Heimskringla - 05.03.1896, Blaðsíða 2

Heimskringla - 05.03.1896, Blaðsíða 2
HEIMSKKINGLA 5. MAKZ 1896. Heimskringla PUBLISIIED BY Tlic íleimskringla Frtg. & Publ. Co. •• •• Verð blaðsins í Canda og Bandar.: $2 um árið [fyrirfram borgað] Sent til íslands [fyrirfram borgað af kaupendum bl. hér] $1. •••• TJppsögn ógild að lögum nema kaupandi sé skuldlaus við blaðið. • ••• Peningar sendist í P. O. Money Order, Registered Letter eða Ex- press Money Order. Bankaávis- anir á aðra banka en í Winnipeg að eins teknar með afföllum. • • •• EGGERTJOHANNSSON EDITOR. EINAR OLAFSSON BUSINESS MANAGER. • B •• Office : Corner Ross Ave & Nena Str. 1* O. Box 305. •••••••••••••••••••••« vSvína-pólitíkinni í síðasta bl. Lögbergs dettur oss ekki í hug að gera athugasemdir við, að und- anteknum tveimur atr.; 1. því, aðjþrátt fyrir allar sannanir til hins gagnstæða á höfundur svina pólitíkurinnar að hafa fengið meiri hluta íslenzku atkvæðanna í St. Andrews. í>að er auðsætt hvar skórinn kreppir að. Höf, sv. p. hefir lengi gumað af því við Greenwayinga, að hann hefði alla íslendinga í vasa sín- um og þar af leiðaudi að hann réði atkv. |>eirra. Kosninga úrslitin í St. An- drews sýndu Greenway eins og öðrum að alt það gum var vindur og ekkert annað. Sannanirnar sem vér höfum fyrir því, að Baldwinson hafi haft fylgi meirihluta hinna íslenzku kjósenda eru Jíessar: Prá Nýja-íslandi fékk hann áskorun um að sækja frá 195 kjösendum, og í Nýja-íslandifékkliannl90 atkvæði. Er það 5 atkv. færra, en voru nöfnin undir áskoruninni, en svo er þess að gæta, að norður á vatni voru að minnsta kosti 8 af fylgendum Baldwinsons og nokkrir í flutningum og gátu ekki kom- íð á kjörþing. Þetta sýnir að hann hafði fylgi allra þeirra er buðu honum fylgi sitt og attvæði, Nú, í Selkirk eru um eða lítið yfir 90 íslenzkir kjósendur og af þeim skrifuðu 68 undir áskorunina til Mr. Baldwinsons. Hefir höf. sv. p. uokkra ástæðu til að ætla að þessum íslendingum í Selkirk megi síður treysta en þeim í Nýja-íslandi? Ef svo, hver er hún ? A meðan höf. svina pólitíkarinn- ar ekki sannar, að einhverjir af þessum 68 hafi brugðist oghvaðmargir, höldum vér við það, að Baldwinson hafi fengið fleirihiuta íslenzku atkvæðanna í kjör- dæminu. Vér vitum sem sé enga ástæðu til að íslendingar í Selkirk séu óorðheldnari en þeir í Nýja-íslandi. Hitt atriðið, sem vér vildum minnast á með fáum orðum, er tuggan gamla um langan undirbúningstima Mr. Baldwin- sons. Þegar athugað er að um þvert og endilangt Nýja-ísland, ef ekki annar- staðar í St. Andrews, var það gefið í skyn og það afdráttarlaust, í sókninn; 1892, að Sigtr. Jónasson en ekki Col- cieugh yrði á boðstólum næst, þá er skrítið að bera þetta fyrir sem ástæðu. Að unnið hafi verið fyrir Jónasson á tímabilinu í Nýja-íslandi er enda auð- sætt af því, að í sveitastjórnarkosning- um í Fljótsbygð haustið 1893 var það borið fyrir, að menn mættu til með að kjósa þennan manninn, en ekki hinn, til Jæss að halda flokknum saman, sem ynni að kosning Mr. Jónassons sem fylkisþingmanns, þegarnæst færufram kosningar. Að þetta sé rétt, er nokkuð sem fjölda margir menn í Fljótsbygð geta borið um. Það voru heldur ekki all fáir menn hérlendir, sem sögðu Mr. Baldwinsou nei, afþvíþeir íyrir mörgv.m mánuðum hefðu heitið Mr. Jónasson fylgi aínu og atkv. 'Meðal þeirra má nefna Hugh Black við Nettly Creek. Hvað undirbúningstíma snertir, er þess vegna -óhætt að segja, að Mr. Jónasson hafi staðið alt eins vel að vigi og Mr. Bald- winson. Að öðru leyti má “svína pólitík” Lögbergs eiga sig. Hún á heima og sómir sér vel — í Lögbergi. íslcndingar uí bók“ Af fylkisreikningunum fyrir 1895 að dæma, hafa íslendingar ekki fengið eins mikinn skerf af féfylkisinseins og í fyrra. Þeir fengu þá um $10,000 alt talið, en á síðastl. ári ekki nema nokkuð á 7. þúsund; dollars, er augsýnilega stafar af því, að fylkisstjórnin þá hafði engan agentheima á Islandi. En auð- sætt er það, að ekki er fylkisstjórnin enn laus við kostnaðinn, sem stafar af íslenzku fargjöldunum, sem lánuð voru um árið. Fyrir innheimtu þeirra á síðastl. ári hefir hún sem só borgað $206.12 (til S. Christopherson $56.12, og til M. Paulson $150), og að auki í ferða- kostnað til M. Paulson $225 og má að líkum sumt af því fó teljast til kostnað- arins viðfargjaldainnheimtuna. Stærsti gjaldliðurinn í þessum Islendinga reikn- ingsbálki, er sá er Lögbergi viðkemur. Sýnir hann (gjaldliður 910) að Lögbergs- félagið hefir á árinu fengið $1,808,33 fyrir blaðakaup og auglýsingar. Tii brautagerðar í íslendinga bygðum hefir á árinu verið varið samtals $2,293.15. Þar af gengu til Baldur-brautarinnar (í Argyle-nýlendu) $543, og til Kinosota- brautarinnar $408,50, en til Gimlýbraut- arinnar $1.313.20. En þar af má þó draga eitthvað af gjaldlið 2760, þar sem segir að Braden gamli í Selkirk hafi fengið $71.55 fyrir að keyra “um Gimli og Fort Alexander-brautina” (þó var karl í haust er leið og alt fram undir kosningar að hóta að yfigefa Greeway af því hann gæfi sér aldrei neina ærlega atvinnu !). Til Gimli-brautarinnar hafa þessvegna íraun réttri ekki gengið nema $1,241.65 og skiftist sú upphæð þannig meöal þeirra, er stóðu fyrir verkinu : K. Benjamínsson og aðrir.....$112 50 J. Bergman, fyrir að yfirlíta verk á Gimli brautinni ........ 27 70 St. Friðbjörnsson, fyrir vinnu á brautinni á Mikley ....... 102 50 Jón Júlíus og aðrir ......... 74 50 Magnús Jónsson og aðrir ..... 216 05 Jónas Jónasson og aðrir....... 111 50 Jóhannes Magnússon og aðrir.. 315 25 Th. Mjófjörð og aðrir ....... 77 60 S. Sigurbjörnsson og aðrir... 64 05 J. ThiöriksSon og aðrir ...... 140 00 Samtals....................$1,241 55 Ef til vill eiga og $98.65 að teljast til þjóðvegagerðar í Nýja jíslandi. Það segir svo í gjaldlið 2799, að Gunnsteinn Eyjólfsson og aðrir hafi unnið fyrir þeirri upphæð í township 27, range 4, east. En af því tilgreint township er meginlega, ef ekki alt í vatni norður á Humbug-flóa, má líklega gera ráð fyrir að hér sé um prentvillu að ræða, því fremur sem prentvillnr hafa verið í fylkisreikningunum áður, þó ekki vserj nema í fyrra þar sem $31,00 var um- hverft í $310.00. Telji maður þessa $98.65 sem veitt til vegagerðar í Nýja- Islandi, verður upphæðin öll sem til þess verks hefir verið veitt á árinu $1,340.30. í gjaldadálknum er tilfært lán til Gimli-sveitar, er nemur $203.25.—í tekjudáiknum eru tilfærðir samtals $58.76, frá íslendingum, þar af $18.26 frá skóla-héruðum í Islendinga byggð- um, til afborgunar láni til skólanna. Eftir því sem fylkisreikningarnir bera með sér, eru í fylkinu 7 launaðir lögregludómarar. Eru laun þeirra samtals $1443.20. Þessir eru lögreglu- dómarnir, laun þeirra og tekjur stjórn- arinnar fráþeim: Laun. Tekjur. Adam Peebles, Wpg .. .$600 00 $543 00 E. H.G.G. Hay, PlaP. 200 00 885 20 Kenneth Campbell, Brandon........... 195 70 10 00 John C. Todd, Brandon , 4 30 Guðni Thorsteinson, Gimli .......,.... 200 00 J. E. Cyr, St. Boniface. 150 00 05 00 Colin McCorquodale, Morden............ 112 50 Hvimleið þingdeild, Efrideild þingsins er víða í ónáð í seinnitíð, enda eigi ósjaldan talað um ýmist að umsteypa henni, eða láta hana hverfa úr sögunni algerlega, sem útlif- aðan hlut, sem ekki hafi nokkra þýðingu lengur. Tilgangurinn með hana í fyrst- unni var hvervetna sá sami, að halda í á móti neðri deildinni og hindra gálaus- leg lög frá að ná staðfestingu. Núer alment talaðum, aðþó þetta hafi máske verið þarflegt fyrrum, þá sé það ekki lengur svo; að neðri deildirnar hafi hvað eftir annað sýnt og sannað, að þær séu engir eftirbátar efrideildanna í gætni. Sem stendur er það almenna álitið, í fjórum ríkjum að minsta kosti: Banda- ríkjum, Canada, Englandi og Fíakk- landi, að efri-deildirnar séu lítt viðráð- anleg torfæra á löggjafarvegi þjóðanna. í Canada þykir sú deild þarfiaus alveg og ekki til nokkursskapaðs hlutar annars en eyða féþjóðarinnar, enda eigi ósjaldan nefnd “kerlinga ”-deild. I Bandaríkjum er álitið á efrideildinni lítið meira. Ef til vill er henni þar ekki svo mjög brugðið um ónytjungsskap, en miklu fremur um það, að hún sé mein- veitti, að hún sé algerlega “miljónera- samkunda” og hagi löggjöf allri að því leyti sem hún getur við ráðið samkvæmt þvi. A Englandi er efrideildinni fundið margt til foráttu, þó sérstaklega svíði mönnum erfðarétturinn. Á Frakklandi er það einnig margt sem haft er á móti efrideildinni, en ekkert eitt sérstakt, I þetta skifti er hún að reyna að hefta rannsókn á fjárglæpa málum og vill kúga ráðaneytið til þess, annaðtveggja að hlýða sér eða segja af sér að öðrum kosti. Það var jarnbrautar-“skandala” mál sem feldi Ribots-stjórnina. Þegar Bourgeois tók við ásetti liann sér að rannsaka alt það mál, en við það eru bendlaðir margir efrideildar þingmenn- irnir og þeir vilja síður að við því máli sé hróflað, af því að það í mörgum grein- um er sagt svo áþekt Panama-málinu um árið. Ein tilraun til rannsóknar var gerð og voru hinir kærðu sýknaðir. Neðrideildin krafðist þegar að sama máiið væri tekið fyrir aftur fyrir öðrum prófdómara og félst ráðaneytið á það. Þessu reiddist efrideildin og samþykti þegar tillögu þess efnis, að ráðaneytið hefði fyrirgert tiltrú sinni. Samkvæmt venjunni átti þá ráðaneytið að segja af sér. en það gerði Bourgeois ekki, af því hann hafði neðrideildina að baki sér. Gerði hann þá ráð fyrir að stýra rík- inu án tilits til efrideildarinnar og það gerði hann líka í raun og vera nokkra daga, þangað til efrideildin sá vænlegast að taka niður seglin. Þar, eins og annarsstaðar, á efri- deildin að vera ^arnargarður milli upp- stökks þings og þjóðarinnar, en þar eins og annarsstaðar þykir hún nú orðin sem mylnusteinn um hálsinn á þinginu. Og í þetta skifti ber meira á því en oft- ast nær áður af því sósíalistar hafa meira hald á ráðaneytinu, en nokkru sinni áður. Þetta ráðaneyti sérstaklega berst fyrir að lögleiða ýmsar breytingar að því er skattaálögur snertir og jafnframt því vill ráðaneytið meðal annars gera algerðan skilnað ríkisog kyrkju. Þess- um fyrirhuguðu breytingum, flestum, ef ekki öllum, andæfir efrideildin og eru það þær miklu fremur en féglæfra mál- ið í sambandí við járnbrautirnar, sem valdar eru að tilrauninni að fella stjórnina. í efrideild Frakka sitja 300 menn, og sitja 75 af þeim æfilangt, eru kjörnir til þess í efrideildinni sjálfri. Hinireru kjörnir til 9 ára setu, þannig, að þriðj- ungur þeirra gengur úr á hverjum þremur árum. í neðrideildinni sitja 581 þingraennkjörnir til 4 ára þingsetu. Hnausa-bryggj an # Ef alt hefur farið með feldu er hún nú fullgerð nú, átti að vera fúllgerð á laugardaginn var (29. Febr.). Er það 5 mánuðum seinna en ákveðið var í samn- ingnum við McVeigh, en gerir lítið til, hvað gagn af henni snertir, úr því hún eftir alt saman verður fullgerð orðin áð- ur en is leysir af vatninu. Hvað Mr. McVeigh snertir, þá á hann lítinn heiður skilið fyrir sína frammi- stóðu. Það er sannarlega ekki honum að þakka, að bryggjan er nú albúin og því síður er það honum að þakka, þó allir sem hann skuldaði séu nú búnir að fá sitt, að undanteknum 2 eða 3 mönn- um og þeim Sigurðson bræðrum. Það vantar mikið á að þeir séu búnir að fá sína peninga, en þeir eru ekki hræddir um að þeir fái þá ekki með tíð og tima og þurfa að vændum ekki að vera það. Eins óhultir mega þessir 2 eða 3, sem enn eiga eftir eitthvað af vinnulaunum sínum, vitanlega vera. Úr því stjórnin þegar hefir borgað meir en helming af skuldum McVeighs, er auðsætt að hún hlýtur að borga það sem eftir er og gerir það líklega áður en langt líður, eftir að bryggan er viðurkend fullgerð sam- kvæmt samningi. Vér óskum Ný-íslendingum til hamingju með þessa fyrstu bryggju sína og vonum að þeir sýni að þörf hafi verið á henni með því, að hagnýta hana nú vel, að þeir láti hana sem sjaldnast ónotaða. Þessi bryggja er fyrsta stór- virkið sem unniðernýlendunni til hags- muna, en vér vonum að það líði ekki langt þangað til annað samskonar stór- verki vérðurunnið sunnarí nýlendunni. Vér vonum fastlega að 6,500 dollararnir sem standa í áætlunarskrá sambands- stjórnar fyrir næsta ár, og sem ætlaðir eru til bryggjugerðar við Winnipeg- vatn, séu ætlaðir til bryggju á Gimli. Þetta, sem sagt, er von vor, en engin vissa, og það mælir altmeð, að til þeirr- ar bryggju séu þessir peningar veittir, því í bráðina sýnist ekki vera nein sér- leg þörf á bryggju annarsstaðar við vatnið, Allur norðurhelmingur Nýja ísl. getur haft gagn af þessari bryggju, en hvað mikið það gagn verður, er undir héraðsmönnum sjálfum komið. Þeir hafa nú tækifæri til að sýna að þeir séu betur settir, en þeir í suðurhlutanum, sem enn hafa enga bryggju og það geta þeir sýnt með þvít að taka sig nú til og ganga á undan í einhverjum fram- kvæmdum byggð sinni til gagns og sóma. Geri þeir það ekki, skari þeir í °ngu fram úr hinum, sem ver eru settir i þessu efni. þá verður tilganginum með bryggjuna ekki náð. Vér vonum þess vegna og óskum að þeir geri nú rögg á sig í framfara áttína í einhverju atriði og sanni þannig að bryggjufénu hafi ekki verið kastað á glæður. Um Blaðaílutning ókeypis meðpósti var meðal annars rætt á allsherjarfundi blaðamanna fél. i Can. er nýlega var haldinn i Ottawa. Af því alt sem fréttablöð heita eru flutt ókeypis um alla Ameriku, er það orðin tízka að senda út auglýsingar allskonar og láta þær heita blaða nöfnum og búa að öllu leyti sem líkastalmennum frétta blöðum. Þetta vill blaðamannafélagið ekki liða og á fundinum var tilnefnd þriggja manna nefnd til að hafa þetta mál með höndum ef þörf þætti, að ræða um það við póstmálastjórann. Þessi nefnd á að vinna að því: aö nöfn allra blaða sem út eru gefin í ríkinu séu bók- uð hjá póststjórninni eins og gert er á Englandi og|í Bandarikjum ; að engin blöð séu bókuð sem frétta eða fræðiblöð, sem send eru almenningi ókeypis, bein- línis eða óbeinlínis; og, að eftir ákveð- inn tíma skuli allir sem byr ja á útgáfu blaða borga eittlivert oforlítið burðar- gjald fyrir þau árlangt, en að þá skuli alt burðargjaldið endurgoldið, ef líkur séu til að blaðið haldi áfram að koma út á ákveðnum tíma. Aður en umræðum um þetta var lokið kom bréf frá aðstoöarmanni þóst- málastjórans, þar sem hann fullvissaði félagið um að þetta mál yrði tekið til alvarlegrar athugunar innan skamms. En svo iét sá góði herra ekki þar við sitja. Það var á bréfi lians að skilja, að miklu meira yrði fáanlegt en það, sem félagið fór fram á. Það var sagt ekki óliklegt að farið yrði fram á að taka burðargjald er svaraöi 4 centum undir hvert pund af fréttablöðum og krafist að nafn blaðsins skuli prentað áumbúða- pappírinn. Þetta var nokkuð sem blaða- mönnum kom á óvart og vcru þeir ekki viðbúnir þá i bráð að ræða málið frekar. Þeir létu það ekki ótvíræðilega í ijósi, að ekki mætti leggja nokkra auka byrði á nokkur virkileg fréttablöð. Það væri líka makalaustalveg, ef tekið væri upp á þvi nú, að leggja önnur eins höft á fréttablöð. Það væri full hart að þurfa að hafa nafn blaðsins á hverri einustu pappírs ræmu, sem utanum þau er vafin, en þókynnu menn nú einhvern veginn að bjargast fram úr því. En að borga 4 cents undir hvert pund, eða $4 fyrir hundrað pundin, það yrði rot- högg ekki svo fárra blaða. Það er vonandi að þessi uppástunga tilheyri vara manninum einum og að hún verði aldrei annaðen uppástungu hans. PAIN-KILLER THE GREAT Family Medicine of the Age. Taken Internally, ItCures Diarrhœa, Cramp, and Pain in the Stomach, Sore Throat, Sudden Colds, Coughs, etc., etc. Used Externally, ItCures Cuts, Bruises, Burns, Scalds, Sprains, Toothache, Pain in the Face, Neuralyia, Bheumatism, Frosted Feet. No artlcle erer attalned to »ucb unbounded popular- lty. —Salem Obærvfr. W® can tiear teutimony to the efflcacy of the Paln- Klller. Wehave seen it* maglc eíTeets in *oothintf the »evere»t pain, and know *t to be a good article.—Cincin- nati Dispatch. Nothing has yet »urp»»sed the Pain-Killer, which 1» the rnost vaiuable family medicine now in ust.—Tennestee Organ. It has real merit; as a means of removing pain.no medicine has acquired a reputation equal to Porry Davis* Pain-Killer.—Newport News. Beware of lmitations. Buy only the genuine “PEKBY DAVxa.” öold everywhere; large botties, 2óc. Bréf mitt Til Argyle-safnaða* hefir vakið nokkrar athugasemdir í Lög- bergi, sem ég neyðist til að svara nokkr- um orðum. Málið er þannig vaxið. Frelsissöfn- uður í Argylebygð samþykti á almenn- um fundi 31. Janúar, að rita mér fyrir- spurn um, hvort ég mundi “fáanlegur til að vera í vali við í hönd farandi prest- Rosningu safnaðanna” (Frelsis og Frí- kyrkjusafnaða). — Fríkyrkjusöfnuður heldur ársfund sinn í Marzmánuði, og þess vegna gat hann eigi tekið prest- kosningamálið fyrir á sama tíma og Frelsissöfnuður, sem heldur ársfund sinn í Janúarmán. En með því að Ar- gylemenn ætluðust til “að tafarlaust yrði farið að vinna að því að fá prest.” þá mætti forseti Fríkyrkjusafnaðar, Mr. S. Arason, á þessum almenna fundi Frelsissafnaðar, til þess sameiginlega að ræða prestkosningamál safnaðanna. Eftir þennan fund skrifar Mr. Arason, forseti Fríkyrkjusafnaðar, mér embætt- isbréf í nafni safnaðanna ogspyr migað því, hvort ég mundi “fáanlegur til að vera i vali við í hönd farandi prestkosn- ingusafnaðanna.” Þetta bréf er dag- sett 3. Fetjrúar og er prentað í Heims- kringlu 14. s. m. Bréfið ber sjáift vott um, að Mr. Arason. forseti Fríkyrkju- sofnaðar. talar þar í embættisnafni og flytur fram mál beggja safnaðanna. Hann segir. að sér hafi verið “falið að tilkynna” mér samþykt fundarins. Hann talarog um prestkosningu safnað- anna" (Frelsis- og Fríkyrkju-safnaða). Enn fremur getur hann þess, að ‘öðr- um manni sé ritað sama efnis.” Þann- ig hefir mér og “öðrum manni” verið rituð formleg fyrirspurn um, hvort við mundum yera fáanlegir tii að vera í vali við pi-estkosningu Argyle-safnaða. Ég svaraði tafarlaust þessari fyrirspurn til mín á þann hátt, að mér væri þvi miður ómögulegt að verða við tilmælum Ar- gyle-safnaða. Þetta svar sendi ég Mr. Arason. Og er það bréf mitt prentað i Heimskringlu 14. f. m. I Lögþergi 27. f. m. er annað bréf til mín frá Mr. Arason. Það erdagsett 15. febrúar. Bréf þetta varð að dvelja viku eða meira i Winnipeg, áður en það yrði prentað. Forseti kyrkjuféiagsins fékk þannig nægan tíma til að semja eftirmála við bréf þetta. Eftirmáli þessi er svo prentaður í sama nr. Lögbergs og bréfið sjálft. Bréf þetta er nokkuð ólíkt hinu fyrra brefi frá Mr. Arason til min. Og skil ég vel, hvernig því víkur við. Eins og Lögberg hefur getið um, þá fór sór Fr. J. Bergmann vestur til Argyle um þessar mundir. Og vera hans í Argyle er einmitt á tímabilinu milli þessara tveggja bréfa frá Mr. Arason. í bréfi mínu til Argylcsa'naða stendur : “Forseti og varaforseti kyrkjufélagsins vilja ráða þvi, hvern þér (Argylemenn) kjósið fyrir prest yðar. Þeir hafa boðið ykkur prestefni, Og séra Fr. J. Berg- man fór vestur til yðar í þeim erinda- gjörðurn.” Mr. Arason mótmælir því ekki, að erindi séra Friðriks hafi verið þetta. En hann virðist álíta óvarlegt að hafa það í hámælum, að forseti og varaforseti kyrkjufélagsins hafi boðið Argylemönnum prestsefni, og þess vegna neitar hann því. Og samt segir Mr. Arason í fyrra bréfi sínu til min, að ‘ öðrum manni” hafi verið rituð sams- konar fyrirspurn og mér. Þessi “ annar maður” er boðinn Argylesöfnuðum, og séra Friðrik fór vestur til Argylo í því skyni að styðja að kosningu hans, Þessi koma séra Friðriks hefur að minnsta kosti haft áhrif á Mr. Arason. Þau áhrif koma glögglega fram í seinna bréf- inu frá Mr. Arason til mín. í bréfi mínu til Argylesafnaða stendur: “Yður (Argylemönnum) stóð þá (1893) og tilboðamjögefnílegtprests- efni, Mr. Björn B. Jónsson. . . . Ég benti yður á hann. En forseti og varaforseti kyrkjufélagsins unnu á móti kosningu hans. Þeir vildu láta yður kjósa séra Steingrím Þorlákson, þótt hann hefði ekkert fylgi í söfnuðum yðar.” Þessu hefur verið harðlega mótmælt af forseta kyrkjufélagsins í Lögbergi. Og þess vegna neyðist ég til að fara nokkr- um orðum um þetta atriði. I febrúarm. 1893 sagði ég Argyle- söfnuðum upp prestsþjónustu minni. Söfnuðirnir héldu svo fundi 20. og 21. marz til þess að ræða um prestkosning- armál sitt. Fundaskýrsla um þetta efni stendur i Lögbergi 29. marz, 1893. Þar stendur: “Séra Hafsteinn og nokk- rir menn aðrir mæltu fram með því að kalla prest þegar í stað.” En það varð að samþykktum á báðum fundunum, að “fresta framkvæmdum” í prestkosning- armálum “þar til síðar” eða "fyrst um sinn-”. 12. og 13. Júní tóku Argylesöfn- uðir aftur málið fyrir. Um það er fundaskýrsla í Lögbergi 17. Júní, 1893. Þar stendur : “ Á báðum þessum safn- aðarfundum var rættprestkosningarmál Argylesafnaða og var samþykt að hafa sameiginlegan kjörfund fyrir báða söfn- uðina eftir kyrkjuþing. í vali verða cand. theol. Björn B. Jónsson og séra Steingrímur Þorlákson og auk þeirra þrír prestar heima á íslandi.” Ef prest- kosningin hefði farið fram fyrir kyikju- þing 1893, eins og ég og vinir séra Björns vildum, þá hefði hann að öllum líkindum verið kosinn prestur í Argyle. En fyrir áhrif frá forseta og varaforseta kyrkjufélagsins var málinu frestað fram yfir kyrkjuþing. Og það sást. þegar á þing var komið, að þessi frestun var *) Bréf þetta er prentað í Hoims- kringlu 14. f. m. Þar er ein prentvilla, þar sem minst er á sunnudagaskóla- skýrslu Garðarsafnaðar. Þar stendur : “flest á skólanum 50,” en á að vera : flest á skólanum 60, sjörð tilgangslaust. í ársskýrslu forseta frá þessu kyrkjuþingi stendur þar sem talað er um kandidat Björn B. Jónsson : “Það er tillaga mín (o : for- seti), svo framarlega sem hann ekki enn (eins og égekki veit til) hefur þegið köll- un frá einhverjum hinna prestlausu safnaða, að þetta kyrkjuþing gefi út köllun til hans sem trúboða í bráðina fvrir kyrkjufélagið í heild sinni á þeim plássum, þar sem mest er þörf á slíku starfi. Og taki hann þeirri köllun, eins og ég tel nærri því víst, að hann muni gjöra, þá mundi hanneinnig taka prest- vígslu á kyrkjuþingi þessu.” Vegna veikinda mætti forseti eigi á kyrkjuþingi þessu. Varaforseti bar fram ársskýrslu hans og fylgdi þcssari tillögu lians fast fram í viðræðum sínum við kyrkju- þingsmenn. Varaforseti vildi helzt, að sera Björn yrði prestur í Nýja íslandi og Selkirk, enda vann hann nokkrum mánuðum seinna hart að því máli. Alt þetta gjörði forseti og varaforseti kyrkju- félagsins til þess að vinna á móti kosn- ingu séra Björns í Argyle vorið 1893. Þeir vildu að séra Steingrímur yrði piestnr i Argyle en séra Björn í Nýja Islandi og Selkirk. Við þessi afskifti þeirra er átt í bréfi mínu tli Argyle- safnaða. Saga su, sem forseti kyrkjufélagsins hefir samið og sett í Lögberg 27. f. m., á ekkert skylt við þetta mál. Hún fer fram meira en ári seinna, haustið 1894. Þá er sóra Steingrimur búinn að missa * söfnuði sína í Minnesota og séra Björn orðinn prestur þeirra í hansstað. Séra Björn er eigi lengur í vali við prostkosn- ingar Argyle-manna. En með því að frásaga forsetans er eigi samkvæm sann- leikanum, þá neyðist ég til að leiðrétta hana með nokkrum orðum. Sögu þessa máls er allri snúið við. Iiaustið 1894 átti ég ferð fyrir höndum vestur í Ar- gyle. Sera Jon frétti um för mína. Hann kom svo til mín og bað mig að reyna um leið að komast eftir því, hvort Argylesöfnuðirnir mundu eigi vilja kalla séra Steingrím fyrir prest. Hann væri nú alfarinn frá Minnesota, og Argyle- söfnuðir væru orðnir prestlausir, með því að séra Árni gæti eigi komið vestur. Eg liafði litla von um árangurinn af þeirri tiiraun, en séra Jón fylgdi því mali fram með sínum gamla brennandi áhuga. Eg vildi að bann færi sjálfur vestur í þessum erindagerðitm, með því að hann var sjálfur ‘uppástungumaður’ að þessari tilraun. Hann kvaðst eigi geta farið sjálfur fyrir lasleika. Að síð- ustu lofaði eg honum að bera bréf hans- um þetta efni vestur til Argyle og láta lesa það upp fyrir fulltrúum safnaðanna Það gerði ég, en árangurinn af þessari tilraun forsetans var enginn. Eg álít mjög eðlilegt, að forseti gerði þessa til— raun. Argylesöfnuðir voru prestlausir,. og séra Steingrímur er góður prestur og hafði þá enga söfnuði til að þjóna. Séra Jon segir, að óg sé upphafsmaður að þessari tilraun. Ég á ekki þann heiður skilið. Forseti kyrkjufélagsins á sjálf- ur þann heiður með öllum réttí. Hann sjalfur var upphafsmaður þessarar til- raunar, og ritaði hann Argylemönnum langt bref þessu máli sínu til stuðnings. Eg að eins bar bréfið vestur og lofaði að útskýra munnlega meining forsetans, ef eitthvað væri óljóst eða ónákvæmt í bréfinn. Það gerði ég á fundi safnaðar- fulltruanna í Glenboro. Meira átti ég ekki að gera og gat ekki gert. Hafsteinn Pétursson. A. Leflar• Afleiðing kvefs sem ekki var lœknað. VEIK LUNGU. læknarnir gátu ekkert að gert. Læknaði mig með AYER’S Cherry Pectora! “Eg fekk vont, kvef, sem lagðist í lungun á mér og mér fanst eins og mörgum öðrum í samskonar tilfellum, að ég hirti ekkert um það, en hugði það mundi hatna af sjálfu sér, eneftir lítinn t*ma fór ég að finna til þróttleysis og verkjar, er óg þurfti að reyna' á mig. Þá fyrst fór ég til læknis, ætn komst að þeirri niðurstöðu, að efri hluti vinstna lungans var mjög orðinn skemdur. Hann lét mig hafa meðal, er ég brúkaði eftir fyrirsögn hans, en sem þó gerði mór ekkert gagn. Til hamingu hafði ég lesið í Ayer’s Almanaki um þau góðu áhrif sem Ayer’s Chorry Pec- toral hafði haft á ýmsa aðra og afréð því að reyna það. Eftir að hafa tekið >að nokkrum sinnum fór mér að hatna, og áður en ég var búinn úr flöskunni var ég albata”. — A. Leflar, Watch- maker, Orangeville, Ont. Ayers Chery Pectora/ hæstu verölaun á heimssýningnnui. Ayers Pills bæta meltinguna.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.