Heimskringla - 16.04.1896, Síða 1
X. ÁR.
WINNIPEGr, MAN., 16. APRÍL 1896.
NR. 16.
Dáinn
í Montcre.y, Mexico, 13. April 1896
Sir John Christian Schultz
K. C. H. B.,
fyrverandi fylkisstjóri í Manitoba, á
55. aldursári. Ekkja hans er á leiðinni
að sunnan með líkið 02 er það væntan-
legt hingað 18. þ. m. Sir Johns verður
nánar getið í næsta blaði.
FRÉTTIR.
DAGBÓK.
FIMTUDAG, 9. APRÍL.
í Ottawa stendur baráttan um
skólamálið yfir í þinginu dag og nótt.
Þingmenn af báðum flokkum skifta sér
niður í flokka til þess að láta þingsal-
inn aldrei verða mannlausan og svo
gengur sama steypan látlaust dag og
nótt, því að hvorugir vilja undan láta.
Sló þeim Sir Charles Tupper og Laurier
saman sem oftar þann 8. og hamaðist
þar hvor að öðrum, en hvorki rekur né
gengur og ekkert getur þingið fjallað
nm önnur nauðsynleg málefni fyrir þrá
lyndi þessu.
A Cuba gengur á því sama. Upp-
reistin heldur einlægt áfram og eru
smáskærur milli flokkanna, en mest
gengur stríðið þó út á að spilla, brenna
og eyðileggja hvor fyrir öðrum, en stór-
orustur engar. I Remedios brendu
uppreistarmenn nýlega 3 nýbygðir og
9.400 tons af sykurreir. Yið San Pelepe
brendu þeir verkvélarnar og 55,000 tons
af sykurreir. Mörg og Ijót eru hryðju-
verkin unnin í striði þessu af báðum
flokkum. Er ætlan manna að upp-
reistarmenn muni verða ofan á að
iokum.
PÖSTUDAG, 10. APRÍL.
Klukkan 3. e, m, í gær voru þing-
menn í Ottawa búnir að sitja samfleytt
1 72 tírna á fundi, og er það sá lengsti
fundur sem menn þekkja á því þingi,
Kl. 3 um morguninn á miðvikudaginn
var gerð uppástuuga um að slíta fundi,
«n um þá uppástungu eina var var búið
að rseða kl. 3 e. m. í gær í 36 klukku-
stundir.
En heldur fundur áfram, er morg-
unblaðið kom í dag og gongur eiginlega
ekkert áfram.
Á Cuba vinna foringjar uppreistar-
manna hverja feorgina á fætur annari.
Maces tók Pinar del Rio herskildi og
lagði í ösku. Gomez hefir 6 eða 7 sinn-
um veríð sagður dauður, en nú virðist
hann með fullu lífi, því nýlega vann
hann borgina Santa Clara, höfuð-
staðinn í fylkínu einu, er einnig heitir
Santa Clara.
Maður nokkur Morran að nafm
heflr verið tekinn fastur fyrir að hafa
verið vitapdi um eða sekur í morði
stúlkunnar Hatton, er myrt var í Hol-
land nýlega, Sannanir þó ekki fram-
komnar enn,
Dylgjur eru um það að þeir Mac-
kenzie og Mann hafi gert samning í vik-
unni sem leið um byggingu Dauphin-
brautarinnar, Fylgir það sögunni að
hyrjað skuli frá Gladstone og bygðar
150 milur á þessu sumri. Fregnin er
tekin úr blaðinu “The Portage la Prai-
rie Review”.
LAUGARDAG, 11, APRÍL.
Alt til þessa hafa menn ekki leitt
rafurafl lengri leið en 100 mílur, en nú
er áformað að leiða það frá Niagara-
fossinum alla leið til New York. Hefir
rafmagnsfræðingurinn Nicola Tesla
sagt að leiða megi aflið svo langt sem
vera vill og á nú að prófa það.
Korea. Dylgjur miklar meðRúss-
um og Japanbúum í Koreu. Eru morð
°g manndráp þar daglegir atburðir.
Kússar hafa Koreu konung enn í
Varðvoizlu sinni síðan hann flúði undir
verndarvæng þeirra. Vilja þeir gjarn-
an hafa tögl og hagldir á stjórninni, en
Japanbúar kunna því illa. Hafa þeir
uú sent bryndreka sina til ýmsra staða
í Koreu.
Loks hefir forseti Bandaríkjanna
orðið við tillögum þingsins, og hefir
lmnn nú skrifað Spánarstjórn og látið í
ljósi að hann viðurkendi að Cuba hefði
rétt til að halda uppi herskildi og um
feið látið í ijósi óskir sínar, að málum
þeirra Spánverja og Cubamanna yrði
sem fljótast ráðið tillyktaásemlieppileg
astann hátt. Við þetta vænkast ráð
Cubamanna stórum,
"TT I Afríku berjast Englendingar og
Italir við svertingja og nú eru Mata-
helar í Suður-Afríku komnir á stað og
farnir að drepa og myrða. Verða þeir
illir viðfangs þegar þeir bætast í lið með
Boers, sem kunna illa yfirgangi Breta.
I Ottawa gengur á þvi sama íyrir
þinginu. Fiokkarnir berjast án afláts,
hefir fundur staðið síðan kl. 3 á mánu-
daginn, nótt og dag, en ekkert gengur.
Sagt var í kvöldblaðinu i gærkveldi, að
í dag myndi stjórnarflokkurinn láta
skólalagafrumvarpið falla i bráð, taka
það út af þingí, því að nú er tími orð-
inn svo stuttur, að augsýnilegt er að
ómöguiegt er að koma því í gegn. Verð
ur það þá kveikjuefni fyrir næstu kosn-
ingar, Líklega hefir fundi verið slitið
í kvöid, því að svo eru þingmenn trú-
ræknir að ekki vilja þeir sitja um sjálf-
an drottinsdaginn.
Heldur aukast líkurnar á Morran,
er sakaður var um að hafa myrt stúlk-
una frá Holland. Er nú sagt að hún
hafi verið með barni af hans völdum og
hafi þau verið búin að mæla mót með
sér þetta kvöld er hún var myrt. Ætla
menn hann hafi viljað verða laus við
hana og svo tekið til þessa. Er það ó-
fögur saga.
MÁNUBAG, 13. APRÍL.
Skólalagafrumvarpinu, sem stjórn
Breta lagði fyrir þingið nýlega, er ekki
tekið meðneinum fögnuði. Allsherjar-
skólakennarafélagið er andvígt því og
svo er ‘Frikyrkjumentamálafélagið, að-
al málgagn kardínálans á EDglandi
(Waughari’s) o. fl.
129 klukkustundir sat samþandsþing
Canada samfleytt í vikunni sem leið, frá
kl. 3 e. h. á mánudag til kl. 12 á mið-
nætti á laugardagskvöld. Er það ætl-
uð lengst seta á þingi sem menn hafa
sögur af. Afköstin voru samt ekki að
sama skapi. Stundum svaf forsetinn
og hraut svo hátt, að ræðnmenn hættu
að tala þangað til búið var að vekja
hann. Annan sprettinn rauk einn eða
aunar þingraaður ,til og sþitaði á munn-
hörpu sem mest hann mátti. Það var
skólamálið sem olli þessum gaui’agangi.
Stjórn Breta hefir að sögn samþykt
að senda3 fiskifræðinga til Alaska, til
þess í félagi með sendimönnum
Bandaríkjastjórnar, að rannsaka til
hlýtar hvert hætta sé á að eyðist sel-
irnir í Bæringsundi og grendinni.
Landsstjórinn í Canada hefir synjað
staðfestingar löguni frá Manitoba-þingi
í fyrra, þess efnis, að félög, einkum á-
byrgðar og lánsfélög, sem liafi fengið
lagalega tilveru annarstaðar en í Mani-
toba, þurfi að kaupa leyfi hjá Mani-
toba-stjórn áður en þau fá leyfi til að
starfa í fylkinu.
Dagblað eitt í Philadelphia, “The
North American”, er byrjað að gefa út
í dálkum sínutn æfisögu H. Holmes,
marg-morðingjans, sem þar situr i
fangelsi. Handritið á að vera eftir
Holmes sjálfan. í þessari æfisögu
kveðst Holmes liafa drepið 27 manns.
Olympisku leikjunum í Aþenuborg
er haldið áfram enn, að viðstödd-
um 50—70 þúsund áhorfendum á
hverjum degi. Á föstudaginn fór
fram kapphlaup frá Maraþon-völlum
til Aþenu, um 33 mílur vegar og vann
Grikki hlaupið. Hefir það komið fram
við þessa leiki, að Grikkir eru úthalds-
góðir, en ónýtir alveg á stuttum spretti.
Nú þykir víst orðið hvernig freguin
um Nansení vetur varð til. Veiðimsnn
rússneskir höfðu verið á Nýju-Síberíu-
eyjunum, höfðu séð skip í isnum með
það sem þeir álitu Norðurálfumönnum
á, heldu svo til lands og heimleiðis án
þess að grenslast eftir livaða skip þetta
var. Úr þessu var svo gerð sagan um
að þar væri Nansen kominn og búinn
að finna norðurheimskautið.
ÞRIÐJDAG 14. APRÍL.
Níhilistar á Rússlandi eru að sögn
að hugsa um að ryðja Nikulási keisara
III. úr vegi.
Soldán Tyrkja hefir afturkallað
lagaboð sitt, sem bannaði kristniboðum
að starfa í Armeníu. Stórveldin hafa
tekið á karli í það skiftið.
Maður einn í Cliicago, er stundar
rafmagnslækningar, kveðst hafa fundið
upp ráð til að drepa alt sóttfræ í líkama
manns, eða bakteríúr, með X-geislun-
um, sem Röntgen uppgötvaði. Reyndi
hann við kóleru-bakteríur og þær þoldu
ekki mátið. Heldur hann því nú fram
að landsfarsóttir allar séu með þessari
uppfinding yfirstignar.
Maður einn í Toledo, Ohio, kveðst
hafa fundið hina löngu týndu list forn-
Egyfta, að þurka svo líkami manna,
að þeir verði óskemdirnm þúsundir ára.
Lady Mount-Stephen, kona Sir
George Stephen (síðar Lord Mount-
Stephen), fyrsta forseta C. P. R, félags-
ins, lézt á Englandi hinn 9. þ. m,
Barna-morð eru upp komin í Lond-
on og er sagt að fjórða hverju barni í
borginni sé vísvitandi styttur aldur.
MÁNUDAG, 15. APRÍL,
Aðfaranótt sunnudagsius 12. þ. m.
og allan sunnudaginn fenti svo mikið í
Colorado og nærliggjandi héruðum, að
lestagangur á járnbrautum teptist. Veð
urhæðin var svo mikil að skaði varðaf
á mörgum stíöðum.
Á sunnudaginn var lagði fyrsti
gufubátur út á Superiorvatn frá Duluth.
Fór áleiðis til Port Arthur.
Málið um stjórnarstyrk til hafþráð-
arlagningar til Havaieyja kom til um-
ræðu hjá þar til kjörinni þingnefnd í
Washington í gær. Af því hve vel var
tekið í það mál er talið líklegt, að á
þessu þdngi verði veitt íé til þess fyrir-
tækis og þráðurinn lagður innan
skammss.
Flóð mikið í Laurence-fljótí og part-
ur af Montreal í hættu, þrátt fyrir tíóð-
garðinn mikla.
I haust er leið skipaði Canadastjórn
verkfiseðing, J. L. P. O’Hanley að
nafni, til aðathugahvaða ábrif Chicago.
skurðurinn mikli mundi liafa á stór-
vötniíi. í skýrslu sinni segir hann nú
að ómögalegt sé að gera nokkra gagn-
lega áætlun um það, nema fyrst sé
mælt vatnsmagnið sem fellur um De-
troit-ána og aðra ála á því svæði.
Fáein orð um Islend-
ingadagshald.
Blöðin hafa talsvert rætt um sam-
komuhátíð Islendinga hér í landi, eða
hinn svo kallaða íslendingadag. En af
því þó nokkur ágreiningur hefir verið
um ýmislegt honum viðvíkjandi, og ég
veit ekki til að hann sé jafnaður enn,
þá ætlaég í fám orðurn að lýsa yfir áliti
mínu á því 'máli.
Ágreiningurinn liefir verið um nafn
hátíöardagsins og um það, á hverjum
tíma hann sltyidi haldinn.
Hvað fyrra atriðinu viðvikur, þá
þarf fyrst að vera ákveðiö í hvers mitm
ingu vór höidum þennan hátíöisdag, og
mér finst það lika hafa komið vel fram
í minnum þeim, eem mælt hefir verið
fyrir á undanförnum íslendingadögum,
Minst hefir verið Islendinga og íslands
lilýlega, innilega og með söknuði, að
sjá ekki iengur liess fögru náttúru o. s,
frv. Minst hefir verið landa sem hing-
að eru fluttir, framfara þeirra og fram-
kvæmda; minst hefirverið laudsins sem
við búum í, frelsi þess og hinnar frjó-
sömu jarðar o. s. frv. Hugmyndin og
tilraunin hefir því verið sú, að minnast
alls hins bezta, sem minti oss á föður-
landið, og jafnframt að tengja Islend-
inga scm hér eru sem traustustum vin-
áttuböndum, bæði innbyrðis og við
hina, sem heima eru á ættjörðinni og
einnig ættu þessir samfundir að stuðla
að því, að geyma það sem bezt er í
þjóðerni voru.
Mór finst því að vér höfum ekki
annað tilhlýðilegra nafn handa þessum
hátíðisdegi, en nafnið ísletidingadagur,
eða að minsta kosti held ég að það só
bezt viðeigandinafn, af þeim setn nefnd
hafa verið. Leifsdagur eða Vínlands-
dagur likar mór ekki, því vér erum
ekki að minnast fundar Ameríku,
nema ef það væri auka-atriði. Biblíu-
dagur er ekki hentugri, því ekki er ver-
ið að minnast á trúmál á þeim sam-
komum. Mér líkar því vel þetta vana-
lega nafn á hátíðisdeginum.
Hitt atriðið—á hvaða tíma þessi
hátið (Islendingadagurinn) skyldi hald-
ast framvegis—er annað atriðið.
Ég er á þeirra máli sem álíta 2.
Ágúst ekki heppilegan dag, en ekki er
það vegna þess, að ég álíti það neitt
“særandi” fyrir landa heima þó við
minnumst þeirra þann dag. Stjórnar-
skrá þeirra, sem þeir fengu 2. Ágúst, er
auðvitað mjög ófullkomin,en með henni
fengu þeir þó forræði fjár síns, og það
eitt var stórt atriði til hagsmuna þeim.
Nei, það er vegna þess, að mér lík-
ar ekki sá dagur, að þá eru miklar ann-
ir í nýlendunum svo bændur tefjast tals
vert frá nauðsynjaverkum sínum.
hvort sem menn halda Islendingadag
heimafnýl. sinni, eða þá ekki síður, ef
menn ferðast til hins almenna liátíðar-
halds í Winnipeg.
En þá er að finna annan dag, og
helzt þann dag.sem geti mint oss á gleði
eða framfaradag heima, en að sá dagur
sé þó ekki óþarílega óþægilegur fyrir
bændur hér vestra, því ég hofði óskað
að sem flestir úr nýlendunuin hefði
tækifæri til að koma á hátíðisdaginn.
Mér hefði þótt að mörgu leyti vel til
fallinn sumardagurinn fyrsti, því það
er gleði dagur heima, og von um að
náttúran fari þá að hlýja fósturjörð-
inni. En af því að hér or ekki ætíð á
þeim tíma komið svo mikið sumar, að
gott sé að skemta sór undir beru lofti,
þá býzt ég við að ekki sé hægt að fast-
setja liann. Sá dagur, sem mór því
finst bezt til fallin, er 1. JÚLÍ (setning-
ardagur alþingis), þvi það er dagur, að
mér sýnist, sem vel á við að minnast á
bræðurna heima. Þaðan (frá þinginu)
hafa þeir fengið mörg ákvæði til fram-
fara, og þangað rennir þjóðin augum
sínum til nýrra og nýrra ákvæða til
frelsis og framfara. Þangað eru líka
valdir beztu menn þjóðarinnar. En þó
að að þeir séu ekki gallalausir, né
^þeirra verk, þáerþað ekki til vonar.
Sú þjóð sem á að framleiða gallalausa
þingmenn, verður sjálf að vera galla-
laus.
Annað, sem að mínu áliti, mælir
mjög með þeim degi er, að þá eru annir
bænda með minsta móti,
Útií nýlendum álit ég að bezt væri
að Islendingadagurinn væri haldinn
nokkru fyrri á einhvern merkisdag fyr-
ir þá eða þá nýlendu, þó það væri sinn
daginn í hverri. Með þvi móti gæti
þeir sem vildu farið á Islendingadaginn
í Winnipeg, án þess að nýlendan misti
af þeim frá sinu hátíðarhaldi. Líka
væri það skemtilegt og til uppörfunar í
listum, aö þeir sem sköruðu fram úr á
hátíðisdeginum í nýlendunum, t. a. m.
í glimum, stökki, lilaupum, sundi, og
enda ræðuhaldi o. fl., gæti komið á
hinn almenna Islendingadag í Winni-
peg og reynt sig þar. Ekki get ég hugs
að inór að Islendingar heima muni fara
að lialda árlegau hátíðisdag til samlætis
við oss hér, ættu þeir að minnast þess
með söknuði að þeir hefði mist okkur?
Eða ættu þeir að fagna yfir því að los-
ast við okkur ? Ég sem sagt álít ekki
til neins að reyna að fá þá til að liafa
hátíðarhald sama dag og vér, endur-
minningarnar yrða miðaðar við alt ann
að en vorar.
Komi það fyrir nokkurntima að
föðurlanii voru skíni eitthvað mikið
gott af þeim parti þjóðflokks vors, sem
verður hér «'estan hafs, munu þeir
minnast þess á þann hátt, sem þeim
geðjast bezt.
V. S.
/
Islands-fréttir.
Eftir Fjallkonunni.
Dáirin Febr. Hdldór Jónsson,
hreppstjóri í Þormóðsdal í Mosfellssveit.
Og ennfremur dáin fyrir sköimnu Jó-
hann Jónsson bóndi í Ilöfn í Siglufirði
og húsfrú Ingunn Eyjólfsdóttir, kona
séra Brynjólfs Jónssonar á Olafsvöllum.
Og enn fremur dáiri 4. Febr. húsfreyja
Guðrún Jórisdóttir í Elliðakoti, kona
merkisbóndans Guðmundar Magnússon-
ar, sem þar býr.
Skerndir á brúm. I leysingum í
byrjun Marzmán. kom svo mikið flóð í
Hvítá, að það skemdi nokkuö brúna á
henni,en þó ekki svo að liún sé ekki fær.
Kring um mánaðamótin Jan. og
Febr. hljóp syo mikið flóð í Skjálfanda-
fljót, að engir þóttust muna annað eins
og er svo skrifað um það þar úr grend-
inni: “Mest var flóðið laugard. 1. Febr.
og gekk það syo hátt.að það nam brúna
braut, eitthvað af slám. reif vírnetið sem
strerigt er beggja megin við gangpallinn
kastaði klakahrönn upp á hana og rót-
aði henni eitthvað til að vestanverðu á
stöplinum. Klakafleka rúmlega álnar
þykka hafði flóðið skilið eftir ofan á
vestari brúarstöplinum. Að öðru leyti
er mór eigi kunnugt, hve miklar skemd-
irnar eru. Þetta er haft eftir skilríkum
mönnum, sem um brúna fóru daginn
eftir flóðið. Það er ætlun sumra manna
að flóð þetta hafi komið sumpart fram-
an úr jökli og ætti það þá að hafa stafað
af eldsumbrotuni. I flóði þessu sópaði
öllum ís af Skjálfandafljóti langt fram
fyrir bygð og út fyrir Þingey, og voru
sumir jakarnir alt að því mannhæð á
þykt’.
Tíðarfar hefir verið stirt mjög síðan
Marz byrjaði, ýmist útsynningsrok eða
á norðan, og hefir snjóað talsvert. —
Vegna þessarar ótíðar hefir ekki gefið á
sjó alllangan tíma, en eftir síðustu frétt
um var vel fiskvart orðið á Miðnesi og
VJEITT
ItaOSTU VBHöUattn a iibimssvninounn
DR
BMING
POHDfR
IÐ BEZT TILBÚNA
Óblönduð vínberja Cream of . Tartar
ðowder. Ekkert álún, ainmonia eða
Pnnur óholl efni.
40 ára *«ynslu.
Dollars-gildi
er um þessar mundir
æði stórt hjá.......
W A L S H
Margfalt við jiað sem framast fæst hjá öðrum í bænum.
Ástæðurnar eru, að það er allra veðra von hjá oss f verzlnnarlegu
tilliti. Vér höfum sem sé ekki samið um leigu á búð nema til 1. Maí.
Rótt til sýnis setjum vér fylgjandi upptalning. Ef þór lítið yfir hana
munuð þér viðurkenna, að vér gefum miklu meira en venjulegt er fyrir dollar.
Karhnanna-yflrhafnir fyrir vorið, á $4.85, $5.50 og $6.50
Karlmanna-alklæðnaðir á $3.15, $4.00, $5.00 og $6.00.
Drengjaklæðnaðir á $1.00, $1.50, $2.00 og $2,50.
Hattar af öllran tegundum og með nýjustu tísku. $1.00
hattar fyrir 25c., $2 hattar á 50c., $3 hattar á 75c.
Það er þýðingarlaust að telja upp fleira í þetta sinn. Ef yður van-
hagar um eitthvað, þá spyrjið oss nm það. Hér er hvorttveggja varningurinn
og verðið við hæfi fjöldans. Vorfatnaður allskonar í haugum og hlöðum og er
sem næst að hann fáist fyrir hvað sem boðið er. Skyrtur, kragar, sokkar,
Axlabönd, Etc., Etc. — Leigusamningur vor úti 1. Maí.
Mr. Hjörtur Lindal vinnur í búðinni.
ooœc®©sso©»eeaoa
515 og 517 Ma/n St. Gegnt City HaH.
Höfnum, og sömuleiðis í Þorlákshöfn
(20 i hlut).
Dáinn í Jan. einn af merkustu
bændum Norður-Þingeyinga Jón
Björnsson í Laxárdal í Þistilfirði, sem
bjó þar allan sinn aldur fyrirmyndar-
legu búi.
Ljódmœli Jóns ólafsaonar ritstjóra
munu nú vera fullprentuð í 3. útgáfu
hér í Rvík. 2. útgáfa kom út í Winni-
peg; on upplagið brann að mestu. Þessi
3. útgáfa mun enn vera nokkuð aukin
aönýjum kvæðum.
Norsk-ísl. fiskifélag. !l ‘Annonce
Tidende’ (frá Björgvin) stendur 4. Des.
þ. á.:
‘í Redenæs er nú verið að stofna
hlutafélag—hver hlutur 25 kr.,—til þess
að kaupa fiskiskip til að stunda fiski
við strendur íslands og innfjaröa, með
aðsetursstað í landinu, nauðsynlegum
húsabyggingum og þerrisvæði fyrir
fiskinn, svo hann verði íluttur beina
lcið á markaðinn.
Forsprakkar þessa fyrirtækis eru
Islendingurinu Pótur M. Bjarnason frá
ísafiröi og skipstjórinn A. Jörgensen,
Gjæsöen við Tvedestrand.
Skipstjórinn á að stýra félaginu og
vera umboðsmaður þess í Noregi, og að
alskrifstofa þess á að vera í Tvede-
strand. Af lilutaupphæðinni, sein er
ætlazt til að nemi kr. 50.000, er þegar
búið að fá áskrifendur fyrir kr. 25,000.
Nafn félagsins er ‘Gjæsöeus Fisk-
eri-Aktieselskab’.
Með þvi að siglingar hór eru í stöð-
ugri afturför, er þetta gleðilegt fyrir-
tæki. Ætti ekki að efast um, að land
vort (Noregur) sem á svo marga djarfa
sjómenn og fiskimenn, og liggur svo vel
við fiskiveiðum, gæti orðið keppinautur,
að því er haffiskiveidarnar snertir. Að
dæma eftir afskriftinni af reikningi
fiskiskipsins ‘Procyors’, sem fylgdi boðs
bréfinu, lítur út fyrir, að íslenzku fiski-
veiðarnar svari vel kostnaði. Sáreikn-
ingur ber með sér 4365 kr. i hreinan á-
góða (?)’
Aflabrögð. Vegna óveðra hefir nú
varla gefið á sjó lengi, enda haldið að
fiskilaust muni vera hór um slóðir. —
Frönsk fiskiskúta, sem kom hér inn á
laugardaginn, hafðiaflað uin 6000 aust-
ur með landi. A Stokkseyri, Eyrar-
bakka og Þorlákshöfn hefir verið afli
nokkur, þegar gefið hefir að róa, eirik-
um isa, mest 20 í hlut. — Y&r afli þar
heldur að glæðast síðast.
Brunar. I Febr. hrann eldhús hjá
Guðm. bónda í Iðu í Byskupstungna-
hreppi. Brann þar mest öll búslóð
lians, því hann liafði rutt skemmu sína
til að gefa þar lömbum, og flutt mun-
ina í eldhúsið, sem var vænt hús og
rúmgott. Litlu eða engu varð bjargað.
Hann er fátækur fjölskyldumaður, mun
þvi án efa bágstaddur eftir. -— Fyr í
vetur brann eldliús á Minnibæ í Gríms-
nesi. — Nú í byrjun Marz brann enn
eldhús í Beinateig í Stokkseyrarhverfi
hjá Jóni bónda Þorsteinssyni. Brann
þar mestalt bjargræði lians, skinuklæði
o. fi.
Notið það.
Því að nú er óvanalega gott tæki-
færi, bæði fyrir konur og karla (ladies
and gentlemen), til að fá sér vandaðan
og ódýran klæðnað fyrir vorið.
Meimsækuð Mr. og Mrs. S. SWAN-
SON að 164 Kate Str. og segið þeim
hvað yður vantar, og verið viss utn, að
þau gera alt, sem hægt er að gera, til
að fullnægja óskum yðar. Þau sauma
alt, sem yðurvantar, leysa þaðfljótt og
vel af hendi, og gera það mjög ódýrt.
Þar er einmitt tækifærið.
Notið tækifærið.
S. Anderson,
651 Bannatyne Ave.
(Corner of Nena Str.)
hefir fengið inn miklar byrgöir af
Veg-gja-pappír
sem hann selur með langtum lægra verð
en nokkur annar pappírssali í þessum
bæ. Hann hehr 125 mismunandi teg-
undir, sem hann selur frá 5c. upp í 30c.
rúlluna.
Til sölu.
Tvær lóðir nálægt C.'.P. R. braut-
arstöðinnií West Selkirk með húsi, á
stærð 12X16, alt fyrir $250, en er $350
virði. Húsið *er vel bygt og hentugt
fyrir litla familiu.
Lysthafendur snúi sér til
Chas. Popham
P. O. Box 113 - - - West Selkirk*
Allii’ á siglingu til beztu
Skraddarabúðarinnar
PEACE & CO.
506 Jlain !Str.
horninu ú Pacific Ave.
Fötin sniðin, saumuð, 0g útbúin
eins og þér segið fyrir.
Peace & Co.
566 Main Str.