Heimskringla - 16.04.1896, Blaðsíða 4

Heimskringla - 16.04.1896, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA 16. APRÍL 1896. Fluttur til 598 Main Str. 598 #s#: N # M # M # M # M # M # M # M #s#x#£#»E#: #s#z## M # M Það er einatt ómissandi að liafa úr í vasanum og klukku á heim- ilinu og enda gullstáss til skrauts. Nú er tœkifærið. Komið í nýju búðina með nýju og gömlu vör- unum og veljið úr því sem til er. Tn dæmis sel ég : Waltham úr í Silveroid kassa fyrir $8.00. Yekjaraklukkur í Nickle kassa, bezta sort á $1.25. Og Átta daga slagklukkur fyrir $4.50. M # m # M # M # G.THOMAS.8 fjkW-aí 3E# jk,.## Winnipeg. Eggert kaupm. Oliver á Gimli var á ferð hér í bænum um síðustu helgi. Þjóðverjar hér í bænum vilja fá stofnsetta þýzka nýlendu einhverstaðar rétt í grend við bæinn. Hra Þorsteinn Borgfjörð, frá Geysir, Man., kom til bæjarins um síðustu helgi og dvaldi til þriðjudags. Það er sagt mögulegt að Sir Charles Tupper sæki um þingmansstöðuna í Winnipeg-kjördæmi, í komandi sókn. Ritgerð eftir St. Eyjólfsson, þing- mann í N. Dak., kemurínæsta blaði. Barst oss of seint til að ná í þetta blað. Jóhannes kaupm. Sigurðsson að Hnausum kom til bæjarius á laugar- daginn var og dvaldi til mánudags. Hélt þá heimleiðis ásamt Mrs. Sigurðs- som og dóttur þeirra, mánaðargamalli. Við guðsþjónustu í Tjaldbúðinni á sunnudagskvöldið kemur syngja þessir menn Trio meðan samskot eru tekin : H. HaUdórsson, H. Hillman og H. J. Halldórsson. Nokkuð nýtt. FLEISCEMANN GERKÖKUR. Spyrjið þá sem þér verzlið við um pris- ana sem við bjóðum. Kjartan og Mrs. Stephanson, tóku sér far til Selkirk með síðasta pósti og bíða þar til þess ís leysir af ánni og vatninu. í sömu ferðinni var og hra. Jón Jónsson, meðeigandi gufubátsins “Ida”. Ætla nú þeir félagar að mála gufubátinn og prýða hann allan, fyrir sumarstörhn. Á mánudaginn var gaf séra Magnús J. Skaptason saman í hjónaband herra Svein Thorvaldsson, frá Árnes, Man., og Miss Margréti Solmundson, frá Gimli, Samdægurs fóru brúðhjónin með járnbrautarlestinni til Selkirk og þaðan áfram með pósti að Gimli, þar sem þau setjast að fyrst um sinn. Hkr. óskar brúðhjónunum allra heilla. í mánaðarlokin næstu verður hinn nýi gufubátur Hannesson bræðra ú Gimli að miklu leyti albúinn, hvað ytri smíð snertir. Y firsmiðuri nn er hérlend- ur maður, og leysir hann verkið vel og fljótt af hendi, að þvi er séð verður. Vélarnar í þessum bát verða þær sem nú eru í gamla gufubátnum “Gimli”, er þá verður umhyerft í byrðing til vöruflutninga, er þessi nýi bátur dreg- ur á milli hafna. Alt-læknandi meðal. James L. Francis, bæjarráðsmaður í Chicago, segir : “Eg álit Dr. Kings New Discovery óbrigðult meðal við hósta, kvefi, og lungnaveiki þar eð ég hefi brúkað það á heimiii mínu í næst- liðin fimm ár, og aldrei þurft á lækni að halda.” Sóra John Burgus, Keokuk, Iowa skrifar : “Eg hefi verið prestur í bysk- upakyrkjunni í 50 ár eða meira, og hefi ég aldrei haft neitt meðal sem hefir haft jafngóð áhrif á mig og bætt mér eins fljótt eins og Dr. Kings New Discovery.’ Reynið þetta frábæra hóstameðalþegar Flaska til reynslu ókeypis í öllum lyf ja- búðum. Base-ball-klúbburinn íslenzki hér i bænum hafði ársfund sinn nýlega, og hlutu þessir kosningu : Patron: W. H. Paulson, heiðursfors.; S, Jónass. M. P. P.;forsetiPaul01son, varaforseti F. W. Fredriekson, ritari og gjaldkeri Kr. J. Bardal, Captein Geo. Brown, Mascot John Davidson, Framkvæmdarnefnd: P. Olson, Kr. J. Bardal, C. B. Júlíus, F. W. Fredrickson, H. S. Paulson, Vér höfum verið beðnir að geta þess sérstaklega, að samkoma sú sem hald- ast átti á Northwest Hall á laugardags- kvöldið var, en sem fórst fyrir sökum óveðurs, verður haldin í kvöld á North- west Hall, kl. 8. — Prógramið sama og áður og auk þess dans á eftir. — Ágóð- anum verður varið til styrktar fátæk- um manni, Jónasi Guðmundssyni, sem fyrir veikinda sakir er ekki sjálfbjarga, Stúlkur vantar í vist. Eg hefi nú nógar og góðar vistir fyrir stúlkur og gott kaup. Notið tækifærið sem fyrst. Guðbjörg Þorbergsdóttir. Á horninu á Nellie Ave. og Ness Str., Winnipeg. I. O. F. Frá byrjun yfirstandandi mánaðar til loka Maí mán. næstk. verða nýir meðlimir teknir inn ,í Forester-stúkuna “ísafold”, með sérstaklega góðum kjör- um. Nánari upplýsingar gefa embættis- menn stúkunnar. J. Einarsson R. S. Hra. Jóh. P. Sólmundsson fór af stað til Gimli á þriðjudaginn var og al- farinn þangað, með familíu sína. Hafði hann þá með sór £mest af smjörgerðar- áhöldunum, en öll eru þau ekki komin enn, en væntanleg á hverjum degi. Hefirnú Mr. Sólmundsson, ásamt fé- laga sinum Mr. Thorvaldsson, leigt vöruhús þeirra Hanneson bræðra á Gimli og brúka það í sumar sem smjör- gerðarhús. Þeir hafa einnig keyft 2 hesta, vagn, o. s. frv. til að flytja mjólkina á, að smjörgerðarhúsinu. Nýtt grasfræ, Hog eða Manitoba Millet, kom hér inn fyrst í fyrra. Það er án efa það langbesta Millet-fræ sem til er fyrir þetta pláss. Það er nú til sölu hjá undirskrifuðum og einnig hjá Elis Thor- waldson á Mountain, N. Dak. Kostar $1.00 bushelið. Akra, N. Dak., Apr. 9., 1896. . T. THORWALDSON. “Blaðið Review” í Portage La Prairie segir að í vikunni sem leið hafi verið lokið samningum um bygging Dauphin-brautarinnar, og að þeir járn- br.byggingamennirnir Wm. McKenzie í Toronto og D. D. Mann í Montreal hafi tekið verkið að sér. Brautin er sagt að byrji í Gladstone, þorpi 40 míl- ur vestur frá Portage La Prairie. Kom- ist félagið að góðum samningi um lesta- gang þaðan, eftir Man. norðv.-braut- inni, byggir það ekki til P. L. P. fyrst um sinn, en verði samningurinn illa útbúinn og einhliða verður brautin byggð áfram tafarlaust, í þorpinu Holland í suðvestur Man. var ung stúlka, Hannah Hatton að nafni, myrt aðfaranótt hins 81. f. m. Nú liefir unglingsmaður, Robert Mor- ran aQ nafni, verið tekinn fastur og fluttur til Winnipeg, verður honum haldið hér þangað til mál hans kemur fyrir yfirrétt, en það mál verður út- kljáð í Portage La Prairie. Bréf sem farið höfðu milli hans og hinnar myrtu stúlku þykja helztu sannanirnar fyrir því að hann sé sekur. BUCKLENS ARNICA SALVE. Bezta smyrsl sem til er við skýrðum, mari, sárum, kýlum, útbrotum, bólgu- sárum, frostbólgu, líkþornum, og öll- um sjúkdómum á hörundiuu. Læknar gylliniæð, að öðrum kosti ekki krafist borgunar. Vér ábyrgjumst að þetta meðal dugar í öllum þeim tilfellum sem talin hafa verið, ef ekki borgum vér pen ingana tii baka. —Askjan kostar 25 cts. Fæst í öllum lyfjabúðum. Mikilsverð forskrift. Morrison ritstjóri “Sun” Worthing- ton Ind. skrifar : “Electric Bitters er gott meðal, og ég get með ánægju mælt með því. Það læknar óhægðir og höf- uðverk, og kemur líffærunum í rétt lag.” Mrs. Annie Stehie 2625 Cottage Grove Ave. Chicago var orðin mjög af sér gengin, gat ekki borðað eða melt nokk- urn mat og hafði slæman höfuðverk, sem aldrei linaðist, en sex flöskur af El- ectric Bitters læknuðu hana algerlega. Verð 50c. og $1.00. Fæst í öllum lyfja- búðum. í síðastl. Marzmánuði voru nem- endur á alþýðuskólunum í Winnipeg flestir 5,021. SPURNING: Maður fær skifti hjá stjórninni á heimilisróttarlandisínu, er hann hefir búið á, en er ekki orðinn eig- andi að, og nýju ‘homestead’. Á land- inu er íbúðarhús og f jós og efnið að- keypt, þar á landinu er enginn skógur. Má hann ekki taka burt alt það er hann hefir á það flutt? Frumbúi. SVAR : Sé efnið í húsunum ekki tekið af stjórnarlandi má taka þau burt, þó því að eins, að það sé gert áður en stjórninni er formlega afhent heimilis- réttarlandið, semlandnemi vill yfírgefa. Hafi liann afhent henni það með hús- unum á, eru þau hennar eign öldungis eins og landið. Ýmislegt. VEÐREIÐA VEÐMÁL. Það er ætlast á að Ameríkumenn eyði 600 miljónum dollars á hverju ári að meðaltali í veðmáli um veðhlaupa- hesta. KRISTJANIA, höfuðborg Noregs, eróðum að vaxa. Á síðastl. ári (1895) fjölguðu ibúar hennar svo nam 8,926, — voru alls á gamlárs- dag 183,000. Því hafði verið spáð fyrir nokkru, að í lok aldarinnar yrðu ibúar borgarinnar orðnir um 200,000. Og eft- ir framhaldandi vexti síðustu árín að dæma verða þar talsvert yfir 200,000 heimilisfastir menn árið 1900. AFGHANIR. Af öllum barbaraþjóðum, sem Bret ar hafa átt skifti við, eru íbúar Afghan- ista héraðanna í Asíu liarðsvíraðastir og verstir viðureignar. Þeir eru grim- lyndir, blóðþyrstir og ofsafullir og að því skapi undirförulir. Þeirra hæsta dygð er hugrekki og þeir eiga mikið til af því. Þeir eru altannað en löghlýðn- ir, þýðast enginyfirvöld, ekki einusínni sína sérstöku flokkshöfðingja. Um al- þýðleg samtök er þess vegna ekki að gera og þá ekki heldur nein veruleg á- hrif. HAVAI-EYJA KAFFI verður innan skamms eins almennt í Ameríku, eins og Brasilíu- eða Rio- kaflið er nú. - Það er ekki nema fá ár síðan liafin var kaffitrjárækt á Havai- eyjum, en það þrífst þar svo ágætlega, að ræktun þess fleygir fram að sama skapi og hveitiræktinni í norðveslur- héruðum Ameríku. Vinnulaun á eyj- unumerulág, samgöngur við Ameriku eru tíðar og vegalengdin lítil, að eins 2,500 mílur til Vancouver. Af því hlýt, ur að leiða með tíð og tíma, að kaffi- verzlun smá færist frá Brasilín til eyj- anna, að nokkru leyti að minsta kosti. UM BLÖÐ OG BÆKUR skrifar Robert E, Porter, nefndarfor- maður við að taka siðasta fólkstalið í Bandaríkjum á þessa leið : Það eru fæstir blaðameun sem athuga, að eng- in iðnaðargrein í Bandaríkjum hefir tek ið jafnmiklum framförum á seinni árum eins og prentverk og blaða útgáfa. Til samanburðar má geta þess, að árið 1850 var samlögð útbreiðsla allra blaða í Bandaríkjum 5 milj.; 1860 var hún orðin 14 milj.; 1870 21 milj.; 1890 32 milj., og 1890 var húnorðin 70 miljónir. Á síðasta áratugnum bafði útbreiðslan þannig meir en tvöfaldast. Að sama skapi hefir blaðafjöldinn, sem prentað- ur er, aukist á sama tímabili (dagblöð eru nú tugum saman, þar sem áður voru að eins viku, eða hálfsmánaðar- blöð), Tala eintakanna sem prentuð voru 1850 var um 500 milj. afls, en 1890 var hún orðin 4,700 mílj. Sem stendur má því óhætt gera ráð fyrir að fjöldi eintaka blaðanna, sem prentuð eru, sé um 6 þúsund miljónir. Só blaða og tímarita, bóka og auglýsinga prentun tekin til greina, má gera ráð fyrir að sú iðnaðargrein gefi af sér um 275 milj. dollars á ári og gefi 165,227 manns at- vinnu og gjaldi þeim laun, er að sam- lögðu nemi nærri 78 mílj, dollars á ári. Og lang-stærstan þátt í þessu eiga fréttablöðin. Samlagt stofnfó þeirra í Bandaríkjum er nú sem stendur um 126 milj. dollars. Þau veita 106,095 manns atvinnu og gjalda þelm laun, er sam- tals nema rúmlega 68V milj. dollars. TURNA-FARGANIÐ. Siðan Eiffel bygði turninn mikla (Eiffel-turninn) í Paris, hefir löngunin til að koma upp samskonar turnum út- breiðst eins og mislingaveiki, þegar engin höft eru lögð í veg hennar. Hvað mörg félög og í hvað mörgum bæjum hafa talað um að byggja aðra eins, er ógerningur að telja upp. En siðustu uppástnngurnar koma frá Chicago og Montreal. í Chicago er talað um að byggja einn slíkan og 1200 feta háann, er standi fullgerður og vígður 4. Júlí 1897.1 Montreal er talað um að byggja einn uppi á hæsta hólnum á Mount Royal (konunglega fjallinu — kongs- fjalli) í samnefndum lystigarði. Sjálfur á turninn ekki að vera nema 500 fet á’ hæð, en af því hæðin sem hann á að standa á er full 750 fet yfir yfírborð Lawrencefljótsins fyrir neðan fjallið, verður öll hæðin svo gott sem 1250 fet. Eins og Eiffel-turninn, á þessi í Mount Royal Park, að vera úr járni og stáli eingöngu frá yfirborði jarðar. Og svo stór verður hann um sig, að lystiskálar sem umhverfa má í dans- og veizlusali. concerfsali o, þvl,, verða á tveimur neðri pöllunum (100 og 200 fet frá jörðu) Á þeim pöllum verða og að auki mat- sölubúðir og veitingahús, sýningaskál- ar, með allskonar fáséðum munum o. s. frv. Lyftivélar margar þeyta mönn- um upp og ofan að vild, og að kvöldi dags verður turninn allur uppljómaður með rafmagnsljósum og eldflugnahríð og “fíre-works” allskonar verða send út í náttmyrkrið frá toppi hans á há- tíðisdögum og þegar eitthvað er um að vera. Það er áætlað að turninn mundi vissara gróðafyrirtæki, en mörg önnur og sem í fljótu bragði kunna að sýnast árennilegri. Verflur afl traa tieimi Fjöldi annara hafa sagt hið sama. Konan varð albata. Hún brúkaði Paines Celery Compound. Líkams þunginn óx. Hið mikla vor-meðal fyrir þá sem lasburða eru. Hið vissasta og bezta meðal sem til er, er Paines Celery Compound; Það styrkir og hressir hinn veiklaða líkama, og eykur næringu vöðva, beina og tauga. Ekkert annað meðal getur gert það á jafn stuttum tíma. Menn ættu að muna eftir því að upptök flestra veikinda eru í blóðinu og taugunum. Hin merkilega samsetn- ing á Paines Celery Compound gerir það að verkum, að það upprætir orsakir sýkinnar og eyðir verk og þrautum. Um þetta leytier Paines Celery Compound blessun og bjargræði fyrir hina heilsulitlu og yeiku. Sjúkdómarn- ir sem þjáð hafa menn og konur yfir veturinn, verða algerlega upprættir með Paines Celery Compound. Ef þú ert fyrir alvöru að afla þér langra lifdaga og góðrar heilsu, þá farðu að dæmi Mra. Lloyd frá Ganano- que, Ont. Þú ert viss um að afleiðing- arnar verða hinar sömu, Mrs. Joseph Lloyd segir : “Eg finn það skyldu mína aðláta yður vita hvernig mór hefir reynst Pai- nes Celery Compcund. Eg þjáðist lengi af taugaveiklun, höfuðverk og ónotum, sem gerðu það að verkum, að ég gat enga góða hvíld fengið. Fyrir tveimur árum las ég fyrst frá- sögu um Paines Celery Compound. Eg keypti mór flösku af því og Jiegar ég var búin að brúka það um tíma gat ég sofið miklu betur. Þegar óg var búin úr sjö flöskum var ég orðin albata. Meðal þetta hreinsar blóðið og set- ur likamann í lag, og ég vildi ekki fyrir neinn mun vera án þess. Aður en ég fór að brúka Paines Celery Compound var ég að eins 100 pund; nú er ég 141 pund. Er þetta ekki fullkomin ástæða fyrir mig, til að lúka lofsorði á þetta meöal. Áður en ég fékk þetta ágæta meðal yðar hafði ég meðöl frá ým3um lækn- um, sem þó komu mér að engu liði. Fimm af kunningjum mínum eru nú að brúka þetta ágætis meðal yðar síðan þeir sáu hvernig mér reyndist pað. Eg bið yður að gera hið ofanritaða almenningi kunnugt, þar eð það kynni að koma sér vel fyrir einhvern sjúkllng- inn. Leyndardómur sársaukans. HVAÐ ERU ORSAKIR HANS, OG HVERS VEGNA ER HONUN EKKI TÍTRÝMT. Það sem gert hefir veiið af hinum skyn- sömustu mönnum til að minka þrautir manna. Tekið eftir Erin Advocate. Frá þeim tíma þegar mannkynið fyrst var til, og ofan til þessara tíma hefir sársaukinn verið að meira eða minna leyti umhugsunar og áhyggju efni manna. Hvað veldur honum, því er hann til og að hvaða gagni kemur hann í ríki náttúrunnar ? Öllum þess- um spurningum hafa menn spurt sjálfa sig og aðra, en enginn hefir fundið svar ið. Alt sem hægt er að gera, er að finna upp ráð til að minka þessar þján- ingar, og hinir skarpskygnu hafa hjálp að hinum tilfinningarsömu til að leyta uppi ráð við þeim. Allar uppsprettur hinnar miklu náttúru hafa veriðrannsakaðar, til þess að hinir líðandi gætu fengið hvíld og gleði þá sem samfara er hraustum líkama. Og hvað er svo eðlilegra en. að þeir sem fá bót meina sinna hafi löngun til að minast þeirra með þakk- læti, sem gefið hafa þeim heilsuna og láta aðra sem veikir kunna að vera vita hvernig þeim verði bjargað. Einn af þeim sem þannig er ástatt með, er Miss Druscillia Shingler fra Erin, Ont., sem segir eftirfylgjandi sögu um margra ára þjáningar sínar og hvernig hún læknaði sig með hinu merka með- ali Dr. Williams PinkPills. Miss Sking- ler segir : “Fyrir tólf árum fékk ég mjög slæma gigt, sem ég hefi þjáðst af Tveimur árum síðar bættist það ofan á að ég fókk meinsemd í hálsinn, sem alt af versnaði þangað til ég gat hvorki notið svefns né matar fyrir því. Þegar ég lagðist niður fanst mér ég ætla að kafna, og þegar ég reyndi að borða kom ég egnu niður. Þjáningum mínum verður varla með orðum lýst, og öll þau meðöl sem ég brúkaði komu mér að engn haldi og mór var sagt að eina ráðið til að lækna mig væri að skera mig upp. Gigtin fór alt af versnandi. og ég var rétt við að verða vonlaus um bata. Eg var orðin máttlaus í útlim- unum og gat hér um bil engu lyft með höndunum. Um þetta leyti ráðlagði ein af kunningjummínummér að reyna Dr, Williams Pink Pills, hafði hann reynt þær sjálfur áður og gefizt þær mjög vel. Hann keypti handa mér nokkrar öskjur og fór ég þegar að brúka þær. Mór fanst að mér skána nokkuðjþegar ég var búin að brúka þær í viku var ég í engum vafa um að mér var að batna. Eg brúkaði pillurnar aðallega við gigtinni, er mér til óum- ræðilegrar gleði varð ég þess vör að ekki einungis minkaði gigtin, heldur fór mór líka að batna í hálsinum. Þeg- ar ég var búin með hér um bil tólf öskj- ur af pillunum var ég orðin albata, og þó að nú só töluvert langt síðan, hefi ég ekkert fundið til þessa gamla veik- leika. Til þess að almenningur geti haft gagn af tilraunum mínum, er mér mjög ljúft að bæta vitnisburði mínum við hinn langa lista af vottorðum, sem þegar hafa verið gefin Dr. Williams Pink Pills: Þetta meðal. sem er hið merkasta meðal þessarar aldar, læknar alla sjúk- dóma, sem orsakast af slæmu blóði og veikluðu taugakerfi. Ef þér finst þú vera lasinn og niðurdregin, batnar þér fljótt af Dr. Williams Pink Pills, og ef þú ert alvarlega veikur, er ekkert með- al sem fljóta bætir þér en þær. Hinar ekta Pink Pills eru seldar í sívölum tró- baukum meðumbúðum, sem á er preut- að með fullum stöfum: Dr. Williams Pink Pills for Pale People. Takið eng- ar eftirstælingar. íSLENZKR LÆKNIR DR. M. HAL1D0RSS0N, Park River — N. Dak. 60GJMAC Hinar beztu og viðurkend- ustu tegundir í BÚÐ H. L. Chabot 513 Main St. Telephone 241. Gegnt City Hall. Vjer faum - - - i dag » - - 60 pör af kvenskóm með ristarböndum Sem verða seldir fyrir 85 c. 60 pör af kven-Oxfordskóm 1,00 Há stígvél fyrir karlmenn 1,50 Seljast vel Góð kjör ......- - Góð stígvél E. KNIGHT & CO. 431 MAIN STREET. ANDSPÆNIS PORTAGE AVE. P. S. Ljós i gluggunum alt kvöldið. Buxui! Buxur! Buxur! handa öllum. Bezta búðin í Winnipeg er Tlc Bli Slore Merki: Bla Stjarna 434 Main 5t. ALT ÖDYRT! Það gleður oss að geta tilkynt almenn- ingi og þó sérstaklega viðskiftavinum vorum, að Mr. N. Chevrier er nýkom- inn austan úr fylkjum og hefir þar tek- ist að kaupa afarmikið af tilbúnum föt- um fyrir svo litið dollars virðið, að The Blue Store getur nú selt með lægra verði en nokk- ur önnur verzlun hér. Drengjabuxur vorar eru frá 25c. upp í 40c., 50c., 75c. og $1.00. Karlmanna- buxur frá $1.00 upp í $1.25, $1.50. $1.75 og $2.00. Þú hefir enga hugmynd um þessi kostaboð nema þú komir og kaupir af oss. Meðan erindsreki vor stóð við í Ottawa, lukkaðist honum að ná í 200 alfatnaði úr skosku vaðmáli hjá hinum nafnkunna skraddara Chabot & Co., Nr 124 Rideau St., Ot.tawa. Þessi föt hafa öll verið gerð með mestu nærgætni af P. C. Chabot, sem gerir langmest af fötum þeim, sem stjórnin lætur búa til Munið eftir því að öll þessi föt eru búin til eftir máli. Þau eru $26.00 til $28.00 virði, en vér seljum þau nú á $15.50, Þú verður að koma og skoða þessi föt til þess að sannfærast. Alt annað í búðinni selt á sama verði að tiltölu. 500 drengja alfatnaðir á 75c. og yfir. Hattar ! Hattar ! fyrir hálfvirði. Gieymið ekki The BLUE STORE, MERKI: BLÁ STJARNA. 434 MAIN STR. A. Chevrier. NORTHERN PACIPIC R. R. Farseðlar til sölu fyrir Járnbrautir^ stöðu- vatna og hafskipalínur til Austur-Canada, British Columbia, Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, þýzkalands. Italíu, Indlandi, Kína, Japan, Afríku, Australíu. Farþegjalestir daglega. Góður útbúnað- ur. Margar leiðir að velja um. Fáið fersoðla og upplýsingar á farseðla- stofunni, 480 Main St., Winnipeg, eða á vagnstöðvunum, eða skrifið til H. SWINFORD, General Agent. Winnipeg. FRAIMKC LESLIE’S P OPULAR MONTHLY Contalns each Month : Oríglnal Water Color Frontlsplece; 128 Quarto Pages of Reading Matter; 100 New and high-class Illustra- tions; More Literary Matter and lllustra- tlons than any other Magazine in America. 25 cts.; $3 a Year. Frank Leslie’s Pleasant Hours FOR BOYS AMD CIRLS. A lirlght, Wholesome, Javenile Monthly. Fully lllustrated. The best writers for young people oontribute to it. 10 cts.; $1 a year. SEHD ALL SUBSCRHTIOKS TO rllie lieimskrÍDgla I'rlg. ái Publ. Co. You want to get I’rank Leslie’s Fopular Monthly and the Heims- Iringla one year for $4.25 l Undoubtedly theBest Cluh Offers C1”"- Send to Frank Letlie'a Publlahína E for New Illustrated Premium Hst, Houec, N.7., Free.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.