
20. þ. m.
Þessu blaði fylgir mánaðarritið
Öldin eftir langt uppihald. Þessi drátt
ur á útkomunni stafaði af veikindum
Magnúsar prentara Péturssonar og ó-
möguleikanum að fá mann i hans s<,að.
Flutningur prentsmiðjunnar 'og stækk-
un hennar hefir og stuðlað að drættin-
um í seinni tið. En nú er alt komið í
samt lag aftur og vonum vér að fram-
vegis standi ekki á útksmu Aldarinn-
ar, og tilraun verður gerð til að “ná
upp” svo fljótt sem verður þeim tveim-
ur blöðúm, sem enn eru eftir óútkomin
og sem sjálfsagt verða óútkomin um
áramótin. Undir þessum kringum-
stæðum vonum vér að kaupendur af-
saki dráttinn.
Kvef í höfðinu. — Nasal Balm linar
það undireins; læknar á stuttum tíma.
Bregzt aldrei. (1
Tilkynning.
Þar [eð ég næstliðið sumar var
kaupamaður norður í Fljótsbyrgð, en
einhver góðviljaður náungi hefir borið
það út, að ég væri trúlofaður stúlku
þar, þá lýsi ég yfir þvi, að það eru ó-
sannindi. Jafnframt skora ég á þann
herra, að færa sönnur á mál sitt, eða
að öðrum kosti að standa sem ósann-
indamaðnr frammi fyrrir öllum lýð.
Arnes P. O., Man., 25. Nóv. 1894.
Magnus Jónsson.
Tolltekjur dominionstjórnarinnar i
Winnipeg tollumdæminu voru í síðastl.
Nóvember $78,488, eða nærri $16,000
minni en i Nóv. í fyrra.
Fór að ráði vinar síns.
Mr. Thomas Adams sf.gir fra hinum
HEILLASÖiIU AFLEIÐINGUM.
Hann þjáðis af ákafri gigt.
Mundi iiafa lagt altí sölurnar
fyrir bata. — Hvernig hann
komst til ’heilsu.
Tekið eftir Brantford Courier.
Fáorðri lýsing á bata Mr. Thomas
Adams frá St. George, verður sjálfsagt
vel tekið af mörgum líðandi meðlimum
mannfélagsins, og sórstaklega af þeim
sem geta hagnýtt sér reynslu hans. Mr.
Adams er steinsmiður og býr hér um bil
eina mílu frá St. George. Sem stendur
er hann við vinnu í “Patten Mills” og
er ajþektur og vel metinn þar í grend-
inni. Til þess að fá sem nánastar upp-
lýsingar um bata hans, var fregnrití frá
Courier sendur til að finna hann að máli
og hitti hann Mr, Adams við vinnu í
millunum. Mr. Adams er um 35 ára að
aldri, hraustur og sterltlegur, og fáum
mundi detta í hug að hann hefði nokk-
urn tíma verið lieilsutæpur. Þegar hann
var spurður um veikindi sín, sagði hann
með ánægju eftirfylgjandi sögu : “Við
vinnu mína fyrir þremur árum síðan,
varð ég fyrir svo miklu hnjaski, að óg
fékk upp úr þvi ákafa vöðvagigt. sem
hélt mér við húsið í þrjár vikur og þjáð-
ist ég á þeim tíma óbærilega. Eg var
svo slæmur að ég gat ekki lagst niður,
heldur varð óg að fleygja mér ofanirúm
ið. Þegar ég þurfti að standa á fætur,
varð óg að velta mér á grúfu til þess að
geta reist mig upp. Eg hefði alt fyrir
hjálp. Mór datt fyrst í hug að fá góðan
læknir, og það gerði ég, en það virtist
koma fyrir ekkert. Eftir að hafa komið
til mín nokkrum sinnum, fór hann sjálf-
krafa og sagðist ekkert geta gert til að
hjálpa mér. Um þetta leyti lagði kunn-
ingi minn að mér að reyna Dr. Williams
Pink Pills, og á endanum lét ég undan
og afróð að reyna þær, og eftir mjög
stuttan tíma var mér töluvert farið að
batna, og gat staulast við hækjur fram
og aftur um húsið. Eg hélt áfram að
brúka pillurnar og batnaði mér af þeim
algcrlega á stuttum tíma, og síðan hefi
ég ekki kent neins meins. Nú hefi ég
enga tilkenning í útlimunum né stirð-
leika í liðamötunum. Eg get.fariö á fæt-
ur snemma á morgnana, og tekið þegar
til vinnu án nokkurra óþæginda. Eg
hefi trú á Pink Pills og mæli með þeim
einlæglega. Eg held þær séu góðar til
að hreinsa blóðið hvenær sem er, og ef
ég skyldi verða lasinn, þá mundi ég
grípa til Pink Pills áður en en ég sendi
eftir lækni.”
Þegar aðrir eins vitnisburðir og þess-
ir fást viðvíkjandi hinum framúrskar-
andi verkunum þessara pilla, þá er það
ekki að furða þó mikið seljist af þeim,
og að þær hafi almennings hylli. Dr.
Williams Pink Pills hafa í sér þau efni,
sem nauðsynleg eru til að bæta blóðið
og styrkja veiklaðar taugar. Þær eru
éyggjandi við riðu, limafallssýki,
mjaðmagikt, taugagikt og gikt, liöfuð-
verk og afleiðingum af influenza, hjart-
veiki og öllum sjúkdómum sem korna af
skemdu blóði, svo sem kirtlaveiki og út-
brotum. Þær eru einnig óbrigðular við
heim sjúkdómum sem eru einkennilegir
fyrir kvenfólk, svo sem óreglulegar tíðir
Fyrir karlmenn eru þær ómissandi við
of mikilli líkamlegri eða andlegri á-
reynslu, og ofþreytu af öllu tagi.
Dr. Wílliams Pink Pills eru tilbún-
ar af Dr. Williams Medicine Co.. Brock-
will, Ont., og Schenectady, N. Y., og
eru seldar í öskjum (aldrei lausar í
tylfta eða hundraðavís) á 50 ct. askjan
eða 6 öskjur fyrir $2.50, og fást hjá öll-
um lyfsölum eöa með pósti frá Dr. Will-
iams Medicine Co. frá báðum liinum o'f-
angreindu stöðum. Varið ykkur á eft-
irstælingum, sem seldar eru í tylfta eða
hundraðatali.
Til kjóscnda
- í -
W ard Four.
Undirskrifaður bjður ykkur vin-
samlegast að veita sér fylgiog greiða
atkvæði mcð sér við bæjarfulltrúa-
kosningarnar 18. Desember. Góð og
hagsýn bæjarstjórn er hans mark og
mið.
GEORGE CRAIG.
Til kjósenda
-1 -
Ward 4.
Ég er í kjðri til bæjarstjórnar
og vonast eftir fylgi yðar og at-
kvæðum 18. Desember. Greiðið at-
kvæði mcð manninum sem stýður
réttindi verkamanna.
Yðar einlægur
V\A. A. CHARLESWORTH.
TIL KJÓSENDA í ÞRIÐJU
KJÖRDEILD.
Með því að ég hefl verið tilnefnd-
ur sem bæjarfulltrúi þessarar kjör-
deildar fyrir 1895 og 1896, þá leyfi
ég mér að sækja eftir atkvæðum yð-
ar. Auk þess sem ég vísa til þess
orðs, er af mér fór sem bæjarfulltrúa
árin 1883 og 1884, ætia ég bráðlega
að boða til funda í kjördeildinni og
skýra frá mínu prógrammi. Fyrst
um sinn bið ég yður að Lofa engu um
atkvæði yðar, þangað til öll fulltrúa-
efnin hafa fengið tækifæri til að láta
til sín heyra. Eg ætla að finna svo
marga ykkar, sem mér verður unnt,
fyrir kosningardaginn.
W". F. McCreary.
Fundarboð.
Islenzkir kjósendur halda fund
hjá Mr. Guðjón Johnson, á horninu á
Toronto Str. og Sargant Ave., í kveld
kl. 8 og eru allir íslenzkir kjósendur
þar velkomnir.
Jlr. McCreary heldur þar tölu
um fyrirliggjandi bæjarstjórnarmál,
og gerir þar grein fyrir stefnu þeinú
er hann mundi taka, ef hann yrði
kosinn.
W. F. McCreary.
Ward 3.
— KJÓSIÐ —
Jolm O’Donolme
í SKÓLASTJÓRN
FYRIR
WARD 3,
Góðar vaðmálsbuxur............$1.50
Áferöarfínar Worsted buxur
$6.50 virði..............$3.50
Drengjabuxur..................$1.00
Hvorsdagsfatnaðir af ýmsum
litum $9.50 virði........$6.00
Vönduð föt $15.00 virði bezta
tilboð í Winnipeg.... ...$8.00
Hér með læt ég landa mína vita, að
ég er fluttr frá Cavalier til Hamilton og
er reiðubúinn til að selja ykkur greiða
þegar þið komið hingað, móti borgun
út í hönd. Eg er eins vel undirbúinn
að mæta ykkur nú eins og ég hefi verið
nokkurn tíma áður.
Með virðingu.
RUNÓLFUR SIGURÐSSON.
THE HLTB
484 MAIN STR.
Stórt upplag af
— FATNAÐI —
keypt inn fyrir
50 cents á dollarnum
verðurselt með afarlágu verði.
Munið eftir staðnum-
484 MAIN STR.
S. A. Ripstein
EIOANDI.
Mr. Jósep Skaftason
vinnur í búðinni.
af fataverðinu :
Falleg Navy Blue föt úr írsku
Serge $18.00 virði......$12.00
Ágætar yfirhafnir...........$ 5.50
Loðkragar úr ýmsuin grá-
vörutegundum.....$ 2.00 og yfir
Gáið að! Coon yfirhafnir $22.50 og yfir
íslendingar!
Þér fáið hvergi betri hárskurð og rakstr
en hjá
Sam. Montgommery,
Rakstur 10 cents. Hárskurður 15 cents.
. . . . 671 Main Str.
Eftirmaður S. J. Schevings.
Til rentu
eru hcrbergi á Broadway House, bæði
fyrir fjölskildu og lausafólk, mjögþægi-
leg fyrir veturinn. Þess skal getið að
brunnur er við húsið með ágætu vatni.
Komið Oþ skoðið herbergin og spyrjið
um leiguskilmála hjá
T. í'inkelídcin,
Broadway House.
Ég sendi varning til allra
staða í landin.
Athugið vel
hvers þið þarfnist fyrir jólin
og nýjáriö.
Sparið peninga.
Að spara pening., er sama sem
að innvinna sér peninga.
Kaupið vindla og vín í inni alkunnu búð
H. L. CHABOT
Gegnt City Hall--513 Main Str.
• ISAK JÓNSSON
744 Ross Ave.
Tekur að sér allskonar smíðar, svo
sem húsmuni, húsabyggingar, viðgerðir
o. fl.
Alt verður að seljast. — Komið sem fyrst.
Munið að jiessi tilboð eru frá — — — — -—
434 Ntain Street.
A. Chevrier.
Bústaðar-skifti.
66 Valdimar munkur.
ið. Strax í annari atlöga miðaði greifinn sverð-
inu á hjartastað Rúriks og var nú of reiðnr til
að lara í felur með þá fyrirætlun. Rúrik hljóp
til hliðar undan laginu, rciddi sverð sitt liátt og
hjó á sverð greifans nálægt hjöltum og fylgdi
með svo miklu afii, að sverð greifans féll til
jarðar í molum, en indverzka sverðið var ó-
skemt í hendi Rúriks.
‘•Hitt sverðið, liitt sverðið undireins!” öskr-
aði greifinn alveg óður.
“Eruð þér ærður, Konráð ?’, sögðu þeir Ur-
zen og læknirinn báðir í senn.
•‘Ærður ? Reiður er ég víst og verð reiður .'
Hvar er sverðið?” svaraði greifinn og fleygði
handfangi hins brotna sverðs.
“Viljið þér ekki hlusta á orð mín eina”—
lengra komst læknirinn ekki.
“Burt, buri; með ykkur, segi ég. Á ég má-
ske að gefast upp fyrir það að eitt sverð brotn-
aði, sverð-ónýti, sem sveik mig þegar mest lá á?
Fá mér hitt!”
“Sveik yður, Konráð?” sagði læknirinn háðs
lega. “Guðkomitil! Hefði hundraðasti lilut-
inn af höggi þessu komið á höfuð yðar, þá hefði
það ekki setiö á herðum yðar nú !”
En greifinn var óviðráðanlegur. I æðinu,
sem á lionum var, gat hann ekki greint það sem
allir viðstaddir sáu, að þvi að eins braut Rúrik
sverðið, að liaun vildi forða lífi greifans í eitt
skiftið enn, því honum var innanhandar að
höggva greifann eins og sverðið.
Valdimar munkur. 71
arlega hafið þér ekkert að óttast. Þér voruð
engin sök i þessu. Yðar sök er ekki meiri en
ef þér liefðuð stungið sverðinu í lijartað á villi-
dýri. sem þér þurltuð að verjast”.
"En égkom ekki við lijartað”, svaraði Rú-
rik, “ég var varkár í því efni. Eg liefði lieldur
kosið að slá hann á liöfuðið með flötu sverðinu,
en ég óttaðist að höfaðkúpan brotnaði”.
•‘Hann er ekki dauður enn”, sagði læknir-
inn í þessum svifnm. “Það hefir að eins liðið
yfir hann, og er það að kenna bæði blóðmissi og
hans óstjórnlegu geðshræringu”.
“En haldið þér að hann deyi ?” spurði Rú-
rik og kraup niður við liliðina á greifanum.
“Það er ómögulegt að segja enn”, svaraði
læknirinn og þerrði um leið blóðið, er streymdí
úr sárinu.
•‘Því ekki að kanna sárið undir eins?” spnrði
munkurinn. “Einmitt nú er hentugast að gera
það á meðan engin bólga er hlaupin í það. Og
á meðan hanu er meðvitundarlaus finnur hann
ekki til sársaukans”,
Læknirinn viðurkendi að þetta var satt og
rétt eg tók því til að kanna sárið, en ltúrik at-
hugaði hverja hreyfingu gaumgæfilega.
“Ég he'd sárið sé ekki banvænt”, sagði
læknirinn, er könnuninni var lokið. “Sverðs-
oddurinn hefir gengið gegnum lungun hægra-
megin, en ekki skorið sundur .nema smáæðar.
Með góðri hjúkrun held ég að hanu komi til”.
“Guði sé lof !” sagði þá Rúrik.
70 Valdimar munkur.
átti kost á. Tilraun gerði hann og aðforðast
holsár, en á minnaen augnabliks l.ingri stund er
ekki hægt að gera margt í einu. Hann lagði
því sverðinu fram og hinn egglivsssi, skæri
málmur gekk á hol í skrokk lieimskingjans. I
sömu svipan kippti hann því að sér aftur og
etuddi hlóði roðnum oddinum á gólfið og lýsti
svipur hans því greinilega, hvað mikið lionum
fóilzt um þetta. Greifinn reiddi sverð sitt til at-
lögu um leið og hann fékk lagið, en missti af
stefnunni og hjó út í loftið, og í sömu svipan
varð liandleggur lians aflvana. Hann féll mátt-
laus niður með siðunni og sverðið féll á gólfið,
en sjálfur hné greifinn meðvitundarlaus í út-
breiddan faðm Urzens.
VI. KAP,
Frammi fyrir keisaranum.
“Er liann dauður?” spurði Rúrik og hljóp
til síns fallna fjandmanns.
“Biðið við, sonur góðurl” sagði þá svart-
munkurinn og tók um handlegg Rúriks. •‘Sann—
Valdimar munkur. 67
•'A, hver er hér?” kallaði Alarik upp, er hann í
þessu sá mami ganga inn um skáladyrnar,
Komumaðurinn var Vaidimar munkur.
“Hvað er nú ? Hvað viljið þér hingað?”
spurði Urzen, er liinn stutti og digri munkur
vaggaði inn gólíið.
“Eg heyrði sverða glam, sonur, þegar ég
reið lijá og kom svo inn til að vita hvað um væri
að vera. Sannarlega má þjónn heilagrar guðs
kyrkju vera nærstaddur þar sem dauðastríð or
liáð ?”
“Já,” svaraði greifinn, “yður er vel komið að
vera, en afskiftalaus verðið þér að vera. Sverðið
nú,—hvar er það ?” *
Urzen kom nú með það, þó nauðugur væri,
en áður en haim sleppti því, bað liann greifann
að athuga hvað liann væri að gera. Það væri
heppilegra.
“Haltu þér saman, lieimskingi!” var svar
greifans, er þegar greip sveiðið og bjóst til að
berjast.
Alt til þessa liafði Rúrik ekkert sagt, en nú
gat hann ekki [stilt sig.
“Ilerra greifi!” sagði hann í svo vnldsmann-
legum róm, að greifinn liætti við að bregða sverð
inu. “Ég má til með að tala fáein orð. Þér
liafið kveikt illyndi, liafið skorað mig á hólm. Ég
er alls óhræddnr vi* dauðarn þegar skyklan
kallar, en eins og liér stendur á vil ég eltki
deyja, né hcldur vil ég taka annars mauns líf á