Heimskringla - 19.04.1895, Qupperneq 4
4
HEIMSKIíINGLA 19. APKÍL 1895.
Winnipeg.
Munið eftir fundi verkamannafél.
annað kveld.
Fyrst um sinn verður utanáskrift
S. B. Benedictssonar : Virden, Man.
Adressa séra Hafsteins Péturssonar
er : Corner of Sargent & Toronto Str.
(í húsi Guðjóns Jónssonar).
Sannað þykir, að vísvitandi hafi ein-
hver kveikt í Mulvey-skólanum, er
brann um daginn, en svo er eftir að vita
hver sekur er.
Hr. Stefán Scheving frá West Sel-
kirk heilsaði upp á oss í gærmorgun.
Kom til bæjarins á miðvikudaginn og
fór heim aftur í gær.
Nokkrir Dakota-íslendingar komu
til bæjarins um síðustu helgi og voru að
flytja búferlum vestur i Manitobavatns-
nýlenduna í grend við þrengslin í vatn-
Eitt af því sem unga fólkið fann að
vor-meðulum þeim, sem áður voru
brúkuð var, hvort þau væru bragðslæm.
Þetta hefir nú á tíma verið yfirskyn, og
Ayers Sars^parilla er eins keimgóð eins
og hungang.
Hið íslenzka “base-ball-club” heldur
fund í íslenzka félagshúsinu þriðjudag-
inn 23. þ. m. kl. 7| e. h. Allir ungir
menn, sem vilja taka þátt í base-ball
skemtun hiðkomandi sumar, eru beðnir
að sækja fundinn.
Á sumardaginn fyrsta verður com
plimentary dans, fyrir unga fólkið í N.
W. Hall. Komið sem fyrst og fáið að
göngumiða hjá C. B. Julius S. W. Cor.
Koss & Isabel Str.
Dr. Ó. Stephensen hefir nú fullnægt
kröfum læknafélagsins hér í fylkinu,
gengið undir próf og staðist það. I ram-
vegis er hann því fullveðja dr. med.
er öllum óhætt að vitja hans. 1 yrst um
sinn verður lieimili Iians að 639 Elgin
Ave., fáein skref fyrir austan Nena Str.
Henry Ward Beacher sagði einu
sinni við mann, sem kom til hans og
var mjög stúrinn yfir að ser liði illa, að
það sem hann vanhagaði væri niður-
hreinsandi meðal, auðvitað samskonar
og Ayers Pills, sem vinnur fljótt og vel
Hr. Jóhannes Guðmundsson, frá
Sook River Bridge á Vancouver-e.yju
British Columbia, heilsaði upp á oss
laust fyrir síðustu helgi. Var hann þá
á leið til íslands og býzt við að verða
þar sem svarar 3 missirum. Biður hann
hann Hkr. að færa kunningjum sínum
hér vestra kveðju sína.
Hr. Sigurður Sölvason flutti alfar-
inn í gær vestur til Westbourne og sezt
þar að sem aktýgja-smiður. Hefir hann
látið byggja sér ibúðarhús og verkstæði
þar í þorpinu og er alt útlit fyrir að
hann reki þar arðsama verzlun. Með
honum fór hr. Kristján E. Kristjánsson
aktýgjasmiður og vinnur hjá honum.
Hr. Ólafur Freeman koin til bæjar-
ins, norðvestan frá þrengslunum í Mani-
tobavatni, um síðustu helgi, og segir
meðal annars þau tiðindi, að þar hafi
nýlega fundist lík Gests sál. Björnsson-
ar, er druknaði í vatninu síðastl. sumar,
hafði borist um 1J milu suðaustur frá
miðinu, sem hann druknaði á. Líkið
var jarðsungið á bújörð hr. Einar Krist-
jánssonar, því enn er enginn grafreitur
til í nýlendunni.
Hr. Guðm. Guðbrandson, ásamt hr.
Ólafi Guðmundssyni bónda í Thingvalla
nýlendu vestra, og nokkrum búendum á
vesturströnd Manitoba-vatns, fóru ný-
lega í landskoðun um svæðið fyrir vest-
an vatnið, frá mjóddinni suður að járn-
braut. Fóru norður til Kinosota og
þaðan suður um landið eftir 11. town
KJORKAUP.
Bolir.
Ég hefi nú fengið mikið upplag af vorog sum-
ar vörum, og eru þar á meðal hinir inndælu
“Watchspring”-bolir, sem öllum íslenzkum
stúlkum líka svo vel. Þeir eru úr betra efni
en nokkru sinni áður, og 25 cts. ódýrri. —
Mnniai'bolir eru bolir með nýju lagi og
mjög ódýrir.—I>ress Improver eru einn-
ig bolir eftir nýustu tízku, sem allir “dress-
makers” mæla með. Þeir eru 50 cts. ódýrri
en nokkru sinni áður.
Dœinalaus kjörkaup.
60 pakkar af inndælu kjólaefni. Þetta kjóla-
efni er 25 til 50 cts. virði, en verður selt þessa
Tiku á 17J til 35 cents.
Kcgnlilifar og regnkapur.
Af þessum vörum höfum vér meira en búast
má við að hægt verði að selja fyrir vanalegt verð, og verðum vér því að selja
þær mjög ódýrt til að losna við þær.
Sokkar og hanzkar.
Vér höfum meira af þessu en nokkurn tíma áður. Þetta eru sérlega vand-
ar vörur í öllu tilliti og verðið lægra en nokkurntímu áður hefir þekst.
Karlinannasiiyrtur.
Þær eru makalanst ódýrar. Góðar skyrtur á 25 cts., mikið betri á 35 cents,
ágætar á 50 cents og reglulegt afbragð á 65 og 75 cents.
Mninarföt fyrir drengi.
Vér höfnm þau nú fyrir Sl,25. Karlmánnafatnaði, vaxkápur, nærföt, háls-
bindi, hatta og húfur með ákaflega lágu verði. — Vér bjóðum alla velkomna
að koma og skoða vörurnar áður en þeir kaupa annarstaðar.
Q. Johnson,
South-west corner fíoss & Isabel Str.
1319V1 309VT vbOJ iQZ
, 'X|aoiu Jitl) 3i)] Su3i)S3Jj pu«
| jjiuputg oj pus u? 9jnd sniq
CS3uXjpSiu3A3jdj! peal)
} SúiijstM joj pipu3|ds SIJI
dvog \jvj_-owivd
<J3A3l)| \jSJ\V^M
jiedSap \ii uit put iúit(jLoA9
P3IJJ 3ABl| 0) UJ33S| 'J^Hj
pueditog 3t|]5úisuea|OJQj|
poorsipHM-10J:>0Q
ship-röðinni, um 6—10 mílur frá vatn
inu. Hr. Guðbrandsson kom heim aft
ur úr þeirri ferð á föstudaginn var og
segir að ekki sé á landið að lítast á því
svæði, telur það helzt óbyggilegt, ekkert
nema flóa og foræði með hér og þar flák
um af lélegu hrislandi.
Það er markverð auglýsing í þessu
blaði frá W. Blackader um að gefa mjöl,
gripafóður og eldivið fyrir ekkert hverj-
um þeim sem sannar, að hann selji ekki
ódýrari vörur eftir gæðum en nokkur
annar maður í Winnipeg. Og vér höf-
um fyrir satt að hann muni standa við
þetta boð sitt. Fjölmargir íslendingar
hafa skift við hann, og bera honum allir
gott orð. Hann selur ágætis vörur með
lægsta húgsanlegu verði, fyrir peninga
út i hönd.
Sjö ára þjáningar.
HIÐ MERKILEGA ATVIK, SEM
KOM FYRIR MANN EINN í
HAMILTON.
Taugagigt varhonnm til meins.—Margs
konar meðul voru reynd, en á-
rangurslaust. —|Loks fékk hann
bata.—Hvernig það atvikaðist
Tekið eftir The Canadian Evange-
list, Hamilton.
Einn af starfsmönnum Canadian
Evangelist heyrði á Mr. Robert Heth-
erington, sem býr að 32 Railway Ave,
í samtali við hann, að hann hélt mjög
mikið upp á Dr. Williams Pink Pills, og
let sér mjög ant um að ágæti þeirra
yrði þekt af almenningi. Hann er svo
þakklátur fyrir alt það góða, sem hann
á þeim að þakka, að hann segist vera
skuldbundinn tll að lofaöðrum að heyra
hvernig þær hafa reynzt bonum. Mr
Hetherington þjáðist ákaft af tauga-
gigt í sjö ár. Hann hafði hana ýmist
í höfðinu, handleggjum eða fótum og
sárindin voru oft svo mikil að hann gat
ekki gengið. Hann reyndi auðvitað að
fá sér lækningu og brúkaði þá ýms af
þessum meðulum, sem kölluð eru ó-
brygðul lyf, en ekkert af þeim dugði. í
síðhstl. Ágústmán. fór hann af tilviljun
að brúka Dr. Williams Pink Pills. Eftir
hér um bil tvær vikur var kvölin farin
að minka og honum yfir höfuð farið að
batna, og er hann hafði haldið áfram
að brúka þær um tíma var sjúkdómur-
inn alveg horfinn og hunn orðinn eins
heilbrigður eins og hann nokkru sinni
hafði verið. Mr. Hetherington hefir ekk-
ert gefið út um þermanbata sinn, af því
hann vildi vera viss um að batinn væri
fullkominn áður en hann segði nokkuð í
þá átt. Þegar hann byrjaði að brúka
pillurnar hætti hann algerlega við öll
önnur meðul, og er hann fann hvaða á-
Th£ Apvt OF (úring'
SCIATICA.Í^HEUMATISM
’ -Neuraijsia. -
úpAINS in Back Q^SlDC
" / -O^ANV^USCUlA^pAI^
J_iE5 in'Usimg
•
.A\CNTHbí.^
SOlOfVt^YWHfRt - .
<3
Tyggið
T uckett’s
T & B
“MAHOGANY”
og “BLACK”
Munntobak.
Tilhúið ap
Tiib Geo. E. Tuckett & Son Co., Ltd.
HAMILTON, ONT.
hrif þær höfðu, hélt hann áfram sð
brúka þær þangað til hann var albata.
—Enn fremur sagðist hann nú vera eins
og nýr maður, “Áður var ég svo stirð-
ur og þreyttur á morgnana þegar ég fór
á fætur, en nú er ég ætíð frískur og ó-
lúinn og get farið að vinna undireins og
ég kem á fætur. Ég hefi ekki fundið
til kvalanna siðan í September, og ég
vildi ekki líða aðrar eins þjáningar fyr-
ir það sem tuttugu öskjur af Pink Pills
kosta.
Mr. Hetherington er ekki hinn eini
af þeirri familiu, sem hefir haft gott af
Pink Pills. Ein af dætrum hans, sem
er uppkomin stúlka, var veik í mánuð
eða sex vikur, en batnaði strax, er hún
fór að brúka pillurnar.
Dr. Williams Pink Pills hafa í sér
kraft til að lækna sjúkdóma, sem or-
sakast af skemdu blóði eða veikluðu
taugakerfi, svo sem slæmri matarlyst
og þar af leiðandi biluðum kjarki, nasa-
rensli, máttleysi, svima, minnisleysi,
limafallssýki, mjaðmagigt, gigt, riðu,
afleiðingu af influenza, kirtlaveiki,
langvarandi heimakomu o. s. frv. Þær
eru einnig óyggjandi við sjúkdómum,
sem eru einkennilegir fyrir kvennfólk.
Þær byggja upp likamann og gera hann
hraustan og heilbrigðann, Á karlmönn-
um lækna þær alla sjúkdóma, sem or-
sakast af of mikilli áreynslu eða óhófi
af hvaða tagi sem er. Þessar pillur eru
ekki niðurlireinsandi og innihalda ekk-
ert, sem getur skemt eða veiklað bygg-
ingu manns.
Dr. Williams Pink Pills eru seldar
með merki félagsins á (prentað með
rauðu bleki) þær eru aldrei seldar í stór
um heildum eða i tylftatali eða hundr-
aða tali. Biðjið um Dr. Williams Pink
Pills for Pale People og takið ekki ann-
að.
Dr. Williams Pink Pills fást hjá öll-
um lyfsölum, eða beina leið með pósti
frá Dr, Willinms Medicine Co., Brock-
viHe, Ont., eða Schenectady, N. Y., fyr-
ir 50 cents askjan, eða sex öskjur fyrir
$2,50.
Tombola og dans.
Kvennfélag Tjaldbúðarsafnaðar heldur
tombólu og dans í kveld (föstudag) 19. þ
m. kl. 8 e. h. að
5!Í7 I*ortage Ave.
(í húsi Mr. Stefáns ÞórðarsoDar).
Inngangur og einn dráttur 25 cts. Seld-
ar veitingar. Ágætir hlutir verða á
tombólunni.
Wm. AnderNon
118 Lydia Str. Winnipeg.
Hinn eini Isl. agent fyrir allskonar
hljóðfærum og Music.
Ábyrgist að útvega löndum sínum hljóð
færi fyrir lægra verð enn þeir geta feng-
ið hjá öðrum í bænum. Gömul hljcðfæri
tekin sem borgun upp í ný.
Rakarabúð Árna ÞónnARSONARer að
— SÍIH .I11111C8 Stv. Wewt —
rétt á móti Police Station. í búðinni
vinnur enskur rakari, sem áður hefir
unnið i íslenzkri rakarabúð hér í bænum.
Komið við í nýju búðinni.
Ask your Druggist for
Murray &
Lanman’s
FLOKIDA WATER
A DAINTY FLORAL EXTRACT
for Handkerchief, Toilet and Bath.
Takið eftir.
Ég undirskrifaður er nýbyrjaður að
verzla með margskonar tegundir af skó-
fatnaði
AÐ 290 jllaiii Street
rétt á móti Hotel Manitoba, aðrar dyr
frá horninu á Graham Ave. Ég sel með
eins vægu verði og unt er, bý til skó
eftir máli og geri við gamalt, sem alt
verður bæði fljótt og vel af hendi leyst.
Ég mun gera mér alt far um að gera
gamla og nýja viðskiftavini mína á-
nægða.
Komið til mín áður en þór kaupið
hjá öðrum.
Sigurður Yilhjálmsson.
James Farquhar.
Húsflutningamaður.
Ábyrgist yerkið vel af hendi leyst og
eins ódýrt og ódýrast gerist.
Heimili: 859 Main Street.
Landar í Selkirk.
Ef þið þurfið málaflutningsmanns við,
þá reynið
John O’Reilly, B. A.,
Barrister, Attorney Etc.
Skrifstofa í Dagg-Block.
SELKIRK, MAN.
$3.000
virði af
Hottum
J. A. Rogers & Co.
Seldir fyrir 35 til 50 c. dollars virðið
Tlic Bliie Sta
MERKI : BLÁ STJARNA
434 Main Street.
wwww
YERÐSKRÁ.
Stetson’s. $5,00 fyrir ..$2,50
Stetson’s. $7,00 fyrir ..$3,50
Christys.. $3.50 fyrír ..$1,50
Fedoras... $3,50 fyrir ..$1,50
Margskonar $3,00 hattar á$l,00
BUXUR! BUXUR!
Buxur seldar í stærri stíl en nokkru
sinni áður í Winnipeg. Yér ætlum að
selja þrisvar sinnum eins mikið eins og í
fyrra, og vér vitum að lágt verð færir
oss flesta kaupendur.
VERÐSKRÁ.
Góðar buxur fyrir........$1,25
Ágætar starfsbuxur fyrir.$1,50
Afbragðs buxur fjrrir....$2,00
Beztu buxur fáanlegar fyrir.....$2,50
Drengjabuxur vel gerðar, fóðraðar $0,50
Drengjaföt...............81,50
Drengjaföt. $5.50 virði, fyrii*.$3,50
Unglingafatnaðir, $7.50 virði, fyrir $1,50
Yið gerum það sem við segjum.
Munið eftir
BLUESTORE
Merki—Blá stjarna.
434 MAIN STREET.
A. Ulievrier.
Ég sendi varning til allra
staða í landin.
Athugið vel
hvers þið þarfnist fyrir jólin
og nýjárið.
Sparið peninga.
Að spara peninga er sama sem
að innvinna sér peninga.
Kaupið vindla og vín í inni alkunnu búð
H. L. CHABOT
Gegnt City Hall-513 Main Str.
131 Hi)!i;in Street
gefur hverjum sem hafa vill X* pU-'U-p-p-J- sem sannaðgetur að
mjöl, gripafóður og eldivið 1 J"L U ]lann se] j) e]iki ódýr_
ari vörur, eftir gæðum, en nokkur annar í þessum bæ.
Qull og silfur=gripir.
Ii (f|j Ég hefi nú fengið nýjar og ágætar
. birgðir af allskonar Jewellry. Þeir
Hin nýja skrautgripabúð Gimngahrhigi1**
geta hvergi fengið samskonar hringi
fyrir jafnlítið verð eins og lijá mér.
Einnig hefi ég
Úr og klukkur
og allskonar gull og silfurgripi við
lægri verði en ykKur hefir nokkurn-
tíma dreymt um.
G. Tbomas,
Manuf. Jeweller.
534 ITIaiii Stroct
221 Valdimar munkur.
festir um háls hennar áður en hún er leiddað
fórnarstalli heiðingjanna, en því miður hefir
guð ekki gefið mér það það skilningsleysi, til ad
hjálpa mér í nevðinni. Nei, Zenobia, ég fer
ekki í brúðarbúning!”
“Eb hertoginn ætlast til þess?”
‘•Það er mér sama. Hann getur ekki beðið
mig þess. Af því ég er ósjálfbjarga megnar hann
að gera við mig eins og honum sýnist, en hann
þorir ekki að biðja mig neins”.
‘•Það veit guð ég vildi aðég gæti liðið fyrir
þig, elsku búsmóðir ’, sagði þá Zenobie, vafði
liöndunum háls hennar og grét. Rósalind
hreylðist ekki hið minnsta viðþetta, sv® dofin
var hún orðin, en þikkaði vinkonu sinni fyrir
bluttökuna í sorginni. “En”, hélt hún áfram,
“þetta gerir lítið. Ég þjáist aldrei lengi. Sorg
mín tekur bráðum enda”. Zenobie leit upp á
bana spyrjandi, en sagði ekkert og hélt þá Rósa-
lindáfram. “Guð teknr mig heim til sín áður
langt líðnr. Ég finn nákalda fingur dauðans
nálgast hjartataugar mínar jafnvel nú og ég veit
að jarðneskt líf getnr ekki til lengdar haldið
anda mínnm í þessum herfjötrum”.
Zenobie var orðlaus. í stað þess að svara
með hughreystandi orðum tók hún höfuð Rósa-
lindar og hélt því upp að brjóst> sinu. Þannig
hélt hún Rósalmd, þar lil hurðinni var lokið
upp og inn gekk þjónustukoca, sem með titr-
andi rödd sagði Rósaliud að hertoginn biði eftir
henni. llún bætti við hálftalaða setningu og var
Valdimar munkur, 230
lostið niður fyrir fótum hans, hefði honum ekki
fundizt meira til.
“Hver ert þú 7” spurði hann með andköfum
og hopaði á hæli.
"Ey, Olga hertogi af Tula, er herra þinn !”
svaraði Valdimarí sima róm, svo gersamlega ó-
líkum þeim er hann hafði tamið sér og sem allir
könnuðust við. Um leið og hann talaði þessi orð
hneppti hann frd sér hinni svörtu munkakápu og
ýstran öll hrundi niðurágólf og umhverfðist 1
haug mikinn af bómull og ullarkembum saman-
saumuð í eitt kerfi ! Fitan var öll burt, en munk-
urinn í sinni eðlilegu mynd var eftir. öndir-
hakan var líka burtu og sást nú að hér var lítill
maður og grannvaxmn—ekki mikið stærri en
Paul, sem stóð nálægt honum. Næst lyfti hann
hendinni upp aðhöfðinu og þreif burt nærskorna
húfu ogfylgdi henni hið mikla gráa hár, en
hans eðlilega dökka hár féll óhindrað í gljáandi
bylgjum niður um vangana og hálsinn og sai á
herðum hans.
“Miskunsemdanna guð!” æpti þá Savotano.
“Það er KEI8ARINN ! ”
“Já”, svaraði Pétur og leit tindrandi augum
til hertogans, sem skalf og nötraði orðlaus og
ráðalaus. *'Ég er keisari ykkar. Paul, kallaðu á
varðliðið”.
Paui hljóp út og kom að vörmn spori aftur,
og fylgdi honum þá fiokkur af lífverðinum.
“Miskunn, misKunn, herra !” bað hertoginn
og féll á knén fyrir Pítrj, sem ekki leit við hon-
228 Valdimar munkur.
smiðsins Paul Peepoíf. Fleiri komu ekki inn í
einu í stofuna, en úti í forstofunni heyrðist skó-
hljóð margra manna og vopnaglamur.
“Bíðið! Hættið þessum bölvaða leik !”
sagði Búrik og gekk snúðugt inn gólfið.
“Hvernig vogar þú, vesali hundur, að koma
hingað?” orgaði hertoginn gersumlcga óður.
“Ilægt, drambláti hertogi”, sagði nú Valdi-
mar og gekk fram. “Eg er potturinn og pannan
í öllu þessu og er nú hér kominn til að liindra
þetta fúlmannlega verk”.
Rósalind hafði risið á fætur undireins og liún
þekti málróm Rúriks, og nú, þegar hún lieyrði
orð munksins fvltist hjarta hennar af von og
hljóp liún þá tafarlaust til ástvinar síns. “Rúrik>
Rúrik !” sagði hún, en gat ekki sagt meira fyrir
gráti. Hún huldi andlitsltt á brjósti lians, en
liann vafði liana upp að sér og bað hana vera
alls óhrædda, Jiún væri nú úr allri hættu.
Alt petta sá hertoginn og tryltist. Með ógur-
leg blótsyrði á vörunum óð hann til Iiúriks og
fullvissaði hann um, að þetta skyldi hans síð-
asta, og kallaði svo liárri röddu til þjóna sinna.
Þeir ruddust inn, og skipaði hann þeim þegar að
ráðast á “bundana” og drepa þá, ef þeir ekki
hlýddu og héldu burt. “Áfram nú. Niður með
hundana!” sagði hann.
“HÆGT !” Þetta sagði Valdimar, en í svo
breyttum róm, að allir stóðu agndofa og hertog-
inn sjálfur saup hveljur. Þó þrumuíleig hefði
Valdimar munkur. 225
sem hún biði eftir svari, en er það kom ekki,
spurði hún hvaða svar hún ætti að færa liertog-
auum.
Rósalind reyndi eð rísa á fætur, en hneig
niður aftur og gat ekki svarað.
“Seig honum að viðkomum”, sagði þá Zeno-
bie, sem sá að þess kvns erð t’truðu á vörum
Rósalindar, þó liana skorti afl til að gera þau
skiljanleg.
“Auðvitað”, sagði þá Rósalind, en svo lágt
að naumast heyrðistog fór þá þjónustukonan út,
er Rósalind stundi npp þessu eina orði.
“Stundin er komin, elskulega mín”, sagði þá
Zenobie og lierti upp hugann sem mest hún
mátti. “Við höfum beitt öllum brögðum til að
losast, en öll bafa misheppnast. Við verðum að
koma”.
“Guð miskuna þú mér !’’ veinnði Rósalind
með grátþrunginni rödd.
“Ilér er ekkert undanfæri, engin von, og er
því betra að fara ofan tafarlaust, lieldur en að
bíða og gera þennan vonda mann reiðan á ný.
Væri hér um allra minstu von að gera skyldum
við hvergi fara, en það er ekki. Þess vegna er
til einskis setið, elsku Rósalind”.
Rósalind sat um stund hreyfíngarlaus alveg,
en svo stóð hún áfætur, lyfti höndum og augum
til himins og flutti andheita bæn, sem enginn
nema liinn alvaldi heyrði, því þó varir hennar
bærðust heyrðist ekkertorðið. Svo sneri hún sér