Heimskringla - 13.09.1895, Blaðsíða 1
IX. ÁR.
WINNIPEG, MAN., 13. SEPTEMBER 1895.
NR. 37.
Gröf Mozarts
Sem betur fer hefir heimurinn farið
með fáa jafn-illa og tón-skáldið fræga
Mozart. Meistaraverkin hans voru
ekki á þeim dögum metin eins og þau
eru nú metin. Alla sína daga barðist
hann við fátækt og skort og dó öreigi.
Æfidagarnir hans seinustu voru
sorglega dimmir og kaldir. Það var
haustið 1791. Hann bjó þá með konu
sinni í hrörlegu- hreysi við eitt hinna
lítil£jörlegri stræta í Vínarborg . Hann
var héilsulaus og kona hans eins, eignir
engar, en veturinn aðfaraíhönd, og
þó var hann í sömu andránni að vinna
sinn stærsta sigur íheimitón-skáldanna
Vínarborg öll dáðis#að og undraðist yf-
ir söngleikurum hans : “töfra-flautan”,
en samt lét Vínarborg höfundinn líða
neyð, heilsulausann í skjóllitlu hreysi.
Seint í Nóvember sýktist hann alger-
lega og skoraði þá á vin sinn, hótel-eig-
anda í grendinni, að koma tafarlaust,
eins og hann hefði lofað, til að gera sér
glaða eina kvöld-stund og drekka með
sér gómsætt vín, því veturinn væri
þegar kominn og hann þyrfti að fara
að vinna sér fyrir eldivið. En þegar
vinur hans kom var hann lagstur í
rúmið, og sagði þá Mozart brosandi:
“Þessi dagur er helgaður læknum og
lyfsölum, en ekki sönglistinni”. Því
“vínið”, sem Mozart talaði um í fyrstu,
var hljóðfærasláttur húsi sínu til fram-
færslur
Kona hans lagðist nú líka, og lágu
bæði þaunig þar til hann dó kl. 1 að-
faranótt 5. Desember 1791. Eignir hans
voru virtar þannig : Bækur og hand-
rit á 33 florins (!) og allar aðrar eignir á
40 florins ; að öllu samtöldu rúmlega 30
dollars! Vinur hans, Van Swietin, er
sá um útförina, áleit því skyldu sína að
viðhafa alla mögulega sparsemi. Jarð-
arförin fór fram 6. Desember frá St.
Stephanusar-kyrkjunni. Var þá snjó-
burður mikifl og kuldaveður og fóru
fáir af vinum hins látna áleiðis til
kyrkjugarðsins og alla leið fóru ekki
nema þeir sem afhentu kyrkjugarðs-
verðinum líkið. Þannig stóð þá á, að
ekki einn einasti af vinum hans fylgdi
honum til grafar og sá hvar hann var
lagður. Þegar ekkjan löngu seinna
komst á fætur og dróg út í St. Markús-
ar-kyrkjugarðinn til að leita eftir leiði
mannsins síns, var fyrrverandi kyrkju-
garðsvörður dáinn og annar nýr tekinn
við, Hann hafði ekki hugmynd um
hvar gröfin var, því fyrirrennari hans
hafði ekki gert eins og til var ætlast, að
reisa litinn trékross með nafninu Mo-
zart yfir leiðinu.
Það er haft fyrir satt, að til þess
að rýra útfararkostnaðinn sem mest,
hafi gröfin verið tekin í þeim hluta
kyrkjugarðsins sem ætlaður var öllum
og engum. Bein þeirra, sem þar voru
grafnir, fengu sern sé ekki að hvíla í
friði meir en 10 ár. Þá voru þær grafir
rifnar upp og auðnuleysingjum holað
þar niður á ný. Margar tilraunir hafa
verið gerðar til að finna gröf þessa
mikla manns, en árangurslaust. Vín-
arborg mat hann svo mikils þá, að
hann fekk ekki gröf til að hvíla í út af
fyrir sig.
Út af þessu risu skarpar deilur í
fæðingarstað hans, Salzburg, þegar hon
um var helguð 100 ára minningarhátíð
i Austurríki 1891. En þær deilur voru
árangurslausar eins og leitin að gröf-
inni áður. Það hefir engina hugmynd
um hvar gröf hans er, ekki einu sinni
í hvaða hluta kyrkjugarðsins.
En nú ætla Vínarmenn um síðir að
fara að bæta fyrir ójöfnuð feðra sinna
að svo miklu leyti sem þeir geta. Það
á nú að reisa honum mikinn og fagran
minnisvarða í Vínarborg og verður
fyrsta sporið í þá áttina stigið í Nóv-
ember í haust með sönghátíð mikilli
þar í borginni og víðar, í hans minn-
ingu.
Peningar lánaðir til að byggja
kaupa eða endurbæta heimili
manna, og til að hefja gamlar
áhvílandi veðskuldir. Tveggja
til fimmtán ára tími gefinn til
afborgunar. Afborganir mán-
aðarlega, sem er vanalegasti
borgunarmátinn. Upplýsingar
um skilmála vora fást kostnað-
arlaust.
Globe Saving & Loan Co.
E. W. DAY Manager,
383 Main Str.
FRETTIR.
DAGBÓK.
FIMTUDAG, .5 SEPT:
Kaþólskur prestaskóli var vígður í
útjaðri St. Paul borgar, Minnesota, í
gær. Kostaði hann með landinu og
framfærslusjóðnum milj., sem alt er
gjöf J, J. Hills, forseta Great Northern
brautar félagsins.
Kólera er að aukast í Kína og
Japan.
Frakkar og Rússar ætla að . sögn í
sameiningu að hjálpa Japanítum til að
fl.ytja herlíð sitt burt af Liao-Tung skag-
anum, ef þeir ekki hraða sér ótilknúðir.
Rikiskona í New York, Mrs. Flem-
ing að nafni, er kærð fýrir að hafa
myrt móður sína, sem arfleiddi hana að
$300,000 virði af eignum.
Þrætur eru í vændum út af landa-
merkjalinunni milli Canada og Banda-
ríkja á Skógavatni. Sprettur það af
fiskiveiða þrætum.
Ætlað er að brezkt gufuskip frá
Belfast, “Lord Downshire”, hafi farizt
með 36 mönnum á. Til þessa hefir ekki
spurzt síðan í Maí í vor var þá austur
austur af Brazihuströndum.
FÖSTUDAG, 6. SEPT.
Þingi Breta var frestað í gær til 18.
Nóv. næstk.
Bólusótt er uppkomin í austurhluta
Lundúna, og er að sögn all-útbreidd
orðin.
Anarkistar á Frakklandi eru á*
reitnir við gamla Rothchilds ríka. Fyr-
ir fáum dögum var honum sjálfum
veitt banatilræði og í gær var gerð til-
raun til að sprengja banka hans í loft
upp. Var maður að kveikja á sprengi-
kúlu þegar varðmaður bankans sá hann
oghandsamaði hann með hjálp lögreglu-
þjóna í grendinni.
70 milj. franka eru Frakkar nú
búnir að verja til að striða við Mada-
gaskar-búa, og enn er endirinn ekki
sýnilegur.
Fregn frá Ottawa segir að H. H.
Smith, sem verið hefir Land Commis-
sioner dominionstjórnarinnar i Winni-
peg síðau 1885, hafi verið kjörinn vara-
maður akuryrkjumálaráðgjafans í
Ottawa. í Smiths stað, sem Land
Commissioner, er sagt að komi W. B.
Scarth.
Önnur mannskæð orusta var háð á
Cuba 81. Agúst og báru uppreistar-
menn enn sigur úr býtum. Eftir því
er næst verður komist féllu um eða yfir
600 manns af liði Spánverja.
Roseberry lávarður er væntanlegur
til Canada innan skamms, til að kynna
sér landið og fólkið.
LAUGARDAG, 7. SEPT.
$5,655 var stolið úr registéruðum
bréfum úr pósthúsinu í Frederickton,
New Brunswick, núna í vikunni.
Þjófurinn er ófundin enn.
Stjórnarráðsmenn Breta tala um
að útríkin öll leggi eitthvað af mörk-
um til viðhalds sjóflotanum brezka og
hafi svo hönd í bagga með stjórn hans.
Allsherjar ársfundur verkmanna í
Canada hefir staðið yfir í London, Ont.,
undanfarna daga og var lokið i gær.
Á fundinum var samþykt ályktun þess
efnis, að afnema skuli landstjóra og
fylkisstjóra embættin. Fundurinn lýsti
því yfir, að hann væri hlyntur ein-
skatts hugmyndinni.
Unglingsmaður í Lundyville, á
austurströnd Manitoba-vatns, réði sér
bana 3. þ. m., án þess nokkur ástæða
væri sýnileg.
Uppreistarmenn á Cuba klaga
spænzku hermennina fyrir glæpaverk
og spillvirki allskonar, samskonar og
Japanítar voru kærðir fyrir eftir orust-
una að Port Arthur í fyrra. Þeir kvað
myrða konur og börn og misþyrma á
allar lundir.
Kappsiglinguna fyrstu þreyttu þær
Valkyrja III. og Defender úti fyrir
New York höfn i dag; sigldu 30 mílna
sprett 15 út og 15 heim aftur og vann
Defender. Var nærri 9 mínútum á und-
an á heimleiðinni. Vindur var lítill, og
fólksfjöldi að horfa á óvanalega mikill.
Svo mikið er viðhaft í þetta skifti, að
hafþráður er lagður frain þangað sem
stöð jaktanna er og hann sameinaður
hafþráðunum austur yfir liaf. Hinn
endi hans er á þilfarinu á þar til kjörnu
skipi og þaðan eru svo fregnirnar send-
ar í allar áttir í hvert skifti sem nokkur
breyting verður á afstöðunni.
MÁNUDAG 9. SEPT.
8 verzlunarmenn í Montreal hafa
verið teknir fastir, kærðir fyrir tilraun-
ir að brenna hús — verzlunarbúðir og
vörúhús.
Heræfingar Þjóðverja standa nú
yfir í grend við Stettin. Eru þar sam-
an í einum hóp 120,000 hermenn.
Spánverjar halda áfram liðsöfnuði
enn. Eru nú að safna og æfa 20,000
hermenn sem eiga að verða ferðbúnir til
Cuba 1. Nóv., ef þöif gerist.
Blaðið “Journal des Debats” í París
segir fengnar sannanir um samsæri
Bandaríkjamannsins Waflér og Mada-
gaskarbúa, og að öll viðleitni hans að
fá lausn verði nú til einskis.
Suður-ríkjalegt er að tarna. Bólu-
veikur maður, C. Norman að nafni, var
á laugardaginn rekinn út yfir takmörk
Arkansas-ríkis þar sem hann átti heima
bara af því hann var bóluveikur. Ætl-
aði hann þá að leita sér hælis í Missis-
sippi-rikinu, en var skotinn til dauðs,
er hann var að fara yfir landamerkja
línuna.
Canadiski “Soo” skipaskurðurinn
var vígður á laugardaginn 7. þ. m.
27 menn týndu lífi í gær (sunnudag)
við námaslys í norður-Michigan.
ÞRIÐJUDAG, 10, SEPT.
Kólera er að aukæt í Rússlandi og
Austurríki.
Baldwin gufumagnsmíðisfélagið í
Philadelphia og Westinghouse-rafmagns
félagið í Pittsburg hafa í hyggju að
smiða rafvagn og reyna hann við lesta-
drátt á brattri járnbraut í Peru í Suður
Ameríku. Enskt félag á brautina og
hefir formaður þess, Sir Henry T\'ler,
fyrrum formaður Grand Trunk félags-
ins í Canada, verið að semja við félögin
um undanfarinn tíma. Erindrekar fé-
laganna fóru af stað í suðurferðina í
gær ásamt Sir Henry Tyler.
Skozki sósíalistinn og einn þingm.
Breta, James Keir Hardie, er sem
stendur í Chicago, og flutti þar ræðu á
methodista-presta íundi í gær, er var
svo gífurlega stíluð, að hann var hróp-
aðar niður, og varö að flýja úr fundar-
salnum.
Uppihaldslaus straumur af skipum
urn canadiska “Soo”-skurðinn síðan
hann var opnaður. Lokunum er lyft
meðrafmagni, sem aldrei hefir verið
gert áður, og gengur það ágætlega.
Bæði fargjald og vöruflutningsgjald
yfir Atlantshaf er búizt við að hækki
að mun 1. Október næstk.
Auka-þingkosning fór fram á Ir-
landi fyrir helgina og skyldi þar til
skarar skríða milli þeirra McCarthy-
sinna og fylgismanna Tim. Healys, sem
óþarfastur hefir verið Irum svo lengi.
Lauk svo að McCarthy-sinnar unnu,
og er nú vænt að afl Healys sé lamað.
Lundúna-fregn segir að í heilan
mannsaldur hafi ekki verið jafn al-
mennt æði á mönnum á Englandi eins
og nú er, með að leggja fé í óviss gróða
fyrirtæki, einkum í námahlutafélög í
Afríku og vestur-Át tralíu. Er sá
nefndur Barney Barnato, sem mestur
er í að ginna fólk þannig; sagt hann
hafi í* sumar dregið um $150 milj. á
þennan veg úr greipum almennings,
og meginhlutinn af hans fyrirtækjum
er eins víst ekkert nema svikamylna.
\
MIÐVIKUDAG 11. SEPT.
Valkyrja III. vann annan sprettinn
í kappsiglingunni á New York höfn í
gær, en munurinn var litifl, að eins 1
mín. og 49 sekúndur. Spretturinn 30
mílur.
Enskur Asiu-ferðamað*ir, Harry De
Windt, ætlar í liaust að fara norður um
Alaska, yfir Beringssund á ís og um
endilanga Asíu vestur til Rússlands og
koma heim aftur til Lundúna snemma
1898. Hefir hann þá farið 22,000 mílur.
Fádæma rigningar hafa gengið í
Kansas og eru nú stórir flákar af landi
vatni flotnir. Vatnsaginn er sumstað-
ar svo mikill að umferð á járnbrautum
er bönnuð.
Toronto-bæjarstjórn hefir ákveðið
að grafa jaíðgöng undir höfnina og út
á vatn (Ontario-vatn) þar sem dýpi er
mikið og leiða þaðan neyzluvatn til
borgarinnar. Til þessa hefir hún haft
pípur miklar á vatnsbotni til vatnsveit-
inga, en þær biluðu um daginn og eru
bæjarmenn nú i vandræðum vegna
vatnsleysis.
í síðustu ferð sinni vestur yfir hafið
fór Thingvalla línu skipið “Hekla” frá
Christiansand í Noregi til New York á
11 dögum og 9 kl. stundum. Er það
sögð mest ferð á þeirri leið.
Japanítar, sem eru siglingamenn
miklir, hafa nú í hug að smíða jakt og
senda austur hingað til að keppa við
Bandaríkjamenn og hverja aðra sem
bjóðast, um bikarimi mikla “America’s
Cup.”
Kólera hefir gert vart við sig í Al-
zir í Afríku. — Staðhæft er að kólera
drepi 2000 manns á dag i Peking i Kína.
Uppskeru áætlun Bandaríkjastjórn-
ar segir hveiti-uppskeru ríkjanna í heild
sinni rýrari en í fyrra, þó hún í norð-
vesturríkjunum flestum sé miklu meiri
en þá og miklu meiri en í meðallagi.
FIMTUDAG, 12. SEPT.
Þess var getið fyrir skömmu, að
tvær vagnlestir á Englaudi hefðu farið:
önnur 540 mílur á 535 mínútum, en hin
527 milur á 520 mínútum. Bandaríkja-
járnbrautamenn langaði til að reyna
hvort ekki væri hægt að gera betur, og
var ákveðið að reyna hlaupið á New
York Central-brautinni mílli New Yorlc
og BufEalo. Eftir hálfsmánaðar undir-
búning var ferðin hafin ll.þ. m.ogfór
lestin 436 mílurnar á 407 míuútum.
Á þriðjud. morguninn þegar kapp-
siglingin byrjaði rákust jaktirnar sam-
an og toppurinn á Defendér lnskaðist.
Útaf þessu klöguðu eigendur hennar
svo á eftir og helguðu sér en ekki Val-
kyrju vinninginn, því Valk. var kent
um áreksturinn og jakt-fél. nefndin í
New York dæmdi svo Defender sigur-
inn.
Skilnaður.
Fánýta líf, þú litbreytinga straumur,
þitt ljós er glys, þinn virkileiki er
draumur;
þin sæla er kvöl, þitt blóm er visið blað,
þitt bros er sorg, og þú átt engan stað.
Þú ert þó takmark; endar þar þú hefst,
þú ert og dauðinn, breytinga þú krefst.
í morgun ertu blóm og sól, svo björt,
en breytt að aftni, föl og auðog svört,
Þú ólánssami undur litli maður,
sem ert að morgni frjáls og nýr oír
glaður;
um miðjan dag þér blæða sorga sár
og svo að kvöjdi ertu bleikur nár.
En hvað er það, sem frjófgar lífsins land
og leggur á oss þetta sterka band,
sem bindur oss við bölogheim og kifið
og blindar oss svo til að elsku. lífið?
Ekki er það auðlegð (allir fæðast
snauðir
og ekkert flytja þeir með sér burtu
dauðir),
né tign og völd, því einn með öðrumbýr
hinn æðri og lægri, þá til moldar snýr.
Nei, þaðerást, sem bindur böndum
þeim.
sem bindur oss við þennan töfra heim,
sem oss til lífsins löngun sterka vekur,
en löngun til að deyja frá oss tekur.
Lítið á móður l^?t á dauða beð,
af litlu börnunum getur hún ekki séð;
hún er svo þreytt og hlýtur hvíld að
taka,
en hún vill þómeð sínum börnum vaka.
Hún elskar börnin, berst við dauðann
hart,
til baráttunnar knýr hana ekki margt;
með heljar-afli bindur hún börn og
mann
unz brestur hjartað — dauðinn sigur
vann.
Ó, skilnaðar stund ! þú sárust allrasára
þú sorgar orsök, móðir dýrra tára ;
þú mannleg hjörtu særir sundur slítur,
þú sólar myrkvi, er lífsins þráðinn
brýtur.
Er ástar sólin skín svo skært og blítt
og skín á heiminn, gerir altsvo frítt,
svo lífið sýnist vafið vorsins unað
og vináttunnar fjötrað sælum munað.
Þá formyrkvarðu þessa þýðu sól,
svo þá er ekki framar ljós né skjól;
þinn kaldur andi nakið brjóstum næðir;
við návist þína hverju hjarta blæðir.
Ó, skilnaður—það óttalega orð—,
það ógnar, hryllir, líkt og vínar morð.
Það augnablik, sem vin frávini skilur
er voðalegra en d'immur grafar bylur.
Já, þegar vinir haldast höndí hönd
og hrygðin særir vonarlausa önd,
og saknaðs-tárin væta bleika brá
og bresta orð, en hjartað fult af þrá.
Og skilnaðar-stundin — litið augnblik
eitt
það ógna Jiaf, —sem brúar ekki neitt—
Hin síðsta athöfn, heilagt ástar hnoss,
er hjörtun brenna, það er vinar koss.
Burt, eitthvað burt, er atvik tímans
kalla,
og “aldrei framar” tímans lúðrar gjalla;
það haf, sem verður milli þin og mín,
mér mælist drýgra, er sæki ég til þíu.
Ó, falska líf! svo fögrum rósum glitað,
er falslaus ástin getur veg ginn litað,
þú átt til sælu, er ótal skuggar hylja,
en átt til mest af því að—verða að skilja,
S. B. Benedictsson.
Hjóna-djöfQllinn.
Smásaga eftir J. Magnús Bjarnason.
Niðurlag.
I fyrstu varð Albert eins og hálf-
viti sem sér eitthvað nýstárlegt. —
Hann glápti svo einkennilega hérvill-
ingslega á Pál. Svo leit hann niður
fyrir sig og þagði eins og ístöðulítið
barn, sem hlýðir á reiðan föður. En
þegar hann heyrði Pál segjast hafa
heyrt á tal þeirra Kristínar og hans,
kvöldið fyrir, þá kipptist hann við. eins
og hann hefði verið bitinn af nöðru;
liann þrútnaði allur í framan og voða-
legur glampi kom í augu hans. Hann
spratt snarlega á fætur og sló til Páls
eftir ameríkönskum hnefaleiks-reglum,
en höggið varð ekki eins kraftmikið og
það var hátt reitt. Páll hrökklaðist
dálítið aftur á bak. en náði sér strax
aftur, hljóp svo an honum, greip hann
hryggspennu og kreisti hann að sér méð
svo miklu heljarafli, að augun sýndust
alveg ætla út úr höfðinu á Albert; en
samt fór hann ekki af fótunum því hann
var fimur mjög og vanur áflogum.
Þannig áttust þeir við um hríð, og tóku
á öllu því afli og karlmensku sem til var
í þeim, og sem þéir gátu við komið, eins
og hér væri um lífið eitt að tefla. Þeir
bárust þegjandi fram og aftur um bakk-
ann, ýmist fram á blábrúnina og stund-
um nokkuð frá. Það marraði í vöðvun-
um á þeim, og andardrátturinn varð
smátt og smátt þyngri og erfiðari, eins
og þeir væru í þann veginn að springa
af mæði; en þeir töluðu ekki orð — það
var dauðaþögn.
Sigríður hafði hlaupið spölkorn frá
þegar viðureign þeirra byrjaði, og þar
stóð hún nú og horfði á þennan ískyggi-
lega leik. Hún vildi sjá hvernig þetta
færi á endanum. Hún þóttist annað
veifið viss um, að Albert mundi bera
sigurinn úr býtum, því hún tók eftir
því, að Páll var að verða yfirkominn af
mæði, þó liann væri auðsjáanlega mikið
sterkari. En alt í einu sá hún, að þeir
bárust fremst fram á bakann, og út af
brúninni steyptust þeir niður — niður í
æðandi öldurnar. Þá fyrst sleptu þeir
tökum hver á öðrum, og hvor um sig
hugsaði nú eingöngu um að bjarga lífi
sinu og ná í bakkann. Albert var dável
syndur, og náði þvi strax í bakkaun og
komst upp; og svo hljóp hann níJRn hjá
Sigríði, eins hart oghann mögulega gat,
í áttina til borgarinnar.
Rétt í því að Sigríður ætlaði að
hlaupa til næstu húsa í því skyni að fá
hjálp til að bjarga Páli, sá hún tvo
menn á bát koma norðan með landi;
þeir gættu strax að honum, náðu í
hann, báru hann síðan uppá bakkann
og lífguðu hann við, því hann var kom-
inn fast að því að drukkna. Svo fór
Sigriður heim til sín og bjó sig til að
fara daginn eftir austur yfir fjöllin, og
hún hróðaði happi yfir því að hafa i
tíma getað komizt að því hvaða mann
Albert hafði að geyma, og óskaði af
öllu hjarta að hún þyrfti aldrei að verða
á vegí hans framar. — Ósk hennar
rættist.
III,
Daginn eftir viðureign þeirra Páls
og Alberts sat Kristín ein í hrörlega
húsinu afskekta, studdi hönd undir
kinn og horfði út í bláinn. Kæruleysis-
svipurinn var horfinn af andliti hennar,
og nú lýsti það engu öðru en algerðu
ráðaleysi og örvænting. Hún þóttist
alveg viss um að Albert væri farinn frá
henni fyrir fult og alt, af því hann hafði
ekki komið heim um nóttina, og þó
hún vissi vel, að betra var fyrir hana
að vera laus við hann, þá fann hún til
saknaðar, og söknuðurinn blandaðist
svo ofboðslegri afbrýðissemi, þvi hún
þóttist vita að hann hefði yfirgefið hana
til að geta því betur notið ástar annar-
ar, og sú hugsun varð henni alveg ó-
bærileg. Svo fór hún að hugsa upp
ýms ráð til að geta þá að minnsta kosti
hefnt sín á honum með einliverju móti,
en alt ráðabrugg hennar varð af sjálfu
sér að engu, þvi hún fann að lokum, að
hún gat ekki neitt—hún var peninga-
laus og allslaus. Og þegar hún var að
hug»a um þetta, voru dyraar á húsinu
hennar opnaðar opnaðar ofur hægt og
maður gekk inn á gólfið—og það var
maðurign hennar, hann Páll. Hún
þekti hann strax, þó hann væri nokkuð
torkennilegur, og henni varð bylt við i
fyrstu. Til livers var liann þangað
kominn? Ætlaði hann kanske að gora
henni eitthvert mein—draga hana fyrir
lög og dóm? Nei, hún hugsaði til þess
að hann var að eðlisfari einstakt góð-
menni, og hún þurfti því ekkert að ótt-
ast. Hann heiísaði henni ekki. Hann
settist bara þegjandi á stól, sem stóð á
miðju gólfi, horfði fyrst á hina fátæk-
legu muni, sem voru i húsinu, og svo á
Kristínu sjálfa, og honum rann til
rifja að sjá hversu aumingjaleg hún var
nú oröin.
Hann fór svo formálalaust að segja
henni með mestu hægð til hvers hann
hefði komið vestur, og svo sagði hann
henni frá því öflu, sem fyrir hann hefði
komið þar i borginni, og síðan bauð
hann henni að styrkja liana til að kom-
ast burt frá Seattle, livert svo helzt
sem hún vildi fara, að hún gæti upp frá
því verið sem frjáls og óháð, og hann
skyldi aldrei framar verða þrepskjöldur
á vegi hennar. Hún gat í fyrstu engu
svarað, en horfði í gaupnir sér um
stund. Svo leit hún framan í mann
sinn og henni hafði aldiei sýnst hann
eins myndarlegur og karlmannlegur og
nú, en í andliti hans varð hún þó vör
við eitthvað, sem lýsti ógurlegri ein-
beitni og strangleik, sem hún mundi
ekki eftir að hafa séð þar fyrr. Hún í-
hugaði svo nákvæmlega orð hans, *og
liún fann hversu það var göfuglegt og
drengilegt að bjóða þá kosti, sem hann
bauð henni, eftir alt það sem hún hafði
brotið móti honum. Og i huga hennar
kviknaði alt í einu einhver þrá—brenn-
andi þrá—að mega hverfa til hans aftur
og fá tækifæri til að bæta fyrir misgjörð
sína með því að reynast honum góð og
elskuleg kona alt'til æfiloka.
“Æ, geturðu fyrirgefið mér?” sagði
hún loksins.
“Já, ég'fyrirgef þér”, svaraði hann
“Láttu mig þá fara með þér austur
aftur”.
“Já, það máttu gjarnan, en við
skiljum fyrir fult og alt þegar þangað
kemur”.
“Æ, segðu það ekjci ; taktu mig í
fulla sátt við þig aftur, og þú skalt fá
að sjá að ég muni reyna yð bæta fyrir
misgjörðir mínar”.
“Nei, það getur ekki látið sig gera.
Eg hefi afráðið að þú skulir ekki fram-
ar vera konan min, — en ég fyrirgef
þér og vil bæta kjör þín”.
“Þú fyrirgefur mér ekki á annan
hátt, en að taka mig í fulla sátt við þig.
Æ, hrintu mér ekki frá þér !”
Svo stóð hún upp, gekk þangað sem
hann sat, lagði hendurnar um hálsinn á
honum, grúfði andlit sitt upp við barm
hans og grét—grét brennheitum tárum
iðrunar og tvoga.
I fyrstunni ætlaði Páll að ýta henni
frá sér með hægð, en hann gát það ekki
—hafði ekki hj^rta til þess. Þetta var
þó eftir alt saman konan lians, sem að
sönnu hafði brotið á móti honum, en
var nú að biðja hann fyrirgefningar, og
lofaði grátandi að verða honum góð og
elskuleg alt til æfiloka. Var þá rétt af
honum að loka hjarta sínu fyrir henni ?
Var ekki mannlegra að t -''ra hana aftur
í fulla sátt, og það undireins? Jú, hann
fann að það var í alla staði samboðið
veglyndu hjarta. Hann vafði því arma
sína utan um hana, þrýsti henni ástúð-
lega að brjósti sínu og kyssti hana. Og
stór tár féllu niður kinnar hans ofan á
andlit hennar. — Stríðinu var lokið, og
hið göfuga og viðkvæma í manneðlinu
hafði unnið sigur.
Daginn eftir bar hraðlestin þau
austur um Klettafjöllin.
Kristín sat föl, en róleg, við hliðina
á manninum sínum. og hvíldi höfuð sitt
upp við öxlina á honum. Yfir Páli
hvíldi einnig svipur ánægju og rósemi,
en í gegnum þá ánægju og rósemi mátti
sjá mæðu-örin og æfisögu hans ritaða í
fáeinum línum á enninu hans.
ThomaM A. JohttSm
Algengur sjúkdómur.
Læknast til fulls með
AVFD’Q
M I LMi O pnitílln.
SAGA ÖKUMANNSINS.
Ég þjáðist í átta ár af útbrotum. Á
þeim tíma reyndi ég mörg meðöl sem
höfðu fengið orð á sig, en mér batnaði
ekkert við þau. Að lokum var mér ráð-
lagt að reyna Ayer’s Sarsaparilla, og var
mér sagt að ég þyrfti að minsta kosti sex
flöskur og að ég yrði að brúka meðalið
samkvremt forskriftum. Ég lét undan,
keypti sex flöskur og brúkaði úr þremur
þeirra án þess að ég findi til bata. Áður
en ég var búinn úr fjórðu flöskunni,
voru hendurnar á mér orðnar
útbrotalausar
eins og þær voru áður. Vinna mín, sem
er keyrsla. útheimtir oft að ég só úti í
kulda og vosi vetlingalaus, en samt hefir
sjúkdómurinn ekkert gert vart við sig
af nýju.— Thomas A. Jones. Stratford,
Ont.
VIÐRKEND Á HEIMSSÝNIGUNNI.
Ayers Pills hreinsa innj’flin.