Heimskringla - 17.05.1895, Blaðsíða 2
2
HEIMSKKINGLA 17. MAÍ 1895.
• •
{ Heimskringla !
• PUBLISHED BY •
• •
• The Heimskrmgla Prtg. k I'ultl. Co. •
• 5
• •• •• •
• •
5 Verð blaðsins í Canda og Bandar.: J
• $2 um árið [fyrirfram borgað] •
• Sent til íslands [fyrirfram borgað •
... af kaupendum bl. hér] $ 1. e
j •••• J
• Uppsögn ógild að lögum nema H
• kaupandi sé skuldlaus við blaðið. •
•••• j
• Peningar sendist i P. O. Money •
• Order, Hegistered Letter eða Ex- •
• press Money Order. Bankaávis- •
• anir á aðra banka en i Winnlpeg •
• að eins teknar með aiföllum. •
• í
• •• •• •
• EGGERTJOHANNSSON •
,, EUITOK. •
EINAR OLAFSSON J
• BUSINESS MANAGER. •
• •
J •• •• o
• •
• Office : J
J Corner Ross Ave & Nena Str. J
J P.O. Box 305. J
••••••••••••••••••••••••«
Kosningaréttur embættis-
manna.
Enn einusinni er rœtt um 1 að á
dominioDþingi, hvort svifta skuli kosn-
ingarótti alla embættismenn og skrif-
stofaþjóna fylkisstjórnanna, eða ekki.
Flutningsmaður þessa máls nú sem
fyrri er þingm. J. B. Mills frá Anna-
polisí Nýja Skotlandi. Hingað til hefir
þessari uppástungu ekki verið tekið vel
á þinginu og hætt við líkum undirtekt-
um nú. Ofsafúllir flokksmenn “liber-
ala” sem voru mundu ef til vill kenna
þann þráa þeirri ónáttúru conserva-
tíva, að vilja ekki nota nema sem
minnst af uppgötvunum “liberal”-af-
komendanna stefnulausu. Má og vera
að sú tilgáta yrði ekki svo ýkja fjarri
sanni, þegar til alls kemur, en í þessu
efni mun þráinn sprottinn af því og
ekki öðru, að conseivatívar hafa enn
ekki náð svo háu stigi á “frelsisins” og
mannréttarins vegum, að þeir viður-
kenni rétt að svifta þjónustumenn
fylkisstjórnanna atkv.rétti, en veita
hann sínum eigin embættismönuum.
Sú háa hugmynd um frelsi og jafnrétti
er ekki enn ríkjandi í Canada nema
meðal “liberala”. Þeir einir eiga heið-
urinn enn sem komið er fyrir lög, sem
svifta sambandsstjórnar embættismenn
kosningarétti við fylkisþingskosningar,
þó þeirra embættismenn megi og séu
skyldugir til ekki einungis að greiða at-
kvæði, heldur einnig vinna alt sem þeir
geta stjórn sinni til gagns. Þessi jafn-
réttishugmynd tekur sig líklega hvergi
betur út í Canada á yfírstandandi tíma
heldur en hérna í Manitoba. Enginn
embættismaður sambandsstj óruari nnar
fær aðgreiða atkv. með eða móti fylkis-
þingmannsefni, en hálaunaður embætt-
ismaður fylkisstjórnarinnar fær leyfí til
ef ekki beina skipun, að bjóða sig fram
sem dominionþingmannsefni án þess að
segja af sér embættinu, og upp á kostn-
að fylkisins að ferðast sjálfur um kjör-
dæmið og smala atkv. loforðum handa
sjálfum sér og stjórn sinni, auk heilla
herskara af dvergvaxnari pólitikusum,
sem sendir eru upp á kostnað hinsopin-
bera til að smala atkvæðum fyrir sama
náungann, undir þvi yfirskyni að þeir
séu að athuga hvort ekki sé þörf á brú
yfir keldu, upphækkun vegar yfir ein-
hverja kvosina, eðaframskurð einhverr-
ar mýrarinnar o. s. frv. Alt þetta og
meira er háttstandandi embættlingi
“iiberal”-stjórnar leyfilegt—af því hann
fyllir "liberal” stjórnarflokk, en alls
þessa er þeim manni varnað, sem er svo
óheppinn að hafa náð í atviunu hjá do-
minionstjórninni, svo framarlega sem
atvinnan er svo stöðug að likur séu á
að hann geti framdregið lífið af laun-
unum. Af því hugsandi er að hann
kunni að greiða atkv. gegn "liberal”
umsækjanda, þá er sjálfsagt að svifta
þann skálk mannréttindum sínum að
þessu leytinu—láta hann ekkert atkv.
hafa.
En þegar til alvörunnar kemur og
þegar litið er á hve almenn þessi harð-
stjóralög eru að verða hér í Canada hjá
þeim stjómmálaflokki, sem hylur blygð
un sína með “liberal” nafninu, þá væri
það frá hlutdrægu flokka sjónarmiði
skoðað, ekki nema rétt, tilaðhaldajafn-
væginu, að dominionstjórnin tæki at-
kvæðisréttinn frá fylkisstjórnarembætt-
ismönnum á dominion-kjörþingi. Það
er rétt. að eitt gangi yfir alla. Ef einn
embættismaður er óverðugur til að
greiða atkv., þá er annar það. Það er
itlum efa undirorpið að það þætti hart,
þrælslegt, ef conservatia-flokkurinn
sviftifylkisstjórnar embættismenn alla
atkvæðisrétti, en samt væri það ekki
nema réttlát hefnd fyrir þá hina mörgu
menn, sem í frjálslyndisins nafni hafa
verið sviftir þpssum rétti í þeirri von,
að með því megi koma núverandi domi-
nionstjórn á kné. En réttlát eins og
þessi hefnd væri, þá eru ósköp litlar
líkur til að til þeirra úrræða verði grip-
ið. Fróðlegt væri þó að vita hveraig
“liberalar” á dominionþingi tækju í
það mál, ef til verulegrar umræðu og
atkv. kæmi.
Það getur máské verið hugsanlegt
að réttlátt sé að svifta embættismann
einnar stjórnar atkvæðisrétti, en ekki
er það vel greinilegt á hverju það er
byggt. Það má vitanlega gera ráð fyr-
ir að embættismennirnir og skrifstofu-
þjónarnir flestir kjósi flokksmann þeirr-
ar stjórnar er veitir honum atvinnu, þó
vitanlega séu til inörg dæmi þess að ár
eftir ár situr embættismaður í stöðu
sinni, þó andvígismenn hans í pólitík
ráði ríki. En svo leiðir það eðlilga af
atkvæðamissinum, að þeir menn sem
áður voru hálf-volgii' og hirtu ekkert
um flokksmál, umhverfast í einbeitta
fjandmenn þess flokks er svifti þá at-
kvæðinu og vinna alt sem í þeirra valdi
stendur til að sundra liði hans. Og víst
er það að fullveðja borgari og hæfur
maður getur unnið sínum flokki eins
mikið gagn eftir að hann hefir verið
sviftur atkvæðinu eins og áður. enda
miklu meira, af því, sem sagt, að hann
leggur sig þá betur fram. Frá sjónar-
miði hlutdrægs flokkmanns er því ekki
auðvelt að sjá livar ávinningurinn er.
Ef hugmyndin er að undanþyggja alla
embættismennina öllum pólitfskum á-
hrifum, þá ná lögin ekki nógu langt og
eru þarafleiðandi ekki réttlát. Því
skyldi þeim mönnum, sem skipa ráða-
neyti stjórnanna gert hærra undir
höfði? Því ekki banna þeim einnig að'
kjósa, að bjóða sig fram til þingmensku
og sitja á þingi ? Þeir eru ekkert ann-
að en embættismenn fremur en hinir,
þó þeir séu skör ofar og ef rótt er að
svifta hina óæðri embættismenn þjóð-
arinnar atkvæði og kjörgengi, þá er
líka rétt að svifta alla embættismenn-
ina þeim réttindum. Flokkstjórn á
þingi ætti að geta verið til eftir sem
áður og meirihlutinn svo altaf ráðið
hvaða menn hafa framkvæmd stjórn-
mála á höndum. Og svo mætti alt af
kjósa menn í ráðaneytið á sama hátt og
kosnir eru dómarar, fylkisstjórar, o. s.
frv. Væri fyrirkomulag eitthvað í þessa
átt viðtekið og bókstaflega öllum embætt
ismönnum þjóðarinnar, frá þeim hæzta
til hins lægsta, gert jafnt undir höfði,
þá væri fremur ástæða tilað viðurkenna
atkvæðis-missirinn réttlátan dóm. Og
ió verður það aldrei réttlátt þegar litið
er á almennu kröfuna að allir þegnar
rikisins hafi eitt atkvæði og enginn
nema eitt.
Silfur-þrætan.
Batnandi árferði eru nú mörg
Bandaríkja blöð farin að vona að reyn-
ist ókleif torfæra á vegi silfur-ítanna,
Þau þykjast jafnvel nú geta greint
breytingu, sem styi'kir þau í þeirri trú.
í flestum stöðum, Sef ekki öllum, hefir
það verið aðal-vopnið, að silfurpeninga-
skorturinn sé orsökin til harðærisins,
til vinnueklunnar, hins lága kaups og
lága verðs á allri bænda vöru. Þessu
átti ekki að vera hugsandi að breyta til
batnaðar, nema ef kjósendurnir létu til
sín taka, þrýstu niður gullinu, en upp-
hefðu silfrið. I stórstöðunum að minsta
kosti er æfinlega auðgert að fá saman
menn til að hlýða með athygli á ræður
um þetta o. þvl., sérstaklega ef stjórn-
inni er hallmælt, því Iþað er svo eigin-
legt fjöldanum að finna að gerðum
þeirra sem ráða og framkvæma. Nú
eru allar vonir til að smámsaman verði
örðugra að fá fjöldann til að hlýða á
mærð silfur-postulanna. Það bendir
alt svo greinilega á batnandi árferði,
bændavaran er að hækka í verði og
verkstæðisfélögin að fjölga starfsmönn-
um, og þegar flestir hafa vinnu, enda
þótt hún sé ekki eins vel launuð og á-
kjósanlegt væri, þá letjast menn á að
mæta á fundum, til að hlýða á torskilið
fínanz spursmál. Þessa torfæru eru
nú enda silfur-ítar farnir að sjá og
óttast svo að bót verði ráðin á meinum
þjóðarinnar, án þess þess þeir komist
að með sinn læknisdóm. Af því leiðir
svo, að þeir ólmast meir nú en nokkru
sinni áður, að því leyti, að þeir hafa
hærra og heimta með frekju að breyt-
ingin sé gerð án frekari undandráttar.
Ef vonir allar og viðskifta horfur eru
ekki því svikulli, þá er nú líka annað-
hvort að hrökkva eða stökkva, annað-
hvort að fá 50 centa silfurdollarinn við-
urkendan 100 centa virði undireins, eða
draga sig í hlé og bíða eftir næsta harð-
æriskafla. Ef það er rétt, að silfurpen-
inga-æðið hverfi fyrir batnandi ári, og
ef batnandi ár er gengið í garð, þá er
líka hugsandi að árgæzkan þeyti silfur-
málinu útyfir takmörk rígvallarins í
forseta-kosningar sókninni næstu.
Eigi að síður eru þau blöðin mörg,
sem óttast, að ekkert þvílíkt brjóti silf-
urítana á bak aftur; þeir séu þrautseig-
ari en svo og búnir að ná svo miklu
haldi á alþýðu, að málið hljóti að út-
kljást að því er alþýðu snertir þegár
forsetakjörmennirnir verða kosnir
haustið 1896. Eru þau þessvegna al-
varlega farin að athuga veðurstöðuna —
athuga hvernig atkv. muni falla, fyrst
og fremst á flokksþingunum, og siðan
við kjörmanna kosninguna. Hvað
flokksþingin snertir þá eru sum blöðin
á þvi, að silfur-ítar verði yflrsterkari
hjá bæði demókrötum og repúblíkum,
og við áhöldum búizt að því er kjör-
manna kosning snertir. Einn vonbezti
andvígismaður silfurítanna gerir ráð
fyrir eftirfylgjandi úrslitum við hina al-
mennu atkv. greiðslu:
Silfur-ítar :
Alabama.... .. 11 Nebraska 8
Arkansas ... .. 8 Nevada 3
Colorado .. 4 N orth-Carolina 11
Florida .. 4 North-Dakota. 3
Georgia .. 13 South-Carolina 9
Idaho .. 8 South-Dakota.. 4
Kansas .. 10 Tennessee 12
Louisiana ... .. 8 Texas 15
Missouri .. 17 Washington.... 4
Mississippi... .. 9 Wyoming 3
Montana .... . 3 Utah 3
Alls. 165
Móti fríslátta silfurs :
Connecticut... 6 New Hampshire 4
Delaware...... 8 New Jersey .... 10
Illinois...... 24 New York....... 36
Iowa...........13 Ohio............23
Kentucky......12 Pennsylvania ... 32
Maine.......... 6 Rhode Island... 4
Maryland...... 8 Vermont......... 4
Massachusetts 15 West Virginia... 6
Michigan...... 14 Wisconsin....... 12
Minnesota.... 9 -----
Alls. 242
Efasöm eru talin ríkin California,
Indiaua, Oregon, Virginia, er tiisamiiis
senda um 40 menn á forseta kjörþing.
Nú eru 224 atkv. nauðsynleg til þess
forsetaefni nái kjöri og þó silfur-ítar
næðu öllum þessum 4 efasömu-rikjum
eru þeir í minnihluta. Só þessi áætlun
nokkuð nærri lagi sýnir hún hve náið
er um áhöld flokkanna að þvi er silfur-
frísláttuna snertir. Áhöldin virðast alt
of mikil til þess horfurnar séu vænlegar
fyrir þá alla, sem vilja forðast fjár-
glæfrabrögð og voða og undireins of
mikil til þess von sé til að árgæzkan
sem allir vona eftir verki á einu ári svo
mikla breytingu að silfurþrætan velti
um sjálfa sig og verði að engu.
Göfugur þjóðhöfðingi
er hann óneitanlega keisarinn í Japan.
Hann hefir sýnt það í hvívetna frá því
fyrst hann kom til valda, að hann skil-
ur nútíðarkröfurnar enda betur en
margir þjóðhöfðingjar í hinum mennt-
uðu "kristnu” löndum og ríkjum. í
augum þjóðar sinnar, samkvæmt hefð
og venju frá ómunatíð, var hann ein-
valdur, en réttlátur drottinn þjóðarinn-
ar frá þeim degi að hann var krýndur.
Við þá dýrð og tign var honum ekki
unt að bæta, enda reyndi hann ekki til
þess. í þess stað svifti hann sjálfan
sig valdi, gaf þjóðinni ótilkvaddur þing
og þingbundna stjóru. Stjórnarfyrir-
komulag, réttarfar o. þh. er þar að
sumu leyti fullkomnara og betra, held-
ur en hjá þeim þjóðum mörgum, sem til
þessa hafa álitið Japanita svo óviðráð-
anlega barbara-þjóð, að þær hafa neit-
að að þýðast úrskurði Japaniskra dóm-
stóla í málum þegna sinna í Japan.
Sama göfuglyndið kom fram hjá
honum bæði í byrjun og endir hins um-
liðna stríðs við Kinverja. Striðið var
hafiðí góðum og göfugum tilgangi.
Japanítar áttu Kóreu-mönnum mikið
að þaklta frá fofnri tíð, hafa líka verið
þeim velviljaðir og viljað bæta hag
þeirra í öllu, en sem ekki var hægt með
an Kínverjar héldu þoim í járnviðjum
sínum. Þegar menningarljósið var far-
ið að skína svo skært i Japan, sá keis-
arinn við ljós þess, 'að ef nokkur vegur
væri til að lyfta Kóreumönnum á
hærra menningarstig var óumflýjanlegt
að losa þá undan oki Kínverja. Kín-
verjum var svo boðið að losa böndin,
en þeir sögðu nei. Stríðið var afleiðing
in og verkaði hvorttveggja í senn : los-
aði Koreumenn úr fjötrum fávizku og
neyðar og upphóf Japaníta sjálfa í röð
með fremstu þjóðum. Framvegis verða
aðrar þjóðir að viðurkenna nýtt stór-
veldi í heiminum, en ekki Kína, heldur
Japans-eyjar.
Ávarp keisarans til þjóðarinnar að
stríðinu loknu er enn ein sönnun fyrir
veglyndi hans. Það er ólíku saman að
jafna, Þýzkalandi og Japan, þegar á
menning alla er litið, en öðruvísi hefði
ávarpið orðið hjá Vilhjálmi víðförla.
Ef dæmt er eftir öllum ræðum og ritum
þess manns, þá er lítill efi á að hann
hefði tileinkað sér stærri skerf af dýrð-
inni, en Japan-keisari gerði; hann hefði
lagt meiri áherzlu á orðið ég og viðliaft
það oftar. Japan keisarinn helgar sér
ekki meira af dýrðinni en hverjum ein-
um þegni sínum. Hann þakkar þeim
sigurinn öllum jafnt, hvort heldur sem
þeir drógu fram á vígvöllinn eða lögðu
fram fé og góð ráð heima hjá sér. Og
hann stærir sig og þjóðina svo lítið af
jafnfrægum sigri, að ávarp hans getur
verið eftirbreytnisverð fyrirmynd fyrir
þjóðhöfðingja, sem þykjast af meiri
mentun sinni og þegnanna.
Að lyktum sýndi hann göfuglyndi
sitt og löngun til að hafa frið við alla
menn, þegar hann sjálfviljugur lét að
orðum Itússa, Þjóðverja og Frakka og
seldi Kínverjum |í hendur aftur Port
Arthur kastalann og allan þann skaga,
sem kastalinn stendur á. Það hefðu
einhverjir, sem á hærra menntunarstigi
standa, brugðist öðruvísi við þeirri á-
skorun, og þá ekki sízt þegar nokkurn-
veginn \ var víst fylgi Breta, Banda-
ríkjamanna, Itala o. fl. En til þess að
hleypa ekki allri Evrópu í bál og brand
út af þessu, lét þessi “barbara”-höfð-
ingi undan. Með þeirri tílhliðrun sýndi
hann líka og sannaði að tilgangurinn
með stríðið var eins og Japanitar alt af
hafa haldið fram, enginn annar en sá,
að leysa Koreumenn úr fjötrum og gefa
þeiin tækifæri til að þokast á hærra
stig menningar og framfara.
Lífsábyrgð.
Félögin sem ábyrgjast erfingjunum
ákveðinn erfðasjóð fyrir ákveðið árgjald
frá þeim, er ábyrgðina kaupir, eru efa-
laust meðal nytsömustu stofnana nútíð-
arinnar. Það leynir sér heldur ekki í
ársskýrslum félaganna og í ársskýrslum
stjórnanna, sem krefjast reikninga yfir
lífsábyrgð, að þessi félög eru óðum að
verða alþýðlegasta stofnunin sem til er.
Harðæriskaflinn hér í landi er greini-
legur vottur þess að fjöldi manna er
farinn að meta lífsábyrgð einssjálfsagða
eins og mat og drykk. Þrátt fyrir al-
menna kvörtun um vandræði að draga
fram lífið fjölguðu ábyrgðarkaupendur
miklu meira ’94 en árið ’93 og þó f jölguðu
þeir meira 1893 en 1892. Þó allar stofn-
anir hafi staðið í stað á síðastl. 2 árum
og margar gengið saman, þá hafa lífsá-
byrgðarfélögin aldrei grætt meira á
jafnlöngu tímabili — að minsta kosti
aldrei grætt jafnmarga skiftavini. Þetta
sýnir bezt hve mikið menn alment eru
farnir að meta lífsábyrgð.
En eins og þessi stofnun er góð eins
er það voðalegt hvemig f jölgar skálk-
um, sem misbrúka hana. Morð eru
framin æði oft nú orðið í þeim tilgangi
að ná í sjóðinn, sem fellur í gjalddaga
samdægurs og sá deyr, sem ábyrgðina
keypti. Hvað mikið af þesskyns glæp-
um er framið er liklega engum unt að
segja, en til að sýna hve tíðir þeir eru
þarf ekki annað en líta á að hér í Can-
ada, þar sem stórglæpir eru framdir til-
tölulega miklu sjaldnar en í mörgum
öðrum löndum, hafa á sfðastl. vetri ver-
ið útkljáð 4 eða 5 mál um samsæri til
að myrða ættingja og vini fyrir lífsá-
byrgðina og í Ontario-fylki einu standa
nú yfir 2 eða 3 þesskyns morðmáL Til
þessa er það miklu oftar að konur
liafa verið myrtar vegna ábyrgðarinnar
og þessvegna sýnist það fyrirtæki lífsá-
byrgðarfélaganna, að taka kvennfólk í
ábyrgð, einna skaðvænlegast. Það er
líka greinilega framkomið, að það þarf
ekkiað vera giít kona, eða nokkrum
sérstökum manni háð, til þess hún sé í
voða ef hún hefir keypt sór lífsábyrgð.
Til að sjá það þarf ekki annað en at-
huga hvemjg Catherino Ging í Minnea-
polis var “töluð upp í” að kaupa $9000
lífsábyrgð, til þess morðingja honnar
gæfist kostur á að lána henni $2,000
gegn veði í lífsábyrgðinni.
Þó er enn ein tegund lífsábyrgðar,
sem er enn hræðilegri; það er lífsábyrgð
barna. í síðastl. Marz mán. komu fram
órækar sannanir fyrir því, á Massachu-
setts þingi, þar sem verið var að mæla
með og mót frumvarpi til laga, er fyrir-
býður lifsábyrgð á börnum innan lOára,
að í stórborgunum eru börn svo tugum
þúsunda skiftir kvalin í hungri, kulda
og nekt, til þess að fá saman vikugjald-
ið fyrir ábyrgð þeirra. Það komu fram
margir merkir menn, karlar og konur
sem sögðust geta sannað að fjölda mörg
börn hefðu látið h'fið eingöngu fyrir
þessa hörmunga meðferð. Það kom og
fram við þessa rannsókn, að barnaá-
byrgðarfélögin eru meira en hörð íkröf-
um. Þannig hafði fátæk ekkja, sem ekki
keypti ábyrgðina í því skyni að kreista
lífið úr börnum sínum og græða fé, held-
ur í þeim tilgangi að útvega þeim sjóð,
sem félli í gjalddaga, þegar þau næðu
ákveðnum aldri, þannig hafði hún verið
búin að borga 55 cents í hverri viku í
rúmlega 8 ár, þegar það kom fyrir að
55 centin voru engan veginn fáanleg á
hinum tiltekna degi og samstundis fékk
hún tilkynningu um að ábyrgð barna
hennar væri upphafin. Þarna tókst
félaginu að ræna hana yfir $230.00, auk
vaxta peninganna í 8 ár. Þetta sýnis-
horn sýnir að ráðvanda fólkið fær þann-
ig að ala önn fyrirbarnamorðingjunuin,
ef það í eitt einasta skifti getur ekki int
gjaldið af hendi á augnablikinu. Þessa
grein lífsábyrgðarinnar sýnist gerlegt
að íyrirbjóða með lögum.
Lítill ferðapistill.
Af því svo margir af sveitungum
mínum og kunningjum báðu mig þegar
ég fór heim í fyrrasumar að skrifa sér
ferðasöguna, en mér fanst það útheimta
helzt til mikla pappírseyðslu, pennaslit
og fyrirhöfn að skrifa sem svaraði væn-
um Jónsbókailestri í marga staði, þá
finst mér umsvifaminnst að senda
Hkr' fáeina mola og biðja hana vinsam-
legast að strá þeim út á meðal þeirra
allra, og láta svo þar við sitja.
Um ferðina heim hefi ég mjög fátt
að skrifa sem nokkurt gaman er að, því
ekkert sérlega sögulegt bar við á leið-
inni þótt löng sé. Eg lagði a{ stað frá
Winnipeg og allri hennar dýrð 23. Júlí
kl. 7 e. m. með C, P. R. lestinni og kom
til Toronto kl. 1 e. m. þann 26. og
varð að bíða þar til kl. 9 um kveldið
eftir Montreal-lestinni. 4>angad kom
ég kl. 8 að morgni þess 27. og varð að
bíða þar til kvelds og notaði ég því dag-
inn til að skoða bæinn. Montreal er
stór og hrikalegur hær. Stórbyggingar
eru þar allmargar, en mjög lítið finnst
mér til um fegurð þeirra, heldur virtist
mér margar þeirra bera þess merki, að
þeim hefði verið klungrað upp í mesta
flýti. Gangstéttir (sidewalks) eru þar
flestar úr steini og strætin einnig víða
steinlögð. Mikil vinna var í bænurn,
en þó var fjöldi manns yðjulaus. Þar
voru flækinga fylkingar mikið stærri
en sézt hafa nokkurntíma í Winnipeg,
og datt mér í hug, að þótt ófrið bæri
að höndum og bærinn hefði ekkert ann-
að sér til varnar, þá myndi hann ekki
verða auðunninn meðan hann hefði
slíkum “mattadórum” á að skipa. Sum-
ir þeirra litu til mín alt annað en vin-
gjarnlegá og 2 reyndu að svíkja mig í
peningasökum, en það mistókst alger-
lega. Um kveldið mátti ég kaupa
keyrslu á flutningi mínum af vagnstöð-
inni til skipsins, sem lá 4 mílu frá og
kostaði það 25 cents fyrir stykkið. Frá
kl. 8—11 um kveldið var allra þjóða
fólk að streyma um borð þar til skipið
var nær því fullt, og mátti heyra ó-
skemtilegt arg og garg, ys og þys um
alt skipið. Kl. 6 um morguninn
næsta eftir fór slripid af höfninni
og kom til Quebec kl. 4. Þar var skip-
að fram miklu af kolum og mat fyrir
slripið. Að morgni þess 29. fórum við
af Quebec-höfn, Þótti mér mjög fall-
egt þar með fram ströndinni. Ekki var
land horfið um kveldið er við fórum að
sofa, en er ég kom á fætur kl. 6 að
morgni þess 30. var svarta-þoka og
Amerika alveg horfin sjónum, Næstu
2 daga var gott veður, en allmikil und-
iralia og urðu því margir svinkaðir af
sjóveiki, að mér uudanskildum samt. 2.
Ágúst mundi ég eftir því, að það var
íslendingadagurinn í Winnipeg, en sá
ekki til neins að hugsa til afturhvarfs,
heldur gera mig ásáttan með að verða
af öllum þeim skemtunurn, sem hann
vanalega veitir löndum í Winnipeg. Á
leiðinni yfir hafið höfðum við yfirfljót-
anlegt af andlggri fæðu og líkamlegri,
oftast messur tvisvar á dag. Kl. 2 þann
6. komum við til Londonderry og bið-
um þar 2 tíma, voru þar flutt í land
bréf og nokkrir farþegjar. Um kveldið
komum við til Liverpool. Norskur
maður var á skipinu, sem átti heima
þar í bænum, og bauð hann mér að
koma heim til sín og gista hjá sér um
nóttina, þáði ég það með þökkum og
hafði þar hinar beztu viðtökur. I Li-
verpool má sjá mörg stórkostleg mann-
virki. ef tíminn ræki ekki of hart á eft-
ir, og datt mér i hug, þegar ég kom
þangað, það sem kerling ein íslenzk
sagði, er liún kom á höfnina við New
York : “Margt er hér að sjá og mikið
af þessu hlýtur nú aðvera mannaverk”.
Daginn eftir, þann 7., skemti ég mér
um bæinn til kl. 12 um kveldið að ég
fór með lestinni til Glasgow, sem eru
260 mílur, og kom þangað kl. 7 að
morgni þess 8. Þar fékk ég frítíma til
kl. 4 e. m. að lestin lagði af stað til
Edinborgar. Þar fekk ég lítinn tíma
til að sjá mig um og hefði þó gjarnan
viljað það, því Edinborg er mjög falleg-
ur bær, heldur héldum áfram til Gran-
ton og komum þangað kl. 8 e. m. og fór
um borð í póstskipið “Laura” um kveld
ið- Að morgni þess 9. fór Laura frá
Granton. Veður var hið bezta og gekk
ferðinvel. Þann 11. komum við til
Thorshavn í Færeyjum og fóru nokkrir
þar í land sér til smemtunar. Þar var
fólk í óða-önn að taka saman hey og
bera heim á bakinu. Morguninn eftir
sigldum við þaðan áleiðis til íslands og
fengum versta óveður mest af leiðinni
svo oft var óstætt á þiljum uppi. Að
morgni þess 14. sá ég Seæfellsjökul og
fanst mér hann anda heldur kalt á móti
landa sínum, því mig ;tók á andlitið.
Þann 15. komum við til Ileykjavíkur
og fór ég um borð í “Thyra” er þar lá,
kl. 7 um kveldið. Varþar fyrir Magnús
Pálsson frændi minn, á leið til Norður-
lands. Ékki hafði ég séð Ileykjavík
fyrri og kom þar ekki í land, heldur
fanst ég vera vel ánægður með að sjá
hana bara tilsýndar. Um kvöldið kom-
um við í Stykkishólm, var þar skipað
fram miklu af ull og æðardún. Þar var
tekin mynd af “Thyra”, og hugsa ég að
hún komist f verð, þvi ég veit að við
Ameríkufarar sjáumst þar greinilega í
öllu okkar ameríkanska skarti. Þann
18. komum við á Dýrafjörð ; kom þar
inn hvalveiðaskip með hval um daginn,
og var mér sagt að þeir væru búnir að
veiða 110 hvali þar yfir sumarið, Það-
an fórum við kl. 5 og komum um kveld-
ið kl. 8 á Önundarfjörð; þar höfðu
veiðzt að sögn 210 livalir um sumarið,
láu skrokkarnir hér og þar um fjörurn-
ar. Daginn eftir komuin við á ísafjörð
komu þar margir Eyfirðingar um borð,
sem verið höfðu þar vestra á fiskiskip-
um Á. Ásgeirssonar, og tóku sér far
heim ''með “Thyra”. 23. komum við á
Sauðárkrók, fórum við Magnús þar í
land og heimsóttum herra Erlend Páls-
son, frænda okkar, sem verið hefir bók-
haldari þar í mörg ár; fengum við þar
góðar viðtökur. Á Sauðárkrók þótú
mér einna fegurst pláss af öllum þeim
höfnum, er ég kom á vestan með land-
inu. Að morgni þess 24. komum við á
Siglufjörð, en stönzuðum þar lítið, og
vorum komnir kl. 1 inn hjá Hrísey á
Eyjafirði, og fór ég þá að kannast við
tíest er fyrir augun bar, en nákvæmlega
sýndist mér alt likt því sem það var fyr
ir 7 árum, þegar ég sá það seinast.
Gamla Hrísey sýndist mér nauðalík því
sem hún var þá og gat ég jafnvel ekki
merkt að hún hefði neitt "blásið upp” í
fjarveru minni. Kl. 4 e. m. komum
við á Akureyrarhöfn, og get ég ekki
neitað því, að mér sýndist öllu léttari
svipur hvíla þar yfir, en þegar ég fór
þaðan. AU-mörg hús hafa verið bygð
á þessum tima og hafnarbryggjan og
hinn góði vegur milli Akureyrar og
Oddeyrar er mikil breyting til batnað-
ar.
Svo er þessi ferðapistill á enda og
bið ég alla sem hann kynnu að lesa. að
virða á betra veg, því ég býst varla við
að nokkursstaðar finnist “gullkorn inn-
anum” eins og hjá Símoni.
Sveitungum mínum vestra get ég
ekkert merkilegt sagt hér úr Hörgárdah
Séu framfarirnar nokkrar, þá eru þær í
svo smáum stíl, að óg vil helzt vera
laus við að lýsa þeim. Ein er samt
merkjanleg, nefnil. torfkofinn sem kall-
aður var kyrkja, á Myiká, hefir verið
rifin niður til grunna, svo þar stendur
ekki hnaus yfir hnaus, en í staðinn er
risið upp allveglegt timburhús.
Áðendingu bið ég Hkr. að bera
kæra kveðju til allra vina minna og
kunningja þar vestra.
Öxnahóli í Hörgárdal, Eyjafjarðarsýslu
22. Febrúar 1895.
Kristjún Erlrndsson.
Charlet U. Jlutchingt,
Vondur höfuðverkur
algerlega læknaður með
Ayer’s Pills
“Ég þjáðist af slæmum höfuðverk,
og fylgdi honum vanalega ákafar þraut-
ir framan i höfðinu, sárindi í augunum,
og slæmt bragð í munninum. Tungan
var óhrein og fæturnir kaldir, og fylgdi
því ætíð ógleði. Eg reyndi ýms meðul,
sem ráðlögð eru við þessum sjúkdóm, en
það var ekki fyr en eg
Fór að brúka
Ayer’s Pills.
að mér fór fyrir alvöru að batna. Mér
batnaði af einni öskju af pillum og er ég
nú alvegheilbrigður.— C. H. Hutohings,
East Auburn, Me.
Ayer's Pills
tðku verðlaun á heimssýningunni.
Ayer’s Sarsaparilla, hin besta