Heimskringla - 28.02.1896, Qupperneq 2
HEIMSKRINGLA 28. FEBRÚAR 1896.
Heimskringla
PUBLISHED BY
The Heimskringla Prtg. & Pnbl. Co.
•• ••
Verð blaðsins í Canda og Bandar.:
$2 um árið [lyrirfram borgað]
Sent til íslands [fyrirfaam borgað
af kaupendum bl. hér] $ 1.
••••
Uppsögn ógild að lögum nema
kaupandi sé skuldlaus við blaðið.
• •••
Peningar sendist i P. 0. Money
Order, Registered Letter eða Ex-
press Money Order. Bankaávis-
anir á aðra banka en i Winnipeg
að eins teknar með afföllum.
• • ••
EGGERTJOHANNSSON
EDITOR.
EINAR OLAFSSON
BUSINESS MANAOER.
• • ••
Office :
Corner Ross Ave & Nena Str.
P. O. Kox 305.
Sir Chaiies Tupper
á ekki upp á pallborðið hjá ‘Liberölum’
um þessar mundir. Peim hefir aldrei
verið vel við hann, en aldrei hefir þeim
J>ó verið ver við komu hans og afskifti
af pólitiskum málum heldur en einmitt
nú. Þó gamli McKenzie Bowell sé dug-
legur maður og mikill fyrir sér, þá er
hann langt frá þvi að vera heppilega
kjörinn leiðtogi flokksins, ekki sízt eins
og nú stendur á, þegar lempni er nauð-
synlegri miklu en stífni ogstóryrði. Það
var líka ekki sem vænlegast útlitið þeg-
ar Sir Sharles Tupper fyrir ítrekaðar á-
skoranir gerðist meðlimur ráðaneytis-
ins. Ráðleysi Bowells að halda meðráð-
endum sínum einhuga, féll “liberölum”
vel í geð. Þeir fögnuðu yfir fregnum
öllum um sundurlyndi og margfölduðu
þær í meðferðinni. Héldist ástandið
þannig til kosninga, var miklu meiri
von til en ella, að þeir næðu fleirtölu at-
kvæðanna og svo völdunum. En sú
von dofnaði að mun, er Sir Charles kom
til sögunnar. Hann var ekki fyr geng-
inn í ráðaneytið, en sameining og friður
rikti þar á ný. Þó hann hafi enn þá
-eitt tilkomuminsta embættið, er hann
vitanlega maðurinn, sem mestu ræður.
Að frádregnum Foster ber hann ægis-
hjálm yfir öllum hinum, yfir öllum nú-
lifandi mönnum í Canada, og hlýtur
því að vera ráðahæztur, þó hann um
tíma skipi sæti á hinum óæðri bekk í
ráðaneytinu. Það brá líka svo við komu
hans, að undir eins færðist nýtt líf í
oonservative-sinnendur um þvert og
endilangt ríkið. Þetta alt sáu “liberal-
ar,” sáu vonir sínar verða að engu og
þeim eðlilega súrnaði sjáldur í augum.
En þeir gátu ekkert að gert nema ó-
frægja Sir Charles, og það hafa þeir
heldur ekki sparað. Hvernig sem hann
hefir snúið sér, hefir sívaxandi skamma-
hríð dunið á honum. Þegar ekki hefir
verið til neinn blendingur af sannleika
til að strá yfir lygasamsuðuna, hefir lýg-
in óblandin verið látin ganga og ekki í
neinum smáskömtum heldur. Alt þetta
tekur Sir Charles með ró. Hann veit að
óblandin lýgi skaðar hann ekki, og hann
veit að með tímanum greiðist svo úr
flækjunni, þar sem blandað er saman
sannleika og lygi, að augsýnilegt verður
hvað er sannleikur og hvað ekki,
Einn af þessum lygablendingum
var þess efnis, að þegar sóknin í Cape
Breton stóð yhr, hafi hann fengið ka-
þólskan byskup á skaganum, Cameron
að nafni, til að skrifa skipun til ka-
þólskra kjósenda um að “duga” nú Sir
Charles. Partar úr þessu bréfi Came-
rons voru prentaðir. en ekki nema brot
úr þvi. Það sýndi samt að bréfið hlaut
að hafa verið til, að blöðin hefðu ekki
þorað að búa til kafla úr bréfi og til-
einka honum. En hvernig á bréfinu
stóð, það var nokkuð sem enginn vissi,
—í bráðina. En nú er sá galdur auð-
skilinn. Tækifærið til að rannsaka mál-
iö gafst ekki fyrri en kosningahitinn var
rénaður, en þá var það líka gripið. Og
nú er uppvís: orðið að þannig er bréf
þetta til komið : Lögfræðingur einn í
flokki Lauriers á Cape Breton skaga
skrifaði byskupinum rétt um það leyti
er kosningasóknin var hafin og æskti
eftir að hann í prívat bréfi segði sér sitt
einlægt álit á skólamálinu í Manitoba
og umbótalögunum fyrirhuguðu. Bysk-
upinn var kunnugur lögfræðingnum og
datt ekki í hug að nokkur svik byggju
undir og skrifaði honum þvi í einlægni
álit sitt, eins og æskt var eftir. Lög-
fræðingurinu fékk þegar bréfið.gaf mál-
gagni síns flokks í Halifax kafla ur þvi
til prentunar og lét telegrafera innihald
þeirra kafla til allra blaða um þvert og
endilangt landið og fylgdi sú skýring,
að þetta væri útdráttur úr leynilegri
skipun, sem byskupinn hefði sent kjós-
endum sínum, og væri gott sýnishorn
af hernaðaraðferð Sir Charles Tuppers.
Þannig stendur á þessu bréfi, sem svo
mikið númer hefir verið gert úr. Bysk-
upinn var narraður til að gefa óhlut-
vöndum fylgismanni Lauriers álit sitt í
prívatbréfi, það prívatbróf síðan opin-
berað, eða þeir kafiar úr því, sem mergj-
aðastir voru, og því svo umhverft í skip-
un til kjósendanna. Hér er sýnishorn
af pólitiskri hernaðaraðferð "liberala.”
En "upp koma svik nm síðir,” og þegar
þessi og önnur eins æruleysisbrögð
verða uppvís, þá verða þau flokknum
sem viðhefur þau meira til tjóns en á-
bata. Þessi uppljóstrun og aðrar því-
líkar, sýna líka á hvað góðum rökum,
eða hitt þó heldur, að eru bygðar megin-
hlutinn af kærunum, sem bornar eru á
Sir Charles Tupper og flokksbræður
hans.
Blaðið “Free Press” hér í bænum er
máske ekki eins ótvilugt fylgisðlað
Greenways eins og Lögberg, en samt
dylst engum, að það fylgir honum. Og
án þess í nokkru að gera lítið úr þekk-
ingu Lögbergs á Sir Charles Tupper,
leyfum vér oss að halda fram, að það sé
ekkert síður að marka álit Free Fress
á honum, heldur en álit Lögbergs, og
þetta álit Free Prees er á þessa leið
(Sjá F. P„ 24. Febr. 1896):
"En Sir Charles er nokkuð meira
en flokksmaður. Hann er nafnfrægur
canadiskur borgari, sem með hæfileik-
um sínum hefir getið sér orðstýr engu
takmarka minni, en brezka veldið sjálft
er. Hann er einn hinna frægustu cana-
diskra stjórnmálamanna frá dögum
sambandsins [hér er átt við hluttöku
hans í að mynda hið sameinaða Canada-
ríki], og það er ekki að gera lítið úr
öðrum canadiskum stjórnfræðingum,
þó sagt só, að í tilliti til allsherjarmála
veldisins, gnæfi hann yfir þá alla. Það
er búizt við að innan fárra vikna taki
hann við formensku Canadastjórnar og
það er ekkert leyndarmál. að hann er
kominn í opinbera stöðu á ný í þeim til-
gangi, að taka við formenskunni, ef
ekki að nafninu, þá í virkileikanum.
Andvígismenn hans ausa hann nú þeim
skömmum, að vér höfum ekki séð ann-
an sorglegri vott um óvönduð meðöl,
eða póiitiskt siðferði hér í Canada. En
það dregur alls ekki úr þeim sannleika,
að hann er einn vorra lang-mikilhæf-
ustu stjórnmálamanna”.
Þetta er kafli úr ritstjórnargrein,
þar sem mælt er með að bæjarstjórnin
fagni honum sem nafnfrægum heiðurs-
gesti og gefi þanníg ,'öllum tækifæri til
að heilsa þessum manni, sem hafi varið
30 beztu árum æfi sinnar í þjónustu Ca-
nada, og sem hafi gert meira en nokkur
annar maður til að útbreiða frægð Vest-
urlandsins og fá það bygt.
S tj órnar-þj ónusta.
Þeir eru farnir að viðurkenna það
hver um annan þveran merkismenn
Bandaríkja, að umbætur séu bráðnauð-
synlegar að því er snertir stjórnarþjón-
ustu eða “Civil service.” Eins og nú
stendur rnega flestir skrifstofuþjónar
og þjónar hins opinbera yfir höfuð ótt-
ast burtrekstur þegar stjórnarskifti
verða. Það út af fyrir sig er ilt fyrir
þjóðina, ekki síður en það er ranglátt
gegn mönnunum sjálfum. Þó þykir
tjón þjóðarinnar tilfinnanlegast þegar
kemur til konsúla þjóðarinnar og ráð-
herra hennar í útlöndum. Hvorttveggja
þetta hefir Cleveland forseti lagt stund
á að umbæta og ef með sanngirni er
dæmt um þau störf hans, verður ekki
annað sagten að honum hafi orðið furðu
mikið ágengt, bundinn eins og hann er
sínum stjórnmálaflokk, er frekjulega
gengur eftir öllum molum af nægtaborði
þjóðarinnar.
í grein “Um forsetastöðuna,” sem
fyrverandi forseti Benjamín Harrison
skrifar í Blaðinu “Ladies Home Journ-
al,” fer hann allmörgum orðum um
þetta vandræðamál og hrósar Cleveland
afdráttarlaust fyrir aðgerðir hans í þvi.
Sérstaka áherzlu leggur hann þó á það
hve nauðsynlegar séu umbætur í þessu
efni að því er snerti erindreka þjóðar-
innar í útlöndum. Á meðan umbúnað-
urinn sé eins og hann er nú, sé ómögu-
legt fyrir lýðveldið að fá eins leikna og
æfða fulltrúa eins og þörf sé á, því eins
og nú sé segi mennirnir annaðtveggja af
sér eða þeim sé vikið frá, einmitt þegar
þeir séu fyrst farnir að læra og skilja
hvernig þeir geti bezt leyst sitt sérstaka
starf af hendi. Til samanburðar bendir
hann á fulltrúa annara þjóða i Banda-
ríkjunum, og farast orð á þessa leið :
“Menn hafa oft veitt því eftirtekt,
að þó heimastjórnin byltist, einkum á
Englandi og Frakklandi, verður engin
breyting á ráðherrum og erindrekum
þeirra þjóða í útlöndum. Ráðherra
Breta í Washington, t. d., heldur stöð-
ugt áfram hvaða flokkur sem situr í
völdum á Englandi. Hann er sem sé
fulltrúi þjóðarinnar, en ekki flokkanna,
sem í það og það skiftið halda stjórn-
taumunum, og hlýðir í öhu boðum og
skipunum heimastjórnarinnar. Hann
lætur sér heldur aldrei verða það á að
flytja ræðu og ávíta gerðir eins eða ann-
ars stjórnmálaflokksins.”
Það er álit hans, að þrátt fyrir alla
löggjöf um það efni, verði ómögulegt að
fá saman viðvarandi erindreka flokka i
Bandaríkjunum fyrri en mönnum lærist
að skilja eftir heima allan flokksmála-
krit. Eins og nú sé, sé flokksfylgið svo
ríkjandi hjá konsúlum Bandaríkja, að
þeir geti ekki hulið sína eigin skoðun í
verzlunarskýrslum annara þjóða, sem
þeir senda stjórn sinni. Þar gægist
hvervetna fram þeirra eigin skoðun á
tollmálum sérstaklega. Á meðan svo sé
álitur hann æfðan, viðvarandi erind-
rekaflokk ómögulegan.
Nýjasta myndagerðin.
Ætíðsíðan Daguerre* fyrir 57 árum
síðan uppgötvaði ráð til að taka ljós-
myndir, hefir myndagerð verið tilkomu-
mikið starfsvið visindamanna. enda hef-
ir þeirri list fleygt áfram, ár frá ári. Má
í því sambandi minna á rafmagnsvél
Edisons, sem framleiðir myndir af mönn-
um á hreyfingu og með réttum lit. Þær
myndir, verði þær nokkurn tima al-
mennar, verða fremur til skemtunar en
gagns, á sama hátt og fónografin er
aðal-lega til skemtunar, enn þá að
minnsta kosti. En markverðar eins og
uppfindingarnar í sambandi við mynda-
gerðina hafa verið á síðustu tímum, eru
þær samt dvergvraxnar í samanburði við
up]>finding professors Röntgen, háskóla-
kennara í WurtzburgíBavariu ásuður-
Þýzkalandi.
Það er ekki nema rúmur mánuður
síðan fréttafleygirinn sendi þann kynja-
boðskap um heim allan að professor
Röntgen væri búinn að finna ráð til
að taka myndir af ósýnilegum hlutum,
af hlutum, sem huldir væru bak við tré
eða ógagnsæja hluti. Fyrstu nokkra
dagana tóku menn fálega undir þessar
fréttir, sem yel mátti ætla að Jules
Yerne eða H. Rider Haggard hefðu sett
saman þegar vel lá á þeim. En það leið
ekki langur tími þangað til menn máttu
til með að trúa, að hér væri eitthvað
meira en um orðin tóm að ræða. Og
samstundis tóku allir rafmagnsfræðing-
ar til starfa, hver í sinní vinnustofu, og
gerðu tilraunir að gera samskonar
myndir og jafnframt aðuppgötva hvern
ig því væri varið, að rafmagns-geislinn
gæti gengið gegn um bæði hold of tré,
o. fl., og sýnt það sem innra er falið.
Uppfinding þessi, sem prof. Rönt-
gen fann eiginlega fyrir tilviljun, er í
fáum orðum sagt sú, að rafmagni eða
rafmagnsgeisla er beint eftir hólk eða
pípu, úr gleri, á þann hlut. ósýnilegan í
hulstri sínu, sem á að taka myndina af.
Gengur þá geisli þessi gegnum þann
hlut sem fyrir er og framleiðir mynd af
hinum efnisþjéttari hlutum inDÍfyrir,
Þannig má taka mynd og hana ná-
kvæma af beinum öllum í líkama manns
eða dýra, af málmpeningum í peninga
buddum, verkfærum úr málmi í leður
hylkjum. o. s. fr>'. Geislar þessir ganga
ekki nema laklega gegn um málmteg-
undir og allsekkisémálmurinn þykkur,
t>ó eru menn nú, einkum Edison, að
þreyta við að gera það, en gengur tregt
enn, á raeðan hvorki uppfinnarinn eða
aðrir vita hvaða tegund af rafmagni
það er, sem þessu veldur, Það er enn
sem komið er óþekkt efni og er þess
vegna hér í landi alment cefnt “ Rönt-
gens-geisli.“ En sjálfur kallar Prof.
Röntgen það X—geisla og myndagerð
þessaX-igraphy, af því hann veit ekki
Jivaða afl það er, sem þetta verkar;
sér að eins atíeiðingarnar af verkunum
þess.
Sem nærri má geta, þegar allir sem
*) Louis Jacques Mande Daguerre,
franskur maður, fann fyrstur manna
ráð til að taka ljósmyndir árið 1839, og
veitd stjórn Frakka honum æfilöng árs-
laun fyrir. Hann var fæddur 1789.
Dó 1851.
nokkuð þykjast inn í rafmagnsfræði eru
að spreita sig við þessa makalausu upp-
findingu, að gera tilraunir við þessa
myndagerð og tilraunir að fullkomna
uppfindinguna, þá er margt sagt áhrær-
andi nýjar upygötvanir í því sambandi.
En óvist er enn hvert trúnað má leggja
á allar slikar sögur. Þannig eru menn
komnir fram nú þegar sem segja óþarft
að viðhafa nokkra pípu til að beina
x-geislanum braut. Jafnframt má geta
þess, að Edison segir hulstur eitthvert
nauðsynlegt og það með, að sé annað
tveggja of mikið loft dregið úr pípunni,
eða ofmikið af þvi eftir skilið, neyti
geislinn sín ekki eins og hann annars
gerir. En svo segir Edison jafnframt
að engin þörf sé á þeim sérstöku
pipum, sem allflestir brúka enn. í þeirra
stað hefir Edison aðeins almenn raf-
magnsljósa hulstur, en með sérstökum
útbúnaði. A þann hátt hefir hann tekið
myndir allskonar og enda gegnum
málmskífur af ýmsum tegundum, og
hefir honum tekist að láta geislann
brjótast gegnum 6 þuml. þykka stál-
plötu. Er sú við bót við frum-uppfind-
inguna, útaf fyrir sig mikils virði, því
þá má við þessa geisla skoða hvernig
járnsmíði er af hendi leyst. Þó yfirborð
hlutarins sé heilt geta verið bæði vind-
bólur og feirur innifyrir, sem gera hlut-
inn ótraustann. Takist Edison að beita
geislanum gegnum þykkar járn og stál-
plötur má koma í veg fyrir varningsvik
á þennan hátt. Til þessa hefir ekki
verið hægt að taka augnabliksmyndir á
þennan hátt, eins og almennar ljós-
myndir eru teknar nú orðið. Itrekaða
geislahríð hefir þurft að senda um píp-
una og 10 mínútur hafa gengið til að fá
myndina gerða. En nú segir frétt frá
Toronto, að þar hafi á háskólanum tek-
ist að framleiða glögga mynd af málm-
peningi gegnum 6faldan svartan.þykkan
pappír^ með einu einasta geisla-kasti.
Þannig mætti tilgreina ótal tilraunir,
sem gerðar eru á flest öllum menta-
stofnum í landinu og sem allar miða
til að fullkomna þessa uppfinding á
einn eða annan hátt.
Það þykir nú ekki lengur neinn gald-
ur að taka nákvæma mynd af beinun-
um í líkama manns. Það gerir nú
liver maður, sem hefir áhöldin til þess,
og það svo greinilega að sýndar eru
sprungur i beinunum, þar sem þau hafa
brostið, en ekki algerlega brotnað.
Högl hafa verið fundnin í fót-
leggjum og handleggjum, en sem lækn-
arnir áður gátu ekki fundið. Og nú
nýlega fannst fín saumnál í fætinum á
gamalli konu í Montreall Konan hafði
lengi þjáðst af verk í fætinum, sem
orsakaðist af því saumnál hafði stungist
í hann og sokkið á kaf. Læknar höfðu
gert tilraun oftar en einu sinni að finna
nálina, en tókst ekki, en er mynd var
tekin af beinunum í fætinum sást glögt
hvar nálin var. lnnan stundar var
skinnspretta gerð, nálinni náð og sam-
stundis var þjáningunum eytt fyrir fult
og alt. Beinbrot eru stundumill viður-
eignar, enda margur maður, sem missir
ýmist hönd eða fót fyrir það, sem virðast
mætti einfalt beinbrot, eða trassaskap
lækna, eða hvorttveggja. Þessi mynda-
gerð eflaust kemur í veg fyrir slíkan
beinamissif í mörgum tilfellum. Því
til sönnunar er þess getið, að maður
einn í Montreal braut mjaðmarbein sitt
fyrir fleiri mánuðum síðan og hefir hann
síðan verið á sjúkrahúsinu og hvernig
sem læknarnir hafa þreytt við hann
hefir beinið ekki fengist til að brisa
saman. Yið eina þessa X-igraph tilraun
í vinnustofu háskólans var hann færður
þangað of skýr mynd tekin af mjaðmar-
beininu, sem þegar sýndi hvað ábóta-
vant var í læknisaðferðinni. Að þeirri
leiðréttingu fenginni eru allar líkur til
að beinið vaxi sáman ogmaðurinn verði
ófatlaður, en sem lítil von var til áður.
I lækna blaðinu “Medical News“ í New
York, sem út kom 15. þ. m. segja 2
merkir kennarar í læknisfræði þá reynslu
sinni í þessu efni. Meðal annars segja
þeir frá að í mannslíkömum hafi þeir
með hjálp þessara mynda fundið: 2
högl og glerbrot i hendi á manui, eir-
skilding í þörmum annars manns, brot
af ritblýi og gallstein í þeim þriðja, 6
títuprjóna í lifrinni á einum, og brot af
pennahnífsblaði í lungunum á einum.
Þetta er nægilegt til að sýna hve mikið,
hve ómetanlega mikið, gagn að læknis-
fræðin hlýtur að hafa af þessari upp-
findingu með tíð og tíma. Þeir sem
viljandi eða óviljanði eru skotnir, líða
oft lítt bærilegar þjáningar þegar lækn-
arnir hvað eftir annað eru að kanna
sárin og leita að kúlunni. Það eru
miklar likur til að allar slíkar þjáningar
séu að miklu leyti yfir bugaðar með
þessari myndagerð, því kúluna má æfin-
lega sjá, ef ekki hvað á að gera við sár-
ið. Ef til vil má og á þann veg frelsa
margra manna líf, þar er tækifæri gefst
að finna kúluna og ná henni áður en
hún íær tækifæri til að eitra blóðið.
Þó þykir þessari uppfindingu ábóta-
vant, þar sem ekki er hægt að sýna
glögga mynd af nema hinum efnis
þéttustu hlutum líkamans. Það sem
menn þess vegna eru nú að þreyta við.
er,að fá X-geisla þennan til að framleiða
glögga mynd af heilanum, lungum, lifur
og öðrum innýflum, svo sjá megi hvað
að gengur þegar maðurinn er veikur.
Viðþettaer Edison nú að þreyta, að
framleiða glögga mynd af heilanum, er
jafnframt sýni sem mest af innra bún-
ingi eyrans, svo auðveldara verði að
gera við heyrnardeyfð og öllum eyrna-
sjúkdómum. Svo kunnugt sé hefir hon-
um ekki enn tekist að framleiða mynd
af heilanum, svo, að hann sé ánægður
með. Þess vegna er tæpast leggjandi
tninaður á þó þær sögur berist úr öllum
áttum, að fengnar séu myndir af heila
mannsins. Sjái Edison ekki ráð til að
gera gagnlega mynd af heilanum, er
ekki að jbúast við að aðrir geri það,
nema þá fyrir hreina og beina tilviljun.
Nú uppá siðkastið eru öll blöð í
landinu full af frásögnum um tilraunir
þessa og hins og getgátur þessa og hins
um það, hvaða ókunnuga afl það er,
sem framleiðir þessar myndir af ósýni-
legum hlutum. En greinilegasta frá-
sögnin og lýsing uppfindingarinnar,
sem enn er kominn, er sú í Open Court«
er út kom 6. Febr. síðastl. Það blað
fylgir tímanum í mörgu, ef ekki öllu,
sem að vísindum lýtur, og af því það
kemur út í hverri viku, verður það oft
langt á undan hinum stóru tíma ritum.
Og svo er í þessu efni. En í næsta út-
gáfu tímaritanna stóru má búast við
meir en litlu safni af ritgerðum um þessa
mikilvægu uppfindingu.
Uppfinnarinn, Wilhelm Konrad
Röntgen, er fimtugur að aldri, fæddur
í Hollandi árið 1845. Hann stundaði
háskólanám á háskólanum í Zurich og
útskrifaðist þaðan 25 ára gamafl. Árið
1873 var hann gerður aðstoðar-kennari
við Wurzburg háskólann. Tveimur
árum síðar tók hann aðal-kennara stöðu
í reikningi og eðlisfræði við akuryrkju-
skóla í Hohenheim. Árið 1879 tók hann
kennara stöðu við háskólann í Giessen
og 1888 hvarf hann aftur til Wurzburg-
háskólans, tók þar -kennara-stöðu og
hefir haldið henni síðan.
“Þess er getið sem gert er”.
Það ætti aldrei að liggja í láginni
né falla niður í djúpgleymskunnar, sem
vel er gert, og því skal þess hér getið—
þó seint sé—, að í vetur, skömmu fyrir
jólin, skutu þeir saman Dakota-íslend-
ingar i Mountain- og Garðar-bygð yfir
$50 handa gömlum og heilsulitlum
landa, er var í vandræðum með að
borga vexti af peningum, er hann hafði
tekið til láns hjá einu peningalánfélag-
inu móti veði í landi hans, svo ekki var
annað sýnna, en þaðlenti í klóm félags-
ins, hefði ekki þessijhjálp komið'á hæfi-
legum tíma.
Þess er lika vert aðgeta, að það var
kona sem var hvatamaður að þessum
frjálsu samskotum: Mrs. Kr. Hafldórs-
son (Kristín [Jónsdóttir), Mountain;
hún safnaði fyrst nokkru isjálf—þójekki
hjá kvennfélögunum—og fékkjfsvojí lið
með sér.herra BjörnJHalldórsson,||sem
aldrei lætur sitt eftir liggja’þegar um
hjálpsemi er að ræða, Fog'|siifnaði{harin
talsverðu meðaí grannajsinna.^bæði á
Mountain og þar í grendinni. En þó
varð herra Hannesi Björnssyni mest á-
gengt. Hann lagði á stað óbeðinn,
“gekk á milli góðbúanna” svo dögum
skifti og samlaði samanjmeir en upp í
helming skuldarinnar—mest í Garðar-
bygð— drengilega gert af Hannesi. Svo
öll samskotin með þvi er]safnendur gáfu
frá sjálfum sér, hrukku fyrir því er út-
lánsfélagið heimtaði í það skifti, og
voru viðtakanda afhent, sem þegar gat
afgreitt því hina ofannefndu rentu-
skuld.
Þessa höfðinglegu hjálp þakkar
þiggjandinn hér með innilega öUum hin
um heiðruðu gefendum, sem þvi miður
rúmleysis vegna ekki er hægt að nafn-
greina. Honum rennur það til rifja að
eiga ekki nógu vel við eigandi orð til að
láta áti í þakklætisskyni, getur ekki
þakkað þetta sem vert er, og hlýtur því
einungis að láta sér lynda’með það, að
óska af heilum hug, öllumjsem studdu
að þessu kærleiksverki, bjartrar fram-
tíðar, heilsu og hamingju; gnægð og
gróði fylli bygð þeirra og bú.
Það er ekki í fyrsta“sinn að Dakota
íslendingar í ofangreindum bygðum
hafa þannig hlaupið undir bagga með
mönnum, sem veriðj hafa í ;kröggum í
líkum kringumstæðum. ;þó þess hafi
ekki verið getið opinberlega. Þetta sýn-
ir fyrst, að íslendingum hér er illa við
það, að landar þeirra fari á sveitina,
eða þurfi að þiggja af annara þjóða
mönnum; annað það, aðjþeir eru svo
forsjálir búmenn, að þeirsjá hvað skuld
ir, rentur, og rentu-rentur draga iUan
dilk eftir sér, ekki sizt þegar eignir og
ábúðarjarðir eru í veðil; og í þriðja lagi
má ráða það af þeseu atferli þeirra, að
Dakota-íslendingar hafa, auk síns með-
fædda íslenzka gamla göfuglyndis, tek-
ið dæmi af sinum sessunautum (Banda-
ríkjamönnum) hvað hjálpsemivið nauð-
stadda náunga snertir engu síður en
framkvæmdum þeírra og dugnaði.
Húrra fyrir Dakota-íslendinga !
Lengi lifi Dakota-íslendingar !
Mountain, 20. Janúar 1896.
Y.
gtórbreyting á
munntóbaki.
TUCKETT'S
T & B
Mahog,any.
er hið nýjasta og bezta.
Gáið að því að T. & B. tinmerk
sé á pIötHnni.
Tilbúið af
The Geo. E. Tugkett & Son Co., Ltd.
HAMILTON, ONT.
Allir á sig'lingu til beztu
Skraddarabúðarinnar
PEACE & CO.
5«« Iflain Str.
horninu á Pacifie Ave.
Fötin sniðin, saumuð, ogútbúin
eins og þér segið fyrir.
Peace & Co.
566 Main Str.
Gullrent úr fyrir 37.50
Viltu fá góð kaup ?
Viltu fá hið besta
úr sem fæst fyrir
þetta verð? Hik-
aðu ekki við að
segja já. Sendu.
okkur þessa aug-
lýsingu með nafni
þínu og utanáskr-
ift, og láttu okkur
vita hvort þú vilt
kvenmanns eða
karlmanns, open
eða hunting Case-
úr, og viðskulum
senda þér hið besta
úr sem hægt er að
fá fyrir þetta lága
verð. — Úrin eru
gullrend með 14 k. gulli, og verkið gott
American Nickelvork_ sem ver ábyrgj-
umst að endist 20 ár. Úrið gengur reglu-
lega og vel og lítur út eiris og $50.00 úr.
Þu skoðar úrið hjá Express Ágentinum
og ef það er eins og því er lýst og þú á-
lítur það kaupandi, þá borgar þú hon-
um $7 50 (heildsöluverð), og burðargjald
á því.—Ef þér lýzt ekki á þa,ð. þá taktu
það ekki. Við viljum selja fljótt og mik-
ið með litlum gróða á hverju fyrir sig.
Við seljum að eins góð úr.
Þegar þú biður um úr, þá strykaðu
út það sem þú vilt ekki hafa af því sem
á eftir kemur :
Send me—Hunting—OpenFace—Oentt
—Ladiee—Walch. — Ef þú vilt fá $3.50
festi með úrinu fyrir 50c. þá láttu þess
getið. — Sendið til
The Universal Watch & Jewelery Manuf. Co.
Depot 68—508 SchUler Theatre.
[Verðlisti fri.] Chicago, 111.
FRANK LESLIE’S
OPULAR
MONTHLY
Contalns each Month : Orlglnal Water Color 1
Frontlapiece ; 128 Quarto Pages of Readlng'
Matter; 100 New and liigh-class lllu.stra-,
tions; More Llterary Matter and lllustra-
tlons than any other Magazine in America ,
25 cts.; $3 a Vear. ,
Frank Leslie’s Pleasant Hoursi
FOR BOYS AND CIRLS.
A Brlght, Wholesome. Juvenile Monthly.
Fully illustrated. The best writers for young
people oontribute to It. 10 cts.; $1 a year. (
SEHD ALL SUBSCRIPT10HS T0
The llein.skringla Prtg. & Puhl. Co.
> You want to get Frank Leslie’s
i Popular Monthly and the Hei.ns-
| kringla one year for $1.25
Undoubtedly the Best Club Otfers
! tW Send to Frank Lealie’a Publishina Tlouae, iV. 7.,
. for New Jllustrated Premium List, Free.