Heimskringla


Heimskringla - 31.01.1896, Qupperneq 1

Heimskringla - 31.01.1896, Qupperneq 1
X. ÁR. NR, 5. Heimskringla. WINNIPEG, MAN., 31. JANÚAR 1896. • . Til Prófessors Rasmus B. Anderson, á fimtugasta afmælisdcgi hans 12. Janúar 1896. Það er fagurt stórvirki’ að byggja brú, brú milli vorra’ og horfinna daga ; og það skráir glöð á gullspjald Saga, að þvílíku stórvirki starfaðir þú. Það er fagurt stórvirki’ að byggja brú, brú milli heimsins fjaflægu þjóða, svo hver miðli annari’ af andans gróða; að þvílíku stórvirki starfaðir þú. Það er fagurt vinnáttu’ að byggja brú, brú miili sín og hvers göfugs anda, er nær manni’ á lífsins leið kann standa, og ótal af brúm þeim bygðir þú. í íslenzkum stefjum þér óska’ ég nú, að unaðarsöm megi verða þín ganga um ófarna æfibraut ljósa og langa unz Drottinn til annars heims byggir þér brú. Jón Ólafsson. Madison, Wis.,12. Jan. ‘96 ísland og fólk þess heitir grein eftir Eutii Sch arí'N i.u 1 mánaðarhiaðinu “Chautauquan,” sem gefið er út í Meadvilte í Pennsylvania. í þessari grein er íslendingum mikillega hrósað og landinu sjálfu ekki síður fyr- ir fegurðarsakir. Greinin endar á þessa teið : “Ekkert getur verið yndiSlegra •en að ferðast átta hundruð eða þúsund mílur á h.est’baki umísland. Ferðamað- urinn sér þá þúsundir fjailatoppa Shulda eilífum snjó, og sem meiri eru að fegurð og mikilleik en nokkurn tíma Alpafjöll- in. Hann sér þar óteljandi grúa af hverum og heitum uppsprettum; f jölda af fossum, einn þeirra — Gull-foss—sem neest gengur Níagarafossi að stserð og íegurð; krystaltæra læki og straum- harðar ár; eidhraunaklasa í öilum mynd- um og þakta i mosa, sem á sólríkum Jogi lítur út -etes og fro'ít til að sjá. Dýrðarkóróna alls þessa er svo loftið sjálft, svo tært, aðfjöll í 80 mílna fjar- lægð sýnast fá skref frá manni. Eg hefi hvergi séð skýrari skifting ijóss og skugga en þar, og iitskiftingin er rétt yfirgengiteg. Út úr dimmu djúpinu um- hverfis teygir berghyrna eða fjallsrönd sig út í sólskinið og glóir eins og gulL, en efst skín á snjó- og ístypta krúnuna umkringda af fagurtærum liiminbiám- anum.” I greininni er öllu mögulegu haug- að saman, lýsing landsog veðráttu, eða árstíðanna, húsaskipun, mentamálum og bókmentum, stjórnmálum, sögu Is- lands og frumbygðar, fundi Grænlands og Ameríku m. m. í heild sinni, sem sagt, er hvorttveggja hrósað, landi og þjóð, og yfir höfuð er fráSögnin nokkuð nærri lagi. Það fer heldur að slá út í þegar til stjórnmálanna kemur. Sem vott um það skal þess eins getið, að sam- kvæmtgreininni á landshöfðingi aðstað- festa öll lög frá alþ. nema þau er breyta stjórnarskránni að einhverju leyti, eða nema úr gildi einhver ákvæði hennar. Þau lög ein segir höfundurinn að séu send konungi til staðfestingar. Hanghermi e,ins og þetta eru auðsjá- anlega ekki vísvitandi gerð. en eru því að kenna, að túlkar útlendra ferða- manna eru ekki eins fróðir og skyldi. Þetta sýnir þörf á einhverri stofnun í Reykjavík, þar sem útlendir ferðamenn gætu fengið rétta lýsing af pólitiska á- standinu ekki síður en öðru. Það má virðast að litlu skifti þó vitlaust sé sagt frá öðru eins og þessu, en því að eins geta þó íslendingar fengið sympathy annara þjóða í stjórnarbaráttu sínni, að ástandið $é kunnugteins og það er. Vit- leysa eins og þetta ijafn merku riti og “Chautauquan” er, getur verið skaðleg. M 8 # 0 8 ÍS ® O <3'0*1 I havo prpsrribctl Menlhol Plaster in a ntimher ofcaxesuf numalgic aud rhounmlic pains,«and am vcry ntuch pleased with tho elfects nnd pleasautness of its application.—W, 11. Carpkx- TKR, M.D., Hotel Oxford, Boston. I havo used Menthol Plasters in several cnfies of muscular rheumatism, and fiinl in cvery cnsa thatitgavealmostinstantand permanent relief. —J. 15. AÍOORE M.D., Washlngton, D.C. It Cures Sciatica, liumbatfo, Neu- raltfia, Puiiis in l>ack or Sicle, or any Muscular Pains. Price>I Davis & Lawrenco Co., Ltd, 25c. I Sole Proprietors, Montkeal. Yggdrasill Óðins- liestur. Þessi fyrirlestur um ofangreint efni. eftir Eirík Magnússon, M. A., í Cam- bridge á Englandi, er nú útkominn á ís- lenzku, aukinn og breyttur eftir höfund- inn sjálfan. Vór höfum áður (í Öldinni III.,‘-8., hls. 126) minst á þessa ritgerð. og sleppum því að minnast á hana nú Því í aðalatriðunum er hún sú sama og á enskunni, og víða bókstaflega hin eama. Vér látum því nægja að eegja frá tildrögunum til þess.að ritgerð þessi er til orðin, með höf. eigin orðumífor- málanum f.yrir íslenzku útgáfunni: “Hitgerð sú, er hérbirtist á ístenzku, er til oíðin á þann hátt sem nú skal greina. í fyrirlestrum mínum yfir Völuspá lét ég uppi þá skoðun mína fyr-st, vorið 1894, að Yggdrasill mundi merkja þáð, pem ég hér leiði rök að, að það muni tákna. Þetta þótti nýlnnda, að það orð, er allir sem nokkur kynni höfðu af norrænum goðfræðum ætluðu að vtera nafn á liinum heilaga aski norr- ænnar heiðni, skildi, eftir alt sanian, vera nafn á hesti Oðins, Sleipni = Vind- inum. Þetta var gert að umtalsefni, og voru menn, eins og við mátti búast, í efa hverja þeir skildu trúa, með því, að rök- semdir mínar fyrir þeirri skoðun er ég hafði lýst yfir að eins munnlega, •urðu ekki notaðar sannfæringunni til neíns lárerðanlegs leiðarvísis, meðan þær fóru að eins munn frá munni, Ég dró því atihugasemdir mínir um þetta efni saman í ritgerð, er ég las fyrir málfrteð- ingafélaginn í Cambridge 24. Janúar þ. á...........En hin enska útgáfa fór stutt yfir málið. Síðan hún fór til prentunar hefi ég hugleit tumtalsefni hennar á nýja leik, og gengið enn ná- kvæmar frá rökleiðslunni á miðkafla ritgerðarinnar sér í lagi og á athuga- semdinni um Mima-meið aftan við hana Er þessi íslenzka útgáfa ritlingsins því aukin og breytt.” Það er í hæzta máta fróðlegt rit þetta og sannarlega þess virði, að allir Vestur-íslendingar, sem á annað borð þekkja til norrænnar goðafræði, og það að vændum eru flestir, leggi stund á að eignast það og lesa. ðérstaklega er þessi ritgerð ánægjuleg aflestrar og umhugs- unar fyrir þá, sem kunnugastir eru Edd- unum og unna þeim, sem einu mesta meistaraverki forfeðranna. Guðahug- mynd forn-Norðmanna er mikilfengleg og fögur eins og hún er alment skilin, en fagrari miklu og tilkomumeiri verð- ur hún þó hjá hverjum einum eftir að hann les þessa ritgerð. Og það er hverj- um einum hei.nilt að halda tilgátur og röksemdafærslur höfundarins réttar þangað til einhver kemur fram og hrek- ur þær. -------—-------------— Um kynblendingana í St. Androws og atkvæði þeirra í kosn ingunum er Lögberg að tala í síðasta blaði, Vér ætlum ekki að elta ólar um það atriði, því það hefir ofur litla þýð- ingu, Að eins vildum vér benda á, að Lögbergi gleymdist að telja St. Peters, sem kynblendingastöð, sem þó mun ó- hætt ekki síður en Clandehoye. Það vita allir, sem nokkuð þekkja til í St. Andrews. En svo eru þeir í St. Peters máskó gáfaðri menn en hinir, enda eru þeir góðnm mun nær v(h)isku brunnin- um í Selkirk, og 48 þeirra greiddu líka atkv. með Jónasson, á móti 26, er voru með Baldwinson. Að ekkert sé af kyn- blendingum í West Selkirk eru sannar- leg nýmæli, og mundi margur íslend- ingur, sem þar býr, einlæglega óska að þau nýmæli væri sönn, en það er neyð- in, að þau eru ekki sannari en sumt af því er ritarinn sagði í Nýja Islandi. Hvað snertir atkvæðaskiftinguna i East Selkirk, þá er kunnugra en frá þurfi að segja, að tii hennar eru alveg sérstakar kdngumstæður og eingöngu að kenna aðal-umboðsmanni Baldwin- sonsmeðal enskutaiandi kjósenda. FRÉTTIR. DAGBÓK. FÖSTUDAG 24. JANÚAR. Þær fréttir koma nú frá Konstant- inópel, að Rússar og Tyrkir séu gengnir í sóknar og varnarsamband, —með öðr- um orðum, að Tyrkir séu gengnir á hönd Rússum og orðnir skjólstæðingar þeirra. Sagt er og að Frakkar muni vera með í þessum félagsskap. Samn- ingur um þetta á að vera staðfestur og í honum ákveðið, eins og auðvitaö er, að Tyrkir skuli frá þessum tíma banna herskipum öllum, öðrum en sinum og Rússa, umferð um Hellusund. Enm er ekki alveg víst að fregnin sé sönn og þvi ekki augJjóst hvaða ráð Bretar og aðrir taka tii að ónýta þennan samning. Póstmálaskýrsla Canadastjórnar var lögð fyrir þingið í dag. Eftir henni að dæma eru nú í Canada 8,832 pósthús, — 168 fleiri en í fyrra. Á árinu tóku þessi pósthús til samatis á móti ÍIOJ milj sendibréfa, 241 milj. póstspjalda og 23 milj. fréttablaða og bóka-böggla. Tekjur póstmáladeiklarinnar voru á ár- inu $2.792,782, en gjöldin $3,S93,$47. Tekjuhalli því $790,865. Venezueiamenn bíða með óþreyju eftir tækifæri að herjaá Breta. Þeir telja sér vísan sigurinn sérstaklega ef Bainkiríkixi stauda að haki þeirra. Framfcaldandi fregnir um ósigur upreistarmanua á Cuha, en mögulegt þykir að þær freguir flestar séu tilbúu- ingur Spánverja. LAUGARDAG 25. JAN. Canadastjórn hefir leyft útflutning nautgripa úr vesturríkjum Bandaríkj- anna um St. Joihu’s í New Brunswick. Þykir það benda á að stjórnin hafi enga von með að fá afnumið nautpenings- innflutningsbannið á Englandi. Ilálfan daginn í gær ræddu efrideild- arþingmenn Bandaríkja um Armeníu- málið, útaf tillögu um að skora á stór- veldin að tefja ekki lengur, en hjálpa hinu nauðstadda fólki strax. Tyrkjastjórn bannar hjálparfélag- inu alkunna, er nefnir sig “rauða kross- inn,” að vinna meðal Armeníumanna og útbýta gjafafé. En sem einstakling- um verður foringja félagsins, Miss Bar- ton, og þeim er hún kýs sér tilaðstoðar, leyft að fara um landið og útbýta gjöf- um. I Armeníu er sagt að séu um 1 milj. manna.erekkihafaannaðen gjafa- fó á að lifa yfir veturinn og er nú verið að safna gjöfum hvervetna. í Canada er eitt blaöfélag (The Witness í Mont- real) nýbyrjað að safna gjöfum ; hefir á vikutíma safnað rúmlega $1600.00. Á þjóðþingi Bandaríkja er talað um að verja fjórðungi verðsins, er fæst fyr- ir námaland, til að stofnsetja og við- halda námaskólum. Kol eru sögð fundin í Minnesotaríki norðarlega,—suður af skógavalni, inn- an landeignar Great Northern félagsins. MANIJDAG, 26. JAN. Hveitiverðið heldur áfram að þok- ast upp á við í Chicago og hvervetua eystra. Laust fyrir helgina æddi hræðileg stórhríð yfir Nýfundnaland, hin .versta er þar hefir komið i 25 á". Viðskifti öll oru bönnuð vegna snjóþyngsla og tele- ,;rafþræðir slitnir. Á járnbrautunum /oru sumstaðar 20 feta þykkir skaflar og að sama skapi annarsstaðar. Unglingsmaður fráWinnipeg, John McCullough, liljóp á langardagskvöld- ið á skautum 10 mílur á 33 mínútum og > sekúndum í kapphlaupi í Aíinneapolis. Er það mesta ferð á skautum sem menn þekkja á svo langri leið, Lord Leighton, nafnkunnur mál- ari í Lundúnum og forseti Royal Aca- demísins, lézt í Lundúnum á laugar- dí’ginn, 65 ára g".mall. Stjórn Breta hefir samþykt að leggja í gerð skaðabótamál Canada- manna og brezkra selaveiðamanna i Beringssundi fyrir atvinnurán af hálfu Bandaríkjastjórnar. Það var Banda- ríkjastjórn, sem stakk upp á þessari meðferð málsins og eru því öll vand- ræði liklega yfirstigin í þvi efni. Banda- ríkjastjórn kýs einn nefndarmanninn, Bretar annan og þeir tveir sameigin- lega þann þriðja. Keisari Þýzkalands lætur sér nú um stundir um engnn hlut eins ant eins og að fá |komið upp stórum sjóflota. Viil nú fá $75 milj. veittar til þess, auk þeirrar upphæðar. sem fjármálastjórinn hefir ákveðið. ÞRIÐJUDAG, 28. JAN. Gjsldaáætlun Canádastjórnar fyrir næsta fjárhagsár (1. Júlí 1996tilfi0. Júní 1897) var lögð fyrir Dominionþing- ið í gær. Sýnir hún að alls yfir þarf stjórnin $11,230,681.37, en það er $170, 242 minna en í fyrra var áætlað alls yf‘ ir fyrir yfirstandandi fjárhagsár. 'fillagan um að skora á stórveldin að hjálpa Armeníumönnum og sem veit ir Cteveland forseta takmarkalitla heim- iid til að hjáipa stórveldunum í því efni, var í gær samþykt f neðri deild þjóð- þings með 113 gegn 26 atkvæðum. í Evrópu að minsta kosti þykja nú líkur til að Bandaríkjamenn og Bretar sam eini sig, en hvort af því getur orðið, ef sönner fregnúi um samning Rússa og Tyrkja, er efasamiara, þegar athugað er v'nfengi á yfirbordinu milli þeirra RúsSa og Bandaríkjamanna. Það er enn ekki víst hvort sönn er fregnin um samning Rússa og Tyrkja, en ekki þykir ósennilegt að iiún sé sönn En nú er fullyrt að enginn skriflegur samningur eigi sér stað, en að eins munnlegur. er háðar stjórnirnar muni gera sér að skyldu að halda leyndum á meðan kostur er. Ðominionþings-aukskosningar fóru fram í Charlevoix-kjördæmi í Quebec- fylki í gær og unnu ‘Liberals’ Jmeð eitt- hvað um 200 atkv. mun. Úrslitin eru lík og við síðustu almennar kosningar. Héraðsmenn kusu ‘Liberal’ þá. en svo sveik hann þá stuttu síðar og gekk í lið stj'órnarsinna. 56 menn bíðu bana við kolanámu- slys í Wales á Englandi í gær. MIÐVIKUDAG, 29. JAN. Skip lagði út frá New York með raenn og vopn til hjálpar Cubamönnum á sunnndagskvöldiö var, en strandaði skamt fyrir utan höfnina og drukkn- uðu þar 10 menn. Sagt er að Cubamenn hafi orðið undir aftur í orustu á mánudaginn; að margt hafi fallið af mönnum þeirra og þeir tapað all-miklu af vopnum. Einu sinnl enn er fullyrt að Duluth Winnipeg-járnbrautin verði bygð alla leið á komandi sumri. Það eru góðar fréttir, en þó er sá galli á, að C. P. R. félagið verður eigandinn. Sir Joseph Barnbý, nafnfrægt tón- skáld, lézt í Lundúnum í gær, 58 ára gamall. FIMTUDAG, 30. JAN. Bandaríkjastjórn hefir í huga að láta smíða 6 brynskip til, er hvert kosti um eða yfir $3 milj. Það er sagt að Rússar einir hafi leyfi til að stilla til friðar í Armeníu, samkvæmt samningi Rússa og Tyrkja. Só svo er Armenia gengin úr greipum Tyrkja, eða svo gott. Neyð mikil er sagt að eigi sér stað á Nýfundnalandi, sem harðviðri óvana- leg auka enn meir. IilNN DEYJANDI UXI. [Eins og mörgum er kunnugt, eru uxar margir notaðir tilfiskidi áttar norð- an af Winnippgw.tm til Selkirk á vetr- um. Margir, hklega tiestir, fara vel með skepnurnar í þeim ertiðu ferðura, en þó slæðast þeir ííieð sem ekki virð- ast hafaallra minstu tilfinningu fyrir þreytu og þjáningum skepnanna, en píska þær áfram þangað til þær faila. Eftirfylgjandi erindi eru ort í tilefni af einu slíku tilfelli.] Hví daprast mér sjónin' ég sé þig nú ei, Sálarlaus húsbóndi minn ? Hér örmagna ligg ég unz loks að ég dey Því lífskraftinn þverra ég finn. Með blóðstorknum augum, ég bað þig urn vægð; Þú barðir mig ákafast, þá. Þínu fólskunnar æði og fúlmensku gnægð, Þú freklega kenna munt á. Heldur þú mig vera stálharðan stein, Sem stöðvast ei meitillinn á ? Nei, ég er lifandi vera með blóð, hold og bein, Sem hugast og fell svo í dá. A, J. Sk.'-GI’eld, # # # # # # # # # # $ \ \ # # \ \ # # \ # Agætar Premiur! \ # Kaupið og borgið Heimskringlu ! Tilboð sem þið getið ekki gengið framhjá ! Nyir kaupendur fá HeIMSKRIXOLU Og ÖLDINA þetta ár, 1896—1897, ásamt Öld- inni frá byrjun (þrjá árganga, 480 stórar blaðsíður), sem inniheldur allar sögur herlæknisins, eftir Zakarias Topelius, ásamt mörgum fróðlegum ritgerðum, fyrir að eins fj’rirfram borgað. # # # # Allir kaupendur, sem hafa borgað blaðið eða borga það nú upp að 1. Jan. 1896, eða senda oss minst $2.00 upþ f gamlar skuldir, ef stærri eru, geta fengið eina eða fleiri af bókum þeim, sem hór eru taldar, með því að senda oss, auk horgunar fyrir blaðið, upphæð þá, sem stend- ur aftan við þá bók eða bækur, sem þeir velja sér : “Peoples Atlas,” landakort með allskonar fróðleik um löndin, 124 bls. 20 c. “Pictures ofall Countries,” með skýringum yfir hverja mynd, 256 bls. 20 c. “United States History,” með myndum 607 bls. 15 c. “Standard Cook Book,” 320 bls..............)0c. “Gems. of Poets,” 200 bls..................15 c. “Ladies Home Companion,” mánaðarblað, 24 gríðarstórar bls. í hvert skifti, 50 c. um árið.. Allar þessar bækqr eru [iess vel virði, að þær séu á hverju heimili, og verðið er sett svo lágt að engan munar — að eins fyrir burðar- gjald og fyrirhöfn. Sérstaklega er Peoples Atlas nauðsynleg bók, og Pictures of all Countries er einkar skenuileg bók. Ladies Home Companion er mjög vandað og stórt mánaðarblað, 24 blshvert hefti vanaverð $1.00 um árið Það er ómissandi hlað fyrir aJt kvenfólk sem vill fj'lgja með timanum í öllu sem til heimilis og klæðnaðar heyrir. — Allar þessar baskur eru til sýnis á skrifstofu blaðsins. Tíoiu com Lnrrra n vi eða hafa þegar borgað þennan l-'Cli oCIli UUIgít IIU nýbyrjaða (10.) árgang Heims- kringlu,—eða þeir sem borga upp gamlar skuldir sinar og fyrirfram fyrir þennan árgang. — eða þeir sem gerast nýir kaupendur og horga fyrirfram, fá allir hinar ofangreindu bækur með þeim skil- yrðum, sem sagt hefir verið, og að auki endurgjaldslaust söguna Mikctel Strogoff, innfesta í kápu, þegar hún er komin út, sem verður um miðjan Febrúar. Saga þessi, sem er að koma út í dálkum Heimskringlu, er eins og mörgum er kunnugt, eftir hinn alkunna skáldsagnahöf- und Jules Verne, og er ein af þeim beztu sögum, sem í íslenzku blaði hefir birtst. Bókin verður um hdlft fjórða hundrað Maðsíður að stærð, og verður send til allra, sem hafa áunnið sór tilkall til hennar, þegar hún er komin út, þeim að kostnaðarlausu. Tílboð þettil stendur meðan upplag sögunnar endist, þó ekki lengur en til 31. Marz næstkomandi. Auglýst verður í blaðinu ef upplagið þrýtur fyrir þann tíma. Sendið gjöld yðar og pantanir sem fyrst, áður en upplagið af sögunni er útgengið. Vér höldum lista yfir alla, sein borga og ávinna sér tilkall til sögnnnar, og verða pantanir afgreiddar í þeirri röð, sem þær koma fyrir á listanum. Ensku bækurnar fá kaupendur 2—3 vikum eftir að þeir liafa sent borgunina. c/ i / / r//IM /Jr Engin blöð af þessum árgangi verða • s«nd til íslands, nema kaupendur þeirra borgi allar eldri skuldir og fvrirfrain fyrir þennan árgang. Borg:- anir þurfa að vera komnar til vor fyrir 15. Febrúar, frá öllum þeim Sem ætlast til að blaðið verði sent lieim með næstu ferð. Verð blaðsins heimsent er $1.00 fyrir þá sem einnig kaupa blaðið sjálfir, en $1.50 fyrir þá, sem að eins kaup það til heimsend- ingar. The Heimskringia Prtg. & Publ. Co. # # # # # \ \ # # # # \ # # HLUTIR sem ern í sjálfu sér vandaðir og aldrei breytast nema til batnaðar, verða óbjákvæmilega viðurkendir að lokum. Þetta er ástæðan fyrir að selst svo mikið af E. B. EBÖY’S Eldspytum.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.