Heimskringla - 18.06.1896, Blaðsíða 4

Heimskringla - 18.06.1896, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA 18. JÚNÍ 1896. Winnipeg. Hon. Hugh J. Macdonald kom til bæjarins ur vesturferð sinni á sunnu- daginn var. Eimreiðin, 2. árg. 2. hefti, barst oss rett er blaðið fór til prentunar. Meira næst. Stephan kaupmaður Sigurðsson að Hnausum kom spögga ferð til bæjarins Um síðustu helgi. Hra, Sigurður Sigurðsson frá Bald* ur, Man., sem dvalið hefir í bænum undanfarna nokkra mánuði, fór vestur í gærdag. Mislingar ganga hér í bænum, en mjög skæð er veikin ekki. I vikunni er leið voru taldir 89 mislinga-sjúkling* ar i bænum. Hra. Teitur Sigurðssou er fluttur alfarinn til bæjarins utan úr Álfta- vatnsnýlendu. Er heimili hans að 480 Pacific Ave. Hra, Jón Magnússon fór alfarinn héðan úr bænum um síðastl. helgi með konu sinni og dóttur þeirra hjóna til Keewatin í Ontario. Herra G. Borgfjörð, bóndi við Nar- rows á Manitobavatni, heilsaði upp á oss á mánudaginn, Segir hann vellíð- an manna í sveit sinni. Þrumufleygur sló ungan dreng og varð honum að bana í norðurenda bæj- arins á sunnudagskvöldið var í þrumu- skúr miklum, er þá gekk yfir bæinn. Hra, Hálfdán Sigmundsson, frá Íslendíngafljóti, heilsaði upp á oss á mánudaginn. Hafði flutt veikan mann —Guðmund Finnsson. tilSelkirk, sem þar liggur nú, en er í afturbata. Lesið Band Concert auglýsinguna á ððrum stað. Eins og hún ber með sér. hefir samkomudegi að Mountain verið breytt. Samkoman þar verður á laug- ardagskvöldið 20. þ. m. Land með byggingum, 3 mílur frá West Selkirk, til sölu, eða verður látið í skiftum fyrir bæjareignir í Selkirk eða Winnipeg. Frekari upplýsingar gefur Páfl Magnússon, West Selkirk. Ræðuefni séra Hafsteins Pétursson- ar á sunnudagskvöldið kemur, verður: Hið fyrsta kyrkjuþing, Pgb. 15. Á meðan samskot eru tekin, við þá guðs- þjónustu, syngur hra H. J. Halldórsson sóló. _______________________ Hefir þú nokkurntíma reynt Electric Bitters sem meðal við veikindum þinum, Ef ekki þá fáðu þér flösku nú og láttu þér batna. Þetta meðal hefir reynst að vera sérlega gott við öllum sjúkdómum sem kvennfólk á vanda fyrir. Með því það erir líffærin sterk og vinnandi. Ef þú efir matarólyst, hægðaleysi.höfuðverk, svima, eða ert taugaveiklaður, átt bágt með að sofa etc. þa þarftu að fá þér El- ectric Bitter, það er meðalið sem læknar — 50 cts. og $1.00 í öflum lyfjabúðum. Band Concert Qardar 19. Juni, Mountain, 20. Juni, hailson 26. Juni. Programm: I. 1. Homleikaraflokkurinn spilar. 2. Vocal Solo.................. Miss Anna K. Johnson. 3. Orchestra. 4. Comet Solo: H. B. Halldórsson. 5. Vocal Duet: Misses Anna & Olavia Johnson. 6. Homl.fl. spilar. f Misses Anna & 7. Quartette ■( Olavia Johnson, fM.B.&H.B*Halldórss. 8. Duet (Comet & Baritone)...... II. B. & B. B. Halldórsson. II. 1. Homl.fl. spilar. 2. Solo & Chorus. 3. Comet Solo: H. B. Halldórsson. 4. Vocal Solo................... Miss Anna K. Johnson. 5. Orchestra. 6. Horal.fl. spilar. 7. Dnet (Coraet & Baritone)..... H. B. & B. B. Halldórsson. Byrjar kl. 8 hvert kvöldið. InngangaejTir 25 cents. Uppskeru-áætlun fylkisstjórnarinn- ar hin fyrsta í ár er um það út komin, Sýnir hún að sögn, að eftir alt saman hefir hveiti verið sáð í nálega eins mik- inn ekru fjölda i Manitoba, eins og í fyrra, þó seint hafi gengið öfl vorvinna vegna votviðranna. Aldurhniginn maður, Bjarni Dags- son að nafni, ættaður úr Snæfeflsnes- sýslu, lézt á sjúkrahúsi bæjarins aðfara- nótt hins 15. þ. m. úr blóðeitrun. Hafði verið að veiða fisk í Rauðá fyrir rúmri viku síðan þegar fiskuggi stakst í hendi hans og varð b«,namem hans. f vetur er leið um jólaleitið misti hann barn og í Marzm. konu sína. Tvö börn þeirra hjóna eru enn á lífi. Herra Bjarnú Pétursson (frá Reykj- um í Tungusveit í Skagafirði), bóndi í Árnesbygð í Nýja íslandi, kom til bæj- arins á sunnudagskvöldið ásamt 5 öðr- um Árnesingum. Voru þeir að flytja herra Benjamín Jónsson á Lækjamóti (Árnesbygð) á sjúkrahúsið og fluttu hann alla leið á bát—eftir vatninu og Rauðá. Benjamin hefir legið veikur í rúminu síðan i haust er leið og þótti engin tilsjón að hann fengi heilsu sína bætta svo langt frá lækni. Pólitiski fundurinn í North-West Hall á þriðjudagskvöldið var vel fjöl- mennur, þrátt fyrir hitann þar inni. Rúmleysis yegna í þessu blaði er ekki hægt að skýra frá fundargerningi, en þess má eins geta, að það varð auðsætt er fram í sótti að “frjálslyndir”! gentle- menn! höfðu tekið sig saman um að kveikja óróa og var til þessfenginn einn alkunnur mangari, að byrja, halda uppi samræðum við sessunaut sinn, hrópa o. s. frv. Er það líka sannast, að virðist, eitt atriði í pólitiskri trúarjátning “li- berala” að leyfa andvígismanni sínum sem allra minnst málfrelsi. Hra. Erlendur Gíslason, bóndi í Argylebygð, kom til bæjarins í vikunni er leið og heilsaði upp á oss. Almenna vefliðan segir hann i Argyle og upp- skeruhorfur góðar að því er honum er framast kunnugt. í norðurbygðinni, þeirri í hólunum með fram Assiniboine- ánni.eruuppskeruhorfurbetri en nokkru sinni áður, enda hafa allir sáð i meira land nú en í fyrra, sumir helmingi meira. Á leiðinni tilbæjarins var hann samferða fasteignasala, sem benti hon- um á yndislegarbújarðir, háar og þurr- ar þrátt fyrir votviðrin, þetta 12—20 milur frá Winnipeg, sem kaupa má fyr- ir 4*-5 dollars ekruna, En meginhluti þessa lands liggur ónotaður, af þvi menn ímynda sér að það sé hófleysis- ega dýrt. Ósannindamenn. Nú er timi sá útrunninn, er ég gaf ‘liberölum’ til að sanna óhróðurs áburð sinn á mig, og hafa þeir ekki sýnt neinn lit á því enn. Vildu heldur heita lygar- aro. s, frv!! Winnipeg, 17. Júní 1896. S. J. Sch«ying. Samdregin vitnisburðui-. Chas. B. Hood, umboðsmaður í Col- umbus, Ohio segir að ekkert meðal jafn- ist við Dr. Kings New Discovery sem hóstameðal. J. D. Brown, eigandi St. James Hotel, Ft. Wayne, Ind. segist hafa læknað sig af hósta sem, hann var búin að hafa í tvö ár, með Dr. Kings New Discovery. B. T. Merrill, Balá- winsville, Mass., segist hafa brúkað og ráðlagt Dr. Kings New Discovery og aldrei vita til að það hafi brugðist. Mrs. Henning 222 E. 25th St. Chicago hefir það ætíð við hendina, og er þvi ekkert hrædd við barnaveiki. Flaska til reynslu frí í öllum lyfjabúðum. FRETTIR. DAGBÓK. LAUGARDAG, 13. JÚNÍ. Ölvaður kynblendingur mætti lög- regluþjóni á brú yfir á i Calgary í gær og skaut hann til ólífis, En áður en hann féll skaut lögregluþjónninn kyn- blendinginn aftur og hitti í hjartastað. Það er enn sem komið er ekki búið að afkasta neinu verulegu á republíka- fundinum í St. Louis. En horfur þykja nú á að flokknrinn samþykki að við- hafa gullið eitt sem verðmiðil eins og að undanförnu, en að andæfa- frísláttu silfurs þangað til allar eða flestar þjóð- ir verða samtaka i því efni. Levi P. Morton frá New York stendur að sögn næst að verða kvaddur til varaforseta- sóknar. En neiti hann, eru 6 aðrir sem gjarnan vilja fá atkv. meirihlutans til þess. Um forsetaefnið sjálft er lítið rætt, þar McKinley er svo gott sem út- nefndur, að virðist. Nýjar gullnámur finnast nú á hverj- unl degi í British Columbia og eru nú alflr ærðir í gullleit. A Vancouver-eyju norðarlega, austan á eynni, er ein fund- in sem á að vera frábærlega stór og auðug. Gull-æðin er óslitin 300 feta breið og 6000 feta löng. VEITT SÆSTCJ VKRÐLAUN A HEIMSSVNINGUNN DH B\K1NG P0HDIR IÐ BEZT TILBÚNA Óblönduð vínberja Cream of Tartar J[owder. Ekkert álún, ammonia eða onnur óholl efni. 40 ára ’-eynslu. Fjárveitingar Ayfirstandandi þjóð- þingi Bandaríkja nema nú orðið $515 J milj. Skulda-aukning Bandaríkjastjórn- ar á síðastl. 3—4 árum nemur $262J milj. Af því fé þarf að gjalda í vöxtu á ári hverju sem næst llj milj. Sir George Webbe Dasent, nafn- kunuur fornfræðingur og sem hafði gef- ið íslenzkum og norrænum fornfræðum mikinn gaum, ernýlátinn í London. Leó páfi 13. hefir gefið út ávarp mikið til klerkalýðsins og allra, þar sem sýnt er fram á þörfina á einingu kyrkjuflokkanna, einingu þannig, að allir þurfi að verða kaþólskir, því kaþ- ólska kyrkjau sé hin eina sanna kyrkja og að hún sé það, það er hann að leit- ast við að sýna og sanna í bréfi þessu. MÁNUDAG 15. JÚNÍ. Stjórnin í Japan er að fá smíðuð 6 ný herskip á Englandi. Sameining við Canadasambandið verður að sögn aðalmáliðá dagskrá Ný- fundnalandsmanna í þingkosningasókn- inni þar næstkomandi haust. Stjórn Breta hefir ákveðið að veita $15 milj. til járnbrautar-byggingar i Afríku, frá ströndinni í grend við Zanzi- bar norður undir Nílárupptök. Á laugardagskvöldið kl. 9 gerðu Cubamenn tilraun til að eyða Havana, — gera borgina óbyggilega, með því, að taka fyrir vatnsveitingar um borgina. Brúkuðu þeir til þess dynamite, en tókst þó ekki nema til hálfs. Eigi að síður stendur Spánverjum ógn af þessu oe þykir þeim uppreistarmenn vera orðnir nærgöngulir, Peary norðurfari er sem stendur á Nýfundnalandi. Er hann þar i þeim tilgangi að leigja skip til norðurferðar- innar og hefir fengið skip sem “Hope” (Vonin) heitir, eitt traustasta og stærsta gufuskipið í hvalaveiðaflota Nýfundna- landsmanna. Hann leggur af stað í norðurförina 10. Júlí, frá Cape Breton í Nýja Skotlandi. Blöðin á Englandi tala sem stendur meira um tolleining hins brezka veldis en um nokkuð annað, og ræðu Chamb- erlainsí þvi sambandi. Aðalagnúarnir sem þau sjá á því fyrirtæki er það, að alt fé Breta sem nú er fast í öðruija lönd- um, sé þá meiri hættu undirorpiðen nú. ÞRIÐJUDÁG 16. JÚNÍ. Herrétturinn sem settur var í Ítalíu til að rannsaka mál hershöfðingjans Baratieri, er kent hefir verið um ófar- irnar í Abyssinia, hefir nú lokið rann- sólAiinni og sýknað hershöfðingjann. Á fundi í samveldisfélaginu brezka, í London i gær, áleit Sir Donald A. Smith að tolleining hins breska véldis væri ómöguleg eins og stendur. En til að byrja með stakk hann upp á að stjórn Breta lækkaði um helming aðflutnings- toll á kaffi, tei, cocoa o. fl., sem ræktað væri í útríkjunum, að stjórnin fengi úr gildi numin ákvæði nokkur í verzlunar- samningum sínum við Belgi og Þjóð- verja, og að innan skamms verði kallað saman allsherjar verzlunarþing veldis- ins, í London. Uppástunga hans var viðtekin. Gift kona og ekkja háðu einvígi í gær i Florida, með skegghníf og hamri. Sú með skegghnífinn drap hina, en bíð- biður sjálf bana af hamarshöggunum. Ekkjan hafði tælt manninn frá kon- unni og um hann var barist. André norðuífari, hinn sænski, er ætlar sér að sígla í(loftbát norður á heimskaut og þaðan suður um Alaska, lagði af stað í gær frá Tromsö í Noregi. Fer þaðan með gufuskip norður á Spftz* bergen, Þaðan verður ferðin hafin i loftbátnum. Snjór féll í Adirondack-fjöllunum í Ný-Englandsrikjum aðfaranótt 15. þ.m. Á 6 dögum frá 9. til 15. þ. m. hafa Tyrkir látið setja 600 Armeníu-menn í Konstantinópel í fangelsi. Eru þeir kærðir fyrir samsæri gfegn stjóm Tyrkja Í8LENZKE LÆKNIB DR. M. HALLD0RSS0N, Park River — N. Dak. “Free trade” eins og á Englandi”. England er fyrirmyndin hjá ‘liber- ölum’, þegar þeir eru að að tala um af- nám tolla. Sem sagt er það líka rétt- ast og eðlilegast, að hver og einn kaupi og selji þar sem honum bezt líkar, þar sem honum sýnist. En kringumstæð- urnar gera það fyrirkomulag ómögu- legt enn sem komiðer. Það er líka réttast og eðlilegast að hermenn allir hverfi úr sögunni og með þeim öll vopnaviðskiíti þjóðanna. Þó gengur það meir en tregt, það enda á þessari viðurkendu upplýsinga-öld, að fá þjóð- innar til að leggja niður vopnin. Og það má eiga það víst, eins víst og það að dagur kemur á eftir nóttu að vopn verða ekki lögð niður fyrr en allir gera það í senn. Alveg sama gildir hvað tollinn snertir. Honum verður ekki aflétt fyrr en allar helztu þjóðirnar gera það í senn. Á meðan hann þess vegna heldur áfram þýðir það eyðilegg- í öllum iðnaði og verzlun, ef eítt riki, sérstaklega ef það er tiltölulegt smá- ríki, léttir af sínum tollum, einmitt af þv£ að það ríki veitir öllum öðrum þjóð- um óhindraðan aðgang að sinum mark- aði, en er sjálft útilokað frá markaði allra annara þjóða. Þetta er svo aug- sýnilegt, að hvert barn skilur það. En setji maður nú svo, að viðtekin væri ‘free trade’ eins og á Englandi’, mundu menn þá álíta það æskilegt fyr- irkomulag? Það er margt í því fyr- irkomulagi, sem menn hér í landi hafa ekki hugmynd um. Rétt sem sýnishorn má geta þess, að leigi maður hús eða eign til árs, eða ef maður kaupir ein- hverja eign, geldur maður í sjóð stjórn- arinnar alt að $2,50; alt eftir því hvers virði eignin er, eða hvað hátt afgjaldið Það gjald er vitanlega auk allra annara gjalda fyrir skjöl og skrifstofnstörf í því sambandi. Vilji maður gerast vinnuhjú, þarf maður að kaupa leyfis- bréf að stjórninni sem kostar $3,75. Ef maður á peninga í sparisjóði, verður hann að gjalda stjórninni 2 cents í hvert skifti, sem hann dregur eitthvað úr þeim sjóði. Sömu upphæð verður hann að gjalda stjórninni í hvert skifti sem hann skrifar viðurkenningu fyrir meðtekna peninga, svo framarlega sem hann fékk inn meiri peninga í einu, en 5 dollars. Gefi maður skriflegt loforð um að borga ákveðna upphæð á ákveðn- um tíma, þarf maður fyrir það leyfi að borga stjórninni minst 2 cent (fyrir $5 skuldbindingar) og þaðan eftir því meira, sem upphæðin 'er meiri. Sendi maður vörur i einhverri mynd með jámbraut eða gnfuskipi, geldur maður 12 cents í sjóð stjórnarinnar. Kaupi maður lífsábyrgð fyrir $50 geldur mað- ur stjórninni 2 cent fyrir leyfið og það- an smáhækkandi. Sé ábyrgðin upp á $5000 eða þar yfir, er stjórnargjaldið $2,56. Vilji maður gifta sig og viðhafa lýsíngar í kyrkju kostar leyfið $10. Vilji mennlosast við lýsingar kostar leyfið $25. Vilji maður eiga hyssu verð- ur maður að gjalda stjórninni $2,50 fyr- (r og vilji maður skjóta dýr eða fugla með þeirri byssu kostar það $25. Þurfi maður að eiga, eða vilji maður eiga hest og vagn, borgar maður stjórninni $2,50 á ári fyrir hvert hjól á þeim vagni. Af því leiðir svo, að tvíhjólaðir vagnareru miklu almennari á Bret- landseyjum, en þeir sem fjögur hjól hafa. Prestur verður að gjalda $2,50 fyrir að mega prédia. Vilji hann mega gefa saman hjón verður hann að borga $2,50 fyrir leyfi til þess. Vilji hann eða þurfi að vigja hús til guðs- þjónustu, eða til að gera önnur slík prestsverk i, verður hann að borga $10 fyrir það. Vilji maður verða læknir, verður maður að borga stjórninni $50 og $125 ef hann vill verða meðlimur læknafélagsins. Vilji maður nema lög- fræði og ráðist í því skyni hjá lögfræð- ingi geldur maður stjórninni fyrir það $400. Að náminu loknu þarf hann svo aftur að borga $250 áður en hann fær að starfa sem lögmaður. Vilji hann verða ‘Notary Public’ verður hann að gjalda stjórninni fyrir það $150. Vilji hann komast enn framar í flokki lög- fræðinga verður hann að borga stjórn- inni alls $140 til. Vilji piltur læra hand verk og gauga í því augnamiði i þjón- ustu hjá ákveðnum manni borgar hann stjórninni 62 cents fyrir það leyfi. Þetta er lítið sýnishorn af því hvernig stjórnin hlýtur að heimta inn skatt þar sem ‘free trade’ er viðtekin. Vörutollurinn í Canada þykir leiðinleg- ur, en leiðinlegra mundi þetta og ótal annað þvílíkt þykja. Það rrftindi reynslan sýna. Murray & Lanman’s FLQRIDA WATER THE SWEETEST MOST FRAGRANT, MOST REFRESHING AND ENDURING OF ALL PERFUMES FOR THE HANDKERCHIEF, TOILET 0R BATH. ALL DRUGGISTS, PERFUMERS AHD GENERAL DEALERS. 1 i I k 1 li Þrír sannir vinir. Sem halda hvert lof'orð. Gigt- in hverfur. Nýrnasjúkdóm- ar taka til vængjanna. Melt- ingarleysi flýr á brott. Hin orðlögðu Suður-Ameríku lyf. Vér gétum fengið bezta vitneskju um þetta með því að láta aðra segja sat frá, hvað þessi dásamlegu Suður-Ame- ríku lyf gera og hafa gert. John Marshall frá Varne í Grey- county, þjáðist ákaflega af mjaðmagigt Frændi hans einn stakk upp á því. að hann skyldi reyna hið þrautgóða Suður- Ameríku gigtveikislyf. Og afleiðingin varð sú, að áður en þrir dagar voru liðnir, gat hann gengið nærri 4 mílur til Durham til að fá sér aðra flösku af með- ali þessu. Hann hélt áfram að brúka það og nú segist hann ekkert finna til þessarar kvalafnllu gigtar. Sumir sjúkdómar orsakast af því, að föst efni safnast saman á vissum stöðum í líkamanum og harðna þar. Þetta getur ekki læknast nema efni þessi uppleysist. Duft eða pillur geta ekki gert það. En Suður-Ameríku nýrnalyf hafa í sér efni þau er geta þetta John G. Nickel var einn af hinum al- þektustu bændum í Wallace township og þjáðist hann þunglega af nýrnaveiki með áKöfum kvölum. Ekkert gat linað honum þrautirnar þangað til hann reyndi þetta Suður-Ameriku nýrnalyf. Hann segir : “Þegar ég var að eins bú- inn að taka tvær inntökur var kvölin alveg horfin og síðan hefi ég aldrei fund- ið til hennar. Mér líður betur en nokkru sinni áður. Ef að einn eður annar vill skrifa mér til að Shipley P. O., þá skal ég glaður gefa allar mögulegar upplýs- ingar um þennan sjúkdóm minn og lækninguna.” Ef að nokkrum manni sýnist veröld- in svört og dimm, þá er það maður sá, er þjáist af meltingarlevsi. I tíu sam- fleytt ár þjáðist Davi,d Ileid frá Chesley, Ont., af lifrarveiki og meltingarleysi. Hann segir: “Stundum var mér lifrin svo viðkvæm, að ég ómögulega þoldi að láta snerta mig á síðuna. Eg reyndi ótal meðul. en alt til einskis; ég neydd- ist til að hætta vinnu og loks var mér komiö til að reyna “South-American Nervine.” En áður en ég var kominn ofan í hálfa flöskuna, var eg orðinn vel fær um að taka til vinnu aftur. Viltudrekka? Allar tegundir af óáfengum svala- drykkjum eru ætíð á reiðum höryium hjá Mr. Hall, 405 Ross Ave. Auk svaladrykkjanna hefir hann og birgðir miklar af allskonar aldinum og ávöxtum, hnetum, brjóstsykri af ótal tegundum. sætabrauði af ýmsum teg- undum; allskonar vindlum, reyktóbaki og reykpípum ; barnaglingri allskonar o. fl., o. fl. Og verðið er hvergi lægra í allri borginni. ICE CREAM er til á hverjum degi, ágætt og hvergi ódýrara en hjá John Hall, 405 Ross Ave. S. Anderson, 651 Bannatyne Ave. (Corner of Nena Str.) hefir fengið inn miklar byrgðir af Veggja-pappír sem hann selur með langtum lægra verð en nokkur annar pappírssali í þessum bæ. Hann hefar 125 mismunandi teg- undir, sem hann selur frá 5c. upp í 30c. rúlluna. Kæru landar í Argyle Hér með gef ég yður til kynna að ég er seztur að í GLENBORO, SEM JÁRNSMIÐUR og tek að mér allskon- ar járnsmíð. Geri við vagna, bæði tré- verk og járn; smíða nýja plógskera og geri við gamla; geri við sláttuvélar; járna hesta og yfir höfuð að tala tek ég að mér allskonar járnsmið.—Alt með vægasta verði. Komið inn og talið við mig þegar þið eruð «taddir í Glenboro. Yðar með virðingu, John Gislason. QLENBORO, - - - MAN Buxur! Buxur! Buxur! handa öllum. Bezta búðin í Winnipeg er Merki: Bla Stjarna 434 Main St. ALT ÓDYRT! Það gleður oss að geta tilkynt almenn- ingi og þó sérstakl'ega viðskiftavinum vorum, að Mr. N. Chevribr er nýkom- inn austan úr fylkjum og hefir þar tek- ist að kaupa afarmikið af tilbúnum föt- um fyrir svo líti,ð dollars virðið, að The Blue Store getur nú selt með lægra verði en nokk- ur önnur verzlun hér. Drengjabuxur vorar eru frá 25c. upp í 40c., 50c., 75c. og $1.00. Karlmanna- buxur frá $1.00 upp í $1.25, $1.50. $1.75 og $2.00. Þú hefir enga hugmynd um þessi kostaboð nema þú komir og kaupir af oss. Meðan erindsreki vor stóð við í Ottawa, lukkaðist honum að ná £ 200 alfatnaði úr skosku vaðmáli hjá hinum nafnkunna skraddara Cfaabot & Co., Nr 124 Rideau St., Ottawa. Þessi föt hafa öll verið gerð með mestu nærgætni af P. C. Chabot, sem gerir lángmest af fötum þeim, sem stjórnin lætur búa til Munið eftir því að öll þessi föt eru búin til eftir máli. Þau eru $26.00 til $28.00 virði, en vér seljum þau nú á $15.50, Þú verður að koma og skoða þessi föt til þess að sannfærast. Alt annað í búðinni selt á sama verði að tiltölu. 500 drengja alfatnaðir á 75c. og yfir. Hattar ! Hattar! fyrir hálfvirði. Gleymið ekki The BLUE STQRE, MERKI: BLÁ STJARNA. 434 MAIN STR. A. Chevrier. Ueldi liaun vitad að dauði af hjartveiki er ó- mögulegur ef að menn hafa við hendma Dr. Agnews hjartveikismeðal. Dásemdir kvefveikisdufts ins heimsfræga læknis. Öll meðul Dr. Agnews hafa hepnast ágætlega. Og svo má með fyllsta sanni segja um hjartveikismeðal hans. Þó að svo virðist sem sjúkíingurinn sé kominn í opinn dauðann, þá linar honum sýkin undir eins og hann tekur eina inntöku og sé haldið áfram að taka meðalið, þá læknast bráðlega hjartveikin. Þótt hún sé á svæsnasta stigi. Georg Crites. tollumsjónarmaðnr í Cornwall, Ontario, segir : “Ég þjáðist af hættulegri hjart- veiki í nokkur ár. Hvað lítið sem ég reyndi á mig varð ég lémagna af þreytu Meira en sex mánuði var ég undir lækn- ishendi og gat ekkert sint störfum mín- um. Mer linaði ekkert og ég var því nær búinn að gefa upp alla von, er ég fór að brúka Dr. Agnew’s hjartveikislyf en þá brá svo við, að eftir stuttan tíma var ég alheill orðinn.” Rev. John Scott, doktor i guðfræði, er gætinn maður og fastheldinn við gamiar venjur. Hann er prestur í Pres- byteratrúflokknum, en nann er að eins einn af þeim mörgu og merkustu prest- um í Canada, sem brúkað hafa Dr. Agnews kvefveikisduft og kannast við ágæti þess. Hefir hann fúslega gefið vottorð um liin ágætu áhrif og verkanir þess. Það er sama hvort menn fá að eins kvefþyngsli í höfuðið eðá hina verstu kvefveiki, sein engin önnur með- ul geta læknað, þá læknar þetta einfalda og þægilega meðal menn á 10 mínútum svo þeir verða alheilir. S. D. Detchon, 44 Church Str., Toronto, sendir til reynslu flösku og blásturpípu ef honum eru send lOc. í siifri eða frímerkjum. Hugsið um ykkur sjálfa. Og skoðið varninginn sem vér höfum nú á boðstólum. Hér gefst tækifæri sem menn ættu ekki að láta ónotað. Búð vor er vel full af vel völdum, nýjum og vönduðum varningi,sem fullnægir kröf- um tizkunnar og kröfum tímanna. Hjá oss er staðurinn til að fá liina beztu og ódýrustu fatnaði, skyrtur, skó, mat- vöru o. s. frv. AÚir eru ánægðir með varning vorn, enda fæst enginn honum betri. Verðið er ekki til fyrirstöðu, — það er h-vergi lægra. Verið vissir um að þið fáið fullgildi þeninga ykkar. Vér verðskuldum að þér verzlið við oss, ÞV1 vér gefum ykkur hina beztu kosti. ^ et borgum hæsta verð fyrir ull. Munið eftir staðnum. The Cavalier, N. Dak*

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.